2.10.2012 | 09:55
Ég krefst þess..
Sem þegn á Íslandi að vantrausti verði lýst á hendur fjármálaráðherra landsins. http://www.bloomberg.com/news/2012-10-01/iceland-sees-end-of-krona-days-as-joining-euro-is-only-option.html Þetta er fullkomin skandall.
Manneskjan er fullkomlega vanhæf sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands, hvað þá fjármálaráðherra.
Ég krefst þess að stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu sem allra fyrst á þessa manneskju. Þetta er ólíðandi algjörlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
1.10.2012 | 11:07
Um nýja stjórnarskrá.
Ég fór á fund í gær. Hann var á vegum Dögunar. Þessi fundur var afar vel heppnaður að mínu mati. Það var fullt hús, og góð stemning.
Myndin tekin frekar snemma, og ekki allir komnir.
Ljúfir tónar frá Þóri Baldurs og Guðjón Arnar syngur með. Skemmtileg stemning.
Súpan var prýðisgóð líka.
Og nú ætla ég að vera einlæg.
Það rann allt í einu upp fyrir mér ljós. Ég sá ljósið eins og sagt er. Hvort sem það var bara Lýður Árnason sjálfur, þar sem hann talaði fyrir nýrri stjórnarskrá, alvarlegur og ákveðin, mér hefur reyndar alltaf þó mikið til Lýðs koma, sem manneskju, lækni og listamanns. En þar sem hann stóð þarna og talaði um stjórnarskrána, hvernig þetta væri stjórnarskrá fólksins í landinu, því hún er unninn upp úr vilja almennings í landinu, fyrst með þjóðfundinum þar sem 1000 manns slembiúrtak þjóðarinnar vann úr því sem fólkið í landinu vildi sjá fyrir sér í framtíðinni, og síðan öll sú vinna sem á eftir kom, sem lauk með því að stjórnarskrár ráðið tók það endanlega saman og setti í þau drög sem nú liggja fyrir, þá rann upp fyrir mér að: Þetta stjórnarskrár mál er runnið út úr höndunum á ríkisstjórninni, það er líka runnið út úr höndum alþingis, það er nefnilega núna í okkar höndum. Við megum ekki láta plata okkur til að sitja heima eða taka ekki þátt.
Eða eins og einn fundargesta sagði við mig í gær, það er ótrúlegt að fólk skuli ekki hafa meiri áhuga á þessu máli, sem er grundvöllurinn undir öllu því sem við stöndum á. Það ætti að vera til svona bók á hverju heimili, hún lyfti upp lítilli handbók "Stjórnarskrá Íslands".
En sem sagt, ég sá þetta allt í einu í stærra samhengi en áður. Ég hef alltaf einblínt á að ríkisstjórnin væri að plotta með þetta mál. Og þetta væri runnið undan þeirra rifjum, en það er einfaldlega ekki þannig.
Það er einfaldlega rangt. Það hagar svo til að allir stjórnmálaflokkar hafa viljað gera nýja stjórnarskrá.
Sá um það tilvitnanir á fundinum:
"Landsmenn semji sína eigin stjórnarskrá" Borgarahreyfingin og Hreyfingin.
"við viljum.. að ný og nútímaleg stjórnarskrá verði samin af stjórnlagaþingi þar sem eiga sæti þjóðkjörnir fulltrúar". Framsóknarflokkurinn.
"Fulltrúar þjóðarinnar munu sitja stjórnalagaþing og gera tillögu að nýrri stjórnarskrá sem síðan verður lögð í dóm þjóðarinnar ´ði þjóðaratkvæðagreiðslu". Samfylkingin.
"lögð er áhersla á mikilvægi þess að vandað sé til verka við breytingar á stjórnarskrá og tryggð sé aðkoma þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn.
"..Með það að markmiði að um mitt kjörtímabil gæti þjóðin, í sjálfstæðusm kosningum, kosið um nýja heildsætt endurskoðaða stjórnarskrá". Vinstri græn.
Ég fékk í hendur litla bók sem kallast NÝ STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS.
þar stendur aðfararorð:
Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð., Ólíkur uppruni okkar auðgar heildina og saman berum við ábyrgð á arfi kynslóðanna, landi og sögu, náttúru, tungu og menningu.
Ísland er frjálst og fullvalda ríki með frelsi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi að hornsteinum.
Stjórnvöld skulu vinna að velferð íbúa landsins, efla menningu þeirra og virða margbreytileika mannlífs, lands o glífríkis.
Við viljum efla friðsæld, öryggi, heill o ghamingju ´ameðal okkar og komandi kynslóða. VIð einsetjjum okkr að vinna með örðum þjóðum að friði og virðingu fyrir jrðinni og öllu mannkyni.
Í þessu ljósi setjum við okkur nýja stjórnarskrá, æðstu lög landsins sem öllum ber að virða.
Já ég áttaði mig allt í einu á því að þó að alþingismenn og ráðherrar hafi lýst því yfir að þeir vildu nýja stjórnarskrá með aðkomu fólksins, þá var það oft bara meira orðin tóm. Þegar svo þjóðin hafði samið nýja stjórnarskrá unna upp úr þúsund manna úrtaki almennings, þá fóru að renna grímur á menn. Þeir sjá í hendi sér að þetta plagg mun binda hendur þeirra í þeirri spillingu sem hefur viðgengist svo lengi.
Og þó Jóhanna hafi komið þessu á koppinn, þökk sé henni, og þeim sem að því stóðu, þá er ég helst á því að þau vilji helst að við höfnum þessu tækifæri. Að við sjáum ekki að hér er einmitt lykilinn að því sem við erum að biðja um sem er burt með spillinguna, burt með klíkuskapinn og burt með eiginhagsmunapotið.
Ef okkur auðnast að samþykkja þessa nýju stjórnarskrá held ég að það muni renna upp betri tímar.
Þess vegna skulum við hlusta á það fólk sem hefur unnið að henni, lesa þessa litlu bók, það sakar ekki að hafa þá gömlu til hliðsjónar.
En svo sannarlega breyttist afstaða mín þarna á einu bretti. Það er afar skrýtin tilfinning, en ég finn að ég hef tekið rétta ákvörðun.
Dögun kynnt sem nýr stjórnmálaflokkur. Með nýjar áherslur og nýja tíma í farteskinu.
Og Guðjón Arnar heldur sína ræðu, alltaf skeleggur hann Addi.
Á eftir gafst svo fundargestum tækifæri á að spyrja og fá svör frá þeim sem best þekktu hvert málefni.
Þór Saari ræddi líka um störf alþingis, hvernig svo æxlaðist að hann komst inn á þing og að hann vildi halda áfram og leggja sitt af mörkum til að gera Ísland að betri stað.
Það er bara eitt sem mér finnst að í boðskap Dögunar, og það er að þau vilja halda opnu viljanum til að halda áfram ESBaðlöguninni, og fólkið eigi að fá að kjósa um niðurstöðurnar. ÉG er harður ESBandstæðingur. En ég held að ef okkur tekst að endurnýja alþingi, og minnka vægi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, muni þau mál ekki verða lengur í þeim skotgröfum óheilinda, hálfsannleika og sögufölsunar sem nú er. Eins og þessi ríkisstjórn hefur hagað sér gagnvart fólkinu í landinu. Fyrir það hafa þau m.a. uppskorið mesta vantraust allra ríkisstjórna hingað til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (57)
30.9.2012 | 02:02
Af styrkjum, ölmusu og mútum.
Ég er nú eiginlega alveg sammála því. Það eru mörg lönd sem þurfa miklu meira á styrkjum og ölmusu að halda en við. Þetta eru eiginlega að mínu mati mútur til að gera okkur leiðitamari til að ganga inn í ESB. Þetta með gulrótina og asnann.
Það er bara skammarlegt af löndum mínum að þiggja svona ölmusu í okkar annars ríka landi, þegar svo margir aðrir þurfa miklu fremur á þessum peningum að halda. Þetta fé kemur örugglega í góðar þarfir annarsstaðar.
![]() |
Finnst óþarfi að styrkja Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
29.9.2012 | 01:22
Mikilhæfur leiðtogi.
Mikið hefur verið rætt um leiðtogahæfileika fráfarandi forsætisráðherra og stór orði látin falla.
Ég ætla mér ekki að fara ofan í þá sauma. En það vill svo til að ég hef ákveðnar skoðanir á því hvað telst mikilhæfur leiðtogi.
Ég hef í gegnum tíðina í yfir 30 ár verið með mismargt fólk undir minni stjórn, svo ég þekki svolítið til þess hvað það er sem þarf til að vera góður stjórnandi.
Í fyrsta lagi þarf góður stjórnandi að geta sett sig inn í aðstæður og málefni sem eru á hans könnu.
Hann þarf að geta samsamað sig því sem undirmenn hans eru að spá og vilja, og skilja og skynja hvað þeir eru að hugsa.
Hann þarf að vera nógu "stór" til að setja sig í spor undirmanna sinna ALLRA og vera mannasættir.
Hann þarf að vega og meta og treysta sínum undirmönnum. Fá þá til að vinna með sér en ekki á móti.
Taka fyrir ákveðin mál ræða þau við alla aðila með og á móti, og fá fram kosti og galla.
Þora að taka tillögum frá þeim sem eru á öðru máli.
Fyrst og fremst að laða fram að besta í öllum sem að málum koma, og fá fólk til að vinna með sér.
Besti stjórnandinn er í raun og veru sá sem er ósýnilegur en hefur alla þræði í hendi sér.
Gefur undirmönnum sínum hugmyndir og treystir þeim síðan til að vinna úr þeim.
Standa svo með þeim ef þeir gera mistök og reyna að bæta þar úr.
Þetta virðist flókið, en það er það bara alls ekki. Ef stjórnandinn er nógu ákveðin og sjálfsöruggur. Þorir að taka hlutunum eins og þeir eru og gera gott úr því sem aflaga fer með því að ræða málin og halda friðinn.
Það er mikill munur á því að stjórna með hógværð og friði og fá undirmenn til að fylgja sér, eða vera frekjudós sem með hótunum fær sínu framgengt. Þarna er himin og haf sem aðskilur mikilhæfan leiðtoga og þann sem lætur stjórnast af frekju, einþykkju og þröngsýni á allar aðrar skoðanir en hans sjálfs.
Það er bara þannig sem alla tíð hefur verið á okkar vitorði að oflof er í raun og veru háð. Ef þú virkilega villt manneskju vel og vilt þakka henni góð störf sem hún hefur framkvæmt að þínu mati, þá áttu að spara stóru orðin, og tala af raunsæi. Þakka fyrir það sem vel er gert en ekki lofa í hástert einhverju sem alls ekki fær staðist.
Það eru í raun og veru ekki margir mikilhæfir leiðtogar hvorki hér á landi né annarsstaðar, þeir hafa þó verið til eins og Ghandi, Mandela, Martin Luther King, Jón Sigurðsson og slíkir, þeirra nöfn lifa með mannskepnunni alla tíð eins og segir: deyja frændur, deyja vinir en góður orðstýr deyr aldregi hverjum sér góðan getur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
28.9.2012 | 14:00
Ýmsar myndir og skemmtilegheit.
Ég er viss um að elskulegir lesendur mínir sem vilja fá myndir og sögur séu alveg að gefast upp á mér. Þannig að nú ætla ég að setja inn nokkrar myndir af því sem ég hef verið að bralla undanfarið.
Stubbarnir mínir hafa fundið sér góðan stað hátt upp í hillu á fataskápnum
En mér var svo boðið á Gumma kvöld, vinur okkar hjóna sem nú er dáinn Guðmundur Thoroddsen sem hefði orðið sextugur núna. Konan hans Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt bauð mér að vera með í kvöldveislu honum til heiðurs sem ég þáði með þökkum.
Þarna voru margir samankomnir til að heiðra þennan yndislega listamann og lífskúnstner sem fór allof fljótt. Hér má sá Áslaugu Ragnars píanóleikara sem var hér stödd tilfælligsvis, en hún býr og starfar erlendis.
Það var virkilega gaman að vera þarna, og góður matur framborin af Elísabetu og hennar sonum og vinum. Frábær alveg. Enda er Elísabet annálaður kokkur og skemmtilegur veisluhaldari.
Synirnir voru í uppvarta og þarna ríkti gleðín ein.
Systkini Guðmundar voru líka mætt, og voru hrókur alls fagnaðar.
Snillingurinn Villi Valli og Magnús Reynir voru líka meðal gesta.
Veislustjórinn bróðir Guðmundar var hrókur alls fagnaðar.
Guðný Hartman ein af mínum elstu og yndislegustu vinkonum gegnum tíðina, sérstaklega gegnum Litla Leikklúbbinn.
Kempan og rithöfundurinn Finnbogi Hermannsson í góðum félagsskap.
Það var yndisleg stemning þetta kvöld alveg í anda Guðmundar og Elísabetar.
Tveir grallarar og viskubrunnar Maggi Reynir og Finnbogi það kemur enginn að tómum kofa hjá þessum tveimur.
Og hér var fólk á öllum aldri og allir sem einn maður.
Systkinin þau voru frábær þetta kvöld.
Sigríður Dúna var skólasystir Guðmundar á sínum tíma og sagði okkur skemmtilegar uppákomur sem þau tóku þátt í í sínu unggæði, afar skemmtilegar frásögur og hjartnæmar.
Finnbogi sagði frá sinni viðkynningu af þeim hjónum, en þau leigðu RUVVest aðstöðu í húsi sínu þar sem hann var útvarpsstjóri.
En Sigríður Dúna hafði ekki lokið máli sínu
á þeirra skóla árum hafði Guðmundur gefið henni þetta malverk af gefnu tilefni og hún hafði geymt það öll þessi ár, og þetta kvöld færði hún sonum hans málverkið við mikinn fögnuð gesta. Málverkið geymir þá sögu vel.
Og drengirnir voru himinlifandi yfir þessar óvæntu gjöf úr fortíð föður þeirra. Þegar maður missir foreldri svona ungur, þá verða allar svona minningar svo vel þegnar og þakklátar.
Yndislegir drengir og hafa alltaf haft sína tengingu á Ísafjörð þó þeir hafi farið með móður sinni um heiminn. Einmitt þess vegna elsku Elísabet er svo gott að vita að þú ert komin heim aftur
Og hér voru sagðar skemmtilega fjölskyldu sögun. Sumar frá þeim tíma þegar Elli minn og Guðmundur fóru í þriggja mánaða siglingu um suður Ameríku, Argentínu, Úrugvay og fleiri slíkra. Þeir lentu til dæmis í ógurlegum hremmingum í ofsaveðri á leiðinni til milli landa þarna, og um stund leit út fyrir að skútan væri að farast. Þá stóð Elli minn upp og hóf upp raust sína og söng Simba sjómann af öllum kröftum. Gumma var þetta svo minnisstætt að hann sagði systur sinni frá þessu og fannst mikið til um. En hún er að spá í að koma þessu í bók, sem ég vona að verði af. Svo sannarlega þarf saga þetta yndislega drengs og lífskúnstners að koma fram.
Elísabet eiginkonan helt líka góða ræðu og lagði mikla áherslu á að Guðmundur hafi verið mikill gleðimaður, og þess vegna væri þetta gleðikvöld í hans minningu. Hún var mín stoð og stytta þegar þeir karlarnir okkar voru burtu á fjórða mánuð yfir jól og áramót. Þá var gott að eiga þjáningarsystur til að styðja sig við.
Já svo sannarlega vera þetta gleðikvöld og ég er viss um að Guðmundur var þarna með okkur að gleðjast.
Og synirnir eru aldeilis lagtækir á hljóðfærin.
Enda ekkert skrýtið að hljóðfærin værudregin fram með svona hljómlistamenn innan handar.
Og auðvitað stóðst ég ekki málið og tók nokkur lög.
Tvær flottar saman og vel þekktar.
Og stóri bróðir lét ekki sitt eftir liggja.
Innilega takk fyrir migTakk fyrir frábært kvöld.
Nú er haustið komið og það getur verið afar fallegt rétt eins og í dag til dæmis.
Þó ekki sjái mikið á gróðri ennþá.
Stundum er veðrið dulafullt.
Decorareynirinn minn er komin í haustlitina.
Frábært að hafa svona fegurð fyrir augunum.
Yndislegt. Nýpurnar af hjónarósinni og fleirum.
Sorbus Decora er rosalega flott tré. Ég hef sáð fyrir honum og sett niður upp í hlíðinni fyrir ofan mig.
Og hingað rata börnin smá og njóta sín.
Og þessa tvo stráka vantar ennþá heimili, þeir eru yndislegir ég vildi gjarnan hafa þá áfram, en það dugar ekki með fjórar kisur. Best væri ef einhver vildi taka þá báða, þeir eru aldir upp í miklum kærleika foreldrana og eru algjör keludýs og svo fallegir. algjörlega heilbrigðir enda í umsjón dýralæknisins að hluta til.
Móður ást.
Eigið góðan dag elskurnar. Við skulum muna að þrátt fyrir ömurlega aðkomu stjórnmálanna að okkur þjóðinni, þá er samt margt svo fallegt til og okkur ber að hlú að því og taka þátt í þeim kærleika og umhyggju fyrir hvort öðru. Við getum nefnilega gert alveg heilmikið bara í daglega lífinu með ást og umhyggju.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
27.9.2012 | 18:27
Vertu sæl Jóhanna forsætis.
Það var alveg komin tími til að Jóhanna hætti. Sennilega hefur verið lagt að henni að gera svo. Það er búið að gefa það í skyn nokkrum sinnum. Mig minnir að Össur hafi rætt um að skipta þyrfti um manninn í brúnni, Árni Páll hafði líka gefið eitthvað í skyn, en þorði ekki að segja hlutina hreint út.
Viðbrögð Dags áðan voru þannig að það lá við að ég kúgaðist. Hann ætti að muna að oflof er háð.
Verð að segja það að viðbrögðin eru eins og minningargrein þar sem sá sem látinn er verður að engli með vængi, þó hann væri breyskur í lifanda lífi.
Stuðningsmenn hennar vilja halda, sem von er að hennar verði minnst sem eins markverðasta leiðtoga íslandssögunnar. En ætli annað komi nú ekki í ljós þegar sagan verður skoðuð, þar kemur fljótlega upp í hugan ýmsar klúðursminningar. Bæði ráðningar, brot á jafnréttislögum, yfirlýsingar um hve allt er gott á landinu og yfirlýsingar forystumanns ASÍ um hið gagnstæða, ýmsar vandræðakosningar sumar dæmdar ógildar, og svo marg og margt.
Ég get auðvitað viðurkennt að ég bar mikið traust til Jóhönnu í upphafi þegar þau Steingrímur tóku að sér að stýra landinu gegnum brotsjó. Þó minn flokkur dytti út, hugsaði ég með mér að þarna væri þó fólk sem myndi vera rétta fólkið til að stjórna landinu gegnum þann ólgusjó.
En þau höfðu ekki lengi verið í stjórnarráðinu þegar Jóhönnu hafði tekist að kjúfa þjóðina algjörlega í herðar niður með því að setja aðaláhersluna á ESB, þegar hún og Steingrímur höfðu alla burði til að verða vinsælasta stjórn allra tíma, vegna þess að fólk virkilega treysti á þau. Og síðast en ekki síst hvar er SKJALDBORGIN?
Adam var ekki lengi í Paradís. Það kom í ljós að ekki bara Jóhanna klauf þjóðina, heldur var blautri tusku slegið framan í bæði stuðningsmenn Steingríms og okkur sem að vís kaus þá ekki, en treystum samt til að standa við loforðin. Þá kom nefnilega í ljós að alla kosningabaráttuna höfðu þau Jóhanna myndað með sér bandalag um að SÆKJA UM AÐILD AÐ ESB.
Síðan hefur hvert klúðrir rekið annað, ekki tekið á neinum málum, bara skipaðar nefndir, ráð, eða hlutirnir voru í vinnslu. Aldrei tekið fast á neinum málum. Og í raun og veru í stað þess að virkilega hlú að því sem næst þeim stóð, eyddu þau allri sinni orku í innlimunina í ESB.
Nú þegar líður að lokum starfstíma hennar, þá verður starfstími hennar skoðaður og sagan mun dæma. Og þegar hún talar um hrunið eins og hún hafi þar hvergi nærri komið.
En ég vil samt óska henni allra heilla í sínu prívat lífi og óska henni þess að hún njóti samvista við sína fjölskyldu og verði hamingjusöm. En að hún hafi verið mikilhæfur leiðtogi er í besta falli hlægilegt.
![]() |
Jóhanna ætlar að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
26.9.2012 | 20:10
Þegar fólk afneitar sannleikanum.
![]() |
Gallar á kerfinu hafa verið lagfærðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.9.2012 | 11:18
Ég hef verið að velta mér upp úr þessu Skýrr máli og fundið minn sannleika í því, tek það fram að það er einungis um mitt prívat mat að gera.
Ég er að hugsa um að fara í mína smá rannsóknarvinnu í huganum um þetta stærsta mál í dag, nota litlu gráu sellurnar rétt eins og Poiroit hennar Agötu.
Ef við förum aftur í byrjunina þegar ákveðið var að setja upp nýtt tölvukerfi, þá komu tveir aðilar til greina, Nýherji og Skýrr. þegar málin eru skoðuð þá voru menn þarna innanborðs sem höfðu unnið í Skýrr um lengri eða skemmri tíma og voru involveraðir í það fyrirtæki. Það var að mínu mati þess vegna ákveðið að taka tilboði þess fyrirtækis þó ljóst mætti verða að Nýherji var með betri lausnir. Ég er viss um að þessa menn gunaði ekki að þetta ætti eftir að ganga svona langt.
Þarna brást Geir og ríkisstjórn hans þjóðinni. Það var í hans ábyrgð að skoða hvort þessi mál væru í lagi, ef til vill var eitthvað af þessu fólki vel tengt inn í Framsókn eða Sjálfstæðsflokk. Það kom meira að segja upp sú staða að menn vildu rannsaka þessi mál, en því var hafnað af hverju?
Síðan kemur í ljós að þetta kerfi er ekki að virka, og gefur meira að segja ríkisstjarfsmönnum tækifæri á að grauta í bæði sínum reikningum og annara. Reikningar eru tví borgaðir og ekkert gert í málinu.
Svo er sett á stofn rannsóknarnefnd. Af hverju? Jú ríkisstjórnin og þingið gera sér grein fyrir að þarna er eitthvað sem betur má fara.
Árið 2010 eru Sjálfstæðismenn farnir að hafa áhyggjur af þessu, þegar reikningarnir eru orðnir fjallháir.
Þeir fara að spyrjast fyrir um skýrsluna, en FÁ ENGINN VIÐBRÖGÐ.
Hvorki þeir né ríkisstjórnin gerir neitt í málinu. Auðvitað vissu þeir af yfirkeyrslunni. Það hlýtur að koma fram í ársreikningum bruðlið með fjármálin til þessa kerfis. Fjármálaráðherra hlýtur að hafa vitað af þessu og margir fleiri.
Svo líður að kosningum. Ríkisstjórnin sér fram á að tapa stórt. Yfirlýsingar Jóhönnu og Steingríms um að þau vilji alls ekki starfa með Sjálfstæðisflokknum eru gefnar.
Með þessa vitneskju í farteskinu er ákveðið að koma höggi á Sjáfstæðsflokkinn. Björn Valur eða Steingrímur fá skyrslunar í hendur, þeir lofa sennilega Sveini griðum og fá skýrsluna í hendur sem skýrir linkuna við að víkja honum og staðfesta hans um að hann segi ekki af sér.
Nú má segja að allir hafi klúðrað þessu máli big time, því það er ljóst að ekki bara er yfirmaður ríkisendurskoðunar, heldur eru bræður hans þarna líka, annar hefur unnið hjá SKýrr og hinn í Fjármálaráðuneytinu. Og þetta eru EKKI TALIN HAGSMUNATENGSL.
Nú kemur ef til vill ógeðslegasri parturinn af þessu. Í stað þess að formaður fárlaganefndar fari með skýrsluna beint á fund í Fjárlaganefnd og þau kalli inn á teppið Svein Arason eins og rétt hefði verið að gera. Kemur Björn skýrslunni til Kastljóss. Ég var nefnilega að furða mig á hve hann var undirgefinn og alvarlegur, hefur sennilega skammast sín smá.
Þetta var beinlínis gert til að koma höggi á andstæðinginn. Sem vissulega hafði klúðað málunum vel og vendilega í þeim spillingafasa sem þeim er eiginlegt. En allan þennan tíma hafa þeir sem hafa vasast í fjármálum ríkisins vitað af þessu, og ekkert gert.
Þess vegna laug Björn Valur að mínu mati, þegar hann sagði við fréttamann að menn gætu ekki brugðist við einhverju sem þeir vissu ekki um. Þess vegna kallaði Vigdís þetta þýfi.
Allt þetta mál er bara ógeðslegt, ég hálf vorkenni karlgreyinu honum Sveini fyrir að þurfa að standa þarna og svara spurningum, hann gerði það þó og þarf kjark til. Sérstaklega þegar maður þarf að svara fyrir eigin vanrækslu og vanhæfni. Það verður að virða honum til vorkunnar.
En hitt hvernig sem á það er litið er svo ómerkilegt að engu tali tekur. Allt þetta fólk frá Sjálfstæðisflokki sem ennþá situr og allir þeir sem hafa verið í ríkisstjórnum síðana eiga skilyrðislaust að taka pokann sinn og hætta ef ekki strax þá að sækjast ekki eftir endurkjöri.
Þessi upphæð er nefnilega sú SEM VANTAR TIL TÆKJAKAUPA Á HEILLBRIGÐISSTOFNUNUM LANDSINS. þessi upphæð sem stjórnvöld hafa kosið að líta framhjá árum saman þó þeim væri vel ljóst í hvað stefndi.
Síðan á að rifta samningunum við Skýrr, og sekta þá um stórfé, þeir geta svo sem gefið þessa fjárhæð til spítala í tækjakaup ef þeir vilja halda andlitinu.
En í raun og veru ég hef grun um að svona hafi þetta verið þó ég hafi ekkert fyrir mér í því annað en tilfinninguna og viðbrögðin. En eru það svona ráðamenn úr öllum flokkum þ.e. fjórflokknum sem við viljum láta sýsla með hagi okkar? Menn sem eru ekki meira þroskaðir og ábyrgðarfyllri en þetta. Að geta látið allt danka af því að það er A. óþægilegt. B. til að nota sem keyri í kosningabaráttu? Spyr sú sem ekki veit.
Vil svo að lokum taka fram að ég er mjög ánægð með að Kastljósið skyldi koma þessu til okkar almennings. Skil reyndar betur af hverju þeir gátu verið svona ákveðnir ef sterkir aðilar stóðu að baki "Lekanum".
Og ég bið þá að hugsa um það ef slíkur leki kemur frá almenningi að þeir verði jafn frábærir í að koma því til skila til þjóðarinnar.
Við erum nefnilega alltaf að vonast eftir betra og heilbrigðara Íslandi. Og þess vegna er ágætt að hafa í huga að heildardæmið er ekki bara að hengja Formann ríkisendurskoðunar heldur er þetta ferli af vanhæfni, spillingu og kosningabaráttu og allt þar á milli.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
25.9.2012 | 16:25
Einbjörn tvíbjörn og þríbjörn voru bræður.
Heyrði ég rétt í Útvarpinu áðan, eru bræður hans beggja megin borðs, annar í fjármálaráðuneytinu og hinn hjá Skýrr?? Og hann sá ekkert athugavert við það manngreyið, hann þarf að fara í endurhæfingu i siðfræði er ég hef heyrt rétt. En ég trúi varla mínum eigin eyrum ef satt skal segja.
Og svo er strax byrjað að þjarka á þinginu, þau fara AÐ RÍFAST UM KEISARANS SKEGG Í STAÐ ÞESS AÐ TAKA Á MÁLUNUM. Auðvitað á að krefjast opinberrar rannsóknar á þessu máli frá upphafi. Manni dettur ýmislegt í hug ef bræðurnir hafa verið þarna annar í Fjármálaráðuneytinu og hinn hjá Skýrr, þá fer myndinn svolítið að skýrast í mínum kolli allavega.
Við verðum að krefjast þetta að þetta verði rannsakað.
![]() |
Kemur niður á traustinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
24.9.2012 | 21:16
Andskotinn hafi það bara.
Hvert þó í þreyfandi. http://www.ruv.is/sarpurinn/kastljos/24092012-0 Ef þetta er ekki skandall aldarinnar þá veit ég ekki hvað. Og er þetta eina dæmið um bruðl og óráðssíu í kerfinu? Spyr sú sem ekki veit. Og hvernig í fjandanum stendur á því að það tekur öll þessi ár að komast til botns í málinu? Er það af því að enginn vill taka af skarið?. Það er dálítið langur vegur frá 160 milljónum í fjögur þúsund milljónir. Þetta mál þarf að rippa upp og skera, og kanna hvort þetta sé einsdæmi eða hvort þetta er viðtekin venja ráðamanna að bruðla svona eftirlitslaust með peningana okkar. Það er von að það sé ekki hægt að sinna nauðsynlegu viðhaldi á velferðarkerfinu ef þetta er það sem viðgengst.
Og mér er fjandans sama um hvort þetta er leiðangur vegna komandi kosninga eða "tilviljun" Þetta getum við hreinlega ekki sætt okkur við.
Við verðum að KREFJAST ÞESS AÐ FARI FRAM ALLSHERJAR ÚTTEKT Á STJÓRNSÝSLUNNI OG LEITA ÞAR Í ÖLLUM SKÚMASKOTUM. Ég vil reyndar þakka Ríkisútvarpinu fyrir að vekja máls á þessu, en betur má ef duga skal. Hér þarf að velta hverjum steini.
Kæru kjósendur þetta er bara óþolandi hvernig ráðamenn ganga um peningana okkar eins og þeir geti bara gert það sem þeim listir. Þjónað sínum gyllisvínum á kostnað heimilanna og fólksins í landinu. Nú er mál að allt komi upp á borðið. Við hljótum að gera ráðið rannsóknarnefnd - sjálf - sem rannsakar algjörlega öll verk ríkisstjórna síðastliðinn 20 ár eða svo, við söfnum bara fé og ráðum sjálf fólk til að skoða málin ofan í kjölin. Þetta er komið nóg. Hvar í flokki sem við erum, þá er þetta bara ekki ásættanlegt. Og svo með málin til HAAG ef ekki vill betur til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar