Hín nýju framboð - Hinir nýju tímar.

Ég vil byrja á að óska Lýð og hans fólki til hamingju með þetta framboð.  Hann var með Dögun í upphafi, en fljótlega kom í ljós að hans áhugi beindist annað en kjarnastefna Dögunar stendur fyrir.  En hún er sem hér segir.

"Kjarnastefna Dögunar – samþykkt stofnfundar 18. mars 2012

Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði sem bjóða munu fram í næstu alþingiskosningum og leggja áherslu á brýna hagsmuni almennings, hafa sammælst um neðangreindan stefnuramma. Öllum sem fallast á forgang þessara mála er boðið til þátttöku.

Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar og að verða það breytingaafl sem íslensk stjórnmál skortir svo mjög.

Öflugar aðgerðir í þágu heimila
Leysa verður skuldavanda heimilanna með róttækum hætti og bæta aðstöðumun almennings gagnvart fjármálavaldinu. Leita skal lausna á forsendum lántakandans frekar en lánveitandans. Við viljum tafarlaust afnám verðtryggingar á neytendalánum og almenna leiðréttingu húsnæðislána. Þá viljum við að lágmarks framfærsluviðmið verði lögfest og að vextir í landinu verði hóflegir.

Lýðræðisumbætur – Ný stjórnarskrá
Ný stjórnarskrá fólksins komi sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis. Við teljum frumvarp Stjórnlagaráðs mikilvægt skref í átt til virkara lýðræðis og að þjóðin eigi að fá að kjósa um það. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja tafarlaust með lögum eftirfarandi rétt almennings: Persónukjör samhliða flokkakjöri. Kjósendur hafi rétt til að kjósa á milli einstaklinga og framboðslista. Þjóðaratkvæðagreiðslur óski 10% kjósenda þess. Íbúar kjördæma eða sveitarfélaga geti átt frumkvæði að atkvæðagreiðslu um sameiginleg hagsmunamál svæðisins óski 10% kjósenda þess. Sjálfstæði sveitarfélaga verði aukið og nálægðarreglan í heiðri höfð. Ákvarðanir verði teknar á því stjórnsýslustigi sem næst er málinu sjálfu.

Skipan auðlindamála og uppstokkun á stjórn fiskveiða
Orkufyrirtæki verði í eigu ríkis og / eða sveitarfélaga og nýting allra náttúruauðlinda til sjávar og sveita skal vera sjálfbær. Auk þeirra breytinga sem ný stjórnarskrá að forskrift Stjórnlagaráðs hefur í för með sér fyrir skipan auðlindamála er nauðsynlegt að stokka upp stjórn fiskveiða frá grunni. Tryggja þarf aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði ríki meðal landsmanna við nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Hámarka skal arð þjóðarinnar af auðlindum hennar. Virða skal álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur á fiskmörkuðum.

Siðvæðing stjórnsýslu og fjármálakerfis
Bæta ber siðferði og auka gegnsæi í stjórnmálum, stjórnsýslu og fjármálakerfinu. Nauðsynlegt er að þessir aðilar vinni eftir skýrum siðareglum. Lög verði yfirfarin með því markmiði að fyrirbyggja spillingu og herða viðurlög við henni. Tryggður verði aðgangur almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af. Þann aðgang má aðeins takmarka með lögum í lýðræðislegum tilgangi, svo sem til að tryggja persónuvernd. Komið verði í veg fyrir óeðlileg völd sérhagsmunaaðila og skilið á milli stjórnmála og viðskiptalífs. Bankaleynd skal afnumin að undanskildu því sem lög um persónuvernd kveða á um. Tryggt verði að eftirlitsstofnanir ásamt efnahags og viðskiptanefnd Alþingis hafi ávalt fullar rannsóknarheimildir gagnvart fjármálafyrirtækjum.

Lagalegt réttlæti og afdráttarlaust uppgjör við hrunið
Gera þarf ráðstafanir til að endurheimta illa fengið fé aðalgerenda í svonefndri útrás og höfða skaðabótamál á hendur þeim. Samfélag þar sem glæpir borga sig er ekki hægt að sætta sig við. Ganga þarf sérstaklega eftir því að sinnt verði brýnum rannsóknarefnum sem ætla má að hinir gamalgrónu stjórnmálaflokkar séu tregir til að láta rannsaka. Tryggja þarf góð starfsskilyrði sérstaks saksóknara og annarra sem koma að rannsókn efnahagsbrota í tengslum við Hrunið. Almenningur hafi aðgang að öllum upplýsingum sem rannsakendur Hrunsins afla, enda séu ekki sérstök rök fyrir því að halda þeim leyndum. Öllum skal gert kleift að leita réttar sins og verjast fyrir dómstólum, óháð efnahag.

Evrópusambandið
Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni. Ef aðildarviðræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta aðildarviðræðum í samræmi við 66. grein frumvarps Stjórnlagaráðs, munum við styðja þá niðurstöðu. Að öðrum kosti verði aðildarviðræður við Evrópusambandið kláraðar og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði."

Þessi málefni höfða sem sagt ekki til Lýðs og félaga. Einhvernveginn hefur mér skilist að hann hafi viljað leggja ennþá meiri áherslu á stjórnarskrána, og helst að það væri aðalkosningamálið.  En það er auðvitað hans mál, en hann vann að þessum tillögum að því ég best veit.

En nú hefur sem sagt komið í ljós að áherslurnar liggja annarsstaðar.  Það hefur verið mikil vinna lögð í þessa kjarnastefnu Dögunar og hún verður lögð til grundvallar öllu okkar ferli sem framboð. 

Auk kjarnastefnunnar er verið að vinna málefnasamning um öll þessi mál, það er þegar búið að samþykkja sjávarútvegsstefnuna. 

Það er verið að leggja lokahönd á önnur málefni. Og framboðslistar komnir á góðan rekspöl.

Ég verð að segja það frá eigin brjósti að það er bara gott þegar fólk sér að það á ekki samleið með fjöldanum og segir skilið við hann. Fer fram á sínum eigin forsendum. En mér skilst reyndar á Lýð að hann hafi meiri trú á sterkum einstaklingum heldur en sameiginlegri stefnumörkun.  Það er auðvitað sjónarmið út af fyrir sig. Og að það hafi veri mesta ágreiningsmálið hans við Dögun að við vildum heldur vanda málefnasamstöðu og bíða með frambjóðendur, því okkur hefur fundist málefnin þurfi að vera límið í framboðinu en ekki einstaka sterkir frambjóðendur, sem jafnvel eru ekki sammála um einstök mál.

 Það er nokkuð ljóst að það er mikil óánægja með fjórflokkinn, og fólk er leitandi og bíður eftir því hvað nýju framboðin geta boðið upp á. Þannig á það líka að vera. Í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér, er fólk ákveðið í að taka ákvörðun eftir málefnum en ekki endilega kjósa endalaust yfir sig það sama aftur og aftur.  Sem sýnir ákveðin þroska einstaklinga, sennilega vegna þess að það er kynslóðaskipti í samfélaginu, og svo varð hrun sem breytti mjög mörgu og hvatti fólk til að taka aðra afstöðu. 

Ef til vill fer að vora í samfélaginu, og eitthvað nýtt og betra kemst að.  Fólk á að vera óhrætt við að veita nýjum framboðum atkvæði sitt, lesa það sem þau hafa fram að færa, og hversu mikla vinnu þau hafa lagt í sín málefni.

Dogun_logo_200 


mbl.is Stjórnlagaráðsmenn stofna Lýðræðisvaktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Öll þessi tvístruðu framboð.....

Sjallarnir eiga þá fulla möguleika á endurkomu eftir næstu kosningar....

Alveg með ólíkindum að allt þetta ágæta fólk skuli allt þurfa að vera í sínu horni, og tryggja þannig að enginn fái neitt og gamla ruslið haldi völdum áfram.

Sigurður (IP-tala skráð) 15.2.2013 kl. 19:34

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Málið er Sigurður minn að allir vildu Lilju kveðið hafa, og það er einfaldlega þannig að þetta er lýðræðið í hnotskurn.  Við getum ekkert gert annað en að lesa okkur til um áherslur og skoða hvað þessi framboð hafa að segja okkur.  Þetta er erfitt við að eiga ég viðurkenni það alveg.  En það er ekki hægt að banna fólki að yfirgefa stjórnmálaöfl, ef þeir finna ekki það sem þeir eru að leita að. Það er afar mikil vinna við svona framboð og mín skoðun er sú að þegar prinsar sem telja sig hafa erindi hafa ekki grasrót til að vinna vinnuna, þá gerist harla lítið meira en viljayfirlýsing.  En þetta er bara mín skoðun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2013 kl. 19:46

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Ásthildur...Ertu virkilega en við það að ætla að kjósa þessa vitleysu sem kallast Dögun?????Legðu okkur lið Sjálfstæðismönnum..

Vilhjálmur Stefánsson, 15.2.2013 kl. 19:49

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku karlinn nei það mun ég ekki gera.  Ef eitthvað er vitleysa þá er það einmitt að kjósa Sjáflstæðisflokkinn.  En það er mitt mat. Ég er afskaplega ánægð með félagsskapinn sem ég er í.  Og það er gott að vinna með hreinskiptu og heilbrigðu fólki bæði í uppstillingarnefnd og málefnavinnu.  Það veitir mér mikla ánægju að finna að til er gott heiðarlegt fólk sem virkilega vill breyta þjóðfélaginu til hins betra og leggja sitt af mörkum til að svo megi verða.   Það kemur við hjartað í mér svo sannarlega. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2013 kl. 20:19

5 Smámynd: Rafn Guðmundsson

varðandi Evrópusambandið

Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni.........

ég er ekki að skilja þetta - enda bara venjulegur - getur þú útskýrt þetta á mannamáli mig

Rafn Guðmundsson, 15.2.2013 kl. 21:28

6 Smámynd: Rafn Guðmundsson

er lítið um svör þarna hjá þér

Rafn Guðmundsson, 15.2.2013 kl. 23:50

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Rafn ég á mér líf fyrir utan moggabloggið, en þú?  Þessi samþykkt í kjarnastefnunni er málamiðlun, vegna þess að það eru mismunandi meiningar um aðild.  Ég fyrir mína parta vil ekki sjá að fara inn í ESB, þarna er fólk sem vill inn, og þarna er líka fólk sem vill skoða málin.  Ef ég á að svara bara fyrir mig, þá segi ég, fyrir mína parta þá er enginn pakki að kíkja í, engar viðræður, heldur einungis innlimunarferli, það eru margir innan Dögunar sem deila þessari sýn með mér, svo eru aðrir sem vilja skoða málin og það er þeirra vandamál ekki mitt.

Ég er nefnilega viss um að hvort sem við slítum þessum viðræðum eða höldum þeim áfram, þá munum við ekki ganga inn í ESB.  Þarna er um að ræða ákveðin virðin fyrir skoðunum annars fólks.  Venjulega myndi ég ekki ljá máls á svona "málamiðlunum", en fyrir mér er þetta framboð svo miklu víðtækara en bara þessi kljásúla sem ég kalla svo.  Þarna er bara svo miklu miklu meira sem skiptir máli, þess vegna læt ég mig hafa það að þessi mál séu svona opin.  Því ég trúi því að fólk með meðalgreind og yfir, viti í hjarta sínu að þetta er ekkert val.  Þó ég viti mæta vel að þú ert þeirrar skoðunar að við séum ekki sjálfbjarga þjóð, heldur þurfum að hanga í björgunarbelti ESB.  Þá er það einfaldlega ekki mín skoðun og ég veit að við munum sanna að við getum verið sjálfstæði þjóð og unnið okkur út úr vandanum, erum reyndar á góðri leið með það hjálparlaust.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2013 kl. 01:02

8 Smámynd: Rafn Guðmundsson

Því ég trúi því að fólk með meðalgreind og yfir, viti í hjarta sínu að þetta er ekkert val.

þannig að þú ÁTT EKKI samleið með þessu 'fólki'

Rafn Guðmundsson, 16.2.2013 kl. 01:22

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú ég á samleið með meirihluta íslendinga sem EKKI vilja inn í ESB, það er bara svo einfalt.  Ég hef þá trú á landi og þjóð að við getum verið sjálfstæð og ráðið okkar málum sjálf, og haft yfirráð yfir auðlindum okkar, samið við erlenda aðila í austri og vestri sjálf.  Ég hef trú á Íslandi, þú og þínir virðast ekki hafa það því miður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2013 kl. 01:38

10 Smámynd: Rafn Guðmundsson

"meirihluta íslendinga sem EKKI vilja inn í ESB"

en EKKI með þeim í dögun er það

Rafn Guðmundsson, 16.2.2013 kl. 01:46

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það verður tíminn að leiða í ljós ekki satt Rafn?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2013 kl. 10:25

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

Afstaða flokka á að vera hreinskipt og eindregin gegn Evrópusambandinu: gegn því að ljá nokkurn tímann máls á því að jafnvel ræða við það möguleikann á því að Ísland verði partur af þessu valdfreka, fullveldisheimtandi stórveldabákni.

Þið í Dögun eruð því eruð ekki nærri því nógu afgerandi í því máli, og það tekur mig sárt að þurfa að segja þér það, Ásthildur. Fyrr kysi ég Hægri græna en Dögun.

"Björt framtíð" er ESB-hlynntur flokkur undir forystu Brussel-sigldra ESB-drengja, Guðmundar Steingrímssonar og hins illa upplýsta fv. fréttamanns Róberts Marshall.

"Lýðræðisvaktin" er svo nýjasta fyrirbrigðið í ESB-flórunni, undir forystu ESB-postula eins og Þorvaldar Gylfasonar og Guðbjörns Guðbjörnssonar, sem báðir eru harðir ESB-menn. Með dinglar Pétur Gunnlaugsson, útúrsnúningamaður hinn mesti á Útvarpi Sögu, þegar menn gagnrýnda fullveldisframsals-heimild 111. greinar draganna að stjórnarskrá frá 25-menningunum sem störfuðu í umboði 30 alþingismanna, ekki þjóðarinnar, og svínuðu þar gersamlega á þá margyfirlýstu stefnu Þjóðfundarins 2010, að í stjórnarskrá Íslands beri að verja og vernda fullveldi og sjálfstæði lands og þjóðar.

Áfram frjálst Ísland -- ekkert ESB !

Jón Valur Jensson, 16.2.2013 kl. 15:52

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þitt innlegg Jón minn.  Já hér verður hver að kjósa sem honum finnst réttast ekki satt.  Ég held að þú myndir örugglega leggja atkvæðið þitt í örugga höfn hjá hægri grænum.  Ég aftur á móti er að vinna með þessu fólki og þekki orðið vel til, og treysti þeim alveg til að standa á réttlætinu.  Stundum þurfum við að þora að taka áhættu.  Þó ég sé alveg sammála þér með að sum áhætta er of mikil, þess vegna myndi ég aldrei veita Samfylkingu, Bjartri framtíð, né Lýðræðisfylkingunni mitt atkvæði.  Það er alveg af og frá. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2013 kl. 15:56

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og lágkúran í máli "umsóknarsinnanna" birtist m.a. í því, að þetta Evrópusamband er það hið sama sem (1) ítrekað ræðst á okkur í makríldeilunni, með yfirhangandi hótun um viðskiptabann vegna þess að við leyfum okkur að veiða fisk í eigin landhelgi, og er ennfremur (2) það hið sama ESB sem vann beinlínis gegn íslenzkri þjóð frá upphafi til enda í Icesave-atganginum, eins og viðurkennt er af áhrifamönnum hér! Þvílíkur undirlægjuháttur að vilja svo "ganga í" þetta ofríkisfulla stórveldi og glata þar okkar æðsta og ráðandi löggjafarvaldi, sem og æðsta stjórn- og dómsvaldi!

Jón Valur Jensson, 16.2.2013 kl. 15:57

15 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér svarið, Ásthildur mín.

Jón Valur Jensson, 16.2.2013 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband