20.12.2012 | 10:29
Sjávarútvegsstefna Dögunar samþykkt á félagsfundi.
Svohljóðandi bókun er að finna á www.xdogun.is :
by lillo

Á fjórða tug fundarmanna sátu félagsfundinn og atkvæðagreiðslur hátt í tuttugu. Á myndinni eru hjónin Helga Þórðardóttir og Gunnar Skúli Ármannsson.
Á fjölmennum og góðum félagsfundi Dögunar í Grasrótarmiðstöðinni í gærkvöldi (18. des.) var samhljóða samþykkt stefnumörkun í sjávarútvegsmálum. Fundurinn gerði nokkrar breytingar á tillögu sem kom frá málefnahópi um sjávarútvegsmál og lokaafgreiðsla fundarins var svona:
Stefna Dögunar í sjávarútvegsmálum grundvallast á nýrri stjórnarskrá þar sem kveðið er á um þjóðareign á auðlindum og nýtingarrétti þeirra. Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi og hámarka verðmætasköpun nytjastofna. Gagnger endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu mun byggjast á:
1) Að fullt jafnræði verði í aðgengi að veiðiheimildum.
2) Að greitt verði auðlindagjald fyrir afnotin sem renni til ríkis og sveitarfélaga.
3) Að framsal, framleiga og veðsetning veiðiheimilda verði óheimil.
4) Að aflahlutur sjávarbyggða sé tryggður og hluti veiðileyfa svæðisbundinn.
5) Að öllum nýtanlegum afla sé landað og enginn hvati verði til brottkasts m.a. með því að kvótasettum fisktegundum verði fækkað.
6) Að fjárhags- og rekstrarlegur aðskilnaður sé tryggður milli veiða og fiskvinnslu, allur afli fari á markað og verðmyndun sé 100% bundin fiskmörkuðum.
7) Að veiðiráðgjöf verði endurskoðuð og fleiri aðilar komi að ráðgjöfinni.
8 ) Að handfæraveiðar verði frjálsar.
9) Að settar verði framfylgjanlegar reglur um umgengni við auðlindina og hafsbotninn til að stuðla að endurnýjun, sjálfbærni og notkun umhverfisvænni veiðarfæra og aðferða við veiðar.
10) Að boðað verði til þjóðfundar sem fjalli um framtíðarkerfi fiskveiðistjórnunar og ráðstöfun arðs af auðlindum og tilnefni fulltrúa í nefnd til útfærslu á stefnunni.
Niðurlag:
Dögun er opin fyrir þeim leiðum í fiskveiðistjórn sem samrýmast ofangreindum markmiðum.
Einnig var samþykkt ályktun um málefni hátæknisjúkrahússins fyrirhugaða við Hringbraut og er hún svofelld:
Horfið verði frá þeirri miðstýringarstefnu sem nú ríkir í heilbrigðismálum og kerfið byggt upp með minni og manneskjulegri einingum þar sem megináherslan verði lögð á alhliða grunn- og neyðarþjónustu fyrir alla landsmenn í heimahéraði.
Landspítali verði þannig áfram miðstöð lækninga á Íslandi og kennslusjúkrahús en hætt verði við byggingu nýs Landspítala að sinni.
Þess í stað verði bætt kjör heilbrigðis- og umönnunarstétta sem sinna grunnþjónustu um land allt.
oOo
Ég er afskaplega ánægð með þessa sjávarútvegsstefnu, og bara skil ekki af hverju það er ekki fyrir löngu komið á réttlæti í sjávarútvegi á Íslandi allri þjóðinni til hagsbóta, en ekki einhverjum örfáum aðilum sem hafa fengið óveiddann fiski í sjónum á silfurfati.
Ég er líka ánægð með þá stefnu að hætta við þessa risabyggingu, sem örugglega myndi verða til þess að öllum fjórðungssjúkrahúsunum um landið yrði annað hvort lokað, eða yrðu einhverskonar neyðarskýli og geymslustaðir. Því það þarf mikið fé í byggingu sjúkrahússins, og hvar á að taka þá peninga?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
19.12.2012 | 17:45
Leikritið sem leikið er á Íslandi í dag.
Að mínu mati er landsleikrit í gangi. Það er þungur áróður frá hendi þeirra sem vilja ofurselja landið inn í ESB. Það er líka mitt mat að þetta beri vott um örvæntingu. Örvæntingu ESBforkólfanna, um að það gangi illa að kristna þjóðina til fylgilags. Þar er sennilega ástæðan að þeir þola ekki að þessi útkjálka þjóð dragi þá á asnaeyrunum, og vilji ekki inn í fyrirheitna landið. Það er EKKI UMHYGGJA FYRIR LANDI OG ÞÓÐ SEM ÞAR RÆÐUR FERÐ. heldur einhverskonar ótti um að ef þessi litla þjóð afneitar batteríinu, muni fleiri koma á eftir, eins og Bretland til dæmis, sem virðist tvístígandi um hvað skuli gera. Fólkið vill út, en forystumenn þora ekki, eða eru undir þrýstingi Merkel og fleiri ráðstjórnarmanna.
Örvænting utanríkisráðherra og forystu Samfylkingarinnar, sem sjá fyrir sér að komist ekki hreyfing á málið þeim til hagsbóta, muni flokkurinn bíða afhroð í næstu kosningum.
Örvænting VG er af öðrum toga. Þeim er lífsspursmál að þæfa málið og kæfa það fyrir kosningar, til að eiga sér líf eftir þær.
Rúvdæmið er mér til umhugsunar. Er þar um að ræða fé sem sett er inn í stofnunina, annað hvort beint eða sem kostun, af þeim peningum sem nú streyma inn í landið frá ESB í allskonar ímyndunarferli, fyrir innlimun. Þar er hver sjórafturinn dreginn fram af öðrum frá Sambandinu til að telja okkur trú um hvað það sé nú gott við kjötkatla ESB.
Sérstaklega sker í augun endalaus áróður í Speglinum og kvöldfréttum ríkisútvarpsins, með Sigrúnu Davíðsdóttur í fararbroddi.
Svo er svoköllu Evrópustofa með allskonar uppátæki og gylliboð.
Ég vona innilega að almenningur láti ekki blekkja sig. Því hér er einungis um blákaldan útspekuleraðan áróður að ræða, með hræðslu og gylliloforðum. En ekki umhyggju fyrir landi og þjóð.
Gylliboðum um að hér muni drjúpa smjör af hverju strái á landsbyggðinni ef við bara segjum já.
Við eigum sem sagt að leggjast í eymd og volæði og láta sambandið hugsa um okkur og fyrir okkur.
Þess vegna er þetta leikrit sett á svið. Það er sýnt á ýmsum stöðum, af ýmsum aðilum, sem hafa það eitt að leiðarljósi að gabba þjóðina inn í gyllt búr, sem mun gleypa okkur að fullu og öllu.
Það er verið að tala um "kynningu" á þessu sambandi, hvenær er það kölluð kynning, þegar einhliða áróður er viðhafður. Ekki kostir og gallar. Nei almáttugur það gæti verið hættulegt að við fengjum smjörþefinn af þeim ágöllum sem eru á þessari vegferð.
Já utanríkisráðherra gerist nú vígreifur og talar hátt og mikið, "Guðsgjöf fyrir landsbyggðina" kallar hann þetta. Hann er nefnilega búin að átta sig á því að andstaðan er mest á landsbyggðinni, þar sem menn þekkja til landbúnaðar og sjávarútvegs á eigin skinni, og vilja ekki yfirtöku erlendra aðila á þeim gæðum sem við eigum þar.
Það er búið að kristna flesta prófessora og lattelepjandi sértrúarsöfnuði í 101 Reykjavík, sem ekkert vita um hvað heldur þessu landi í rauninni á floti. Margir halda að peningarnir verði til í Kringlum og Smáralindum, eða með froðufé.
Við getum náð okkur á strik, við þurfum bara stjórnvöld sem vilja byggja upp samfélagið á eigin forsendum, við erum stolt fólk, og við viljum ekki ölmusu. Við viljum fá að bretta upp ermar og vinna okkur út úr vandanum á eigin forsendum, en ekki undir fölskum "verndarvæng" yfirráðaseggja sem sá hvað þetta land hefur upp á að bjóða í allskonar gersemum sem hér eru hjá fámennri þjóð.
Ég vona innilega að einhvern daginn verði Össur Skarphéðinsson og fleiri ráðamenn dregnir fyrir dómstóla og dæmdir sem landráðamenn, samkvæmt stjórnarskrá þar sem segir að hver sá sem vinnur að því að leggja landið undir erlend yfirráð sé landráðamaður.
Ég á flest mín börn og barnabörn erlendis. Mín heitasta ósk er sú að þau geti komið heim og átt hér gott líf. Það gerist ekki nema við fáum stjórnvöld sem setja fólk í forgang. Ekki banka, ekki fjármagn, ekki eigin sjálfsmynd. Forystu sem skynjar að það er fólkið í landinu, heimilin og fjölskyldurnar sem er mesta auðlindin sem landið á. Það gerum við ekki með því að flýja inn á faðm stórveldis, sem sífellt sækist eftir meiri yfirráðum yfir þeim þjóðum sem gangast undir ægivaldið, allt undir yfirskyni lýðræðis og umhyggju fyrir þjóðum, svo kjánalega sem það nú hljómar þegar við lítum yfir sviðið og sjáum ekkert nema fátækt og örvæntingu þeirra þjóða sem verst standa innan ESB. Allar góðar vættir forði okkur frá slíkum helfaðmlögum.
![]() |
Tafarleikir Jóns tefja fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
15.12.2012 | 14:03
Á ferð og flugi.
Ég er nýkomin heim, eftir ferðalag til að hitta elskuleg barnabörnin mín sem búa í útlöndum. En fyrst ákvað ég að koma við í Bjarkarlundi og fara þar á jólahlaðborð, þar sem ég ætlaði á fundi daginn eftir.
En ég var svo heppin að áður en ég fór, komu þýskir vinir mínir í heimsókn, og við áttum góða stund saman, þau buðu okkur Úlfi út að borða. Takk fyrir okkur Birgit mín og Stefan.
Á laugardeginum var svo haldið af stað í átt að Bjarkarlundi. Ég viðurkenni að ég var dálítið smeyk við að fara ein af stað, því ég vissi ekkert hvernig færðin væri. Það var nýbúið að vera leiðindaveður, en þetta gekk allt vel og veðrið afskaplega fallegt.
Litadýrðin meiri en orð fá lýst. Ísköld fegurð.
Sólina sjáum við ekki í dag, en hún veitir okkur samt ótrúlega mikið með sínu skini.
Fegurð ljóss og lita.
Það var vel tekið á móti mér í Bjarkarlund, þar eru eigendur Oddur Guðmundsson skólabróðir minn og hans elskulega kona Kolbrún Pálsdóttir. Þau eru aldeilis búin að dubba Bjarkarlund upp.
Það var heilmikið fjör á jólahlaðborðinu.
Fólkið þarna kann greinilega vel að skemmta sér.
Ekki var nú verra að fá að hlusta á Jóhann Pétur reita af sér brandarana. Þarna er hann með Addi Kitta Gau.
Grallararnir af Júlíusi Geirmundssyni voru þarna líka komnir til að skemmta sér.
Þar sem er hljóðfæri, mikrafónn og spilun, þar syngur Addi.
Gestgjafarnir Kolla og Oddur takk fyrir mig elskurnar.
O ha var fjör eins og sumir myndu segja Hér má sjá tvo af væntanlegum frambjóðendum Dögunar.
Hér erum við skólasystkini og fermingarsystkini og lýðveldisbörn.
Vona að Akureyringar og fleiri taki þessum unga manni vel í vor.
Það er gífurlega fallegt landslagið við Breiðafjörðinn.
Og þá var það fundurinn. Ég lét plata mig í kjördæmanefnd fyrir Dögun í norðvestur kjördæmi.
Fundurinn góður og margt skemmtilegt rætt, fyrir utan fyrirkomulag um lista í kjördæminu.
Það er ákveðin bjartsýni í gangi, vitandi af öllu því frábæra fólki sem er að vinna að framboðsmálum í dag, öll þessi nýju og fersku framboð, sem reyndar verður örugglega reynt að þagga í hel af valdinu. Það vill enginn láta taka frá sér völdin. Sérstaklega ekki þegar sigur blasir við mönnum, þá er von að þeir sýni tennurnar. En við eigum ekki að hlusta á svoleiðis. Við eigum að sækja fram og þora að gera eitthvað nýtt.
Þegar fundi lauk þurfti ég að aka til Reykjavíkur, og ég bara hvorki rata þar né kann mig þar. En sem betur fer átti ég hauk í horni sem ók á undanmér alla leið og á tvo staði sem ég þurfti að koma við á. Takk mín kæra
Það var gaman að setjast og spjalla við gömlu vinkonurnar mínar úr æskunni, Hildu og Dísu. Það var svo sannarlega gott að sitja og ryfja upp allt það gamla og góða.
Þá var að taka strikið ennþá sunnar og austar á bóginn en ég gisti hjá Bjössa okkar og Marijönu.
Hér eru Arnar Milos og Davíð Elías, litlu drengirnir okkar sem núna búa í Njarðvíkinni. En ég segi meira frá þeim næst, og svo verður haldið út til að hitta öll hin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.12.2012 | 12:50
Andrea í framboð.
Það eru að koma fram þær persónur sem fara í framboð fyrir Dögun, og hópurinn stækkar. Ég er afar ánægð með þau sem hafa gefið kost á sér nú undanfarið.
Gísla Tryggvason, Lýð Árnason, Margréti Tryggva sem ég hef átt kost á að eiga góð samskipti við, Ragnar Þór og nú Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur og Þórð Björn Sigurðson. Þetta er sómafólk allt saman og vandaðar manneskur. Og það eru fleiri nöfn að koma fram á næstunni.
Andrea vakti mikla athygli sem forsetaframbjóðandi fyrir skeleggan málflutning og að tala máli almennings. Það er því mikið gleðiefni að hún skuli ætla sér að fara alla leið og gera sitt til að rödd hennar fái að heyrast á alþingi.
Í dag eru ný tækifæri og ný Dögun í upprisu fyrir almenning með þeim hræringum og nýju fólki sem vill fram. Nýjir flokkar sem koma fram, með nýju fólki.
Oft var þörf en nú er nauðsyn að skipta út gamla liðinu á Alþingi og fá inn ferskar hugmyndir og aðrar lausnir, Ný viðhorf og aðra sýn á hlutina. Ný kynslóð án afskipta gömlu brýnanna sem telja sig alltaf vita best og stýra yngra fólkinu gömlu leiðirnar, en þannir eg það að mínu mati oftar en ekki í gömlu flokkunum.
Leyfum ferskum vindum að blása um Alþingi, og treystum nýju fólki til að berjast fyrir fólkið í landinu, en ekki treysta endalaust þeim sem sýnilega hafa alltaf haft hag sjálfra sín og flokksins að leiðarljósi.
Það breytist ekkert fyrr en við sjálf þorum og viljum breyta, og virkilega sýnum það í verki.
Áfram íslenska framtíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
7.12.2012 | 20:44
Frí frá störfum!
![]() |
Útvarpsfólkið í leyfi frá störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (53)
7.12.2012 | 19:06
Þegar "grín" fer úr böndunum.
Ég hef aldrei verið hrifin af svona hrekkjum. Og þegar verið var með hrekki í lyftu hér fyrir nokkru, hugsaði ég með mér að svona gæti gert út um mig, ég er afar viðbrigðin. Gerir fólk sér ekki grein fyrir alvörunni á svona "gríni"? Fólk er mismunandi tiltækilegt fyrir áreiti, og svo getur verið að þeir sem fyrir "gríninu" verða séu í áhættu til dæmis með hjartaáfalli eða einhverju slíku.
Það sem þarna átti sér stað var viðurstyggilegt og ég virkilega vona að þetta fólk verði dæmt í fangelsi fyrir morð. Að vísu ekki að yfirlögðu ráði, en atferli þeirra orkaði tvímælis. Og það sorglega gerðist, hjúkrunarfræðingurinn tók sitt eigið líf.
Þau hljóta að bera ábyrgð, og hana mikla á þessu dauðsfalli. Og ég vil sjá að þau hljóti makleg málagjöld, í fyrsta lagi verði rekinn frá fjölmiðlinum, síðan sökuð um morð og dæmd sem slík til refsingar.
Það þarf virkilega að fara að taka á svona "gríni".
Skammist þið ykkar.
![]() |
Hjúkrunarfræðingur Katrínar látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.12.2012 | 22:28
Að éta kökuna og geyma líka.
Já já nú á að smokra sér undan því að taka ákvörðun, og þá á að setja málið á ís. Ég er ekkert viss um að við Evrópuandstæðingar kærum okkur neitt um að setja þetta á ís. Við viljum allavega ég, ganga frá þessu alfarið og ef farið verður af stað aftur, þá verði þjóðin spurð um hvort hún yfirleitt vilji ganga þessa för.
Þið eruð algjörlega búin að ganga frá öllu trausti fólks í málinu, og nú á að bera í bakkafullan læk og gefa einhver hint um annað hvort eða. Burt með ykkur falshundar sem getið ekki sagt hreint út hvað þið viljið. Burt með ykkur sem þykist vera á móti en eruð með. Burt með ykkur sem sjáið fram á risatap í kosningum komandi vegna svika ykkar við gefinn loforð.
Og nú á að bæði geyma kökuna og éta hana. Þið eruð einfaldlega aumkvunarverð VG liðar. Svei attan bara.
![]() |
Ferlið jafnvel lagt til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.12.2012 | 10:59
Hvenær er komið nóg?
Það er ógnvænlegt að lesa um ástand mála í okkar helstu heilbrigðisstofnun. Og nú bætist ofan á þetta lögreglurannsókn á dauðsfalli, og annað til viðbótar talið tengjast skorti á umhirðu.
Þetta kemur ekki á óvart því miður, en spurningin er, hversu langt er þessi norræna velferðarstjórn tilbúin að ganga til að geta staðið undir vogunarsjóðum og bönkum, og afskriftum til auðmanna, meðan fólk deyr á spítölum landsins vegna þess að ekki hefur tekist að sinna þeim. Það var líka hrollköld umfjöllunin um aðstöðu starfsfólks bráðamóttöku og hvernig deildum hefur markvisst verið lokað undanfarið vegna niðurskurðar.
Og mitt í öllu þessu eru yfirvöld í alvöru að ætla sér að byggja eitt stykki hátæknisjúkrahús, bákn sem mun soga til sín allt það fé sem fer í rekstur núverandi heilsustofnana um land allt og meira til.
Og ekki bara það. Með því að reisa þennan stórkumbalda, sem mikið ósætti er um, mun að öllum líkindum þurfa að loka fjórðungssjúkrahúsum landsins, eða allavega skerða þeirra þjónustu svo að landsmenn utan Reykjavíkur munu vera háðir sjúkraflugi, veðri og vindum, þegar um líf og heilsu er að tefla.
Er fólki virkilega ekkert heilagt? Það er orðin löngu þekktur brandari nafnið sem Jóhanna gaf stjórn sinni, hin norræna velferðarstjórn. Afskaplega lítið hefur farið fyrir velferð þegnanna, en meiri velferð fjárfesta og vogunarsjóða. Sem vel hefur verið passað upp á að skorti ekki neitt.
Það virðast alltaf vera til peningar þegar um gæluverkefni er að ræða. Má þar nefna Landeyjarhöfn þar sem peningum er mokað í daglega eins og sandi, í stað þess að geyma þessa höfn og notast við gömlu aðstöðun uns við getum gert þessu mannvirki betri skil, eða keypt ferju sem hentar. Það er hægt að ábyrgjast Vaðlaheiðargöng, sem allir vita að þeir sem tóku um það ákvörðun voru úr sama kjördæminu. Meðan samgöngur bæði fyrir austan og vestan eru óbærlegar að öllu leyti.
Það var hægt að byggja Hörpu sem kostar þvílíkar fjárhæðir að reka, þó það sé gott að eiga frábært tónlistarhús, þá verða þeir peningar ekki notaðir í heilsu og líf landsmanna.
Það eru afskrifaðar skuldir sparisjóða og banka, auðmenn fá afslátt til að geta byrjað aftur þar sem þeir enduðu síðast, núna má til dæmis lesa að Jóh Ásgeir rekur verslunina Iceland, sem er á pappírum í eigu föður hans. Aðrir standa í málaferlum vegna þess að þeir hafa ekki fengið sömu fyrirgreiðslu, sennilega ekki í klíkunni, eins og eigendur B.M. Vallár.
Nei segi ég, þessi ríkisstjórn er ekkert meiri velferðarstjórn og jöfnunar en þær sem á undan henni hafa setið.
Það er með ólíkindum að sjá að loforð ráðamanna fyrir kosningar verða að engu þegar þeir komast að völdum. Þá er afsakað og sagt að það þurfi að semja um hlutina.
En eru þá enginn prinsipp svo nauðsynleg að það megi EKKI SEMJA UM ÞAU?
Er líf og heilsa landsmanna ekki meira virði en fjármagn og völd einstakra?
Það blessað fólk sem nú er í fréttum vegna andláts, var komið vel á aldur, og höfðu vonandi átt gott líf.Blessuð sé minning þeirra. En hver verður næstur? Það gæti verið barn eða ungt fólk í blóma lífsins. Það gæti verið þú lesandi góður. Sum er einfaldlega það verðmætt að það verður ekki kostað til með peningum, völdum eða áhrifum. Sumt er einfaldlega það heilagt hverjum manni að ekki verður gengið lengra í niðurskurði og fjársvelti.
Það fer að styttast í kosningar. Við verðum að velja vel þegar við höfum það í hendi okkar. Þá er gott að líta til þess hvernig ráðamenn hafa haldið á málum, hvað þeir hafa sagt og gert. Líka þarf að hafa í huga það sem andstæðingarnir segja, og hvernig þeir hafa höndlað sín loforð.
Sem betur fer er það svo í dag að fólk á annað val þá, sem fara fram fyrir svokallaðan fjórflokk. Það er nokkuð ljóst að þar er lítil endurnýjun þeirra sem leiða munu listana, þar eru sömu framapotararnir og flokkariddararnir og áður með sömu áherslurnar og áróðurin.
Það eru að koma fram nýjir flokkar með nýju fólki, þeir eru nokkrir, þeir hafa ekki ennþá fengið að leggja sín mál í dóm samfélagsins, fyrir því eru ýmsar ástæður.
Sum framboð eru einfaldlega ekki tilbúin með sinn málefnapakka, aðrir komast ekki að í fjölmiðlum til að kynna sig. En þegar líður nær kosningum verður ljóst að það fólk sem leggur sitt í ný framboð munu koma sínum hugðarefnum á framfæri. Ef blöðin og aðrir fjölmiðlar hafa ekki pláss eða tíma munu þau örugglega kynna sig sjálf á bloggi og spjalli. Þar eigum við tækifæri til endurnýjunar og að gefa öðrum tækifæri til að snúa vörn í sókn. Venjulegt fólk sem hefur sjálft tekið þátt í daglegum amstri þjóðfélagsins, en ekki setið ár eða jafnvel áratugi í skjóli fílabeinsturns sem verður sífellt hljóðþéttari og hærri með hverju árinu sem líður. Og svo er komið að sumir þessara lukkuriddara telja að þeir VERÐI AÐ HALDA ÁFRAM, ÞVÍ ÞEIR SÉU ÓMISSANDI.
Það er einfaldlega hingað og ekki lengra sem við komumst með gömlu flokkana og gamla hugsunarháttinn. Þegar fólk ef farið að deyja af völdum vanrækslu á æðstu stofnunum heilbrigðiskerfisins, er kominn tími til að segja hingað og ekki lengra, og þá má segja að blessað fólkið hafi ekki dáið til enskis.
![]() |
Álagið á LSH allt of mikið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.11.2012 | 16:49
Stórhættuleg smjörklípa.
Ég var svona rétt að taka norðmenn í sátt, og hugsaði með mér við værum nú ansi líkir hópar. Þetta var ég að hugsa á Gardemoen flugvelli, meðan ég beið eftir að sonur minn sækti mig út á flugvöll í Osló.
En þessi hugsun hvarf eins og dögg fyrir sólu, þegar ég daginn eftir var á leið aftur um Gardemoenflugvöll í innanlandsflugi til Örstad/Volda, orðin of sein og var að missa af vélinni.
Ég hafði auðvitað tekið með ýmislegt gott sem ég ætlaði að veita börnunum mínum, þar á meðal var smjörstykki. Þar sem ég var á hraðferð gegnum Sekjúrití, var ég stoppuð og leitað í handfarangri, stúlkan tók upp smjörstykkið og sagði að þetta væri ekki leyfilegt. Ég horfði á hana í forundran og síðan á smjörstykkið, en þetta er bara smjör sagði ég með vantrú í röddinni, en eitur í augunum. Þetta átti að vera með harðfiskinum sem þarna var líka.
Nei við getum ekki leyft þér að fara með þetta inn í vélina sagði hún. En ég er í innanlandsflugi, sagði ég og fann hvernig öll frændsemi hvarf eins og dögg fyrir sólu.
Nei ég þarf að taka þetta frá sagði hún ákveðin, og ég sá fyrir mér græðgina í augunum á henni, viss um að hún ætlaði bara að fara með smjörstykkið með sér heim og gæða sér á því.
En ég var að missa af flugvélinni svo ég lét þetta yfir mig ganga.
En þetta var ekki búið, þetta hafði tafið mig svo að ég var orðin ansi sein og þá var að hlaupa með allt draslið og gate 2 á Gardemoen er nákvæmlega hinu megin í húsinu, út í enda og þar ofan í kjallara, svo auðvitað missti ég af flugvélinni. Auðvitað voru engar kerrur sjáanlegar neinstaðar til að auðvelda mér hlaupin með farangurinn, nema þær voru við útganginn í flugvélina, afskaplega þægilegt eða hitt þó heldur.
En sem sagt ég missi af vélinni, og þá var bara að rölta aftur í gegn. Sem betur fer hafði sonur minn beðið til að sjá hvort ég hefði komist með. Ég þurfti svo að kaupa aftur miða, sem betur fer fór önnur vél kl. 14.40, svo það var smá seinkunn en ekki daga spursmál. Miðinn kostar bara rúmar 2000 krónur norskar, jafn mikið og flug til Vínar
Svo aftur gegnum öryggishliðið, og aftur þurftu þau að skoða í farangurinn minn. Í þetta skiptið var það lakkrísreimarnar sem vöktu áhuga þeirra. Og lá við að yrði tekinn af mér, það sem barnabörnin mín áttu að fá. Því pirraðri sem ég varð, því kuldalegri urðu öryggisverðirnir. Hliðið pípti þegar ég fór í gegn, og þegar brosandi vörður spurði mig kurteislega hvort ég vildi konu eða karl til að leita á mér, leit ég í kring um mig og sá enga konu í nágrenninu og heimtaði að fá kvenmann í jobbið.
Þá var að leggja af stað aftur. Og það var farið að sjóða á mér. Mér fannst sárara að láta taka af mér smjörstykkið, en að borga nýjan miða, sem sonur minn reyndar greiddi helminginn af.
Og ég er ennþá að velta því fyrir mér hvað er svona hættulegt við eitt stykki af smjöri í plastumbúðum.
En ég mun segja ykkur frá ferðalaginu og fleiru síðar.
Flogið yfir Ullsteinvik.
En svo get ég ekki verið reið lengur þegar við blasir hrikaleg fegurðin.
FLogið í áttina að Örstad.
Komin heim í heiðardaglinn hjá börnunum mínum.
Eigið góða helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.11.2012 | 20:21
Miðlar, særingarmenn .... eða huglækningar og kraftaverk.
Ég er dálítið undrandi á hvernig fólk tekur þessum fréttum. Einmitt í landi þar sem flestir trúa á hið yfirnáttúrulega. Og í landi þar sem margir leita sér óhefðbundinna lækninga. Þar sem ótal bænahringir hafa gert kraftaverk. Og fólk kemur úr öllum heimshornum til að kynna sér það sem hér er norm hjá svo mörgum.
Ég veit að það sem er kalla hér af ýmsum kukl, virkilega virkar, þar sem fólk með næga þekkingu og einlængi vinnur gott starf. Að vísu hafa margir óheiðarlegir aðilar skemmt fyrir, því sem í alvöru gengur upp.
Ég hef sjálf fengið góða lækningu við flughræðslu sem hefur háð mér í mörg ár, einmitt við aðstoð fólks sem kann meira fyrir sér. Það er líka hægt að læra allskonar óhefðbundnar lækningar. Í slíkum eru líka hjúkrunarfólk og læknar, og margir eru farnir að viðurkenna að það virkilega er hægt að lækna meidda sál, og brotinn einstakling með því að fara inn á sálina og hið hugræna.
Viðbrögðin minna mig óneitanlega á afstöðu margra í fyrstu við að það ætti að viðurkenna homma og lesbíur.
Reynum að hugsa svolítið út fyrir ramman og gefa því möguleika að sumt fólk viti meira og hafi víðari skírskotun til lífsins en þeir sem búa í kössum og geta ekki ímyndað sér neitt sé þarna sem gæti verið gott að huga að. Það er að mínu mati sorgleg þröngsýni. En þeir um það. Segi bara og skrifa mér finnst þetta gott mál og löngu tímabært.
Það er til heimur eða margir heimar rétt við hlið okkar, og þar er margt að gerast. Þess vegna er bara sorglegt að afneita öllu slíku.
![]() |
Starf miðla og særingamanna verði niðurgreitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar