Færsluflokkur: Bloggar

Frá mínu brjósti, amen.

Einræðisherra riðar til falls.  Það má glöggt sjá m.a. hér á blogginu.  Loksins hefur runnið upp fyrir fólki að það er eitthvað stórkostlegt að á þeim bænum.  En það þurfti mikið til, og ef til vill er skaðinn svo mikill, að langur tími líði áður en hann er bættur. 

Það getur aldrei orðið til góðs þegar ein manneskja getur haft svona afgerandi völd að enginn þori að hrófla við henni.  En við verðum líka að hafa í huga, að manneskjan sjálf verður ekki svona áhrifarík ein og sér.  Þar þarf meira til.  Þeir aðilar sem sitja kring um hana, og þjóna dyggilega í allskonar verkum, bera meiri ábyrgð en manneskjan sjálf.  Því þeir veita valdið.  Svo eru aðrir sem læðast í kring um grautinn, taka mola sem falla af borðinu, og vilja ekki raska stöðunni, annað hvort af hræðslu við að fá ekki lengur mola, eða bara einfaldlega vilja halda friðinn.  Þeir bera líka stóra ábyrgð á því hvernig hlutirnir æxlast.  Síðast og ekki síst eru þeir sem veita þessum aðilum umboð sitt aftur og aftur til að halda áfram á sömu braut.

 Já ábyrgð liggur víða.  Ég get alveg skilið þá sem mesta ábyrgð bera nú á ástandinu, að vilja ekki að verið sé að leita að sökudólgum.  Þeir tala nú fagurlega um að nú verði allir að standa saman, snúa bökum saman og gleyma fortíðinni, horfa fram á veginn. 

Ég segi aftur á móti, það er ekki hægt.  Því miður, ef við greinum ekki vandann, og gerum okkur grein fyrir hverjir eru sökudólgar í þessu stærsta máli þjóðarinnar, þá getum við ekki horft fram á við.  Því þá er hætt við að sagan endurtaki sig.  Ef enginn þarf að bera ábyrgð, þá er ekki von til þess að menn lagi það sem þarf að laga.

Hversu erfitt það verður fyrir þá aðila að horfast í augu við sjálfa sig, og okkur hin, þá verður það að gerast.  Ég vona að sem flestir geri sér grein fyrir því.  Við erum bara mannleg öll sem eitt.  Og við lærum ekki af mistökum okkar, ef við neitum að þau hafi gerst.  Að sleppa með skrekkinn er eitthvað sem má ekki gerast núna.  Því ef við lærum ekki af þessu, þá er hætt við að okkur farnist illa.

Það er orðið nokkuð ljóst að þeir menn sem hafa varðað veginn síðustu tvo áratugina hafa siglt skútunni í strand, þeir hafa brugðist því trausti sem til þeirra var borið, og standa nú frammi fyrir þjóð sinni og reyna að fegra allt saman.  Öll stóru orðin um að hér væri góðæri, allar væntingarnar um útrásir og hagræðingu, einkavæðingu.... hvar eru þær núna ?  Þessir aðilar hafa teymt okkur hin út í forað sem ekki verður snúið við úr, nema með utanaðkomandi aðstoð. 

Það er ekki einu sinni hægt að kenna neinum utanaðkomandi aðilum um í þetta sinn.  Okkar menn hafa gjörsamlega klúðrað öllu á síðustu metrunum.  Allt blaður um hvað við erum rík þjóð, og hvað við eigum og höfum, hefur hefur klúðrast fyrir fáránleg mistök, eða röð af mistökum hér heima fyrir.  Og ekki bara af einum manni, heldur líka af þeim sem næst honum standa, og hefðu átt að vita betur.  Þeit hljóta að þurfa að axla ábyrgðina með honum. 

 Hér þýðir ekki að bölva viðskiptajöfrunum, þeir hafa aldrei gefið sig út fyrir neitt annað, en að vera slíkir, og græða sem mest.  Það hafa aftur á móti ráðamenn ekki gert, hvort þeir hafa trúað því sjálfir að þeir væru að gæta almannahags, með því að gefa auðlindir okkar, og gefa síðan vinum sínum algjörlega frálsar hendur, skal ósagt látið, en við verðum að skilja, að þeir bera stærstu ábyrgðina á því hvernig komið er.  Því þeir áttu að setja leikreglurnar, og þeir áttu að líta eftir því að hagur almennings væri ekki fyrir borð borinn.  Þar hafa þeir brugðist skyldum sínum, og eiga þvi að fara frá völdum, láta öðrum eftir að reisa landið úr rústum. 

Annað hvort með þjóðstjórn, eða með nýjum kosningum.  Við hljótum að gera þá kröfu að þannig verði það.  Á sínum tíma, neitaði forsetinn að skrifa undir fjölmiðlalög, vegna mikillar andstöðu fólksins í landinu.  Nú ber okkur að krefja forseta vor um að hann rjúfi þing, slíti ríkisstjórninni og boði til kosninga.  Ég veit ekki hvort hann hefur til þess umboð, en það kæmi ekki á óvart, þó það leyndust einhverjir neyðarlagakrókar einhversstaðar um það, þegar þessi staða kemur upp. 

Ég er að eðlisfari bjartsýn manneskja, og ég hef trú á manneskjunni sem hugsandi veru.  Ég geri mér líka grein fyrir því, að þegar okkur gengur allt í haginn, þá verðum við andvaralaus, þegar við gætum hags annara, og við fáum ekki aðhald, verðum við kærulaus, og að lokum dramsöm.  Þetta er mannlegt.  Þess vegna hef ég sagt gegnum tíðina, að það sé hættulegt lýðræðinu að kjósa alltaf sama fólki yfir sig aftur og aftur, hvernig sem það stendur sig.  Því ber þjóðin mestu ábyrgðina því miður, við sjálf, sem höfum endalaust, gagnrýnislaust hvernig sem fólk hefur hagað sér, endalaust veitt þeim umboð okkar aftur og aftur.  Er ekki komið nóg?

Ég veit að við  munum ná okkur á strik aftur sem þjóð.  Það mun taka tíma að þvo af okkur ósómann.  En eins og marg oft hefur komið fram, erum við kröftug þjóð.  Við höfum ennþá frumkraftinn í okkur, þó mörg undanfarin ár, höfum við verið í líki leiguþýja og trúgjarnra aumingja, látið plata okkur upp úr skónum endalaust.  Ég vona bara að eftir þessa holskeflu verðum við meðvitaðri um hvað lýðræðið snýst.  Það snýst fyrst og fremst um að vera ábyrgur þegn, vera gagnrýnin og spyrja spurninga.  Refsa þeim sem ekki stendur sig, og veita aðhald þeim sem hafa tekið að sér að sjá um okkar mál.  Ef við gerum það ekki, þá fer allt í sama farið aftur.

Vakna þjóðin mín, vakna og sjá

 

til vitundar um nýja daga.

 

Að mörgu skal hyggja, í mikið að spá,

 

margt sem við þurfum að laga.

 

 

Fátæktargrílan oss finnur sig hjá,

 

fólkið í móann þó maldi.

 

Hér þarf að taka til hendi og fá

 

hald á því ógnarvaldi.

 

 

Að bjarga sér fólki er bannað í dag.

 

Ei bein má úr Gullkistu bera.

 

Ráðstjórnarherrum finnst ríkisins hag,

 

ráðlegast lénsherrum gera.

 

 

Valdníð og hroki oft viðgengst hér nú.

 

Og veldið hans Mammons er mikið.

 

Makráðir forstjórar milljónir fá

 

og maka sinn krók fyrir vikið.

 

 

Já vakna þjóðin mín, vakna og sjá

 

því verst er í þessu skreimta.

 

því freistum þess koma þeim ráðstjórum frá,

 

Og frelsi vort endurheimta.

Ásthildur Cesil. 2005.


Á indíjánaslóðum.

Jæja má ég bjóða ykkur í ferðalag til Copper Canyon í Mexícó, svona mitt í öllu amstrinu og leiðindunum.  Þið þurfið ekki að borga neitt, ekki taka lán, eða nota kreditkortin ykkar.  Þetta er í mínu boði. 

Við þurfum að byrja í Mexico city, getum gist á Hollyday inn á Zócalotorgi, ráðhústorginu. 

03

Þar er einmitt verið að taka niður fánan,  þetta er sko enginn smáfáni skal ég segja ykkur, og þetta er gert með lúðrablæstri og gæsagangi.

02

Og það þarf fullt af mannskap til að bera fánan burtu.

Copper canionferd. 001

Þetta er reyndar í janúar, á degi vitringanna þriggja, þá ganga þeir um og gefa börnunum gjafir.

Copper canionferd.

Í Mexico citý dansa Aztekarnir á kvöldin, maður heyrir æstan trommusláttinn, og þeir eru í sínu fínasta pússi.  Þar má skoða gamlar rústir frá tímum Aztekanna, og þeir voru greinilega mjög grimmir, það eru minjar um mannfórnir og slíkt, óhugnanlegt. 

23

En það er langt að fara frá Mexico city til Copper Canyon, svo við komum við í Guadalajara, næst stærstu borg Mexico, falleg borg með mikið af útilistaverkum.  Hér fljúga hin frægu fiðrildi yfir á leið sinni til mökunar upp í fjöllunum, ég mun ef til vill seinna greina frá því. En svo aðeins að stoppa í Mazatlán..

66

Liggja smá á ströndinni þar og dvelja hjá mágkonu minni um tíma.

77

Fá sér ferskar ostrur á ströndinni, og halda síðan í upp í fjöllinn.

05

Eftir að hafa dvalið í nokkra daga í Mazatlán við baðstrandalegu og afslappelsi, var haldið upp í fjöllinn.  Copper Canyon er dýpra og meira um sig en Grand Canyon.  Þetta er í miðju sögufræga Sierra Madre mountains, í norðvestur Mexicó.  Þessi járnbraut gerir ferðamönnum kleyft að heimsækja indíjána sem þar búa.  Tarahumera, hinir fótfráu indíjánar.  Þeir eru aðeins um 45.000 talsins, og búa í allskonar kumböldum og hellum.  Líkt og þeir hara búið síðastliðin 400 ár. Þeir búa til allskonar muni sem maður getur keypt af þeim.  Handgerðar fiðlur, körfur úr furunálum, og pálmablöðum.  Þeir búa oftast niðri í dölunum, en koma upp 1000 metra upp í fjöllinn til að selja dótið sitt, sem þeir bera á öxlum og á höndum upp snarbrattar hlíðarnar.

Chihuahua al Pacifico railroad var fullgert 1961.  Hún er ein af furðum veraldar með 86 jarðgöng og 37 brýr á leiðinni 406 mílna leið.  í El Lazo göngunum fer hún í slaufu (loop) og svo 180° beygju inn í kletti við Temopis.  það tók 90 ár að fullgera brautina.  Readers Digest kallar þetta "the most dramatic train ride in the Western. á þessari leið er bara ein track eða spor, og verður því lestin sem er að koma neðan að að biða á einu hliðarspori sem er þarna á leiðinni eftir að lestinn sem kemur að ofan fari hjá. 

20

Á leiðinni má sjá yfirgefna brautarvagna sem hafa verið gerðir að íbúðum, ekkert til spillis þarna, og enginn íbúðalánasjóður, eða bankalán.  En fólki situr gjarnan á stoppistöðunum og reynir að selja túristunum dótið sitt.

Copper canionferd. 012

Hér sitja indíjánakonurnar með fallegu munina sína og vilja selja okkur ferðamönnunum, þær hafa gengið 1000 metra upp snarbratt fjallið til að nálgast túristana, með allt dótið á höfði og herðum.

21

Og hér má sjá lest húsvagna, frá Canada, fólk sem er örugglega á leiðinni til Masatlán, til vetursetu.  En þetta er reyndar ekki á leiðinni upp í Pacifico railroad.  Þó ég setji hana inn hér.

04

Ég get sagt ykkur að hér er hrikalega fallegt, og ekki mjög gott fyrir lofthrædda, en ég lét mig hafa það.

18

Hamborgarastaðurinn í Creel, en svo heitir þorpið sem við gistum í.  Það er 2000 manna þorp, um 2000 metra yfir sjávarhæð, og maður verður ansi mæddur að ganga mikið hér.  Og við vorum með töluverðan hausverk meiri partinn af tímanum.

17

á leiðinni var stoppað nokkrum sinnum, og hér er indíjáni með fiðlu, sem hann hefur sjálfur smiðað og spilar á til að sýna okkur.

Copper canionferd. 008

Við fórum líka að skoða listamennina, hér er mönnum margt til lista lagt.  og gaman að skoða.

22

Þetta er hrikalegt ekki satt.  En við vorum svo heppinn að fá innfæddan mann til að fara með okkur í ferð um indíjánaslóðir, inn á friðuðu svæðin.  Byrjuðum á að fara og skoða helli, hann kallast Sebastian hellir, eftir þeim sem fyrstur bjó þar. 

Copper canionferd. 006

Hér sést hellirinn, og eitt af húsunum sem fólkið býr í.  Hér verður upp í 21°frost á veturna, og þau eru að mestu leyti berfætt, sumir eru í bandaskóm, sem eru gerðir úr skinnbotni og svo leðurbönd sem eru bundin upp eftir fótum þeirra.  Skinnið á þeim er orðið eins og á fíl.  þau fara ekki í neina skó aðra.

13

Hér er húsmóðirin við eldhúsborðið, og þarna má sjá hakkavélina.  Við ættum ef til vill að huga að því hvort við þurfum að hafa allt svo voðalega fínt, þegar maður kemst fullkomlega vel af með svona græjur.

15

Og máfastellinu er ekki fyrir að fara hér á þessum bæ.  og ég er viss um að þeim líður ekkert verr en mörgum okkar. Ætli kreppan nái nú inn á svona heimili ?

Copper canionferd. 005

En húsmóðirin hefur gert ýmsa fallega muni, sem við skoðum.  Á kvöldin eru svo öll dýrin á heimilinu rekin inn í hellinn, því þarna eru púmur, fjallaljón og skröltormar á ferð, sem ekki er gott að verjast.

Það eru um 10% af ættbálknum sem býr í hellum, þeir lifa á akuryerkju og sjálfþurftarbúskap, með fiðurfé, kindur, geitur svín, hesta og asna. 

12

Það fer ekki mikið fyrir þvottavélum á þessum stað frekar en öðrum lífsins þægindum, sem við teljum okkur ekki geta verið án.  Ár og lækir eru góðir til að þvo í, og svo sér maður þvottin hanga á girðingum, og það sem er hvítt, það ER hvítt hjá þessum elskum.

11

Svona er tískan hjá telpunum.  að versta er sagði leiðsögumaðurinn, að krakkarnir vilja ekki tala tungumálið sem þau eiga.  Þeim finnst flottara að tala spænsku, svo hætt er við að tunga þeirra deyji út.

16

Það er ekki mikið um bíla, og þeir ferðast fótgangandi, hér er bóndi í þeim búningi sem menn hér kæðast.  En það er einskonar þríhyrnt pils, og mussa við, hann hefur svo farið í skyrtu utanyfir, hefur senniega verið kalt.  En þeir heita nú ekki "the people of the swiftly running feet" fyrir ekkert.

 

Copper canionferd. 004 

Hér má sjá ungviðið, og ekki er þessi unga stúlka gömul að burðast með litla systkinið á bakinu, þau eru bara nokkurra vikna, þegar systir er byrjuð að bera það á bakinu, vart farið að halda haus.  En hér voru þau að selja munu sem mamma hafði gert, og svo kom líka lítill lófi, Pesó! Pesó!

00

Hér er friðland.  Hér við Lago de Ararako bíður fólkið eftir að fá matarskammt.   Þau fá matarskammt frá ríkinu einu sinni í viku, þau vilja ekki vinna fyrir aðra, en vilja bara stunda sinn búskap og búa til ýmsa hluti. 

 

Næst lá leiðin að fallegu vatsfalli sem heitir Cusarare, (þar sem örnin býr)  við þurftum að ganga rúman kílómeter að fossinum, en þar sem Rafael fararstjóri þorði ekki að yfirgefa bílinn sinn, fékk hann litla indíjánastúlku til að fara með okkur.  Hvað er hún gömul, spurði ég?  Hér vita börnin ekki hvenær þau eru fædd, eða hvað þau eru gömul, sagði Rafael. Enginn afmæli hér.

Copper canionferd. 003

Hér er Aníta litla, gæti verið svona 6 ára. 

09

Henni hefur áreiðanlega fundist við ganga hægt, því stundum var hún á undan okkur, og beið svo upp í tré eftir að við birtumst á stígnum.

Copper canionferd. 010

Og hér bjuggu örugglega álfar og tröll, þetta gæti verið svarthöfði, eða hvíthöfði.

Copper canionferd. 014

Hér er svo fossinn þar sem örnin býr.

Daginn eftir fórum við í skoðunarferð með Rafael fararstjóra til Rio Urique, upp í fjöll og niður í dali, ofsalega fallegt.

22

Hér rísa drangar upp úr fjallatindum eins og konungshallir í Evrópu, en eru bara grjót, svona fallegt í laginu. 

Síðan fórum við í dal munkanna, inn á landi indíjánanna, maður þarf að borga 15 pesó pr. mann til að fá að fara inn.  Þetta er algjörlega magnaður staður, klettadrangar heill skógur af klettum.

Copper canionferd. 002

enginn veit almennilega hvernig þetta myndaðist, og staðurinn er segulmagnaður, þeir segja að hér hafi lent geimskip fyrir margt löngu. Klettarnir voru gulir rauðir og grænir af klettaskófum.

06

Þetta er maður og kona, sem standa þarna í faðmlögum.

44

Hér er sveppaballettinn, þetta eru steinar sem standa í hring, og eru allir svona eins og sveppir í laginu.

07

Þessir klettar heita Sombrero.

08

Hér sjáum við steingerðan fíl.

Þetta var alveg mögnuð ferð, og yndislegur fararstjóri hann Rafael, og sérstaklega af því að hann var innfæddur, og uppalinn í þessu frábæra samfélagi, og kunni inn á alla hluti, og þekkti allt.

33

Hér er aðaltorgið í Creel.

19

Þegar við komum aftur til Creel var farið að kvölda, og við orðin þreytt öll þrjú.  Svo það var notalegt að fara upp á hótel Sierra Bonita.  kveikja upp í arninum og eiga gott kvöld við að upplifa þessa daga.

Vona að þið hafið átt skemmtilegt ferðalag meðal indíjánanna, menn hinna fráu fóta.  En þetta er í leiðinni svona smáhugleiðing um að þó allt fari á hvolf, og maður eigi ekki mikið milli handanna, þá er alveg hægt að komast vel af, ef maður hugar að því einfalda og smáa.  Lætur sér nægja minna og setur markið ekki of hátt.

Eigið gott kvöld elskurnar. Heart


Í ósigrinum er styrkur hvers manns fólgin... Frá mínum bæjardyrum séð.

post-184-1102655681

Drottningin í Apalandi.

Þegar syrtir að, og menn komast í þrot, þá fyrst reynir á styrk hvers og eins. Hér hafa orðið umskipti, hamfarir segja sumir. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árinni, en samt vil ég segja að þegar Geir H. Haarde segir að ekki hafi farist nokkur maður, þá segi ég á móti, að það getur sá maður ekki fullyrt á þessari stundu, því að það er svo því miður að það brennur við að menn geri eitthvað afdrifaríkt, þegar þeir standa frammi fyrir óleysanlegum vanda. Einnig geta þeir sem eru veilir á einhvern hátt, átt erfitt með að þola svona álag.

 

Það skal því fara varlega með að fullyrða eitthvað sem menn geta svo ekki staðið við. En eins og svo oft vill verða, þegar kreppir að, þá fara menn að leita að sökudólgum. Og vissulega eru hér sökudólgar á ferð. En þeir eru margir og koma víða að. Ekki ætla ég að réttlæta peningagreifana, en mér finnst samt leitt að heyra þegar fólk hlakkar yfir óförum þeirra. Það lyktar af öfundsýki, sem er ein af dauðasyndunum sjö. Það sem mér finnst samt verst að hugsa til, er, að ef einn af helstu ráðamönnum þjóðarinnar, hefur notað þetta ástand til að freista þess að veita fólki náðarhöggið, fólki sem almannarómur segir að hann hafi notað stöðu sína á óþverralegan hátt til að koma höggi á áður . Sérstaklega ef sá sami maður hefur svo tipsað vini og kunningja, eins og ýjað er að.

 

Þeir verða að tapa sem eiga, sagði eitt sinn gamall maður hér, sem hafði orðið uppvís að því að taka ýmislegt nytsamlegt ófrjálsri hendi til eigin nota. Og í sjálfu sér er það alveg rétt. Þeir eiga að missa sem eiga. Málið er að hingað til, hefur það verið þannig að þeir sem EIGA hafa sankað að sér því sem þeir sem minna mega sín þarfnast.

 

Græðgin hefur verið þeirra leiðarljós, og kæruleysi fyrir lífi og limum fólks í kring um þá. Þeir hafa sólundað, og örugglega komið undan fullt af peningum, sem þeir geyma á reikningum erlendis, og bíða betri tíma. Margir þeirra allavega. Þó það sé fjarri mér að hlakka yfir óförum þessara manna, þá get ég ekki vorkennt þeim heldur. Þeir hafa farið eins og engisprettufaraldur yfir bæði landið og nágrennið, og eira engu.

 

 

En við skulum ekki gleyma því, að það voru stjórnvöld sem gerðu þeim þetta kleyft, þeir brutu engin lög, þeir kunnu bara að spila á kerfið. Það kerfi sem stjórnmálamennirnir bjuggu til. Stundum sniðið að þörfum greifanna. Eins og til dæmis sjávarútvegskerfið, sem er beinlínis í andstöðu við stjórnarskrána, og felur í sér gríðarlegt óréttlæti og eignaupptöku hins almenna manns í dreyfbýlí. Og jafnvel þótt Mannréttindadómstóll hafi dæmt kerfið óverjandi, þá er ekkert gert til að laga það. Vegna þess að það hentar ekki sjávarútvegsgreifunum. Þeir ætla að gleypa allan kvótann og gína yfir hverjum fisktitti sem í sjónum syndir, meðan stjórnarskráin segir að auðlindir þjóðarinnar séu eign þjóðarinnar. Nei þeim skal verða gert kleyft að drepa niður alla einyrkja landsins, þar til þeir hafa náð öllu í sínar gráðugu krumlur. Ætli þeim verði þá ekki gert kleyft að selja fiskimiðin til erlendra aðila ? Kæmi það ekkert á óvart.

 

Þess vegna finnst mér einhvernveginn falskur tónn í Geir H. Haarde þegar hann er að tala um að bjarga almenningi í landinu. Hve lengi er hann búin að horfa upp á fólk gert eignalaust úti á landi, án þess að lyfta litlafingri til bjargar. Ég er til dæmis alveg viss um að við værum ekki svona illa stödd, ef fylgt hefði verið eftir tillögum Frjálslynda flokksins um betri sjávarútvegsstefnu.

Er fólk í dreyfbýlinu ef til vill ekki almenningur. Er það það sem verið er að segja ? Spyr sú sem ekki veit.

 

Það er líka falskur tónn í Þorgerði Katrínu, þegar hún talar um sjávarútveginn sem traustan, þegar hann stendur eiginlega á brauðfótum. Skuldugur upp fyrir haus. Og meðan allir firðir eru fullir af fiski, er mönnum meinað að veiða hann, sér til viðurværis. Fólk hefur staðið uppi eignalaust, og rúið inn að skinni, án þess að forystan hafi haft af þvi minnstu áhyggjur.

 

Ég geri mér grein fyrir því að ástandið er alvarlegt núna. Og að það slær alla í landinu, og að stjórnvöld eru ekki öfundsverð af þeirri stöðu sem þau eru í í dag. En ég bendi líka á að þessi sömu stjórnvöld hafa haft tíma og ráðleggingar vísra manna nú um langa hríð til að bregðast við. Mjög langan tíma meira að segja, ef marka má orð nokkurra hagspekinga eins og Þorvaldar Gylfasonar og fleiri. En þau kusu að loka eyrunum og gera ekkert. Meira að segja var forsætisráðherran svo óforskammaður að hann stærði sig af því að hann hefði ekki gert neitt, og að það hefði bjargað öllu. Hversu andvaralausir geta menn orðið. Nú eða þessi hallærislegi eltingarleikur um að komast inn í Öryggisráðið, allar þær milljónir sem lagðar hafa verið í það, bæði kostnaður ráðamanna flandrandi um heiminn, svo og gjafir, og styrkir til hinna og þessara þjóða, til að kaupa sér atkvæði.

Og það á sama tíma, og aðstaða aldraðra og öryrkja er með þeim hætti að þeir draga fram lífið, á bótum sem eru ekki sæmandi þessari ríkustu þjóð heimsins, ef maður trúir stjórnvöldum.

 

Nei við skulum ekki að hlakka yfir óförum annara, en einbeita okkur að því að láta stjórnvöld á okkur skilja að við viljum ekki svona ríkisstjórn, sem situr bara og gerir ekkert, fyrr en út í foræðið er komið svo djúpt, að það þarf haldreipi langt að til bjargar.

 

Gamli faðir minn hefur tapað miklu fé, svo er um fleiri sem hafa treyst á þessi stjórnvöld að fara með valdið í landinu. Þetta gamla fólk, sem sumt er veilt fyrir, er ómögulegt að segja til um hvernig reiðir af í þessum ólgusjó. Ég óttast allavega um minn föður. Ég vona bara ef hann kemst heill út úr þessu róti, að hann læri að treysta ekki á Sjálfstæðisflokkinn og hans pótintáta endalaust. Að það sé ekki allt sem sýnist í frjálshyggjunni, og einkavæðingunni. Sem betur fer hefur sú stefna komist í þrot, og nú þarf að huga að nýjum leiðum. Það segir sína sögu, þegar orðið "hagræðing" er orðið ógnvaldur sem hríslast eins og kaldur straumur niður bakið á manni. Því það þýðir bara það eitt, að gera einhvern ríkari á kostnað annars. Herða að einum, meðan losað er um hinn. Hagræðing eins og hún hefur verið framkvæmd hér á landi og örugglega allstaðar, hefur ekki verið hagræðing fyrir fólkið í landinu, sem forystunni er svo umhugað um núna, heldur til að þeir sem fara með völdin fái meira í sinn vasa. Og gildir þá einu hvað verður um þá sem eru fórnarlömb hagræðingarinnar.

 

Nei það er vonandi að þetta ástand verði til að bæta siðferðið í landanum. Að það verði til að opna augu fólks fyrir því hve lánið er fallvalt. Og hvað græðgin getur áorkað, þegar hlúð er að henni með öllum tiltækum ráðum.

Ábyrgðin er fyrst og fremst stjórnvalda, sem hafa hagað sér eins og dansendur kring um gullkálfinn, hafa lokað öllum skynfærum fyrir hættunni sem allir áttu að vera löngu búnir að sjá. Ekki hlustað á varnaðarraddir. En hlustað vel á þá vini sína, sem hafa eignast Íslands smátt og smátt, á kostnað hins almenna borgara. Þess vegna segi ég enn og aftur, það er einhver falskur tónn í rödd sem núna allt í einu vill sátt og allir eiga að leggjast á eitt, til að bjarga málunum. Gegnum tíðina hefur fólkið í landinu lagt sitt af mörkum, með þolinmæði og þraustsegju. Þrælað í sveita sína andlitis, og ekki orðið vör við þetta góðæri sem alltaf er verið að tala um. Og svo núna þegar veislan er búin, þá eiga þeir sem stóðu fyrir henni, að þrífa sjálfir eftir sig, þeir eiga svo að gera meira, þeir eiga að segja upp og fara. Hér þarf fólk sem þorir og getur tekið á vandanum. Það er allavega komin tími til að skipta út liðinu, hleypa ferskari vindum inn í stjórnmálin og fara að skilja að afdankaðir pólitíkusar eru ekki hæfir til að gegna lykilembættum í þjóðfélaginu, meðan ráðamenn eru að stæra sig af því að eiga velmenntað og velgefið fólk, þá þarf líka að treysta þeim til að fást við þau verkefni sem þau hafa menntað sig til. Slíkt á að vera sjálfsagt í þjóðfélagi árið 2008.

Lifið heil og megi allir góðir vættir vaka með  ykkur öllum og vernda, á þessum hrollkalda haustdegi.  Við skulum muna að öll él birtir upp um síðir, og við skulum líka átta okkur á því, að nú sem aldrei fyrr er einmitt tíminn til að fara að huga að því einfalda og smáa. Hlú að hversdagsleikanum, og sjá að hamingjan er ekki fólgin í því sem mölur og ryð fá grandað.  Heldur í því að hlú að fjölskyldu og vinum.  Hætta að hlaupa eftir innantómum lífsgæðum, en þess í stað halda utan um það sem næst manni er, og svo brosa sig í gegnum þennan vanda.  Hann lagast, og vonandi kennir hann okkur sem flestum hve lífið er í raun og veru dýrmætt og hve það er mikilvægt að þekkja sjálfan sig, og sálina sem þar býr.  Knús á ykkur öll. Heart


Ferði í Reykjanes.

Hæ komin heim frá Reykjanesi.  Sífellt fleiri bloggvinir tilkynna að þeir geti ekki staðið undir því að svara og koma við hjá bloggvinum sínum.  ég skl það mjög vel, því ég á líka í þessum erfiðleikum, reyndar tímabundið, því ég hef einfaldlega ekki nægan tíma til að fara sómasamlega gegnum mína bestu bloggvini, til að lesa og kommentera, og þó þykir mér svo vænt um svo marga hér, og hef tekið inn á mig sem yndislega vini og félaga, og hef áhuga á því sem þeir eru að segja okkur.  En ég veit líka að þegar vetrar að, þá verður meiri tími til að sinna ykkur mín kæru.  Heart

En Reykjanesið var alveg frábært, við ætluðum reyndar að hætta við að fara, þar sem ælupest herjaði á fjölskylduna, bara daginn fyrir ferðalagið, byrjaði með Ásthildi litlu, og síðan Úlfur, og við hjónin bæði með slæman maga, Hanna Sól slapp við æluna, en fékk niðurgang í kaupbæti.  En ég er samt glöð að við skyldum drífa okkur af stað, því ferðin var alveg frábær.

5.10.08 001

Á fullu að pakka niður. Það þurfti að pakka öllu inn í plastpoka, því allt þurfti að vera á pallinum, og það var úrkoma.

5.10.08 003

Að vísu var veðrið falleg heima, en aldrei að vita hvað kemur í ljós.

5.10.08 006

Búið að hlaða bílinn og kerran með Kajökum til reiðu.

5.10.08 008

Við vorum komin inn í Seyðisfjörð, þegar uppgötvaðist að lyfin hans Ella míns höfðu gleymst heima, við þruftum því að snúa við og aka heim aftur, og það tók tímann sinn, með lítil börn skiptir tíminn miklu máli, en þau voru alveg frábær þessar elskur, og Drekasagan var spiluð þrisvar sinnum, og ég er ekki að plata.  Versta við þessa Drekasögu er að lögin límast einhvernveginn á mann, og söngla inn i hausnum á manni tímunum saman, ótrúegt alveg.  En hér erum við komin í Reykanes, og hér er afi að fara yfir ennibein og auga, nebbi flipi, munnhola og hálsakot, nefnilega að  þvo og bursta tennur í stuttu máli. Smile

5.10.08 010

Jamm og járnbrautalesin frá Ikea, var eitt af leikföngunum sem tekin var með, hún er sígild og heillar jafnvel prinsessur.

5.10.08 011

Hér er hann Halldór Sveinbjarnar, gúrú kajakræðara á Ísafirði, meistari og kennari af fyrstu gráðu, flottastur í alvöru.

5.10.08 013

Sundlaugin í Reykjanesi er víðfræg, og einstök.

5.10.08 019

Meira að segja flott fyrir prinsessur.

5.10.08 025

Hér eru ræðararnir að leggja upp í ferð um Reykjafjörð

5.10.08 027

Eins og þið sjáið þá leikur veðrið við okkur þessa helgi.

5.10.08 030

En hér eru krakkarnir í lauginni að safna saman grænþörungum.  Elli sagði við mig einmitt í kvöld; Íja  er þetta ekki bara það heilbrigðasta sem til er, ég veit að fólk er farið að ganga um í laugunum í Reykjavík í ilskóm út af sveppasýkingum, en hér er ekkert slíkt, getur ekki verið að náttúran sjái um heilbrigðið ?Hér er þetta bara villt og enginn spáir í slíka mengun.  Guð láti gott á vita segi ég nú bara.  Botnin er hreinlega teppalagður með grænþörungum.

5.10.08 035

Úsinimínikrú á kajak í sundlauginni.

5.10.08 037

Já og svo er horft á Doru og Latabæ á kvöldin LoL

5.10.08 039

Eða að máta sundhetturnar sem amma keypti.

5.10.08 041

Svo var farið í fjöruferð.  Marin sagði að strákarnir hefðu gert sér heitan pott ofan í fjöru, og vildi að við kæmum með myndavélina.  Og við vorum einmitt að leggja af stað í fjöruferð.

5.10.08 042

Þetta er fallegur staður og býður upp á svo margt.

5.10.08 045

Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt, spurðu stákarnir, nei sagði ég en var með lygamerki á puttunum, og segi nú bara þetta eru svo flottir gaurar, og fallegt umhverfi.  Þeir eru hreinlega bara flottastir.

5.10.08 050

Þetta er hreinlega alveg rosalega flott.

5.10.08 051

Já þetta virðist vera rosalega notalegt ekki satt?

5.10.08 053

Landið elds og ísa, heitt og kalt.  Hvað viljum við meira og betra?

5.10.08 055

Nei þetta er bara fyrir stráka, stelpur mega ekki vera með, kannast einhver við svona ??

5.10.08 056

Krabbaskinn sem lét blekkjast af ylnum, og hafnaði í eldheitum polli, svona getur lífið leikið einstaklinga sem eru of trúgjarnir, eða halda að allt sé gull sem glóir, hann bara soðnaði í þessum heita potti, þegar sjórinn hvarf út á haf.

5.10.08 057

Sjáið bara eldur og ís, heitt og kalt kallast á.

5.10.08 068

Eg við gætum sætt okkur við það sem náttúran hefur að gefa okkur, værum við ef til vill ekki í þeim sporum, sem við erum í í dag. Að geta metið það einfalda og smáa.

5.10.08 069

Virt fyrir okkur heimsins gæði, og glaðst yfir litlu, það er leyndardómurinn að velgengni, eða í það minnsta hamingju.

5.10.08 071

Falleg glerbrot, einu sinni fann ég hreinræktaða gleði í því að fara og safna fallegum glerbrotum.  Ég hefði ekki skipt þeim fyrir pening, hvað þá íslenska krónu, eða neinn annan gjaldmiðil.

5.10.08 073

Nú eða halda á fjársjóði í litlum lófa, sínum augum lítur hver á silfrið.  Ættum við ekki aðeins að stoppa við og gá hvað það er sem skiptir máli ?

5.10.08 081

Og hóprunninn kemur heim þegar húmið leggst að, eftir góðan róður.

5.10.08 058

Þetta er svona fyrir þá sem voru í Reykjanesskóla, það finnast ennþá leyniskot, sem eru alveg eins og þau voru, hér var örugglega kennd matreiðsla, eller hur ?

5.10.08 060

Og hér eru ennþá skólastofur, og allt sem til þarf, og myndir á veggjum.  Fyrir þá sem finna hjá sér hvöt til að halda upp á eitthvert afmæli, elskurnar þá er þetta allt ennþá til staðar !

5.10.08 084

en ef til vill ekki miki lengur, svo ekki hika við að fara að stað, og fara að gera eitthvað í málunum, áður en það er of seint.

5.10.08 090

Hér er verið að borða.  Maturinn var góður.

5.10.08 094

Sumir komu langt að til að vera með.

5.10.08 101

Ókey afi, þú ert flottur!

5.10.08 102

Það er verið að fara í hópsiglingu.

5.10.08 103

Veðrið er ákjósanlegt eins og sést.

5.10.08 105

Bátarnir klárir.  Og það er ennþá brunalykt af búningum kajakmanna, eftir brunan i haust.

5.10.08 107

Stubbar klárir í slaginn.

5.10.08 110

Svo þarf að æfa ýmislegt í lauginni, m.a. að hvolfa sér, og geta rétt sig við aftur, það er nauðsynlegt þegar út í alvöruna er komið.

5.10.08 111

Og þar er enginn betri kennari en Halldór Sveinbjarnarson, það get ég alveg sagt með sanni. 

En ég þarf að skreppa suður á morgun, á mikilvægan fund.  það kemur svo í ljós, hversu mikilvægur hann er.  En svo tekur bara við þetta venjulega.  Þangað til þá, hafið það gott, knús á ykkur, og ég segi bara góða nótt. Heart

 

 

 


veður og annað.

Við skulum ylja okkur smástund við brosandi blóm í grámanum.

IMG_2462

Falleg smárós í sínu fegursta pússi.

IMG_2464

Þessi orðin klár til átu. slurb.

IMG_2465

Prímúlurnar blómstra oftast þegar enginn annar er í blóma.  Og fallegar eru þessar elskur.

IMG_2466

Drottning blómanna, að blómstra í þriðja sinn.

IMG_2467

Veðrið var fallegt í gær, nú er snjókoma og allt orðið hvítt.

IMG_2468

en það verður einhvernveginn allt svo skýrt í kuldanum.

IMG_2469

Eins og sjá má.

IMG_2472

Og nú er gott að hafa gerfigrasvöll, til að æfa sig á.

IMG_2473

Þetta er svolítið skondið, við vinnufélagarnir erum búin að spá í það í allt sumar hvaðan þessi leki kemur, þarna eru engar leiðslur, eða opin rör, samt hefur lekið þarna út í allt sumar, meira að segja meðan ekki kom dropi úr lofti, rann þetta endalaust svona.  Hvaðan sem þetta kemur, er okkur hulin ráðgáta.

IMG_2475

Haustlitirnir eru veisla fyrir augað og sálina.

IMG_2476

Og hér eru rætur bloggvinar míns Jóns Steinars.

IMG_2485

Og fjöllinn í Súgandafirði eru kraftmikil eins og önnur verstfisk fjöll.

IMG_2477

Og hér er hann Trausti með ömmu sinni.

IMG_2479

Maður þarf að fara í gó... þegar afi kemur að sækja mann.

IMG_2480

En Hanna Sól þurfti að ljúka við að pússla, áður en hún fór heim.

IMG_2482

Svo þarf maður úlpu, því nú er kalt úti.

IMG_2483

Og maður þarf að fá sér klaka, þó það sé kalt.

IMG_2484

Nammi namm...

IMG_2488

Svo fengu þau Hanna Sól og Sigurjón Dagur að fara að veiða með Júlla. Og fengu fiska.

IMG_2490

Jamm aldeilis veiði, hjá Sigurjóni Dag, en fiskurinn hennar Hönnu Sólar er náttúrulega fyrir Brand.

IMG_2492

Svo þurfti að sýna afa aflann auðvitað.

IMG_2491

Hér er svo Tinnfríður Fjóla, besta vinkona. 

IMG_2498

Og Óðinn Freyr kom í heimsókn, taktu fyndna mynd af mér amma!!!LoL

IMG_2499

Hann var að gera verkefni í skólanum og vantaði mynd af sér, og það er náttúrulega enginn sem tekur myndir nema amma sín.

IMG_2506

Hér er svo bleika prinessuherbergið.

IMG_2508

Skottið í baði.

IMG_2510

Svo þarf að þurrka manni, og þá er maður klár í svefninn.

IMG_2512

Já þessar elskur eru flottastar. Heart

Eitt gullkorn að lokum úr smiðju Matthildar bloggvinkonu;

Hrukkur, vinnulúnar heldur, slit og skalli sýna lífið. Undarleg þau skilaboð nútímans að reynsla og þekking séu góð en árin sem það tekur að öðlast reynslu og þekkingu skulu ekki sjást utan á okkur  

Wrinkles, vorking hands, boldness show live. Funny message that nowlegdes and experience is good, but the years it takes to earn theme must not show.

Eigið góðan dag elskurnar.  Ég er á leiðinni inn í Reykjanes á eftir, við förum öll fjölskyldan, það er Kajaksamkoma þar.  Og við ætlum að skella okkur, strákarnir með kajaka, við stelpurnar ætlum bara að hafa það notalegt saman. 

 


Veður og smá mömmukrúttfærsla.

Já það er ennþá kalt en fallegt veður.  Dálítið kuldalegt um að litast þó.

IMG_2452

En fjöllin eru falleg svona svarthvít eins og tússlitamynd.

IMG_2453

Hér er burstabær náttúrunnar.

IMG_24531

Þið trúið mér ef til vill ekki.  En hér sést það betur, og hér sjást lika andlitsmyndir af vættunum, þær eru ef til vill ekki frýnilega, og sumar illúðlegar, en þær eru samt sem áður góðar.  Munið að útlitið segir ekki allt, ekkert frekar hér en hjá okkur. Smile

IMG_2454

eftir því sem ég ek oftar Súgandafjörðinn, þvi betur geri ég mér grein fyrir hve magnaður hann er.  Hér er aldeilis rosaleg orka, sem er á við stærstu virkjun, og sú orka er ókeypis.

IMG_2457

Þess vegna eru Súfirðingar svona orkumikið fólk örugglega, og dálítið sérstök.

IMG_2459

En hér er sólin við það að brjótast fram, komin núna reyndar.

IMG_2460

Og ég þarf að fara að týna berin af trjánum, áður en fuglarnir gleypa þau öll.

IMG_2440

Í gær var Úlfur í tölvunni, og Hanna Sól vildi horfa á.  þú mátt ekki horfa á, sagði Ulfur, þetta er ljótur leikur, það er blóð í honum.

En mig langar að horfa, sagði sú stutta og tók engum mótmælum.

IMG_2441

Nú kemur blóð, nú verðuru að hætta að horfa, sagði Úlfur.....

Nei þetta er ekki nóg, sagði hann svo.

IMG_2445

já svona þarf það að vera LoL

IMG_2442

Á meðan dundaði sú minnsta sér við ýmislegt.  Dúkkuna..

IMG_2443

Hana þarf að hugga..

IMG_2448

Skoða bók og svoleiðis.

IMG_2449

En svo er líka gaman að púsla.

IMG_2450

Segið svo að ég fái ekki hjálp við matseldina.  Var með steiktan fisk í fyrradag, setti hann í eldfast form, ástamt kartöflunum í gær, og svo stífþeyttar eggjahvítur ofan á og ost, þetta var bara mjög góður réttur úr afgöngum.  Nú þarf maður að fara að spara dálítið, og að búa til eitthvað gott úr afgöngum, er eitthvað sem ég þurfti að gera hér í denn, og get alveg ryfjað upp aftur.  Það er sparnaður sem maður þarf ekki að finna neitt fyrir, eða láta á móti sér.

IMG_2451

En nú þarf að draga fram úlpur og svo þarf að kaupa vetrarskó á mannskapinn, og snjógalla. 

IMG_2455

Afi fór með okkur á leikskólann í morgun..

IMG_2456

Já þær hafa það gott á leikskólanum, það er alveg víst.

Eigið góðan dag elskurnar mínar.   

 


Veturinn gekk í garð í nótt.

Það er alhvítt hér fyrir vestan.  Litlu dúllurnar mínar eru heima, því Ásthildur ældi í alla nótt.  Svo skemmtilegt sem það nú er, og amman vakti og vakti.  Maður er því ekki í neitt sérstöku formi þennan daginn.

IMG_2433

Vonandi bara smáskot.

IMG_2434

Já heldur hráslagalegt ekki satt ?

IMG_2412

Afi og Hanna Sól ræðast við fyrir matinn.  Hún þurfti að leita að Baby born dúkkunni sinni, og afi átti að hjálpa; ég hef svo miklar áhyggjur af henni, sagði Hanna Sól. Smile Hún fannst svo undir rúminu hennar.

IMG_2415

Úlfur í fánahyllingu, meðan Vallander lék lausum hala í sjónvarpinu.

IMG_2414

Sú stutta var hress í gærkveldi.

IMG_2419

Það er gaman að leika hott hott á hesti með afa.

IMG_2424

Hehehehe..

IMG_2426

Ú og púrrað í hálsakotið.

IMG_2427

Já ekki að sjá á henni mikinn veikindasvip þessari elsku.

IMG_2431

Svo þurfti líka að greiða ömmu sinni.

IMG_2432

Það var mjög vel gert eins og sjá má.

IMG_2436

Svo þurfti að koma barninu í svefninn. 

IMG_2417

Þessar prinsessur eru í herberginu hennar Hönnu Sólar.

IMG_2437

En hún kemst ekki út að leika í snjónum, því stígvélin hennar eru á Suðureyri, og gallinn var orðin of lítill, svo nú þarf að kaupa nýjan vetrarfatnað.  Hver vissi að veturinn kæmi í dag W00t

IMG_2438

Sú stutta fór nú samt út í kerruna sína til að sofa. 

En nu þarf að sinna henni, því hún er vöknuð og voða lystarlaus, en samt svöng, skiljanlega. 

Eigið góðan dag elskurnar.  Heart

 


Smá mömmublogg og bréfið hans Guðmundar.

Smá mömmublogg, svo langar mig til að setja hér inn frábæra grein frá Guðmundi Hagalínssyni, formanni eldri borgara í Önundarfirði, þar sem hann svarar Ástu Möller.  Þar koma fram ýmsar upplýsingar, sem fólk ætti að vita af. 

IMG_2397

Mágkona mín kíkti við í gær og var með skemmtilegar gjafir handa stelpunum, en það eru óróar frá Indíjánum, sem hrekja vonda drauma í burtu.

IMG_2398

Þessir kíktu líka við.  Júlli fór svo í fjöruferð með Hönnu Sól og Sigurjón, hann er að leita að grjóti í fiska, hann ætlar fljótlega að opna sýningu í Edinborg.

IMG_2402

Amma þurrka !!! LoL

IMG_2404

Sjáðu !! litla sullukollan mín.

IMG_2406

Sunnudagslærið skorið.

IMG_2408

Þórunn fór í morgun, og það var mikill spenningur að burðast með töskuna hennar.

IMG_2409

Amma ég vil ekki fara á leikskólann. Tounge

 

En hérna kemur bréfið hans Guðmundar:

                                                                        Ísafirði 23. september 2008.  Mánudaginn 15. september og miðvikudaginn 17. sama mánaðar, litu dagsins ljós á síðum Morgunblaðsins tvær greinar eftir frú Ástu Möller alþingismann og formann heilbrigðisnefndar Alþingis.  Mig langar til að velta fyrir mér ákveðnum þáttum er tengjast greinum frú Ástu fyrir mér.  Frú Ástu og öðrum til íhugunar.  Að sjálfsögðu ber að þakka það er færst hefur til betri vegar, en ég mun að sjálfsögðu benda þar frú Ástu á það óréttlæti er snýr beint að okkur eldri borgurum.  Frú Ásta talar um það í greinum sínum að allar þær lagfæringar sem orðið hafa á tryggingakerfinu séu gerðar undir stjórn Sjálfstæðisflokksins.  Var það ekki undir stjórn Sjálfstæðisflokksins sem tekið var úr sambandi það ákvæði að miða laun aldraðra við lægstu laun verkamanns?  Sem var afnumið á Alþingi á vordögum að mig minnir 1995.  Hvað varð um byggingu hjúkrunarheimilanna sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson skrifaði upp á að yrðu byggðar í tíð stjórnar Davíðs Oddssonar?Minna má á samkomulag Ásmunarnefndarinnar sem skipuð var í tíð stjórnar Sjálfstæðisflokksins, og segja má að stjórn LEB hafi í raun verið neydd til að skrifa undir, eftir fund með formönnum aðildarfélaganna að Stangarhyl 4 í júlímánuði 2006.Því þar var okkur tjáð að ef við myndum ekki undirrita samningsdrögin eins og þau lægju fyrir að öllu leyti, gætum við farið heim og yrðum við þá á byrjunarreit.  Þessir samningar voru samykktir og nú skulum við rifja upp hvað í þeim stóð.  Hvað varðar uppbyggingu hjúkrunarheimila 2007,  200 hjúkrunarheimili.  2008, 500 heimili, 2009,  900 heimili, 2010, 900 heimili.Þess vegna er ekki úr vegi að spyrja þig frú Ásta, er þetta samkomulag sem LEB skrifaði undir í góri trú, að haldið yrði við, eitthvað í samræmi við að sem þú frú Ásta ert að guma af að eigi að gera af núverandi ríkisstjórn til ársins 2010?Í upphafi talaði ég um það að það bæri að þakka það sem vel væri gert, og að sjálfsögðu er það spor í rétta átt að lofa fólki 67 ára og eldri að halda áfram að vinna án skerðingar tryggingabóta.Nú væri ekki úr vegi að spyrja þig frú Ásta, hvaða vinna er í boði fyrir okkur sem búum í sjávarþorpunum út um allt land, þar sem fiskveiðistjórnunarkerfið eins og það er, er við líði, og ef auglýst er eftir starfskrafti á þessu aatvinnusvæði, þá er háskólaprófs krafist.  Nú er rétt að velta fyrir sér skerðingarákvæði tryggingabóta.  Frú Ásta bendir réttilega á það að skerðingar hafi lækkað úr 67% frá síðustu aldamótum 25% 1. apríl 2008.  Frú Ásta setur up dæmi um einstakling sem leysir út kr. 500.000.- úr séreignalífeyrissjóði og segir að skerðingin  sé 248.000.-, en getur þess ekki að 35% skattur er af þessum 500.000.- og eftir því telst mér til að viðkomandi einstaklingur eigi eftir kr. 73.500.-,  Það er rétt að vekja athygli frú Ástu og annara á því að ef einstaklingur eða hjón eiga sumarbústað eða einhverjar eignir, og hafa ekki náð að losa sig við þær fyrir 67 ára aldur, þá hirðir ríkið 60% í gegnum skatta og skerðingar af uppgefnu söluverði.  Í dag borga ellilífeyrisþegar 35.72% skatt af lífeyristekjum og til viðbótar 25% skerðingu tryggingabóta.  Það væri vissulega ánægjulegt frú Ásta ef þú gætir upplýst okkur eldri borgara um það hvaða lög það eru sem heimila þá eignaupptöku á lífeyristekjum og af fasteignum og öðru því er eldri borgarar vilja selja og nota sem viðbótarlífeyrir?Í lok þessarar greinar langar mig til að fara nokkrum orðum um tilurð lífeyrissjóða, í fyrsta lagi eru ákveðin % af launum og framlag atvinnurekenda, lífeyrissjóðirnir ávaxta sig á ýmsan hátt.  Það er nánasat nokkuð víst að um 50% af greiðslum lífreyrissjóðanna er tilkomið í gegnum vexti og verðbætur, þess vegna væri eðlilegt að um mun lægri skattprósentu væri að ræða á lífeyristekjur til dæmis 15%.Að lokum frú Ásta væri ekki úr vegi að þú sæir þér fært að halda fund með okkur eldri borgurum svo við fengjum tækifæri til að fræða þig á því óréttlæti sem lögleitt var undir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins er mér telst til á 18 ára valdaferli Sjálfstæðisflokksins.  Guðmundur B. Hagalínsson 425 Flateyri.Fyrrverandi bóndi.  Formaður félags eldri borgara í Önundarfirði. 

Eigið góðan dag elskurnar. Heart


Prinsessur og annað fólk.

Þórunn og Guðjón Arnar eru farin á fund með eldri borgurum sem hér er haldinn í dag í stjórnsýsluhúsinu.  Ég ungamamman fór aftur á móti heim í kúluna.  En Júlli minn er svo farin í fjöruferð með Sigurjón Dag og Hönnu Sól, og Ásthildur fékk að fara í heimsókn til Inga sonar míns.  Svo hér er allt með kyrrum kjörum smástund. 

IMG_2386

Haustlitirnir verða alltaf skýrari og skýrari.  Og fegurðin og litadýrðin eykst.

IMG_2364

Himnagalleríið var líka opið í gær, og sendi magnaðar myndir niður til okkar.

IMG_2365

Hér er Solla stirða komin á ný Smile

IMG_2366

Jamm hún er góð.

IMG_2369

Hér er svo prinsessan í allri sinni dýrð, í hásætinu, Úlfur tók þessa mynd, og er líka útlitshönnuður.

IMG_2372

Og í gær var prinsessuherbergið málað, bleikt, að ósk prinsessunnar, sú er ánægð.

IMG_2373

Ævintýraprinsessan mín. Heart

IMG_2375

Og Úlfur er liðltækur við að mála.

IMG_2376

Svo þarf að þrífa penslana og svoleiðis.

IMG_2377

Ganga frá, og þá er nú gott að hjálpast að við verkin.

En ég og gestur minn, hún Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, fórum í bíltúr á Flateyri, og skoðuðum dúkkusafnið þar.  Það er algjörlega frábært safn af dúkkum, sem var gefið til Flateyrar.  Þar er líka hægt að kaupa sér kaffi og með því.  Og kaupa frábærar handunnar vörur, bæði ullarfatnað, dúka og allskonar fallega muni sem konurnar gera sjálfar.

IMG_2378

Þarna er margt fallegra muna til sölu.  Þið megið ekki láta brúðusafnið á Flateyri fram hjá ykkur fara, og ekki gleyma bókabúðinni, svo er hægt að kaupa harðfisk hjá henni Guðrúnu Pálsdóttur, og jafnvel fara í róður með þeim hjónum.  Það er margt hægt að gera á Flateyri, þessu fallega þorpi við ysta haf.

IMG_2379

Það þarf að gefa sér góðan tíma til að skoða allar þessar frábæru dúkkur, sem þarna eru til sýnis.

IMG_2380

Þær eru af öllum stærðum og gerðum, og allstaðar að úr heiminum.

IMG_2381

Þessi er dálítið skondinn hehehehe.

IMG_2382

Flottar ekki satt ?

IMG_2383

Fyrirfólk og þjóðarbrot.

IMG_2384

Þessar greinilega komnar langt að.

IMG_2385

Þetta er bara brot af öllum þessum flottu brúðum, sem safnið býður upp á.  Og svo eru hnallþórur og allskonar meðlæti með kaffinu, allt heimabakað af miklum myndarskap safnhaldara.

IMG_2388

Litla skottið að borða rúsínur.

IMG_2389

ÖmmusnúllaHeart

IMG_2391

Guðjón Arnar er maður með mikla útgeislun, og börnin eru alltaf best í að dæma um það.  Það væsir ekki um Ásthildi á hnjánum á honum.  Smile

IMG_2392

Já það var ýmislegt rætt við eldhúsborðið hjá mér í morgun.  Margt bæði viturlegt og gott, eins og vera ber. 

En eigið góðan dag elskurnar.


Smá mömmublogg.

Ég er með gest hjá mér, það er yndælt, en þýðir að ég hef ekki tíma til að eyða hér í bili.  En ég ætla sð setja inn nokkrar krúttmyndir.

IMG_2354

Það var dótadagur á leikskólanum í gær, Ásthildur vildi hafa bangsa með sér.  En Hanna Sól hafði náttúrulega fína gelludótið sem hún fékk.

IMG_2355

en það var geymt í plastpokanum.  Smile

IMG_2357

Hér er álfkonan á heimilinu.

IMG_2358

Jamm flott ekki satt.

IMG_2359

Og þau fengu sér ís börnin.

IMG_23591

Ásthildur elskar ís, og hún vill helst fá fleiri en einn í einu LoL

IMG_2362

Það er nú samt örugglega hollara að fá sér vitabex með hrásykri og rúsínum.  Heart

eigið góðan dag elskurnar, hér er rigning og sól til skiptis, og farið að kólna.  En ég sit í góðum félagsskap og ræði málin við vinkonu mína.  Heart

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband