Færsluflokkur: Bloggar
26.9.2008 | 13:05
Litir ljóss og skugga - og smá mömmublogg.
Hér gengur allt sinn vanagang, með ýmsum tilþrifum þó. Kapphlaup við tímann við að ganga frá plöntum og sinna vinnunni. Ennþá er eftir að setja niður túlípanana. Vonandi dregst frostið, svo hægt verði að setja laukana niður án þess að nota járnkarl. Nú spáir slyddu, ekki svo hættulegt reyndar, en verra ef það kemur mikið frost ofan í þessa bleytu.
Skotturnar mínar klárar í ferðina í leikskólann, þá setjum við Drekasöguna á, og svo brunum við til Súganda með ævintýrið í hlustunum, og söngvarnir óma svo í höfðinu á mér allan daginn.
Þá er að fara inn í leikskólann og hitta kakkana, jamm hún kann að segja kakkar.
Gá á spjaldið, hvor myndin sé ekki örugglega þarna.
En ég tók nokkrar myndir af ljósi og skugga, það er ótrúlega fallegt að ferðast í svona ljósbroti. Eins og ævintýraheimur, mér finnst ég vera komin inn í Drekasöguna, og finn fyrir vættum og verum, þessa heims og annarra.
Ótrúlega flott.
Og svona brosir Suðureyri við manni, í ljósi og skugga.
Þetta er alveg magnað.
Eiginlega kyngimagnað.
En krumma finnst gaman að láta sig svífa þöndum vængjum.
Ætli honum finnist þetta ekki spennandi lika.
Já ótrúleg þessi birta.
Ekki satt ?
Og smá regnbogi fullkomnar fegurðina.
Ég elska þetta bara.
Og svo brosir Skutulsfjörðurinn bara.
Svo er maður komin heim aftur, og afi á leiðinni Víííí !!
Og Sigurjón og pabbi hans í heimsókn.
Eitthvað íbygginn á svipinn stubburinn minn.
Hér er búið að finna stóra baðkúlu, og það þarf auðvitað að gera eitthvað við hana, svo það var bara farið í bað.... hvað annað
en svo kom afi með gjafir að sunnan, allskonar forvitnilegt pæjudót frá ættingjum og vinum. Það var rosalega spennandi.
Bros og tilhlökkun.
Vei en spennandi !!!
Já það þarf ekki mikið til að gleðja litlar stubbur
Einmitt það sem mig langaði í, sagði hún
eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.9.2008 | 23:29
Krúttfærsla og veður.
Smá krúttfærsla og veður héðan elskurnar.
Á leið á leikskólann. Afi blessaður fór í uppskurð á auga í morgun í Reykjavík, svo við erum bara fjögur heima, hans er auðvitað sárt saknað.
Sú stóra vildi fara með blóm í leikskólann, sem var allt í lagi nóg ef af þeim hér.
En svo var lagt af stað.
Veðrið dálítið villt og ævintýralegt... eða þannig ég elska þessa birtu og skugga.
Maður fer ósjálfrátt að hugsa um aðra vídd, og annan heim.
en fjörðurinn minn er friðsæll, og sólin að gæjast fram.
Þetta er bara duló ekki satt.
Skottið vildi svo fara i tölvuna, eins og stóra systir, og leggja kapal hehehehe...
En hér tekur við ljósmyndarinn Úlfur, og fyrirsæturnar, Hanna Sól ofurfyrirsæta, Ásthildur jr. Cesil og Ásthildur senior Cesil allar fyrirsætur fyrir Úlfinn.
Ef þið eruð að pæla í hvaða gel hún er með í hárinu, þá er það sólarvörn upp á 45 sem hún fann einhversstaðar. Málið er að stubbur var nýbúin að fá að kaupa sér hárgel, og hann var sannfærður um að hún hefði tekið það traustataki. En komst svo að því að hún hafði ekki snert það, heldur fundið áðurnefnda sólarvörn... En hún virkaði flott, hvernig ætli svona sólarvörn fari annars með hár
Já hún kann þetta allt saman.
Og við auðvitað líka hehehehe
Við knúsírófurnar....
Og meðan ég svæfði litlu knúsírófuna, þá svæfði stubburinn minn þá stóru, las fyrir hana, og þegar ég kom fram var hún sofnuð. Hann er algjör hjálparhella þessi elska.
Það er nú það, eigið góða nótt elskuleg mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
24.9.2008 | 13:24
Um Frjálslyndaflokkinn - flokkinn minn-
Það hefur mikið verið rætt um innanborðs átök í Frjálslyndaflokknum. Ég vil því birta hér grein sem ég skrifaði ásamt nokkrum félögum mínum um þau átök. Því miður virðist vera að upp sé komin alvarlegur ágreiningur, sem hefði átt að vera fyrirsjáanlegur fyrr, en ég og mínir félagar vildum trúa því í lengstu lög að fólk vildi fyrst og fremst fylkja sér um þau málefni sem Frálslyndiflokkurinn stendur fyrir, og láta persónalegan frama eða ósætti við aðra félaga víkja fyrir heildinni.
Nú er svo komið að það er nokkuð ljóst að það verður ekki svo. Og ég segi því miður. Því þarna er innan um gott fólk, sem hefur látið leiða sig í öngstræti, og mun að mínu mati einangra sig í flokknum, ef það sér ekki að sér, og fer að vinna samkvæmt málefnum, en ekki hver vill ekki hvern hvar.
Aðför að grundvelli Frjálslynda flokksins
Svo virðist vera sem valdabrölt herji nú á Frjálslynda flokkinn enn einu sinni. Við getum ekki betur séð en verið sé að reyna yfirtöku á flokknum. Okkur líkar það illa, því við höfum í lengstu lög viljað stilla saman strengi og halda málefnum flokksins til streitu. En nú er ljóst að það er ekki hægt. Ákveðnir aðilar hafa sýnt að þeir komu inn í flokkinn með því hugarfari að yfirtaka hann og laga að sinni stefnu. Eins og reyndar var marg varað við á sínum tíma. Á viðskiptamáli væri þetta kölluð tilraun til fjandsamlegrar yfirtöku.
Okkur þykir vænt um Frjálslynda flokkinn, og það sem hann stendur fyrir, Við erum líka ánægð með forystu flokksins og nefnum þar fyrst og fremst formanninn Guðjón Arnar Kristjánsson. Forysta flokksins hefur sömu stefnumál á dagskrá og við undirrituð, og leggur sömu áherslur. Þó við teljum ekki upp fleiri, þá er á þessum lista kjarninn úr Frjálslynda flokknum eins og hann var, fólk sem hefur unnið mikið fyrir flokkinn, oftast sjálfboðavinnu og yfirleitt án hávaða eða fyrirgangs.
Við gengum í upphafi til liðs við flokkinn, einmitt vegna áherslna hans á málefni hinna dreifðu byggða, sjávarútvegsmálin, landbúnaðarmálin og hlut byggðanna í misskiptu samfélagi og höfum starfað með honum síðan. Okkur hefur liðið vel með þessar áherslur, og líka áherslur okkar í málefnum útlendinga. þ.e. stefnu flokksins, samkvæmt málefnasamningi okkar. Við tökum undir áherslur Guðjóns og þingmanna okkar í velferðarmálum, og tillögur og frumvörp sem þeir hafa lagt fram um þau mál.
Sem fyrr segir þá er greinilegt að aðilar innan flokksins vega nú leynt og ljóst að formanninum og þar með flokknum. Nú svo komið að við getum ekki orða bundist. Á miðstjórnarfundum hafa átt sér stað endurteknar árásir á þingflokksformanninn Kristinn H. Gunnarsson, en jafnframt er í gangi undirróðursherferð á hendur formanninum þó sé erfitt að sjá hvaðan fréttir berast, en þannig er eðli rógsins.
Guðjón Arnar hefur sýnt ótrúlega hugprýði og stillingu við þessi niðurrifsöfl. Það að hann vilji halda frið, eins lengi og stætt er, er viturlegt. Hinn vitri ræðst ekki fram, heldur leyfir hlutunum að hafa sinn gang, til að sjá hvaða stefnu þau taka. Hins vegar er óhætt segja, að þeir sem vega að Guðjóni nú, þekkja hann ekki eins vel og við og það fólk sem honum stendur nær. Gamli skipstjórinn, er ef til vill seinþreyttur til vandræða, en að grípa til aðgerða, hefur aldrei vafist fyrir honum, þegar til kastanna kemur. Við höfum líka fulla trú á að svo verði nú.
Við höfum ekki viljað ræða opinberlega um þessi innri mál flokksins, vegna þess að við vonuðum að þessum rógi linnti og menn myndu snúa bökum saman. En svo kemur að því að það er ekki hægt að þegja lengur. Þannig líður okkur núna. Þeir sem ekki eru ánægðir með stefnu flokksins, og forystu, ættu frekar að velja sér annað skipsrúm en að stunda þessa niðurrifsstarfsemi. Þeim átti að vera ljós stefnumál flokksins þegar þeir gengu til liðs við hann.
Málefni Reykjavíkur eru vissulega góðra gjalda verð, en það vill svo til að flokkurinn mælist ekki með mikið fylgi þar, sem sýnir að styrkur hans liggur á landsbyggðinni, enda ekki vanþörf á að vinna að þeim málefnum sem brenna á hinum dreifðu byggðum landsins. Út af þeirri stefnu höfum við aldrei vikið, og förum vonandi ekki að gera það nú.
Það er skiljanlegt að fólk vilji komast til forystu í flokknum og láta að sér kveða, en við erum orðin þreytt á sífelldum ófriði og niðurrifsstefnu í þágu slíkra eiginhagsmuna. Hér vilja margir verða kóngar og ekki seinna en strax.
Á tveggja ára fresti er landsþing Frjálslynda flokksins. Það á að skera úr um hverjir veljast til forystu, valdir af félagsmönnum flokksins, þar er vettvangurinn til að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa. Þeir sem vilja komast til meiri metorða en þeir hafa nú þegar, ættu að bíða þess tíma en ekki sitja og kynda undir ófriði meðal flokksmanna, það er hætt við því að það komi í bakið á þeim sjálfum.
Okkar afstaða er ljós, meðan Guðjón Arnar gefur kost á sér til formanns í Frjálslynda flokknum, munum við standa þétt að baki hans. Best væri að fólk færi að vinna saman, og láta reyna á málefnin. Málefni og stefna Frjálslynda flokksins eru góð og algjörlega nauðsynleg að okkar mati.
Valdabrölt eins og nú á sér stað í flokknum tætir hann bara niður. Gefur óvinunum gott færi á að skjóta föstum skotum. Enginn er verri óvinur, en sá sem þykist vera vinur, en er svo þegar á reynir Lúsifer í dulargerfi.
Við undirrituð eigum sæti í miðstjórn Frjálslynda flokksins
Ásthildur Cesil Þórðardóttir,
Hanna Birna Jóhannsdóttir,
Pétur Bjarnason,
Pétur Guðmundsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (48)
22.9.2008 | 14:10
Haustið - krúttfærsla og Ruth Tryggvason.
Það er fallegur dagur í dag, en greinilegt að haustið hefur haldið innreið sína í bæinn okkar.
Nú er gott að hafa göngin.
en sólin er að brjótast fram, hversu lengi sem henni auðnast að skína á okkur.
Og Súgandafjörðurinn dularfullur.
Angandi af fegurð haustsins, með sína fallegu liti.
Og Tungudalurinn, skíðasvæðið, það verður samt langt í skíðafæri.
Prinsessur halda samt reisn sinni, og láta engan bilbug á sér finna.
Þó þær fái sér nú samt sæti öðru hvoru
Hér er svo Daníel ömmustrákur, hann elskar jafn mikið ömmu í kúlu og ömmu á Engjaveginum, og skiptir sér á milli þeirra, þegar hann er á Ísafirði.
Stóri stubburinn minn í alvöru lífsins, að leita að einhverju upp undir rjáfri
Sú litla biður bara um Latabæ, og segir Bratibær með ógurlegri tunguleikfimi, sem hún er nýbúin að finna upp. Og ef maður skilur ekki strax, kemur hún stormandi með fjarstýringuna. Næst a dagskrá eru svo Múmínálfarnir og Stubbarnir.
Hér eru þær að brasa með afa, að fá sér brauð.
Svo þarf að fá sér að súpa.
Með blóm í hári, er þessi meyja gjarnan.
Ég veit ekki alveg hvaðan barnið hefur þetta, en mamma hennar var svona stelpurstrákur, og lék sér frekar með bíla.
Naturalborn !
Hún er sko flott.
Langafi mættur í sunnudagssteikina.
Sumir kjósa samt að borða uppi fyrir framan sjónvarpið Ömmur mega allt.
Svo er komin mánudagur og tími komin á leikskólann.
Ert ekki að koma amma ?
Við erum að bíða eftir þér.
En vinkona mín hún Ruth Tryggvason er heiðursborgari Ísafjarðar. Þessi eldhressa kona er algjörlega frábær og mættu margir taka hana til fyrirmyndar. En nú stendur yfir sýning um hana í Stjórnsýsluhúsinu.
Hún Ruth í gamla, hefur bakað ofan í okkur í yfir 50 ár, og bestu kökurnar og brauðin sem fást eru einmitt hér.
Hér er brot úr hennar ævi. Það er gaman að skoða þetta.
Þó hún sé fæddur dani, þá er hún íslendingur í húð og hár, eða réttara sagt ísfirðingur
Og hún hefur verið algjör pæja og er reyndar enn.
Glæsileg kona.
Til hamingju með þessa sýningu Ruth mín, þú ert flottust
Og það var regnbogi yfir stjórnsýsluhúsinu í morgun.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
21.9.2008 | 11:42
Dagurinn í gær.
Það var mikið að gera hjá mér í gær. Náttúrulega litlu skottin mín, sem tóku sinn tíma, svo átti einn vinnufélagi minn fimmtugsafmæli, og ég mætti í það auðvitað, í kósí fjárhúsi inn í Arnardal, þar sem búið er að gera upp sveitabæ af miklum dugnaði, og verður einskonar ferðamannaparadís, enda þau sem að honum standa kraftmikið ungt fólk. En Guðjón Jón Jónsson til hamingju með fimmtugsafmælið, og takk fyrir mig. Ég þurfti að fara allt of snemma, því þetta stemmdi í virkilega skemmtilegt kvöld, og karlinn var með kjötsúpu í matinn. Það er ekkert betra en heit ilmandi kjötsúpa.
Svo var tónlistardagurinn, ég komst ekkert á hann, en Elli minn var að spila, og svo var Úlfur að spila líka.
Afi tók þessar myndir.
Flottir. Einhvernveginn held ég að þeir séu að djassa, saxofónleikarinn hefur einmitt sýnt mikla framför í jassi undanfarin ár.
Kennarinn stubbsins hann Önundur, er alveg frábær, og nær svo vel til stráksins. Enda hefur hann þetta allt í sér, þ.e. músikína sá stutti.
Svo er líka ósköp notalegt að eiga bara saman morgunstund með afa.
En svo átti Alejandra mín líka afmæli, og við vorum boðin í mat til þeirra. Isobel er frábær kokkur. Afi gamli var líka boðinn, og hann skemmti sér mjög vel.
Í góðum félgasskap.
Sú stutta búin að finna eitthvað fallegt
Riddarinn hugumprúði að sýna meyjunni sápukúlur.
Og svo blása þau eru algjörar rúsínur, Ísaac og Ásthildur.
En svo kemur stóra systir og vill taka af manni dótið.
Og hleypur í burtu með það hehehe, sjáið svipinn á litla skæruliðanum.
Það er ekki til betra fólk. Og nú þurfa þau á okkar aðstoð að halda, til að koma dóttur sinni og fjölskyldu hingað. Þau eru nú hundelt af mafíunni, og óttast um líf sitt. Og yfirvöld í El Salvador gera ekkert til að styggja illþýðið.
Krúsísmúsí!
Nammi namm.
Afi gamli skemmti sér rosalega vel í gær, þau spurðu hann mikið um efnahagsmálin, gengið og framtíðina, og það er enginn betri að uppfræða fólk en hann um allt slíkt. Hann veit nákvæmlega hvað gengið er hátt á hverjum tíma, evran dollarin og jenið, bara fletta upp í honum, og svo hvað er skynsamlegt að gera. Þetta eru hans ær og kýr. Og Rolando gat þýtt þetta allt saman á milli.
Ætli það sé ekki leitun að slíkum manni komin yfir nírætt ? Þórður Júl er bara sá flottasti.
Hanna Sól búin að hreiðra um sig í hjónarúminu og horfir á Shreck á spænsku
Hér er Isobel litla komin líka.
Og svo fóru þær að dansa og dilla sér
Meðan sumir bara skriðu um, þau voru reyndar öll í kisuleik.
ég grauta þessu fram og aftur, en afi kom seint í matinn því hann hafði verið að spila, og þessi mynd er alveg kostuleg, enn í kisuleiknum og sníkir mat
Þegar við vorum á leiðinni heim, þá var einmitt í gangi flugeldasýningin, slúttið á Tónlistardeginum mikla.
Þessar dularfullu kúlur eru regndropar, believe me or not.
En svo að lokum fyrir hana Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur, ég lofaði henni myndum af Sóltúni. En þar átti hún heima fyrir nokkrum árum.
En Guðmundur Mosdal smíðakennarinn gamli átti hér heima, ég held að hann hafi byggt þetta hús, síðan hafa margir átt hér heima, ég sagði nú í gamni einhverntíman að öll pör sem hafa búið þarna hafa skilið að skiptum, hvort sem það er tilviljun, eða álög, ég held að Guðmundur hafi aldrei verið við kvenmann kenndur. En svona er lífið. Nú er þetta hús í eigu ísfirðingafélagsins.
Flott hús á flottum stað, og mér sýnist að þar sé fólk alla daga allan ársins hring, svo það er vinsælt af brottfluttum ísfirðingum og öðru góðu fólki.
En hér með líkur þessari myndasyrpu, eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
20.9.2008 | 11:12
Tónlistardagurinn mikli á Ísafirði, og smá krúttfærsla.
Lognið er eitthvað mikið að flýta sér í dag, og veðrið er frekar rysjótt, synd eiginlega, því það er mikið um að vera hjá okkur í dag. Ekkert minna en stóri tónlistardagurinn. Dagskrá út um allan bæ, svona einskona fiskisúpuveisla Dalvíkur, nema hér verður boðið upp á tónlist, heil dagskrá, og fjöldi heimila sem stendur opinn gestum og gangandi. Því miður kemst ég ekki í neitt slíkt, þar sem ég er upptekin, tvö afmæli sem þarf að fara í í dag. En ég vona að veðrið lagist, svo dagurinn verði góður, og margir notfæri sér þessa prýðis skemmtun.
Thema dagsins er svo Abbalagið thank you for the musik, með texta eftir hina frábæru Dr. Ólínu Þorvarðardóttur. Ég er eiginlega afar stolt af bænum mínum og þessu frábæra tónlistarfólki, og öllum sem lagt hafa vinnu í uppákomuna.
Á vængjum söngsins;
Og syngið nú öll með, á þessum yndæla laugardagsmorgni til heiðurs Ísafirði.
Ég virðist látlaus, ég verð sjaldan æst eða reið.
Ef ég segi sögu, syfjar þig trúlega'um leið.
En leynivopn á ég, eitt dásemdarþing
því kliðurinn þagnar þegar ég syng.
Það er hamingjugjöf,
og mig langar til að hrópa'yfir höf;
Á vængjum söngsins
hef ég svifið í sorg og gleði.
Sungið dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit og róm,
innihaldstóm
væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tonahöll.
Dálítil snót var ég dansandi'af lífi og sál.
Ég dreymandi söng - því söngur var mitt eina mál.
Já oft hef ég hugsað hvers virði það er
að heyra og finna í brjóstinu á sér
þessa hljómkviðu slá.
Hjarta strengina samhljómi ná.
Á vængjum söngsins
hef ég svifið í sorg og gleði.
Sungið dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit og róm.
Innihaldstóm
væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tónahöll.
Þakklæti finn ég
þegar ég syng af hjartan lyst.
Rödd mína þen ég hátt, svo allir heyri;
Þenna tón, þennan róm, þennan hljóm:
Söngs á vængjum svíf ég í sorg og gleði.
Syng eg dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit og róm.
Innihaldstóm
væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tónahöll.
Hreinlega frábær texti.
Já þó vindar blási, sólin gægist, og regnið falli, þá fara ísfirðingar inn í þennan laugardag með músik í hjarta, láta ekki veðrið stoppa sig, heldur ganga milli húsa í bænum og hlýða á söng og hljóðfæraslátt. Húrra !!!
Þetta geta alveg eins verið vængir söngvanna. en þessa mynd tók ég í fyrradag. Himnagalleríið.
Þann dag borðuðum við lika lyfrapylsu og slátur hehehe... þessi svipur á Sigurjóni Dag er kostulegur, en hann borðaði nefnilega slátur en ekki lyfrarpylsu.
Úlfur og pabbi hans gerðu slátrinu líka góð skil.
Þetta er nýji ljósmyndasvipurinn á Ásthildi.... nýtt lúkk hehehehe.
Og ekki er þessi fyrirsætusvipur síðri
Og prinsessan mín, er hér komin í einn kjólinn, ef þið haldið að ég ýti undir þetta, þá er það misskilningur ég leyfi henni bara að vera til á sínum forsendum.
Systurnar að togast á um nýju sokkabuxurnar hennar Hönnu Sólar, en hún er vaxin upp úr öllum sínum sokkabuxum, og þá fær litla systir að klára þær alveg
Svo er gaman að púsla saman, og Aron Máni lítur til með þeim.
Já það er margt sem hægt er að gera, það var nefnilega lokað á leikskólanum í gær, svo við fengum heilan aukadag saman.
Svona pósar Hanna Sól, og nú er hún búin að greiða hárið líka.
Sæt og fín.
ein í lokin knúsírófan mín Evíta Cesil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.9.2008 | 12:18
Kúlulíf, hönnun, myndlist, ævintýri og myndabloggið hans Stefáns.
Já kúlubúar við það sama, ég hef samt verið ansi drusluleg undanfarið, hef að mestu legið í rúminu, orkulaus, með munnangur, hálsbólgu og eitthvað slíkt. En nú er þetta allt á uppleið hjá mér.
Þessi regnbogi er nokkura daga gamall, en það var rosalega flottur tvöfaldur regnbogi í gær, hafði bara ekki orku til að taka myndir En nú brosir sólin við okkur ísfirðingum.
himnagalleríið hefur verið opið eins og sjá má.
Þetta er hönnun Hönnu Sólar, plastpils, nýjasta tískan í kúlunni.
Önnur hugmynd, galakjóla hönnun, takið barnið með ykkur út að skemmta ykkur
Sumir láta sig litlu skipta svoleiðis skart og fínerí, þar gildir penninn og hið ritaða krass
Það er nú samt betra að skrifa á blað.
Svo er maður aldeilis dugleg að borða, fisk og kjöt.
Og svo þarf að blása ef maturinn er of heitur.
En Hönnu Sól er fleira til lista lagt en að hanna föt, hér hefur hún tekið nokkrar listrænar myndir af litlu systur.
Stillta barnið hehehehe...
Duglega barnið.
Káta barnið, þetta er að vísu mjög hættulegur svipur, því það getur allt gerst. Í gær beit hún systur sína nokkrum sinnum, og þegar hún var skömmuð, sagði hún æ æ æ ekki bíta, svo blés hún á bágtið, og strauk yfir það, en þegar hún ætlaði að kyssa á bágtið, fannst stóru systur komið nóg, hún æpti upp yfir sig. Og sú stutta varð voðalega sár, hehehehe svo amma varð að skerast í leikinn og fá leyfi hjá Hönnu Sól, til að hún fengi að kyssa líka.
Þessi var tekin í morgun, hér erum við komnar á leikskólann.
Og það er ekki hægt að segja að þeim leiðist að fara þangað en Hanna Sól hafði farið með spólu, sem hún vildi spila fyrir krakkana. En það er auðvitað enginn DVD spilari, svo hún varð dálítið sár, en við sóttum svo Drekaspóluna út í bíl, og þær áttu að fá að hlusta smá í hvíldartímanum.
Hér er svo skottið að koma hlaupandi.
En þessi drekasaga er alveg frábær, ég mæli með að barnafólk bæði mömmur og pabbar og líka afar og ömmur eignist þessa frábæru spólu.
Þarna hafa margir þungavigtarmenn og konur lagt sína hönd á plógin, söguna les Ingvar E. Sigurðsson, Tónlist eftir Jóhann Helgason, saga og söngtextar Iðunn Steinsdóttir, og sönvarar eru heldur ekki af verri endanum.
Eins og sjá má.; Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Andrea Gylfadóttir, Jóhann Helgason, Heiða, Hildur Vala, Stefán Hilmars, Valgeir Guðjónsson, og fleiri. Sagan er skemmtileg, og söngvarnir líka, við hlustum allaf á þetta núna á leiðinni til og frá Skólanum, og við erum farnar að syngja með allar þrjár. Enda er vil við hæfi að hlusta á Drekasöguna, meðan við förum gegnum drekann í fjallinu, inn um munninn og út um rassinn... eða þannig.
Og svo styðjum við gott málefni í leiðinni.
Annað sem mig langar að benda ykkur á, er myndablogg hjá vini mínum Stefáni H. Kristinssyni. Yndislega myndir, og vel við hæfi að benda fólki á, sérstaklega þeim sem búa erlendis.
http://www.icelandphotoblog.com/ Hér er linkur á bloggið hans. Skoðið sérstaklega youtobe myndbandið, yndislegt og músikinn frábær.
Eigið svo yndislegan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
16.9.2008 | 11:00
Sunnudagar .... eru góðir.
Jæja þá er maður að komast niður á jörðina aftur. Þetta er nú aldeilis búið að vera skemmtileg helgi, bæði af mælið og hittingurinn. Ég er ennþá glöð inn í mér, út af öllu því skemmtilega sem gerðist, og allir sem ég hitti og fékk kveðjur frá. Þetta er frábært.
Sunnudagurinn var notalegur, þau Sóley Úlfur og Óðinn Freyr voru boðin í bíó, hér eru þau Sóley og stubbur að spila.
Prinsessan mín að huga að blómunum, eins og hennar er von og vísa.
Hér eru þau afi að fara í sund í Bolungarvík. Litli skæruliðinn sefur út í kerrunni sinni.
Þessar elskur á leið í bíó. Og þá erum við bara tvær eftir í kotinu, Ásthildarnar.
Veðrið er hlýtt, dálitið rakt, og sólin að brjótast fram, og gerir þessa skugga, þegar vélinni er beint í áttina að henni.
Það haustar að en blómin eru mörg hver ennþá falleg.
Brosa móti manni.
Falleg ekki satt ?
Það er samt farið að sjá haustliti, og berin skarta sínu fegursta. Þetta fallega tré sáði sér þarna sjálft, og hefur fengið að vaxa þar og dagna í friði.
Reyndar er þetta tími runnamurunnar.
Möggubráin "Norðurljós" er eitt fallegasta afbrigðið sem til er af henni, hún verður aldrei há, en hefur þessi fallegu stóru blóm, og hún er ennþá svona falleg.
Og bern á sígaunareyninum mínum að verða þroskuð.
Skottan mín er svo vöknuð, og hún vill fá ís; Ís segir hún og bendir á ísskápin, veit alveg hvar hann er hehehe... og linnir ekki látum fyrr en amma opnar hurðina svo hún geti fengið sér ís. Svo fer hún upp í prinsessuherbergið, vegna þess að prinsessan er úti, sest framan við sjónvarpið og kveikir á því, kallar á ömmu, til að setja spóluna af stað. Uppáhaldsdiskurinn hennar í dag er Latibær, og svo syngur hún með í restina og dillar sér eftir hljóðfallinu, alveg ótrúlega flott.
Svo þarf hún auðvitað að brasa heilmikið, búin að sulla í tjörninni, eins og sjá má
Já ég skal sko loka þessu, og það gerði hún. Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
14.9.2008 | 16:10
Mikið var gaman að því .....
Ég átti yndislegan dag í gær. Er hálf rykug ennþá hehehe... en mikið rosalega skemmti ég mér vel í gær.
Þurfti náttúrulega að byrja á að koma börnunum í pössun. Börnin mín, pössuðu fyrir mig barnabörnin. Já þannig er það hjá mér. Ég á svo yndæl börn og tengdabörn, sem vilja allt fyrir mig gera.
Við hittumst í gamal sjúkrahúsinu, sem nú er Safnahús. Ein fallegasta bygging landsins, teiknuð af Guðjóni Samúelssyni.
Það voru fagnaðarfundir hjá okkur fermingarsystkinum.
Skemmtilegt málverk málaf af stúlku sem lá á spítalanum, meðan Úlfur Gunnarssona, Gunnarssonar skálds var hér yfirlæknir, hún sagði að hann hefði alltaf kallað sig Rauðhettu, svo úlfsmyndin er þarna í tvöföldum skilningi.
ein svona rúmfjöl var til á mínu heimili, þegar ég var að alast upp, við Nonni bróðir minn notuðum hana sem rennibraut, settum hana upp á rúmbríkina og renndum okkur svo niður eftir henni. Hún var svo að lokum sett á byggðasafnið, og gæti verið ein af þessum, ég man ekki hvernig hún leit út.
Set þessa inn hér í gamni, Vilmundur var hér yfirlæknir á spítalanum, og konan hans Kristín, var læknir og frumkvöðull, kvenhetja.
Mætti hugsa sér að tengja hana ljósmæðrum í dag, og hvetja þær til að halda sínu striki.
'eg ætlaði svo að taka mynd af hópnum hér á sjúkrahúströppunum, eins og svo oft er gert, en þessir krakkar, þau eru alltaf að flýta sér, og hluti hópsins, var þegar lagður af stað niður í kirkju, sem var næsti áfangastaður.
en veðrið var afskaplega fallegt og hlýtt, og okkur hlýtt í hjörtum.
Það þurfti margt að ræða, get ég sagt ykkur, sumir höfðu ekki sést í nokkra áratugi.
Svo sungum við Jesúbróðir besti saman í kirkjunni. Við stöndum sennilega á svipuðum stað og kirkjukórinn var í gömlu kirkjunni. En því miður var hún rifinn, og byggð þessi nýja. En það er góður hljómburður í henni.
Svo var haldið niður í skólann okkar. Á móti okkur þar tók skólastjórinn Olga Veturliðadóttir, en svo skemmtilega vill til að faðir hennar var skólabróðir okkar og fermingarbróðir.
Við fundum gömlu skólastofurnar okkar, og það var mikið rifjað upp, frá barnaskóla árunum. Einhvernveginn fannst okkur stofurnar hafa minnkað. En það var greinilegt að borðum hefur fækkað, svo meira rými er um hvern og einn nemanda.
Og við fórum alla leið aftur í fyrstu bekkina, gamla barnaskólann, sem ennþá er varðveittur að hluta til.
Já við höfðum margs að minnast.
Skoðuðum líka nýjan hluta skólans glæsibyggingu, sem tengir saman gamla skólann og nýrri byggingar.
Hér erum við svo komin niður í Ísfirðingshús, Háskólasetrið okkar.
Ólafur Halldórsson skólabróðir og forstjóri leiddi okkur í allan sannleikan um hið umfangsmikla menningarstarf sem unnið er í þessu húsi.
Hér erum við komin niður í aðstöðu Ólafs, Meleyri, hér er flottur skrúðgarður í miðju hússins.
Og þá var nikkan dregin fram, og sungið af hjartans lyst.
eins og sjá má var alveg rosalega gaman hjá okkur.
Og skólasystkin drekka dús.
Þeir voru forsöngvaranir þessir föngulegu menn.
Og við tókum nú lagið líka, en höfðum mikið gaman af tilþrifunum hjá þeim.
Enginn smá tilþrif þar á ferð.
Þetta eru líka flott tilþrif hjá Gísla frænda mínum.
Hahahahah!!!
Ásgeir tók svo nokkur lög á nikkuna.
Svo var haldið niður í Tjöruhús, til að borða saman.
Veðrið var dýrðlegt og svo hlýtt.
Og Júlli minn var að útbúa borðskreytingarnar, og fékk blómin úr garði móður sinnar.
Flott fermingarsystkin.
Og hér er verið að skoða stækkaða myndina, frá barnaskólanum.
Hlegið og gantast.
Myndarlegir ekki satt?
Maturinn var líka frábær, ég er næstum viss um að Júlli bjó til fiskisúpuna, hún var æði.
Og svo voru fiskiréttir, bæði saltfirkur, pönnusteiktur steinbítur, og margt og margt.
Öllu þessu gerðum við góð skil.
Þetta er svona múraratal
Sæt saman.
Og nikkan og söngurinn ómaði.
Sumir eru og verða alltaf töffarar
Þeir voru eiginlega allir töffarar, strákarnir í okkar hópi.
Og enn er sungið.
Hér erum við örugglega komnar á trúnóstigið
En ég held að allir hafi farið glaðir heim á leið.
Mikið rosalega var gaman, og mikið er gott að hitta gamla skólafélaga, og maka þeirra, því það hefur alltaf verið þannig hjá okkur, að makar eru teknir inn í hópinn. Þau eru hluti af okkur, og við viljum hafa þá með.
Ég er nú eiginlega hálf þunn ennþá, glöð og ánægð með hvað allt tókst vel. Og hve allir voru samtaka og samstæðir um að skemmta sér, og láta sér líða vel. Og allt hjálpaðist að, að gera daginn sem eftirminnilegastan.
Kæru skóla- og fermingarsystkin, mikið vil ég þakka ykkur vel fyrir þessa samverustund, og ég er viss um að við munum öll mæta á næsta hitting, og þá koma ennþá fleiri.
Knús og kram til ykkar allra frá mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
13.9.2008 | 10:30
Svona til gamans.
Það er mikið talað um að hér sé að hlýna, og að sumrin lengi og slíkt. Þess vegna ætla ég að setja hér inn fróðlega grein eftir Ingólf Davíðsson, þann góða mann, sem var sjálfmenntaður garðyrkjumaður, ef ég man rétt, en afskaplega fróður og frumkvöðull. Gaf m.a. út og þýddi danskar bækur um blóm, bæði fjölær blóm, inni blóm og runna.
Þessi grein er tekin úr ársriti Garðyrkjufélags Íslands 1946. En Ingólfur var ritstjóri blaðsisn á þessum tíma.
Vetrargróður 1945 1946.
Haustveðráttan 1945 var óvenju mild. Úrkoma mikil, sunnanlands en stöðug hlýindi. Kýr voru látnar út á græna jörð, öðru hvoru fram um 20. nóvember. Ýms blóm sprungu út sem á vori væri, hér í Reykjavík og víðar fram að frostinu aðfararnótt 25. nóvember. Fram að þeim tíma voru nýútsprungin villiblóm notuð við kennslu í skólunum.
Laugardaginn 24. nóvember gekk ég um háskólalóðina, hljómskálagarðinn, Sólvallakirkjugarðinn og umhverfis íþróttavöllin í Reykjavík að svipast um eftir jurtum. Lauf trjánna var fallið, en grasið var grænt. Bar mikið á rauðu reyniberjaklösunum í görðunum. Við tjarnarbrúna voru útsprungnir fíflar og sóleyjar. Ég fór að telja útsprungnu blómin og fann mér til undrunar um 40 blómgaðar jurtategundir á nefndum svæðum.
Þær voru þessar;
Brennisóley, skriðsóley, túnfífill, baldursbrá, gullbrá, krossfífill, skurfa, njóli, haugarfi, vegarfi, blóðarfi, hjartarfi, gleymérei, þrílit fjóla, akurtvítönn, varpasveifgras, vallarsveifgras, axhnoðapuntur, vallarfoxgras, háliðagras, hafrar, gulrófur, grænkál, hvítkál, morgunfrú, stjúpa, ljónsmunnur, lefkoj, dagstjarna, kvöldstjarna, dvergfíflar(bellis), gulltoppur, mörtulyklar, kornblóm einær og fjölær, blá og bleik, útlent músareyra, þorskamunnur, steinselja, útlendur þistill, prestafíflar, stjörnufíflar, flauelisblóm, rýgresi og stúdentanellika. Alls 43 tegundir, þar af tæpur helmingur íslenskar, hitt erlend garðblóm.
Af blómguðum villijurtum bar mest á túnfífli, varpasveifgrasi, krossfífli, sóley og njóla. En í görðum var mest um dvergfífla og morgunfrú, ásamt talsverðu af dagstjörnu, kvöldstjörnu, ljónsmunna, lefkoj og kornblómum. Aðrar tegundir voru smávaxnar og minna um þær. Er slíkt blómskrúð óvenjulegt mánuði fyrir jól. Væri gaman að fá víðar að fregnir um haustblómgunina. Geta má þess að mildan vetur fyrir allmörgum árum var farið til berja í Norðfirði 5. desember. Páll Þormar, sem þá átti heima á Norðfirði notaði sama dag nýútsprungna dvergfífla úr garði sínum, sem borðskraut.
Flest blómin fölnuðu í vetur eftir frostnóttina 25.11.
3. desember sá ég samt dvergfífla, stjúpur, Mörtulykla og krossfífil í blómi.
Kál og kartöflur þroskuðust fram eftir öllu hausti, langt fram yfir vernjulegan uppsprettutíma. Voru góðir hvítkálshausar í görðum fram í byrjun desember. Gras hefur haldist grænt í rót í allan vetur í Reykjavík og utan bæjarins þar sem sina er.
6. febrúar 1946 byrjaði vorlilja að blómgast í garði Christians Zimsens, Hávallagötu 31, Reykjavík. Krókusar blómguðust í garði hans 10. mars og vetrargosi 16. mars. Við Atvinnudeild Háskólans, sem er mjög áveðra, blómguðust fyrstu krókusarnir 12. mars og verið í blómi síðan.
Lóuhópur sást innan við bæinn 31. mars. Þrestir sungu mikið í mars. Hafa verið hér í allan vetur í görðunum.
Fyrsta grænmetið kom á markaðin í dag 10 apríl. Það voru hreðkur frá Reykjum í Biskupstungum. Veður er hlýtt og rigning. Brum ribsrunna, heggs og reynis eru óðum að þrútna og litast græn. Grasið grænkar í skjóli. Smábrúskar af dagstjörnu, kvöldstjörnu, kornblómi og fl. Tegndum gægjast upp úr moldinni.
Ingólfur Davíðsson.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar