Færsluflokkur: Bloggar

Við munum ná okkur á strik, ekki spurning.

Mér sýnist á öllu að fundurinn hafi heppnast mjög vel.  Farið vel fram og þeir sem tóku þátt eru ánægðir.  Enda er málið þannig vaxið að hér er það eftir því sem mér sýnist að meirihluti þjóðarinnar styðji málefin sem unnið er að.  Og þar hafa ýmsir komið fram og lýst yfirvanþóknun sinni á því sem er að gerast með stjórnvöld, tök þeirra á málum, og svo þátt seðlabankans og eftirlitsstofnana.  Og svo auðvitað peningapunganna, sem hafa hreinlega stolið frá þjóðinni, með samþykki stjórnvalda.

Þeir fjölmiðlar hér sem tala um 500 hundruð manns eru aumkvunarverðir.  þeir skynja ekki hlutverk sitt, og því síður ólguna í samfélaginu. Það er aumkvunarvert fyrir fjölmiðla, að vera slík handbendi stjórnvalda og útrásaraðilja, að skilja ekki hlutverk sitt, sem ætti að vera að sýna þjóðarviljann vera hlutlausir, og setja sannleikann, án tillits til hver er þeirra yfirboðari.  Við erum ekki bara að verða að athlægi á alþjóðavísu fyrir peningaúrsásarliðið, heldur er gert grín að okkur fyrir þvílík leiguþý fjölmiðlarnir eru.  Mér finnst stórundarlegt að fjölmiðla fólk skuli ekki átta sig á því, að þó svo við höfum farið einhver 30 ár aftur í tímann efnahagslega séð.  Þá erum við ennþá tengd við tölvur, og lesum erlenda fjölmiðla, og skoðum lífið ekki bara út frá því sem sagt er Á Rúv og slíkum fjölmiðlum.  Þvílíkur barnaskapur að halda að það sé hægt að ljúga að þjóðinni á ögurstundu, ég segi nú bara ekki margt.

En elskurnar lifið heldur áfram.  Ég var með pabba gamla í mat, síðast þegar hann var hér, stungum við upp á að horfa á Svarta engla eftir matinn, hann fussaði og sveiaði, sagðist aldrei horfa á svona þætti hehehe... nú í kvöld, þegar við vorum búin að borða, sagði minn maður; jæja eigum við ekki að horfa á þáttinn LoL Og jú, við fórum upp og horfðum á Svarta engla, sem er þvílíkt flottur þáttur.

En hér voru ekki færri en 10 börn þegar mest var.  Það var sko fjör í kúlunni, get ég sagt ykkur. 

IMG_2898

Svona borða prinsessur ís.Tounge

IMG_2899

Litla skottan hennar ömmu sín.

IMG_2901

Þessi skotta líka nýbúin að borða ís.

IMG_2902

Og amma eldaði grjónus, og hann bragðaðist mjög vel, þurfti að elda tvisvar, og auðvitað með kanilsykri. 

IMG_2903

Já þau hreint og beint elska grjónagraut.

IMG_2905

Og Hanna Sól var klædd upp og greidd, en Óðinn Freyr flýði undan myndavélinni LoL

IMG_2906

Já tíminn líður, litlu börnin sem hér voru í gær, eru komin á gelgjuna, samt yndisleg.

IMG_2907

Það týnist allt í kúlunni, úlpurnar og skórnir, bara að nefna það.  Ég held að álfarnir taki þetta og feli Blush

IMG_2908

Hér er litla dýrið að rétta ömmu bananahýði, en hún sér að amma er með myndavélina og þess vegna er víkur hún sér undan. LoL Ótrúlega flott af eins og hálfs árs lítilli stúlku.

IMG_2910

En þessi er sko alveg til í að sitja fyrir Heart

IMG_2909

Stóru skvísurnar mínar, hér er kista með allskonar fötum, sem þau hafa gaman af að klæða sig í.  Meira að segja ennþá. Heart

IMG_2911

Já þau hafa gaman af þessu, börnin. 

IMG_2914

Það þarf ekki mikið til, að fá fram barnið í okkur.  Ef við bara leyfum það.  Að geyma barnið í sjálfum sér, er eitthvað það mikilvægasta sem til er. Heart

Jæja elskurnar ég vona að þið eigið góða drauma, og megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur öllum og vernda. Heart


Fundurinn á morgun.

Á morgun verður merkisdagur.  Það verður uppreisnardagur Íslands, ef til vill verður hans minnst eins og 1. desember.  Dagurinn sem þjóðin reis upp og heimtaði réttlæti.  Dagurinn sem snéri vörn í sókn.  Tíminn mun leiða það í ljós, en eitt er víst, til að þáttaskil verði, þá þurfa nokkur þúsund manns að mæta á útifundinn.  Það gengu 12.000 manns niður Laugaveginn með Ómari Ragnarssyni til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun og arðráni stjórnvalda á landinu okkar.  Man ekki hve mörg þúsund mættu á kvennafrídaginn.  En í dag, minnumst við þes að stjórnvöld orðið þess valdandi að margir hafa misst spariféð sitt, og sumir sjá vart fram úr skuldafeni, við stöndum niðurlægð og einmana í hinum stóra heimi.  Það sem stjórnvöld hafa gert, svo eftir hefur verið tekið, fyrir utan all hitt, er að hafa ekki tíma til að vera á blaðamannafundi, vegna þess að það þurfti að bregða sér á íþróttaleik.  Sumir voru allof uppteknir í kosningabaráttu inn í heimsráð, sem fæstir íslendingar vildu að við færum í, og flestir töldu að væri sóun á fjármagni.  Enda fagnar almenningur því við náðum ekki kosningu, meðan ráðamenn sitja súrir og sárir.  Var einhver að tala um gjá (hyldýpi) milli ráðamanna og þjóðar... eða þannig. 

Það var þegar allt var vitlaust út af fjölmiðlalögum.  En núna þegar þetta gap er orðið að risastórri sprungu, þá gerist ekki neitt.  Hvers vegna skyldi það nú vera?  Forsetinn of innviklaður í útrásina ?

Á morgun heimtar alþýða landsins að seðlabankastjórar fjúki, að menn verði látnir bera ábyrgð á afglöpum sínum.  Er það mikið að fara fram á ?  Ég segi nei.  Ef svona lagað hefði gerst í einhverju útrásarfyrirtækjanna, þá hefðu hausar verið látnir fjúka, og það miklu fyrr.

En ef svo fer að okkur auðnist að láta til okkar taka á morgun, og það verði til þess að bankastjórar verði látnir taka pokann sinn. Þá er þessu ekki þar með lokið.  Því þá byrjar næsta skref.  Það er að krefjast þess að allir hinir verði líka látnir axla ábyrgð. Þá munu renna upp tímar þess að menn svari fyrir gjörðír sínar.  Þá mun hefjast nýtt tímabil í sögu Íslands.  Tími hins nýja Íslands.  Tími hreinsana, og réttlætis, handa þeim sem hafa svo sannarlega þurft að sitja og láta sér nægja bitana af borði þeirra sem hafa fleytt rjóman ofan af landsins gæðum alltof lengi.

Það hefur aldrei verið líklegra en einmitt nú að það gerist.  Akurinn er plægður, það hafa þeir gert sjálfir sem að þessu stóðu.  Sáningin hefur verið að koma smátt og smátt, og ef allt fer vel, þá verður uppskeran góð.  Það er komin tími til að Unga Ísland rísi úr öskustónni.  Að fólk fái að njóta sín vegna eigin hæfileika, en ekki vegna frændsemi eða klíkuskapar.  Það sést aldrei betur en núna, að þegar mannauðurinn er ekki virkjaður, þá fer illa.  Það er aldrei hægt að handstýra "réttlætinu".  Þess vegna er nauðsynlegt að þeir hæfustu séu valdir, en ekki nánustu.  Á endanum verður það öllum fyrir bestu. 

En fari svo að réttlætið sigri, þá skulum við aldrei gleyma því, að lýðræðið er dýrmætt, og það virkar ekki nema við veitum því aðhald.  Að við verðum að vera virk og samstíga í því að leyfa lýðræðinu að virka.  Þá þýðir ekki að kjósa af hlýðni við einhverja, eða af því að maður hefur alltaf kosið það sama.  Heldur verður hver og einn að bera ábyrgð á því, að veita ekki umboð sitt, nema viðkomandi hafi sýnt að hann sé traustsins verður.  Þetta verðum við að hafa í huga.  Lýðræðið er brothætt, og við höfum klúðrað því, rétt eins og útrásarliðið, af því að við höfum sofnað á verðinum, og leyft ráðamönnum að komast upp með hvað sem er. 

Ég held að þjóðarsálinni hafi verið brugðið núna, og ég held líka að ef við höldum rétt á spöðunum, þá geti þessi lífsreynsla orðið okkur til góðs.  Ef við höldum þannig á spöðunum, og förum að hugsa út fyrir eigin rann, og huga að heildinni.  Við getum allt sem við viljum.  En við þurfum að vita hvað við viljum, og sameinast um að láta það rætast.  Þá munum við standa uppi sigurvegarar, og ekkert mun þá geta bugað okkur. 

IMG_2872

Landið okkar fagra, verndum það og hugsum um framtíðina.

IMG_2873

Verum á verði gagnvart þeim sem vilja eyðileggja víðerni okkar, í stundaræsingi, eða að notfæra sér ástandið, meðan fólkið er lamað, til að knýja fram enn fleiri álver og stóriðju sem færir okkur sáralítið, en er aðallega gróði fyrir erlenda auðhringa, sem sumir hverjir hafa ljóta sögu á bakinu.

IMG_2874

Ég held að meiri hagsmunir liggi í framtíðinni í ósnortinni náttúru en öllum álverum heimsins.  Því ál á eftir að verða úrelt, en sífellt fækkar þeim svæðum sem við getum kallað ósnortin.

IMG_2880

Enda er sálarheill manneskunnar í veði ef hún hefur ekki náttúruna.

IMG_2882

Þó hlutirnir líti ekki nógu vel út í augnablikinu, þá munum við ná vopnum okkar.  Ég bið og vona að við fáum eitthvað um það að segja sjálf, hvernig við vinnum okkur út úr því, en að við höfum ekki ráðríkt stjórnvald, sem ætlar að sitja og ráða hverjir lifa og hverjir deyja.  Við erum nú einu sinni víkingar.

IMG_2885

Þetta er landið okkar.  Og framtíðin er líka okkar allra ekki bara sumra.

IMG_2887

Við megum aldrei gefa frá okkur réttinn til að vera til, við megum aldrei láta einhverja aðra ráðstafa framtíðinni okkar og barnanna okkar.  Þá verðum við að þora að segja NEI!

IMG_2870

Þetta er ísland í dag.  Við erum öll íslendingar, sem höfum kosið að búa hér, starfa hér, og ala upp börnin okkar hér.  Og þá má enginn skorast undan.

IMG_2876

Við megum ekki hugsa um gærdaginn, eða daginn í dag eða á morgun.  Því við höfum tekist á hendur það verkefni að skila ungviðinu inn í framtíðina.

IMG_2879

Sú skiyda er heilagri en nokkur útrás, eða innrás, eða gróðavon.

IMG_2884

Og þeirri skyldu megum við ekki bregðast.  Hugsum um framtíðina, og börnin okkar.  Við getum stoppað vitleysuna, á morgun er það ef til vill orðið of seint.

IMG_2886

Við erum líka þannig innbyggð, að þó við ef til vill séum ekki tilbúin til að berjast fyrir okkur sjálf.  Þá erum við örugglega tilbúin til að berjast fyrir það sem er okkur heilagt.

IMG_2889

Það er fjölskyldan, heimilið og meðbræður okkar og systur.

Þess vegna bið ég ykkur sem eruð fyrir sunnan, að sleppa því sem þið eruð að gera, og mæta á fundinn okkar allra.  Mæta fyrir okkur hin lika sem erum of langt í burtu til að komast.  Því þetta er mikilvægt. 

Við skulum ekki vera reið.  Ekki dónaleg.  En ákveðin í að láta sjá að okkur er alvara með því að vilja að réttlætinu sé fullnægt, og þeir sem bera ábyrgð á sorginni, eyðileggingunni og niðurlægingunni, verði látnir axla þá ábyrgð sem þeir hafa unnið til.  Elsku vinir mínir.  Bljúg í huga bið ég þess að fundurinn á morgun verði þáttaskil í okkar lífi.  Og að þaðan byrji endurnýjunin og uppbyggingin, sem við öll þráum.  Ég býð góða nótt. Heart

 


Sextán skrokkar - 45 fiskar !!!! Hvar er réttlætið ?

Já röggsemin er til í kerfinu, víst er um það;

Lögreglan tók sextán skrokka

bilde 
Ólöglegt er að selja heimaslátrað kjöt. Það hefur þó aukist að mati lögreglunnar á Hvolsvelli.

Lögreglan á Hvolsvelli lagði á miðvikudagskvöld hald á sextán lamba­skrokka, 300 kíló, á leið til Reykjavíkur til sölu.

Heimilt er að slátra dýrum á bóndabýlum en eingöngu til eigin neyslu. Dreifing á heimaslátruðu kjöti hefur hins vegar aukist að mati lögreglunnar á Hvolsvelli. Fjöldi tilkynninga um slíkt hafi aukist og lögreglan farin að fylgjast betur með þeim.

Bóndinn sem á í hlut á yfir höfði sér sektir og allt að tveggja ára fangelsi, verði hann fundinn sekur og brot hans talið alvarlegt. - hhs

En án þess að ég vilji hvetja til lögbrota, þá vil ég spyrja; er þetta nú mesti glæpurinn í dag ?  Væri ekki betra að snúa blinda auganu að því þegar menn vilja bjarga sér á þessum síðustu og verstu tímum.  Það er verið að vinna að því að gera heimaslátrun almennari og losa um höft og reglur, enda er enginn skynsemi í því að banna mönnum að selja heimaslátrað kjöt.  Þar er bara verið að vernda sláturleyfishafa, og ekkert annað sem það liggur að baki.  Það hefur aldrei neinn dáið af því að eta heimaslátrað kjöt.  Svo hver er þá forsendan fyrir banni, ef það er ekki til að vernda þá sem græða á því að vera milliliðir milli bænda og neytenda ?

Reynið að einbeita ykkur að aðalatriðum lífsins stjórnvöld, og látið okkur í friði með að lifa af þessar hremmingar, hvort sem það er að selja heimaslátrað kjöt, eða róa til fiskjar.  Við viljum fá að bjarga okkur út úr vandanum.  Ef þið ætlið endalaust að vera að verja vini og vandamenn, þá snáfið bara úr stólunum ykkar, og þangað sem þið eyðileggið ekki meira en þið hafið gert nú þegar.  Svei ykkur bara.  Það er hingað og ekki lengra.  Vonandi verður fundurinn fjölmennur í dag í miðborginni.  Svo þið virkilega sjáið að fólk er búið að fá nóg.


Svo er nú það. Blaðamannafundir hvað !!!

Jæja ekki gerist nú mikið á stjórnarheimilinu.  Það eru haldnir blaðamannafundir um ekkert, og það gerist voða lítið.  Ekkert sem hjálpar fólki.  Skilja þessir ágætu menn ekki, að hér þarf hraðar hendur með akútmálefni, eins og að frysta útgjöld og rukkanir, meðan allt er í lamasessi ?  Nei þeir halda blaðamannafund, og allt er leyndó, og lýðurinn logar sem aldrei fyrr.  Stíflan er að bresta, og það er bara eitt stykki blaðamannafundur um ekki neitt.  Ég get svo svarið það, hvar eru menn að hugsa.

  Það var sláandi kastljósið í kvöld, með öll ummælin og flottræfilsháttinn.  Gott framtak hjá þeim. Gefur fyrirheit um eitthvað bitastæðara, þó við vitum svo sem að það má ekki halla á stjórnvöld sjálf, nema bara í spaugstofunni.  En þessi Kastljósþáttur minnti mig óþægilega á þann ágæta sjónvarpsþátt.

Nei héðan af er sennilega best að stíflan springi og fólki streymi fram og krefjist afsagnar seðlabankastjóranna, en fólk mun ekki stoppa við það, trúið mér, skriðan mun svo taka ubeygju að stjórnarráðinu og hitta þar fyrir sökudólgana, sem stóðu að þessu öllu saman, ásamt seðlabankanum og eftirlitinu.  Auðkífingarnir hafa haft nægan tíma til að koma sínu vel fyrir borð og eru allir sem einn horfnir á braut.  Það stóð sennilega aldrei til neitt annað hjá þeim blessuðum.

En nóg um þetta, gat bara ekki stillt mig.  Því þetta vindur stöðugt upp á sig.  Og fólkið í fílabeinsturninum, situr bara og horfir yfir akurinn, og finnst það vera að bjarga heiminum, og við eigum öll að vera rosalega þakklát þeim fyrir.  En gleyma því að það voru þau sjálf sem kveiktu eldana í upphafi, og BER því að slökkva og minnka skaðan eins og hægt er. 

IMG_2853

Leikskóli lífsins, ef allt væri eins saklaust og einfalt og hjá blessuðum börnunum, þá liði okkur betur.

IMG_2854

Hanna Sól er dugleg að hengja sjálf upp kápuna sína og fara úr skónum, og koma sér inn í fjörið.

IMG_2855

Hún er í kjöl og sokkabuxum sem hún fékk sendar frá ömmu á Hellu.

IMG_2856

Skottið með ís, hún er beinlínis ísóð, þessi litli grallari. 

IMG_2858

Hér er stóri frændi að plata hana til að borða sítrónu LoL

IMG_2859

Og afi alveg jafn mikill stríðipúki.

IMG_2862

Neibb hún er ekki að væla, eða reið, þetta er sítrónufés LoL En henni fannst sítrónan samt góð.

IMG_2863

Amma taktu mynd, segir prinsessan.

IMG_2865

Og stubbur smakkar líka sítrónuna.

IMG_2867

Skottið vill svo meira af súrinu Tounge

IMG_2868

Hanna Sól talar við ömmu á Hellu í simann.  Hún er alvarleg og vandar sig að tala rétt.  En það gerir hún reyndar alltaf. Smile

Já nú er nóttin komin og tími til að fara í holuna sína.  Þó ég hugsi stjórnvöldum þegjandi þörfina, þá líður mér samt vel.  Peningar eru ekki allt.  Það er aftur á móti fjölskyldan, börnin og kúlan og allt hér i kring um mig.  Það skiptir máli.  Og svo vinir og vandamenn, þið komið þar sterklega inn Heart

Í svona krísum er gott að finna sálufélaga.  Og fólk sem er á sama róli og maður sjálfur.  Það eykur samkenndina, og maður finnur svo vel að maður er ekki eyland,  heldur félagsvera, eiginlega hjarðdýr, þó maður falli ekki alltaf inn í ramman sem samfélagið setur, þá raðast maður innan um hina. 

En ég sendi ykkur öllum knús og faðmlag, vona að þið hafið það öll sem best.  Og sendi hlýjar kveðjur til þeirra sem eru að missa vinnuna, og þeirra sem hafa tapað stórt, jafnvel með þung lán á herðunum.  Við skulum bara muna að stundum þegar manni finnst lífið leika mann grátt, þá er það oftar en ekki upphafið að einhverju ennþá betra.  Maður sér það bara ekki mitt í hringiðunni.  Þá er að bíða og sjá hvað gerist.  Knús og góða nótt Heart


Það er komið að okkur núna fólkinu í landinu. Við eigum rétt á því að fá að upplifa réttlæti og heiðarleika.

Já það eru skrýtnir þessir dagar.  Eitt er alveg á hreinu hjá mér, ég vil "standa saman", með islensku alþýðufólki.  En ég harðneita "að standa" saman með þeim sem eiga hér sök á þeim vanda sem við erum í.  Ég hreinlega segi að allt uppbyggingarstarf er í hættu, ef þeir sem nú halda um stjórnvölin, og þá á ég einkanlega við Sjálfstæðisflokkinn, fara ekki frá, þá er ekki hægt að tala um uppbyggingu.  Þetta fólk er algjörlega rúið trausti fólksins í landinu.

Eitt er að naga sig í handarbökin yfir að tapa fé, eða horfa upp á sitt fólk tapa stórt.  Annað er að vera reiður þeim sem þannig spiluðu.  Sér í lagi, ef þeir hafa notað tímann í sumar og haust til að flytja gullið sitt úr landi, og koma fé sínu fyrir þar sem ekki næst í það. 

En málið er að þessir menn spiluðu eftir því kerfi sem upp var gefið.  Þó þeir séu siðlausir, þá er það vitamál að enginn er annars bróðir í leik.

Og mín reiði beinist fyrst og fremst að þeim mönnum sem settu ramman utan um þessa vitleysu, og þegar þeim var bent á að þetta gengi ekki, þá stungu þeir því undir stól, og það voru líka margir sem hafa varað við þessu, og ekki var hlustað á það heldur. 

Hvernig dettur þessum mönnum eiginlega í hug, að hægt sé að treysta þeim til að halda áfram, eins og ekkert hafi í skorist.  Halda þeir að við séum svona vitlaus, eða halda þeir ef til vill, að við séum svo sinnulaus, að enn einu sinni fái þeir frítt spil ?

Ójá ég held að það sé raunin.  Þeir eru orðnir svo góðu vanir frá okkur sauðþráum kjósendum,  að þeir halda að þeir komist upp með hvað sem er.  En mér heyrist á fólki að það sé búið að fá nóg.  Loksins er fólk komið með upp í háls á vitleysunni, og vill ekki meir Geir.

Ég heyri á mörgum, að þeir vilja snúa baki við sökudólgunum.  Það er bara spurning um hvert þeir snúa sér.  Þar þurfa hinir flokkarnir að skerpa línurnar og bjóða fram það sem þeim liggur á hjarta, svo fólk geti gert upp við sig hvar það vill bera niður.  Það er verkefni sem aðrir flokkar þurfa að taka alvarlega.  Það þýðir ekki að stofna enn einn stjórnmálaflokkinn, það hlýtur að vera hægt að finna eitthvað í hinum flokkunum, sem menn geta sætt sig við.  Eða ganga inn í flokkana og breyta áherslum, það er sjónarmið út af fyrir sig. 

Nei það er alveg á hreinu að fólk hefur ekki orku í að byggja upp, með þetta lið hangandi á sínum stað áfram.  Það virðist eins og fólk þekki ekki sinn vitjunartíma.  Í seðlabankanum sitja menn gjörsamlega rúnir trausti langt út fyrir landsteinana.  Eigum við að sætta okkur við að þeir sitji sem fastast ?

Og í ríkisstjórninni er fólk sem ekki hefur dug í sér til að láta þá fara, eigum við að sætta okkur við það ?

Samfylkingin hefur þó reynt að þvo hendur sínar af þessu, en hún hefur því miður sofið á verðinum líka.  Hún á samt ekki þessa flekkuðu sögu  eins og samstarfsflokkurinn, svo hún ætti að geta klofið meirihlutan og neytt Geir út í kosningar.  Í rauninni væri það eina rétta.  Það þýðir ekki að segja að málið sé of viðkvæmt til að fara að standa í kosningum núna.  Þá á að setja upp þjóðstjórn, meðan verið er að reisa landið úr því helsi sem það er í í dag.  Ráða fólk sem hefur reynslu og vit til að vinna fumlaust og örugglega að uppbyggingunni.  Það eyðir líka óttanum um að menn ætli að hygla sér og sínum, eins og flestir óttast núna, og nóta bene að fenginni reynslu undanfarna tvo áratugi.

Byrjum upp á nýtt, með nýtt fólk í brúnni,  nýja áhöfn og nýuppgert fley.   Það sem nú er verið að reyna að gera að tjasla saman brotunum, fela sumt, stikla yfir annað, færa til og líma saman, gengur bara ekki því miður.  Við einfaldlega viljum það ekki.  Við viljum öryggi og traust, festu og áræði.  Nýtt blóð og réttlæti. Það fæst ekki ef þetta á að danka svona eins og það hefur gengið, og alltaf nýtt og nýtt að koma í ljós, undan teppinu, sem hefur verið sópað þangað af því að það var of viðkæmt.  Svei ykkur bara. 

En nú hef ég rausað nóg. Hér eru telpur sem gleðja augu og sál.

IMG_2848

Það er enginn latur í Latabæ.

IMG_2849

Og við þurfum að læra að lesa og skrifa.

IMG_2850

Og þó sumir vilji menga umhverfi okkar, og nota tækifærið núna til að heimta allskonar virkjanir og skemmdarstarfssemi á landinu okkar fagra, skulum við ekki láta glepjast af þeim, sem þannig hugsa, því það er einmitt það sem við erum að upplifa núna afleiðingar botnlausrar græðgi.

IMG_2851

Við skulum muna að hreinleiki lands er að verða sérstök auðlind, sem sífellt verður eftirsóttari og dýrmætari, eftir því sem slíkum perlum fækkar í heimi græðgi og auðvalds.

IMG_2852

Við eigum ekki þessa jörð, heldur höfum við verið svo lánsöm að fá að lifa á henni, og vera með í heimskeðjunni.  Við getum ekki skilað henni eins og við tókum við henni, en við getum reynt að lámarka skaðann. 

Burtu með spillinguna, burtu með feluleikinn, burtu með hrokan og eiginhagsmunastefnuna.  Stöndum saman um að hrekja þetta af höndum okkar, stöndum saman um að krefjast þess að fá hreint borð til að byrja nýjan dag, nýtt líf.  Við skulum standa saman um að krefjast þess að fá frið til að byggja upp aftur samfélagið Ísland.  Elskulegt fullt af væntumþykju og heiðarleika.  Við fólkið í landinu eigum kröfu á að fá að vera til, vitið hvað ? Það er komið að okkur núna.  Elskurnar ég segi góða nótt.  Stöndum saman, knúsumst og krefjumst réttlætis og heiðarleika Heart


Fallegur dagur, sund og Ýmislegt.

Það var yndislegt veður í dag, það þýðir líka að maður þarf að vinna meira, og reyna að koma einhverju af haustverkunum í verk.... eða þannig.

En það var virkilega fallegt veður í dag.

IMG_2762

Hvíta röndin á fjallatoppum er komin til að vera í vetur held ég.

IMG_2764

Það er friðsælt í Skutulsfirðinum oftast nær.

IMG_2765

Og svo upp í hlíðina fyrir ofan húsið mitt.

IMG_2761

Og Ísafjörðurin blasir við, þegar komið er út úr göngunum.

IMG_2766

En við erum að fara í sund á Suðureyri, eftir leikskólann, Hanna Sól tók þessa mynd af afa og Ásthildi.

IMG_2767

Hér er svo hún sjálf.

IMG_2768

Hér eru þau svo komin ofan í stóru laugina.  Hanna Sól er eins og fiskur í vatninu.

IMG_2769

Við tvær héldum okkur að mestu í barnalauginni, því Ásthildur harðneitar að hafa kúta.

IMG_2772

Afi vildu kasta mér !!!

IMG_2773

Vííí! gaman!!!

IMG_2776

Best að kanna málið.

IMG_2780

Já þetta er svolítið of stór laug fyrir mig.

IMG_2786

Betra að vera bara hjá ömmu í barnalauginni.

IMG_2791

Og þó, hitt er meira spennandi.

IMG_2803

Í boltaleik við afa.

IMG_2811

Ég vil fá ÍS!!!

IMG_2816

Já, það var auðvitað látið eftir.

IMG_2821

Við höfðum smá brauð með fyrir brabra.

IMG_2826

Sumum fannst þær þó full aðgangsharðar, enda eru þær rosalega stórar miðað við litla stúlku sem er bara eins og hálfs. Heart

IMG_2829

Hinn magnaði Súgandafjörður á leiðinni heim.

IMG_2830

En þær fengu svo risastóran pakka frá pabba sínum. Og í honum var búningur Sollu stirðu fyrir Hönnu Sól.

IMG_2840

Og svo var talað í símann við pabba.

IMG_2843

Hér er hún komin sjálf Solla stirða.  Ekkert smáflott.

IMG_2846

En Solla stirða fær orku úr Veetabix með rúsínum, en ekki sykri.

Já það var mikið um að vera í dag.  Og ég segi bara góða nótt, og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda. Heart


Sönn vinátta varir að eilífu.

Já maður er nú dálítið upptekin af allri þessari umræðu í þjóðfélaginu.  Það er eiginlega eins og það sé steinn í maganum á manni.  Og alltaf heyrast fleiri nöturlegar fréttir.  Ég vona samt að við komumst öll heil út úr þessu stríði.  Ef við reynum að styðja hvort annað, og hver lítur eftir næsta manni, þá gæti farið betur en áhorfir nú. 

En veðrið er ágætt hér heldur farið að kólna, en fallegt veður og birtan mjög sérstök.

 12.10.08 003

Já það dimmir óðum, en þá er gott að hafa kertaljós og hygge sig.

12.10.08 001

Börnin geta leikið sér saman öll þrjú.... stundum. Tounge Annars er Úlfur voða duglegur að hjálpa til með stelpurnar.

12.10.08 002

Skottan mín stóra.

12.10.08 004

Og hér eru þær báðar að fá sér kókópuffs. 

12.10.08

Þessi mynd er tekin árið 1998, í september, ég var sum sé að fara yfir gamlar myndir.  Stubburinn minn og stubban.

En ég á tvær yndislegar vinkonur, sem ég hef átt síðan 1963, við unnum allar í SÍS í Austurstræti, ég í skóbúðinni, en þær í versluninni fyrir ofan.  Svo datt mér í hug að fara til Skotlands að vinna, lenti að vísu í ýmsum ævintýrum í sambandi við það.  En lofaði að ég skyldi útvega þeim vinnu líka.  Ég fór að vinna á elliheimili, en það var hræðilega erfitt, við máttum ekki fara út eftir níu á kvöldin, og ég undi hag mínum illa.  Loks fékk ég starf sem aupair, og reddaði þeim svoleiðis vinnu líka, þær komu svo út og við áttum skemmtilegar stundir saman, í Glasgow, en síðan hefur okkar vinátta haldist, þær komu reyndar ekki aftur heim, önnur kom eftir mörg ár, en hin er ennþá búsett úti, nú í Köln í Þýskalandi.  En nóg um það. Ég rakst á þessar skemmtilegu myndir af okkur vinkonunum.

vinkonur

Þessi mynd er tekin árið 1993, en þá höfðum við ekki hist allar þrjár í þrjátíu ár. Hér erum við að rifja upp gamla skemmtilega tíma.

12.10.08.1

Þessi er svo tekinn árið 1994.

Vinir

Og 1998.  Það er rosalega gott að eiga góða vini. Ég ég á nokkrar svona æskuvinkonur, Dísa mín blessunin er sú elsta, og Matthildur við ólumst upp saman.  Svo á ég sænska vinkonu, og við höfum alltaf samband, hef þekkt hana síðan 1962, þegar ég fór í lýðháskóla í Vimmerby í Småland í Svíþjóð. Og svo þessar elskur.  Og auðvitað margar fleiri. 

3

Þessi mynd er tekin sama ár, eða 1998 í Tívolí í Danmörku.  Heart

En ég var að fá myndir af litla barnabarninu mínu að sunnan, honum Arnari litla Milos.

n590254489_674379_3092

Ósköp notalegt með pabba sínum.

n590254489_674399_8601

Mömmur eru líka alveg spes Heart

n590254489_776189_3435

Ekkert smá sem hann hefur stækkað, síðan ég sá hann síðast. Heart

n590254489_776190_3732

Fallegur drengur. Og með þessum yndislegu myndum býð ég ykkur góðrar nætur elskuleg. Heart


Kæru vinir gangið á vegum almættisins, fram á veginn. Gæfan liggur þar falin bak við stein, eða undir steini.

Það er ennþá hlýtt, og hefur verið heilmikil rigning.  En það er hlýtt í kúlunni, og ungviðið hefur ekki rosalega áhyggjur af framtíðinni.  Reyndar hafa þessi eldri ýmsar spurningar, og fylgjast vel með líðan eldra fólksins, það er von. Þau vita ekki hvað er að gerast frekar en við hin.  Og þess vegna mótast ástand þeirra af framkomu okkar.  Við ættum að hafa það fastlega í huga.  Við viljum ekki meiða litlar saklausar sálir, þó reiðinn brenni inn í fólki.  Ekki láta hana lita heimilislífið.  Það er hægt að finna henni útrás með því að hitta annað fólk, og endilega taka þátt í mótmælum og láta í sér heyra opinberlega.  En inn á heimilinu, þarf að ríkja ró og friður, og kærleikur handa þeim litlu. 

IMG_2683

Amma var rifinn upp klukkan sjö í morgun,

IMG_2695

Þessar tvær gáfu engan grið.  Hér eru þær reyndar báðar búnar að borða morgunmat.

IMG_2723

En það var rosalega gaman að hnoðast á ömmu sín. 

IMG_2731

Jamm það er fjör.

IMG_2722

Prinsessur eru nú samt alltaf settlegar.

IMG_2736

En þetta er hr. róbót.  Hann er dálítið skerí, en ekki alveg strax.  Fyrst er ekki almennilega tekið eftir því hve hann er vondur.

IMG_2737

En fólk áttar sig samt á því að hér þarf að fara með gát.

IMG_2740

Og sumir átta sig fljótlega á því að trúðurinn er ekki endilega góður.

IMG_2741

Já að lokum rennur það upp fyrir hverju mannsbarni, hvers lags skaðræðisgripur hann getur orðið.

IMG_2742

En það má ekki fjarlægja hann, því enginn þorir að koma nálægt honum.  Sem er synd því þetta fólk er framtíðin.

IMG_2744

Þá er nú betra að skoða kisubókina.

IMG_2746

Fá sér ávexti..

IMG_2754

Eða horfa á sjónvarpið.

IMG_2749

Fá sér jafnvel lúr.

IMG_2751

Eða vera í skjóli pabb og mömmu.

En ég skynja reiði í þjóðfélaginu, örvæntingu líka.  Þetta er eins og við fráfall, fyrst er fólk sjokkerað, síðan koma sárindi, og sorgin, síðan kemur reiðin.  Þessi reiði er að koma fram núna, eftir því sem lengra líður, og ömurlegheitin koma í ljós.  Eftir því sem ljósara verður að stjórnvöld eru ekki að gera það sem þarf að gera.  Hvar eru lækkaðir stýrivextir, af hverju er ekki búið að frysta lánin, og gefa sprautu í atvinnulífið með afgerandi hætti, svo hjólin geti farið að snúast aftur ?

Nei það eru bara haldnir fundir, þar sem enginn svör eru gefinn.  Það er verið að vinna í málinu, það er ekki hægt að svara þessu.  Ég ekki sagt um þetta en hugsanlega hitt.  Vek athygli á að það var hægt á einni kvöldstund að koma því svo fyrir að hægt væri að taka bankana trausta taki.  Svo það er engin afsökun að ekki sé hægt að vinna önnur aðkallandi mál jafn hratt.  Það er bara fyrirsláttur að mínu mati, svona svipað og olíufélögin, eru fljót að hækka bensín þegar heimsmarkaðsverð hækkar, en draga svo lappirnar þegar heimsmarkaðsverð lækkar, þá eru alltaf einhverjar fyrirstöður og fyrirsláttur.  Hér á sama við.

Nú hefði verið lag að auka kvóta bændanna, og smábáta, auka línu og krókaveiðar.  Nei það má ekki, það skal byrjað á að leita uppi lán út í heimi.  Þó það sé góðra gjalda vert.  Þá er það öfugur endi að mínu mati.  Hitt er forgangsverkefni.

Nú væri lag fyrir Samfylkinguna að rjúfa samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn og taka höndum saman við stjórnarandstöðuna. 

Þetta blaður um að nú eigi allir að standa saman og snúa bökum saman og ekki leita að sökudólgum er kjaftæði.  Ég hef nefnilega ekki sömu sýn á það og þeir sem með völdin fara.  Ég held nefnilega að þetta sé gert aðallega til að flokksmaskínan nái vopnum sínum og geti farið að snúa öllu við sér í hag.  Þeir hafa sínar leiðir til þess, það hafa dæmin sannað.  Tannhjól þeirrar maskínu eru vel smurð, en hafa lamast í augnablikinu, vegna þess að það átti enginn von á þessum ósköpum.

Auðvitað eiga allir að standa saman á erfiðum tímum.  En ekki þannig að þeir sem ábyrgð bera sleppi við allt.   Nei hér þarf að rista upp ýmislegt, og það er nauðsynlegt að fólk fái að vera reitt, og hafa hátt.  Það er nauðsynlegt að það hittist og láti í sér heyra.  Reiði á aldrei að byrgja inni, því þá fer hún í líkamlega sjúkdóma.  Reiðin sem sýður í fólki beinist auðvitað að þeim sem komu okkur í þetta ástand.  En það eru auðvitað útrásarliðið, sem mér skilst að sé meira og minna flúið af landi brott, og ekki síður þeir sem hér hafa staðið vaktina síðastliðin 17 ár eða svo.  Þeir sem hönnuðu þetta ferli.  Þeir sem áttu að líta eftir hagsmunum okkar, og verja almenning í landinu.  Og eftirlitsstofnanir sem áttu að vinna vinnuna sína. 

Þessum aðilum hefði verið fyrirgefið, ef þeir hefðu strax brugðist við og bjargað því sem bjargað varð.  En nei því miður hefur hvert axarskaftið rekið annað.  Og menn gert ill verra með fljótfærni og kæruleysi, en ekki síður seinagangi og aðgerðarleysi.  Fólk er líka reitt vegna þess að því var sagt að hér væri allt í stakasta lagi.  Og það er að renna upp fyrir því, að auðvitað vissu menn miklu betur.  Sannleikanum var leynt.  Því menn vildu ekki rugga bátnum.  En það gleymdist að það var ráðstöfunarfé fólksins sem um var að ræða, en ekki persónulega vasapeninga viðkomandi. 

Nú vil ég sjá þetta gerast ekki seinna en strax á mánudaginn; Öll lán verði fryst, allar rukkanir frá ríkinu, gjöld og skattar, allt fryst.  Stýrivextir lækkaðir.  Eftirlaunafrumvarp alþingismanna og annara ráðamanna, svo sem eins og seðlabankastjóra sett í forgang og afnumið.   Uppsagnir seðlabankastjóra ásamt afsökunarbeiðni til landsmanna liggi á borði forsætisráðherra.  Einnig uppsagnir manna í fjármálaeftirliti og öðrum slíkum stofnunum.   Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra gefi út yfirlýsingu um að aukin verði kvóti á þorski og fleiri tegundum, og því verði skipt niður á þá smábáta sem enn eru til og berjast í bökkum.  Einnig verði afnumdir kvótar á bændur, og hafin frekari niðurgreiðsla á landbúnaðarvörur. 

Ef þetta er ekki hægt.  Á ríkisstjórnin að segja af sér, og síðan á að  mynda þjóðstjórn með þátttöku manna sem kunna að fara með fjármál, og stjórnun.  Meðan lægðin gengur yfir, síðan þarf að kjosa upp á nýtt, og þá verður að gefa Sjálfstæðisflokknum frí næstu 20 árin eða svo. 

 Jamm þetta er svona í hnotskurn sem mér finnst að ætti að liggja fyrir í dag, og hefði átt að liggja fyrir í síðustu viku.  Ef menn virkilega vilja og hugsa um fólkið í landinu almenning.  En einhvernveginn læðist að mér sá grunur að hér séu menn fyrst og fremst að hugsa um eigin orðspor, reyna að fela sem mest, og hylja sporin, svo þeir missi ekki meiri virðingu en nú er.  Það er of seint.   Sagan mun dæma og hún mun dæma hart.  Eða eins og sagt er; neyðin kennir naktri konu að spinna, og lötum manni að vinna.  Ég hef enga trú á að fólk þegi og krjúpi fyrir valdinu, ef þeir ætla að halda áfram á þessari braut á hraða snigilsins. 

En elskurnar eigið góða nótt og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum. Munið að það kemur dagur eftir þennan dag, og þó allt líti illa út núna, þá er um að gera að þreyja þorrann og góuna, og taka fram bjartsýnina, hún er þarna einhversstaðar inn í brjóstinu á manni, bara spurning um að opna réttu hilluna í minningabankanum. Heart

IMG_2750

Og svo smá haustlitur til að lyfta ykkur upp fyrir svefnin.

IMG_2747

Gangið á vegum almættisins.  þangað er gott að leita, þegar allt virðist vonlaust. Heart


Smá mömmublogg.

Þá er komin tími á smá mömmublogg.

IMG_2630

Sumir eru nú flottar skvísur.

IMG_2632

Og Sigurjón Dagur lítur við öðru hvoru með pabba sínum.

IMG_2633

Og stubbur fékk leyfi til að mála jin og jan í herbergið sitt, en pabbi þurfti aðeins að hjálpa til við modelið.

IMG_2636

En maður málaði alveg sjálfur.

IMG_2644

Þetta eru taiqwondo litir segir hann.

IMG_2647

En nú þegar það er dimmt á morgnana, þá er erfitt að vakna.  En Ásthildur er ágætis vekjaraklukka.

IMG_2648

Og svo kemst maður af stað.

IMG_2650

Og leikskólinn bíður.

IMG_2652

Súgandafjörðurinn er sífelld uppspretta fegurðar.  Hér gæti verið heitt - kalt, ....... en þetta er bara þokuslæða.

IMG_2653

Og þó hér rigni, er alltaf stutt í sólina.

IMG_2657

Evíta lítur líka stundum við með pabba sínum.

IMG_2660

Og svo rífast þær um dótið... auðvitað LoL

IMG_2661

Bara spurning um hvor er frekari hehehe.

IMG_2663

Greinilega farið að vera dimmara á morgnana...

IMG_2664

Í morgun var Indíjánadagur á leikskólanum og þessi flotta indíjánastúlka var umsjónarmaður í dag, og alveg tilbúin í slaginn.

IMG_2667

Já það er ábyrgðarstarf að vera umsjónarmaður, enda er hún við öllu búin að verja indíjánabúðirnar.

IMG_2665

Okkar prinsessa var þarna líka uppáklædd.

IMG_2670

Klár í slaginn.

IMG_2672

Og litla skottið mátti ekki vera að að líta við, því hún var að borða. LoL

IMG_2675

Þessar voru líka örugglega á leið í leikskólann sinn.

IMG_2678

Og Evíta litla er hjá okkur núna, þær eru að borða ommilettu.

IMG_2679

Og Hanna Sól indíjánaprinsessa sýnir okkur hvernig þau sitja.  Smile

en Sigrún vinkona mín, hringdi í mig um daginn og bað mig um að semja texta um Fljótavíkina okkar.  En þangað eigum við báðar ættir að rekja, og komum þar eins oft og við verður komið. 

Ég setti því saman þennan texta, og er bara nokkuð ánægð með hann.

Fljótavík.

Einn á ég unaðsreit.

Engan ég betri veit.

Paradís, prýði slík.

Perla engu lík.

 Ég löngum þar legg mína leið.

Þar lífið er auðnan greið.

Í norðrinu fagra og falda.

Þú fryssandi hvíta alda,

syngur við kvöldsins kyrrð.

 

Mín fagra Fljótavík.

Af friði ertu rík.

Þögnin er eðal þitt.

 þakklætið er mitt.

Tiplar þar tófa létt um sand.

Tilheyrir henni það land.

Í ánni svo silungur syndir.

Sál mín þann unaðin fyndir,

að fylgja þar landvætta hirð.

 

Svo Dísir á ströndinni dansinn sinn stíga.

Stormurinn ógnandi brýtur þar land.

Öskrandi helkaldar öldurnar hníga

og ærslandi leika við fjörunnar sand.

 

Svo hljóðnar Ægisönd,

og andar sær við strönd.

Létt fer um vog og vík

volgran engu lík.

Hvíslar angurvær og hlý

hafsins golan enn á ný.

Og lýðurinn gleðst yfir ljóði

landsins, og biður í hljóði

um hollvætta hálægð og firrð.

 

Þú ert reyndar alls engu lík

mín ástkæra Fljótavík.

Og ég segi bara góða nott elskurnar megi allir góðir vættir vaka yfir okkur öllum.  Heart


Vinarkveðja - Ást er auði betri.

Mitt í öllu þessu veseni er gott að fá hlýjar kveðjur.  Færeyingar hafa alltaf verið vinir okkar og vandamenn, bræður og systur.  Ekki bregðast þeir nú frekar en fyrri daginn.  Ég hugsa til þeirra í hvert skipti sem ég fer um Súðavík. Söfnun þeirra í erfiðleikum þorpsbúa þar var ómetanleg.  Skólinn stendur þar sem minnismerki um hvað lítil þjóð getur gert.  Það er ekki alltaf stærðin sem skiptir máli.  Það ættum við að hafa í huga líka. 

Þó margt virðist vera dimmt yfir í augnablikinu, þá mun birta upp, ég er sannfærð um það.   Og þá verðum við reynslunni ríkari, getum staðið fastar í bárunni, og höfum vonandi lært að það er alltaf best að hafa fast land undir fótum. 

En við skulum heldur ekki gleyma, hvers vegna við fórum þessa holskeflu, og við skulum muna það vel.  Þegar kemur að því að láta fjöregg sitt í körfuna, þá skal gæta vel að því hver á henni heldur.  Ég held að íslendingar hafi verið orðnir allof værukærir og haldið að þetta reddaðist allt saman einhvernveginn, enda var okkur sagt það stanslaust.  Sofandi flutum við að feigðarósi, og fossinn var ógnarhár, niðurinn hávær og argandi.  Niðurfallið skelfilegt. 

En við erum ennþá hér.  Og við erum sama þjóðin, sama fólkið.  Við erum öll í sömu súpunni, bara mismikið á kafi.  Það stendur upp á þá sem standa hærra, að draga hina upp.  Svo við getum öll staðið keik. 

Þetta á að kenna okkur að meta hið einfalda og smáa.  Kenna okkur að við þurfum ekki dýr málverk upp á vegg.  Meðan við höfum himnagalleríið ókeypis.  Þá er ég ekki að tala um þá fjölmörgu listamenn sem vilja koma list sinni á framfæri, heldur milljónaverk, sem bara skapa ótta um að missa þau. Við þurfum ekki sérhannaða galakjóla, þegar við getum alveg eins keypt okkur efni og saumað sjálf eitthvað fallegt, nú eða breytt gamla kjólnum sem hefur hangið inn í skáp síðan sautjánhundruð og súrkál.  Hvað um það, þó einhverjar vinkonur viti að hann var til áður ?  Við þurfum ekki að fara út að borða, þegar við getum keypt gourmemat út í búð, og eldað hann sjálf heima, og notið þess að vera til.  Þurfum ekki að fara út á barinn, þegar við getum alt eins setið heima við eldhúsborðið með kertaljós og ávaxtate, og spjallað saman. 

Lífið heldur áfram, fyrir okkur öll, ekki bara suma.  Og þó útlitið virðist svart í augnablikinu, þá skulum við hafa í huga að meðan við erum hraust og stöndum saman, þá vinnum við okkur út úr vandanum.  Og þó við séum ekki hraust, þá þarf bara að rétta út hönd, og það verður tekið í hana.  Að rétta höndina EKKI út eftir aðstoð er líka hroki.

Við skulum ekki láta eitthvað jafnómerkilegt og peninga, eða skuldabréf eyðileggja heilsu okkar, hún er allof dýrmæt.  Peningar geta verið óttalegt froðufé, og ef maður á of mikið af þeim, þá eru þeir beinlínis hættulegir.  Þeir geta komið manni í vandræði, því við þurfum þá sífellt að hafa áhyggjur af því að missa þá.  Eða þeir geta skemmt sálina í manni, með græðgi og öfund, sem alltaf eru fylgifiskar ríkidæmis.  Síðast en ekki síst eru sífelldar væntingar gerðar til þeirra sem hafa meira en aðrir, maður losnar við þá kvöð að standa eins og sökudólgur við að eiga meira en annar.

Það er auðvitað verst með þá sem hafa sparað saman af litlu, og ætlað að hafa í ellinni.   En þá er ráðið við því að hlú að mannlega þættinum, og læra að elska náungan eins og sjálfan sig.  Vera jákvæður og glaður.  Þá einhvern veginn kemur allt til manns.

Ég er líka að skynja að hugarfarið er þegar farið að breytast til hins betra.  Við erum að vakna upp sem þjóð væntumþykju fyrir hvort öðru.  Verið glöð, segja útvarpsmenn, þeir reyna að hressa landann við, og listamenn taka sig saman og sýna hvað í þeim býr.  Læknar og hjúkrunarfólk býr sig undir að taka við þeim sem ekki hafa orku að lyfta sér upp úr svartnættinu af sjálfsdáðum.  Allt þetta á eftir að aukast, og ég held að upp rísi sterk þjóð, samtaka og sameinaðri en nokkru sinni fyrr.

Verum því jákvæð og brosum.  Elskum hvort annað, og stöndum saman.  Um leið og við gerum það, skulum við samt ekki gleyma hvers vegna við erum í þessum sporum, heldur ákveða hér og nú, að treysta meira á okkur sjálf.  Sýna að við viljum breytingar á stjónun á velferð okkar.  Fara fram á að skipt verði um stjórnendur, en það er líka okkar sjálfra að halda fólki við efnið.  Við verðum að vera ábyrg og þora að refsa eða hrósa.  Við verðum að fara að nota það vald sem við höfum sem almenningur í landinu, og takast af ábyrgð við að veita aðhald. 


mbl.is Vinarkveðja frá Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband