4.4.2013 | 15:51
Nýju framboðin.
Ég hef svona verið að velta fyrir mér nýju framboðunum. Það er ástæða fyrir því að svo mörg framboð líta dagsins ljós. Helsta ástæðan er sú að fólki er algjörlega ofboðið skrípaleikurinn á Alþingi undanfarin ár, svik við kjósendur og vantraust á því fólki sem valist hefur þangað inn, þá ber að geta að þar er um að ræða slímsetustjórnmálamenn sem eru orðnir rótgrónir við stólana og búnir að sitja í áratugi, og eru fljótir að "siða" sitt fólk til að fara eftir þeim leiðtogum sem "ráða" ferðinni. Þetta má lesa út úr orðum Lilju Mósesdóttur og fleiri sem ekki hafa viljað sætta sig við svoleiðis stjórnmál.
Einhvernveginn hafa alþingismenn, þeir sem hafa reynsluna fjarlægst fólki í landinu. Það er ef til vill vegna þess að fólk talar ekki við þá eins og því býr í brjósti, heldur smjaðrar endalaust fyrir þingmanninum sínum. Það kann ekki góðri lukkur að stýra.
Það má líka sjá þessa agnúa á ummælum Árna Johnsen um sitt fólk í suðurkjördæmi;
Bjuggu til tilboðspakka, eins konar snyrtivörur, og falbuðu sig hvert með öðru, ekki á eigin verðleikum, heldur bögglauppboði og hrossakaupum með miklum skyndiáróðri og þúsundum hringinga í stuttri lotu, Facebook og fleiri meðulum og móðursýki og ætlunarverkið tókst. Það var sem sagt ákveðið í þröngan hóp klíku í Reykjanesbæ hverjir ættu að verða þingmenn Suðurkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það var skelfilegt að vakna upp við brotnar leikreglur, falsið og svikin" eru svona stjórnmál sem við viljum?
Nei ég held ekki.
Það er einmitt þess vegna sem svo mörg ný framboð eru komin fram. Vegna þess einfaldlega að fólki er farið að ofbjóða athafnir þeirra sem sitja á alþingi og mest þeir sem setið hafa lengi og eru orðnir fastir í klíkuskapnum og hagsmunapotinu, og ekki síst eru fljótir að kenna nýgræðingunum í flokkunum hvernig á að akta.
Öll þessi nýju framboð hafa einlægan vilja til að breyta þessu, það sést á málefnum þeirra. Það sem er ágreiningur um er hvernig þau hyggjast ná fram sínum málum.
Ég vona að ég hafi ekki gleymt neinum framboðum en hér er listinn.
http://www.bjortframtid.is/aherslur/
http://www.piratar.is/stefnan-i-stuttu-mali/
http://regnboginn.is/stefnuyfirlysing-regnbogans/
http://www.althydufylkingin.blogspot.com/p/drog-stefnuskra-alyufylkingarinnar.html
Hér vantar að vísu flokk heimilanna. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/04/01/atta_samtok_standa_ad_flokki_heimilanna/
Ég er með svona smáhugleiðinar um þessi nýju framboð. Ég er alls ekki hlutlaust, það þarf að koma fram, þar sem ég hef ákveðið að vinna með Dögun og er í fjórða sæti í Norð Vesturkjördæmi svo það þarf að taka tillit til þess við þessa færslu.
Björt Framtíð;
Mér virðist þetta framboð vera nánast eins og Samfylkingin í skoðun. Enda sagði Jóhanna Sigurðar í Kryddsíldinni að það stæði ekki hnífurinn á milli áherslna Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar.
Þetta er nokkuð ljóst miðað við hvernig þau hafa staðið með ríkisstjórninni undanfarið til dæmis með stjórnarskrármálið. Eftir að hafa lesið málefnasamning þeirra og hlustað á spurningar og svör Heiðu í Dv, sýnist mér að það sé þarna allt frekar opið og ekki tekið á neinu, það á að skoða allt og öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. Ég sé ekki hvernig það á að ganga upp eins og málin snúa í dag. En hugmyndin er falleg.
Pítatar:
Þessi flokkur skorar hæst af eins og er í nýju framboðunum, það er sjálfgefið vegna þess að þau höfða fyrst og fremst til ungs fólks.
Einhvernveginn er það svo að fyrir mér þá virðist það vera þannig að Birgitta er drifkraftur framboðsins, þó það ætti að drepa mig gæti ég ekki nefnt neinn annan úr þessu ágæta framboði. En Birgitta er líka alveg frábær manneskja og ég held að ræðan hennar á þingi nú fyrir hlé hafi höfðað til margra, hún var einlæg og klökknaði yfir stjórnarskrármálinu. Það kom við marga að hlusta á hana eftir allt yfirborðið sem menn höfðu þurft að hlusta á í þeim viðræðum. Þau eiga sennilega eftir að klífa yfir 5% múrinn og það er bara ágætt.
Lýðræðisvaktinn:
Fólk þar innanborðs var lengi með Dögun að því að vinna að framboðsmálum. En svo skildi í sundur, málið að hluta til var það að vaktar menn vildu leggja meira upp úr fólki í framboði en málefnum, það sést vel á þeirra framboðslistum, þar sem er margt frammáfólk í þjóðfélaginu í dag. Það er svo sem allt í lagi, hver fugl verður að syngja eins og honum líður best með. Var samt að hlusta á Þórhildi Þorleifs í viðtalið á Ruv, og sá að þar vantaði dálítið upp á að hún væri innvíkluð í málefnin, hana rak í vöðurnar og var ekki alveg með á nótunum, en þar sem hún er frábær leikari og fjölmiðlakona bjargaði hún sér vel, en einlægninni var ekki fyrir að fara.
Regnboginn er líka nýtilkominn. Það er vegna þess að fólki er löngu búið að ofbjóða svik VG við stefnu þess framboðs. Langlundargeð þeirra hefur verið ótrúlegt. Þau hefðu sennilega átt að kljúfa sig frá miklu fyrr. þarna er frábært fólk og heiðarlegt. En stundum er fólk og seint þreytt til vandræða. Viljinn er þarna til staðar til að taka til hendinni og leiðrétta málin. Þarna er flokkur sem er algjörlega á móti ESB inngöngu. Og vill vinna að því að auðga landbúnað og það sem við höfum hér innanlands, það skiptir máli.
Alþýðufylkingin:
Það sama má segja um þau, ofboðið af svikum VG. Búin að missa alla von um að VG leiðrétti kúrsinn, þau hefðu eiginlega átt að átta sig fyrir löngu. Spurning hvort þau ná eyrum almennings, þau róa á svipuð mið og Regboginn, svo það er spurning hvor þessara framboða nær eyrum vinstri manna.
Hægri grænir er líka þjóðfélagslega þenkjandi flokkur, þeir eru að mínu mati dálítið róttækir. Auk þess sem formaðurinn þeirra hefur svona ýmislegt í pokahorninu sem ekki þolir alveg dagsins ljós. Reyndar hefur komið í ljós að formaðurinn er ekki gjaldgengur í framboð, þar sem hann er ekki með íslenskt ríkisfang eða hvað það nú heitir. Sárt fyrir hann að svona er komið. Hann finnur örugglega einhvern góðan mann til að setja í sín spor. Málið er reyndar að svona eftir að hafa fylgst með honum gegnum tíðina, þá hefur hann svona frekar mikla þörf fyrir að vera í forsvari. En það eru svo sannarlega fleiri.
Þeir gætu átt sjens að komas inn með mann, vegna ábyrgrar afstöðu gegn ESB.
Flokkur heimilanna reis upp með látum af prestinum Halldóri Gunnarssyni, hann hefði sennilega átt möguleika ef hann hefði verið áfram í forsvari, en ég er ansi hrædd um að það hafi klúðrast með yfirtöku Útvarps Sögu á flokknum. Ekki af því að ég hafi neitt á móti þeim stjórnendum stöðvarinnar, heldur verður staðan túlkuð þannig að það verður erfitt að komast upp úr þeirri gryfju, við erum ansi illskeytt íslendingar þegar því er að skipta.
Dögun:
Já þar er ég á heimavelli. Þegar félagar mínir í Frjálslynda flokknum ákváðu að vinna að framboði með Hreyfingunni og Borgarahreyfingunni, var ég alveg tilbúin til að slá til. Var að vísu búin að reyfa þau mál við mitt fólk, senda Birgittu og fleiri ósk um slíkt. Því mér fannst einhvernveginn að það væri eina rétta leiðin til að ná árangri að finna flöt á samvinnu.
Núna í heilt ár hefur framboðið unnið að því að vinna upp málefnin, skoða, velta um hverjum steini, leita upplýsinga og fræðslu bæði innan framboðsins og utan. Fá sérfræðinga til að útlista hvernig málefnunum sé best komið og hvað er hægt og hvað ekki.
Ég fór fljótlega að taka þátt í þeirri vinnu og tel að ég eigi mín spor þar, bæði hvað varðar utangarðsfólk og dreyfbýlið.
En við lögðum saman þekkingu okkar á málefnum landsins og þar var vel vandað til og ekkert samþykkt nema að hafa komist að heildrænni niðurstöðu, það hefur stundum verið erfitt, en hefur skilað sér í góðri málefnaská og stefnu. Ég hugsa að flest hin nýju framboð hafi unnið sína heima vinnu þannig, þó við höfum í sjálfu sér tekið okkur lengri tíma og opnari umræðu.
Málið er kæru landsmenn sem viljið breyta og eruð orðin þreytt á svikum og fölsunum gömlu hundanna á þing, eru hætt að treysta því sem þau hafa fram að færa, hætt að treysta loforðum þeirra, þið þurfið virkilega að lesa það sem þessi nýju framboð hafa fram að færa. Hlusta á hvað þau hafa að segja, og vera óhrædd við að spyrja spurninga um hvernig þau ætla sér að framkvæma stóru orðin.
Það er jafnvel sniðugt að útbúa spurningalista og senda á framboðin og krefjast svara við þeim spurningum.
Það er einhvernveginn þannig að við sem erum komin með upp í kok af pólitíkinni eins og hún er í dag, verðum að leggja okkar af mörkum til að breyta þessu. Það verður ekki gert nema með samstöðu og að leggja atkvæðið okkar þangað sem mestur möguleikinn er á því að þessu verði breytt.
Þrettán ára að skemmta á þorra blóti Strandamanna, og söng svo með hljómsveitinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
4.4.2013 | 11:06
Kosningaloforð - shit can happen!
Ég las einhversstaðar, finn það ekki núna, haft eftir einum framámanni þarna í ESB að sennilegast myndu ekki fleiri þjóðir verða teknar inn eftir að Króatía yrði innlimuð í Júní. Þá yrði stoppað með stækkun og skoðað hvernig bandalagið þróist, það var að mig minnir talað um í því sambandi 10 til 15 ár.
Þá fór ég að hugsa hvernig fer með öll úrræðin hans Árna Páls, hann lýsti því yfir í formannaviðræðunum að þau værum með vel skilgreinda og úthugsaða stefnu í efnahagsmálum. Þeir sem hafa fylgst með ummælum Árna Páls vita að þar er bara ein leið út úr vandanum, en hún er að ganga í ESB. Til að leysa öll okkar vandamál á einu bretti, taka upp evru og VIbbS!!! öll vandamál eru úr sögunni.
Ef þetta reynist nú rétt að bandalagið ætli að bíða og sjá í áratug eða meira, þá er ég ansi hrædd um að þessu barbabrella Árna megi sín lítils.
Ég ætla alla vega að fylgjast með þessu máli. Það skyldi þó aldrei vera að með þessu ónýtti ESB kosningabaráttu Samfylkingarinnar, sem eins og alþjóð veit leggur aðaláhersluna á innlimun í ESB. Og þar virðist ekkert plab B vera.
En þetta kemur allt í ljós með tímanum.
Jón Elli borðar kattamat
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.4.2013 | 23:07
Nýtum tækifærin.
Það skiptir máli að koma á framfæri því sem Dögun vill gera til hagsbóta fyrir land og þjóð.
Við Dadda, Guðrún Dadda Ásmundsdóttir höfum verið að skrifa greinar í blöð hér á norðvesturlandi, hér er ein greinin frá okkur, sem var birt í Skessuhorni:
Nýtum tækifærin
Dögun - stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði er nýtt stjórnmálaafl þar sem saman kemur fólk og fylkingar úr ýmsum áttum. Við skilgreinum okkur hvorki til hægri né vinstri en setjum nokkur mikilvæg mál á oddinn. Þau helstu eru afnám verðtryggingar, ný stjórnarskrá sem færir valdið nær fólkinu og uppstokkun á stjórn fiskveiða. Þá Einnig viljum við lögfesta lágmarks framfærsluviðmið og almenna leiðréttingu húsnæðislána.
Uppstokkun á fiskveiðistjórnarkerfinu helst í hendur við auðlindastefnu og Íslandsbyggðarstefnu Dögunar. Til að byggð haldist út um landið þarf að grípa til ýmissa ráðstafana sem Dögun hefur útfært í stefnuskjölum sínum. Við viljum að fullt jafnræði verði í aðgengi að veiðiheimildum og að auðlindagjald renni bæði til sveitarfélaga og ríkis. Einnig þarf hluti veiðileyfa að vera svæðisbundinn.
Við í Dögun teljum líka að hægt sé að stuðla að mun fjölbreyttari og betri nýtingu og tækifærum innan landbúnaðarins á einstaka svæðum. Miklir möguleikar hafa skapast á undanförum árum á framleiðslu heima á bæjunum og Dögun vill styðja við þá þróun.(beint frá býli).
Til að þetta sé framkvæmanlegt þarf að aðlaga hvatana til slíkra breytinga, styrkjakerfi og rafmagnsverð t.d. Af hverju greiðum við niður rafmagn til erlendra stóriðjueiganda en ekki til sjálfbærrar framleiðslu sem víðast um landið? Slíkt myndi styðja við atvinnu á landsbyggðinni, eins og ferðaþjónustuna sem er einn helsti vaxtarsproti atvinnulífsins um þessar mundir og helst þar að auki í hendur við hugmyndir um sjálfbærni. Einnig er eftirspurn eftir vörum sem framleiddar eru á sjálfbæran hátt vaxandi og mörg tækifæri ónýtt á því sviði.
Með ykkar stuðningi er hægt að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, 1. sæti Dögunar í Norðvesturkjördæmi
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4. sæti Dögunar í Norðvesturkjördæmi
Sjá hér: http://fotspor.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/03/Vesturland-03-2013-LR.pdf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2013 | 10:10
Aldrei fór ég suður og páskaeggjaleit.
Í dag er sól og blíða eins og búið er að vara alla páskahelgina.
Hér er búið að vera margt um manninn og ég hef ekki heyrt annað en að menn hafi verið glaðir og kátir. Hjá mér var fullt hús, sonur okka Ella og fjölskylda komu í heimsókn og voru yfir hátíðina, litlir gleðigjafar hjá afa og ömmu í kúlu.
Ég bauð fólki í mat á föstudaginn, vinkonu minni Guðrúnu Döddu sem er í fyrsta sæti hjá Dögun, kom hingað til að sýna sig og sjá aðra. Ég eldaði tvo hryggi með meðlæti og þetta hvarf allt eins og dögg fyrir sólu mér til mikillar ánægðu, sýni myndir seinna.
Svo bauð ég ættingjum mínum frá El Salvador á laugardeginum, var reyndar löngu komin tími á að sinna þeirri fjölskyldu minni.
Ég var með innanlærisvöðva sem ég skar í smáteninga og var með í marineringu í þrjá daga. Meðlæti var hrísgrjón salad og tilheyrandi. Það hvarf líka fljótt og vel.
Á páskadag var svo farið að leita að páskaeggjum. Við höfðum falið þrjú páskaegg í garðskálanum og drengirnir fengu svo að leita.
Pabbi hjálpaði svolítið til með að segja heitt og kalt.
Litli stubbur var ákveðin líka í að finna páskaegg, hann hélt á koddanum sínum sem hann hefur oftast með sér hvert sem hann fer.
Já hvar skyldu nú eggin vera?
Spennandi.
Aha Arnar Milos búin að finna sitt egg.
Davíð Elías þurfti aðeins meiri aðstoð.... svona frekar mikla hehehe...
Vei!! búin að finna sitt egg.
Nú eru gestir að týnast burt eftir velheppnaða skíðaviku. Það er orðið svo að Aldrei fór ég suður hefur sett þessa hátið í hærri hæðir. Það er líka alveg dásamlegt hve allt gengur vel og smurt á Aldrei fór ég suður. Það er enginn smá vinna að að baki henni, ár eftir ár er sama fólkið sem leggur á sig ómælda vinnu við að undirbúa atburðin, laga til í húsinu, smíða risasvið og gera staðinn eins vistlegan og hægt er. Tæknimenn vinna ótrúlega flotta vinnu við hljóð og tækni alla, enda er hljómburðurinn mjög góður.
Flestir frægustu tónlistarmenn landsins voru þarna, og svo unginn minn. Hann og hljómsveitin hans voru með fjögur lög, öll frumsamin og allavega flest eftir Úlf. Eitt lagi tileinkaði hann pabba sínum, og síðasta lagið sem hann tók var Lísa, en það lag hefur einhvernveginn náð eyrum fólks. Þeir stóðu sig rosalega vel.
Það sem er svo flott við þessa hátið, að það eru allir svo glaðir, listamennirnir sem koma fram, fólkið sem þyrpist til að hlusta meira að segja eru sviðsmenn og aðstoðarmenn meðbros á vör. Það er þess vegna sem hátíðin fer svona fallega og vel fram, nú í tíunda skipti.
Það skeði að vísu smáslys, sem hefði getað farið illa, þegar einn tónleikagesturinn ætlaði að fá áritun hjá Fjallabræðrum að hann datt ofan í semenssíló, um fimm metra falla, en sakaði ekki ótrúlegt en satt, og seinna kvöldið var hann komin aftur á tónleikana og fékk ótal kveðjur frá þeim sem voru að spila, Oj barasta tileinkaði honum eitt lag og slíkt gerði einnig Jónas Sig.
Fékk þessa mynd frá einum af okka besta ljósmyndara Ágústi Atlasyni.
Og þessi líka. Upphafsmaðurinn Mugison opnar venjulega hátíðina. Þeir feðgar eiga stórt hrós skilið fyrir þessa hátíð, enda öðlingar báðir tveir.
En sem sagt það er hægt að halda mörgþúsund manna hátið í tvo daga, með búsi og bjór og öllu tilheyrandi þar sem friðsemdin ríkir, þetta hefur gerst núna í tíu ár, og hátíðin aldrei fjölmennari en nú, og margir koma erlendis frá. Sumir hafa með sér tjald.
Þessa mynd fékk ég að láni hjá Spessa mínum blessuðum.
Ég fór til að horfa á Úlf og strákana í Athygli, þeir voru frábærir, heyrði líka í Láru Rúnars, flott stelpa. Fór svo í lokin til að sjá Ella minn spila með lúðrasveit tónlistarskóla Ísafjarðar og fleirum, með Jónasi Sig. Magnaður flutningur hjá honum. Hann virðists vera afskaplega einlægur og góð manneskja, þakkaði öllum fyrir með handabandi. Oj Barasta voru líka góðir, ég læddi mér í gryfjuna fyrir framan sviðið, og fékk að vera það átölulaust hjá þessum elskum sem voru að vinna þarna. Ég var með opið fyrir tölvuna allan tímann og fylgdist með. Það gladdi mig líka að hlusta á Dolbý og ryfja upp þá skemmtilegu hljómsveit.
Þau eru öll frábær, stal þessari mynd frá henni Möttu. Það vantar ekki fjörið í Dolby.
Hér erum við svo í Sokkabandinu árið 2011.
En þarna voru sem sagt allir glaðir, listamennirnir, aðdáendur, starfsmenn. Ljúfmennskan ein ríkti og það er afskaplega mikill sigur fyrir aðstandendur hátíðarinnar. Innilega takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.3.2013 | 10:25
Umhverfisstefna Dögunar.
Já er það Katrín. Eina framboðið sem setur umhverfismál á oddinn. Ég er hér með eitt framboð allavega, og man ekki betur aðrir flokkar hafi sett þessi mál á dagskrá.
http://xdogun.is/stefnan/umhverfisstefna-dogunar/
Þetta segir bara að það er ekki orð að marka sem frá ykkur kemur. Eða er það vegna þess að þið hafið svikið öll hin loforðin svo mikið að þið getið ekki notað þau aftur eins og ekki AGS, ekki ESB og svo framvegis.
![]() |
Engin risaloforð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2013 | 15:58
Ég er bara reið í dag, en líka sár og vonlaus.
Þið ágætu bloggarar sem hér hafið skrifað á móti stjórnarskrárfrumvarpinu hljótið að fagna í dag, þið getið örugglega tekið undir orð þeirra sem hafa niðurlægt Birgittu Jónsdóttur, hlegið að henni og fundist hún hallærisleg, hafi talað illa um Margréti Tryggvadóttur og Þórs Saari, nú hlýtur ykkur að líða afskaplega vel að hafa lagst á sveifina með Samfylkingunni, Bjartri framtíð, Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum.
Þið létuð plata ykkur illilega með því að þessi nýja stjórnarskrá væri aðför að þjóðinni og lýðræðinu. Þegar ferlið var alla tíð opið og unnið af mörgum aðilum í þjóðfélaginu, margir þeirra algjörlega fráhverfir ESB. Þið létuð hræðsluáróðurinn blinda ykkur og genguð þar með í bandalag við hræðsluöflin sjálf, Sjálfstæðisflokk og Framsókarflokk, sem vinna markvisst fyrir þá aðila í þjóðfélaginu sem vilja engar breytingar, engar tilslakanir til handa almenningi, þeir vilja sjálfir sitja að kjötkötlunum án afskipta þjóðarinnar. Þið sáuð heldur ekki í gegnum hina svikarana, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn voru ekkert að dulbúast, þeir unnu gegn stjórnarskránni með oddi og egg, hinir sem "þóttust" ætla að vera með en biðu eftir tækifærinu til að stinga atgeirnum í bakið á þjóðinni eru reyndar helmingi verri, þau Árni Páll, Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Steingrímsson.
En sem sagt ég óska ykkur til hamingju með þann sigur sem þið unnuð í gær. Það er reyndar ekki víst að börnin ykkar og barnabörnin verði stolt af þessum stuðningi ykkar, en það er önnur saga.
Og auðvitað kjósið þið svo Sjálfstæðisflokkinn, það er ekkert annað í stöðunni samkvæmt ykkar skilgreiningu á lýðræði og sjálfstæði þjóðarinnar.
Það getur vel verið að einhverjir hafi haft drauma um að nota þessa stjórnarskrá sem stökkpall inn í ESB, en það voru miklu fleiri sem voru að hugsa um allt hitt, meiri að komu fólksins að valdinu, meiri ákvörðun um eigin málefni og að koma í veg fyrir þessa endalausu spillingu og eiginhagsmunapot.
Þið ættuð að hlusta á ræðuna hennar Birgittu og spyrja ykkur sjálf hvort hér fer kona sem vill vinna að því að koma okkur inn í ESB. Og fyrir suma sem hafa hér hneykslast á því að hún sagði frá leyndarhyggju svikara á þingi, þeir ættu aðeins að hugsa sinn gang og hverjum þeir eru að þjóna. Og ekki síst hvað þeir vilja sjá í framhaldinu. Það er sorglegt að sjá og vita að fólk getur haft svona mikla rörsýn og hjálpað til að viðhalda spillingunni, rottuskapnum og ömurleikanum sem þessir leikarar leikhússins við Austurvöll hafa sýnt okkur grímulaust núna undanfarið.
Ég er farin að hallast að því að Þráinn hafi haft rétt fyrir sér, þegar hann sagði að meirihluti þjóðarinnar væru fábjánar. Meðan hugsunarhátturinn er svona þá breytist ekki neitt því miður.
Og ég sem hélt að almenningur vildi breyta pólitíkinni, vildi sjá eitthvað nýtt og ferskt, sjá hreinsun og spúlun út af alþingi. Því miður þá er ekki að sjá svo. Og það svíður ótrúlega mikið.
Þið verðið að afsaka þessi hörðu orð, en ég er sár yfir því hve fólk getur stundum hlaupið upp og látið plata sig endalaust upp úr skónum. Ég sé þetta eins og brúðuleikhús, þar sem hinir raunverulegu stjórnendur peninga- og græðgisöflin sitja baksviðs með alla þræðina í hendi sér og spila fram því sem þeir vilja. Koma á framfæri því sem þeir vilja, leika á óttann og óöryggið og vita nákvæmlega hvernig þeir eiga að fara að því. Þeir hafa jú allt fjármagnið, fjölmiðlana og alþingismennina í vasanum. Alla nema örfáa.
Ég á reyndar eitt orð yfir þetta sem gerðist í gær og það er HEIMASKÍTSMÁT.
Blogg Láru Hönnu líka hér. http://vefir.pressan.is/ordid/2013/03/28/svik-vid-nyja-island/
![]() |
Mál sem varða almannahag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
26.3.2013 | 15:54
Frábær færsla hjá Hrannari Baldurssyni um verðtrygginguna.
Tók þessa færslu hjá Hrannari Baldurssonar. (Don Hrannar De Breiðholt9
Mér finnst hún algjörlega frábær með tilliti til fólks eins og mín sem ef til vill skilur ekki mikið í svona dæmum.
Stríðið um verðtrygginguna
26.3.2013 | 09:32
Ég sé tvo hópa á vígvellinum, ennþá rauðum eftir miskunnarlausa slátrun á íslenskum heimilum.
Nokkur skuldug heimili standa þó eftir. Þeim til varnar standa örþreyttar hetjur, vopnaðar bogum, sverðum og skjöldum. Örmagna reyna þeir að mynda skjaldborg, til að vernda þá sem minna mega sín.
Hinumegin á vellinum eru þeir sem eiga peninga og vilja vernda þá. Þeir hafa þegar eytt miklum fjármunum í fallbyssur, dróna og sprengjur sem ættu auðveldlega að sprengja hinu veikburða skjaldborg í loft upp.
Fjármagnið fyrir vopnakaupin eru beintengd í verðtryggingu. Báðir hóparnir fjármagna vopnakaup auðmanna, hinir skuldugu með því að borga skuldir sínar, og hinir sem vald hafa yfir auðnum, með því að krefjast greiðslu á skuldum.
Skuldugu heimilin vilja verðtrygginguna burt, því þau vilja ekki fjármagna árásir á þá fáu sem enn vernda þau. Hinir vilja vernda verðtrygginguna, þar sem hún ekki aðeins fjármagnar vopnakaupin, heldur gefur þeirra hópi kost á að lifa áhyggjulausi lífi.
Hagsmunaöfl takast á. Sagan segir okkur að þeir sem eru betur vopnaðir og grimmari, vinni sigur í styrjöldum, þó eru til undantekningar.
Endar stríðið um verðtrygginguna sem hreinn sigur ofbeldisafla, eða mun réttlætið sigra í þetta skiptið?Það er lítil von í dag fyrir hin varnarlausu heimili, og útlit fyrir að valtað verði algjörlega yfir þau og þar með næstum heila kynslóð Íslendinga.
Er eitthvað sem getur komið í veg fyrir algjöran sigur þeirra sem vilja græða áfram á hinni grimmu verðtryggingu? Munum við þurfa 50 ár eða meira til að hörmungin sem verðtryggingin leiðir af sér verður meðvituð á meðal almennings?
Af hverju er svona erfitt að sýna illskuna í nútímanum, sem augljóslega verður fordæmd sem hin mesta grimmd, sambærileg við þrælahald, þegar framtíðarkynslóðir okkar líta yfir farinn veg?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2013 | 11:43
Vinir, vinátta, Gúttó og Sokkabandið.
Páskarnir nálgast, og veðrið er yndislegt og spáð góðu yfir páskana hvað er hægt að biðja um meira.
Það er gott að eiga góða félaga. Fyrir utan æskufélaga mína, þá hef ég átt yndælar stundir með fólki sem ég hef verið samferða, bæði í músikinni og Litla leikklúbbnum, þetta fólk eru vinir mínir þó við tölumst ekki við daglega, þá finnur maður þá vináttu og hlýhug sem við eigum sameiginlega og ef maður þarf aðstoð þá eru allir reiðubúnir til að hlaupa til.
Enn af þessum hópum eru félagar mínir í Frjálslynda flokknum alveg frá því að við unnum saman að fyrsta framboðinu og gegnum tíðina hef ég eignast fjöldan allan af vinum í frábæru fólki í Frjálslyndaflokknum og þó við hittumst ekki árum saman, þá skiptir það bara ekki máli, við erum alveg jafngóðir vinir eins og við hefðum hist í gær. Svona vinátta úr ýmsum áttum auðga lífið og einhvernveginn öryggistilfinning að vita að þarna úti allstaðar er fólk sem þykir vænt um mann. Og það fyrir utan mína elskulegu fjölskyldu.
Einn af þessum hópum eru stelpurnar í Sokkabandinu. Fyrir tveimur árum ákváðum við að koma fram á Aldrei fór ég suður. Þetta var stór ákvörðun því við höfðum ekki spilað saman í 30 ár eða meira, og bjuggum sitt á hvorum stað á landinu. En við ákáðum að hella okkur í þetta.
Það var algjörlega frábært, að hittast æfa upp gömlu lögin okkar og rifja upp skemmtilega minningar. Því miður gátu ekki allar komið, til dæmis Ingunn Björgvinsdóttir. En Bára Elíasdóttir ekki dóttir mín kom og hitti okkur á hátíðinni og það var gaman að hitta hana.
Algjört æði. Og gaman að rifja þetta upp á þessum tímapunkti, þegar undirbúningur að Aldrei fór ég Suður stendur sem hæst.
Á laugardeginum hittumst við allar hér heima í kúlunni og höfðum okkur til Sunna frænka mín greiddi okkur og málaði þær sem vildu. Það var gríðarleg stemning og fjör hjá okkur.
Og það besta við þetta allt voru viðtökurnar. Það var alveg meiriháttar elsku ísfirðingar nýjir, gamlir brottfluttir og þeir sem aldrei fóru suður, þetta var sannarlega skemmtilegt. Og nú er fólk að spyrja hvort við ætlum ekki að endurtaka leikinn.
Hér erum við með gigg í Sjálfstæðishúsinu á Ísafirði fyrir rúmum 30 árum.
Hér er svo fyrsta hljómsveitinn sem ég tók þátt í, en ég hafði oft fengið að koma fram og syngja með BG.
Þær hljómsveitir sem ég tók þátt í, spiluðu oft í Gúttó, gamla IOGT húsinu, það var því gaman að því þegar Halla formaður LL hringdi í mig og bað mig að rifja upp endurminningar frá skemmtunum í Gúttó.
Ég sagði frá því sem mér var efst í huga eftir öll þessi ár, eitt atriði sem hefur verið í mínu minni frá því að ég fór í fyrsta skipti á Þorrablót með manninum mínum. Við vorum bara kærustupar þá og hann tiltölulega nýkomin inn í fjölskylduna. Pabbi, mamma, Jói föðurbróðir minn og Gréta konan hans sátu með okkur við borðið og þeir bræðurnir sem áttu til að vera mestu stríðnispúkar, höfðu gaman af að ota hákarli að strákanganum, sem var ný fluttur að sunnan og hafði aldrei séð neitt þvílíkt, hann varð líka að vera kurteis við nýja tengdapabban og át því það sem að honum var rétt, og fékk sér svo vænan slurk a brennivíni með, eins og á að gera. Nema hann varð ansi drukkinn elsku karlinn minn, svo ég þurfti að aðstoða hann við að komast heim. Þegar þangað var komið, vildi ég fara að láta vel að honum. Þá reis hann upp og sagði þessa óborganlegu setningu: Við getum ekki gert neitt hér, við erum í fatahenginu í Gúttó.
Ég get alveg lofað ykkur því að þetta var notað.
Ég skemmti mér rosalega vel, hvet fólk til að fara og skemmta sér á góðu kvöldi og rifja upp góðu gömlu dagana í Gúttó, eða upplifa hvernig pabbi og mamma, afi og amma skemmtu sér. Þarna spilar frábær hljómsveit Gúttóbandið, og þetta er algjört stuð.
Hér er "Villi rakari" að klippa viðskiptavin og spjalla. En á skemmtuninni koma fram nokkrir þekktir ísfirðingar. Og ýmislegt rifjað upp.
Elsku LL félagar innilega takk fyrir mig. Ég skemmti mér alveg konunglega. Hvað er betra en hlátur stuð og músik.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.3.2013 | 14:58
Hvergi nærri hættir að tísta.
Lögreglan tvittar og tístir,
tjáir sig, ekki eru sístir.
Gott er og gaman,
að gleðjast þar saman.
á netinu eins og þá lystir.
![]() |
Hvergi nærri hættir að tísta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2013 | 00:56
Vilhjálmur Óli Valsson - mottumars.
Mestu hetjur mannkyns eru þær sem taka með æðruleysi því sem að höndum ber. Sætta sig við það sem koma skal. Og gefa þar með öðrum gleði og framtíðarsýn.
Vilhjálmur Óli Valsson er einn af þessum hvunndagshetjum. Bara að hlusta á hann í viðtali í dag, hvernig hann bar sig og það sem hann hafði fram að færa snart mig inn að hjartarótum.
Vissulega er engin von úti fyrr en kallið kemur, og alltaf geta gerst kraftaverk. Þannig er bara lífið.
En þetta æðruleysi og geðprýði fyllir mann einhvernveginn trú á mannkynið og það góða í okkur öllum.
Um leið og ég óska þér til hamingju með þennan verðskuldaða sigur Vilhjálmur Óli, sem raunar segir allt sem segja þarf um þig og stuðningsnetið þitt, það kemur ekki af sjálfu sér, heldur af því hvernig þú sjálfur hefur komið fram, þá sendi ég þér virðingu mína og góðar óskir um að þú og þín fjölskylda geti notið lífsins eins og hægt er meðan kostur er.
Ég lýsi þig hér með mína hetju í dag. Takk fyrir að vera til.
![]() |
Síðasti séns fyrir mig að taka þátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar