Það er gaman að vinna að nýju framboði.

Ég var á afskaplega skemmtilegum málefnafundi með Dögun á dögunum.  Við hittumst upp í Kjósinni til að vinna saman að því að leggja lokahönd á málefnin sem við ætlum að leggja fram í kosningabaráttunni.

IMG_8141

Fyrst var rifjað upp það sem gert hafði verið undanfarið ár, en mikil vinna hefur verið lögð í hin ýmsu málefni, og mikið lagt í að unnið sé sem best að þeim málum sem skipta fólkið í landinu máli. Ein þjóð í einu landi.

Svo sem eins og atvinnumál, umhverfismál og velferðarmál, unnið hefur verið að þessum málaflokkum nú í heilt ár, og vandað vel til verka. Sum mál hafa fengið betri umfjöllun en önnur og til dæmis hefur sjávarútvegsstefna Dögunar verið samþykkt.

En það var virkilega gaman að hitta allt þetta frábæra fólk og heyra hve ákveðin þau eru í að vinna vel að helstu þjóðþrifamálum þjóðarinnar.

IMG_8150

Gaman var að sjá að innan um gráhærða reynslubolta var ungt fólk með brennandi áhuga og svo allt þar á milli.  Fundinum stjórnaði Andrea Ólafs og Benedikt Sigurðsson, einnig af skörungskap, þau voru líka með erindi um vinnuna sem fram hafði farið.

IMG_8151

Þær línur fara nú að skýrast og málefnasamningur Dögunar að líta dagsins ljós.

IMG_8152

Ótrúlegt hvað maður verður svangur að vinna svona með heilanum hehehe... en þetta vissu menn og það var nóg til af öllu.

IMG_8153

Það sem mér þótti reyndar vænst um var sú vinátta og samyggð sem sveif yfir vötnum, við unnum þarna allan daginn og það bar engan skugga á. Þó var tekist málefnalega á því sem var einhver ágreiningur um eins og gengur.

IMG_8154

Svandís Nína sú flotta kona flutti svo fróðlegt erindi um skoðanakannanir og kosningar nýrra framboða undanfarin mörg ár, þetta var afar fróðlegt erindi og sagði meira en þúsund orð.

IMG_8157

Það er gott að áhugasamt fólk er að vinna á mörgum stöðum að því að breyta pólitíkinni, umræðunni, áherslunni og ég er einhvernveginn sannfærðari en ég var um að það eru betri tímar í vændum. Og þá er ég að tala um öll þessi nýju framboð, við þurfum að gefa þeim gaum og láta ekki fjölmiðla kæfa þau niður til að tryggja fjórflokkinn. Þessi nýju framboð verða að njóta sannmælis og þar þurfa fjölmiðlar að standa sína plikt og upplýsa almenning um þeirra viðhorf, málefni og frambjóðendur, þ.e.a. segja þegar það er orðið fullbúið.

Þá óttast ég ekki að fólk taki við sér og geri breytingar á sinni forgangsröðun.

IMG_8159

Svo varð auðvitað að standa upp og syngja smá, svona til að lyfta andanum upp úr öllum pælingunum.

IMG_8164

Þau eru frábær þessi systkini sem svo sannarlega hafa unnið vel í þágu grasrótarinnar bæði í Búsáhaldabyltingunni, borgarafundunum og öðru grasrótarstarfi.

IMG_8166

Hér höfum við einn af hinum nýju frambjóðendum okkar Jón Jósef Bjarnson sem svo sannarlega hefur hrært í fólki með sínum upplýsingum um spillingu.  Og með okkur kemur líka mér til mikillar ánægju Jóhannes Björn sá frábæri maður.  Þessir tveir ásamt þeim sem áður hafa gefið kost á sér og þeir sem eru á leiðinni vekja svo sannarlega von um nýja starfshætti.

Ég fór síðan inn í nefndarstarf á vegum Utanríkis og innanríkismálefna.  Ég tók þar að mér að setja fram stefnu í byggðamálum, er er að vinna í því, þar ætla ég að taka á málum eins og að gefa eigi krókaveiðar frjálsar, skoða flutningskostnað landsbyggðarinnar, jafnvel skoða skattaívilnanir, koma á háhraðatengingum og fleira slíkt. Ef einhver er með góðar hugmyndir sem gætu fallið að byggðarmálum og betri aðstöðu landsbyggðafólks þá er það vel þegið, og þá er best að hafa beint samband við mig asthildurcesil@gmail.is.  Þetta er allt saman í vinnslu og þarf síðan að samþykkjast.  En eins og allir vita eru orð til alls fyrst.  Og í okkar nýja framboði er allt opið til skoðunar.

Ef við viljum breyta, þurfum við fyrst og fremst að breyta okkar hugsanagangi og þora að takast á við nýar hugsanir, nýja sýn og öðruvísi stjórnmál.


mbl.is Jón og Jóhannes til liðs við Dögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefnist þeim er svíkur sína huldumey.......

Ein af þeim afsökunum sem Icesavesinnar notuðu um að okkur bæri að borga Icesave þegjandi og hljóðalaust,  var að við værum að svíkja breta og hollendinga með því að neita að samþykkja Icesave.  Við værum að stela frá gömlu fólki og fátæku. 

Það kemur því úr skemmtilegri átt að heyra að bretar þ.e. almenningur fagnar niðurstöðu Efta dómstólsins.  Og telja það til eftirbreytni að almenningur eigi ekki að greiða skuldir einkabanka. 

Það er því nokkuð ljóst að breskur almenningur hugsar dálítið öðruvísi en það fólk sem hér reyndi allt til að koma inn sektarkennd hjá okkur hinum sem trúðum því ekki að okkur bæri að greiða skuldir einkabanka og peningafursta, sem þar á ofan héldu að peningarnir þeirra færu til Moneyheaven. 

Hvar skyldi sá himin vera?  ætli þar sé komið gullið við enda regnbogans?

En það er gaman að finna léttinn og þakklætið sem baráttufólkið okkar hér á blogginu sýnir.  Menn eru jafnvel bljúgir og viðkvæmir, það finn ég líka á mér.

Þess vegna er ekki hægt annað en að vorkenna því fólki sem hæst hafði um óréttlætið sem við værum að fremja með því að verja sjálfstæði okkar.  Kallaði okkur þjófa, svikara, afturhaldsseggi og ég veit ekki hvað og hvað.  Nú hafa flestar þær raddir þagnað í bili allavega. 

Það er líka aumkvunarvert að horfa upp á Steingrím reyna að snúa vörn í sókn, um að þetta sé nú eiginlega allt þeim að þakka honum og Jóhönnu því þau hefðu haldið svo vel á málum.  Það lá við að ég vorkenndi honum í Kastljósinu, hef aldrei séð hann svona hnípin og umkomulausan, með Sigmund og Sigmar báða glottandi yfir sér.  Sigmundur naut sín í botn, enda mátti hann það alveg, því það má hann eiga að hann stóð alla tíð keikur með þeim sem ekki vildu borga Icesave. 

Þetta sýnir okkur það sem við skulum ávalt hafa í huga, að ef við svíkjum okkar málstað, og misbjóðum því fólki sem treystir okkur, þá fer á endanum svo að við lendum sjálf í að vera svikinn.

"Hefnist þeim er svíkur sína huldumey. honum verður erfiður dauðinn".  


mbl.is Margir Bretar ánægðir með dóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þökk sé forseta vorum og þeim samtökum og þjóðínni sem saman unnu þetta mál með sóma.

Jóhanna mín, heldurðu virkilega að við séum búin að gleyma því hvernig þið Steingrímur höndluðuð þetta mál í upphafi?  Við vitum auðvitað að það var í tíð ríkisstjórnar Geirs Haarde sem málið kom upp, en þar varst þú líka og ein af því fólki í lykilaðstöðu til að breyta rétt.  Þó verður að segjast eins og er að Geir og hans fólk hafði þó fyrir því að setja neyðarlögin, sem sennilega hafa gert sitt gagn.

Eftir að þið Steingrímur tókuð við, reynduð þið að troða Icesave ofan í kokið á okkur, meira að segja átti að þvinga samning ofan í alþingi án þess að alþingismenn ættu að fá að lesa hann.  Svokallaður Svavarssamningu er reyrður utan um hálsin á þér eins og perlufestarnar sem þú berð svo gjarnan. Jafn áberandi líka.

Þó þið þú, Árni Þór, Árni Páll, Steingrímur og Össur reynið að komast hjá því að þakka forsetanum fyrir það sem hann gerði, og þjóðinni fyrir að standa í lappirnar ykkur til mikillar mæðu, þá vitum við alveg hvernig þetta fór fram.

Við vitum hve reið þið voruð og pirruð yfir atkvæðagreiðslunum sem þið helst vilduð komast hjá, og þið voru öskurreið yfir synjun forsetans, þar sem þið í kjölfarið gáfuð ykkar fólki skotleyfi á hann, og ónefni eins og forsetabjánin og fleiri slík. 

Og nú ætlið þið að þakka ykkur sjálfum fyrir sigurinn.  Þið reynið að telja okkur trú um að þið hafi allan tímann vitað hvað þið voruð að gera, og það sé ykkur og ykkar góða lögfræðingateymi að þakka að sigurinn er sætur. 

Ég get alveg fallist á að lögfræðingateymið vann sín mál af kostgæfni og einurð og á heiður skilin, en lengra nær það ekki.  Þeir hefðu nefnilega aldrei fengið tækifærið til þess ef þið hefðuð náð ykkar vilja fram, það var fyrir forseta vorn Ólaf Ragnar Grímsson, og það góð fólk sem vann að undarskriftasöfnunum og það fólk sem svaraði kallinu, að þetta mál er sigur Íslands í dag. Því skal enginn gleyma.

Og sýnir okkur að þjóðin sjálf getur tekið af skarið fyrir misvitra stjórnmálamenn, og beitt rétti sínum til að forðast ófarir, en einungis með réttsýnan og vitran forseta sem vinnur með og hlustar á þjóð sína.


mbl.is Eigum ekki að leita sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtikvöld karlakórsins Ernis.

Fór á síðustu helgi á árshátíð Karlakórsins Ernis.  Þetta er góður og skemmtilegur félagsskapur, og gaman að skemmta sé í þeirra hópi, en það er auðvitað Elías sem er félagi í hópnum. 

Þessi árshátíð var að vísu haldinn í nafni kvenfélags sem ekki hefur verið stofnsett ennþá.Smile Þannig að við verðum að drífa í því að stofna kvenfélagið og skjóta fast á móti næsta ár.

IMG_7866

Eins og sjá má á þessu skilti.

IMG_7867

Elli undir sér vel í góðum félagsskap.

IMG_7868

Gleðin fór fram í félagsheimilinu í Bolungarvík, sem er hið glæsilegasta eftir miklar breytingar og stækkun.

IMG_7869

Svo skipta göngin öllu máli í þessu samandi. Mér er sagt að Óshlíðarvegurinn hafi sumstaðar nánast þurrkast út í síðasta ofsaveðri.

IMG_7872

En þetta var afar skemmtilegt kvöld.

IMG_7873

Og margt skrafað og sér til gamans gert.

IMG_7874

Og brandarar fljúga.

IMG_7875

Sumir eru líka dálítið virðulegir.

IMG_7876

Og sumir virðulegri en aðrir.

IMG_7877

Og auðvitað tók karlakórinn lagið eins og vera ber.

IMG_7880

Undir öruggri stjórn Beötu og undirleik Margrétar Gunnars.

IMG_7881

Og nú er búið að semja virðulegri texta við "veifa túttum villta Rósa" hehehe... en Beata var ekki hrifin af þeim texta, svo nú er hún ánægð.

IMG_7879

Kata og Ingibjörg sætar saman.

IMG_7887

Mugipabbi alltaf glaður og Andrés brosir við.

IMG_7888

Móðir Kona Meyja......

IMG_7897

Óþarfi að segja að flest skemmtiatriðin voru fyrir neðan mitti, enda samin af hrekkjalómum. Þetta var samt frekar saklaus árás á stöðu konunnar, en það verður endurgreitt næsta ár.

IMG_7905

Þessi leikþáttur er ekki til að segja mikið frá ahemm......

IMG_7910

Forsövgvarinn Óli og kokkurinn og alþýðuforinginn með nikkur.

IMG_7912

Dagný mín og Elías.

IMG_7915

The grand lady Sigga Lúlla og Stefanía Birgis.

IMG_7932

Svo var hægt að fara fram og ræða málin.

IMG_7933

Örugglega eitthvað menningarlegt hér.

IMG_7938

Og hláturinn lengir lífið.

IMG_7939-1

Það gerir kærleikurinn líka.

IMG_7941

Mamamugison.

IMG_7943

Og ég skemmti mér líka vel.

IMG_7948

Þau eru flott.

IMG_7949

Ætli Bjarni sé að kenna Sigurjóni að sá fyrir sumarblómumLoL

IMG_7951

Þrjár flottar.

IMG_7952

Bændurnir og embættismaðurinn.

IMG_7953

Karlatal. Örugglega eitthvað um bygginar og svoleiðis.

IMG_7957

Auður og Ása flottar við barinn.

IMG_7959

Ég skal segja ykkur að..................... LoL

IMG_7962

Veistu bara hvað.....

IMG_7965

Og Beata átti afmæli svo hún fékk blómvönd þessi elska, enda eru þær Margrét uppáhald strákanna í karlakórnum, það má segja að þeir geti ekki án hennar og Margrétar verið, svo við verðum að deila þeim með þessum tveimur.

IMG_7968

Kata kát með ljósa lokka, kata kann svo vel að rokka...

IMG_7980

Lýk þessu með glaðlega brosinu hennar Dagnýjar.

En ég segi bara innilega takk fyrir mig, þetta var frábært kvöld og á besta tíma, einmitt þegar maður þarf upplyftingu þegar skammdeginu fer að ljúka og þorrablótin að taka við.


Takk Ólafur Ragnar.

Mikið er ég ánægð og stolt af forseta vorum, hann segir það sem segja þarf.  Takk Ólafur fyrir að standa með þjóðinni.
mbl.is Forsetinn ræðst að Gordon Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lukkuriddarar stjórnmálanna.

Þegar fólk fullt af áhuga og réttlætiskennd ákveður að mynda framboð til að vinna að leiðréttingu á lýðræðinu, koma alltaf ákveðnir aðilar til að melda sig með.  Þetta eru oft gamlir pólitíkusar sem hefur ekki orðið mjög ágegnt í öðrum flokkum, eða fólk sem er nokkuð þekkt á landsvísu, og svo af ýmsum öðrum ástæðum.

Þetta fólk á það sameiginlegt að vilja komast til áhrifa í gegnum nýju framboðin. Stundum gengur þetta fólk inn beinlínis til að breyta áherslum framboðsins.  Fyrir nokkrum árum gekk heill stjórnmálaflokkur inn í flokk sem ég var félagi í. 

Ég gleymi ekki þessum tíma, því síminn hjá mér var rauðglóandi öll kvöld frá félögum í mínum flokki, þau vöruðu vel og lengi við að við tækjum forystumann flokksins inn í okkar raðir.  Ég benti þessum félögum mínum á að það væri ekki hægt að neita fólki um að ganga inn. 

Úr þessu máli varð mikil sundrung og margir hættu, það má segja að ofan á aðra slíka sem höfðu komið inn áður þá var þessi annars ágæti maður okkar versti ódráttur.  Það hefur ekki gróið um heilt síðan því miður, því þarna var margt gott fólk sem yfirgaf flokkinn okkar. 

Við gerðum hrikaleg mistök með að veita þessum manni brautargengi innan flokksins, og fengum á okkur rasistastimpil sem óvinir eru ennþá að tyggja upp.  Þó enginn fótur væri fyrir slíkum ásökunum.

En þarna réru líka auðvitað undir forystumenn hinna flokkanna, sem notuðu tækifærið og áréttuðu lygina, til að koma flokknum frá. Því svo sannarlega ógnaði hann því fólki sem hefur flest alla stjórnmálaflokka í vasanum gegnum greiðslu í kosningasjóði.  Þ.e. útgerðarmennirnir.  Það var vegna þess að þessi stjórnmálaflokkur var fyrst og fremst settur á koppinn til að taka á því óréttlæti sem sjávarútvegsmálin eru enn þann dag í dag.  Þess vegna varð með öllum ráðum að koma honum burtu.

Og því miður spiluðu margir með, trúðu blekkingunum og áróðrinum.

Nú skrifar þessi maður lærða grein um nýja flokkinn sem ég hef ákveðið að styðja, þar sem hann talar fjálglega um að hann sé komin að kveldi.  Þó hann sé ekki einu sinni komin fram með stefnu sína, hvað þá frambjóðendur.  Það er auðvitað mikil reisn yfir svona skrifum, eða hitt þó heldur.

En þessi ágæti maður hvarf svo aftur til flokksins sem hann hafði áður gist, og var þar ýtt svo langt aftur fyrir að hann hefur ekki sést þar nálægt neinum framboðum.  Það er von að hann geti hælst um yfir því að Dögun hljóti ekki brautargengi.  En við skulum nú sjá til með það.

Hann vísar í ágætan mann sem hefur verið í framarlega í Dögun, en dró sig nýlega í hlé.  Með allt í góðu sagði sá, en hann var bara ekki sáttur við framgang mála í Dögun, því hann vildi leggja meiri áherslu á MENN en ekki MÁLEFNI.  Það er von að okkar bloggari sjái það sem hið eina rétta, að meira sé hugað að því hverjir sitji við framboðsborðið en ekki hvaða málefni eru þar og áherslur.

Það sýnir bara hans afstöðu og hann má alveg hafa hana út af fyrir sig. 

Ég og þeir sem ég starfa með, sem eru manneskjur úr þremur stjórnmálaöflum og þar að auki grasróstarfólk, sprottið mikið til upp úr búsáhaldabyltingunni og Borgarafundunum.  Við nefnilega viljum leggja meiri áherslu á málefnin, þess vegna hefur verið unnin Kjarnastefna þar sem tilgreindir eru þeir kostir sem við viljum leggja áherslu á. 

Núna næstu helgi verður svo vinna lögð í að leggja lokahönd á málefnin, og þar með er hægt að leita eftir frambjóðendum til að framkvæma það sem framboðið vill standa fyrir.

Fólk má alveg skoða í sinn eigin barm, þegar það reynir að rakka niður það fólk sem vill virkilega gera vel, þar á ég ekki bara við um okkar framboð, heldur öll þau nýju framboð sem komið hafa fram, um leið og þau fara að berast á eru þau slegin af, að því virðist af ósýnilegri hönd, en það bera að taka slíkt með fyrirvara, því kosningamaskínur fjórflokksins eru vel smurðar og vita nákvæmlega hvernig þau eiga að haga slíkum málum.

Dekrið við Bjarta framtíð sýnir einfaldlega að þar er plott á ferðinni, með vitund og vilja Samfylkingarinnar, sem tryggingu fyrir því að þau komist þannig inn í ESB bak við fólkið í landinu.


Ég iða í skinninu....

Og ég iða í skinninu eftir að fá að slíta þessum viðræðum.  Það er með ólíkindum að Samfylkingin skuli virkilega halda að þau hafi eitthvað með framhaldið að gera eftir kosningar og halda að enginn vilji slíta þessum viðræðum, þrátt fyrir yfirlýsingar þar um.

Það er komin tími til að við fáum tækifæri til að kjósa um þennan samning.  því hver getur lesið sér til um 100.000 blaðsíður til að kynna sér samninginn og svo þarf væntanlega að þýða hann yfir á íslensku svo almenningur geti lesið hann yfir.  Eða eins og Þórður Friðfinnsson benti á í svari á blogginu mínu að hér sé um að ræða 6,5 metra þykkt plagg.

"Til að fólk átti sig á stærðinni ef að þetta yrði prentað á A4 (báðum megin) þá yrði "bókin" að minnsta kosti 6,5 metrar á þykkt (gangi ykkur vel lesturinn)"

Þið eigið að skammast ykkar og leyfa okkur að kjósa um hvort við viljum halda þessum viðræðum áfram, nú þegar ljóst er að það er ekkert að kíkja í pakka, eða semja um eitt eða neitt, aðeins aðlögun að regluverki upp á fyrrgreindar 100.000 blaðsíður, sem eru ekki umsemjanlegar.


mbl.is Kosið um ESB 2014 eða 2015?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin pakki til að kíkja í.

Ég held að það hafi aldrei höfðað til íslendinga.  Og hefði raunar aldrei gengið svona langt ef heiðarleiki hefði verið viðhafður frá byrjun.  Og ekki verið þessi blekkingarleikur um að kíkja í pakkann.  Sem er bara alls ekki það sem um er að ræða, heldur upptaka regluverk ESB upp á 100.000. bls. 

Það kom fram í viðtalinu við Sigmund Davíð í Silfri Egils að þeir hafa haft þessa skýrslu frá ESB undir höndum, og síðan ítrekun um þetta mál.  Sem fyrir mér er alveg óskiljanlegt af hverju alþingi hefur ekki skýrt frá þessu fyrr. 

Þetta er búið að vera ljóst núna lengi, ég las þetta í bloggi Björns Bjarnasonar þegar hann fór sér ferð til Berlínar og Brussel til að kynna sér málin.  En þessum upplýsingum hefur verið vandlega haldið leyndum hingað til,  Nú þarf að hnykkja á þessu svo fólk átti sig á því að það var aldrei neinn pakki að kíkja í, heldur einungis aðlögun að regluverki ESB, og einungis spurning um tímasetningu.  Og engar varanlegar undanþágur.  Þetta er eins skýrt og það getur verði, eins og Sigmundur Davíð segir.


mbl.is „ESB þarf ekki annað Bretland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niu sæta sófi.

Við Elli vorum boðín í kvöldmat hjá El Salvador fjölskyldunni okkar, þar sem Pablo blessaður er orðin 70 ára.  Þetta var yndæl kvöldstund með fjölskyldunni okkar, mikið hlegið, á borðum var hangikjöt með uppstúf, og ég sá ekki betur en þeim fyndist þetta afbragðs góður matur. 

Áður en við vórum spurði Úlfur afa sinn hvort hann mætti bjóða nokkrum vinum sínum heima að horfa á bíó.  Var það auðsótt. 

Þetta er alveg eins og hér um árið þegar börnin okkar voru lítil og alveg upp í táninga.  Þau voru alltaf að "draga inn" börn úr nágrenninu.  Af því að ég var eina mamman sem hleypti öllum skaranum inn, en ekki bara einum á barn.  Þess vegna var húsið oft fullt af ærslabelgjum, og mér fannst það bara notalegt.  Þegar þau urðu eldri, þá var sjónvarpið komið og þá komu þessir krakkar og horfðu á sjónvarpið, við sátum oft á annan tug, við Elli í miðjum sófanum, og svo var setið fyrir ofan okkur á sófabakinu, fyrir framan á gófinu og út um allt.  Við vorum alveg á því að það væri miklu betra að hafa krakkana hér heima, venja þau á að vera heima, heldur en á flakki einhversstaðar.  Sum þessara barna hafa minnst á þetta síðar, einn sagði við mig að heimilið að Seljalandsveg 77 hefði verið eins og félagsheimili.  M'er þótti vænt um þann titil.

En hvað um það þegar við komum heim í gær, voru þau ekki byrjuð að horfa á myndina, því þau voru að týnast inn, alls 8 stk, auk Úlfs.  Og þarna sátu þau öll í sófanum í hrúgu, rétt eins og í gamla daga, og horfðu saman á mynd, sem var frekar sorgleg og það var hlegið og grátið.  Hvað er yndislegra en unglingar sem þora að sýna tilfinningarnar í blönduðum hópi. 

Í dag er það þannig að við foreldrar drengjanna erum vinir og rétt eins og þá, höfum við sameiginlega verndartilfinningu gagnvart drengjunum okkar. Enda eru þeir góðír vinir, og eiga örugglega eftir að styrkja hvorn annan í lífinu.  Stelpurnar fylgja líka með og læra af þeim, að það er allt í lagi að vera maður sjálfur. 

Í fyrradag fór ég á skemmtikvöld karlakórsins Ernis, og ég ætla að setja inn nokkrar skemmtilegar mynfir af því kvöldi hér seinna. 

IMG_7939

Skemmtilegt kvöld. En nánar um það síðar.


Dögun- nýtt stjórnmálaafl.

Ég er bæði ótrúlega glöð og hrærð yfir yfirlýsingu Jóhannesar Bjarnar um stuðningsyfirlýsingu hans við Dögun.  Jóhannes Björn hefur lengi verið einn af þeim sem ég ber djúpa virðingu fyrir sem mann með reynslu og þroska til að skoða málin af visku og reynslu.  Þar er einnig Gunnar Tómasson sem er nú innan okkar raða.  þessir tveir menn eru að mínu mati með góða yfirsýn yfir málefnin, og hafa þann þroska til að bera að sjá hlutina hlutlaust. '

Hér er yfirlýsing Jóhannesa Bjarnar:

"Ég styð Dögun

17. janúar 2013 | Jóhannes Björn

Íslensk stjórnvöld verða að taka mjög örlagaríkar ákvarðanir á næstu mánuðum. Hagkerfið er í verulegri hættu vegna erlendra skuldbindinga, afleitrar stöðu tugþúsunda heimila, innrásar hrægammasjóða og kerfisbundinnar spillingar. Ný stjórnarskrá sem ver sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar fyrir forréttindahópum verður að sjá dagsins ljós.

Vegna óvenju alvarlegra aðstæðna í þjóðfélaginu á stefna næstu ríkisstjórnar eftir að móta íslenskan veruleika í marga áratugi. Viljum við færa börnum okkar samfélag þar sem örfáir einstaklingar úthluta sjálfum sér auðlindum landsins? Viljum við að erlendir brasksjóðir nái yfirburðastöðu á íslenskum fyrirtækjamarkaði? Viljum við að lánakerfið haldi áfram að mynda gjá á milli kynslóða og bankarnir viðhaldi mesta vaxtaokri sem þekkist á Vesturlöndum?

Hér er dregin upp dökk mynd, en staðreyndir málsins eru ekki flóknar.

Hrunið sem byrjaði 2008 er ekki nærri búið að renna sitt skeið og næsta holskefla ekki langt undan. Sjálfumgleði stjórnmálamanna breytir ekki þeirri staðreynd að flest sem þeir hafa aðhafst síðustu árin er gagnslaus lenging hengingarólar:

  • Séreignarsparnaður fjöldans er horfinn.
  • Hrein eign Íslendinga á aldrinum 31 til 45 ára hefur dregist saman um 145 milljarða (stendur í mínus 8 milljörðum).
  • Skattpíningin er allt of mikil, sérstaklega af lægri tekjum vegna óbeinna skatta og launatengdra gjalda.
  • Niðurskurður heilbrigðisþjónustu er til skammar (á meðan gagnslaus sendiráð gleypa milljarða).
  • Óskaplegum tíma, orku og peningum hefur verið sóað og tækifærum glatað vegna styrjaldar stjórnvalda við skuldsett heimili landsins, gagngert til að koma í veg fyrir eðlilegar leiðréttingar á ólöglegum okurlánum.
  • Sultur er orðinn íslenskur veruleiki.

Það virðist nokkuð ljóst núna að stjórnvöld tóku snemma þá ákvörðun að fórna skuldsettum heimilum landsins og láta þau blæða fyrir stærsta hluta hrunsins. Skrum um „skjaldborg“ virðist hafa verið vísvitandi lygi. Á þessu tímabili höfum við nefnilega mátt horfa upp á hinar furðulegustu afskriftir hjá óhæfum atvinnurekendum, bröskurum, ævintýramönnum og pólitískum gæðingum. Að minnsta kosti var nóg til af peningum þegar dótturfélag auðugs útgerðafélags á Hornafirði fékk 2,6 MILLJARÐA skuld afskrifaða. Nokkrum dögum seinna keypti þetta sama fyrirtæki kvóta fyrir enn hærri upphæð. Það hlýtur að vera dásamlegt fyrir valda gæðinga að búa í samfélagi sem fyrst gefur þeim sameign þjóðarinnar, fiskinn í sjónum, og borgar svo fyrir meiri kvóta með afskriftapeningum! Er einhver farinn að finna olíulykt?

Við verðum að leiðrétta skuldir heimilanna—bæði í nafni réttlætis en ekki síður vegna þess að það flokkast undir góða hagstjórn—áður en þolinmæðina endanlega þrýtur og flóttinn frá landinu magnast. Það verður ekki gamalt fólk eða sjúkt sem flytur í stórum stíl—best menntaða kynslóð landsins hangir á spýtunni.

Við verðum líka að taka á vogunarsjóðum, hrægömmum sem fengu skuldir landsmanna á brunaútsölu ásamt veiðileyfi á fjölskyldur landsins. Þetta verður að gerast fljótt og áður en þessir aðilar eignast bankakerfið að stórum hluta. Þeirri gullkistu fylgja veð í fyrirtækjum og auðlindum landsins. Brunaútsalan í bönkunum er sennilega mesta klúður íslenskrar viðskiptasögu ásamt einkavæðingu ríkisbankanna. Þjóðin á heimtingu á að bæði málin verði vandlega rannsökuð.

Stjórnvöld virðast ekki átta sig á (eða kjósa að átta sig ekki á) að leiðrétting á verðtryggðum lánum til einstaklinga hjálpar okkur í baráttunni við hrægammasjóðina. Nýju bankarnir sýna óeðlilegan bókhaldsgróða þegar þeir reikna afsláttarlánin á fullu verði og hrægammasjóðirnir vilja fá greiddan arð (í gjaldeyri) samkvæmt þessum tölum. Leiðrétting lánanna þýðir því miklu minni gróða hjá hrægömmunum.

Fjórflokkurinn muldrar stundum eitthvað um meinsemdir verðtryggingarinnar rétt fyrir kosningar, en hann er alls ekki á þeim buxunum að breyta nokkrum sköpuðum hlut. Svokölluð verkalýðsforysta landsins, sem situr á silkipúðum við borð lífeyrissjóðanna, heldur t.d. aftur af Vinstri grænum að gera nokkuð í verðtryggingunni. Síðasti alvöru verkalýðsforinginn býr uppi á Skaga.

Íhaldið stundar grímulausa hagsmunagæslu og gerir allt til þess að auðlindirnar séu ekki varðar í stjórnarskrá. Það er erfitt að berjast við svoleiðis bákn. Framtíðarsýnin virðist vera þjóðfélag þar sem örfáir aðilar mjólka auðlindir landsins á meðan aðrir rétt skrimta og félagskerfinu er rústað. Landsvirkjun er nú þegar komin á sölulista íhaldsins.

Dögun er með skýr og óhagganleg áform um að bjarga heimilum landsins og leggja niður verðtryggingu lána. Dögun vill aðskilja fjárfesta frá venjulegri bankastarfsemi, sem er algjör forsenda fyrir eðlilegri hagstjórn, stöðugleika og frekari uppbyggingu bankakerfisins. Dögun er líka með skýra áætlun um hvernig við sigrum hrægammasjóðina og náum tökum á „snjóhengjunni“ og gjaldeyrisvandanum.

Dögun ber nýja stjórnarskrá fyrir brjósti og margir á þeim bæ tengjast málinu beint. Mestu máli skiptir þó að við getum treyst því að Dögun efni orð sín. Heimili landsins hafa forgang, okurlánin verða leiðrétt og verðtryggingin grafin. Tengslin við Hagsmunasamtök heimilanna tryggja þetta. Hugsjónafólk innan raða Dögunar mun líka sjá til þess að nýja stjórnarskráin gleymist ekki og auðlindirnar lendi ekki í höndum fárra útvaldra.

Fjórflokkurinn er búinn að vera með stjórnarskrána í nefndum í marga áratugi og stærsti fjórflokkurinn kvartar núna yfir flýtimeðferð! Endalaust málþóf á Alþingi þessa dagana á sér einfalda skýringu: Elítan gerir allt til þess að koma í veg fyrir að auðlindirnar verði eyrnamerktar fólkinu í landinu. Þessir aðilar gera og segja hvað sem er til þess að komast yfir auðlindirnar … og olían er næsti liður á dagskrá.

Hvers vegna styð ég flokk sem mælist ekki enn í skoðanakönnunum með mann á þingi? Vegna þess að Dögun rís og fellur með heimilum landsins … líkt og Ísland sjálft. Dögun er með bestu stefnuskrána og á eftir að fylgja henni eftir. Ég get ekki gert málamiðlun við sannfæringu mína."

Það er mín meining að Dögun sé einmitt svarið við réttlæti og betra siðferði og til þess falið að verða það afl sem kemur okkur upp ú hjólförum þess sem nú er að kollkeyra öllu.

Hver vill koma með?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2023340

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband