Þungur lýðræðis straumur, bara spurning hvert hann leitar fyrir rest.

Það verða mörg framboð í vor.  Og enn eru að bætast ný framboð í hópinn.  Ef málið væri ekki svona alvarlegt þá væri það í rauninni frekar fyndið.  

En það er ljóst að það er eitthvað mikið að gerast í íslenskum stjórnmálum, það er eins og stífla hafi brostið og framboðsfljótið  streymir fram.  Ég verð að segja að ég hef lengi vonað að eitthvað slíkt myndi gerast.  Það er nefnilega óþolandi að nokkrir pólitíkusar sem hafa komið sér vel fyrir við kjötkatlana hafi með sér bandalag um að halda völdum þá er ég að tala um svokallaðan fjórflokk.  Þau hafa með sér samstöðu um að blokkera alla sem þeim eru ekki þóknanlegir og þar með koma í veg fyrir að almenningur fái þann draum sinn til að rætast að búa við jafnræði, réttlæti og að kjörnir fulltrúar vinni fyrir almenning í landinu en ekki klíkubræður og peningaöfl.

skjaldborg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og öll ætla þau auðvitað að bjarga okkur vesælum almenningi frá allskonar hrellingum.  Nema að um leið og þau sverja okkur hollustueið sjá þau um leið til þess að reisa himinháar girðingar fyrir ný framboð, það er gert til dæmis með 5% reglunni og svo að sjá til þess að ekki verði nú of mikil umfjöllun um þá einstaklinga sem vilja breyta.  Þetta má til dæmis augljóslega sjá þegar maður spáir í hvernig komið er fram við Lilju Mósesdóttur, þetta upplifði ég líka sterkt þegar ég tók slagin með Frjálslyndaflokknum.

Og nú vilja allir gera allt til að breyta öllu okkur í hag.  Bæði þeir sem nú hafa haft fjögur ár til að laga ástandið og hafa gert lítið meira en að reisa skjaldborg um banka og peningaöfl, en líka þeir sem höfðu þetta tækifæri bæði í síðust ríkisstjórn og þeirri þar á undan.  Nú vita þau allt í einu hvernig á að gera hlutina.  Nú hafa þau öll séð ljósið og vita og geta, nú skal ég.

Gamla grána
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Og þau eru dálítið sár vegna þess að almenningur hefur ekki trúað því að þau hafi lagt sig öll fram.  
 
En það er eitthvað að, þegar framboðin nýju eru komin frekar langt yfir tuginn.  
Sum þessara framboða hafa verið í undirbúningi lengi, eins og Dögun, Hægri grænir, reyndar ætlaði Samstaða að bjóða fram en hætti við, Píratar og Björt framtíð er þarna á meðal og ef til vill fleiri.
En núna allt í einu eins og ég sagði  eins og stífla hafi losnað og núna brjótast upp á yfirborðið fleiri og fleiri framboð. 
Núna hafa litið dagsins ljós Regnbogaframboð "framsóknarkomma" að sögn Bjarna Harðar, Svokölluð lýðræðisvakt, Alþýðufylkingin, og framboð á vegum Halldórs Gunnarssonar, sem er reyndar sonur Gunnars Bjarnasonar ráðunauts sem vill svo til að er stjúpfaðir tengdasonar míns Ragnars Haraldssonar.  Hann segir það bara umbúðarlaust að hann ætlar að stofna flokk til að fara í stjórn með Framsókn.  Það er gott að vera hreinskilin, og mér skilst að þessi ágæti maður vilji koma hreint fram og segja sína meiningu, reyndar mættu slíkir vera fleiri.   

 Ekki efast ég eitt augnablik um að allt þetta góða fólk vill vel og er búið að fá nóg af fjórflokknum.  Og ég er líka klár á því að fólkið á gólfinu hefur hvatt þetta fólk til dáða með að fara fram.  Þvílíkt er ástandið orðið að almenningur er alveg búin að fá sig fullsatt af þessum svokallaða fjórflokki.  Menn segja líka að Össur hafi þegar gert sér grein fyrir þessu, refurinn sem hann er, og þess vegna sé Björt Framtíð varaskeifa Samfylkingarinnar.  

Ég er líka búin fyrir löngu síðan að fá nóg, og þess vegna fagna ég þessum hræringum, og vona jafnframt að þessi gerjun skili sér í breyttu ástandi á alþingi.  Að þar komi í meira mæli inn fólk með nýjar hugmyndir og ný sjónarmið.  Ég er nefnilega þannig gerð að mér er sama hvaðan gott kemur, bara ef það er trúverðugt og heiðarlegt.

En svo er það að sá flokkur sem ég hef unnið með undanfarið hefur lagt áherslu á að reyna að fá alla með.  Þau hafa alltaf haft allt opið og boðið öllum að vera með.  Og nú hafa þau komið þessu á framfæri á heimasíðu sinni www.xdogun.is þar sem framboð eru hvött til að taka þátt í kosningabandalagi.  

Þannig að það væri ef til vill einfaldara fyrir öll þessi nýju framboð að sameinast í einu stóru kosningabandalagi, þar sem þau kæmu sínum málum fram undir tt eða ttt eða eitthvað álíka, þá væri það tryggt að enginn atkvæði féllu "dauð" eins og alltaf er verið að tala um.  

Dögun hefur nú unnið í yfir heilt ár að sínu framboði og landsfundur verður um næstu helgi, þar hefur allt verið unnið af heilindum og reynt að koma til móts við alla og haga málum þannig að allir geti verið sáttir.  

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En við skulum vona að út úr öllu þessu komi eitthvað gott og okkur öllum til hagsbóta.  En það er alveg ljóst að úrslit kosninga eru alls ekki ljós og það gæti komið verulega á óvart hvernig þau mál æxlast.  Það er alveg ljóst að það er gerjun í gangi og fólk búið að fá alveg nóg af því sem hingað til hefur gengið með gömlu flokkana og það fólk sem svo sannarlega er næstum rótgróið í stóla alþingis, og er löngu hætt að skynja almenning í landinu.

Þess vegna hvet ég almenning til að skoða málin vel, kynna sér nýju framboðin og virkilega rýna í hvað hentar þeim best, og gefa gömlu spilltu pólitíkusunum frí, það er löngu ljóst að þeir eru fyrst og fremst að hugsa um stólana og sitt eigið egó.  Því miður.  

 P.S. ef fólk er að undra sig á tengingunni við þessa ágætu konu ömmu Guðmundar Steingríms, þá er það þannig háttað, að flokkur sem hefur afskaplega lítið fram að færa, með þingmönnum sem hafa verið með í meirihluta þingsins og reyndar unnið afskaplega slaklega fyrir almenning, þá sýnist mér að hérna sé verið að skreyta listann sinn með skrautfjöðrum eins og elsta íslendingnum í framboði, rokkstjörnu í heiðurssæti og svo farmvegis.  Þetta að mínu mati er hið eina og sanna lýðskrum.  Það er nefnilega betra að reyna að komast áfram á baráttumálum en að skreyta sig með fjöðrum.  Slíkt á til að fjara út þegar fólk fer að hugsa málið til enda.  Þess vegna þarf fólk fyrst og fremst að huga að málefnunum en ekki skreytingum á listum. Að hafa eitthvað til framboðs, þó gott fólk sé, sem er einungis hugsað til að flagga skrautrósum en ekki alvöru baráttumálum er ekki eitthvað sem við þurfum á að halda í dag. 


mbl.is Elsti frambjóðandinn 103 ára?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið til Volda og Örsta og hlustað á Sóley Ebbu syngja.

að getur líka gert hret í Noregi eins og hér heima. 

IMG_9194
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Síðasta daginn minn í Austfjorden, byrjaði að snjóa.

IMG_9195

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Andrés Bóndi er með traktor svo hann mokar heimreiðina annars væri ekki gott að komast lönd eða strönd.

IMG_9201

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jamm það snjóaði bara þónokkuð.

IMG_9203

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er einhver fjandinn að hjá mér, því ég get ekki birt bloggið mitt á vafranum sem ég nota alltaf, og þarf að notast við þennan, og þá get ég ekki klippt mynd út.  Svo það verður að hafa það að sama myndin komi tvisvar.Cool

IMG_9204

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það er ágætt að geta mokað heimreiðina, Andrés á traktor og skóflu svo verkið gengur vel.

IMG_9206

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var ágætt að koma inn í hlýjuna og fá sér kaffisopa og spjall.

IMG_9210

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En sem sagt þá vorum við Ingi á leiðinni til Volda og Örsta.  

IMG_9242

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta gæti verið Óshlíðin Wink

IMG_9244

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir sem sakna þess að aka Óshlíðina geta skroppið til Noregs og rifjað upp leiðina.  En það verður ekki lengi, því norðmenn eru duglegir við að bora og brúa, og brátt mun þessi vegur tilheyra sögunni rétt eins og Óshlíðin.

IMG_9211

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Norðmenn hugsa ekki eins mikið um klossaðar og ljótar raflínur og við.  Ég er ánægð með okkar afstöðu að hafa rafmagnsstaura eins lítið áberandi og hægt er.  En þeir geta örugglega ekki "grafið" svona línur í jörð, þeir gætu svo sem reynt að sprengja fyrir þeim, en það myndi valda miklum náttúruspjöllum.

IMG_9213

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Við erum sem sagt komin til Volda.

IMG_9214

 

Jæja nú má ég ekki gera fleiri mistök, því ég virðist ekki geta deletað þeim myndum sem koma hér inn, skil ekki alveg hvað er í gangi.

IMG_9214

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Komin til Volda og þarna er ferja að leggja frá.

IMG_9216

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mig minnir að Volda sé með um það bil átta þúsund íbúa, en Örsta um 10.000.  

IMG_9223

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er félagsmiðstöðin sem Sóley Ebba á að spila í.  

IMG_9220

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er svo auglýsingin.  Þetta er svona svipað og Samfés hér, fyrst er keppt í heimabyggð, svo í kommúnunni og svo í landskeppni.  Spennandi fyrir stelpuna okkar.

IMG_9226

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ferjan að fara.  Mér er sagt að það hafi fækkað mikið bílaflutningar í ferjunum eftir að göngin komu, og sennilega fækkar líka ferðunum hjá þeim, því norðmenn eru duglegir við að bora og brúa.  Svo alltaf styttast leiðirnar.

IMG_9228

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við rúntuðum aðeins um og fórum svo til Örsta.

IMG_9229

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er herra Aasen, komin með blómvönd.  En hann fann upp nýnorskuna, og er því hetja í sínum heimabæ Örsta.

IMG_9230

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Og svo er enn eitt einkennið hjá norðmönnum, þessir skúrar niður við vötn og firði.  Þeir eru miklir siglingamenn og margir eiga skútur eða smábáta. Og norskir drengir eru ekki gamlir þegar þeir hafa fengið sinn fyrsta veiðihníf.  En ég veit ekki um stelpurnar, held að það séu aðallega drengirnir sem fá veiðihníf, þetta er veiðimannasamfélag.

IMG_9232

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þá var komið að því að fara og hlusta á Sóley Ebbu.  Hún söng tvö lög, þetta var generalprufa og hljóðprufa og ég var voða spennt að hlusta á hana.

IMG_9235

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er ein stúlkan að spreyta sig. Það er frekar erfitt að koma fram á svona prufum, því það vantar allt feedback frá áhorfendum. 

IMG_9236

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Okkar stelpa var líka dálítið nervus, hún syngur tvö lög, annað er eftir Sigurrós "illgresi" og hitt er eftir hana sjálfa og heitir "Inner Scars" afskaplega falleg melódía og hún syngur eins og engill.  

IMG_9237

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta var æðislegt, vona að hún komist áfram og þetta fari inn á youtube.  Úlfurinn var líka að spila á Samfés hér með hljómsveitinni sinni, þeir spiluðu fyrir tvo aðila og önnur stúlkan komst í annað sætið.  Nú er hann að semja tónlist og þeir eru að æfa sig fyrir að spila á Aldrei fór ég suður.  Hann söng líka í kirkjunni um daginn meðan ég var úti, og tók þá lagið Skyfall, afi hans var afskaplega hrifinn af söngnum hans.

IMG_9241

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Og þá var tími komin til að halda heim á leið.  norðmenn klæða klettana með neti til að varna skriðum held ég.  

IMG_9250

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Sækja börnin á leikskólann og svona.

IMG_9251
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þetta var búið að vera frábær dagur.
 
IMG_9252
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er óendanlega fallegt þarna á þessu svæði.

IMG_9253

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Öll þessi vötn, firðir, ár hæðir hálsar og skógur, allt svo fótógeniskt.

IMG_9258

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta var síðasta kvöldið mitt í Austfjorden, og okkur boðið að borða geitakjöt hjá Andrési bónda.  Kunni ekki við að taka myndir af kjötinu, en það smakkaðist bara vel, bóndinn sagði mér að kjötið væri að 6 mánaða gömlu kiði, þegar þau væru orðin 8 mánaða, dökknaði kjötið, en eftir tveggja ára aldur væri það orðið bragðmeira.  Hann eldaði sjálfur, það var yndælt að koma þarna inn til fjölskyldunnar sem hefur verið syni mínum og fjölskyldu svo góð og hjálpsöm.

IMG_9259

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er yngsta heimasætan Matthildur, en dæturnar eru þrjár.

IMG_9260

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er Sunneva að leika við börnin.  Þessi færsla er búin að taka mig óratíma, því af einhverjum orsökum get ég ekki notað vafran sem ég er vön og eins ekki klippt út myndir sem ekki eiga að vera.  Vonandi lagast þetta allt samt sem áður, því svona veseni nenni ég bara ekki.

En eigið góða nótt elskurnar. Heart 

 


Þór Saari og vantraustið frá mínum sjónarhóli.

Þetta kemur svo sem ekkert á óvart, þar sem forseti alþingis virðist vera andvíg því að stjórnarkráin verði samþykkt.  Málið er svona... í fyrstu var einkar lítill áhugi almennings á stjórnarskránni af einhverjum ástæðum, en með þessari togstreitu og fyrst og fremst baráttu þórs Saari og margfalt fleiri á málefninu Þá er  áhugi almennings vakin.  Og þá kemur í ljós tvískinnungur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, því þeir þjóna fyrst og fremst höndinni sem gefur þeim að éta....sem setur peninga í kosningasjóðinn, sem svo sannarlega skiptir máli, því þannig er það bara að þeir sem nenna ekki að kynna sér málin, hlusta bara á auglýsingar, sem svo sannarlega eru byrjaðar hjá sjöllum um hve allt verði nú gott þegar þeir komast til valda..

En í sambandi við þessa vantrauststillögu Þórs, þá auðvitað vilja menn ekki koma henni á dagskrá, hún er auðvitað alltof erfið að takast á við, svona á síðustu dögum stjórnarinnar.  Svo þá er um að gera að í fyrsta lagi að reyna að gera þessa tillögu viðsjárverða og með annarlegri ætlun, og menn fengnir til að skrifa þannig, og þar er mest talað um útlit Þórs og gert grín að hæð hans, eins og það skipti einhverju máli, hæð mannsins.  Og það er reynt að gera hann tortryggilegan að hann ætli sér eitthvert sæti í væntanlegri starfsstórn sem ráðherra. Maður sem er ekki í neinu formáli í framboði, þar sem hann er í fimmta sæti, sem er samkæmt væntingum langt frá einhverju þingsæti.  Mikið þurfa margir að biðja Þór afsökunar á ummælum sínum. 

En ég segi og skrifa mikið held ég að kosningaúrslit muni koma á óvart í vor. Ég held nefnilega að fólk... almenningur sé að vakna upp og skoða málin, ungt fólk er að taka yfir þetta gamla viðhorf: ég hef alltaf kosið flokkinn minn, sama hvað og hvað.... Sem betur fer hugar ungt fólk á annan veg í dag, mun gagnrýnna á flokka, loforð og efndir, það eru nýjir tímar í farvatninu, og vonandi skilar það sér í því að nýju framboðin hljóti framdrátt og muni koma vel út úr þessum kosningum, því það er einfaldlega nú eða aldrei.

....

En ég ætlaði að ræða um vantrausttillöguna, auðvitað vilja gerendur ekki koma þessu máli á dagskrá vegna þess að hún er óþægileg og almenningur hefur ekki sýnt stjórnarskármálinu nægan áhuga sem er synd, því hér er um að ræða réttarbót fyrir okkur þjóðina og með þessari stjórnarskrá verður réttur okkar almennings tekin úr höndum sérréttingaelítunar og færður í hendur okkar sjálfra.  Þannig að auðvitað vilja þessir menn sem eru varðhundar elítunar og peningavaldsins ekki að þessi stjórnarská verði að veruleika.  En látið ekki blekkjast, þessi nýja stjórnarskrá er fyrst og fremst til hagsbóta fyrir okkur öll almennings. Þeir sem berjast á móti henni með öllum tiltækum ráðum eru nákvæmlega þeir sem eru handbendi klíkunnar sem vilja hafa allt í sinni hendi, segi og skrifa Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Samfylking og núna líka Vinstri græn.  Þið sem viljið breytingar endilega þorði að kjósa eitthvað annað en þetta spillingardæmi.  Þorið að kjósa ný framboð og látið slag standa, það getur einfaldlega ekki versnað, en gæti aftur á móti batnað verulega.   


mbl.is Vantrauststillaga ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er ég fegin...

Að við drifum okkur vestur í gær við Elli minn.  Það var frekar slæmt veður og færð samkvæmt upplýsingum, en það reyndist miklu minna en áhorfðist, þó var veðrið afar slæmt á Steingrímsfjarðarheiði og í Bitrufirði, þar sást ekki út úr augum og við urðum að aka eftir stikum og stundum stoppa algjörlega.

Við höfðum ætlað vestur daginn áður, en það var vonskuveður og bæði Steingrímsfjarðarheiðin og Þröskuldarnir ófær. 

Mér gafst þá tækifæri til að hitta félaga mína í Dögun í húsnæði þeirra við Grensásveg, hlusta þar á erindi um efnahagsmál, og taka þátt í vinnu þeirra í málefnavinnu.  Það er mikið lagt upp úr því að gera málefnin eins vel og heiðarlega úr garði og kostur er.

Sat líka með Guðjóni Arnari við að hringja út í fólk og ræða málin.  Það var tíma vel eytt að mínu mati. Ég er afskaplega ánægð með það fólk sem leggur mikla vinnu og tíma í undirbúning að framboðinu okkar.  Heiðarlegt og gott fólk, sem virkilega vill breyta til og vinna með þjóðinni í að breyta þeim hlutum sem ekki eru í lagi.  Og ég er virkilega ánægð með að geta lagt mitt lóð á vogarskálina þá.

En sem sagt ferðin vestur.

En mér datt í hug að leyfa ykkur að koma með í bíltúrinn.

IMG_9353

Við erum komin upp í Borgarfjörð og færðin er búin að vera bara góð sumarfærð.

IMG_9354

Já ég er viss um að þetta lítur ekki svona út í dag, en svona var þetta í gær.

IMG_9356

Holtavörðuheiðin var létt og laggóð.

IMG_9361

Við urðum að fara strandirnar, þar sem Þröskuldar voru ekki færir.

IMG_9364

Sjórinn var úfinn.

IMG_9366

Frá Ennishálsi og alla leið að Hólmavík var fjúk og oft þurfti að stoppa til að bíða færis. Það er rosalega þreytandi að horfa endalaust út í sortan.

IMG_9370

Sumstaðar létti til, en annarsstaðar vofði yfir þung ský.

IMG_9372

Jamm það er ósköp þreytandi svona útsýni.

IMG_9373

Sem betur fer birti til á milli. Og sjávarsíðan hér fyrir norðan er afskaplega falleg og myndræn.

IMG_9375

Sjórinn úfinn, en fuglarnir greinilega nutu sín bæði í öldurótinu og svo að láta sig svífa í vindinum.

IMG_9377

Í næsta firði var eins og hendi veifað, sást ekki út úr augum, og þá getur þetta gerst. Þetta voru víst vörurnar sem áttu að vera til sölu í Samkaupum í dag.

IMG_9379

Þær verða víst ekki í hillunum þar í dag.

IMG_9381

En það er ekki mikill snjór hér norðanmeginn.

IMG_9383

En sumstaðar var meira að segja sólarglæta.

Við vorum alltaf að bíða eftir þæfingnum sem átti að vera hér.

IMG_9385

En vegirnir voru bara svona fínir.

IMG_9386

Og sjórinn ólgaði áfram.

IMG_9390

Þrútið var loft og þungur sjór.

IMG_9392

Fyrsti snjórinn var á Hólmavík.

IMG_9394

Og sólin reynir að komast í gegn, en það gengur bara afar illa.

IMG_9395

Þá erum við komin að versta kaflanum. Þó það sé ekki mikill snjór á Steingrími, þá var blint vegna snjófoks yfir veginn, og oft svo blint að það sást rétt milli stika.

IMG_9397

Einhvernveginn svo endalaust.

IMG_9398

Við erum komin í Ísafjörðin.

IMG_9402IMG_9400

Hér er Svansvíkin hennar Dísu vinkonu minnar.

IMG_9402

Erum að komast inn í Skötufjörðinn.

IMG_9404

Sólin spilaði skemmtilega á skýin og skreytti ferðina.

IMG_9405

Já Skötufjörðurinn, og ennþá enginn þæfingur, en hér var hálka.

IMG_9407

Og sem betur fer var skyggnið orðið gott.

IMG_9409

Já litirnir eru stundum fallegir.

IMG_9411

Í Hestfirðinum eru alltaf svona fallegir skúlptúrar á veturna.

IMG_9413

Skemmtilegt sjónarhorn á Hestinum.

IMG_9415

Vigur hvít og falleg. En nú erum við á háhæðinni í Seyðisfirðinum.

IMG_9417

Kofrinn glæsilegur og nýja þorpið í S'uðavík.

IMG_9421

SKemmtilega hrímaðir klettar á Súðavíkurhlíðinni.

IMG_9425

Og hamarinn, fyrstu göng á Íslandi held ég.

IMG_9427

Í Arnardal.

IMG_9430

Og þá blasir Ísafjörður við.

IMG_9431

Og þá erum við komin heim. Nú sit ég hér hlusta á óveðursfréttirnar, og fer yfir ferðina okkar í gær, og er rosalega ánægð með að við skyldum þrátt fyrir allskonar illspár leggja í hann í gær. Þæfingurinn fannst ekki, en fjúk var mikið á köflum og sérlega erfitt að komast yfir Steingrímsfjarðarheiðina vegna lélegs skyggnis.

Eigið góðan dag elskurnar og ekki vera að fara mikið út í þessu leiðindaveðri nema brýna nauðsyn beri til Heart


mbl.is Flestar leiðir ófærar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið nýja fiskveiðistjórnunarkerfi... vonandi sofnar það svefninum langa.

Eitt af kosningaloforðum Samfylkingar og Vinstri grænna var að leiðrétta kvótakerfið.  Koma til móts við óskir þjóðarinnar að breyta þessu kerfi til hagsbóta fyrir landið allt.

Þetta loforð er eitt af þeim sem hafa verið svikinn.  Það frumvarp sem nú liggur fyrir virðist ekki vera það sem lagt var upp með, enda var sennilega enginn vilji til þess, mér hefur verið sagt af mörgum að Steingrímur Jóhann sé fastur ofan í vasa L.Í.Ú.  Og muni aldrei gera neitt til að ganga á móti þeirra vilja.  Mér sýnist að það hafi sannast í þessu svokölluðu "sáttafrumvarpi " hans.

Ég hef að vísu ekki lesið frumvarpið í heild sinni, en tveir menn sem ég treysti vel hafa rætt það opinberlega og ég hef líka rætt við fleiri sem vit hafa á eins og Guðjón Arnar Kristjánsson, sem er sennilega sá maður sem allra mest þekkir til þessa kerfis og afleiðingar þess. 

Sá sem ég tala um hér er fyrst og fremst Þór Saari, sem rætti þetta tæpitungulaust á alþingi:http://blog.pressan.is/thorsaari/2013/02/28/ad-raena-audlind/

Síðan Sigurjón Þórðarson, einn nánasti samstarfsmaður Guðjóns í Frálslyndaflokknum, en hann skrifar svo:

http://blog.pressan.is/sigurjonth/

Það á sem sagt að festa þetta kerfi í næstu 20 ár eða svo. Eða nægilegan tíma fyrir sjávarbyggðirnar til að blæða endalega út. Og þetta skrifa Ólína Þorvarðar og Lilja Rafney upp á. Það er ótrúlegt að þær hafi ekki betri yfir sýn yfir málin, þar sem þær tóku jú að sér að setjast niður og vinna nýtt frumvarp eftir að Jóni var sparkað út. Þá hefði maður ætlað að þær myndu hafa kynnt sér málin þar sem þær einmitt uppaldar  á Suðureyri og á Ísafirði.

Það eru því vonbrigði að þessar tvær ágætu konur sjái ekkert athugavert við þetta frumvarp. Hef reyndar heyrt á Ólínu að þetta sé betra en ekkert. Þar er ég algjörlega ósammála henni, þetta er vitlausara en að gera ekki neitt og láta næstu ríkisstjórn koma með frumvarp. 

Sennilega telja þær víst að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn muni sitja næstu ríkisstjórn, það getur svo sem vel verið, þó það sé engan veginn víst. Þá situr samt sem áður eftir að þeir geta ekki gert þetta verra en það er.

Þeim datt ekki einu sinni í hug þetta snjallræði að hafa úthlutunina 20 ár, þó núverandi ríkisstjórn sé búin að kenna þeim að þeir geta gengið endalaust langt bara með því að setja hausinn undir sig. Og ég er næstum viss um að þeir eiga eftir að nota Jóhönnu aðferðina ef þeir ná meirihluta.

En ég er ennþá að vona að nýju framboðin fái hljómgrunn, þegar þau verða sýnilegri, halda sína landsfundi og kynna sín stefnumál.

Meira að segja Jónas mælir vel þegar hann segir:

Kjósendur hugsa ekki út fyrir ramma fjórflokksins. Ný framboð hafa lítið sem ekkert fylgi í könnunum. Í síðustu kosningum refsuðu kjósendur Flokknum og Framsókn, en hossuðu Samfylkingunni og Vinstri grænum. Í næstu kosningum ætla þeir að refsa Samfylkingunni og Vinstri grænum, en hossa Framsókn. Því snýst hringekja heimskunnar áfram. Ýmist velja menn bjána eða bófa. Við því er sennilega ekkert að gera. Sjálfstæðisflokkurinn er sáttur við sitt litla fylgi. Orðinn digurbarkalegur, treystir á Framsókn. Styrmir Gunnarsson er þegar farinn að hóta að hreinsa kontórista, sem hann hefur á svörtum lista.


Ferð til Grotås. Ykkur er boðið með.

Er ennþá hér í Noregi, hér er kalt en sól og gott veður alla daga.  Ingi minn hefur verið að fara með mig í skoðunarferðir um nágrennið.  Hér eru vegir margir hverjir eins og Óshlíðin en það stendur til bóta, miklar vegaframkvæmdir standa nú yfir, þegar ég kom hér fyrir tveimur árum var verið að gera 6 göng til að fara gegnum fjöll en ekki fyrir þau.  Öll eru þess göng nú komin í gagnið nema ein en þar er unnið á fullu við breikkun vega og frágangur á þeim göngum.  Flest þessara ganga eru á leiðinni milli Volda og Austfjorden, en ein þeirra liggja aðra leið.  Þau opna fyrir samskipti við næstu kommúnu handan fjallanna, eða Strynkommune, þar hefur opnast ný leið til samskipta.  Næsti bær við heitir Grotås, og Ingi segir að þar sé fólkið hlýrra og opnara en annarsstaðar.  Við skruppum sem sagt til Grotås á dögunum.

IMG_8780

Stóri bróðir og litli bróðir bestu vinir.

IMG_8781

Í Grotås er dýpsta stöðuvatn í Evrópu rúmlega 500 metra djúpt.

IMG_8782

Flott sýn. Sést hér að norðmenn nota sama trix og heima að aka snjónum beint út í sjó eða vatn.

IMG_8785

Og börnin þurftu að skoða þetta betur, vatnið er ísilagt og þau stóðust ekki mátið að fara niður.

IMG_8787

Já ekki ber á öðru en að ísinn sé vel mannheldur.

IMG_8789

Vá þetta er gaman.

IMG_8790

Og þau voru alveg til í að fara heim og sækja skautana, en það var auðvitað ekki í boði.

IMG_8791

Ísprinsessan Evíta Cesil.

IMG_8797

Þá var næst að koma sé á kaffihús og fá sér kakó og gulrótartertu, sumir fengu sér hamborgara.

IMG_8798

Gulrótarkaka nammi namm segir Kristján Logi.

IMG_8799

Já þetta var gaman.

IMG_8800

Skemmtilegur veitingarstaður og hótel, vertinn hlýleg og brosmild og í þjóðbúningi.

IMG_8801

Þarna er líka leikhorn fyrir börnin.

IMG_8803

Næst lá leiðin í matvörubúðina til að kaupa það sem þarf til heimilisins.

IMG_8804

Búðin er beint á móti hótelinu og veitingastaðnum.

IMG_8806

Og hér er skilti um vatnið. Horningdalsvatnið.

IMG_8805

Grotås er fallegur bær, og eins og allir norskir bæjir byggir hátt upp í fjöllinn.

IMG_8807

Fórum svo aðeins út í sveitina þarna hjá, Ingi ætlaði að sýna mér dýr sem ég hef aldrei séð áður.

IMG_8810

Þau heita alpakkar, eru ræktuð vegna ullarinnar, og peysan sem Ingi var í á fyrri mynd er einmitt unnin úr ull af þessum dýrum.

IMG_8816

Alpakkar eru fyndin dýr, líkjast mest lamadýrum.

IMG_8817

Mér skilst að þau séu rökuð einu sinni á ári, sennilega á haustin og ullin notuð í prjónaverk, eins og peysuna hans Inga, sem er reyndar prjónuð með íslensku munstri, sonur minn segir að þessi upp sé mýkri en okkar ull.

IMG_8818

Já þau eru frekar fyndin þessar elskur.

IMG_8819

Það virðist vera að þau séu í mörgum litum.

IMG_8822

Töffari tyggur strá...hehe

IMG_8826

Tvær sætar saman. Happy takið eftir framtönnum í neðri góm.

IMG_8827

Mér skilst að kjötið sé ekki nýtt til matar, það virðist aðallega vera ullinn sem fólk sækist í.

IMG_8828

En svona er þetta maður lærir svo lengi sem lifir. Alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt að upplifa.

IMG_8829

En við þurfum að kveðja alpakkana, því Ingi var búin að panta klippingu fyrir sig og Evítu og það var mál að fara í klippingu.

IMG_8832

Himnagalleríið opið hér líka.

IMG_8833

Hér má sjá peysuna af ull Alpakkanna. En þar sem hárgreiðslustofan er hér í næsta nágrenni ákváðum við Kristján og Símon að fara þangað og fá okkur meira gos, ég fékk mér reyndar rauðvín Smile

IMG_8835

Síðan fórum við á leikvöllinn til að eyða tímanum.

IMG_8842

Hér má sjá varmaskipta, sem er örugglega mesta þarfa þing þar sem rafmagn er dýrt.

IMG_8843

Já þetta er fallegt allt saman. En þá er að skondrast á hárgreiðslustofuna og gá hvernig okkar fólki líður þar.

IMG_8848

Ó jú ekki ber á öðru Ingi nýklipptur og fínn og Evíta alveg að verða búin.

IMG_8849

Sæt og fín.

IMG_8850

Hárgreiðslukonan afskaplega yndæl.

IMG_8851

Og Evíta búin að fá bleika lokka í hárið.

IMG_8852

Og þá var bara eftir að kveðja og fara heim.

IMG_8853

Gegnum fjallið. Þessar tvær kommúnur voru ekki í neinu sambandi fyrr en göngin komu. Það er Voldakommune og Strynkommune. 

IMG_8854

Komin heim. En mikið vildi ég að ráðamenn heima gerðu sér grein fyrir því hversu mikilvægt það er að vera í sambandi með öruggum göngum, eins og Dýrafjarðargöngum, Súðavíkurgöngum, Norðfjarðargöngum, sem hreinlega gjörbylta samgöngumálum okkar heima.

IMG_8855

Og Símon Dagur segir bless og við líka. Heart Með kveðju frá Noregi.  


Vandamál fíknarinnar, og hvað er hægt að gera?

Ég var að hlusta á Silfur Egils og þar á meðal fyrrverabdi breskan leyniþjónustu agent Annie Machon framkv.st Evrópudeildar LEAP

Mikið þótti mér vænt um það sem hún sagði um að afglæpavæða fíkla.  Þetta er mál sem ég hef talað fyrir núna yfir 30 ár.  Þekki þessi mál afskaplega vel og hef misst tvö ungmenni frá mér vegna neyslu.  Þau voru svo sannarlega fórnarlömb og málið er að þegar barnið manns er komið í neyslu, þá eru sárafá hjálparráð.  Því um leið og þú leitar ásjár lögreglu er barnið orðið glæpamaður samkvæmt skilgreiningunni.  Ekkert foreldri sem þykir vænt um barnið sitt vill fara þá leið þó allt sé komið í kalda kol. Einmitt vegna viðbragða kerfisins.

Ef tekið er saman dauðsföll af of stórum skömmtum eða neyslu með eitruð efni bara nú nokkur ár til baka, þá eru þau þannig að ef þetta væri fuglaflensa eða umferðarslys, væri fyrir löngu búið að setja á stofn einhverskonar hjálparsveit til að bjarga málunum.

En þessi börn okkar sem hafa leiðst út í "glæpavæðingu ríkisins" virðast ekki njóta mannréttinda, hvað þá að yfirvöld hafi áhyggjur af því hvernig þeim reiðir af.

Auðvitað á að vera fyrir löngu búið að skilgreina fíkla sem sjúklinga og koma þannig að málum að þau njóti verndar ríkisins, en þurfi ekki að leita ásjár glæpagengja og undirheimalýðs, sem gefur þeim ekkert nema þrældóm og mansal. 

Ég hvet fólk til að hlusta á það sem þessi ágæta kona hefur að segja sérstaklega foreldrar þeirra ungmenna sem leiðst hafa út á braut fíknarinnar og eru ofurseld sölumönnum dauðans.

Með því að gera léttari efni frjáls, og hafa samastað fyrir þá sem komnir eru í harðari efni tækifæri til að fá hreinar sprautur og hreint efni missa þessir glæpamenn það tak sem þeir hafa á unglingunum okkar.

Þetta er mín niðurstaða og hún tekin að yfirveguðu ráði og þekkingu á neyð þeirra sem leiðast út í líf sem ekki er neinum bjóðandi.  Harka hins opinbera gagnvart þessu fólki hefur ekkert með stjórnarskrá eða lögvarin réttindi þessara þegna að gera, þar er allt þverbrotið sem hægt er.

Það þarf því að huga að því að hugsa þetta dæmi upp á nýtt og vera óhrædd við að taka ubeygju í þessum málaflokki, ef við viljum leysa þau mál sem brenna á mörgum fjölskyldum í dag.  

http://www.ruv.is/sarpurinn/silfur-egils/24022013-1


Það getur verið erfitt að vera á toppnum.

Þetta undirstrikar það sem ég hef sagt, að nýji formaðurinn hefur litla vikt í flokknum.  Hún er að vísu ljúf brosmild og þæg, en hákarlarnir virðast ætla að  valta yfir hana sýnist mér.

Þetta hefðu þau ekki vogað sé ef Steingrímur hefði verið formaður.  En ef til vill veit þetta bara á gott, það er þá úti um foringjaræðið sem Lilja, Atli og fleiri kvörtuðu undan. Ef til vill verður flokkurinn trúverðugri fyrir vikið, af þeim sem vilja inn í ESB það er að segja.  Aðrir munu sennilega halda sig langt frá honum, og hefðu hvort sem er gert, því traustið er algjörlega farið.


mbl.is Átök um Evrópumál á landsfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið nýja andlit VG?

Flott fyrirsögn Katrín hlaut 98% kosningu... eða þannig.  En samt sem áður eru atkvæðin í heild sinni 245.  Að vísu var Steingrímur kosin til forystu í framboð fyrir norðan kosinn með 199 greiddum atkvæða. 

Það eru margir sem fagna þessari ungu konu með að vera orðin formaður flokksins.  Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð neitt til hennar ennþá sem segir mér að hér sé skeleggur stjórnmálamaður á ferðinni.  Hún hefur einfaldlega verið óumdeild, sem segir bara að hún hefur ekki gert neitt sem máli skipti, því vissulega sé það þannig að stundum þarf að taka pólitískar ákvarðanir sem valda ósætti, hún hefur varast allt slíkt, og því hallast ég að því að ekki sé menntamálaráðherran mikill bógur, enda skilst mér að varaformaður eigi að vera sá sem ber sætti í milli flokksmanna, og ég veit ekki hvað marga VG hefur misst fyrir borð, án þess að varaformaðurinn hafi haft af því neinar sýnilegar áhyggjur. 

Og þar sem Björn Valur er nú orðin friðardúfan í flokknum, hef ég mikinn áhuga á að fylgjast með hvort honum tekst til betur en Katrínu. 

Ég var að lesa mér til um fyrrverandi félaga þeirra, sem yfirgaf flokkinn fyrir nokkru, ég ætla að grípa niður í skrif hans hér sem eru afar athygli verð:

"Þann 13. febrúar síðastliðinn greindi Sandkorn í DV frá því að mjög væri þrýst á Steingrím J. Sigfússon að víkja sem formaður VG, til þess að minnka skaðann í komandi kosningum. Fram kom að jafnframt væri þrýst á Katrínu Jakobsdóttur að gefa kost á sér í hans stað, en hún hefði tekið dræmt í það.

Þann 14. febrúar reyndi Steingrímur að bera sig vel í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins: „Ég hef ekkert annað gefið í skyn en það standi til. Ég er formaður og var kosinn á landsfundi 2011 og ég veit ekki til þess að ég hafi gefið mönnum tilefni til vangaveltna um neitt annað.“

Þann 15. febrúar fjallaði DV aftur um að reynt væri að fá Steingrím til að víkja og Katrínu til að taka sæti hans.

Þann 16. febrúar tilkynnir Steingrímur loks að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Auðvitað sagðist hann ekki vera að bregðast við minnkandi fylgi í skoðanakönnunum – hverjum hefði nú getað dottið það í hug? – en hann trúði því samt að ákvörðun hans yrði til góðs fyrir flokkinn. Ansi er ég hræddur um að það sé of seint í rassinn gripið. Og auðvitað sagði hann, eins og hann hefur svo oft orðað það áður, að hann hefði nú aldrei ætlað að verða eilífur augnakarl í þessum stóli. Þvert á móti þætti honum vera kominn tími fyrir kynslóðaskipti."

Þannig að það er gott að Steingrími líði vel með þessa "ákvörðun sína" og sé hamingjusamur, því auðvitað viljum við að öllum líði vel, það er bara þannig.

Og áfram heldur þessi fyrrverandi fylgismaður VG:

Steingrímur kveðst stoltur af verkum ríkisstjórnarinnar – og á þá væntanlega við t.d. hina ofurábyrgu og ofurlýðræðislegu ESB-umsókn, nýundirritaðan samning um stóriðju á Bakka við Húsavík, áform um þúsund milljarða króna sæstreng til rafmagnssölu til Skotlands og gjöfult og innilegt samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, svo fátt eitt sé nefnt. Hann er stoltur af þeirri ábyrgð og því raunsæi sem hann telur sig og flokk sinn hafa sýnt á ögurstund.

Það sem á hans tungumáli heitir „ábyrgð“ og „raunsæi“ er það sama og á mínu tungumáli heitir „tækifærisstefna“. Fyrir stjórnmálamann sem fylgir skýrri stefnu og hefur skýr markmið, eru völd verkfærið til ná markmiðunum. Fyrir tækifærissinnann eru völdin markmiðið. Steingrímur umhverfðist í tali, svotil á einni nóttu, þegar hann komst til valda. Áður fyrr sögðu menn að VG í stjórnarandstöðu væru bara „á móti öllu“, það væri stefnan þeirra, en það var fljótt að breytast þegar komið var í hásætið. Hvar var þá andstaðan við stóriðjustefnuna? Eða við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Eða staðfestan í IceSave-málinu? Eða varðstaðan um fullveldið? Öll vikin fyrir „raunsæi“ og „ábyrgð“. Steingrímur sagði það sjálfur strax árið 2009 (ég hef heimildina því miður ekki tiltæka en það kveður við svipaðan tón í setningarræðu hans frá í gær) að nú væri „ekki tími hugsjónasigra“. Þessi sakleysislegu orð segja margt og þau gáfu tóninn fyrir það sem koma skyldi hjá ríkisstjórn sem hefur gefið sig út fyrir að vera hrein en er það ekki"

 Og meira:

Steingrímur kennir græðgi, spillingu, sjúski, stráksskap og auðvitað frjálshyggjunni um kreppuna, hefur jafnvel nefnt „nýkapítalisma“ (hvað sem það nú er), en hann virðist ekki skilja að rót vandamála Íslands er kapítalisminn sjálfur, sem slíkur. Kreppan og ójöfnuðurinn eru innbyggð í hann. Kapítalisminn ber í sér böl. En Steingrímur trúir á kapítalismann, vegna þess að hann skilur hann ekki og hann er of raunsær og ábyrgur til þess að sjá að önnur hagkerfi séu möguleg. Í þessu ljósi þarf að skoða allt sem hann hefur sagt og gert. Meint endurreisn Íslands er fyrst og fremst endurreisn fjármálakerfisins. Að einhverjir fjármálamarkaðir fari að snúast aftur. Að einhver lánshæfisfyrirtæki (sem gáfu bönkunum mjög jákvæða dóma fram á haust 2008) hækki lánshæfismat Íslands. Að auka hagvöxt – sem rímar illa saman við umhverfisverndina sem hann telur sig aðhyllast. Steingrími finnst hann hafa gert það sem þurfti að gera – vegna þess að hann hreinlega veit ekki betur, sér ekki aðrar leiðir."

Og svo þetta hér:

"Á blaðamannafundinum um síðustu helgi sagði Steingrímur að VG hefði „miklu hlutverki að gegna … sem merkisberi róttækrar vinstristefnu, umhverfisverndar, kvenfrelsis og félagslegrar alþjóðahyggju.“ Róttækir vinstrimenn eiga ekki gjöfult samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Umhverfisverndarsinnar boða ekki rafmagnssölusæstrent til Skotlands. Kvenfrelsissinnar svelta ekki kvennastéttir, eins og í heilbrigðiskerfinu. Og félagslegir alþjóðasinnar sækja ekki um aðild að heimsvaldasinnuðu ríkjasambandi eins og Evrópusambandinu"

Já svo sannarlega má ýmislegt segja um árangur ríkisstjórnarinnar, og von að allsherjarráðherrann fari mikinn og tali digurbarkalega. En þegar svona skrif berast frá þeim sem hafa starfað með honum og upplifað hann sem baráttumanneskju, þá ættu menn að hugsa sig um áður en þeir tala um hve frábær pólitíkus hann er, og óeigingjarn réttlátur og umhyggjusamur fyrir þjóðinni.

Ég kaupi allavega ekki þá ímynd sorrý.

Ég vona sannarlega að í næstu kosningum komi fram nýjir einstaklingar með nýjar áherslur og endilega fyrst og fremst hafi sannleikann að leiðarljósi. Heilindi og þá ósk að vinna landi og þjóð gagn, en ekki bankakerfi, fjármálafólki og öðrum græðgisöflum. Það er komið nóg.

Hér eru þessi skrif sem ég vitna í í heild sinni:

http://www.eggin.is/greinar/steingrimi-bolad-ut-politisk-eftirmaeli/


mbl.is Katrín fékk 98% í formannskjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna hér.

Það er bara ekkert minna en pólitísk staðreynd að VG hefur skipt mestu máli í íslenskri pólitík síðustu 15 árin eða svo.

Þið hefðuð getað skipt máli og það verulegu og þar með orðið stór og sterk, ef þið hefðuð ekki "lent" í því að svíkja öll ykkar kosningaloforð Steingrímur.   Það er ekki málamiðlun að láta af öllum sínum loforðum til að komast í ráðherrastóla, það er svo langur vegur frá.  Og fyrir þau svik eruð þið að mælast með fylgi sem er spurning um hvort þið yfirleitt komist inn á þing aftur.  Málamiðlun hvað?

Ykkar saga er því miður saga mistaka frá því að þið komust í þessa ríkisstjórn.  Ég verð að segja að þegar ljóst varð að þið og Samfylkingin með Jóhönnu í fararbroddi yrðuð ráðandi afl á Íslandi, þá sætti ég mig við það.  Ég sagði og hugsaði, þarna er að minnsta kosti heiðarlegt fólk í fararbroddi, Jóhanna og Steingrímur sem munu leiða okkur út úr vandanum. 

Það var því fyrsta sjokkið þegar ljóst var að þið ætluðuð að sækja um aðild að ESB.  Þín fyrstu svik. Því ég man ekki betur en að í allri kosningabaráttunni hafðir þú hátt um ekkert AGS og EKKERT ESB, og að heyra svo frá Atla, og síðar Kristrúnu Heimis að meðan þú varst að hrópa þessi slagorð, varstu einmitt að makka við Jóhönnu um að sækja um aðild að ESB.

Og ég verð að segja að ég finn hvorki á mér né samfélaginu að þið hafi unnið okkur út úr vandanum, en það er fullt af staðfestingum um að þið hafið klúðrað hlutum big time, eins og þegar þú settir um 30 milljarða í sparisjóð Kef, og gafst vogunarsjóðum bankana á brunaútsölu á kostnað heimila landsins.

Ég veit heldur ekki betur en að enn sé verið að bera fólk út á götu vegna skulda, fólkinu sem var lofað skjaldborg til að vernda það.

Sjávarútvegsmálin eru í uppnámi, vegna þess að þú ert sagður í vasa kvótagreifa, enda átt þú þar hlut að máli, eftir því sem mér er sagt, enda kvótaþegi sjálfur eða þitt fólk.  Þetta er mér sagt allavega.

Í raun og veru ættuð þið Jóhanna að biðja þjóðina afsökunar á öllu því sem þig hafið lagt á þjóðina, burt séð frá hruninu, svo sem eins og Icesavesamningunum sem þið ætluðuð að troða ofan í kokið á þjóðinni, allskonar gæluverkefnum eins og Vaðlaheiðargöngum, Hörpu og nýju hátæknisjúkrahúsi.  Einnig ber að hnykkja á með þessari svokölluðu norrænu velferðarstjórn eruð að þið að heilbrigðismálin eftir gjörsamlega í rúst.

Nei ágæti Steingrímur ég veit ekki í hvaða veröld þið lifið þú og Jóhanna, sennilega í fílabeinsturnum því svo langt burt frá almenningi eruð þið bæði tvö.

Ég held að þið virkilega haldið að þið hafið staðið ykkur svo rosalega vel, þegar málið er að okkur almenningi allavega mjög mörgum finnst þið hafa brugðist okkur.

En svona að lokum ég óska þér alls góðs á komandi tímum og vona að þú reynir að fara að breyta til og gera eitthvað fyrir sjálfan þig prívat og persónulega, og þar með hættir að hafa áhyggjur af almenningi, því mér finnst að aðkoma þín að þjóðmálum hafi ekki beinlínis hafi verið þjóðinni til góðs.

P.S.það er þó eitt sem ég vil þakka þér fyrir af einlægni, en það er að koma því svo fyrir að göngin til Dýrafjarðar yrðu tekin af eins og Davíð Oddsson ætlaði að gera, þú varst búin að koma því svo fyrir að því varð ekki haggað, og fyrir það eigum við Vestfirðingar þér mikið að þakka, og það ber að virða.  Þakka ber það sem vel er gert.


mbl.is VG mikilvægasti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband