Drusluganga á Ísafirði og sjóstökk og sund.

Þessi dagur var yndislegur, bæði hvað varðar veður og svo bara í sjálfu sér. Ég var í algjöru letikasti og sat mestmegnis fyrir utan húsið mitt og naut veðursins og þess sem í kring um um er.

Það er ágætt svona inn á milli að leyfa sér að vera löt og gera nákvæmlega ekkert.  En ég mætti samt til að taka nokkrar myndir af druslugöngunni.  IMG_2427

Þetta hús (bleika) byggðum við Elli á sínum tíma.  Það var gott hús og ég setti skjal inn í grunninn, þar sem stóð að  íbúar þess væru blessaðir.

IMG_2428

En hér erum við komin niður á sjúkrahústún, og fólk farið að safnast saman fyrir gönguna.

IMG_2429

Fólk á öllum aldri, öllum stærðum og gerðum, en ákveðið í að ganga þessa göngu.

IMG_2431

Stubbarnir fóru með, og hér eru þeir í sérstöku ljósi LoL

IMG_2434

Forsvarsmenn göngunnar að leggja lokahönd á gönguna.

IMG_2435

Og fólk hélt áfram að streyma að, það átti að byrja hér við gamla sjúkrahúsið, fara að kirkjunni og ræða það um biskupsmálin, það var að vísu ekki gert vegna þess að það var verið að jarðsetja gamla kempu hann Sigurð Sveinsson frá Góustöðum blessuð sé minning þess mæta manns. Þess í stað var ræðan haldinn á sjúkrahústúninu, svo var gengið niður að hérðaðsdómi og þar var haldin tala, og svo lögreglustöðin og endað á Silfurtorgi.  Ég er stolt af ykkur stelpur og þið sem tókuð þátt.

IMG_2436

Aðeins að skerpa á ræðunum.

IMG_2437

Það var nú ekki amalegt veðrið heldur.  Sólstafakonur voru þarna afar sýnilegar.

IMG_2438

Ég held að svona uppákoma hljóti að vekja menn til umhugsunar um hversu alvarlegir glæpir nauðganir eru.

IMG_2443

Svo var gengið af stað.  Það báru margir spjöld, sem fólk hafði búið til daginn áður í Stúdíói Dan.

IMG_2446

Flott skrúðganga.

IMG_2448

Spjöldin borin.

IMG_2450

Heart

IMG_2453

IMG_2455

Já þetta er sannarlega gott og þarft mál.

IMG_2457

Kúlubörnin að fá sér að borða, við höfðum pasta í matinn og börnin gerðu því góð skil. Og Daníel kominn í hópinn.

IMG_2459

Eftir matinn vildu þau fara að hoppa í sjóinn, en það er mikið stundað af unglingum hér á Ísafirði.

En þar sem sum þeirra voru svo ung, og önnur sem ekki máttu hoppa nema einhver fullorðin væri með þeim, ákvað ég að fara með þau og leyfa þeim að leika sér aðeins í góða veðrinu.

IMG_2461

Það var töluvert flaggað til samúðar norðmönnum, enda rík ástæða til.

IMG_2462

Það er töluvert um skútur í höfninni og á Pollinum, enda mikil skútuhefð hér og gert út á slík áhugamál af áhugasömum strákum hér sem stunda skútusiglingar.

IMG_2466

Við erum að fikra okkur nær höfninni.

IMG_2467

Venjulega er ég löt að fara eitthvað svona eftir kvöldmat, en ég stóðst ekki mátið  í þetta sinn og sé ekki eftir því.

IMG_2470

Sæfari siglingaklúbburinn hefur svo sannarlega staðið sig vel í að vekja áhuga krakkanna á sjónum, kajakróðri og allskonar sjósporti, þeir eiga heiður skilinn fyrir það.  Svo er líka hægt fyrir meðlimi að fá lánaða neoprangalla og björgunarvesti sem eru nauðsynleg fyrir þau yngri til að vera í við að stökkva í sjóinn.  Úlfur sem hefur verið á námskeiðum bar ábyrgðina og var afar ábyrgðarfullur um að öllum slíkum reglum væri fylgt.

IMG_2474

Þá er að drífa sig að stökkva.  Fyrsta stökkið er erfiðast, eftir það sýnist mér að það sé bara gaman.

IMG_2477

Við gömlu húsin í Neðsta Kaupstað var líka flaggað fyrir norðmönnum.

IMG_2485

Úlfur búin að fara fyrstu húrruna, Alejandra að búa sig undir fyrsta stökkið.

IMG_2487

Úlfur stökktu með mér bað hún og ekkert sjálfsagðara.  Smile

IMG_2488

Og áfram niður...

IMG_2490

Og Bomms....

IMG_2492

Flottur bátur.

IMG_2493

Og þá er Daníel búinn að ýta frá....

IMG_2494

Búmms á leiðinni niður.

IMG_2496

Alejandra í loftinu...

IMG_2497

Og bomsaradaysi...

IMG_2498

Ég held að þetta sé mesta kikkið, einmitt að vera frjáls og svífa í lausu lofti.

IMG_2499

Sama stökk aðeins neðar.

IMG_2500

Daníel, þetta er örugglega rosalega gaman, ég held að ég hafi skemmt mér jafn vel og börnin.

IMG_2501

Aron er bara átta ára en samt duglegur að stökkva frá stiganum.

IMG_2502

Kristján ætlaði aldrei að þora og það fór í taugarnar á honum, hann gerði margar tilraunir.

IMG_2504

Hahahaha..

IMG_2506

Já þetta var rosagaman.

IMG_2509

Ég skal sagði Kristján en guggnaði aftur, svona ég veit að þú getur þetta sagði Úlfur.

IMG_2511

Ekkert smá flott stökk.

IMG_2518

Svo var tekið tilhlaup og ....

IMG_2519

Búmmms

IMG_2520

Cool

IMG_2524

Aron glaðbeittur.

IMG_2526

Enn og aftur.

IMG_2527

Lending verður brátt..

IMG_2528

OJamm

IMG_2536

Hvað er meira sakleysi en einmitt svona leikir, sem þó reyna á hugrekki hvers og eins, og allir verða að takast á við sjálfan sig. 

IMG_2544

Það eru margir krakkar sem stunda svona sjóstökk hér.

IMG_2546

Enda bíður aðstaðan upp á þetta og svo auðvitað eldra fólkið sem er með námskeið og kennir þeim að njóta þess að vera til.

IMG_2547

Búúúmmms!!!

IMG_2549

Jæja Kristján þá er komið að því að þú verður að stökkva.

IMG_2551

Nú á að reyna snúning..

IMG_2552

Ójá það er ekki málið..

IMG_2555

Nú förum við í smá leik sagði Úlfur, þið látið sem þið séuð að sparka mér ofan í.

IMG_2557

Já ekki málið...

IMG_2558

Úbbbs!

IMG_2559

Farinn niður.

IMG_2562

Þetta fer nú að vera ansi gott krakkar mínir.

IMG_2563

En ef þið leiðið mig sagði Kristján þá get ég hoppað.

IMG_2566

Allt í lagi.. og þar með hafði Kristján sigrast á sjálfum sér.

IMG_2567

Já það er það besta.

IMG_2571

Hetjur, vantar bara eina þann yngsta, hann var að stökkva.

IMG_2573

Skólabróðir Úlfs og afar flinkur trommari, sat og horfði á. Það er skötuselur hérna niðri sagði hann og benti..

IMG_2574

Og þá er bara eftir að ná þeim uppúr og heim.

IMG_2576

Og stökkva svo.

IMG_2578

Dálítið hreyfð en samt skemmtileg.

IMG_2581

Og svo að synda.

IMG_2583

Heart

IMG_2587

Dragðu mig upp.

IMG_2591

Já þau skemmtu sér prýðilega.

IMG_2592

Heart

IMG_2595

Klifurdýrið Kristján.

IMG_2598

Á sjó!!!

IMG_2599

Eða Í sjó...

IMG_2600

Nei á sjó.LoL

IMG_2604

Og nú var orðið erfitt að koma þeim uppúr.

IMG_2605

Það var nefnilega svo gaman.

IMG_2608

Heilbrigð yndisleg saklaus börn.

IMG_2610

Þessum tveim var orðið dálítið kalt svo það var ekkert annað að gera en drífa þá heim.

IMG_2611

Litla Hafmeyjan.

IMG_2613

Marar í hálfu kafi.

IMG_2614

Tilbúin að synda burtu.

IMG_2617

Svona nú krakkar tími til að fara uppúr.

IMG_2624

Rákumst á þessar tvær á leiðinni heim, litlu systurnar hans Daníels. Heart

En svona var nú dagurinn minn, ég vona að ykkur leiðist ekki myndasýningin.  En ég skemmti mér konunglega ekkert síður en krakkarnir.

En nú er komin tími á að leggja sig.  Ég býð ykkur öllum góðrar nætur. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært, bæði gangan og hoppið. Ég fór einmitt þarna niður í Suðurtanga í fyrra með Aldísi og var þá að hugsa um hvað þetta væri góð aðstaða til að hoppa og sulla. Myndirnar sýna vel hvað þau nutu þess að busla þarna og leika sér

Dísa (IP-tala skráð) 24.7.2011 kl. 11:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það var dásamlegt að fá að fylgjast með þeim og lifa með þeim sigrana, Kristján hafði gert svo margar tilraunir og var orðin illa pirraður á sjálfum sér áður en hann hoppaði, Aron var ákveðnari, en þorði ekki að stökkva fram af höfninni, en stökk oft úr stiganum, enda bara átta ára.  Hann verður með næst.  Og þetta var í fysta skipti sem Daníel þorði að stökkva alla leið að ofan, svo þetta voru heilmikil átök persónuleg hjá þeim og þau voru svo duglegl.   Þetta að láta sig vaða, það vekur sigurkennd sem er góð.  Enda sofnuðu þau öll eins og grjót í gærkveldi

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.7.2011 kl. 12:05

3 identicon

Þvílíkt stuð á krökkunum, gaman að fá að sjá þetta allt saman! 

Bestu kveðjur  

Maddý (IP-tala skráð) 24.7.2011 kl. 12:26

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Maddý mín og mikið er gott að sjá þig hér

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.7.2011 kl. 12:33

5 Smámynd: Kidda

Krakkarnir eru öfundsverðir á að fá að alast upp úti á landi en ekki í þéttbýlinu hérna á höfuðborgarsvæðinu, ekki viss um að krakkar hérna geti leikið sér svona.

Knús í kærleikskúluna

Kidda, 25.7.2011 kl. 11:33

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þau eiga gott að geta komið hér og leikið svona frjálst. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.7.2011 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband