Heimkoma og heimsóknir.

Eftir langt og skemmtilegt ferðalag var loksins komin tími til að koma sér heim.  Þar beið undirbúningur jólanna, svo sem eins og að senda jólakort, reyndar búa þau til og prenta, og það sem maður gerir fyrir jól. Því hefur nú fækkað svo sem. 

IMG_7586

Davíð Elías elskar að vera í bílskúrnum og skrúfa hitt og þetta.

Sonurinn sótti okkur út á flugvöll og við byrjuðum á að sækja strákana á leikskólann, og kíktum svo í heimsókn í nýja húsið þeirra í Njarðvíkunum.

IMG_7587

Arnar Milos er meira fyrir svona dund.

En svo var lagt af stað heim. Það var stafalogn í Keflavík og veðrið gott alla leið heim. Og allir vegir færir sem betur fer.

IMG_7588

En fyrst fengum við okkur að borða á Tailenskum matsölustað í Keflavík, við förum þangað oft og fáum okkur önd, sem er alveg frábær. Staðurinn heitir Panda og er í miðbænum.

IMG_7593

Og svo var maður komin heim. Úlfurinn hafði sandað uppgönguleiðina svo amma gæti gengið upp hálan snjóinn. Alltaf jafn hugsunarsamur þessi elska.

IMG_7598

Áður en ég fór út, hafði ég pantað jólaborð fyrir systur mína og okkur Í Edinborg.

IMG_7599

Bæði matur og þjónusta er þar alveg til fyrirmyndar. Hér eru vertarnir að spyrja hvernig smakkist. Það var síldarréttir í forrrétt aðalréttur var svo Grísasteik og hangiket, afar gott, og svo ís á eftir.

IMG_7600

Ég mæli alveg með þessum stað, þeir reka líka gistingu og matsölustað á Núpi í Dýrafirði, og leggja mikið upp úr að kaupa beint frá býli, og vita hvaða hráefni þeir eru með í höndunum. Sem skiptir miklu máli.

IMG_7606

Hér er hún Sædís mín, flott og ljúf.

IMG_7609

Úlfurinn að verða að karlmanni, svona hægt og bítandi.

IMG_7667

Við fengum svo heimsóknir, Skafti minn og Tinna komu í Bröns með börnin, þau komu alla leið frá Noregi til að eyða jólunum hér heima.

IMG_7668

Ég get svarið það að börnin vaxa alveg upp fyrir haus á manni, áður en ég veit af.

IMG_7669

Litla fallega prinsessan mín hún Sólveig Hulda.

IMG_7673

Gott að fá þau í heimsókn.

IMG_7677

Og afi fór með prinsessunni upp í hænsnahús að ná í eggin.

IMG_7678

Það þarf að gefa þeim mat og vatn og taka eggin, það er ótrúlega gaman.

IMG_7680

Rolando kíkti í heimsókn með sín börn, Isabel Lív og Íaac Loga.

IMG_7682

Þau er tvíteng og jafnvíg á spænsku og íslensku.

IMG_7684

Þessi strákur verður einhverntíman algjör sjarmör.

IMG_7712

Nei þetta er ekki Ásthildur Cesil, og ekki Hanna Sól, ekki einu sinni Evíta Cesil.

IMG_7714

Þetta er nefnilega prinsessan Sólveig Hulda að dansa.

IMG_7721

Knúsirófurnar mínar, vantar bara mömmuna.

IMG_7726

Sigga mín og börnin hennar Sigurjón og Ólöf Dagmar. Við ákváðum að borða saman þetta líka rosalega góða sauðalæri heimareykt og beint frá bónda.  Þeir bændurnir gauka stundum að henni góðgæti, sem er vel þegið.

IMG_7727

Eins og ég segi barnabörnin vaxa manni yfir höfuð, áður en maður getur talið upp að tíu.

IMG_7728

Og þá er það snjórinn, nóg af honum. Ég viðurkenni að ég fór ekki mikið út nema að vera rekinn, meðan snjórinn var svona mikill. Hann hefur sjatnað í hlákunni og er orðin fastur undir fót í dag.

IMG_7729

Það er samt eitthvað notalegt við þetta.

IMG_7730

Já eitthvað kósí.

IMG_7731

Ætti sennilega að fá mér þotu til að komast út hehehe.

IMG_7732

Já og myrkrið er ekki eins svart þegar snjórinn hylur jörð.

IMG_7734

Hvurs er hvað og hvað er hvurs.....

IMG_7735

Ævintýraveröld.

IMG_7737

Og það þarf að moka bílinn upp.

IMG_7738

Það gekk ekki þrautarlaust, en mikið asskoti er þessi litla tík góð í allskonar færð. Jarðarberið kalla börnin mín hana.

IMG_7741

Við vorum á leið í matarboð hjá Dóru systur minni.

IMG_7746

Og þetta var haft meðferðis. LoL

IMG_7753

Bærinn fullur af snjó, en veðrið var ekki búið að ná hámarki.

IMG_7755 

Ósköp notaleg máltíð og góður matur. Við þurftum svo að gista, því veðrið var orðið það vont.

IMG_7757

En það var allt í lagi, því við áttum góða stund saman.

IMG_7762

Morgunin eftir var svo að koma sér heim til yngri systur minnar, þá voru fjallháir skaflar þar, og erfitt að koma mér upp að húsinu. Ég hefði samt aldrei komist heim í kúluna á þessum tíma. Tounge

IMG_7824

Svo kíktu strákarnir mínar frá Noregi við Kristján Logi og Aron Máni, þeir voru hjá pabba sínum yfir jólin, og voru að fara aftur til Noregs.

IMG_7825

Að kveðja.

IMG_7826

Farnir heim.

IMG_7827

En hér er semsagt sauðalærið, svo gott.

IMG_7828

Það þarf að stórauka þetta "beint frá býli", því það er the real thing.

IMG_7841

Dansað upp á borðum hehehe....

IMG_7846

Sætastur. Reyndar bilaði flatskjárinn minn svo nú er ég bara með gamla túpusjónvarpið sem við höfðum sem betur fer ekki fleygt, og svo fór borðtalvan en hún er í ábyrgð. En sem betur fer er ég með hraða snigilsins á þessum árstíma, svo ég er ekkert að ergja mig á svona smámunum.

Eigið góðan dag elskurnar.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir myndirnar mín kæra <3 alltaf gaman að skoða þær. Gleðilegt ár

Ragnheiður , 8.1.2013 kl. 19:22

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtilegar myndir eins og alltaf, takk fyrir. Úlfurinn er aldeilis glæsilegur ungur piltur. 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.1.2013 kl. 19:42

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

takk  og !já" Úlfur ber af sem glæsilegur unglingur

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.1.2013 kl. 20:22

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar mínar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2013 kl. 20:25

5 identicon

Flott unga fólkið þitt. Það er nú ekki ónýtt að eiga Úlf að í snjónum til að sanda svo amma komist leiðar sinnar . Það er líka gaman að sjá ykkur systur, gömlu nágrannana mína, og svo er Sævar líka gamall nágranni minn úr Hraunbænum, strákurinn úr næsta stigagangi, svo lengi má finna tengsl .

Fjölskyldan er mesta ríkidæmi okkar, ekkert kemur í stað fjölskyldu og vina

Dísa (IP-tala skráð) 8.1.2013 kl. 20:46

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Satt segir þú Dísa mín, fjölskyldan er mesta ríkidæmið og einnig vinir.  Já systur mínar eru enn á sínum stað þessa elskur.  Gaman að heyra að þið Sævar hafið verið nágrannar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2013 kl. 21:13

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gaman að þessum myndum, kisufjölskyldan líka alltaf skemmtilegt umfjöllunarefni.  Litla kisan mín hún Lilla Vilhelmína Blesadóttir Vestfjörð er stilltasti kettlingur sem ég hef haft, hún kom ekki nálægt jólatrénu eða jólaskrautinu.  Flestir kettlingar sem ég hef fengið hafa prílað í jólatrénu og rænt jólaskrauti af því.  En sú litla er fyrirmynd annarra katta

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.1.2013 kl. 02:26

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er þetta ekki allt draumur í dósum.

Helga Kristjánsdóttir, 9.1.2013 kl. 07:52

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að heyra Jóna mín, bræður hennar voru ekki svo stilltir, voru búnir að plokka niður nokkrar kúlur til að leika sér með. 

Jú Helga mín þetta er draumur í dós.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2013 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2020937

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband