Hvenær er komið nóg?

Það er ógnvænlegt að lesa um ástand mála í okkar helstu heilbrigðisstofnun.  Og nú bætist ofan á þetta lögreglurannsókn á dauðsfalli, og annað til viðbótar talið tengjast skorti á umhirðu.

Þetta kemur ekki á óvart því miður, en spurningin er, hversu langt er þessi norræna velferðarstjórn tilbúin að ganga til að geta staðið undir vogunarsjóðum og bönkum, og afskriftum til auðmanna, meðan fólk deyr á spítölum landsins vegna þess að ekki hefur tekist að sinna þeim.  Það var líka hrollköld umfjöllunin um aðstöðu starfsfólks bráðamóttöku og hvernig deildum hefur markvisst verið lokað undanfarið vegna niðurskurðar.

Og mitt í öllu þessu eru yfirvöld í alvöru að ætla sér að byggja eitt stykki hátæknisjúkrahús, bákn sem mun soga til sín allt það fé sem fer í rekstur núverandi heilsustofnana um land allt og meira til.

Og ekki bara það.  Með því að reisa þennan stórkumbalda, sem mikið ósætti er um, mun að öllum líkindum þurfa að loka fjórðungssjúkrahúsum landsins, eða allavega skerða þeirra þjónustu svo að landsmenn utan Reykjavíkur munu vera háðir sjúkraflugi, veðri og vindum, þegar um líf og heilsu er að tefla.

Er fólki virkilega ekkert heilagt?  Það er orðin löngu þekktur brandari nafnið sem Jóhanna gaf stjórn sinni, hin norræna velferðarstjórn.  Afskaplega lítið hefur farið fyrir velferð þegnanna, en meiri velferð fjárfesta og vogunarsjóða.  Sem vel hefur verið passað upp á að skorti ekki neitt.

Það virðast alltaf vera til peningar þegar um gæluverkefni er að ræða. Má þar nefna Landeyjarhöfn þar sem peningum er mokað í daglega eins og sandi, í stað þess að geyma þessa höfn og notast við gömlu aðstöðun uns við getum gert þessu mannvirki betri skil, eða keypt ferju sem hentar. Það er hægt að ábyrgjast Vaðlaheiðargöng, sem allir vita að þeir sem tóku um það ákvörðun voru úr sama kjördæminu. Meðan samgöngur bæði fyrir austan og vestan eru óbærlegar að öllu leyti.

Það var hægt að byggja Hörpu sem kostar þvílíkar fjárhæðir að reka, þó það sé gott að eiga frábært tónlistarhús, þá verða þeir peningar ekki notaðir í heilsu og líf landsmanna.

Það eru afskrifaðar skuldir sparisjóða og banka, auðmenn fá afslátt til að geta byrjað aftur þar sem þeir enduðu síðast, núna má til dæmis lesa að Jóh Ásgeir rekur verslunina Iceland, sem er á pappírum í eigu föður hans. Aðrir standa í málaferlum vegna þess að þeir hafa ekki fengið sömu fyrirgreiðslu, sennilega ekki í klíkunni, eins og eigendur B.M. Vallár.

Nei segi ég, þessi ríkisstjórn er ekkert meiri velferðarstjórn og jöfnunar en þær sem á undan henni hafa setið.

Það er með ólíkindum að sjá að loforð ráðamanna fyrir kosningar verða að engu þegar þeir komast að völdum. Þá er afsakað og sagt að það þurfi að semja um hlutina.

En eru þá enginn prinsipp svo nauðsynleg að það megi EKKI SEMJA UM ÞAU?

Er líf og heilsa landsmanna ekki meira virði en fjármagn og völd einstakra?

Það blessað fólk sem nú er í fréttum vegna andláts, var komið vel á aldur, og höfðu vonandi átt gott líf.Blessuð sé minning þeirra.  En hver verður næstur? Það gæti verið barn eða ungt fólk í blóma lífsins. Það gæti verið þú lesandi góður. Sum er einfaldlega það verðmætt að það verður ekki kostað til með peningum, völdum eða áhrifum. Sumt er einfaldlega það heilagt hverjum manni að ekki verður gengið lengra í niðurskurði og fjársvelti.

Það fer að styttast í kosningar.  Við verðum að velja vel þegar við höfum það í hendi okkar.  Þá er gott að líta til þess hvernig ráðamenn hafa haldið á málum, hvað þeir hafa sagt og gert.  Líka þarf að hafa í huga það sem andstæðingarnir segja, og hvernig þeir hafa höndlað sín loforð.

Sem betur fer er það svo í dag að fólk á annað val þá, sem fara fram fyrir svokallaðan fjórflokk.  Það er nokkuð ljóst að þar er lítil endurnýjun þeirra sem leiða munu listana, þar eru sömu framapotararnir og flokkariddararnir og áður með sömu áherslurnar og áróðurin.

Það eru að koma fram nýjir flokkar með nýju fólki, þeir eru nokkrir, þeir hafa ekki ennþá fengið að leggja sín mál í dóm samfélagsins, fyrir því eru ýmsar ástæður.

Sum framboð eru einfaldlega ekki tilbúin með sinn málefnapakka, aðrir komast ekki að í fjölmiðlum til að kynna sig.  En þegar líður nær kosningum verður ljóst að það fólk sem leggur sitt í ný framboð munu koma sínum hugðarefnum á framfæri.  Ef blöðin og aðrir fjölmiðlar hafa ekki pláss eða tíma munu þau örugglega kynna sig sjálf á bloggi og spjalli.  Þar eigum við tækifæri til endurnýjunar og að gefa öðrum tækifæri til að snúa vörn í sókn.  Venjulegt fólk sem hefur sjálft tekið þátt í daglegum amstri þjóðfélagsins, en ekki setið ár eða jafnvel áratugi í skjóli fílabeinsturns sem verður sífellt hljóðþéttari og hærri með hverju árinu sem líður.  Og svo er komið að sumir þessara lukkuriddara telja að þeir VERÐI AÐ HALDA ÁFRAM, ÞVÍ ÞEIR SÉU ÓMISSANDI.

Það er einfaldlega hingað og ekki lengra sem við komumst með gömlu flokkana og gamla hugsunarháttinn.  Þegar fólk ef farið að deyja af völdum vanrækslu á æðstu stofnunum heilbrigðiskerfisins, er kominn tími til að segja hingað og ekki lengra, og þá má segja að blessað fólkið hafi ekki dáið til enskis. 


mbl.is Álagið á LSH allt of mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jack Daniel's

Þarna er bara verið að tala um eina deild á LSH.  Ef það væru nú teknar allar deildir allra sjúkrahúsa á landinu, hver ætli dánartíðnin sé þá?

þess er skemmst að minnast, að 20. Okt síðastliðinn kom starfsfólk geðdeildar FSA að syni mínum inni á herbergi þar sem hann var búinn að hengja sig.

Ekki er verið að rannsaka það svo ég viti til.

Jack Daniel's, 5.12.2012 kl. 13:40

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Keli ég veit um mörg tilfelli þar sem ung fólk hefur svipt sig lífi vegna þess að það eigir enga von.  Það er svo sorgtlegt og hræðilegt ætli það séu ekki fleiri sjálfsmorð á Íslandi heldur en bílslys, samt finnst fólki nauðsynlegt að gera eitthvað í þeim málum.  En unga fólkið okkar má bara hoppa og renna vonlaust og sjúkt.  Skömmin er ærandi fyrir stjórnvöld og þá sem um þessi mál höndla

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.12.2012 kl. 13:55

3 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Svona er nú komið fyrir okkur Íslendingum. Við kjósum alltaf yfir okkur einhverja larfa sem skara eld að sinni köku fyrst og fremst, en skeyta engu hvað almúginn þarf að líða fyrir græðgisvæðingu sjálftökuliðsins. Og ég er ekkert saklaus í þeim efnum, tel mig þó hafa þá afsökun, eins og svo margir aðrir, að þegar ég kýs, held ég alltaf að ég sé að kjósa það skásta af mörgum illum möguleikum. Er ekki bara komið að því að gefa nýju fólki tækifæri ? Getur það klúðrað málum meira en búið er að gera nú þegar ? Eða eins og maðurinn sagði: „Af tvennu illu er það skárra betra". Úr þessum nýju flokkum, er auðvelt að vinsa, sumir eru betri en aðrir. Ég veit hvað mér líst best á, en það er mín skoðun og þarf ekki að vera sú rétta.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 5.12.2012 kl. 15:07

4 identicon

Ég verð nú bara að segja það að mér hugnast ekki þessi dæmafáa dómharka sem einkennir umræður í bloggheimum. Stjórnmálamenn er sagðir algjörir ódámar og illþýði,- hreinn túkthúslýður, ef satt væri allt sem um þá er sagt. Ég segi nú bara eins og frelsarinn forðum, " dæmið eigi svo að þér verðið eigi dæmdir". Það vill nú svo til að ég þekki persónulega marga stjórnmálamenn og það úr öllum flokkum. Ég get með góðri samvisku fullyrt að þetta fólk, sem þjóðin hefur valið til forystu fyrir sig, bæði í sveitarstjórnum og á Alþingi, er upp til hópa heiðarlegt og gott fólk, sem vill samfélagi sínu allt hið bezta. Eðli máls samkvæmt greinir menn á um leiðir, og það er bara ágætt því í því kristallast lýðræðisleg umræða í samfélaginu. Núverandi ráðamenn verða sérstaklega fyrir barðinu á þessari óvægnu umræðu og það er eins og þeir sem gagnrýna þá harðast séu fyrir löngu búnir að gleyma við hvernig búi þeir tóku. Eins og það sé þeim að kenna hvað búið var í slæmri stöðu þegar þeir tóku við af öðrum sem stjórnað höfðu í um tvo áratugi samfleitt. Nei gott fólk, það er allt í lagi að gagnrýna og gagnrýnin er grundvöllur lýðræðisins, en hún verður ávallt að vera málefnaleg, sanngjörn og sönn. Annars missir hún marks.

Guðbrandur Brynjúlfsson (IP-tala skráð) 5.12.2012 kl. 21:03

5 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Satt, Guðbrandur.
Ég hef, alveg síðan Alþýðubandalagið andaðist, kosið Samfylkinguna og þótt hún nokkuð góð, í versta falli illskást. Ég veit við hverju þeir þurftu að taka þegar þeir fengu stýrið í hendur og er alveg sammála því, að það var vandaverk. Þeir hafa í flestu staðið sig vel, lofað og ýmist staðið við eða ekki, en undanfarið finnst mér þeir hafa lagt meiri áherslu á að leggja meira og meira á almenning í landinu en að leysa mál á annan veg. Það er ekki eins og ég viti hvernig best er að spila úr því sem þeir hafa á hendi, en ég veit að álit mitt á Samfó og VG hefur dalað og ég held að nú sé ekki versti tíminn til að skipta út mönnum. Best væri að fá að kjósa fólk, en ekki flokka. Í flestum flokkum leynast úrvals stjórnmálamenn sem fínt væri að spyrða saman í einn flokk fyrir alla. Þar á meðal er einnig gott fólk úr stjórnarflokkunum.

Takk fyrir að setja ofan í við mig, ég átti það skilið

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 5.12.2012 kl. 22:55

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Guðbrandur auðvitað leynist gott fólk í öllum flokkum, en eins og Anna Dóra er að benda á þá virðist það fólk sem ræðst til að stjórna einhvernveginn ekki hugsa um hag fólksins, heldur breytist hugsun þeirra á þann hátt að huga frekar að peningaöflum en öðru.  Þetta er þeim mun bagalegra fyrir þá sök að þau hafa komist til valda einmitt vegna loforða um þver öfugt og fólk hefur treyst þeim til þess.

Og ég er alveg sammála Önnu Dóru í því að það þarf að treysta nýju fólki, og að best væri að við gætum kosið fólk en ekki flokka.  Vonandi kemur að því fyrr en seinna að slíkt sé hægt, svo ´þeir sem "eiga" sín þingsæti geti ekki bara átt þau vís, á hverju sem gengur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2012 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2020778

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband