Vor í kúlu og vor í sinni.

Ţađ er komiđ vor í kúluna mína.  Ţađ er yndisleg tilfinning og lyftir manni upp úr skammdegisdrunganum.

IMG_8518

Nektarrínan mín farin ađ bruma heilmikiđ.

IMG_8509

Jólarósin mín búin ađ brosa til mín síđan á jólunum.

IMG_8510

Páskarósin ćtlar ađ vera tilbúin á páskunum.

IMG_8520

Krusinn hlćr međ öllum sínum gulu kollum, glađur yfir ađ vera til.

IMG_8519

Og Pernillan mín er ađ byrja voriđ líka, hún blómstrar svona ţrisvar yfir sumariđ ţessi elska.

IMG_8167

En ég var veđurteppt fyrir sunnan um daginn í nokkra daga, og gisti hjá bróđur mínum og mágkonu. Yndislegur tími, viđ höfum ekki átt svona góđar stundir lengi.

IMG_8168

Langt síđan viđ bróđir minn höfum spjallađ svona mikiđ saman og rifjađ upp gömlu góđu dagana, barnćskuna og allt fólkiđ sem viđ höfum veriđ samferđa langan eđa stuttann tíma. Ţađ er ómetanlegt ađ gefa sér tíma fyrir ţá sem mađur elskar.

IMG_8262

Ég var eins og blóm í eggi, og ţađ var hreinlega dekrađ viđ mig, takk elsku Badda mín og Nonni.

IMG_8263

Og Nonni er eins og allir karlkyns í ćttinni ađalkokkurinn á sínu heimiliCool

IMG_8264

Og mágkona mín sat ekki auđum höndum, ţessar fallegu flíkur var hún ađ prjóna og hekla.

IMG_8265

Fallegt fyrir falleg börn. Heart


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flottar blómamyndirnar ţínar eins og alltaf . Gaman ađ sjá Nonna, kannast viđ svona spjallstundir, skrapp vestur fyrir fáum árum og hitti svo á ađ Árný var í burtu og Snorri í fríi og viđ og Óđinn töluđum meira og minna í tvo daga um gamla daga. Ţađ var frábćrt .

Dísa (IP-tala skráđ) 14.2.2013 kl. 20:34

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Já Dísa mín, ég held ađ viđ gefum okkur aldrei nógan tíma til ađ tala viđ ţessar elskur, erum meira svona systrasamband.  Nonni er líka svo asskoti skemmtilegur, og man svo margt. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 14.2.2013 kl. 22:21

3 Smámynd: Laufey B Waage

Ţetta er alveg ótrúlegt - og Ţorrinn sjálfur á dagatalinu ;)

Laufey B Waage, 14.2.2013 kl. 23:19

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Já Laufey mín, og ég međ syninum eina ađ ćfa fyrir ţorrablótiđ, hann er sko flottur strákurinn ţinn.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 15.2.2013 kl. 00:04

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2020877

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband