Þegar "grín" fer úr böndunum.

Ég hef aldrei verið hrifin af svona hrekkjum.  Og þegar verið var með hrekki í lyftu hér fyrir nokkru, hugsaði ég með mér að svona gæti gert út um mig, ég er afar viðbrigðin.  Gerir fólk sér ekki grein fyrir alvörunni á svona "gríni"?  Fólk er mismunandi tiltækilegt fyrir áreiti, og svo getur verið að þeir sem fyrir "gríninu" verða séu í áhættu til dæmis með hjartaáfalli eða einhverju slíku.

Það sem þarna átti sér stað var viðurstyggilegt og ég virkilega vona að þetta fólk verði dæmt í fangelsi fyrir morð.  Að vísu ekki að yfirlögðu ráði, en atferli þeirra orkaði tvímælis.  Og það sorglega gerðist, hjúkrunarfræðingurinn tók sitt eigið líf.

Þau hljóta að bera ábyrgð, og hana mikla á þessu dauðsfalli.  Og ég vil sjá að þau hljóti makleg málagjöld, í fyrsta lagi verði rekinn frá fjölmiðlinum, síðan sökuð um morð og dæmd sem slík til refsingar.

Það þarf virkilega að fara að taka á svona "gríni". 

Skammist þið ykkar.


mbl.is Hjúkrunarfræðingur Katrínar látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er ljótur leikur. Þetta þema hefur verið notað hér á landi á útvarpsstöðvum og líka í sjónvarpi. Gerendunum þykir þetta víst óskaplega fyndið, mér er gersamlega hulin húmorinn í þessu "gríni".

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.12.2012 kl. 19:18

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já sammála, mér hefur aldrei fundist svona hrekkir grín.  Og það er komin tími til að fólk sem gerir svona beri ábyrgð á athæfi sínu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2012 kl. 19:30

3 identicon

Hæ  ER það ekki hlálegt að :.skemmtikraftur: ? sem hefur haft i frammi ýmis  undarlegheit sem stundum hafa verið kennd við orð sem byrjar á P ég á við svosem að láta mynda sig nakinn utan við kirkjur og hangandi á kirkjugarðsveggjum.ennfremur hálfberan ásamt félaga sínum í  sama sjónvarpsþætti við aðgerðir í fjósi á kú .Þessi aðgerð hefur einungis verið framkv. af þar til lærðum mönnum svk .frjótæknum.Þessi skemmtikraftur virðist vera vinsæl barnastjarna sem er dálítið skondið.Mér datt þetta svona í hug.

Agust þorbjörnss. 

agust (IP-tala skráð) 7.12.2012 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband