21.2.2013 | 20:15
Má bjóða ykkur í bílferð frá Olafsgård til Stryn?
Datt í hug að bjóða ykkur í smá ökuferð frá Olavsgård í Osló til Austfjorden. Bæði var veðrið dásamlegt og svo er bara svo fallegt á þessari löngu leið um 9klst. ferð fjallabaksleið með hurtigrutan.
Erum lögð af stað, hér erum við við Gardemoen flugvöll og langur ökutúr eftir.
Svona byrja hraðbrautirnar út frá Osló, en svo smám saman fækkar akreinum og götur þrengjast, við ókum á E6, sem ég hef grun um að heiti Þrándheimsvegur. En hann liggur í gegnum öll þorpin og hraðinn fer frá 4o km upp í svona 90. Svo að leiðin er ef til vill ekki svo rosalega löng, heldur er hraðinn vel við hæfi.
Mikið um brýr og göng, enda vilja þeir vernda náttúruna, sérstaklega tún bænda, því hér er lítið ræktarsvæði stutt í klappir.
Allir firðir voru ísilagðir, og sumstaðar sá maður menn að veiðum gegnum ís.
Hér er stau... það er verið að sprengja fyrir nýjum vegi. Hér er mikil vegavinna í gangi allstaðar.
Var svolítið að spá í þetta mannvirki, hélt fyrst að hér ætti að koma brú yfir fjörðin, en komst svo að þeirri niðurstöðu að hér ætti að vera aðstaða til að setja báta niður í sjó. Það er nefnilega ekkert verið að vinna hinu meginn.
Jamm getur verið að fólk stöðvist í 20 mín. eða svo vegna sprenginga.
Hér er umhverfið gríðarlega fallegt og eins og ég sagði öll vötn og firðir og flóar ísilagðir.
Sól og snjór, en ennþá er brautin sæmilega breið... eða þannig.
Við erum búin að aka í nokkra klukkutíma og erum kominn til Hedemark.
Hér er svo ólympíuhöll, rosalega stór, þó ekki sjáist hún vel frá veginum.
Milli þess að aka á þröngum vegum með fjöll á alla kanta, er ekið gegnum engi og tún og svo um þorp og bæi, sem eru skemmtilega kósí svona í vetrarbúningi.
Skiltið þarna bendir á Lillehammer.
Svona eru vegirnir eins og ég man eftir þeim hér í den í Svíþjóð, nema þar var ekki svona akskipting, enda var það árin 1962 - 3.
Og göngin eru af öllum stærðum og gerðum.
Já engu við það að bæta.
Sumstaðar höfðu árnar rutt sér til rúms, og á einum stað sá ég gufu stíga upp af vatni var að hugsa hvort þar væri heitt vatn, eða hvort það kæmi heitt vatn frá einhverri verksmiðju.
Og allstaðar eru vegaframkvæmdir. Norðmenn eru sennilega að nota sér kreppuna til að fjárfesta í framtíðinni.
Hér sjást fiskimenn veiða gegnum ís. Á þessum fallega stað var greinilega túristabyggð, mikið af húsbílum og sumarbústöðum, hótelum og slíku. Greinilega vinsælt að dvelja hér á sumrin.
Fjöllin virkilega falleg og hæðir og ásar.
Svo eru akrar og myndarleg bændabýli.
Snjór en samt kósý.
Já við erum komin til Lillehammer.
Hérna sést í skíðasvæðið, stórglæsilegt.
Menn eru ekki bara að fiska á ísnum, heldur gera allskonar listaverk, sem gaman hefði verið að skoða nánar. En ég var bara á ferð í rútu, svo um það var ekki að ræða.
Fallegur bær Lillahammer, eða eigum við að segja Lillyhammer Kúrir svo skemmtilega upp í fjallinu.
Hann er reyndar alls ekki lítill, og hér sést skíðasvæðið betur.
En hér erum við nú.
centrum.
Norðmenn eru virkilega vinalegir og elskuleg þjóð. brosmildir og hlýjir.
Svo sést skemmtilega í húsin inn í skóginum.
Haffjell, hér var greinilega tívolí. En ég held að við séum einhversstaðar á Guðbrandsdalssvæðinu.
Og áfram var haldið norður á bóginn.
Og gönginn urðu fleiri og fleiri.
Og fjöllin voru farin að hækka, brúnum að fjölga líka.
Mikil hætta á elgum var skilti sem kom oft fyrir, einnig var varað við hjartardýrum. Það sáust líka sporin eftir þessi dýr í snjónum á ísilögðum fjörðunum.
Og vegirnir mjókkuðu, sumstaðar var maður farin að beygja mig innar í vagninn, því mér fannst stóru bílarnir sem komu á móti myndu rekast í rútuna.
Við erum ennþá á E6. Hér er verið að hlaða vegg, en það er mikið gert hér vegna jarðvegshalla.
Og áfram var haldið.
Við erum komin á slóðir Péturs Gauts.
En við höfum ekki tíma til að bregða okkur í leikhús.
En tími er peningar, og ég var á hraðferð.
Við ókum líka gegnum heimabæ Knuts Hamsun, og hér á þessum stað stoppuðum við í þrjú korter, ég var orðin frekar svöng, því ég hafði bara borðað eina brauðsneið með smjöri áður en ég lagði af stað, og drakk smá djús. Lagði af stað kl. um tíu og nú var klukkan að verða tvö.
En eins og sést hér eru skíðasleðarnir á góðu lífi í Noregi.
Svo mátti víða sjá að auglýst var allskonar sport, rafting og slíkt.
Jamm enn á E6, og stundum var bara að loka augunum og treysta á að bílstjórarnir gætu mæst.
En auðvitað gekk allt vel.
Eitt af þessum ferðamannaþorpum, eða kaupstöðum.
Og ég sá meira að segja eina einbreiða brú
Já það var sannarlega mikið um stórtækar vegagerðir, og ef til vill ekki vanþörf á.
En við erum farin að nálgast Stryn, við erum komin upp á Strynfjall, takið eftir enginn skógur meira, og sjáið stangirnar meðfram veginum. Ekki svona gular eins og heima, nei heldur bara örmjóar spýtur, en eins og sést ansi hreint háar.
Og hingað komu menn á snjósleðum til að sækja póstinn, biðu eftir rútunni.
Hér á fjallinu voru bústaðir, sá á skilti að þetta voru skíðabústaðir til að fara á skíði á sumrin. Hér er ekkert færi til að komast að bústöðunum að vetri til.
Steingrímsfjarðarheiði? Nei Strynfjall og þessar dökku þústir er grjót, og hér eru engin tré.
Við erum í 1000 m. hæð, og erum á leiðinni niður af fjallinu, og þá eru a.m.k. þrenn göng.
Ef til vill eins gott, því svo sannarlega var þessi leið hrikaleg.
Og það er farið að kvölda, búin að sitja í rútu heilan dag.
Ég er viss um að það er hér sem tröllin eiga heima.
Kambarnir hvað?
Og gamli máni komin að fylgjast með.
Klakadrönglar niður alla kletta.
Já það er hálf hrikalegt að fara niður 1000 metra si sona.
Jamm hrikalegt og er ég þó ýmsu vön.
Að komast niður að efstu húsum. Allstaðar sem við fórum voru hús upp um öll fjöll, lengst uppi og það virðist ekkert vera mokað að húsunum, hef grun um að hér eigi allir snjósleða eða traktora sem eru notaðir til að komast að húsunum á veturna. Sá hvergi að það væri mokað, en sá sumstaðar för eftir snjósleða og traktora.
Þær eru víða kirkjurnar hér?
Dagur að kveldi komin.
Kvöldsólin lýsir upp himininn rétt áður en hún hverfur.
Strynvatn.
Sonur minn beið mín svo í Stryn og þá var að koma sér heim á býlið, hann eldaði dýrindis mat, og það var gott að hvíla sig eftir þessa löngu setu. Ég held að ég fljúgi til baka
En vonandi hafið þið notið Norskrar náttúru því hún er svo sannarlega þess virði að skoða. Eigið góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.2.2013 | 15:52
Steingrímur að hætta í stjórnmálum?
![]() |
Steingrímur boðar blaðamannafund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.2.2013 | 19:07
Hín nýju framboð - Hinir nýju tímar.
Ég vil byrja á að óska Lýð og hans fólki til hamingju með þetta framboð. Hann var með Dögun í upphafi, en fljótlega kom í ljós að hans áhugi beindist annað en kjarnastefna Dögunar stendur fyrir. En hún er sem hér segir.
"Kjarnastefna Dögunar samþykkt stofnfundar 18. mars 2012
Dögun stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði sem bjóða munu fram í næstu alþingiskosningum og leggja áherslu á brýna hagsmuni almennings, hafa sammælst um neðangreindan stefnuramma. Öllum sem fallast á forgang þessara mála er boðið til þátttöku.
Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar og að verða það breytingaafl sem íslensk stjórnmál skortir svo mjög.
Öflugar aðgerðir í þágu heimila
Leysa verður skuldavanda heimilanna með róttækum hætti og bæta aðstöðumun almennings gagnvart fjármálavaldinu. Leita skal lausna á forsendum lántakandans frekar en lánveitandans. Við viljum tafarlaust afnám verðtryggingar á neytendalánum og almenna leiðréttingu húsnæðislána. Þá viljum við að lágmarks framfærsluviðmið verði lögfest og að vextir í landinu verði hóflegir.
Lýðræðisumbætur Ný stjórnarskrá
Ný stjórnarskrá fólksins komi sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis. Við teljum frumvarp Stjórnlagaráðs mikilvægt skref í átt til virkara lýðræðis og að þjóðin eigi að fá að kjósa um það. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja tafarlaust með lögum eftirfarandi rétt almennings: Persónukjör samhliða flokkakjöri. Kjósendur hafi rétt til að kjósa á milli einstaklinga og framboðslista. Þjóðaratkvæðagreiðslur óski 10% kjósenda þess. Íbúar kjördæma eða sveitarfélaga geti átt frumkvæði að atkvæðagreiðslu um sameiginleg hagsmunamál svæðisins óski 10% kjósenda þess. Sjálfstæði sveitarfélaga verði aukið og nálægðarreglan í heiðri höfð. Ákvarðanir verði teknar á því stjórnsýslustigi sem næst er málinu sjálfu.
Skipan auðlindamála og uppstokkun á stjórn fiskveiða
Orkufyrirtæki verði í eigu ríkis og / eða sveitarfélaga og nýting allra náttúruauðlinda til sjávar og sveita skal vera sjálfbær. Auk þeirra breytinga sem ný stjórnarskrá að forskrift Stjórnlagaráðs hefur í för með sér fyrir skipan auðlindamála er nauðsynlegt að stokka upp stjórn fiskveiða frá grunni. Tryggja þarf aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði ríki meðal landsmanna við nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Hámarka skal arð þjóðarinnar af auðlindum hennar. Virða skal álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur á fiskmörkuðum.
Siðvæðing stjórnsýslu og fjármálakerfis
Bæta ber siðferði og auka gegnsæi í stjórnmálum, stjórnsýslu og fjármálakerfinu. Nauðsynlegt er að þessir aðilar vinni eftir skýrum siðareglum. Lög verði yfirfarin með því markmiði að fyrirbyggja spillingu og herða viðurlög við henni. Tryggður verði aðgangur almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af. Þann aðgang má aðeins takmarka með lögum í lýðræðislegum tilgangi, svo sem til að tryggja persónuvernd. Komið verði í veg fyrir óeðlileg völd sérhagsmunaaðila og skilið á milli stjórnmála og viðskiptalífs. Bankaleynd skal afnumin að undanskildu því sem lög um persónuvernd kveða á um. Tryggt verði að eftirlitsstofnanir ásamt efnahags og viðskiptanefnd Alþingis hafi ávalt fullar rannsóknarheimildir gagnvart fjármálafyrirtækjum.
Lagalegt réttlæti og afdráttarlaust uppgjör við hrunið
Gera þarf ráðstafanir til að endurheimta illa fengið fé aðalgerenda í svonefndri útrás og höfða skaðabótamál á hendur þeim. Samfélag þar sem glæpir borga sig er ekki hægt að sætta sig við. Ganga þarf sérstaklega eftir því að sinnt verði brýnum rannsóknarefnum sem ætla má að hinir gamalgrónu stjórnmálaflokkar séu tregir til að láta rannsaka. Tryggja þarf góð starfsskilyrði sérstaks saksóknara og annarra sem koma að rannsókn efnahagsbrota í tengslum við Hrunið. Almenningur hafi aðgang að öllum upplýsingum sem rannsakendur Hrunsins afla, enda séu ekki sérstök rök fyrir því að halda þeim leyndum. Öllum skal gert kleift að leita réttar sins og verjast fyrir dómstólum, óháð efnahag.
Evrópusambandið
Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni. Ef aðildarviðræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta aðildarviðræðum í samræmi við 66. grein frumvarps Stjórnlagaráðs, munum við styðja þá niðurstöðu. Að öðrum kosti verði aðildarviðræður við Evrópusambandið kláraðar og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði."
Þessi málefni höfða sem sagt ekki til Lýðs og félaga. Einhvernveginn hefur mér skilist að hann hafi viljað leggja ennþá meiri áherslu á stjórnarskrána, og helst að það væri aðalkosningamálið. En það er auðvitað hans mál, en hann vann að þessum tillögum að því ég best veit.
En nú hefur sem sagt komið í ljós að áherslurnar liggja annarsstaðar. Það hefur verið mikil vinna lögð í þessa kjarnastefnu Dögunar og hún verður lögð til grundvallar öllu okkar ferli sem framboð.
Auk kjarnastefnunnar er verið að vinna málefnasamning um öll þessi mál, það er þegar búið að samþykkja sjávarútvegsstefnuna.
Það er verið að leggja lokahönd á önnur málefni. Og framboðslistar komnir á góðan rekspöl.
Ég verð að segja það frá eigin brjósti að það er bara gott þegar fólk sér að það á ekki samleið með fjöldanum og segir skilið við hann. Fer fram á sínum eigin forsendum. En mér skilst reyndar á Lýð að hann hafi meiri trú á sterkum einstaklingum heldur en sameiginlegri stefnumörkun. Það er auðvitað sjónarmið út af fyrir sig. Og að það hafi veri mesta ágreiningsmálið hans við Dögun að við vildum heldur vanda málefnasamstöðu og bíða með frambjóðendur, því okkur hefur fundist málefnin þurfi að vera límið í framboðinu en ekki einstaka sterkir frambjóðendur, sem jafnvel eru ekki sammála um einstök mál.
Það er nokkuð ljóst að það er mikil óánægja með fjórflokkinn, og fólk er leitandi og bíður eftir því hvað nýju framboðin geta boðið upp á. Þannig á það líka að vera. Í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér, er fólk ákveðið í að taka ákvörðun eftir málefnum en ekki endilega kjósa endalaust yfir sig það sama aftur og aftur. Sem sýnir ákveðin þroska einstaklinga, sennilega vegna þess að það er kynslóðaskipti í samfélaginu, og svo varð hrun sem breytti mjög mörgu og hvatti fólk til að taka aðra afstöðu.
Ef til vill fer að vora í samfélaginu, og eitthvað nýtt og betra kemst að. Fólk á að vera óhrætt við að veita nýjum framboðum atkvæði sitt, lesa það sem þau hafa fram að færa, og hversu mikla vinnu þau hafa lagt í sín málefni.
![]() |
Stjórnlagaráðsmenn stofna Lýðræðisvaktina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
14.2.2013 | 17:11
Vor í kúlu og vor í sinni.
Það er komið vor í kúluna mína. Það er yndisleg tilfinning og lyftir manni upp úr skammdegisdrunganum.
Nektarrínan mín farin að bruma heilmikið.
Jólarósin mín búin að brosa til mín síðan á jólunum.
Páskarósin ætlar að vera tilbúin á páskunum.
Krusinn hlær með öllum sínum gulu kollum, glaður yfir að vera til.
Og Pernillan mín er að byrja vorið líka, hún blómstrar svona þrisvar yfir sumarið þessi elska.
En ég var veðurteppt fyrir sunnan um daginn í nokkra daga, og gisti hjá bróður mínum og mágkonu. Yndislegur tími, við höfum ekki átt svona góðar stundir lengi.
Langt síðan við bróðir minn höfum spjallað svona mikið saman og rifjað upp gömlu góðu dagana, barnæskuna og allt fólkið sem við höfum verið samferða langan eða stuttann tíma. Það er ómetanlegt að gefa sér tíma fyrir þá sem maður elskar.
Ég var eins og blóm í eggi, og það var hreinlega dekrað við mig, takk elsku Badda mín og Nonni.
Og Nonni er eins og allir karlkyns í ættinni aðalkokkurinn á sínu heimili
Og mágkona mín sat ekki auðum höndum, þessar fallegu flíkur var hún að prjóna og hekla.
Fallegt fyrir falleg börn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.2.2013 | 15:51
Takk Herdís.
Dr. Herdís styður Dögun
Dr. Herdís Dröfn Baldvinsdóttir hefur lýst yfir stuðningi við Dögun í komandi kosningum, en dr. Herdís hefur gert fræðilega rannsókn á samvirkni íslenskra atvinnurekenda og verkalýðssamtaka á sviði fjármála með sérstöku tilliti til lífeyrissjóðanna, þar sem mat var lagt á afleiðingar þessarar samvirkni og skoðaðar þær mótsetningar að hún eykur verkalýðshreyfingunni afl og um leið dregur úr henni máttinn. Jafnframt er gefin innsýn í ríkjandi valdhringjakerfi Íslands.
Leitt er þar í ljós að á Íslandi er ráðandi valdakjarni með sterka aðstöðu í stærstu hlutafélögum og fjármálastofnunum. Hann stýrir og samhæfir stærstu atvinnufyrirtæki landsins og leggur öll ráð um félagslegar og stjórnmálalegar aðgerðir. Hann er félagslega og efnahagslega samloðandi. Það sést annars vegar í því að einstaklingar hans fjárfesta í sömu fyrirtækjum en þó enn skýrar þegar skoðað er flókið samspil þeirra í stjórnarsetum sem gerir tengsl þeirra að þéttriðnu neti. Þetta hefur skilað kjarnanum markvissri aðstöðu til að stýra meginstraumum fjármagnsins.
Niðurstöðurnar benda til að starfsemi lífeyrissjóðanna hafi innlimað verkalýðshreyfinguna í þennan valdakjarna með útbreiddu samtengineti bæði persónulegu og fjárhagslegu og í samtengdum stjórnunarstöðum.
Það er hér sem mótsetningarnar sýna sig. Verkalýðshreyfingin hefur orðið afar veik fyrir félagsmenn sína en mjög sterk fyrir valdakjarnann.
Svo sannarlega fagna ég hverjum þeim sem sér hve réttlátt og velunnið þetta framboð er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.2.2013 | 11:56
Fundur í Iðnó í kvöld. - Þið eruð þjóðin.
Hvet fólk til að fara á fund í kvöld.
- Þið eruð þjóðin - Borgarafundur í Iðnó mánudagskvöld
- Ný gögn vegna vafasams samráðs
- Frumvarp um afnám verðtryggingar
- Lögsókn gegn verðtryggingu í farvegi
- Fleiri félagsmenn, öflugri samtök
- Prófkjör, stjórnmálaflokkar og komandi Alþingiskosningar
Þið eruð þjóðin -Borgarafundur í Iðnó á vegum Dögunnar
Formaður HH flytur erindi á borgarafundi Dögunnar í Iðnó mánudaginn 11. febrúar kl. 20:00. Sjá nánar hérog hér. Félaghsmenn HH eru velkomnir á fundinn sem og aðrir borgarar. Erindi formanns er um "hernaðinn" gegn heimilunum.
Vildi að ég kæmist, en fjarlægði gerir fjöllin blá og mennina mikla. Hvet fólk til að fjölmenna og hlusta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2013 | 20:37
Helgarferð og þorrablót í Reykjanesi.
Enn eitt þorrablótið hjá mér var á síðustu helgi. Og það í hinu yndæla Reykjanesi, með kajakklúbbnum sem Elli minn er félagi í og er algjörlega frábær félagsskapur.
Eitt af aðal aðdráttarafli Reykjaness er lauginn, fyrir utan elskulegt fólk og góða þjónustu.
Það er bara svo notalegt að sitja í stærsta heitapotti landsins og þó víðar væri leitað
Enda notfæra gestirnir sér laugina ómælt.
En þetta var auðvitað í og með kajakaferð, og nú er verið að klæða sig upp á til að fara út á sjó. Það var sólskyn en töluvert kalt, svo eins gott að vera í góðum hlífðarfatnaði.
Já þetta er allt að koma.
Dísa mín var að fara í laugina, og riddarinn við hliðina á henni er Hilmar Pálsson.
Ég get alveg upplýst um að það er sko ekkert grín að að klæða sig í þessa búninga, því þeir eru vatnsheldir og níðþröngir á ýmsum stöðum.
Hér sjáum við tvo heima, en samt bara fjörður á milli, grasið og hitinn hérnamegin og ískaldur vetur á Snæfjallaströndinni, enginn tilviljun á því nafni.
Já ég veit ég sting dálítið á stúf En ég ætlaði að taka nokkrar myndir og það var kalt.
Tilbúinn í slaginn.
Og einn af öðrum týndust kajakræðararnir niður að sjávarmáli eins og litlir gæsaungar.
Og þá þurfti að veita vatninu úr kajökunum, því það hafði rignt um nóttina.
Þennan morguninn var róið inn í Reykjafjörð en í gærkveldi í kolniða myrkri réru þeir út í Borgarey.
Með í för voru nemendur í háskólasetrinu, sem koma allstaðar að úr heiminum, þau hafa verið að róa á kajak í vetur með klúbbnum og stóðust ekki mátið að koma með inn í Reykjanes á þorrablót og róður.
Fjörugir og skemmtilegir krakkar, eða ungt fólk.
Svo var aðeins sest niður til að gleðja sig fyrir þorrablótið, á þessum diski var rúgbrauð með skötustöppu og hún var ekki lengi að klárast.
Rokkbændur, sem er hljómsveit hjóna sem stunda búskap, spilaði fyrir dansi, hér er rokkbóndinn.
Hér er svo frúin ásamt Dísu og gamla klárnum Valda, sem hélt uppi fjörinu langt fram eftir kvöldi.
Það þurfti margt að spjalla.
Og það var ekki á kot vísað, hér svignuðu borð undir gómsætum kræsingum, bókstaflega.
Það var fullbókað, því fólki finnst gott að skreppa inn í Djúp og gista og komast á vinsælt þorrablót, öllu verði haldið í hófi, og þjónustan öll til fyrirmyndar.
erlendu nemendurnir, þeir voru held ég fjórtán sem komu og skemmtu sér afskaplega vel.
Og það eru líka prinsessur í Reykjanesinu með pabba og mömmu.
Rafn skútueigandi gerir sér gott af hlaðborðinu.
Það nýjasta á boðstólum voru reykt svið, Elli borðar þau með bestu lyst.
Já svo sannarlega gerðu gestirnir sér gott af matnum.
Og svo þurfti að spjalla.
Og gestir voru á ýmsum aldri, sá stutti horfir í forundan á allt þetta prúðbúna fólk og alla litadýrðina.
Hér er Jói flottur nýkomin frá Thailandi sólbrúnn og sætur.
Ekki frímúrarar heldur bara múrarar og ekki verri fyrir það.
Og fólk fór upp og skemmti hvort öðru hér er veislustjórinn og gestir. Valdi og Sigríður að segja skemmtisögur.
Halldór á BB er nú vanari að vera fyrir aftan myndavélina, enda mundar hann hana hér.
Já þær voru nokkrar prinsessurnar á þessu balli.
Og rokkhjónin voru svo sannarlega í stuði, og voru frábær, og allir í stuði með þeim á ballinu, sem haldin var á Baldursbrá(Baldursbar) stundum kallaður eftir ákveðnum öðlingi sem þótti sopinn góður. Þjóðsagnapersónunni séra Baldri í Vatnsfirði.
Elli í góðum félagsskap.
Og gamli gráni stóð þeim snúning þeim yngri.
Já það var sannarlega skemmtileg helgi.
Frændi minn á Laugalandi Þórður Halldórsson yngri með sinni ektakvinnu.
Og þeir skemmtu sér vel Háskólasetursnemendur.
Glaður og skemmtilegur hópur, og það hefur örugglega verið heilmikil upplifun hjá þeim að fara á ekta íslenskt þorrablót og svo í risastóra heita laug.
Og vertarnir taka snúning eftir vel heppnaða veislu.
Já svo sannarlega skemmtu þau sér vel.
Ég held að þau hafi komið alla leið frá Siglufirði.
Æringjar.
Og virðuleg hjón á besta aldri Þór og Álfhildur.
Og Guðni Páll og Jón (Nonni Búbba) að hygge sig.
Þessi ungi maður er að búa sig undir að sigla á Kajak kring um landið á aðeins tveimur mánuðum, og safna áheitum fyrir Samhjálp. Eins gott að fylgjast með honum. Hann verður einn á sjó allan tímann, en kemur í land á nóttinni. Frábært af ungum manni. Það mættu vera fleiri svona frábært ungt fólk eins og hann og heimskautafarinn okkar.
Í bók um Viggó Viðurdan dönsuðu ljósastaurarnir, hér leggja þeir sig bara, ef til vill eftir dans
Og svo var gott að komast út á sjó á sunnudaginn og hrista af sér slenið og matinn.
Ég hef aldrei prófað, búið að marg reyna að koma mér út á sjó. 'Eg held að ef hægt væri að troða mér ofan í einn svona, kæmist ég ekki upp úr aftur fyrr en eftir hálfsmánaða svelti
Og að landi koma allir litlu gæsarungarnir aftur.
Halldór er einn af fremstu kajakræðurum landsins og þó víðar væri leitað. Hann hefur verið að kenna útlendingunum og mörgum öðrum að róa, og gerir það afar vel. Fyrir utan að vera ein af driffjöðrunum í Sæfara kajakklúbbi Ísafjarðar.
Og hér er hann einmitt að kenna einum nemanda að velta sér á kajak.
Ákveðin tækni en margar aðferðir við að velta sér og best að æfa sig í lauginni.
Lagt upp þetta er ein aðferðin.
Þarf ákveðna nákvæmni.
Svo er rúllað yfir.
Á hvolf.
Og komið upp á hinni hliðinni.
Og rétta. Sannarlega flott að sjá þetta.
En nú var komin tími til að halda heim, þetta var búið að vera yndislegur tími með góðum vinum og öðru góðu fólki. 'Eg segi bara innilega takk fyrir mig
Falleg mynd í Djúpinu að lokum. Og eigið gott kvöld.
Bloggar | Breytt 8.2.2013 kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.2.2013 | 18:12
Hinn nýji formaður Samfylkingar - jafnaðarmannaflokks Íslands.
Sigurviss Árni Páll.
Já blessaður karlinn, hann kom sá og sigraði á landsfundi Samfylkingar. Hann hélt svo sína sigurræðu eins og vera ber. Þar sem hann talar mikið um frið og að koma á nýjum stjórnarháttum og breyta gömlu hjólförunum. Ég er viss um að hann meinti hvert orð, það verður ekki af honum tekið. Svo þvert ofan á það sem hann ætlaði sér er hann nú kallaður friðarhöfðinginn og það honum til háðungar. Hann gaf þarna skotleyfi á sjálfan sig með því að vera svo barnalegur að halda að hann gæti bara si sona breytt úr laufi í Spaða með einni sigurræðu. Hann sagði að nú væri bara að snúa bökum saman og vinna saman að því að taka á vandamálum Íslands og sameinast um að leysa þau vandamál.
Málið er bara að hans lausn á lausn á vandamálum Íslands eru þau ein að ganga inn í ESB. Hann þekkir enga aðra leið og mun tala eingöngu fyrir henni ef marka má það sem hann hefur látið út úr sér í allskonar viðtölum undanfarið.
Hann gleymdi bara í sigurvímu sinni, að Samfylkingiin bæði sú litla og stóra eru einu flokkarnir með það á dagskrá eitt mála að halda áfram inn í ESB. Allir hinir flokkarnir vilja annað hvort slíta viðræðum, eða fá kosningu um hvort íslendingar vilja ganga þarna inn. Sem er eina raunhæfa leiðin til að meta hvort íslendingar eru reiðubúnir til þessa eða ekki. Þetta skynja aðrir flokkar, svo sem eins og Sjálfstæðisflokkur, Framsókn,Hægri grænir, meira að segja VG er á þeirri línu, þó þau dansi beggja meginn og beri alltaf klæðin á báðum öxlum. Dögun er frekar klofin í þessu máli, en flestir eru þó á því að þjóðaratkvæðagreiðsla um málið sé það eina rétta, enda kennir sá flokkur sig við farmboð um sanngirni, réttlæti og lýðræði, og vill hlusta á grasrótina og það sem þjóðin vill sjálf á hvorn veginn sem er. Nýr flokkur í bígerð er svo Alþýðufylkingin sem er eins og flestir alfarið á móti ESB.
En víkjum nú að friðarhöfðinganum.
Hann sem sagt sigraði í formannskjöri með miklum glæsibrag. Flestir sem eitthvað fylgjast með vita að hann var ekki kandidat Jóhönnu, það var Guðbjartur, meira að segja voru margir í ríkisstjórn búnir að lýsa yfir stuðningi við Guðbjart.
Það var því ljóst að klíkan var ekki ánægð. Enda hefur komið á daginn að hann ræður ekki við ástandið, þvert ofan á yfirlýsingar um að hann ætlaði að skoða málin og hrókera.
Las DV í morgun, þar er ein fyrirsögnin á forsíðu: Sagður gefa skotleyfi á Jóhönnu. Inn í blaðinu er svo fyrirsögnin: Ólga vegna Árna Páls, stefnuræðan mælist misvel fyrir, litlar líkur á ráðherrastól strax.
Þó þetta sé auðvitað ekki vottfest, né staðfest, þá er nokkuð ljóst að blaðamenn sérstaklega á DV leggja sig fram um að hlusta á þá sem eru innanbúðar og vilja tjá sig um óvinsæl mál.
Þegar lesið er milli línanna kemur í ljós ákveðin saga. Sum sé sú að Jóhanna og hennar lið hafi ekki verið par ánægð með frammistöðu nýkjörins formanns, enda talaði hann niður störf þeirra og gerði lítið úr þeim.
Hann taldi sig hafa umboð til að skáka Jóhönnu úr forsætisráðherrastóli og taka hennar stað. En komst að því að formaður í stjórnmálaflokki þó í ríkisstjórn sé, hefur ekkert vald til að rótera ríkisstjórn nema með samvinnu við ríkisstjórnina sjálfa.
Það er líka ljóst að þó svo Jóhanna hefði gefið eftir sætið sitt (sem mér finnst ekki í hennar anda) Þá hefði upphafist valdabrölt milli flokkanna tveggja og VG hefðu ekki sætt sig við slík býtti, þeir hefðu þá jafnvel gert tilkall til forsætisráðherrastólsins.
Þannig er nú komið fyrir friðarhöfðingjanum, hann er fastur í pitti sem hann stökk ofan í sjálfviljugur.
Það er nefnilega svo að ef þú vilt frið, þá byrjar þú ekki á því hella olíu á eld, eða ætlast til að allir hlýði því sem þú trúir á. Friður felst nefnilega einmitt í ákveðnu lítillæti, og að hlusta og gera málamiðlanir.
Það er einmitt það sem Árni Páll þarf nú að læra meðan hann býður eftir upphefðinni, að átta sig á að það er ekki nóg að hafa vissu fyrir einhverju, og telja að það sé hin eina og sanna vissa. Heldur þarf heilmikið af lítillæti, umburðarlyndi fyrir skoðunum annara og að læra að hlusta á hvað aðrir vilja.
En vonandi fer hann í sjálfshugleiðingu og naflaskoðun, en festist ekki í því að það sem hann vill sé nafli alheimsins og það sé það eina rétta.
En sennilega þarf hann að lúta í dufti fyrir drottningu sinni, því hún er bæði viljaföst og ákveðin kona sem lætur sitt ekki svo auðveldlega af hendi.
![]() |
Ekki ástæða til breytinga á ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
5.2.2013 | 09:38
Forystumenn sem trúa ekki á landið sitt og þjóðina.
Árni Páll flýgur þessa dagana með himinskautum, breiðir út faðmin og segir að nú verði allt gott, hann ætli að breyta öllu, nú geti allir orðið vinir og einhent sér í að ganga saman með englasöng inn í ESB.
Eins og alþjóð veit, þá er það fullvissa Árna Páls að það sé eina von Íslands að ganga þar inn. Við eigum okkur sem sagt ekki viðreisnar von sem sjálfstæð þjóð. Enda erum við svo skyni skroppin að hans mati að við skiljum alls ekki hvað hann er klár.
Í MBL í gær voru þrjár fréttir, sem ekki létu mikið yfir sér, og verða örugglega ekki tíundaðar í Speglinum, hjá Agli Helga, né neinum af fréttamiðlum ESB.
Sú fyrsta segir að Evran hafi lækkað gagnvart Bandaríkjadollar. http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2013/02/05/mikil_laekkun_i_hong_kong/
Á var það, er þetta ekki alveg pottþéttur gjaldmiðill, traustatæki okkar til að lifa af? Getur hún þá líka lækkað?
Annað er frétt um að Kýpur sé of lítið til að bjarga. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2013/02/04/kypur_of_litil_til_ad_bjarga/
Sem sagt litlu ríkin sem ekki ógna veldi ESB mega bara eta það sem úti frýs. Kýpurbúar eru um milljón, við erum 360.þúsund. Ætli það taki því nú að bjarga slíkri þjóð. Enda er það bjargföst trú mín að kommissararnir í Brussel ágirnist eingöngu gæði landsins og við megum bara dingla með, áhrifalaus og svipt auðlindum okkar, í þágu Evrópu, sem þarf á þessum auðlindum að halda fyrir sig og sína.
En síðast og ekki síst er fréttin um að ESB kommissarar ætli að fara út í að setja á stofn netlöggu, þeir ætla nú í vor að fara að þjálfa upp fólk til að sinna þessu verkefni, og það á að kosta litlar tvær milljónir punda. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2013/02/04/vill_taka_a_gagnryni_a_esb_a_netinu/
Þeir eru nefnilega svolítið viðkvæmir blessaðir fyrir andmælum og andstöðu við gullkistuna þeirra. Því er eina ráðið að koma í veg fyrir alla gagnrýni. Hvernig byrjaði nú aftur netskoðunin í Kína? Eða Rússlandi?
En mín skoðun er sú á Samfylkingunni og Bjartri Framtíð sem eru svo til sami flokkurinn, að það sé næstum óþolandi að forystufólk stjórnmálaflokka á Íslandi reyni að komast til valda, með það eitt að leiðarljósi að leiða þjóðina inn í ófrelsi eins stærsta einkahagsmunabákns sem finnst í vestrænum heimi. Því mér sýnist þetta ekkert vera annað en yfirtaka á réttindum fólks, eignum þess og frelsi. Og allt til að maka eigin krók. Enda eru þeir verðlaunaðir með feitum embættum í Lúxemburg, Brussel og Berlín sem harðast ganga fram í landráðunum. Þetta eru ef til vill harkaleg orð, en þetta lítur svona út í mínium augum, og allar nýjustu upplýsingar sem eru betur fer smátt og smátt að koma fram, m.a. vegna dagblaða sem leita sannleikans í þessum málum, þ.e. erlendra, því okkar fjölmiðlar dansa bara með bákninu að því er virðist.
Þess vegna er eina von okkar að við sjálf verðum enn og aftur að grípa til okkar ráða til að hafa vit fyrir stjórnvöldum. Við höfum sýnt að við getum það.
Stal þessari skemmtilegu mynd af netinu, man ekki hvaðan, vona mér fyrirgefist það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
1.2.2013 | 01:49
Þorrablót á þorrablót ofan.
Ég er að fara á þorrablót inn í Reykjanes á morgun og verð þar yfir helgina. Það verður frábært með Sæfara á Ísafirði, þeim frábæra kajakklúbb ásamt mínum ektamaka.
En ég er aldeilis búin að vera á þorrablótum undanfarið, get svo svarið það.
Fór á þorrablót hjá Frjálslyndaflokknum á síðustu helgi, hér eru systkini úr Kristjánshúsi frá Ísafirði. Hilda, Laufey og Jakob.
Og hér er einn bróðirinn, skólabróðir minn Guðjón Arnar að sýna eina afurð bróður síns doktor Jakobs sem er ekta íslenskur fjallagrasnafs.
Einhvernveginn varð þessi flokkur eitthvað meira en bara framboð, þar réði vinátta, virðing og barátta allt í senn. Og það verður aldrei frá okkur tekið.
Þó óvandað fólk reyndi að klína á okkur rasisma og allskonar illvirki, þá var það einungis andstyggðar áróður sem sumt fólk sem telur sig málsmetandi fólk, en hefur í mínu tilfelli hratað niður í ruslflokk eins og samkvæmt Moodies, eins og til dæmis Illugi Jökulsson, Kolbrún Bergþórsdóttir, Baldur Þórhallsson, Davíð Þór, eða hvað sá ágæti klerkalærdómsmaður nú heitir, ásamt öllum forystumönnum stjórnmála fjórflokksins. Sem þvert gegn sannfæringu sinni og vitneskju tóku æruna af því besta fólki sem ég hef þekkt í stjórnmálum fyrr og síðar. Og ég er reyndar að tala um félaga um allt land, en ekki bara þá sem hér höfðu aðstöðu til að mæta.
En auðvitað á þetta að vera gleðifærsla, því hér erum við jú að skemmta okkur, eins og sannri fjölskyldu sæmir, því svo sannarlega er eins og góð fjölskylda sé að hittast þegar við hittumst öll sem eitt, og það er góð tilfinning.
Hér er Addi að skenkja þennan frábæra fjallagrasadrykk til fólksins, sem var vel þegin.
Þó fólk hafi þannig séð ákveðið að fara aðrar leiðir, þá er Frjálslyndi flokkurinn með sterkt aðdráttarafl.
Sem segir bara eitt; vinátta og samhyggð nær yfir alla pólitík, þannig flokkur var Frjálslyndi flokkurinn, einstakur og frábær.
Byggður á föstum grunni, með frábæru fólki sem má ekki vamm sitt vita.
Hér er okkar ágæti Sægreifi hinn eini og sanni, sem kom á þorrablótið beint frá spítala, til að gleðjast með sínu fólki, hér að skera niður reyktan ál.
Það er nefnilega þannig að þessi stjórnmálaflokkur var byggður á allt öðru en hreinni pólitík, hann var fyrst og fremst byggður á vináttu svo margra og málefnum og viljanum til að gera jákvæðar breytingar fyrir fólkið í landinu, og það er bara þannig og verður áfram.
Þessa eiginleika leggjum við inn í hinn nýja flokk Dögun. Þá hreinskiptni, vináttu og virðingu fyrir öllum, og það er einmitt það sem ég er svo stolt af að tilheyra.
Við komum allstaðar frá, erum ólík og höfum algjörlega ólíkan bakgrunn, en við erum bara Frjálslynd og þykir vænt um hvort annað.
Og það er nákvæmlega það sem við leggjum til í púkkið með þeim félögum okkar sem við höfum ákveðið að vinna með í næstu kosningum.
Og hér var góður matur á boðstólum frá Múlakaffi hvað annað?
Elsku Dísa, Steini og Pétur þið eruð sko flottust.
Já doktor Jakob sem hefur hannað fjallagrasalíkjörinn, sem svo sannarlega er hollur og líka ótrúlega bragðgóður.
Þeir tveir Addi og Kobbi eru tveir bræður og svo eru 7 systur ef ég man rétt. Engin smá barnahópur þeirra Jóhönnu og Kristjáns.
Þetta vakti líka athygli mína hehehe ef þið nennið að lesa hvað þarna stendur, þá er ekki allt sem sýnist.
En að lokum með þetta ágæta þorrablót, þá vil ég að lokum segja að ég held að Frjálslyndi flokkurinn hafi einfaldlega verið og gott mál til að endast, þarna var heiðarleiki og vilji til að gera vel í fyrirrúmi, en það var bara ekki tíminn til þess þá. En ég segi bara þetta leggjum við inn í Dögunarbankann og ég er viss um að þar munum við blómstra, vegna þess að þar er fólk sem hefur sömu væntingar og við, og sömu nálgun með vináttu, baráttu og þann kærleika sem þarf til að gera góða hluti.
Öflugur baráttumaður, einn af mörgum.
Þar sem Frjálslyndi flokkurinn er, er aldrei langt í harmonikku eða fjöldasöng.
Og allir skemmtu sér vel.
Og þarna voru gamalmál höfð um hönd
Grétar Mar með skemmtilega brandara. Og Guðmundur vinur okkar talaði út frá hjónabandinu það var mikið hlegið að því.
Bara allt svo gaman.
Sægreifin kvaddur með virktum, heiðursgestur og frábær stuðningsmaður.
Og svo er sungið eins og vera ber.
Málið er að ég myndi aldrei þrífast í pólitík sem væri bara valdabrölt, en þar sem ég hef verið með þá er það bara þannig, vinátta og virðing, þessa eiginleika finn ég nákvæmlega líka í Dögun, þó tekist sé á um mál, þá er gagnkvæm virðing og talað sig niður á ásættanlega niðurstöðu, enda er enginn foringi sem getur tekið af skarið, þar eru menn bara allir jafnréttháir og það er notalegt.
Ef einhverjum finnst þetta væmið, þá þarf hinn sami að fara í naflaskoðun og spá í hvað hann vill í pólitík, hvort hann vill foringjaræði, þar sem ákveðin forysta varðar veginn og sá þarf bara að aðlaga sig að því, eða hvor menn eru eiginlega ginkeyptari fyrir að fá að leggja sitt af mörkum, og segja sína skoðun, eina sem þarf er að nenna að mæta og tala. Ekkert voða flókið.
Hér er svo annað þorrablót í þetta sinn fjölskylduvænt, tengdafólk dóttur minnar.
Ég var svo heppin að nákvæmlega meðan ég var í höfuðborginni, átti dóttir mín frá Austurríki erindi á heimaslóðir eiginmannsins, og nákvæmlega þá var mér boðið í þeirra árlega þorrablót.
Dóttir mín og mágkona hennar. Hún er reyndar afar heppin með tengdafólk, því þau eru afskaplega yndæl og fjölskylduvæn.
Raunar alveg yndislegt fólk.
Mamma, pabbi, dætur og barnabarn.
Og við kerlurna góða saman.
Yndislegt fólk sem stendur að dóttur minni.
Og hér er hún í fjölskyldunni frá hinni hliðinni.
En svo á ég eftir tvö þorrablót ég get svo svarið það. Á morgun ætlum við Elías inn í Reykjanes með Sæfara kajakklúbb og dvelja þar yfir helgina, og svo er annað þorrablót 16. febrúar Sléttuhreppsmót.
Þannig að ég má hafa mig alla við að skemmta mér Talandi um þjálfun... er þetta ekki líka góð þjálfun.
En það sem ég vil segja að lokum er þetta: Ég tel min nokkuð þroskaðan einstakling, og reyndar ágætlega færa um að velja mér félagsskap við hæfi. Og þess vegna elsku vinir sem hafið áhyggjur af því að ég sé að velja rangan félagsskap, þá get ég sagt að það er bara alls ekki rétt. Ég er nákvæmlega í þeim frábæra og góða félagsskap sem ég hef valið mér bæði hvað varðar vini, fjölskyldu og stjórnmálaafl. Svo ekki hafa áhyggjur af mér. Ég hef nefnilega plummað mig ágætlega gegnum lífið, og er alveg dómbær á hvar finna má kærleika, umhyggju, réttlæti og allt það góða sem hægt er að hugsa sér. Það er svo annað mál hvort þið skynjið það og meðtakið, því ég er viss um að við öll viljum gera Ísland betra. Þá þarf aðeins að hugsa hvernig, og hvað við viljum leggja á okkur.
Og svo segi ég bara góða nótt elskurnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar