Gæsalíkamsrækt og fótbolti.

Smá fréttir af Pípí. Hann er að verða táningur, hann er kominn í mútur, ég get svarið það, það kemur svona af og til einhver önnur dýpri rödd, og honum bregður sjálfum svo mikið að hann þegir smástund, sem gerist eiginlega aldrei nema á nóttunni LoL  Svo er hann er endalaust að þrífa sig, hann er verri en köttur svei mér þá.  Dúnninn er að fara, en hann er ennþá með sítt að aftan.

IMG_2767

Mamma mig vantar meira vatn!!

IMG_2770

Glæsigæs... ekki satt.

IMG_2774

Nei hann er ekki vængbrotinn, hann er bara að snyrta sig.

IMG_2776

Ég held að dúnninn pirri hann.

IMG_2777

Hann gætir þess að fara ekki of langt í burtu, og ef hann heyrir einhvern hávaða kemur hann hlaupandi til mömmu.

IMG_2778

Já eini staðurinn sem hann nær ekki til er hnakkinn, enda er hann úfinn.

IMG_2780

Hernig snýr hann eiginlega ??

IMG_2783

Svo þarf að bera sig aðeins til með vængina.

IMG_2785

Þetta var tekið núna í hádeginu, þegar við tókum okkur matarpásu, frá því að dúllast við plönturnar upp á lóð.

IMG_2788

Best að tékka á hverjir eru að koma....

Annars var mikið af fólki hér og mikið um að vera, Mýrarboltinn á fullu, og mikið fjör og læti þar, enda veðrið hreint út sagt dásamlegt og svo hlýtt.  +

Svo voru auðvitað undanúrslitinn í bikarkeppninni. Ég hef reyndar ekki áhuga á svoleiðis, en tók samt nokkrar myndir fyrir ykkur.

IMG_2792

Það voru fleiri hundruð bílar allt í kring um svæðið, ég get svarið það.  Og stúkusætinn voru auðvitað í húsunum þarna fyrir ofan.LoL

IMG_2795

Annars hefur ekki verið amalegt að sitja í brekkunni í þessu góða veðri, vantaði ef til vill bara Árna Johnsen, er að hlusta á hann núna, en það er eiginlega ...... jamm... say no more, það er allavega stemning.

IMG_2797

Já svo sannarlega var allt á fullu hér í heilbrigðum íþróttum, og auðvitað smá bjór og svoleiðis líka.

IMG_2799

Ég veit ekki hvort það sést, en bílarnir samma algjörlega inn Skutulsfjarðarbrautina, Miðtúnsbrekkuna og Seljalandsveginn, og svo allir þeir sem sátu í brekkunni.

IMG_2800

Og svo auðvitað leikmennirnir. Smile Var ekki nógu nálægt til að sjá lærin á þeim, sem heilluðu Kolbrúnu Bergþórs hér í denn.

IMG_2801

Svo er nú það.  BÍ Bolungarvík töpuðu, en þeir stóðu sig val sagði þjálfarinn, og það er eflaust rétt hjá honum.  Hann hefur svo sannarlega rifið strákana upp á rassinum og gert úr þeim sanna baráttujaxla.

IMG_2802

Smile

Vona að þið hafið gaman af þessum myndum.  Og ég sendi ykkur góða drauma inn í morgundaginn. Heart


Má bjóða ykkur í smárölt um lóðina mína?

Á þessum fallega degi langar mig til að bjóða ykkur í smá gönguferð um lóðina mína.

En fyrst er það Mýrarboltinn.

IMG_2676

Þetta var algjörlega fullkomin dagur fyrir Mýrarboltann.  Hlýtt smá rigning í smátíma og svo sól.

IMG_2677

Enda er þarna gífurlegt stuð og gaman, ég fór samt ekki niður í skóginn, því þar er algjör örtröð.

IMG_2678

Svo sannarlega er þetta hin besta skemmtun og á bara eftir að aukast og verða meiri þungamiðja.

IMG_2682

Og hér eru enginn vandamál, því menn fá útrás í að sullast í drullunni.  Heart

IMG_2685

Pípí er alveg að verða fullorðin, nema hann talar bara barnamál. Og ekki kann ég að hjálpa honum að tala gæsamál, því ég veit ekki einu sinni hvernig það hljómar.  Ég er því orðin ákveðin í að kenna honum bara að gelta, því hann er að verða ágætis varðhundur.  Smile Ef fólk kemur sem er ekki presenterað af mér, þá sýnir hann allskonar takta til að hrekja það í burtu.  En ef hann sér að ég meðtek fólkið, þá er allt í lagi.

IMG_2687

Þetta er smá göngutúr, hér hef ég lagað uppganginn að kúlunni, og er hæst ánægð með árangurinn.

IMG_2688

Dísarrunnarnir eru óvenjufallegir í ár.

IMG_2689

Gullregnið mitt er að blómstar sínu fegursta.

IMG_2690

Lúpínurnar líka og sporasóleyjarnar.

IMG_2691

Hér eru sporasóleyjar og ljónsmunni.

IMG_2692

Hjartarlindin mín er ekki ávaxin ennþá, en er öll að koma til.

IMG_2693

Og Hrossakastanían er líka á góðu róli.  svo og malusinn og beykið.

IMG_2694

Geitaskeggið stendur alltaf fyrir sínu.

IMG_2695

Risafuran mín, ég náði í fræ af henni úti í BNA af frælista.

IMG_2696

Já þetta er frumskógur.

IMG_2698

Snæsúran er yndislegt blóm, hún ilmar eins og engill.

IMG_2699

Syringa josicea.

IMG_2700

Var fyrst inn í garðskálanum, en setti hana út fyrir um 20 árum, og er nýbyrjuð að blómstra og sýna hvað hún getur verið falleg.

IMG_2701

Þetta gullregn tók ég með mér frá Seljalandsvegi 77, húsið sem við áttum áður, ég man þegar ég plantaði því niður þar fyrir svona 30 árum, seint að kvöldi, Elli var að vinna sem dyravörður í félagsheimilinu í Hnífsdal og ég setti það of djúpt, svo það gerði aldrei neitt, en ég ákvað að flytja það með mér þegar ég flutti árið 1987, og viti menn þetta er í fyrsta sinn sem það blómstrar, og ég er svo stolt af þessari elsku.

IMG_2702

Garðakvistill, ég lít á þessar plöntur sem vini mína, og það er svo gaman að fylgjast með þeim vaxa og dafna.

IMG_2703

josicean mín svo falleg.

IMG_2704

Gráreynir upp af fræi sem ég tók úr gamla kirkjugarðinum í Fossvoginum.

IMG_2705

Svona bara enn eitt rjóðrið.

IMG_2706

Þetta tröll þarf ég að losna við, stórhættuleg planta og komin ansi mikið út um allt.  Er að vinna í að útrýma henni, tröllahvönnin.

IMG_2707

Stóri burkninn. Alltaf jafn fallegur.

IMG_2708

Meyjarrósirnar mínar stórar og flottar.

IMG_2709

Og hér er þessi bleika, hinar eru rauðar. 

IMG_2710

Þær eru flottar þessar drottningar. Og svo risavalmúinn.

IMG_2711

Þetta er nýja tréð mitt, það hefur blómstrað oft og mörgum sinnum meðan hin elskan hefur ekki sýnt neitt fyrr en núna í sumar.

IMG_2712

Drekakvistillinn er ekker síðri en Garðakvistillinn, en skemmtilegra nafn.

IMG_2714

Þessi ösp heitir Birgir eftir bankastjóra sem var hér í Landsbankanum, áhugamaður um gróður, og ég tók græðling af ösp sem er í bankastjóragarðinum.  Glæsitré hann Birgir.

IMG_2715

Stundum eru fjölæringar álíka og runnar, til dæmis geitaskeggið, svo flott og glæsileg planta.

IMG_2716

Myndarlegur hlynur sem ég keypti á sínum tíma í Mörk, sem stórt tré, sem minnkaði ár eftir ár, en svo allt í einu náði hann botninum og nú liggur leiðin bara upp á við hjá Hlyni kóngssyni.

IMG_2717

Blásól og svo lyngrósir sem neita að blómstra, ég þarf sennilega að fara að gefa þeim súran áburð.

IMG_2718

Já ég held að þær þurfi skammt af súrum áburði.  fagurrifs í forgrunni.

IMG_2719

Japanslerki sem ég fékk hjá Halldóru fræmeistara í garðyrkjufélagi Íslands á sínum tíma.

IMG_2720

Furur eru líka flottar.

IMG_2722

Hér er broddfura í góðum gír.

IMG_2723

Eik sem vinkona mín Alma gaf mér í fyrra ætlar að pluma sig úti, það verður gaman að sjá hvernig það gengur.

IMG_2724

Þessar elskur áttu að fara í bæjarbeðin, en það verður ekkert af því, svo þær fara bara niður hjá mér. Smile Bjartar og brosandi í sólinni.

IMG_2725

Risavalmúin glæsilegur að vanda.

IMG_2726

Fyrir utan risafuruna er þetta tré eitt það sem er í mestu uppáhaldi hjá mér.  Dverghvítþinur, sem ég keypti hjá Guðmundi í Núpum fyrir mörgum árum, græðlingur af hliðargrein, þess vegna er það svona í laginu, en það er bara karakter og á hverju ári ber það þessa flottu köngla.

IMG_2727

Dverghvítgreni flott og skemmtilegt.

IMG_2728

Og picea orientalis, planta sem ég hafði mikið fyrir að ná í sem fræ, frá USU, ég fékk tvær plöntur úr sáningunni og gaf Ragnheiði vinkonu minni í gróðrarstöðinni í Borg í Hveragerði aðra.  'Eg týndi svo minni, en hún lét mig hafa þessa plöntu aftur, og nú er hún að komast á legg þessi elska eftir 20 ár eða svo.  En komin fyrir vind.

IMG_2729

Apablóm og hófsóley fylla svo lækinn öðrumegin við húsið mitt. 

IMG_2730

Og börnin mín fóru á Mýrarboltan og komu svona til baka LoL

IMG_2731

Og þetta þykir nú ekki mikið á mælikvarða þátttakenda Mýrarboltans.

IMG_2734

Stundum held ég að ég sé einhverskona lukkudýr bæjarbúa, og mér líka það vel.  Ég fæ allskonar beiðnir um aðstoð, eins og í dag hvort ég gæti sett saman blómavönd fyrir fólk sem var óvænt boðið í afmæli.  Og þetta var nú ekki mikið mál, allt týnt í garðinum mínum. 

IMG_2735

Málaði svo líka kósyhornið okkar.  Nú er það meira kósý en áður Cool

Svo hjálpaði ég vini mínum Stefan að planta út fjölæringum í morgun í sumarhúsið þeirra hjóna, það var gaman líka.

IMG_2736

Pípí er orðin stór, en talar ennþá barnamál, hér komu tveir menn í dag, og þar sem Pípí var að snuddast með mér út á lóð, spurði annar þeirra, er hún með unga einhversstaðar? Nei sagði ég hún er unginn LoL Þá hélt hann að tístið frá henni kæmi frá ungum.  Já ég held að ég bara fari að kenna Pípí að gelta. 

IMG_2737

Í mörg ár hefur verið hér maríerlupar með hreiður, ég var frekar hrædd um þau meðan kettirnir voru hér, en þau eru hér enn og ég hef gaman af að fylgjast með þeim og ungunum þeirra.

IMG_2740

Þetta er ein af vinkonum mínum ensk pelargonía, sem ég hef haldið upp á í nokkur ár, svo falleg og svo gul milljonbells.

IMG_2741+

Flott nemensína líka, sem ég ætla að skoða betur.

IMG_2742

Þessi planta er einmitt það sem geitungar og hunangsflugur elska, þau suða og tuða og elska þessa plöntu, og ég passa vel upp á að hún sé til staðar fyrir þessa vini mína.

IMG_2744

Þetta er nú bara skot út í loftið.

IMG_2745

Eins og ég sagði áðan þá eru dísarrunnarnir að skarta sínu fegursta hér á Ísafirði nákvæmlega núna.

IMG_2746

Úlfarunninn minn flottur, ég er líka með lambarunna, hann blómstraði líka í sumar.

IMG_2747

Hann er eiginlega komin á kaf í gróður, svo ég þarf að taka af honum græðlinga, hér sjást blöð af honum og svo stórglæsilelg fyllt hófsóley.

IMG_2748

Færeyjarifsið mitt.  Svo fallegt og flott.

IMG_2749

Gullregnið yngri plantan hér brosandi og björt.

IMG_2751

Lækurinn fylltur með gróðri.

IMG_2752

Er etta ef til vill Amazon? LoL

IMG_2753

Stafafura sú elsta í garðinum.  Öldungur sem ber að sýna virðingu.

IMG_2754

Tígurliljan mín, ég á líka hvíta.

IMG_2755

Lewisiurnar mínar þær þurfa meira pláss, það munu þær fá í haust, þegar ég fer að taka beðin í gegn.

IMG_2757

Silfurreynir sem hallar sér undan öspum sem angra hann.

IMG_2758

Reynir frá Birni í Grásteinum.

IMG_2759

Jamm þetta er sennilega frumskógur.

IMG_2760

Lúpínurnar eru líka í sínum besta búningi núna.

IMG_2761

Fyllti kobbinn minn frá Herdísi í Fornhaga, minni frábæru gömlu vinkonu blessuð sé minning hennar. 

IMG_2762

Falleg sporasóley.

IMG_2763

Já enn og aftur krókurinn minn, grillhornið nýmálað og fínt.

IMG_2764

Andyrið mitt.

IMG_2765

Og glæsigæsin Pípí varðhundur.

IMG_2766

Og börnin að fá sér í gogginn.

Já plöntur og dýr geta alt eins verið vinir manns eins og mannskepnur.  Það er ef til vill öðruvísi vinskapur, hljóðlátari en allt að einu væntumþykja og löngun til að hlú að og elska.  Sama hvort það er villt dýr eins og Máríerlan, eða gæludýr eins og Pípí eða Brandur og Snúður, eða plöntur sem hafa verið með manni lengi og eru eins og góðir vinir sem manni þykir vænt um og vill ekki missa af.  Það bara einfaldlega myndast tengsl sem ég tel að séu gagnkvæm, það er nú einu sinni þannig.

En ég vona að þið hafið notið ferðalagsins um lóðina mína, þetta er að vísu ekki alveg heildarmynd en svona góður partur af því sem hér er.

Eigið gott kvöld elskurnar. Heart

 

 


Bara svona hitt og þetta, frekar persónulegt.

Ég finn hvernig orkan mín kemur til baka, og hvað mér líður vel að dúllast hérna heima hjá mér og hafa ekki allan bæinn á mínum herðum.  Og það er svo góð tilfinning.  Og ég finn svo vel hvernig ég fyllist framkvæmdagleði og er að koma öllu í stand hér hjá mér.  Núna liggur mér á að koma sumarblómunum fyrir, sem ekki hafa selst, og vinna að yfirvetrun á þeim plöntum sem ég get fjölgað næsta vor.  Og ég er krónískur safnari og hef svo gaman af að safna nýjum plöntum og plöntulitum. Ég fór niður í Húsasmiðju í dag og sá að þeir voru mestmegnis "skrýtið" með þær plöntur sem ég var með hjá mérDevil Tilviljun???? veit ekki. En ég gat ekki annað en brosað.  

IMG_2668-1

Sukini eða hvernig það er skrifað. Austurísku vinir mínir sögðu mér að það væri hægt að borða blómin, þau væru hreinlega steikt á pönnu, og væru góður matur.

IMG_2669-1

Plantan er dálítið frek á pláss í svona góðu umhverfi Smile

IMG_2670-1

Hér má sjá líka runna havairósina mína í blóma.

IMG_2671-1

Ég er búin að vera að bera niður plöntur úr sölunni, til að hafa þær mér til fegurðar í garðskálanum, og Pípí þarf að skipta sér af öllu.  Hann hamast og treður sér og er æstur yfir allir þessari útplöntun, ég þurfti að grípa hann og henda honum út úr einu beðinu, af því að hann bara valtraði yfir allar plönturnar.  Hann er orðin flottur fír, en tala bara barnamál.  Ég er að hugsa hvort ég þurfi að kenna honum að tala.  En ég er ekki klár á hvernig gæsir tjá sig, svo ég er svona að hugsa um að kenna honum bara að gelta.  Hann er hvort sem er orðin fínasti varðhundur.   Ef hann sér fólk með mér, þá er allt í lagi, en eins og tildæmis pósturinn og aðrir sem koma án þess að ég sé hér, þá sýnir hann klærnar og gerir sig breiðan og merkilegan.  Ætti ég ekki bara að kenna honum að segja Voff Voff?Happy

IMG_2672-1

Jamm Elías minn kúlan er orðin ansi blómleg, og að sama skapi frekar tómlegt upp í sölunni Wink

IMG_2673-1

Bóndarósin mín flottust.

IMG_2674-1

Geitaskegg og lúpínur bíða eftir að vera settar á betri stað, þegar þær hafa lokið sér af.

IMG_2675-1

Gullregn skartar sínu fegursta líka. 

Villigarðurinn minn til margra ára er smátt og smátt að taka á sig betri mynd, og það er virkilega gaman að vinna að því að gera hann aðgengilegri og fallegri en áður, núna þegar ég hef svona góðan tíma til að sinna honum.  Og ég er bara svo glöð að hafa tækifæri til að sinna honum og þurfa ekki að hafa áhyggjur af öllum bænum. 

Og í dag kom Stefan, þýskur vinur okkar, hann á sumarbústað í Hnífsdal og á morgun ætla ég að hjálpa honum að gróðursetja blóm í varnargarð sem var gerður þegar nýji vegurinn kom til Bolungarvíkur, til að varna að bílar lentu inn á lóðinni hjá honum, og þau vilja planta blómum í þann vegg. 

Að öðru leiti hefur lífið sinn vanagang hér í kúlunni.  Við erum öll ánægð, nema Elli  minn lenti illa í því og meiddist á annari hendi, Djísús og ég gleymdi að spyrja hvor hendinn það var, hann sneiddi framan af nokkrum fingrum og skar einn frekar illa, en lilliputti slapp. Hvernig get ég verið svona hugsunarlaus að spyrja ekki hvor höndinn þetta var.  Held samt að það hljóti að hafa verið sú vinstri, því við gerum jú mest með þeirri hægri, og sú vinstri er svona aðstoðarhönd ekki satt InLove

Jæja elskurnar, þetta er komið nóg, ég er að fara að slaka á eftir annasaman dag, og er ákveðin í að horfa á Lewis á eftir, það er hvort sem er ekkert sérstakt í sjónvarpinu á föstudögum, sama hvað þú leitar.  Hvað er það annars með föstudaga? Er bara ætlast til að maður sé í partýum, eða að fá sér í glas, eða einhversstaðar úti á skralli?

Eigið annar gott kvöld. Heart


Það er gaman að fá heimsókn.

Jæja þá er aftur orðið tómt í kofanum.  Þau voru fimm börnin á helginni og frameftir vikunni, síðan kom vinkona mín frá Vín með þrjá vini sína með sér alveg einstaklega yndislegt og skemmtilegt fólk, við áttum afar skemmtilegar stundir saman. 

IMG_2626

Alltaf er fatakistan vinsælust hjá krökkunum, hér eru tvær fyrirsætur. LoL

IMG_2627

Ammi namm lærið hennar ömmu.

IMG_2628

Já það var tekið hraustlega til matar síns.

IMG_2630

Svo sóttu þeir gamla klárinn, hann er smá lasinn, það þarf að sauma hann saman, en þau elska hann samt.

IMG_2632

Já og nú skal gefið í....

IMG_2633

Og stelpurnar bökuðu kökur til að hafa með í vinnuna á mánudeginn.  Ég veit ekki en allavega kom það í hlut hennar að baka, en ekki Úlfs.  Samt er hann fullfær um að baka líka.  Er þetta ekki eitthvað svona kynjadæmi?

IMG_2635

Og hér eru austurrísku vinirnir mínir.  Christina, Puto, Dora og Carin. Þau eru að skoða Bók Ölvu, Alva they are reading your book, I gave them your card too. Smile

IMG_2636

They liked the book. 

IMG_2638

Pípi var voða hrifin af að fá félagsskap. 

IMG_2639

Já það er svo gaman að leysa skóreimar hehehe...

IMG_2642

Auðvitað býður maður austurríkismönnum fisk í soðið, hvað annað en nýveidda ýsu.

IMG_2644

Gaman að gefa fólki að borða mat sem þeim finnst rosalega góður.

IMG_2647

Svo var sest út í garðskála og skálað í hvítvíni og rauðvíni.  Eðalvíni frá föður Christine sem er safnari á rauðvín.  Notaleg kvöldstund með skemmtilegu fólki.

IMG_2652

Daginn eftir vildu þau bjóða okkur í Tjörushúsið, sem var auðsótt mál.  Og þau voru eins og allir sem þangað fara hrifinn af matseldinni hans Magga Hauks og Ragnhildar.  Enda eru þau á heimsmælikvarða.

IMG_2656

Pípí og Puto urðu strax bestu mátar. 

IMG_2657

Hann er reyndar alveg að verða fullvaxta, en talar ennþá sitt barnamál, spurning um hvort ég þarf að kenna honum að setja bra braErrm Hann er samt eitthvað að reyna að bera til vængina æfa sig, svo sennilega ætlar hann að reyna við flugið.  Óttast samt að hann sé lofthræddur, því hann þorir ekki ennþá niður tröppurnar, nema ég hjálpi honum. 

IMG_2661

Hann á eftir að sakna félagsskaparins hann Pípí, því hann er mikil partýgæs og finnst gaman að vera með mörgu fólki. 

IMG_2664

Og svo rennur upp þetta óumflýjanlega að kveðja.  Það var búið að kaupa allt sem átti að hafa með heim, harðfiskinn, smjörið, meira að segja lýsi og yrði ekki hissa þó þau keyptu ost líka, Gosa það er eiginlega ekki til svoleiðis ostur í Austurríki.  En sjáið fótabúnaðinn?Íslenskirsokkar og gúmmískór.  Sumt fólk kann að klæða sig eftir ferðalagi og umhverfi.

Once more thank you all for coming, it was so nice to see you all.  And we will propebly meet in Vienna in september. Heart

IMG_2666

Bíllinn hennar Christínu, þetta er ekki bíllinn okkar, og hún er með sérsmíðað hús á hann sem rúmar þau öll fjögur.  Þau voru samt ósköp feginn að koma og sofa inni í kúlunni þessar tvær nætur.  Heart


Ég á bara ekki orð.

Stúlkan lítur betur út "áður" en "eftir" fyrir minn smekk.  Hvaða skilaboðum er verið að koma á framfæri, og hverjir stunda þennan áróður?  er ekki nóg af anorexíusjúklingum meðal ungra kvenna á Íslandi í dag? 

Ég bara á ekki til orð, og ég fer hér með fram á að svona sorpblaðamennska verði lögð niður, áður en verra hlýst af. 


mbl.is Fyrir og eftir myndir af Ágústu Ósk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við verðum aldrei söm og áður, tel ég.

Evrópa og vesturlönd í heild eru í uppnámi yfir því hryllilega sem gerðist í Noregi.  Ég get alveg séð fyrir mér að þessi atburður hafi jafnvel ennþá meiri áhrif en 911 á sínum tíma.  Það er vegna þess að í þessu dæmi er maðurinn "einn af okkur". Þá er ég að meina að menn búast alltaf við öllu illu af múslimum, oftast að ósekju. En allt í einu rennur sannleikurinn upp fyrir fólki, það leynast hryðjuverkamenn allstaðar.  Hingað til hafa menn viljað halda því fram að hryðjuverkamenn séu dökkir á hörund og frá arabalöndunum.  Þó þeir séu fæddir og uppaldir í vestrænum löndum.  Það er jafnvel þannig að þeir eru sakfelldir vegna þess hvaðan þeir eru upprunnir.  Eins og árásirnar í neðanjarðarlestunum í London, þar sem næsta öruggt er að sökinni var klínt á menn sem ekkert höfðu gert af sér en voru af réttum lit og burði og að því að mér er sagt búið að fylgjast með af lögreglu til að sakfella, vegna þess að það þurfti eitthvað að gerast til að hræða fólk.  Og þeir gerðir að glæpamönnum af yfirvöldum.

Nú allt í einu standa menn frammi fyrir því að þessi maður er hvorki dökkur á hörund eða múslimi, heldur norðmaður, alinn upp í lýðræðisríki og eflaust við gott uppeldi... eða þannig. 571823

Las einhversstaðar að faðir hans hefði tekið þetta afar nærri sér, og ég hugsa að móðirin sé sömu skoðunar.  Það hlýtur að vera hræðileg upplifun að komast að því að þau hafa alið upp hrottafenginn siðleysingja sem vílar ekki fyrir sér að drepa unglinga og alla sem hann kom í nálægð við, og kunna ekki einu sinni að skammast sín; þetta varð að gera, er haft eftir honum. 

Fólk hér er að rífast um hvort hann var hægri eða vinstri öfgamaður, nasisti eða what ever.  Málið er að hann var manneskja eins og við hin, sem ákvað eftir umgengni við samskonar öfgamenn eins og hann er sjálfur að hann yrði að "hreinsa til"  En hann er bara ekki einn í þessu eftir því sem upplýsingar liggja fyrir um, ef þetta reynist rétt að þarna sé á ferð teymi sem hafi svona hugmyndafræði.  Og þá er að spyrja; hvað gera ráðamenn heimsins?  Þeir eru fljótir að dæma hryðjuverkamenn Islam og taka á slíku.  Munu þeir gera slíkt hið sama um þessa vitfyrringa? Eða verður fundinn afsökun.  Það er nefnilega ekki sama hver er, hræsnin er slík í okkar samfélögum því miður.

Það er ekki hægt að ímynda sér hvað gekk þarna á, og sérstaklega af hverju lögreglan var svona sein að taka við sér, að það voru almennir borgarar sem flýttu sér á vettvang til að bjarga fólki eins og þeir gátu. En langt á annan klukkutíma tók fyrir lögreglu að stoppa ódæðið.  Hvar var 112, eða hafa norðmenn ekkert slíkt neyðarkerfi? Allt þetta fólk hlýtur að hafa haft gemsa og getað hringt í neyðarlínuna.  Þetta hlýtur að verða þungamiðjan í rannsókninni þegar moldviðrinu lýkur. 

En ég sé á umræðunni hér að fólk er skekið, ekki bara vegna þessa hryllilega ódæðis, heldur fyrst og fremst vegna þess að þarna er um að ræða atburð sem er við bæjardyrnar hjá okkur.  Og umræðan er farin að snúast um hvenær gerist svona atburður hér hjá okkur. Fólk er farið að skoða allskonar blogg og skrif í því ljósi að nú geti þessi eða hinn allt í einu tekið sig til og byrjað að drepa fólk. Tortryggni og öfgaskrif á alla kanta fara sem heitur vindur um spjall og bloggheima. 

Málið er að þetta hefur sáralítið með hægri eða vinstri öfar að ræða, heldur upplifun einstaklinga um hvernig málin hafa þróast.  Í þessu tilfelli er um að ræða áhyggjur af eftirgefni í innflytjendamálum.  og ótta um að múslimar ætli að taka yfir hinn vestræna heim.  En þessi maður ræðst samt ekki á múslima, heldur telur hann sig vera að ráðast að rót vandans, þeim sem hafa stefnuna á þessa tilslökun við önnur trúarbrögð og siði. 

Þetta er farið að sjást hér líka, því ég man ekki betur en í ákveðnum skólum á höfðuborgarsvæðinu sé hætt að hafa svínakjöt á matseðlinum.  Þarna held ég að við þurfum að staldra aðeins við. 

Þó ég sé manneskja sem er afar umburðarlynd gagnvart innflytjendum, og hef sjálf tekið að mér að hjálpa fólki að flytja hingað frá öðrum löndum, þá segi ég að þegar fólk flytur til annara landa, þá á maður að tileinka sér þá siði og reglur sem gilda á nýja staðnum.  Það er ekki hægt að koma og ætla sér að vera áfram eins og allt var í gamla landinu. Auðvitað eiga menn að fá að stunda sína trú, og hafa sína siði, innan síns heimilis.  En ekki að heimta að samfélagið lagi sig að þeirra siðum.  Eins og að banna að svínakjöt sé á boðstólum í mötuneytum skólanna.  Mér finnst það rétt að konur frá austurlöndum fái að hafa sínar slæður í friði, og ekkert meira um það að segja.  En ég skil líka þegar yfirvöld í vestrænum ríkjum banna búrkur og slíkan búnað.  Of mikið umburðarlyndi skapar vandamál heima fyrir.  Það er bara staðreynd sem ráðamenn þurfa að taka tillit til.  Og ef Stoltenberg ætlar að auka enn á eftirgjöf fyrir innflytendur eins og hann boðaði, þá hygg ég að hann sé að kveikja bál sem mun loga skært.  Þó er ég ekki að segja að hann eigi að fara á hinn veginn.  Við erum öll á þessari jörð og eigum eins og hægt er að reyna að vinna saman.  En það þarf þá líka að vera á báða bóga. 

Ég er með sársauka í hjartanu eftir þennan atburð og held að við verðum aldrei söm, að hugsa sér að nokkur maður geti fengið af sér að fara og drepa saklaust fólk, unglinga, skjóta og skjóta meðan eitthvað hreyfist er svo brenglað að það er erfitt að ímynda sér hvað gerist í kollinum á slíkum manni. Hann virðist þó hafa þyrmt þeim sem komust í augnkontakt við hann, þannig að ekki er hann algjörlega samviskulaus.

Ég vorkenni foreldrum hans og fjölskyldu.  Vorkenni konunni hans og ef hann á börn, því þetta mun líklega bitna alvarlega á þeim.  En  ef þetta hefðu verið múslimar þá hefðu upphafist "réttlætingarmorð" á innflytjendum því menn með skoðanir eins og þessi Anders hefðu ugglaust talið það "heiðursmorð" að "hefna" fyrir morðin.  Engum dettur í hug að viðhafa slíkt núna af því að maðurinn var óvart hvítur norðmaður.  Svona er nú hugsunarhátturinn og "réttlætið"hjá okkur. 

Ég hef oft hugsað um það hvenær eitthvað slíkt myndi gerast hér.  Það gæti allt eins verið, þegar fólk er búið að missa allt sitt og horfir upp á allt það ranglæti sem er hér, þar sem ríka fólkið sleppur endalaust meðan verið er að murka lífið úr þeim sem hafa barist fyrir sínu og tapað.  Það gæti allt eins gerst og þá er voðinn vís.  Þetta held ég að sé líka ástæðan fyrir uppnámi landsmanna við þessa hryllilegu uppákomu.  Því allt í einu gerir fólk sér grein fyrir hve stutt er í villimennskuna í okkur, hvaða lit sem við berum hvaða stöðu sem við erum í og hversu "þróuð" við eigum að vera. 

Ég held að þessi atburður eigi eftir að marka þau spor í hinum vestræna heimi, sem hafi meiri breytingar í för með sér en 911.  segi það enn og aftur.  Því það var talið hryðjuverkaárás Alqaita sem ég er svo sem ekkert sannfærð um.  En allavega var það miklu fjær okkur en nákvæmlega þessi atburður í Noregi.  

Það á ekki eftir að leggja þyngri byrðir á flugfarþega eða herða eftirlit við ferðamenn.  En svo sannarlega munu yfirvöld hins vestræna heims stíga varlegar til jarðar og hugsa sinn gang betur.  Og almenningur sem allt í einu vaknaði upp við vondan draum, verður meðvitaðri um að við getum átt óvini sem eru bara nágrannar eða bara næsti maður út í bæ.  Rétt eins og margar aðrar þjóðir hafa þurft að upplifa, svona var þetta í Króatíu og Serbíu, þegar Kosovodeilan stóð sem hæst.  Fólk sem þekktist og voru nágrannar urðu allt í einu hatursóvinir, og fólk sem var í blönduðum hjónaböndum fékk nokkra klukkutíma til að koma sér burt, áður en hermenn komu og hreinlega drápu það. 

Maðurinn er villidýr, við teljum okkur siðmenntuð og æðri dýrunum.  En ég get alveg fullyrt að margir mennskir eru miklu neðar í þróunninni en dýr merkurinnar.  Í raun og veru ætti jörðin að losa sig við þessa plágu sem mannskepnan er.  Því hún er alltof oft allstaðar til óþurftar.  Það er ef til vill það sem við sjáum byrjunina á núna, með öllum þessum jarðskjálftum, eldgosum og skriðuföllum og náttúruhamförum.  Kannski er jörðin bara að losa sig við versta sníkjudýrið. 

En eitt er víst við verðum aldrei söm eftir þennan atburð.  Hvar sem við erum, og þar sem við höfum talið okkur örugg, rétt eins og fólkið á Úteyju. 

571829

Þessari byssu gæti allt eins verið beint að mér eða þér, óþægileg tilfinning ekki satt?


mbl.is Ætlaði að sprengja fleiri hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drusluganga á Ísafirði og sjóstökk og sund.

Þessi dagur var yndislegur, bæði hvað varðar veður og svo bara í sjálfu sér. Ég var í algjöru letikasti og sat mestmegnis fyrir utan húsið mitt og naut veðursins og þess sem í kring um um er.

Það er ágætt svona inn á milli að leyfa sér að vera löt og gera nákvæmlega ekkert.  En ég mætti samt til að taka nokkrar myndir af druslugöngunni.  IMG_2427

Þetta hús (bleika) byggðum við Elli á sínum tíma.  Það var gott hús og ég setti skjal inn í grunninn, þar sem stóð að  íbúar þess væru blessaðir.

IMG_2428

En hér erum við komin niður á sjúkrahústún, og fólk farið að safnast saman fyrir gönguna.

IMG_2429

Fólk á öllum aldri, öllum stærðum og gerðum, en ákveðið í að ganga þessa göngu.

IMG_2431

Stubbarnir fóru með, og hér eru þeir í sérstöku ljósi LoL

IMG_2434

Forsvarsmenn göngunnar að leggja lokahönd á gönguna.

IMG_2435

Og fólk hélt áfram að streyma að, það átti að byrja hér við gamla sjúkrahúsið, fara að kirkjunni og ræða það um biskupsmálin, það var að vísu ekki gert vegna þess að það var verið að jarðsetja gamla kempu hann Sigurð Sveinsson frá Góustöðum blessuð sé minning þess mæta manns. Þess í stað var ræðan haldinn á sjúkrahústúninu, svo var gengið niður að hérðaðsdómi og þar var haldin tala, og svo lögreglustöðin og endað á Silfurtorgi.  Ég er stolt af ykkur stelpur og þið sem tókuð þátt.

IMG_2436

Aðeins að skerpa á ræðunum.

IMG_2437

Það var nú ekki amalegt veðrið heldur.  Sólstafakonur voru þarna afar sýnilegar.

IMG_2438

Ég held að svona uppákoma hljóti að vekja menn til umhugsunar um hversu alvarlegir glæpir nauðganir eru.

IMG_2443

Svo var gengið af stað.  Það báru margir spjöld, sem fólk hafði búið til daginn áður í Stúdíói Dan.

IMG_2446

Flott skrúðganga.

IMG_2448

Spjöldin borin.

IMG_2450

Heart

IMG_2453

IMG_2455

Já þetta er sannarlega gott og þarft mál.

IMG_2457

Kúlubörnin að fá sér að borða, við höfðum pasta í matinn og börnin gerðu því góð skil. Og Daníel kominn í hópinn.

IMG_2459

Eftir matinn vildu þau fara að hoppa í sjóinn, en það er mikið stundað af unglingum hér á Ísafirði.

En þar sem sum þeirra voru svo ung, og önnur sem ekki máttu hoppa nema einhver fullorðin væri með þeim, ákvað ég að fara með þau og leyfa þeim að leika sér aðeins í góða veðrinu.

IMG_2461

Það var töluvert flaggað til samúðar norðmönnum, enda rík ástæða til.

IMG_2462

Það er töluvert um skútur í höfninni og á Pollinum, enda mikil skútuhefð hér og gert út á slík áhugamál af áhugasömum strákum hér sem stunda skútusiglingar.

IMG_2466

Við erum að fikra okkur nær höfninni.

IMG_2467

Venjulega er ég löt að fara eitthvað svona eftir kvöldmat, en ég stóðst ekki mátið  í þetta sinn og sé ekki eftir því.

IMG_2470

Sæfari siglingaklúbburinn hefur svo sannarlega staðið sig vel í að vekja áhuga krakkanna á sjónum, kajakróðri og allskonar sjósporti, þeir eiga heiður skilinn fyrir það.  Svo er líka hægt fyrir meðlimi að fá lánaða neoprangalla og björgunarvesti sem eru nauðsynleg fyrir þau yngri til að vera í við að stökkva í sjóinn.  Úlfur sem hefur verið á námskeiðum bar ábyrgðina og var afar ábyrgðarfullur um að öllum slíkum reglum væri fylgt.

IMG_2474

Þá er að drífa sig að stökkva.  Fyrsta stökkið er erfiðast, eftir það sýnist mér að það sé bara gaman.

IMG_2477

Við gömlu húsin í Neðsta Kaupstað var líka flaggað fyrir norðmönnum.

IMG_2485

Úlfur búin að fara fyrstu húrruna, Alejandra að búa sig undir fyrsta stökkið.

IMG_2487

Úlfur stökktu með mér bað hún og ekkert sjálfsagðara.  Smile

IMG_2488

Og áfram niður...

IMG_2490

Og Bomms....

IMG_2492

Flottur bátur.

IMG_2493

Og þá er Daníel búinn að ýta frá....

IMG_2494

Búmms á leiðinni niður.

IMG_2496

Alejandra í loftinu...

IMG_2497

Og bomsaradaysi...

IMG_2498

Ég held að þetta sé mesta kikkið, einmitt að vera frjáls og svífa í lausu lofti.

IMG_2499

Sama stökk aðeins neðar.

IMG_2500

Daníel, þetta er örugglega rosalega gaman, ég held að ég hafi skemmt mér jafn vel og börnin.

IMG_2501

Aron er bara átta ára en samt duglegur að stökkva frá stiganum.

IMG_2502

Kristján ætlaði aldrei að þora og það fór í taugarnar á honum, hann gerði margar tilraunir.

IMG_2504

Hahahaha..

IMG_2506

Já þetta var rosagaman.

IMG_2509

Ég skal sagði Kristján en guggnaði aftur, svona ég veit að þú getur þetta sagði Úlfur.

IMG_2511

Ekkert smá flott stökk.

IMG_2518

Svo var tekið tilhlaup og ....

IMG_2519

Búmmms

IMG_2520

Cool

IMG_2524

Aron glaðbeittur.

IMG_2526

Enn og aftur.

IMG_2527

Lending verður brátt..

IMG_2528

OJamm

IMG_2536

Hvað er meira sakleysi en einmitt svona leikir, sem þó reyna á hugrekki hvers og eins, og allir verða að takast á við sjálfan sig. 

IMG_2544

Það eru margir krakkar sem stunda svona sjóstökk hér.

IMG_2546

Enda bíður aðstaðan upp á þetta og svo auðvitað eldra fólkið sem er með námskeið og kennir þeim að njóta þess að vera til.

IMG_2547

Búúúmmms!!!

IMG_2549

Jæja Kristján þá er komið að því að þú verður að stökkva.

IMG_2551

Nú á að reyna snúning..

IMG_2552

Ójá það er ekki málið..

IMG_2555

Nú förum við í smá leik sagði Úlfur, þið látið sem þið séuð að sparka mér ofan í.

IMG_2557

Já ekki málið...

IMG_2558

Úbbbs!

IMG_2559

Farinn niður.

IMG_2562

Þetta fer nú að vera ansi gott krakkar mínir.

IMG_2563

En ef þið leiðið mig sagði Kristján þá get ég hoppað.

IMG_2566

Allt í lagi.. og þar með hafði Kristján sigrast á sjálfum sér.

IMG_2567

Já það er það besta.

IMG_2571

Hetjur, vantar bara eina þann yngsta, hann var að stökkva.

IMG_2573

Skólabróðir Úlfs og afar flinkur trommari, sat og horfði á. Það er skötuselur hérna niðri sagði hann og benti..

IMG_2574

Og þá er bara eftir að ná þeim uppúr og heim.

IMG_2576

Og stökkva svo.

IMG_2578

Dálítið hreyfð en samt skemmtileg.

IMG_2581

Og svo að synda.

IMG_2583

Heart

IMG_2587

Dragðu mig upp.

IMG_2591

Já þau skemmtu sér prýðilega.

IMG_2592

Heart

IMG_2595

Klifurdýrið Kristján.

IMG_2598

Á sjó!!!

IMG_2599

Eða Í sjó...

IMG_2600

Nei á sjó.LoL

IMG_2604

Og nú var orðið erfitt að koma þeim uppúr.

IMG_2605

Það var nefnilega svo gaman.

IMG_2608

Heilbrigð yndisleg saklaus börn.

IMG_2610

Þessum tveim var orðið dálítið kalt svo það var ekkert annað að gera en drífa þá heim.

IMG_2611

Litla Hafmeyjan.

IMG_2613

Marar í hálfu kafi.

IMG_2614

Tilbúin að synda burtu.

IMG_2617

Svona nú krakkar tími til að fara uppúr.

IMG_2624

Rákumst á þessar tvær á leiðinni heim, litlu systurnar hans Daníels. Heart

En svona var nú dagurinn minn, ég vona að ykkur leiðist ekki myndasýningin.  En ég skemmti mér konunglega ekkert síður en krakkarnir.

En nú er komin tími á að leggja sig.  Ég býð ykkur öllum góðrar nætur. Heart


Samúðarkveðjur til norðmanna og svo um daginn og veginn.

Ég vil byrja á að senda norðmönnum mínar innilegustu samúðarkveðjur, þetta er hræðilegra en orðum taki.  Og fjölskyldan mín þarna rétt hjá, það hefur verið algjör tilviljun hverjir áttu leið þarna framhjá.  Heart 

 

Það er annars  lítið af mér að frétta, ég er að hamast við að koma plöntunum mínum í betra horf, eftir margra ára vanhirðu.  Ég lét sem sagt bæjarbeðin alltaf ganga fyrir, svo var of seint að gera eitthvað hjá sjálfri mér. En það er gaman að takast á við þessa mikla verkefni.   Svo koma margir og fá að skoða, garðinn, það er gaman að fá afar jákvæð viðbrögð fólks.  Flestir nefna; ævintýragarður, eða: eins og að vera erlendis.  Cool

Við dundum okkur svo bara á milli krakkarnir og ég. 

IMG_2404

Eins og veðrið er búið að vera núna lengi hér, yndislegt, þá er mannlífið mikið í bænum, og afgreiðslufólkið getur setir úti í sólinni milli þess sem það afgreiðir viðskiptavini.  Þetta er hún Sigríður Ásgeirsdóttir.

IMG_2405

Hér sjáið þið hvernig flugfjaðrirnar eru að myndast á Pípí, hve sterklega þær eru, enda er þeim ætlað að halda honum á lofti yfir hafið til nýrra landa.

IMG_2407

Hann er algjört krútt, búin að missa mesta dúninn, mér sýnist hann reita hann af og éta hann.  Svo er hann komin með flösu, gæti verið út af því að hann er ekki að synda neitt, bara landdýr.

Annars er ég búin með morgunverkin.  Að hleypa Pípí út í garð smúla garðskálann, huga að hænunum, þær sluppu út í gær.  Ein svarta stóra hænan var búin að biðja um að fá að fara út í nokkra daga, ég vissi að hana langaði út, svo held ég að einhver álfur hafi ákveðið að hleypa þeim út, því allt í einu var búið að opna innnganginn inn í gerðið þeirra, ég veit að ég var þar sjálf síðust, að gefa þeim og ég veit að ég lokaði og það var enginn þarna nema ég og strákur sem hefur verið að vinna með mér. Ég heyrði allt í einu að ein hænan var farin að gala eins og hani.  Ég sagði við drenginn, þetta er hæna sem er að gala.  Nei sagði hann það getur ekki verið. Jú sagði ég, það er enginn hani í hópnum.  Þetta var rosalega fyndið.  LoL Rétt seinna voru þær komnar út.  Eg lofaði þeim að spóka sig í garðinum þann daginn, en seinnipartinn voru þær allar komnar inn í gerðið nema ein, svo ég varð að loka þær inn í kofanum og hafa gerðið opið.  Hún var svo komin inn í morgun og búin að verpa.  Svo þurfti að gefa þeim vatn, en nú er allt komið í sinn gang aftur með þessar elskur.  Já og svo þurfti að gefa fiskunum auðvitað.

IMG_2410

Tveir litlir ömmustubbar eru hjá mér núna þeir verða yfir þessa helgi.  Þeir eru kátir og skemmtilegir strákar Kristján Logi og Aron Máni, komnir heim frá Noregsi til að heimsækja pabba sinn og okkur hin.

IMG_2411

Þeir dunda sér við ýmislegt þessir kappar. Heart

IMG_2412

Pípí komin út í grasið eftir nóttina. 

IMG_2414

Hann er að verða mesta myndargæs.

IMG_2416

Og fallegur, hér eru líka máríerluhjón með tvo unga, þær hafa verið hér í mörg ár, ég óttaðist alltaf að þær lentu í kattarkjöftum en þær sluppu sem betur fer, og nú er heimilið kattarlaust, þó ég sakni þeirra Brands og Snúðs, þá er fuglalífið dásamlegt, hér er líka mikið af auðnutittlingum sem ég hef lítið séð áður og svo sá ég í gær einn pínulítinn fugl sem var röndóttur, svakalega fallegur,  hér hefur líka verið í mörg á einhver smáfugl sem hefur verið allt árið hér í einu trénu.

IMG_2421

Pípí er að verða stór, bráðum hættir hann sennilega að pípa og fer að segja bra bra LoL

IMG_2424

Aron Máni.

IMG_2425

Og þeir báðir saman og ég með myndavélina.

IMG_2426

Þetta er nú svona bara smáóður til lífsins, yndislegs dags og svo auðvitað druslugöngu. Ég ætla að reyna að komast og taka nokkrar myndir, en ég er upptekinn í sölunni einmitt á þeim tíma sem gangan fer fram. 'Afram stúlkur, ég er með ykkur í huganum, og ætla að reyna að koma og taka myndir.

IMG_1863

Svona til gamans er hér mynd af honum þegar hann var nýkomin í kúluna.

Eigið góðan dag elskurnar. Heart


Aðgerðir vegna hvalveiða að undirlagi hvers?????

Sko fyrir mér eru þetta svona samleðeverker.  Össur fer til Gasa og talar mikið um að Ísland muni styðja frálsa Palestínu, sem er í sjálfur sér gott mál.  En Ísraelsmenn verða bálreiðir og hóta aðgerðum.  Og hverjir skyldu nú ráða mestu í BNA? Og hvað ætli þeir hugsi nú með sér að komi sér verst fyrir Íslendinga?

Já einmitt, ég tel að þessar svokölluðu refsiaðgerðir séu runnar undan rifjum Ísraela.  Þarna ætla þeir að ná sér niður á okkur.  En ég held að þeim verði ekki kápan úr því klæðinu, því eins og bæði Össur og Jón Bjarnason hafa bent á þá erum við ekki að brjóta nein alþjóðalög.  Þó bandaríkjamenn haldi að hvalir séu næstum því menn, þó búið sé að kanna að þeir hafa gullfiskaminni, þá gildir það bara ekki allstaðar.   Og af hverju í ósköpunum ætla þeir þá bara að refsa íslendingum en ekki Japönum? Meikar engan sens.  Og nóta bene Bandaríkjamenn eru mestu hvaladráparar heims, ef ég man rétt.  Fyrir utan smáhveli sem þeir drepa í netum og öðru slíku.

Nei ég held að við eigum bara að halda okkar striki og sýna þeim að þeir eru óvart ekki heimslögga, þó þeir vilji vera það, og þó ísraelar liggi á þeim að framkvæma þessa vitleysu, þá sýnir það bara enn og einu sinni hverslags stjórn er þarna mannfyrirlitning og frekja að drepa þessa ráðamenn í Ísrael. 


mbl.is Aðgerðir vegna hvalveiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísafjörður, Pípí og blóm.

Enn einn góður dagur á Ísafirði.  Svona eins og venjulega um þennan tíma.

IMG_2385

Togararnir liggja letilega við höfnina, og allt er kyrrt og rótt.

IMG_2386

Ísafjörður í tvívídd, reyndar svona flesta morgna áður en sólin kemur upp.

IMG_2387

Smile

IMG_2390

Pípí er búin að finna annan gæsarunga til að spjalla viðSmile Og hann er rosaánægður með félagsskapinn.

IMG_2391

Ég týndi honum í gær, hann var með mér upp á lóð eins og venjulega, en ég þurfti að bregða mér frá til að sinna viðskiptavinum og þegar ég kom aftur var hann horfinn, ég leitaði að honum og uppgötvaði allt í einu hve ég saknaði pípsins og ungans.  Úlfur fór svo að leita og fann hann og kom með hann reyndar bálreiðan, því hann hafði hreiðrað um sig inn í runnum upp á lóð. LoL

IMG_2393

Nykurrósirnar mínar flottar.

IMG_2394

Garðskálin í blóma.

IMG_2395

Nektarínurnar að vaxa.

IMG_2396

Blómin óvenjufín á þessum tíma, venjulega illafarin af hitanum, en það er einmitt vegna Pípí að þau eru svona fín, því ég þarf að smúla skálann daglega og úða þá líka yfir blómin, og svo auðvitað að ég er sjálf meira heima og hef meiri tíma fyrir dýr og blóm.

IMG_2399

Nelly moser og Villa De Lyon og gladiolan mín.

IMG_2400

Keypti þessar út í Austurríki í vor, þær eru mjög fallega.

En þetta var bara svona smákveðja frá mér, eigið góðan dag elskurnar. Heart 

 


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2011
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband