Fundur í Dögun um málefnavinnu og flottar myndir.

Skilaboð til míns fólks í Norðvestur kjördæmi.

"
Skipulagður hefur verið vinnufundur fyrir áframhaldandi stefnumótun
Dögunar í Ásgarði í Kjós á laugardaginn 26. janúar.
Við vonumst til að sjá ykkur sem allra flest sem lýst hafa áhuga
á málefnavinnu með okkur.

Reynsla okkar er sú að mun betri og meiri árangur kemur út úr
málefnastarfinu með slíkum vinnudegi heldur en stuttum og stopulum
fundum sértækra hópa."

Það eru allir velkomnir sem skráðir eru í flokkinn. 

Svo nokkrar myndir.

Ég skrapp til Bolungarvíkur um daginn, það var yndislegt veður og himnagalleríið var svo sannarlega opið.

IMG_7861

Á þessum tíma er oft ótrúlega fallegt að líta til himins, og liturinn er líka yfir byggðum.

IMG_7855

Logn og kyrrð eins og Ísafjörður býður okkur oft uppá.

IMG_7856

Ég uppgötvaði ekki þessa litafegurð, fyrr en hingað komu stúlkur frá Nýja Sjálandi og Ástralíu og dáðust að þessum litum. Þær opnuðu augu mín fyrir því hve við erum rík í okkar náttúru.  Glöggt er gestsaugað.

IMG_7857

Á leiðinni út í Hnífsdal og Grænahlíðin blasir við.

IMG_7858

Bolungarvík er kyngimögnuð, fjöllin hrikaleg og flott, og fólkið kjarnmikið.

IMG_7859

Og Djúpið logar.

IMG_7860

Sannarlega flott.

Eigið góðan dag elskurnar.


Ræða Atla Gíslasonar frá 31 maí í vor.

Atli Gíslason í Maí í vor:

Atli Gíslason: Fyrsti Icesave-samingurinn var skilgetið afkvæmi ESB-umsóknarinnar – lykill að ráðherradómi Steingríms J.


31. maí 2012 klukkan 14:30
Atli Gíslason

Fram er komin tillaga á alþingi um að afturkalla ESB-aðildarumsóknina og ekki endurnýja hana án þess að fyrst sé leitað álits þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu. Atli Gíslason annar flutningsmanna tillögunnar segir að nauðsynlegt hafi verið að gera Icesave- samning með hraði og leynd vorið 2009 til að tryggja aðild vinstri-grænna að ríkisstjórn sem stæði að ESB-umsókn. Fyrsti Icesave-samingurinn hafi verið skilgetið afkvæmi ESB-umsóknarinnar.

Nú tæplega þremur árum eftir að alþingi samþykkti umsókn um aðild að ESB liggur fyrir að umsóknarferlinu verði ekki fram haldið nema vikið sé í verulegum atriðum frá þeim meginhagsmunum sem meiri hluti utanríkismálanefndar dró fram í áliti sínu segir í greinargerð tillögu til þingsályktunar frá þingmönnunum Atla Gíslasyni og Jóni Bjarnasyni sem kjörnir voru á þing fyrir vinstri-græna (VG) í kosningunum í apríl 2009. Atli hefur sagt skilið við flokkinn og Jóni var vikið úr ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.

Þingmennirnir segja að alþingi hafi gert meirihlutaálitið að skilyrðum sínum við samþykkt umsóknar-ályktunarinnar 16. júlí 2009. Umboð ríkisstjórnarinnar til að halda áfram aðlögunar- og aðildarvinnu sé því ekki lengur fyrir hendi og vilja þer að ESB-viðræðunum verði hætt og umsóknin afturkölluð. Aðildarumsóknin verði ekki endurnýjuð nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu sem staðfestir vilja þjóðarinnar til aðildar. Engin rök hnígi að því að Ísland sæki um aðild að ríkjasambandi ef ekki sé almennur vilji til aðildar.

Í viðtali við Morgunblaðið 31. maí um röstuðning fyrir tillögunni segir Atli Gíslason:

„Icesave-samningurinn sem var lagður fram í júní 2009 var skilgetið afkvæmi umsóknarinnar. Samningurinn var skilyrði þess að umsóknin yrði móttekin en ekki endursend ríkisstjórninni.

Það kom flatt upp á marga að samningurinn skyldi liggja fyrir strax í júní 2009. Steingrímur J. Sigfússon sagði í apríl sama ár að það lægi ekkert á að semja. En skýringin lá í augum uppi. Samningurinn var lykill Steingríms J. að stjórnarsamstarfi og ráðherradómi og hluti af aðildarumsókninni sem aftur skýrði leyndina. Á síðari stigum málsins kom ESB með virkum hætti inn í dómsmálið fyrir EFTA-dómstólnum.“

Í greinargerð tillögunnar segir:

„Framsal á fullveldi og einhliða kröfur og skilyrði sem ESB hefur sett í viðræðunum eru með öllu óásættanlegar fyrir íslenska hagsmuni og sjálfsforræði. Kröfur ESB ganga þvert gegn þeim meginhagsmunum og skilyrðum Íslands sem Alþingi samþykkti að fylgja hinn 16. júlí 2009. Framhald aðlögunar Íslands að ESB og eftirgjöf í stórum hagsmunamálum í alþjóðaviðræðum stríðir gegn framtíðarhagsmunum Íslands.

Þá hafa ESB og fulltrúar þess nú þegar ástundað beina íhlutun í íslensk innanríkismál í skjóli umsóknarinnar, sbr. ályktun Evrópuþingsins frá 14. mars sl., og krafist fylgispektar Íslands á alþjóðavettvangi sem er með öllu ólíðandi af Íslands hálfu. Efnahagsleg inngrip ESB í íslenskt þjóðfélag hafa alvarlegar afleiðingar og ekki í samræmi við forsendur umsóknarinnar. Það felur annars vegar í sér að með því er verið með peningagjöfum, sem stýrt er frá Brussel, að hafa áhrif á atvinnu, afstöðu til ESB-aðildar og almenna skoðanamyndun í landinu og hins vegar að um er að ræða falskar væntingar um áframhaldandi verkefni en þeim mun ljúka jafnskjótt og þetta gjafafé er upp urið.

Þá má nefna makríldeiluna og áform og hótanir Evrópusambandsins í garð Íslendinga um viðskiptaþvinganir, samtímis því sem aðildarviðræður standa yfir. Sýna þær hótanir best hvernig þetta ríkjasamband beitir sér gegn smáríki eins og Íslandi. Samningur ríkisstjórnarinnar um Icesave hefur ætíð verið skilgetið afkvæmi ESB-umsóknarinnar, enda hefur ESB nú gerst formlegur málsaðili og ákærandi gegn Íslandi í Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum.

Jafnframt hafa forsendur á Evrópusambandssvæðinu sjálfu breyst í veigamiklum atriðum. Hið sama á við um starfshætti sambandsins og pólitísk tilræði þess við sjálfstjórnarrétt aðildarríkjanna, einkum á sviði efnahagsmála, sem felur í sér að eftirlit og ákvarðanir um þann málaflokk innan hvers ríkis eru færðar frá sambandsríkjunum sjálfum til miðstjórnarvaldsins í Brussel. Enn fremur hefur það komið í ljós að hin sameiginlega mynt, evran, sem var talin fela í sér vörn fyrir viðkomandi land, sem ætti í efnahagsörðugleikum, hefur þvert á móti magnað upp vanda ríkjanna og stefnir þeim í átt að gjaldþroti. Þar með eru brostnar eða gjörbreyttar veigamiklar forsendur sem lágu fyrir við samþykkt þingsályktunartillögunnar á sínum tíma.

Í ljósi þess hvernig umsóknar- og aðildarferlið hefur þróast þvert á vilja og hagsmuni íslensku þjóðarinnar telja flutningsmenn tillögunnar brýnt að Alþingi samþykki að afturkalla umsókn sína um aðild að ESB.“


Já Guðmundur þetta er ekkert flókið. Viljinn er allt sem þarf og lýðræðisástin.

Nei Guðmundur þetta er ekkert flókið.  Þið látið þetta í hendur þjóðarinnar, og lútið þeirri niðurstöðu.  Þið áttuð að gera þetta áður en ákveðið var að sækja um.  Þetta er það stórt mál, að þið ættuð að skammast ykkar fyrir að troða þessu ofan í kokið á þjóðinni.  Og síðan leyna þeim staðreyndum sem eru smátt og smátt að koma í ljós eins og í skýrslu frá ESB segir: það er ekki rétt að hér sé um samning  að ræða, heldur upptaka á regluverki ESB, einungis spurning um tímasetningu.  sjá hér:

First, it is important to underline that the term “negotiation”
can be misleading. Accession negotiations
focus on the conditions and timing of the
candidate’s adoption, implementation and application
of EU rules – some 90,000 pages of them.
And these rules (also known as “acquis”, French for
“that which has been agreed”) are not negotiable.
For candidates, it is essentially a matter of agreeing
on how and when to adopt and implement EU rules
and procedures. For the EU, it is important to obtain
guarantees on the date and effectiveness of each
candidate’s implementation of the rules.

Understanding Enlargement - European Commission - Europa.

Einnig eins og togaðist upp úr Össuri í gær, að hér er meira fullveldisafsal en menn gerðu sér grein fyrir.  En ef þið vilið lýðræði og fylgja því, þá er eina málið í stöðunni að spyrja þjóðina hvað hún vill gera í málinu. 

http://www.ruv.is/frett/meira-fullveldisframsal-en-talid-var?fb_action_ids=4879624144721&fb_action_types=og.likes&fb_source=other_multiline&action_object_map={%224879624144721%22%3A358171647614796}&action_type_map={%224879624144721%22%3A%22og.likes%22}&action_ref_map=[]


mbl.is „Er þetta flókið?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikurinn kemur utanfrá.

Það er ágætt að hinir hjálpsömu stjórnendur í ESB og stækkunarferlinu geri sér grein fyrir hvernig landið liggur og meiri huta landsmanna er ekkert í mun að þeir liðki fyrir einu eða neinu í innlimunarferlinu. 

Best er að þeir láti okkur bara í friði með þessi mál og leyfi okkur að vinna að málinu í samræmi við vilja meirihluta þjóðarinnar.


mbl.is Vekur athygli víða erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já fræða- og háskólabyggingar eru í fyrirrúmi fyrir almennri heilsugæslu almennings.

Ég á ekki orð.  Hvað er hér á ferðinni?  tvær byggingar yfir skóla, sem í sjálfu sér er góðra gjalda verð, ef við ættum fyrir því pening.  En nú er ljóst að Landspítalinn míglekur og sumar hæðir er illa farnar af svepp og ég veit ekki hvað, fyrir liggur að starfsfólk gangi út í mars, gamalt fólk berst í bökkum og biðraðir lengjast eftir nauðsynlegri aðstoð. Ungir menn sem eru með sjaldgæfan sjúkdóm fá ekki þau lyf sem geta bjargað þeim. 

Þá dettur þessari norrænu velferðarstjórn að byggja tvö hús sem kosta yfir 3 milljarða allavega annað húsið.

Ég verð að segja að þetta fólk er gjörsamlega heillum horfið þegar kemur að forgangsröðun. Ætlar Guðbjartur Hannesson að horfa framan í almenning með þetta í farteskinu?  Eða Katrín Jakobsdóttir.  Þetta fólk virðist ekki bera nokkuð skynbragð á peninga og fjáraustur, bara ef það kemur ekki úr þeirra vasa.

Ég segi bara skammist þið ykkar, og vonandi verður þetta til þess að þessir tveir flokkar fari niður fyrir tveggja stafa tölu í næstu kosningum.  Skömm ykkar hefur aldrei lútað lægra en við þessa frétt.


mbl.is Húsið mun kosta yfir 3 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er best að taka á barnaníði?

Mikið get ég vel skilið reiði fólks, og sérlega þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi þessa manns.  Það er aldrei hægt að réttlæta barnaníð.  Þeir sem þetta gera eru oftar en ekki veikir einstaklingar, en hafa einhvern veginn lag á að koma sér vel svona opinberlega.  Og það er einmitt málið.  Ef þeir sem eiga að gæta barna hlusta ekki á þau þegar þau segja frá, reyna að þagga niður máli af því að "hann er svo góður maður" eða ekki segja frá þessu, því þetta er jú afi þinn.... eða eitthvað álíka, þá er það mitt álit að slíkt fólk er samsekt níðingnum.

Þau vita hvað er að gerast, eða þá þar liggi að baki aðeins grunur, ber þeim að láta þar til bær yfirvöld vita.  Lögreglu, barnastofu, Stígamót, eða bara þá aðila sem vernda börn. 

Þarna var fólk eins og forstöðumenn á Kumbaravogi og yfirmaður á Hótel Sögu, þar sem margir vissu um málið, og þarna á þessum 50 ára brotaferli voru fleiri prestar og kirkjunnar þjónar.  Þetta fólk á sinn stóra þátt í því að maðurinn hefur eyðilagt líf fjölmargra barna.  Þetta fólk á líka að ákæra svo fólk átti sig á að það er líka glæpur að þegja yfir svona málum. 

Sem betur fer hefur vitneskja aukist og alvarleikinn komið betur í ljós.  Samt er þetta til staðar ennþá í allof miklum mæli.  Og verður endalaust þangað til fólk fer að vera betur á verði, gagnvart svona níðingum. 

Þess vegna væri sennilega árangursríkara að gera vitorðsmenn að einhverju leyti ábyrga, þegar ljóst er að þeir hafa vitað en ekki gert neitt í málinu, eða jafnvel þaggað óþægilegar staðreyndir niður.

Fólk verður að átta sig á því hversu alvarlegur þessi glæpur er, þar sem saklaus börn vera fyrir barðinu á glæpamanni.  Og að ef þeir misnota á annað borð eitt barn, er alveg eins víst að fleiri börn verði fyrir barðinu á honum/henni.

En að beita svona menn ofbeldi, eða ráðast að hýbýlum þeirra er algjörlega óráðlegt. Það gerir ekkert annað en að þeir fái ákveðna samúð, sem dregur úr þeirri fordæmingu sem þeir eiga skilið.

Þeir eiga að fá að ganga gegnum lögregluferli, yfirheyrslur og síðan sakarvottorð, þar sem tilgreint er hvað þeir hafa gert af sér, þannig að þeir eigi hvergi að gera nálgast vinnustaði þar sem börn eru í hættu gagnvart þeim.

Hér þarf að taka á þessu mjög svo alvarlega máli að sem bestur árangur náist í því að koma í veg fyrir svona níðingsskap.  Reyna að koma þessum níðingum upp á yfirborðið, og hræða menn og konur frá því að stunda þessa óeðlilegu kynþörf sína, en leita sér frekar hjálpar. 


mbl.is Karl Vignir í tveggja vikna varðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimkoma og heimsóknir.

Eftir langt og skemmtilegt ferðalag var loksins komin tími til að koma sér heim.  Þar beið undirbúningur jólanna, svo sem eins og að senda jólakort, reyndar búa þau til og prenta, og það sem maður gerir fyrir jól. Því hefur nú fækkað svo sem. 

IMG_7586

Davíð Elías elskar að vera í bílskúrnum og skrúfa hitt og þetta.

Sonurinn sótti okkur út á flugvöll og við byrjuðum á að sækja strákana á leikskólann, og kíktum svo í heimsókn í nýja húsið þeirra í Njarðvíkunum.

IMG_7587

Arnar Milos er meira fyrir svona dund.

En svo var lagt af stað heim. Það var stafalogn í Keflavík og veðrið gott alla leið heim. Og allir vegir færir sem betur fer.

IMG_7588

En fyrst fengum við okkur að borða á Tailenskum matsölustað í Keflavík, við förum þangað oft og fáum okkur önd, sem er alveg frábær. Staðurinn heitir Panda og er í miðbænum.

IMG_7593

Og svo var maður komin heim. Úlfurinn hafði sandað uppgönguleiðina svo amma gæti gengið upp hálan snjóinn. Alltaf jafn hugsunarsamur þessi elska.

IMG_7598

Áður en ég fór út, hafði ég pantað jólaborð fyrir systur mína og okkur Í Edinborg.

IMG_7599

Bæði matur og þjónusta er þar alveg til fyrirmyndar. Hér eru vertarnir að spyrja hvernig smakkist. Það var síldarréttir í forrrétt aðalréttur var svo Grísasteik og hangiket, afar gott, og svo ís á eftir.

IMG_7600

Ég mæli alveg með þessum stað, þeir reka líka gistingu og matsölustað á Núpi í Dýrafirði, og leggja mikið upp úr að kaupa beint frá býli, og vita hvaða hráefni þeir eru með í höndunum. Sem skiptir miklu máli.

IMG_7606

Hér er hún Sædís mín, flott og ljúf.

IMG_7609

Úlfurinn að verða að karlmanni, svona hægt og bítandi.

IMG_7667

Við fengum svo heimsóknir, Skafti minn og Tinna komu í Bröns með börnin, þau komu alla leið frá Noregi til að eyða jólunum hér heima.

IMG_7668

Ég get svarið það að börnin vaxa alveg upp fyrir haus á manni, áður en ég veit af.

IMG_7669

Litla fallega prinsessan mín hún Sólveig Hulda.

IMG_7673

Gott að fá þau í heimsókn.

IMG_7677

Og afi fór með prinsessunni upp í hænsnahús að ná í eggin.

IMG_7678

Það þarf að gefa þeim mat og vatn og taka eggin, það er ótrúlega gaman.

IMG_7680

Rolando kíkti í heimsókn með sín börn, Isabel Lív og Íaac Loga.

IMG_7682

Þau er tvíteng og jafnvíg á spænsku og íslensku.

IMG_7684

Þessi strákur verður einhverntíman algjör sjarmör.

IMG_7712

Nei þetta er ekki Ásthildur Cesil, og ekki Hanna Sól, ekki einu sinni Evíta Cesil.

IMG_7714

Þetta er nefnilega prinsessan Sólveig Hulda að dansa.

IMG_7721

Knúsirófurnar mínar, vantar bara mömmuna.

IMG_7726

Sigga mín og börnin hennar Sigurjón og Ólöf Dagmar. Við ákváðum að borða saman þetta líka rosalega góða sauðalæri heimareykt og beint frá bónda.  Þeir bændurnir gauka stundum að henni góðgæti, sem er vel þegið.

IMG_7727

Eins og ég segi barnabörnin vaxa manni yfir höfuð, áður en maður getur talið upp að tíu.

IMG_7728

Og þá er það snjórinn, nóg af honum. Ég viðurkenni að ég fór ekki mikið út nema að vera rekinn, meðan snjórinn var svona mikill. Hann hefur sjatnað í hlákunni og er orðin fastur undir fót í dag.

IMG_7729

Það er samt eitthvað notalegt við þetta.

IMG_7730

Já eitthvað kósí.

IMG_7731

Ætti sennilega að fá mér þotu til að komast út hehehe.

IMG_7732

Já og myrkrið er ekki eins svart þegar snjórinn hylur jörð.

IMG_7734

Hvurs er hvað og hvað er hvurs.....

IMG_7735

Ævintýraveröld.

IMG_7737

Og það þarf að moka bílinn upp.

IMG_7738

Það gekk ekki þrautarlaust, en mikið asskoti er þessi litla tík góð í allskonar færð. Jarðarberið kalla börnin mín hana.

IMG_7741

Við vorum á leið í matarboð hjá Dóru systur minni.

IMG_7746

Og þetta var haft meðferðis. LoL

IMG_7753

Bærinn fullur af snjó, en veðrið var ekki búið að ná hámarki.

IMG_7755 

Ósköp notaleg máltíð og góður matur. Við þurftum svo að gista, því veðrið var orðið það vont.

IMG_7757

En það var allt í lagi, því við áttum góða stund saman.

IMG_7762

Morgunin eftir var svo að koma sér heim til yngri systur minnar, þá voru fjallháir skaflar þar, og erfitt að koma mér upp að húsinu. Ég hefði samt aldrei komist heim í kúluna á þessum tíma. Tounge

IMG_7824

Svo kíktu strákarnir mínar frá Noregi við Kristján Logi og Aron Máni, þeir voru hjá pabba sínum yfir jólin, og voru að fara aftur til Noregs.

IMG_7825

Að kveðja.

IMG_7826

Farnir heim.

IMG_7827

En hér er semsagt sauðalærið, svo gott.

IMG_7828

Það þarf að stórauka þetta "beint frá býli", því það er the real thing.

IMG_7841

Dansað upp á borðum hehehe....

IMG_7846

Sætastur. Reyndar bilaði flatskjárinn minn svo nú er ég bara með gamla túpusjónvarpið sem við höfðum sem betur fer ekki fleygt, og svo fór borðtalvan en hún er í ábyrgð. En sem betur fer er ég með hraða snigilsins á þessum árstíma, svo ég er ekkert að ergja mig á svona smámunum.

Eigið góðan dag elskurnar.Heart


Tek undir með Marínó G. Njálssyni og fleirum.

Um það sem birtist á Svipunni um að lánveitandi rukki lántaka fyrir skuld sem hann er þegar búin að selja frá sér, og hefur verið afskrifuð sjá hér: http://www.svipan.is/?p=1533

Nú þurfa bloggarar að skera upp herör og krefjast óháðrar rannsóknar á þessu.  Ef einhver fótur er fyrir þessu þá er þetta jafnvel enn siðlausara en það sem gerðist fyrir hrun.  Því hér eru menn að níðast á skuldurum af tilefnislausu og treysta á að menn reyni ekki að verja sig.

Hversu lágt geta þessir gróðapungar lagst?

Þess vegna skulum við nú hér eftir krefjast þess að fá að sjá frumrit af skuldabréfi áður en við borgum það sem fjármálastofnanir krefja okkur um.  Við vitum ekki hverjir eru svona óheiðarlegir og hverjir ekki, því þarf að hafa varann á við þau öll.

Rannsókn og það strax.


Á ég að trúa því?

Að þetta sé að gerast á vakt vinstri velferðarstjórnarinnar?

„Læknirinn okkar sagði að líklega geti þeir ekki neitað okkur þar sem fordæmi sé fyrir þessu á Íslandi. En þetta er spurning um tíma, hjá mér eru byrjaðar skemmdir í æð í höfði, samskonar skemmdir og drógu móður mína til dauða, bróðir minn er á stanslausri lyfjagjöf við verkjum. Við höfum ekki tíma. Þetta eru dýr lyf en okkur og öðrum lífsnauðsynleg,“ segir Guðmundur að lokum.

Já einmitt, líklega geti þeir ekki neitað bræðrunum um lífsnauðsynleg lyf, af því að fordæmi séu fyrir því á Íslandi.  Ef engin fordæmi hefðu verið ættu þeir þá bara að deyja drottni sínum?

Mér finnst þetta óskaplega sorglegt að heyra.  Og bæn til Velferðarráðherra, taktu þetta sem forgangsmál strax á morgun og settu skerpu í málið svo drengirnir fái viðeigandi lyf. 


mbl.is Ekki fengið lyf við banvænum sjúkdómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að ganga í stjórnmálasamtök.

Það virðist vera mikið fjaðrafok í landinu vegna Kristins H. Gunnarssonar sem hefur ákveðið að ganga til liðs við dögun. 

Það er eins og flokkurinn sé á vonarvöl bara af því að einn maður hefur ákveðið að leggja honum lið.  ég vissi ekki að Kristinn H. væri slíkur afreksmaður, þó honum sé margt til lista lagt. 

Aðdragandi Dögunar er mikið grasrótarstarf sem hefur verið lengi í bígerð.  Starf sem margir hafa lagt hönd á plóg, og stillt saman strengi.  Þar hafa unnið þeir aðilar sem mikið kvað að, á Borgarafundum, Búsáhaldabyltingunni, ýmis grasrótarsamtök svo og Hreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn svo og Borgarahreyfingin.  Allt þetta góða fólk hefur unnið gott starf og unnið upp málefnasamning sem kallast Kjarnastefna.  Sjá Hér:  http://www.xdogun.is/kjarnastefnur/

Einnig eru stjórmálasamtökin með heimasíðu.  http://www.xdogun.is/

Málefnanefndir hafa verið að störfum og eru ennþá. Hér er hægt að skrá sig í þá: http://www.xdogun.is/malefnahopar-2/ 

Einnig hafa verið samin lög fyrir samtökin.

Það er því alveg ljóst að þó fólk sækist eftir að komast í Dögun, þá er regluverkið þannig að það fólk sem þangað vill fara, þarf að laga sig að regluverki framboðsins. "Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði" eru kjörorð framboðsins.  Þar er framkvæmdastjórn, og ýmsar aðrar nefndir og ráð sem framfylgja því að stefnan sé virt, til og með úrskurðarnefnd sem tekur á álitamálum. 

Það getur vel verið að í öðrum stjórnmálasamtökum geti einstaklingur skráð sig inn og tekið sér alsherjarvöld í flokknum.  Þó það eigi ekki við hér.  Enda er enginn komin til með að segja að það sé ætlun Kristins.  Hann einfaldlega skráði sig í stjórnmálasamtök.  Það er meðhöndlað eins og um kjarnorkustríð væri að ræða, stórfrétt.  En reyndar sennilega til að reyna að koma höggi á samtökin, sem er í raun og veru hlægilegt.  Það getur vel verið að Kristinn eigi sér áhangendur, sem vilja að hann bjóði sig fram fyrir Dögun, og það getur vel verið að hann ákveði að gera það og ekkert skrýtið.  En það er kjördæmanefnd sem er að vinna að framboðsmálum, og í gegnum það nálarauga þarf hver og einn að fara. 

Síðan þarf félagsfund til að samþykkja ákvörðun kjördæmanefndarinnar, og í okkar dæmi höfum við rætt um að um póstkosningu verið að ræða um efstu sæti í Norðvestur kjördæmi.  Ég sit í þeirri þriggja manna nefnd sem er í þeirri vinnu. 

Mér hefur alltaf líkað ágætlega við Kristinn H. Gunnarsson, það breytir því ekki að við munum vinna að heilindum í því að finna það fólk sem gefur kost á sér og virðist vænlegt til sigurs.  Það verður ekki gert með því að hlaupa upp til handa og fóta þó einhverjir frægir menn sækist eftir sæti.  Það fer bara í sinn farveg eins og við erum búin að leggja línurnar.   

Það er því alveg út í hróa Hött þessi æsingur og upphlaup fjölmiðla um inngöngu Kristins H. í Dögun, Jón Jónsson gekk líka í flokkinn í gær.  Hann gerði það reyndar án þess að tilkynna BB það eða öðrum fjölmiðlum. 

Jóna Jóns sótti líka um inngöngu, og gerði það af þeirri auðmýkt að vilja vinna samtökunum gagn á sinn hljóðláta hátt. 

Fólk kynnir sér reglur og manifesto þess flokks sem það ætlar sér að ganga inn í.  Og greinilega hefur Kristinn fundið þar eitthvað sem höfðar til hans.  Annars væri hann ekki að bretta upp ermar og óska eftir inngöngu.

Það bannar enginn fólki að skrá sig í stjórnmálaflokka eða stjórnmálasamtök.  Það er hinsvegar bara þannig að það eru allir á sama basis og verða meðhöndlaðir samkvæmt því í Dögun.  Þannig er það bara. 

 

Frá fundi kjördæmanefndar í Norðvestur Kjördæmi í nóvember s.l.


mbl.is Kristinn er genginn í Dögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2023340

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband