17.4.2013 | 01:33
Umburðarlyndi og kærleikur er allt sem þarf.
Það getur vel verið að þeir sem lesa það sem ég skrifa um elskulegan son minn haldi að ég sé í bullandi afneitun, eða hatursfull.
Það er bara einfaldlega ekki þannig. Ég held að ég og sonur minn hofum gert ákveðið samkomulag, áður en hann fæddist, til að taka á ákveðnu vandamáli, sem reyndar var ekki mikið vandamál þá, en varð það síðar. Það er að segja fíkniefnavandamál.
Þessi elskulegi sonur minn, held ég að hafi beinlínis fæðst til þess að vekja fólk til umhugsunar um vandamál sem voru um það bil að verða til um það leyti sem hann fæddist.
Ég man að stundum hvarflaði að mér að best væri að kyrkja afkvæmið mitt, af því að ég einhvernveginn skynjaði að það ætti eftir að vekja mér meiri sorg en ég gæti afborið. En þar sem ég get ekki gert flugu mein, þá gerði ég ekkert slíkt enda elskaði ég þetta barn, eins og ég hef gert við öll börnin mín og barnabörn.
Þetta er eitthvað sem við ákváðum í sameiningu, löngu áður en hann fæddist.
Málið er að drengurinn minn fæddist inn í þetta líf til að skipta sköpum, þess vegna valdi hann manneskju sem hann vissi að myndi þora og berjast.
Fólk hefur undrast hvað ég hef getað opnað mig fyrir vandamálinu. Og spurt hvernig hefurðu styrk til að tala svona.
Málið er að ég myndi aldrei hafa getað það, nema af því að þessum elskulega syni mínum tókst að ná sér upp úr þessu helvíti. Honum tókst það þrátt fyrir hve djúpt hann var sokkinn og þegar öll sund virtust lokuð, tókst honum að vinna sig út úr myrkrinu.
Mér tókst að koma honum inn í Krýsuvík í langtíma meðferð, það kostaði mig í raun og veru sálaró mína, svo ég þurfti að fá róandi lyf, sem ég er ennþá á, og það var vegna þess að sumt af því fólki sem um þessi mál hafa að gera tók út á mér sinn persónulega frama, þegar þeir héldu að þeirra eiginn trúverðugleiki væri í hættu.
En það var í fyrsta skipti sem sonur minn reis upp: mamma þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem ég upplifi að ég get verið edrú, horft á sólina koma upp, fundi ilminn af gróðri og bara fundið tilfinningu fyrir öllu því góða sem er til. 'Eg var búin að gleyma þessu öllu í vímunni.
Þegar hann kom svo út átti hann yndislegan tíma, stundaði AA fundi og fann þar ástina á ný. Átti með henni yndislegan tíma ástar og friðsældar, fékk að fylgjast með hvernig yngri sonur hans óx í móðurkviði og fékk að vera viðstaddur fæðingu hans. Hann elskað báða syni sína og ekki bara þá,heldur öll hin barnabörnin mín, tók þau með í fjöruferðir, veiðiferðir, fjallaferðir og öll þessi yndislegu barnabörn mín elskuðu hann.
Hann vann sig út úr þessari eymd með sóma. Og ég gleymi aldrei björtu augunum hans þegar hann tilkynnti mér; Mamma, í dag hef ég hreint sakarvottorð. Þetta var honum svo mikils virði.
Ekki bara það, hann náði að sættast við bæjarbúa, með sinni einlægni, og hann var alltaf boðin og búin til að hjálpa fólki, og það voru ófáir lófar sem hann laumaði steinfiski í, svona steinfiskum sem hann bjó til.
En það var alltaf eins og sonur minn væri alltaf að flýta sér að lifa lífinu. Það var alltaf eins og hann væri að keppa við tímann til að ná því sem hann vildi ná.
Brottför hans var skyndileg, og skyldi eftir hjá mér bæðí sorg, reiði og spurningu um af hverju?
Í dag veit ég að hans tími var einfaldlega komin, við ætlum okkur ákveðin tíma til að dvelja hér á þessari jörð, og þegar tíminn er kominn þá förum við. Hans var vænst annarsstaðar, og ég hef fengið ótal kveður frá honum og hann hefur haft áhyggjur af mér þessi elska. En ég veit að hann valdi einmitt þessa móður sem hefur þá trú og uppeldi að vita að lífið heldur áfram. Og ég veit einnig að það sem ég er að gera með því að segja hans sögu í þeirri mestu niðurlægingu sem nokkur manneskja getur átt, er liður í að koma því á framfæri ,að þetta gengur ekki lengur. Og hann sá til þess að móðir hans fengið annan son til að annast, son hans barnabarnið minn.
Sonur minn, sem svo sannarlega var svo djúpt sokkinn að hann var algjörlega á botninum, vildi koma þeim skilaboðum á framfæri að það er allt hægt í þessum málum. Það sem þarf er endalaus kærleikur og samstaða ættingja. Við getum afneitað fíkninni, en við þurfum að elska fíkilinn, og við verðum að standa með honum gagnvart kerfinu og glæpamönnunum.
Ég er alltaf að sjá það betur og betur, að þessi elskulegi sonur minn fórnaði sjálfum sér til að bjarga öðrum. Honum tókst að hafa sig upp úr eymdinni, honum tókst að sættast við samfélagið á Ísafirði og þegar hann fór, þá voru margir sem sýndu honum sóma og heiðruðu hann bæði í jarðarförinni og erfidrykkjunni, til að mynda komu flestir lögreglumennirnir sem höfðu haft með hann að segja í jarðarförina honum til heiðurs.
Eftir að hann dó kom svo í ljós að hann hafði svo sannarlega verið engill í mannsmynd við að hjálpa fólk sem minna mátti sín, og reyndar mörgum fleiri. það voru ófáir lófar sem hann laumaði steinfiski í, fyrir utan alla þá sem hann sinnti af kærleika og umhyggju, kom mér á óvart, því aldrei talaði hann um það sjálfur, heldur vann sín kærleiksverk í kyrrþey.
Ég get stolt sagt að undir þetta munu taka flestir ísfirðingar.
En einmitt þess vegna get ég talað um það sem þarf að tala um. Þá niðurlægingu sem fíklar eiga við að etja, og hvernig er komið fram við þá.
Þessu þarf að linna, og ég á þá ósk heitasta að lífshlaup sonar míns verði ekki til einskis, að sú raun sem við höfum gengið í gegnum geti orðið til þess að fólk aðeins hugsi sig um og fari að sýna þvi fólki umburðarlyndi sem hefur fallið af hinni breiðu braut.
Umburðarlyndi og kærleikur er allt sem þarf.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.4.2013 | 11:15
Vímuefna vandinn og DÖGUN.
Hér eru á annan tug framboða sem kjósendum gefst kostur á að velja um þann 27. apríl n.k. Það er boðið upp á marg skynsamlegt og gott sem betur fer. Ég vil hvetja fólk til að kynna sér stefnumál nýju flokkana og láta ekki hræða sig með þessum 5% múr, því eins og einn ágætu maður sagði; Betra þykir mér... að kjósa með hjartanu og fá engann þingmann en að kjósa einhverskonar "skársta raunhæfa kost".
Það er samt eitt mál sem brennur mest á mér, en ég sé ekki að sé mikið í umræðunni hjá neinum flokki, nema okkar. Það er málaflokkurinn um okkar öðruvísi börn. Unga fólkið sem hefur leiðst út á ranga braut og á sér fáa málsvara.
Þetta er mér mikið hjartans mál, vegna þess að ástandið er þannig í dag að þetta blessaða fólk er í huldulandi, þau njóta oft ekki mannréttinda, og eru oftar en ekki meðhöndluð eins og óæðri verur. Við verðum að fara að viðurkenna að þau eru manneskjur með tilfinningar, væntingar og ósk um betra líf. Við verðum að fara að viðurkenna að þau eru veik en ekki glæpamenn.
Þess vegna er ég svo ánægð með Dögun og þeirra afstöðu til fíkla sem lýsir sér í stefnu flokksins:
Stefna Dögunar um breytta nálgun í vímuefnamálum. Sjá hér:
http://xdogun.is/stefnan/stefna-dogunar-um-breytta-nalgun-i-vimuefnamalum/
Ég er líka afskaplega ánægð með tvær ályktanir sem samþykktar voru á landsfundi Dögunar nú í vor en þær hljóða svo:
Á síðasta degi landsfundar, sunnudeginum 17. mars, voru eftirfarandi tvær ályktanir samþykktar . Flutningsmaður beggja var Ásthildur Cesil Þórðardóttir, meðflutningsmenn voru Hólmsteinn Brekkan og Hugrún Steinunn Guðmundsdóttir
Fyrri ályktunin varðar opnun lokaðra meðferðarstöðva og í henni segir:
Dögun vill stefna að því að opna lokaðar meðferðarstofnanir fyrir langt leidda vímuefnaneytendur.
Verði hlutverk stofnananna af tvennum toga.
Annars vegar þar sem hægt er að vista langt leidd börn eða einstaklinga sem hafa verið sviptir sjálfræði og hins vegar að þeir sem misst hafa algjörlega tökin á lífi sínu og hafa leiðst út á braut glæpa, verði dæmdir í slíka meðferð. Einnig geti einstaklingar sem telja sig þurfa á langtíma meðferð að halda notið þessa úrræðis.
Að meðferðin taki í það minnsta eitt til tvö ár, og fylgi síðan eftirmeðferð til að hjálpa sjúklingum að komast aftur á rétt ról. Auk þessi verði húsnæðisúrræði í boði fyrir þá sem eiga ekki í nein hús að venda að meðferð lokinni.
Meðfram þessu þarf að stofna sérstakt embætti með sérstöku fagfólki, sem metur ástand viðkomandi sjúklings og skoðar hvort árangur náist með slíkri meðferð og tryggi eftirfylgni.
Síðari ályktunin er svohljóðandi:
Dögun mun vinna að því við fyrsta tækifæri að halda stóra alþjóðlega ráðstefnu um vímuefnamál.
Þar myndi verða skilgreindur árangur í meðferðarmálum vímuefnaneytenda, a.m.k. sl. þrjátíu ár, og einnig hugað að hvernig þessum málum er betur komið í framtíðinni.
Á þessa ráðstefnu yrðu boðaðir helstu sérfræðingar í vímuvarnarmálum erlendis frá, til dæmis frá löndum sem hafa farið nýjar leiðir í slíkum málum. Einnig yrði boðið vímuefnaneytendum, aðstandendum þeirra, fulltrúum félagsmála og heilbrigðisgeirans, dómurum, lögreglu og lögfræðingum, tryggingafélögum, almennings sem verður fyrir tjóni af völdum innbrota og líkamsmeiðinga og öllum þeim aðilum sem vímuefnaneysla kemur inn á borð til.
Tilgangur ráðstefnunnar yrði fyrst og fremst að leita nýrra leiða til að eiga við þann vanda sem sífellt virðist aukast á neyslu ungs fólks á Íslandi.
Þessar tvær tillögur sem og stefna Dögunar í málefnum fíkla skiptir miklu máli fyrir flestar fjölskyldur í þessu landi. Það þarf virkilega að taka til höndum og fara að vinna skipulega að því að bjarga ungmennum okkar út klóm þeirra sem nú hagnast verulega á neyð þeirra.
Hvað ætli séu mörg brotin heimili af þessum sökum. Hve margir syrgjandi foreldrar vegna þess að hafa misst barnið sitt út í fíkn. Hve margir sem hafa misst barnið sitt út í dauðann þegar allar dyr virðast vera því lokaðar.
Við getum ekki lengur beint blinda auganu að þessari neyð. Hér er vettvangur til þess að leggja áherslu á þessi mál. Og ég mun svo sannarlega gæta þess að þessi mál gleymist ekki hjá Dögun. Við erum með innan okkar raða marga einstaklinga sem vinna með þessi mál, eins og til dæmis báðir meðflutningsmenn mínir Hólmsteinn Brekkann og Hugrún Steinunn, auk annara. Það voru líka margir á landsfundinum sem ræddu við mig um þessi mál, margir sem voru í þessum sporum í dag, eða höfðu upplifað þá erfiðleika sem sjúkdómurinn Fíkn skapar.
ÞESSI MÁL ÞURFA AÐ FARA AÐ HEYRAST Á ALÞINGI.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
13.4.2013 | 14:06
Leikrit í beinni.
Leikritið búið og klappi klapp. En eftir sitja áhorfendur og vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Hver var tilgangurinn með gerð leikritsins, hvað lá að baki og hverjir voru í raun aðalleikararnir?
En sjálfstæðismenn fagna, telja að nú sé þetta búið og fylgið fari í sitt upprunalega horf. En er það svo víst?
Ég er ein af þeim sem vorkenndi Bjarna Benediktssyni eftir viðtalið, sem sannarlega var einlægt frá hans hendi og eftirtektarvert. En var það tilviljun að spyrjendur fóru að eins og þeir gerðu? Það sem virtist algjör ósvífni, var það ef til vill bara einn liður í fléttu sem verið var að hanna inn í Valhöll. Það hvarflar að manni, en það getur enginn fullyrt neitt um það.
Eða var þetta leikflétta unnin af varaformanninum og hennar stuðningsmönnum? Það getur líka alveg verið, og þó það hafi sprungið í andlit þeirra sjálfra, þá getur enginn sagt með vissu að þetta hafi verið svona.
Það sem er alveg ljóst er, að sjálfstæðisflokkurinn var í frjálsu falli, komin niður í rúm 18% sem er algjör rústun á þeim flokki. Það hafa heyrst hurðaskellir og öskur úr Valhöll út af þessu, svo það er ljóst að eitthvað varð að gera.
Við munum aldrei fá að vita sannleikann, eða allavega ekki í mörg ár. Málið er bara þannig fyrir mér, að þetta eru ekki vinnubrögð sem þjóðin er að kalla eftir. Ég vil fyrir mína parta að svart sé svart og hvítt sé hvítt, og að menn taki bara því sem að höndum ber eins og menn. En plott og svikráð er einmitt eitthvað sem þjóðin er að hafna í dag. Ég er þess vegna ekkert svo sannfærð um að Sjálfstæðisflokkurinn muni ná vopnum sínum eftir þessa uppákomu. Hún lýsir nefnilega óheiðarleika, svikráðum og óheilindum. Við fengum að fylgjast með í beinni útsendingu með leikritinu, en það var ekki getið um höfundinn.
![]() |
Bjarni heldur áfram sem formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
11.4.2013 | 17:13
Alveg eftir bókinni.
![]() |
Afþakkaði boð frá foreldrum samkynhneigðra barna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.4.2013 | 16:50
Vor í kúlu.
Það vorar alltaf fyrr í kúlunni, það gerir gróðurskálinn fyrir framan íbúðina okkar. Og núna þegar það er sól og gott veður alla daga, þá er ennþá meira vor og góðæri hér.
Nektarrínan mín er öll í blóma, en líka er perutréð að byrja og kirsuberin, rósamandlan og Kamelíufrúin mín líka.
En það er ekki bara vor í blómunum, heldur er ég svo heppin að geta boðið minni elskulegu fjölskyldu að njóta þess með okkur Ella. Hér er mágur minn á enn einu trylllitækinu.
Og svo er notalegt að sitja í sólinni fyrir framan garðskálann og njóta veðursins.
Litla systir mín ætlar að fara í ökutúr með mági sínum og Dóra leggur henni lífsreglurnar, enda er hún vön að ferðast með manninum sínum í allskonar farartækjum.
Já þá er að leggja í hann og treysta máginum fyrir lífinu hehehehe.
Elli og svilinn njóta sín vel saman.
Þetta kannst gömlu ísfirðingarnir mínir vel við, logn og pollurinn eins og spegill.
Tengdadóttirinn og barnabörnin að koma úr hesthúsinu og líta aðeins við.
Ef það er ekki kajakar, hraðbátar eða fiskibátar þá eru það skútur, og auðvitað þarf að hefja upp stórseglið, því vindurinn er ekki nægur.
Já þetta er yndislegt líf.
Hvað er meiri friður en þetta.
Að njóta sín er málið.
Hef samt grun um að veðrið sé að breytast, því fuglarnir eru svangir og reyna að metta sig eins og þeir geta, það segir mér að veðrið á eftir að versna.
Eins og sést allt í blóma, þetta er besti tíminn í garðskálanum.
Kamilíufrúin mín brosir við sólinni.
En nú er byrjað að snjóa, vonandi verður það ekki langvinnt né merkilegt.
En eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2013 | 23:10
Lýðræði.
Ég hef gegnum tíðina unnið lengi með félögum mínum í Litla Leikklúbbnum hér á Ísafirði. En ég hef líka farið á ótal námskeið í leiklist til allra norðurlandanna, mörgum sinnum, námskeið þar sem gjarnan voru mjög færir stjórnendur. Hef líka farið á slík námskeið hérna á Íslandi. Eitt af því sem ég lærði var hvernig við getum náð ýmsu fram í hópum. Til dæmis með því að ignorera ákveðna manneskju eða hóp, láta sem hún sé ekki til, og upphefja aðra. Og eftir smá tíma er hægt að merkja hvernig sú sem fær athyglina rís upp og hin koðnar niður.
Ég vil meina að þessu sé miskunnarlaust beitt núna í þessari kosningabaráttu. Fréttamenn og fjölmiðlar vilja ráða því hverjir falla og hverjir blíva. Það er sálarlega myrðandi að upplifa þetta. Því maður sér að þar er ekki verið að hygla þeim sem standa sig best, heldur að halda uppi þeim sem menn vilja halda uppi og þegja hina í hel.
Af hverju segi ég þetta? Jú undanfarið hafa verið í gangi allskonar fundir þar sem flokkarnir fá tækifæri til að fjalla um mál og málefni. Þar er ýmsum hampað í hástert en þagað um aðra. Það getur vel verið að ég sé svona öðruvísi þenkjandi en flestir, en það er oft fólkið sem mér finnst lakast sem allir mæra í hæstu hæðir, þó ég sjái að þeir hafi að mínu mati ekkert fram að færa en eru eftirlæti fjölmiðlamanna og miðla.
Til dæmis er það afar merkilegt að við hverja pólitíska grein í MBL má sjá þessa mynd blasa við:
Á þessu er hamrað endalaust, og í öllum umræðum er þetta sama sagan, það er fjasað um hvernig næsta ríkisstjórn muni líta út og hverjir nái nú inn og hverji ekki.
Þetta er að mínu mati vísvitandi tilraun til að flokka suma út og aðra inn. Í stað þess að reyna að gera öllum jafn hátt undir höfði og leyfa fólki að hafa sína skoðun á málefnum og framboðum, þá er sífellt hamrað á þessu. Að því er virðist til að flokka út hverjir eigi að lifa og hverjir eigi að deyja.
Þessi fréttaflutningur er afskaplega óréttlátur og er beinlínis tilraun til skoðanamyndunar að mínu mati, og ekki til þess fallið að leyfa lýðræðinu að njóta sín í allri sinni fegurð og réttlæti.
Það er allt í lagi að gera skoðanakannanir, en að birta þessa mynd með hverri umfjöllun um pólitík er að mínu mati ósmekkleg, og segir í raun og veru ekki hvernig staðan er í raun og veru, en gerir samt það að verkum að fólk sem á annað borð les þetta, hugsar með sér að þetta sé vonlaust framboð og þar frameftir götunum, þó fólk í sjálfu sér vilji styðja það framboð.
Ég hef þá trú að allt þetta kjaftæði um hverjir eru sigurvegarar og hverjir ekki muni ekki standast, og ég hef þá trú að kosningarnar muni koma á óvart... verulega, því sem betur fer er fólk farið að hugsa öðruvísi en áður. Eftir hrun þá vill fólk fá ábyrg svör, heiðarleika og festu.
Það er nákvæmlega það sem Dögun hefur boðið uppá í öllum þeim viðræðum sem hafa farið fram undanfarið. Okkar fólk hefur ekki bara gagnrýnt heldur líka komið með lausnir og skýrt út hvernig þau ætla að framkvæma loforðin. Enda hefur það tekið heilt ár að vinna svörin, og ekki bara það heldur hafa forsvarsmenn fengið sérfræðínga til að halda fyrirlestra um hin ýmsu mál, til dæmis efnahagsmál.
Nýju framboðin hafa ekki haft mikinn tíma til að boða sín stefnumál, flest þeirra hafa nýlokið við að vinna upp stefnumálin, Dögun þar á meðal, þó þau hafi verið heilt ár að vinna að þeim málefnum þá var ekki endanleg ákvörðun tekinn fyrr en eftir landsfund þar sem öll vinnan var samþykkt, enda sést það vel í þeim umræðum sem farið hafa fram, að hver og einn frambjóðenda hafa haft skýr og góð svör við öllu.
Hvernig væri nú svona þegar þessi tími er komin, að leyfa framboðunum að njóta sín, á sínum forsendum og hætta að ignorera sum framboðin og lyfta sínu fólki upp.
Leyfa bara þjóðinni að hlusta og skoða í friði fyrir allskonar spekingum, besservisserum og hlutdrægum fréttamönnum og miðlum.
Það er nú einu sinni besta lýðræðið að leyfa fólki að mynda sína eigin skoðun um hvað þeim er fyrir bestu, og það sem almenningur þarf EKKI á að halda er svona skoðanamyndun frá A til Ö.
Það eru þarna framboð sem hafa margt að segja og leggja til, og það á að leyfa fólki að skoða þau mál í FRIÐI, án afskipta þeirra sem hafa til þess aðstöðu að reyna að velja úr og hygla einum og útiloka annann.
Það er líka góður samhljómur í mörgu því sem nýju framboðin hafa fram að færa, og þess vegna á að leyfa þeim að vera í friði og skoða sín mál og hvernig samhljómurinn virkar, og hvernig þau geta náð saman.
Það verður að segjast að fjórflokkurinn hefur fengið sitt tækifæri mörgum sinnum og klúðrar því BIG TIME, svo það á að gefa þeim frí og leyfa nýju framboðunum að leggja sitt af mörkum.
Ég skora því á alla lýðræðiselskandi þegna þessa lands að virkilega skoða það sem nýju framboðin hafa fram að færa. Skoða hvort þar sé ekki eitthvað sem hægt er að festa fingur á og er samhljómur með þjóðinni. Það er algjörlega fullreynt með fjórflokkinn, hvernig sem hann hamast og reynir að finna upp eitthvað til að gylla loforðin, þau hafa haft allan tíman til að fylla þau loforð, en hafa gleymt þeim um leið og þau komast að kjötkötlunum. Eigum við enn og einu sinni að treysta þeim til að gera alt sem þau lofa?
Ég segi nei.
Það er hið eina og sanna lýðræði að bara sjá hverju framvindur og leyfa fólki að kynna sér málefni og flokka í friði fyrir þessu endalausa rausi og spekulesjónum um hverir vinna og hvernir tapa, því það veit enginn fyrr en talið er upp úr kjörkössunum þann 27 apríl hverjir munu leiða landið okkar fagra og góða til framtíðar. Getum við ekki verið sammála um að leyfa þessu bara að hafa sinn gang án afskipta og leyfa hverjum og einum að taka sína ákvörðun frá hjartanu og heilanum, án þessara endalausu afskipta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2013 | 17:25
Þetta er afar gott mál.
![]() |
Foreldrar samkynhneigðra vilja hitta Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2013 | 11:47
Ég hef sjaldan fyllst jafn miklum viðbjóði...
Og þegar ég hlustaði á verjendur í Al Tani málinu. Mærðarlega lýstu þeir yfir að að það væri réttlætiskennd þeirra sem réði því að þeir vildu draga sig út úr málinu.
Mín hugsun og mér sýnist margra annara var frekar sú að þeir sæju fram á tap í málinu og vilja ekki fá blett á sinn tandurhreina karrier. Það er alveg skiljanlegt, bara að segja það hreint út.
En það er mín skoðun að það sé ekkert hjarta í slíkum mönnum, þar er lítill gullkálfur og kringum hann dansa, græðgi, hroki og eigingirni.
Þó tók steininn úr þegar annar þessara ágætu lögmanna fór að bera saman þetta mál og Guðmundar og Geirfinnsmálið.
Og nú ætla ég að biðja þessa heiðursmenn að íhuga vandlega og spyrja sjálfa sig:
Var þessum útrásarvíkingum haldið í einangrun fleiri mánuði í fangaklefum?
Voru þeir píndir til sagna og játninga með pyndingum sem eru sambærilegar við hið illræmda Guandanamó fangelsinu á Kúpu?
Var þeim ef til vill nauðgað af rannsóknarlögreglu og fangaverði?
Svarið er NEI.
Málið er það ágætu lögspekingar að fólkið sem í þessu máli er að krefjast refsinga er fólkið í landinu sem er búið að missa vinnuna sína, húsin sín og aðrar eignir, jafnvel ættinga til útlanda eða jafnvel sem hafa svift sig lífi vegna einmitt framgöngu þessara manna og fleiri slíkra.
Það er því algjörlega ósambærilegt þessi tvö mál og eins ólík að ætt og uppruna og hægt er.
Ég vil ekki segja skammist þið ykkar, það er of gott ég vil segja SVEI ykkur!
Réttlætisrútan á ferð um landið, með sanngirni, réttlæti, lýðræði og siðferði að leiðarljósi.
![]() |
Al Thani-málið í óvissu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
8.4.2013 | 12:42
Grein eftir okkur Döddu fyrir Dögun.
Þessi grein birtist í Feyki.
Byggð og atvinna um landið allt
Dögun stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði bjóða fram í öllum kjördæmum í alþingiskosningum í vor. Aðaláhersla okkar er á lýðræðisleg vinnubrögð og fyrir komandi kosningar setjum við þrjú mál á oddinn: Afnám verðtryggingar, nýja stjórnarskrá og uppstokkun á stjórn fiskveiða. Einnig viljum við lögfesta lágmarks framfærsluviðmið, afnema verðtryggingu og almenna leiðréttingu húsnæðislána.
Dögun hefur mótað sér Íslandsbyggðarstefnu þar sem áhersla er lögð á að á Íslandi búi þjóð sem um ókomin ár verður samábyrg gagnvart umhverfi á landi, í lofti og legi með áherslu á jöfn tækifæri og lífsgæði allra.
Í stefnunni er lögð áhersla á að landið haldist í blómlegri byggð og spornað verði við þeirri þróun að fólk og fyrirtæki safnist á eitt horn landsins. Þessari þróun hefur fylgt aukin miðstýring frá höfuðborgarsvæðinu sem við viljum sporna við.
Hugmyndafræði um sjálfbærni byggir m.a. á því að fólk lifi af landinu sem næst sér en ekki sé verið að flytja matvörur og annan varning fram og til baka með meðfylgjandi kostnaði og umhverfisáhrifum. Með fullvinnslu afurða þar sem þær verða til og auknu frelsi til að nýtingu afurða heima á bæjum er hægt að skapa atvinnu út um sveitir. Þessi þróun er þegar farin af stað en það þarf að styðja við hana til að slík starfsemi nái fótfestu.
Við í Dögun viljum skapa aukna möguleika á heimaslátrun, vinnslu og sölu á afurðum beint frá býli. Einnig viljum við vinna gegn þeirri þróun að afurðastöðvum sé lokað víða um landið. Sláturhúsum og mjólkurbúum fækkar enn, t.d. var mjólkurbúinu á Ísafirði lokað fyrir tveimur árum til að keyra alla mjólk suður á bóginn. Á stórum svæðum á landsbyggðinni eru engin sláturhús og varla er það í samræmi við hugmyndir um velferð dýra að flytja sláturdýr mörg hundruð kílómetra um slæma vegi, og oft yfir sauðfjárveikivarnargirðingar.
Við hvetjum kjósendur til að skoða stefnumál okkar á heimasíðunni XT.is fyrir komandi kosningar en Dögun hefur mótað stefnu í öllum helstu málaflokkum.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, 1. sæti Dögunar í Norðvesturkjördæmi
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4. sæti Dögunar í Norðvesturkjördæmi
Eigið góðan dag elskurnar, og spáið í hvað það þýðir að leggja áherslu á landsbyggiðna i heild sinni. Ætli það skili sér ekki margfalt til baka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.4.2013 | 17:02
Á páskum er alltaf fjör á Ísafirði.
Ég ætlaði aðeins að ræða um páskana. Hér var margt um manninn. Það var sannarlega gleðilegt að fá Bjössa og Marijönu í heimsókn með drengina Arnar Milos og Davíð Elías, sannkallaðir gullmolar báðir tveir. Rosemary vinkona mín dvaldi hér líka. Hún var að selja fallega muni frá Kenýa, þar sem þau hjónin eru að byggja skóla, búin að opna leikskóla og stefna bæði að framhaldsskóla og heilbrigðismiðstöð. Þau uxu bæði upp í örbyrgð í Nairobi og þekkja vel til vandans sem þar er verið að glíma við. Þau þekkja líka vel til erfiðleika fólks til að komast hingað og fá dvalarleyfi. Svo sannarlega er það að auðga mannlífi hér að fá svona yndislegt fólk til okkar, við verðum bara ríkari af mannkostum.
Fyrrverandi tengdadóttir mín kom líka í heimsókn með nýja kærastan, það vill svo einkennilega til að hann er fæddur nákvæmlega sama dag og Júlli minn. Skemmtileg tilviljun.
Vinkona mín sem ég kynntist núna í baráttunni í Dögun, sem leiðir listann hér fyrir vestan Guðrún Dadda kom hér við og ég bauð henni og fjölskyldunni í mat. Svo það má segja að kúlan hafi iðað af lífi yfir páskana, enda eru við staðsett rétt hjá Aldrei fór ég suður, það er bara svona fimm mínútna gangur þangað.
Bjössi með Davíð Elías.
Rosemary á góðri stund.
Smá grín í gangi hjá fjölskyldunni
Það var oft þröngt setinn bekkurinn í eldhúsinu og margt spjallað.
Skemmtileg mynd, Arnar er alveg þrælklár á allt sem hann tekur sér fyrir hendur, og fljótur að finna út úr erfiðustu leikjum, hinn lætur sér nægja að horfa á Latabæ.
Sigga mín og Alli að hlýja sér frá Aldrei fór ég suður tónleikunum.
Stelpurnar voru duglegar í eldhúsinu.
Svona eins og gengur og strákarnir spjölluðu um heima og geyma hehehe..
Prinsessan hennar Döddu, svo flott.
Sigurjón og vinur hans, þeim líkar vel við hvorn annan.
Stelpurnar mínar í eldhúsinu, önnur frá Kenýa og hin frá Serbíu/Króatíu, svo frábærar báðar tvær.
Maturinn smakkaðist vel, það komu fleiri en við var búist svo það var bara útbúin súpa í snatri, ekkert mál. Það er bara svo gaman að fá fólkið manns í heimsókn.
Já hvað er skemmtilegra en að hafa gott fólk í kring um sig. Vini og vandamenn?
Hér sjáum við Rosemary og fallegu munina sem hún er að selja til að safna fyrir skólum í Kenýja.
Það er svo margt fallegt þarna, hér eru skrín úr sápusteini, algjörlega tilvaldar fermingargjafir fyrir stúlkur sem skartgripaskrín.
FLottar skálar ýmist úr steini eða timbri með þessum fallega máluðu listaverkum í, allt unnið af ekkjum í Kenýja sem eru að njóta góðs af starfssemi Pauls og Rosemary.
En Dadda blessunin og hennar fjölskylda var hér um páskana til að hitta fólk og við höfðum svo súpufund í Edinborg, hittumst og ræddum málin hér er hann Arngrímur, einn af víkingunum sem hefur unnið við Ósvör og er glæsilegur með sitt skegg.
Rútan var með í för, og elsku karlinn hann Friggi Jóh, sem ekur rútunni hvert á land sem er.
En svo var kominn tími til að bjóða minni góðu El Salvador fjölskyldu í mat. Það var á laugardaginn.
Þau vaxa svo fljótt þessar elskur, litlu börnin eiga stutt í að verða táningar.
Bjössi er fyrrverandi tengdasonur Pablo og Ísobel, og sá vinskapur helst þrátt fyrir að það samband sé búið. Þetta er bara yndislegt fólk og hefur auðgað íslenskan veruleika.
Alejandra og Úlfur næstum systkini.
Fallega Isabel Díaz.
Og Ísaac Logi svo flott.
Rosemary og Marijana að skipuleggja flutning á söluvörum Rosemary, þær náðu vel saman.
Já ég er rík að eiga allt þetta yndislega fólk að, svona fyrir utan nærfjölskylduna systur mínar og bræður. Það er ríkidómur sem aldrei verður frá mannin tekinn, auður sem ryð og mölur fá ekki grandað.
Afgarnir mínu flottu og elskulegu.
Og veðrið er áfram yndislegt.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023337
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar