Meiri brandara?

Jamm, þegar forseti vor synjaði lögum um Icesave og stóð svona brilliant vel í viðtali í Bretlandi, ákváðu Jóhanna, Steingrímur og Össur að þau gætu nú gert betur.  Þau skunduðu.. nei Össur og Steingrímur flugu út, Jóhanna tók bara upp símann, og eftir því sem Ingvi Hrafn sagði var skellt á hana bæði frá Brown og Jan Peter.  En sum sé Steingrímur fór sem eldibrandur um alla Skandinavíu, rætti þar við sína kollega og sagði þeim réttilega frá sjónarmiðum ríkisstjórnarinnar að þau ætluðu að standa við sitt.  Og það væri svo sem ágætt að kollegarnir reyndu nú að hjálpa til við að hræða mörlandann nógu mikið til þess að þeir þyrðu ekki að segja nei. Össur gerði líka sitt besta. (you ain´t seen nothing yet) eða þannig.

En það gleymdist sum sé að ræða við hollenskan almenning.  Forsetinn hafði jú komið jarðskálftum við á Englandi, en það gleymdist alveg í hasar stjórnarmanna að það þyrfti líka eitthvað svona brilliant viðtöl í Hollandi.

Það gæti nefnilega komið af stað samúðaröldu í Hollandi líkt og gerðist í Bretlandi, svo það væri að æra óstöðugan að fara að fá einhverjar óæskilega samúðarbylgjur líka frá Hollandi.  Hvað eigum við líka að gera við alla þessa samúð, þegar Gólið er að hræða litlu kindurnar heima á Íslandi til að samþykkja Icesave.  Svo við komumst nú örugglega inn í ESB, sem er blautur draumur Samfylkingarinnar og Steingrímur og nokkrir meðreiðarsveinar hans hafa af einhverjum ástæðum ákveðið að gera að sínum líka.

Nei svoleiðis má nú ekki fara að rugga bátnum of mikið.  Og hvað er svo fólk líka að blaðra svona af sjálfsdáðum eins og þessi hollenski blaðamaður hvað vill hann eiginlega upp á dekk?

Nei þá þarf nú aldeilis að fara að þagga niður í svona röddum, gefa út yfirlýsingu (skothelda) til að halda molbúunum við efnið.  Þeir eru hvort eð er svoddan einfeldningar og kjánar að það er auðveldasti hlutur í heimi að hræða þá til hlýðni við valdið ekki satt?


mbl.is Kynna þarf sjónarmið Íslands betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er eiginlega orðið drepfyndið.

Er ekki franskur Evrópuþingmaður komin í hörku rifrildi við íslenska alþingismenn, þar sem hann talar máli Íslands en þau breta og hollendinga?  Viljiði gjöra svo vel að klípa mig í handleggin svo ég vakni, ég er víst einhversstaðar á milli draums og vöku að horfa á Spaugstofuna..... eða þannig.

Hvað er í gangi hjá ríkisstjórn og þingmönnum meirihlutans?


mbl.is Lipietz vísar gagnrýni á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúlulíf og myndir af Ísafirði.

Myndir teknar í dag í góða veðrinu á Ísafirði.

IMG_0515

Friðsæll fjörður.

IMG_0516

Það er eitthvað svo rólyndislegt yfir firðinum mínum á svona dögum.

IMG_0517

ég gæti sett meiri birtu í myndina, en ég er að sýna ykkur skýin og hvað sólin gerir þegar hún nær ekki niður til okkar.

IMG_0518

Hún sýnir okkur fallega liti á himninum.

IMG_0519

Svo skríður hún niður fjallið eina, uns hún kemst alveg niður í Sólgötu, og þá drekkum við Ísfirðingar Sólarkaffi.

IMG_0493

Í gær ákváðum við að flétta Hönnu Sól.

IMG_0496

Við fórum í sund á Suðureyri í gær, það var yndislegt veður hlýtt og logn. 

IMG_0499

Hafðu ekki áhyggjur af hárinu hennar Bára mín, við settum fullt af næringu. Smile En það var rugldagur á leikskólanum í dag, svo við ákváðum að gera eitthvað spes, og Hanna Sól fór svo í náttafötunum í skólann og sitt hvora sort af sokkum.  Ásthildi var alveg sama, hún vildi samt ekki fara í leikskólann fyrr en ég hafði lofað henni að ég skyldi sitja með henni smástund, sú smástund tók einn og hálfan tíma.

IMG_0502

Annars er hún ótrúlega kát og glöð. Heart

IMG_0503

svo geta þær verið svo góðar saman systurnar, og líka stóri bróðir.

IMG_0509

Þetta er ekki fangelsi heldur stiginn.

IMG_0511

Hún getur verið ótrúlega harðhent við litla Snúllan, en hann er svo góður samt sem áður.

IMG_0512

Þau eru bæði svoddan kjánaprik. Heart

IMG_0514

Stjörnum prýddur kisi, hann er víst blendingur af Persneskum ketti svo það verður að koma í ljós hve hærður hann verður, þegar hann stækkar.


Hégómi, spilling og valdníðsla.

Hégómi er sjálfskaparvíti.  Við erum auðvitað öll meira og minna hégómleg og sjálflæg.  En sumir eru verr haldnir en aðrir.  Þeir taka sjálfa sig of alvarlega og telja að þeir séu ómissandi og þeirra verk séu þau einu réttu.  Þá er ekki hlustað á einn eða neinn, og öllu sem aðrir segja mótmælt og komið með fyrirslætti um að fólkinu sé ekki sjálfrátt, það viti ekki hvað það er að tala um, eða misskilji málefnið. 

Það er slæmt þegar hæstráðendur þjóðar, eru svo hégómlegir að ætla að þeir einir hafi rétt fyrir sér, og þó marg sé búið að benda þeim á að það séu aðrir fletir á vandamálum, þá er slegið á allt slíkt.  Verst er að þessir aðilar starfa í umboði þeirra sem þeir eru að neita að hlusta á.  (Lesist þjóðarinnar)

Svo kárnar ennþá dæmið þegar áhangendur og trúfélagar endurtaka bullið og hræra ennþá meira í óvissunni.  Sérstaklega í ljósi þess að hinum almennu sauðum er fyrirmunað að skilja hvers vegna má ekki endurskoða hlutina.  Allt keyrt áfram og ekki hlustað á neinn.

Hér höfum við dæmi um slíkt, við erum að ganga í gegnum það nákvæmlega núna og vitum ekki hvers vegna forsvarsmenn þjóðarinnar bera hag óvinanna meira fyrir brjósti en hag samlanda sinna, þjóðarinnar sem kaus þá til setu á Alþingi. 

Eitt er að hafa sannfæringu, en annað er að leyfa öðrum skoðunum að komast að, og skoða málin, þegar fólk sem þekkir vel til bendir á annað.  Þá á ekki að blása það af.  Þá fer fólk að gruna að hér sé  ekki almannaheill hafður að leiðarljósi heldur einhverjir sérhagsmunir eða loforð um eitthvað betra fyrir þá sjálfa sem þannig haga sér.

Fyrir utan þetta nýja dæmi má svo sem benda á fleiri.  Til dæmis afhendingu stjórnvalda á sjávarauðlind þjóðarinnar  til vina og vandamanna og mömmu og pabba.  Gjörð sem rústaði landsbyggðinni, og var svipuð eignatilfærsla og nú er að eiga sér stað, bara þá fluttist gróðinn frá landsbyggðinni til Reykjavíkur og síðan til útlanda.  Sú blóðtaka er ennþá að naga venjulegt fólk sem hafði lifibrauð sitt af fiski og fiskvinnslu.  Þetta hefur ekki verið leiðrétt, þó allt segi að þetta var óhappaverk og þjónaði engum tilgangi öðrum en að færa sérstaklingum þjóðarauð á silfurfati. 

Þetta á líka við um landbúnað, þegar sláturleyfishöfum var gefin rétturinn til að slátra kindunum.  Sláturhúsin voru sett á hausinn hvert á fætur öðru, uns örfá voru eftir í landinu, og nú aka menn dýrum landshorna á milli við ömurlegar aðstæður til að aflífa þau.  Það má nefnilega ekki hrófla við þessum vinum valdsins.  Þeir verða rétt eins og L.Í.Ú. að hafa réttin til að slátra, bændur mega svo náðarsamlegast taka til sín 200 kg. af kjöti til eigin nota og sölu.  Ef þeir þurfa meira verða þeir að kaupa það fullu verði.  Og svo er verið að tala um að kjöt sé dýrt.  Hver skyldi nú halda uppi verðinu?  Ekki er það bóndinn sem fær smánarlega lítið fyrir sinn snúð.  Og ekki veit ég til þess að nokkur maður hafi dáið af völdum heimaslátrunar. 

Og á meðan dýraverndarmenn eru að ærast og sakfella mann fyrir að skjóta eina og eina kind út um fjárhúsgluggann, þá er þeim alveg sama þó kindum sé smalað upp í tveggja hæða flutningabíl, með aftaní vagni upp á tvær hæðir, aka svo blessuðum skepnunum fleiri klukkutíma landshorna á milli, farandi með skítaklepra og hland yfir fleiri sauðfjárvarnaveikigirðingar.  Er ekki heilmikill tvískinnungur í þessu.  Sérstaklega í ljósi þess að ef ein rolla þvælist yfir sauðfjárveikivarnargirðingu verður að aflífa hana strax. 

Rétt eins og það er tvískinnungur í því að taka veiðiréttinn af fólkinu í landinu og færa hann til vildarmanna, leyfa veðsetningu á honum til að bjarga bönkunum.  En segjast vera að vernda sjálfstæði landsmanna.  

Rétt eins og að neita að viðurkenna að menn hafi gert mistök með því að senda vin sinn, sem reyndist allsendis óhæfur til að semja um fjöregg þjóðarinnar, og vera svo hégómlegir að neita að horfa til þeirra sem benda á aðrar lausnir.  Eins og þeim sé alveg sama hvernig þjóðarskútan veltur, bara ef þeir komast upp með málið eins og þeir byrjuðu á því. 

Sennilega er þó verra fólkið sem heldur netinu utan um slíka ráðamenn, þýlyndi og aðdáun á valdi hlýtur að varða þeirra veg, ef þeir hafa enga aðra ástæðu en að halda með sínu liði hvað sem það kostar. 

Er ekki komin tími til að rippa þetta upp.  Taka á spillingunni og sérhagsmunagæslunni.  Við höfum ekki efni á henni.  Við ættum að hafa nóg fyrir alla að bíta og brenna, en ráðamenn, allir sem hafa verið undanfarna áratugi hafa að leiðarljósi að hygla sjálfum sér og vinum og vandamönnum á kostnað hinna.   Og það sem verra er komast endalaust upp með það af því að fólk bara lætur traðka á sér.  Virðist ekki skilja mun á því hvað menn lofa fyrir kosningar og hvað þeir svo efna eftir þær.  Og kjósa því bara sitt fólk áfram hvað sem tautar og raular.  Og ver þá endalaust í ræðum og riti.  Það er afar sorglegt svo ekki sé meira sagt. 

safe_image

 


Lífæðin fm Bolungarvík, kerti og rómantík og bara kúlulíf.

Við hjónin sátum í eldhúsinu í kvöld eftir að hafa komið börnunum í svefn og eftir að hafa horft á spaugstofu og fyrsta hluta júrovisjón.  Verð reyndar að segja Guð minn góður klæðaburðurinn á þessum annars fallegu konum, þær voru eins og pokar í kjólunum sem þær voru klæddar í Hræðilegt að sjá þær.  Og það var auðsýnt hvernir komust áfram, þessir tveir aðilar sem ekki voru fölsk í söngnum, pínlegt á stundum.  En það er auðvitað ekki auðvelt að koma svona fram í beinni.  Ætla ekki að tjá mig meira um það, en þau tvö sem komust áfram voru áberandi langbest.  

Svo sátum við í eldhúsinu með kertaljós og hlustuðum á Lífæðina, þetta frábæra útvarp frá Bolungarvík.  Og það var eins og ég væri komin niður á Langa Manga.  þarna voru þau öll, Gummi Hjalta, Eygló Jóns, Matta, Elvar Logi að taka Megas á sinn skemmtilega hátt.  Það var partý á Paxon með Langa Manga ívafi.  Haukur Vagnsson og systkini innilega takk fyrir mig.  Og ég er sammála, þetta útvarp þarf að hljóma, ég er búin að hlusta á það núna yfir hátíðarnar og er alveg sammála að þessi rödd á ekki að þagna.

En við erum svona að komast niður á jörðina fjölskyldan í Kúlunni.  Nú tekur alvaran við á fullu, skóli, leikskóli, ballett og sundnámskeið allt í farvatninu. 

Sund á Suðureyri á morgun og allir farnir að hlakka til þess.

IMG_0480

Það er búið að púsla mikið, og leira.

IMG_0481

Afi að búa til pabban, mömmuna og litla barnið, allt eftir óskum fröken Ásthildar Cesil.

IMG_0482

Svo er rætt um hvernig pabbinn eigi að vera á litinn og svona.  Þetta krefst allt íhugunar og ákvarðanatöku.

IMG_0484

Og við spælum egg.  Það þarf allt saman að vera á tæru og best að fylgjast vel með ömmu.

IMG_0485

Og svo er bara svo gaman að vera til.

IMG_0488

Hanna Sól fékk að gista hjá bestu vinkonu í gær, og svo komu þær báðar heim og það var bara skemmtilegt hjá þeim pæjunum.  Unglingurinn á heimilinu fékk að fara í bíó bæði í fyrrakvöld á Sherlock Holmes og í kvöld á Avatar.  Hann kom heim upp fullur af gleði; þið verðið að fara á þessa mynd, þetta er besta myndi sem ég á eftir að sjá ever.  Hún er rómantísk og falleg og meiriháttar.

En nú er ég að fara að halla mér.  Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.  Ég segi Góða nótt.


Hver hefur leyfi til að skuldsetja heila þjóð og niðja hennar langt fram í ættir?

Þið eruð eina þjóðin sem getur boðið Evrópusambandinu birginn, sagði vinur minn þjóðverjinn við mig.  Og um leið og þið gerið það, hjálpið þið okkur líka til að losna undan hruninu sem er á leiðiinni til okkar líka.   Það fer bara hægar af stað hér, því hér er allt stærra í sniðum.  En bankarnir eru að gera nákvæmlega það sama hér í Þýskalandi og þeir gerðu á Íslandi hættir að lána fyrirtækjum og lána bara hverjir öðrum, til að ljúga upp hagspár.  Enda eru verslanir og fyrirtæki að fara á hausinn hér hér daglega. 

Ég hef grun um, og sé af umfjöllun erlendra miðla að fólk er að hugsa það sama þar.  Vinur minn í Austurríki sagði; þegar þeir sjá að lítil þjóð eins og þið getið boðið ESB birginn, þá hrynur veldið innan frá.  Þeir óttast að svo verði.  Því allt er þetta bákn byggt á sandi. 

Dansku vinur minn tók í sama streng.  Ættum við ekki að ganga verlega inn um gleðinnar dyr?  Og alls ekki skuldsetja alla þjóðina og ættingja okkar og eftirkomendur langt inn í framtíðina.  Hver hefur leyfi til þess, mér er spurn?


mbl.is 60% andvíg Icesave-lögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum þrjósk ósveigjanleg og heimóttarleg, við verðum bara að horfast í augu við staðreyndir.

Hef reyndar ekki lesið nema undan og ofan af greininni, en hef gaman af karlinum.  Hann er greinilega húmoristi.  Við mættum hafa meiri húmor fyrir okkur sjálfum.  Segi og skrifa.  Okkur myndi eflaust farnast betur með það.

Ég horfi aldrei á INN, ekki einu sinni á þætti bloggvinkonu minnar Kolbrúnar Baldursdóttur, sem mér finnst reyndar alveg frábær kona, það lýsir sér vel í skrifum hennar. En í kvöld þá stóð sjónvarpið á sér, og ég var stökk í orðsins fyllstu merkingu á Ingva Hrafni talandi eins og honum er einum lagið, lék einleik og var orðljótur og lét vaða á súðum.  En svo sagði hann það sem mér finnst ekki hafa komið nægilega fram og sló mig fast. Hann sagði forsætisráðherrann okkar er sagður hafa rætt bæði við forsætisráðherra breta og hollendinga, en það hefur ekkert verið gefið út um hvað þeir sögðu.  Steingrímur er búin að fara um allt, og róa niður Skandinavíu og alla sína kollega, hvað svo sem hann sagði þeim.  Össur rætti við sinn kollega í Bretlandi og sá gaf honum ESBbolta svo hann gæti leikið sér áhyggjulaus.  En hvað sögðu Brown og Jan Peter?  Hefur einhver heyrt um það?

 Hvað sögðu Brown og Jan Peter við okkar forsætisráðherra?

Gefum okkur að bretar ættu í svipuðu og íslendingar í dag.  Nema að þeir ættu í stríði við Kína og USA, heldur nokkur maður að fjölmiðlamenn þar myndu ekki reyna að ganga á eftir því hvað hefði farið forsætisráðherrum á milli.  Það má ímynda sér að hlaðið á Downingsstræti 10 væri þéttsetið fjölmiðlafólki sem krefðist svara við því hvað þeim hefði farið á milli.  Hér eru fjölmiðlar bara að vinna eftir fyrirskipunum frá ráðandi öflum, eða þannig finnst mér það vera.  Þeim er skítsama um sannleikan eða hvað er að gerast, sennilega bara að hugsa um að halda vinnunni. Og hvaða áhrif það hefur á okkur, börnin okkar og barnabörnin. 

Umræðan í dag er að snúast íslendingum í hag, þrátt fyrir grátlega tilburði ríkisstjórnarinnar til að beygja umræðuna að sínum ESB draumum, og reyna að segja okkur að allt fari til fjandans ef við samþykkjum ekki samningana þeirra.  Þrátt fyrir grátlega tilburði meðreiðarsveina ríkisstjórnarinnar til að sverta forsetan og almenning fyrir að fylgja þeim ekki í blindni.

Þau höfðu svo sannarlega tækifæri til að snúa öllu málinu sér í hag, og leiða þjóð sína sameinaða inn í það sem kom Íslandi og börnunum okkar best.  En þau kusu að vera þrjóskari en andskotinn, það er þessi þrjóska sem Roy Hattersley er að gera grín að.

Nú tala þau út og suður; Ein þingkona Samfylkingar segir að kosið verði milli forseta og alþingis, annar segir að ef við samþykkjum ekki ofurálögur verði stjórninni slitið.  Svo kemur sá þriðji og segir það bara vera bull stjórnin geti setið áfram enn einn segir að það sé skylda stjórnarinnar að sitja áfram.  Ef til vill ætti stjórnin að hittast og ræða saman um hvernig þau ætla að tækla niðurstöðuna.  Ekki gera sama og síðast að láta taka sig í bælinu þegar þau eru stoppuð af.  Verða pirruð og reið og í fýlu.

Ykkur finnst ég ef til vill ósanngjörn en ég er að verða alveg gáttuð á hvernig ráðamenn þjóðarinnar haga sér.  Hvernig þau voga sér að henda fjöreggi þjóðarinnar svona á milli sín, milli þess sem þau auka álögur og binda þjóðina í skuldaklafa, og reyra svo sultarólina að fyrirtækjum að þau geta ekkert gert.  Og ASÍ og SA eru líka brandari ef það væri ekki sorglegt hve þeir eru illa pólitískir og illa hugsandi um umbjóðendur sína.  Allstaðar annarstaðar hefði fólkið sem á allt sitt undir þeim, hent þeim út í hafsauga.

Nei Roy Hattersley hefur rétt fyrir sér, við erum þrjósk, ósveiganleg og heimóttarleg og látum allt yfir okkur ganga, þess vegna er þjóðfélagið í þeirri upplausn sem það er í dag.  Við höfum látið þetta gerast, og ekki hreyft litla putta til að stoppa það af.  Kosið yfir okkur það sama aftur og aftur, án þess að gera kröfur um að fólk standi sig.  Án þess að heimta réttlæti, sanngirni og heiðarleika. 

Nú sitjum við uppi með Alþingi sem er rúið trausti, flokka sem enginn vill hafa með að gera og það sem grátlegast er, þegar upp hefur risið fólk sem vill gera betur, eins og Hreyfingin, eins og Frjálslyndi flokkurinn eins og Íslandshreyfingin, þá eru þau púuð niður af því að það þóknast ekki sperrirófunum, þrjóskhausunum og ósveiganlegunum að hlusta eða taka mark á þeim.  Nei við kjósum bara það sama aftur og aftur og aftur.  og við hötum þennan og þessi á ekki sjens. 

Er ekki komin tími á að við lærum aðeins af reynslunni og förum að gera kröfur á það fólk sem lofar okkur öllu fögru í kosningabaráttu en stendur svo ekki við neitt, þegar þeir hafa komið sér saman um hverjir eigi að ráða í þetta skipti.

Valið er okkar, og nú hefur Ólafur Ragnar alveg óvænt fært okkur eitt stykki lýðræðispakka svona alveg óforvarendis, en nei, við erum erfið, þrjósk og ósveigjanleg, svolítið krúttlegt ef málið væri ekki svona alvarlegt.  Og við erum öll samsek í því af hverju þetta er svona.  Nú skulum við syngja öll í kór ME ME ME.

images


mbl.is Hinir þrjósku Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laufey og ég og ég og Laufey ásamt ýmsum öðrum.

Ég fór í kvöldskóla að læra þýsku, kennarinn var frú Brynhildur Björnsson, Þar áður hafði ég verið á kvöldnámskeiðum í frönsku kennarinn þar var frú Bryndís Scram.  En við á þýskunámskeiðinu fórum öll með Brynhildi til Þýskalands, man ekki hvaða ár þetta var, en það var örugglega sautjánhundruð og súrkál. Tounge  Faðir Brynhildar var sonur forsetans okkar Sveins Björnssonar og bjó hann í Englandi.  Hann sendi dóttur sína í stríðinu til þýsku eyjarinnar Amrum, til að forða henni frá loftárásum Þjóðverja. 

En í tilefni af því að Laufey bloggvinkona mín kom hér í heimsókn um daginn og við áttum svo notalega stund, datt mér í hug að setja inn nokkrar myndir frá þessari ferð.  Við vorum nefnilega mikið saman á þessum tíma, bæði í þýskunámi og í Litla Leikklúbbnum.

slides_0001

Hér erum við í sollinum, man ekki hvað barinn heitir, en þetta var svona íslandsbúlla í Hamborg minnir mig, annars er ég farin að verða dálítið gleyminn.  þarna var alltaf fjör og fólk stóð upp á borðum og söng, margir íslendingar sóttu þennan stað.

slides_0001q

Hér er nærmynd af okkur Laufey, og frú Brynhildur fyrir endanum.  Hún átti allskrautlega ævi, þessi elska m.a. bóndakona í djúpinu fyrir utan að vera afabarn forseta.  Það var gefin út bók um hana, hún var rosalega flott kona.

slides_0040

Hér er hún greinilega að drekka Ella minn undir borðið, en hún var fyrir utan að vera flott kona, algjörlega öðruvísi kona, stórbrotin persónuleiki.

slides_0002

Hér er fremstur til hægri Halldór Hermannsson bróðir Sverris.  Og margir sem ísfirðingar kannast vel við.

slides_0003

ein eyjan í klasanum þýska heitir Helgoland og þar var freeverslun.  Þangað fórum við í verslunarleiðangur, ég er að koma heim til Amrum þaðan.

slides_0004

Hér erum við stöllurnar, flottar og fínar, ennþá flottari í dag auðvitað. LoL

slides_0009

Við gistum hjá vinkonu Brynhildar á Amrum, vinkonu hennar sem hún hafði búið hjá meðan á stríðinu stóð.

slides_0010

Elli með eina þýska á hnjánum.  Þetta var virkilega skemmtileg ferð og góður hópur.

slides_0013

Man svo sem ekki eftir þessum karli, en hann hefur örugglega málað þessa mynd af Amrum.

slides_0016

ég og Lubba mín. Takið eftir skónum!

slides_0020

Við Laufey aftur og Nonni Búbba, Búbba prentara ég held að hann hafi átt merkisafmæli um daginn, til hamingju Búbbi minn.

slides_0026

'Eg á þessum tíma.

slides_0075

Ég held að við höfum verið þarna í viku og notuðum tíman til að hjóla um eyjuna.  Það var ekki mikið annað að gera, nema fara í bjórdrykkjukeppni og skemmta hvort öðru, en ég held að engum hafi leiðst.

slides_0070

Þetta er náttúrulega algjörlega þýskt ekki satt? Bjórtunnur og alles.

slides_0220

Ein af okkur Júlla mínum, á þessum tíma saumaði ég flest föt á mig sjálf.  Það var ekki til peningur til að kaupa slíkt.

slides_0018

Strákurinn hennar mamadí.  Alltaf ljúfur.

Þetta er nú bara svona til að létta andrúmsloftið og hafa gaman af.  En Amrúm er ein af Frisnesku eyjunum þar sem brandararnir byrjuðu löngu á undan Hafnarfjarðarbröndurunum og þeim dönsku holubúabröndurunum. 

Lifið heil og megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.  Segi bara góða nótt Cool


Síðasti naglinn í líkkistuna.

Þetta er síðasti naglinn í málflutningi ríkisstjórnarinnar að það sé ekki hægt að ná betri samningum.  Fyrst var það Ólafur Ragnar sem gekk í lið með almenningi og nú Eva Joly, fyrir utan ótal jákvæðar umfjallanir í fjölmiðlum erlendis, sem sýna að það hefði átt að tækla málin allt öðruvísi en að gefast strax upp og játa á sig allan klafann, kynna ekki einu sinni okkar málstað. 

Í stað þess að viðurkenna þessar staðreyndir og fara að vinna samkvæmt íslenskum hagsmunum, forherðist ríkisstjórnin og nú segja þeir að stjórnin muni fara frá ef þessum óskapnaði verði hafnað í atkvæðagreiðslu.

Og ég spyr hvað er að þessu fólki?  Af hverju getur það ekki stutt við íslenska hagsmuni og farið eftir þeim göngustíg sem Joly er að benda á? 

Er það vegna skoðanakannanna um að þeir geti beygt almenning til að segja já við klafanum af ótta við hræðsluáróður þeirra?

Ég er alveg viss um að ef þeir hefðu snúið bökum saman með þjóðinni.  Stutt við bakið á Ólafi Ragnari og fagnað ákvörðun hans.  Tekið svo höndum saman við stjórnarandstöðuna og fólkið í landinu hefðu þeir komið út með mun hærri tölur í skoðanakönnun en bara 53%.

Fimmtíu og þrjú prósent daginn eftir allt havaríið og stanslausan áróður ríkisútvarpsins og þeirra sjálfra er nefnilega enginn sigur.  Því þegar rykið fer að sjatna og fólk fer að sjá að við erum að ná eyrum fólks í útlöndum, þá situr eftir lygin um að það hafi ekki verið hægt að gera betur.  Því það er næsta ljóst það var nefnilega hægt að gera svo miklu betur.  Ef þeir hefðu haft fólk sem þekkti og kunni og gat til að senda út og semja, í stað þess að senda pólitískan vin sinn.

Af hverju er þessi þumbaragangur þá?  Ég  verð að viðurkenna að ég skil hann ekki.  Er það bara vonin um að komast inn í ESB, eða liggur eitthvað ennþá meira þarna á bak við sem við ekki skiljum?

Ríkisstjórnin verður líka að átta sig á því að hún er ekki mjög vinsæl.   Það sem gerir að fólk vill hafa hana áfram, er að bæði Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn eru stórskaðaðir eftir setu við völd í yfir 20 ár, og eru hinir raunverulegu hrunmeistarar í raun og veru, ásamt Samfylkingunni.  Því má segja að við séum í pattstöðu eins og dæmið lítur út í dag.  Ef við fellum frumvarpið og þar á meðal ríkisstjórnina, þá er hættan á að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn komist að.  Þau spor hræða.  En munu þau hræða fólk til þess að fá yfir sig skuldaklafa fyrir sig, börnin sín og barnabörnin til langs tíma?  Ég er ekki viss um það.

Og svo má líka segja að það er nokkuð ljóst að Hreyfingin og sennilega Frjálslyndi flokkurinn muni bjóða sig fram í næstu alþingiskosningum.  Þar ásamt Vinstri grænum eru komin fram öfl sem eiga engann beinan þátt í hruninu.  Það getur því orðið kostur fyrir þá sem vilja ekki Icesaveklafan og ekki stóru stjórnarandstöðuflokkana og ekki ESB. 

Best væri að litlu framboðin annað hvort byðu fram saman, eða mynduðu kosningabandalag.  Borgarahreyfingin hefur staðið sig vel á vaktinni.  Þau hafa verið samkvæm sjálfum sér og eins og þau sögðu, verið gluggi almennings inn á Alþingi, opnað augu almennings fyrir fíflaganginum sem þar  viðgengst. 

Svo er alltaf möguleiki á því að forsetinn myndi utanþingsstjórn til að fara með völdin í landinu.  Það er ljóst í mínum huga að mikill meirihluti þjóðarinnar vill ekki láta nauðga upp á sig þessum vonda samningi.  Það er því ekki fallegur leikur að setja dæmið upp svona.  Að með því að hafna samningnum fari stjórnin frá.  Það er álíka ósmekklegt og að stjórnin neyddi samherja sína í ríkisstjórninni til að samþykkja hann þvert á vilja sinn, og þar með svíkja drengskaparheit sín um að kjósa samkvæmt sinni sannfæringu. 

Þið hefðuð átt að hlusta á Ögmund, sem sagði að stjórnin hefði ekki leyfi til að fara frá.  En nei það ætlið þið ekki að gera samkvæmt útspili viðskiptaráðherrans.  Nú skuluð þið kjósa rétt eða taka afleiðingunum.  Um leið og þið gerið þetta, setjið þið bönd á lýðræðið.  Það sama lýðræði og okkur var lofað að yrði virkt þegar þið kæmust að. 

Ef þetta er útspilið sem á að leika til að knýja fram vilja ykkar, þá held ég að það muni ekki takast, vona ekki.  Fólk verður að hætta að láta kúga sig til að taka ákvarðanir vegna ótta um afdrif.   Það hefur sýnt sig að allur hræðsluáróðurinn sem stjórnin hefur haldið uppi undanfarið ár, er ekki á rökum reist.  Og nú hefur Eva Joly bæst í hóp þeirra sem eru að bjarga okkur frá glötun, með sínu framlagi. 

Ég bið ykkur því að íhuga á hvaða leið þið eruð.  Það gæti farið svo að þið stæðuð einangruð og rúin öllu trausti, og flokkar ykkar í rúst, ef þið ætlið ekki að taka fjölda áskorana um að taka höndum saman við okkur hin, og þá sem tala máli okkar erlendis. 

Með því að snúa bökum saman og tala einum rómi til hagsbóta fyrir Ísland, getum við náð miklu betri árangri, og sýnt fram á að það er verið að fara illa með okkur af stórum þjóðum á þann hátt að ofbeldi kallast.  Eva Joly hefur líka sýnt fram á þann flöt að bæði bretar, hollendingar og allt regluverk ESB á sök í málinu, alveg eins og þeir ráðamenn hér sem sváfu á verðinum, og gáfust svo allt upp, þegar bretar og hollendingar hnerruðu.  Þið ætlið ekki að gefa okkur neitt tækifæri, af því að það má ekki viðurkenna að þið hafið haft rangt fyrir ykkur allan tímann. 

PIC00005

Þá verður hér um að litast eins og Eva Joly segir, engir eftir nema fiskimenn og fiskvinnslufólk, ég kann að flaka, Addi Kitta Gau líka.  En ég held að menntamennirnir og allir hinir verði að vera með líka.  Viljum við kasta öllu frá okkur, bara til að þurfa ekki að viðurkenna mistök?


mbl.is Joly harðorð í garð Hollendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúlulíf og nokkrar myndir.

Ég kvaddi Báru mína í dag.  Hún hélt á vit Vínar og dýralæknaskólans, Bjarki fór líka, svo nú er allt við sama og það var.  Við fórum með þeim inn á flugvöll ég og stelpurnar.  Við förum inn á flugvöll með mömmu og pabba, svo förm við að kaupa púsl, sagði sú stutta.  Og þá mundi ég eftir því að seinast þegar mamma fór, var hún svo sorgmædd að ég greip til þess ráðs að fara í bæinn og kaupa handa henni púsl, það er eitt af hennar uppáhalds.  Svo nú er það alveg á hreinu, mamma fer og hún fær púsl. Við fórum svo og keyptum púsl, og síðan á leikskólann.  Svo er bara rútínan, vinna, sækja stelpurnar, elda mat, koma þeim í bað og bursta tennur, lesa og svæfa Smile Ég held að sú stutta hafi bara verið dálítið feginn að komast í sína vanalegu rútínu. 

En hér koma nokkrar myndir.

IMG_0441

Ótrúlegir litir í náttúrunn hér vestra á þessum tíma. Þurfti samt útlendinga til að benda mér á það á sínum tíma, við tökum þessum litabrigðum sem sjálfsögðum hlut.

IMG_0452

Ísköld fegurð.

IMG_0451

 

Það þurfti að pakka upp öllu dótinu og fötunum drottinn minn, það var sko ekkert smá.

IMG_0453

Snúlli fór með þeim suður, og Brandur var bara glaður með það.  Hann er í dálitlu afbrýðiskasti núna, en það rjátlast af honum.

IMG_0455

Ótrúlegur þessi kettlingur, tekin eins mánaða og algjörlega húsvanur, hefur aldrei pissað eða kúkað fyrir utan kassann.  Og er alveg eins og ljós.

IMG_0458

Hér er álfaprinsessa að undirbúa þrettándaball.

IMG_0460

Ásthildur ætlar líka, en hún á svona líka flotta sokka.

IMG_0461

Þessi hattur er sennilega meira svona álfa segir mamma.

IMG_0462

Og lagar höfuðfatið meðan pabbi klæðir Ásthildi í sokkana.

IMG_0467

Svo er gott að fá sér egg, fara sjálf út í hænsnakofa og sækja egginn og fá ömmu til að steikja þau, nammi namm.

IMG_0475

Já þessi dásamlega birta í ljósaskiftunum.

IMG_0476

Svo var að fara út á flugvöll og kveðja pabba og mömmu.  Þær voru ótrúlega duglegar og góðar þessar elskur.

IMG_0478

Og þá er bara að fara út í bíl og kaupa púsl.

En pabbi þeirra tók nokkrar fallegar myndir sem ég ætla að setja hér inn líka.

_Z1F9914[1]

Kisi í letikasti og lætur fara vel um sig.

_Z1F9923

Þessi er tekin á leiðinni heim frá Reykjavík.

_Z1F9930

Fegurðin er alveg ótrúleg.

_Z1F9937

Bára mín.

_Z1F9952

Álfaprinsessan komin niður að væntanlegri brennu.

_Z1F9954

Litla systir og mamma líka.

_Z1F9963

Hér koma álfarnir.  Álfabrennan er haldinn til skiptis á Ísafirði og í Bolungarvik.  Og er afar skemmtileg uppákoma á þrettándanum.

_Z1F9977

Stundum hafa álfadrottningin og kóngurinn komið ríðandi á hestum, það er afar hátíðlegt.  en hér er prinsessan farin að dansa með álfunum og tekur sig vel út.

_Z1F9980

Hún var svo hreykin að fá að vera með í hópnum.

_Z1F9982

Fallega litla prinsessan mín.

_Z1F9984

Og svo var skotið upp flugeldum, það er alltaf gert líka. 

En svona er þetta bara, fólk kemur og fer, vinir og ættingjar kveðja og fara, eða heilsa og koma.  Ég á afar erfitt með að kveðja.  Það kemur alltaf kökkur í hálsinn og tár í auga.  En það verður bara að hafa það.  Þetta er eitthvað sem maður þarf að sætta sig við.  En sem sagt nú er að hefjast rútína sem setur lífið í fastar skorður aftur. 

Eigið gott kvöld elskurnar og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og reyndar okkur öllum og vernda. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2010
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband