Má bjóða ykkur í bílferð frá Olafsgård til Stryn?

Datt í hug að bjóða ykkur í smá ökuferð frá Olavsgård í Osló til Austfjorden.  Bæði var veðrið dásamlegt og svo er bara svo fallegt á þessari löngu leið um 9klst. ferð fjallabaksleið með hurtigrutan.

IMG_8636

Erum lögð af stað, hér erum við við Gardemoen flugvöll og langur ökutúr eftir.

IMG_8637

Svona byrja hraðbrautirnar út frá Osló, en svo smám saman fækkar akreinum og götur þrengjast, við ókum á E6, sem ég hef grun um að heiti Þrándheimsvegur. En hann liggur í gegnum öll þorpin og hraðinn fer frá 4o km upp í svona 90.  Svo að leiðin er ef til vill ekki svo rosalega löng, heldur er hraðinn vel við hæfi.

IMG_8638

Mikið um brýr og göng, enda vilja þeir vernda náttúruna, sérstaklega tún bænda, því hér er lítið ræktarsvæði stutt í klappir.

IMG_8639

Allir firðir voru ísilagðir, og sumstaðar sá maður menn að veiðum gegnum ís.

IMG_8640

Hér er stau... það er verið að sprengja fyrir nýjum vegi. Hér er mikil vegavinna í gangi allstaðar.

IMG_8642

Var svolítið að spá í þetta mannvirki, hélt fyrst að hér ætti að koma brú yfir fjörðin, en komst svo að þeirri niðurstöðu að hér ætti að vera aðstaða til að setja báta niður í sjó. Það er nefnilega ekkert verið að vinna hinu meginn.

IMG_8644

Jamm getur verið að fólk stöðvist í 20 mín. eða svo vegna sprenginga.

IMG_8645

Hér er umhverfið gríðarlega fallegt og eins og ég sagði öll vötn og firðir og flóar ísilagðir.

IMG_8648

Sól og snjór, en ennþá er brautin sæmilega breið... eða þannig.

IMG_8649

Við erum búin að aka í nokkra klukkutíma og erum kominn til Hedemark.

IMG_8650

Hér er svo ólympíuhöll, rosalega stór, þó ekki sjáist hún vel frá veginum.

IMG_8651

Milli þess að aka á þröngum vegum með fjöll á alla kanta, er ekið gegnum engi og tún og svo um þorp og bæi, sem eru skemmtilega kósí svona í vetrarbúningi.

Skiltið þarna bendir á Lillehammer.

IMG_8654

Svona eru vegirnir eins og ég man eftir þeim hér í den í Svíþjóð, nema þar var ekki svona akskipting, enda var það árin 1962 - 3.

IMG_8656

Og göngin eru af öllum stærðum og gerðum.

IMG_8657

Já engu við það að bæta.

IMG_8658

Sumstaðar höfðu árnar rutt sér til rúms, og á einum stað sá ég gufu stíga upp af vatni var að hugsa hvort þar væri heitt vatn, eða hvort það kæmi heitt vatn frá einhverri verksmiðju.

IMG_8660

Og allstaðar eru vegaframkvæmdir. Norðmenn eru sennilega að nota sér kreppuna til að fjárfesta í framtíðinni.

IMG_8663

Hér sjást fiskimenn veiða gegnum ís. Á þessum fallega stað var greinilega túristabyggð, mikið af húsbílum og sumarbústöðum, hótelum og slíku. Greinilega vinsælt að dvelja hér á sumrin.

IMG_8664

Fjöllin virkilega falleg og hæðir og ásar.

IMG_8665

Svo eru akrar og myndarleg bændabýli.

IMG_8668

Snjór en samt kósý.

IMG_8670

Já við erum komin til Lillehammer.

IMG_8671

Hérna sést í skíðasvæðið, stórglæsilegt.

IMG_8672

Menn eru ekki bara að fiska á ísnum, heldur gera allskonar listaverk, sem gaman hefði verið að skoða nánar. En ég var bara á ferð í rútu, svo um það var ekki að ræða.

IMG_8673

Fallegur bær Lillahammer, eða eigum við að segja LillyhammerWink  Kúrir svo skemmtilega upp  í fjallinu.

IMG_8674

Hann er reyndar alls ekki lítill, og hér sést skíðasvæðið betur.

IMG_8675

En hér erum við nú.

IMG_8676

centrum. 

IMG_8677

Norðmenn eru virkilega vinalegir og elskuleg þjóð. brosmildir og hlýjir.

IMG_8678

Svo sést skemmtilega í húsin inn í skóginum.

IMG_8682

Haffjell, hér var greinilega tívolí. En ég held að við séum einhversstaðar á Guðbrandsdalssvæðinu.

IMG_8683

Og áfram var haldið norður á bóginn.

IMG_8685

Og gönginn urðu fleiri og fleiri.

IMG_8686

Og fjöllin voru farin að hækka, brúnum að fjölga líka.

IMG_8689

Mikil hætta á elgum var skilti sem kom oft fyrir, einnig var varað við hjartardýrum. Það sáust líka sporin eftir þessi dýr í snjónum á ísilögðum fjörðunum.

IMG_8690

Og vegirnir mjókkuðu, sumstaðar var maður farin að beygja mig innar í vagninn, því mér fannst stóru bílarnir sem komu á móti myndu rekast í rútuna.

IMG_8692

Við erum ennþá á E6. Hér er verið að hlaða vegg, en það er mikið gert hér vegna jarðvegshalla.

IMG_8693

Og áfram var haldið.

IMG_8695

Við erum komin á slóðir Péturs Gauts.

IMG_8696

En við höfum ekki tíma til að bregða okkur í leikhús.

IMG_8698

En tími er peningar, og ég var á hraðferð.

IMG_8702

Við ókum líka gegnum heimabæ Knuts Hamsun, og hér á þessum stað stoppuðum við í þrjú korter, ég var orðin frekar svöng, því ég hafði bara borðað eina brauðsneið með smjöri áður en ég lagði af stað, og drakk smá djús. Lagði af stað kl. um tíu og nú var klukkan að verða tvö.

En eins og sést hér eru skíðasleðarnir á góðu lífi í Noregi.

IMG_8708

Svo mátti víða sjá að auglýst var allskonar sport, rafting og slíkt.

IMG_8710

Jamm enn á E6, og stundum var bara að loka augunum og treysta á að bílstjórarnir gætu mæst.

IMG_8717

En auðvitað gekk allt vel.

IMG_8720

Eitt af þessum ferðamannaþorpum, eða kaupstöðum.

Og ég sá meira að segja eina einbreiða brú Smile

IMG_8723

Já það var sannarlega mikið um stórtækar vegagerðir, og ef til vill ekki vanþörf á.

IMG_8727

En við erum farin að nálgast Stryn, við erum komin upp á Strynfjall, takið eftir enginn skógur meira, og sjáið stangirnar meðfram veginum. Ekki svona gular eins og heima, nei heldur bara örmjóar spýtur, en eins og sést ansi hreint háar.

IMG_8729

Og hingað komu menn á snjósleðum til að sækja póstinn, biðu eftir rútunni.

IMG_8731

Hér á fjallinu voru bústaðir, sá á skilti að þetta voru skíðabústaðir til að fara á skíði á sumrin. Hér er ekkert færi til að komast að bústöðunum að vetri til.

IMG_8732

Steingrímsfjarðarheiði? Nei Strynfjall og þessar dökku þústir er grjót, og hér eru engin tré.

IMG_8733

Við erum í 1000 m. hæð, og erum á leiðinni niður af fjallinu, og þá eru a.m.k. þrenn göng.

IMG_8734

Ef til vill eins gott, því svo sannarlega var þessi leið hrikaleg.

IMG_8735

Og það er farið að kvölda, búin að sitja í rútu heilan dag.

IMG_8737

Ég er viss um að það er hér sem tröllin eiga heima.

IMG_8739

Kambarnir hvað?

IMG_8740

Og gamli máni komin að fylgjast með.

IMG_8742

Klakadrönglar niður alla kletta.

IMG_8744

Já það er hálf hrikalegt að fara niður 1000 metra si sona.

IMG_8745

Jamm hrikalegt og er ég þó ýmsu vön.

IMG_8748

Að komast niður að efstu húsum. Allstaðar sem við fórum voru hús upp um öll fjöll, lengst uppi og það virðist ekkert vera mokað að húsunum, hef grun um að hér eigi allir snjósleða eða traktora sem eru notaðir til að komast að húsunum á veturna. Sá hvergi að það væri mokað, en sá sumstaðar för eftir snjósleða og traktora.

IMG_8755

Þær eru víða kirkjurnar hér?

IMG_8758

Dagur að kveldi komin.

IMG_8760

Kvöldsólin lýsir upp himininn rétt áður en hún hverfur.

IMG_8761

Strynvatn.

IMG_8763

Sonur minn beið mín svo í Stryn og þá var að koma sér heim á býlið, hann eldaði dýrindis mat, og það var gott að hvíla sig eftir þessa löngu setu.  Ég held að ég fljúgi til bakaCool

En vonandi hafið þið notið Norskrar náttúru því hún er svo sannarlega þess virði að skoða.  Eigið góða nótt. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já. ég naut sko náttúrunnar . Man þegar ég sat í rútu í Noregi hvað mér fannst gaman að sjá trén sem uxu upp úr sprungum í klettunum, ótrúlegt hvað gróðurinn bjargast við. Takk fyrir síðast .

Dísa (IP-tala skráð) 21.2.2013 kl. 20:29

2 Smámynd: Dagný

Rosalega skemmtileg myndasýning og sérdeilis skemmtilegt að sjá þarna í Lillehammer og skilti sem benti á Gjövik því ég hef einmitt verið að skoða Noreg á Google earth og hafði skoðað þessa bæi þar. Sé á þessu að Noregur er jafn fallegur og fólk lýsir honum.

Dagný, 21.2.2013 kl. 20:48

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Dísa ég hef einmitt horft á svona bara töluvert stór tré sem vaxa beint upp úr klettasprungum, ótrúlegt hvað þau standa af sér veður, bendir til að hér hvessi ekki mikið. Takk sömuleiðis elskan, alltaf jafn gaman að hittast og spjalla

Gott að heyra Dagný mín.  já Noregur er fallegt land.  Heima er samt best.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2013 kl. 21:24

4 identicon

Frábærar myndir og mjög gaman að sjá Noreg eða part af honum.réttara sagt, Ætla að skoða hann betur í sumar.Kærar þakkir, Ásthildur.

Ásdís Guðmundsdótir (IP-tala skráð) 21.2.2013 kl. 21:29

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Glöggt er gests augað.Ég þekki þessa leið vel.Bjó fyrir norðan í 2 ár.Vegaframkvæmdirnar eru eiginlega alltaf.Það eru miklir þungaflutningar í Noregi og vegirnir fara illa og ágætt fyrir íslendinga að draga sinn lærdóm af því.Það er nú ekki heitt vatn hér í Noregi svo þessi gufa sem þú sáste er sennilega út af kuldanum.En það er ansi fagurt hér og mér finnst landslagið mynna svolítið á Skotland sérstaklega fyrir norðan í hálöndunum(Gairloch og þar í kring).En svo er líka fallegt í fljótunum og fyrir vestan-man ég.

Jósef Smári Ásmundsson, 21.2.2013 kl. 22:02

6 identicon

Takk fyrir bíltúrinn Ásthildur.

Alltafa gaman að sjá svona ferðalag.

Segi enn og aftur, þú átt að taka það að þér að vera 

fararstjóri fyrir svona skemmtilegar ferðir.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 00:54

7 identicon

Flott myndaröð, takk fyrir sýninguna.

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 01:09

8 identicon

... merkti hér annars inn til gamans leiðina sem ég held að þú hafir farið þarna: http://goo.gl/maps/5Q5T6

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 01:18

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jósef, já ef til var þetta kuldinn, en þetta var samt eina lænan sem var auð og þau rauk upp af vatninu.  Já það er afar fallegt á þessari leið, minnti mig reyndar líka dálítið á Alpana.

Takk Sigurður minn, hver veit nema ég fari einhverja svoleiðis túra

Takk fyrir leiðina Bergur, ég flýtti mér að skoða. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.2.2013 kl. 09:41

10 identicon

takk fyrir þetta

þegar að ég var við nám í Norgegi var strandferðaskipið alltaf nefn hurtigruten

sæmundur (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 12:17

11 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Takk fyrir þetta. Hef farið þessar leiðir oftar en einu sinni og þá líka farið gömlu leiðirnar sem Norðmenn halda við af myndarskap. Noregur, allt frá Kristiansand til Alta er aldeilis dásamlegt land, og ótal ferðir okkar hjóna um landið eru demantar í minningunni.

Íslendingar sem segjast hafa farið til Noregs með því að koma til Oslóar og fara þar eitthvað um í nágrenninu, hafa ekki frekar séð landið en að menn segist hafa upplifað Strandasýslu með því að láta nægja að fara fram og til baka til Hólmavíkur.

Ég hvet landa mína til að kynnast þessu stórkostlega landi almennilega og upplifa skyldleikann og sagnaslóðir þess, sem frændþjóðirnar eiga sameiginlegar.

Ómar Ragnarsson, 22.2.2013 kl. 15:10

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sæmundur þegar ég var hérna fyrir nokkrum árum og var að aka til Alesund, þá kviknaði einmitt í Hurtigrutan, það var skelfilegt að hlusta á það í útvarpinu á leiðinni, þegar var verið að leita að farþegum og áhöfn, sagt frá því í útvarpinu jafnóðum.  Og þegar við komum til Alesund var björgunarþyrla sjúkrabílar og allt til staðar, tveir menn fórust, og reykjarstybbu lagði yfir allan miðbæinn, það er einkennileg tilfinning að vera svona á staðnum þegar eitthvað skelfilegt gerist.

Mín er ánægja Ómar minn.  Já svo sannarlega er Noregur fallegt land og fólkið opið og elskulegt. 

Sammála þér að það er ekkert sem jafnast á við að fara um lönd sem maður heimsækir og upplifa fólkið og menninguna.  Hér í næsta bæ Örsta er minnismerki um Ivar Aasen þann sem bjó til nýnorskuna. 

Heimsótti í dag Hornindadalvatn sem er dýpsta vatn í Evrópu, það er rúmir 500 m. á dýpt.  Það var ísilegt og börnin fóru aðeins út á ísinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.2.2013 kl. 15:40

13 Smámynd: Jens Guð

  Frábærar myndir.  Skemmtileg útsýnisferð að fylgja þeim. 

Jens Guð, 24.2.2013 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband