Ég hef ákveðið að taka baráttuna með Dögun.

Ég verð að viðurkenna fyrir ykkur lesendur mínir að ég er í framboði fyrir Dögun.  Ég ætlaði mér reyndar ekki að standa í því, var bara alveg til í að ýta vagninum því málefnið er gott, og ég hef fengið að taka þátt í málefnavinnunni og leggja mitt af mörkum.  Þóttist enda vera orðin of gömul til að standa í þessu.  En svo er málið bara að það er svo asskoti erfitt að fá konur til að taka þátt í framboðum.  Þessar elskur, ekki skortið þær vitið né hæfileikana, en þær eru bara einhvernveginn ekki tilbúnar til að stíga fram af ýmsum ástæðum. 

Mér líkar afar vel við mannskapinn sem ég hef starfað með, það ríkir einurð og ákveðni í að gera allt það besta fyrir land og þjóð. Á landsfundi var þeirri leið hafnað að hafa ákveðna talsmenn eða kjósa stjórn.  Við vildum frekar hafa þetta allt lýðræðislegt og vinna það saman.  Það hefur ákveðna ókosti í för með sér, svo sem að ef einhver fréttamaður vill ná tali af forystumönnum Dögunar, þá þarf að skoða hvern á að hringja í.  En svo er það, að með þessu þá eru fleiri ábyrgir og það verða fleiri bök sem bera þá ábyrgð.

Það hefur líka tekið tíma að setja saman málefnin sem við viljum vinna að eða um eitt ár.  En um leið verða málefnin einmitt vandaðri og ábyrgari, þegar allir þurfa að leggjast á eitt, og menn þurfa að tala sig niður á eina niðurstöðu.  

Allt hefur það gengið vel og þó við séum ólíkar manneskjur, þá hefur virðingin fyrir hvert öðru leitt okkur á endanum að þeirri niðurstöðu sem liggur nú fyrir eftir velheppnaðan landsfund. 

Já ég sagðist vera komin í framboð.  Ég hef ákveðið að þiggja fjórða sætið í Norðvesturkjördæmi.  Það var gert að vel athuguðu máli og eftir að ljóst var að enginn önnur kona sóttist eftir því sæti.

Það er nefnilega þannig í okkar ágæta lýðræðisríki, þá er það ekki lýðræðislegra en svo að fólk hugsar sig um tvisvar áður en það tekur sæti á lista, sem er ekki í gömlu flokkunum.  Í sumum tilfellum veit ég að fólki hefur verið hótað að ef það taki slíkt sæti geti það sagt bless við vinnuna sína. 

Þetta er gömul saga og ný.  Þegar við vorum að berjast í Frjálslyndaflokknum urðum við áþreyfanlega vör við þetta, sér í lagi ef það voru sjómenn sem vildu vinna með flokknum.  Einhverra hluta vegna var útgerðargreifum afskaplega illa við þann flokk, Wonder WhyDevil  En það má auðvitað ekki ræða þetta frekar en svo margt annað í okkar "lýðæðislega" þjóðfélagi.

En sem sagt ég ætla ekki að vera leiðinleg, og ákvað að segja ykkur þetta strax, svo þið getið undiðbúið ykkur undir áherslur mínar, þar sem ég geri mér grein fyrir því að með því að vera komin í framboð þá taka menn allt öðruvísi því sem ég segi og geri.

Ég er samt og verð alltaf sú sama sem ég er.  Get bara ekki annað.  Það sem ég er að gera með þessu flandri mínu á gamals aldri er að ég hef fulla trú á landinu mínu og þjóðinni, ég er alveg viss um að við getum unnið okkur út úr þeim vanda sem við erum í, og að við eigum bjarta framtíð fyrir okkur ef við högum okkur skynsamlegar en við höfum gert undanfarið. 

Ég vil fá börnin mín heim, og ég vil fá að sjá það samfélag sem við getum öll verið í með reisn og átt mannsæmandi líf. Það á enginn að þurfa að svelta eða vera borin út af heimili sínu.  Börnin okkar eiga að geta sótt skóla allt frá grunnskóla til æðri menntaskóla án tillits til fjárhags foreldra. 

Og útlendingarnir okkar sem hafa flúið landið vegna aðstæðna vil ég fá heim aftur til að byggja upp velferðarþjóðfélag með okkur sem eftir sátum. 

En nú er ég örugglega farin að hljóma eins og "frambjóðandi"LoL

En eins og Guðjón Arnar segir svo oft: ef þú hefur sannfæringu fyrir því sem þú ert að gera, verður þú aldrei rekin á gat með málefnin.

Það var einhver að hafa áhyggjur af því að Dögun hefði enga framtíðarsýn aðra en stjórnarskrármálið, ég ætla því að setja hér inn áherslur framboðsins í aðgerðum í þágu heimilanna.   

Öflugar aðgerðir í þágu heimila – samþykkt drög 30.10.201

Dögun vill tryggja réttlæti og samfélagslega sátt með öflugum aðgerðum í þágu heimila landsins og stuðla að betra lánakerfi til framtíðar með því að:

  • Afnema verðtryggingu á neytendalánum
  • Leiðrétta húsnæðislán
  • Fjölga valkostum í nýju lánakerfi
  • Setja þak á vexti
  • Afnema stimpil- og uppgreiðslugjöld
  • Tryggja að veð takmarkist við veðandlag
  • Lögfesta lágmarkslaun sem miðast við framfærsluviðmið

Sjá hér nánar: http://xdogun.is/oflugar-adgerdir-i-thagu-heimila/ 

Málefnin voru samþykkt á landsfundi og héðan í frá verður unnið að því að upplýsa fólk um hvað við ætlum að gera og hvernig.

 Ég ætla mér að upplýsa ykkur um þau málefni, svona á milli þess sem ég býð ykkur í ferðalög. 

Fyrst og fremst þurfum við að þora að skoða þau framboð sem bjóða fram í næstu kosningum.  það hefur aldrei verið meira framboð á framboðum en einmitt nú, þó svo ef til vill einhver þeirra ná ekki markmiði sínu, þá held ég að viljinn til að gera vel sé til staðar hjá þeim öllum, bara spurning um hvernig þau hyggjast nálgast markmið sín og hvort þau markmið séu raunhæf. 

Sem sagt hér er ég og get ekki annað.Smile

IMG_7359


Fíflagangurinn leynist nefnilega víða Ólöf Nordal.

Tómur fíflagangur og ég veit ekki hvað Ólöf.  En þú gerir þér sennilega ekki grein fyrir því frekar en aðrir þarna sem vilja ekki og skynja ekki vilja þess meirihluta fólks sem kaus um nýja stjórnarskrá að þeir sjá fíflaganginn á báðum endum.  Við sjáum fíflagang ríkisstjórnarinnar að hafa ekki gengið fram með þetta mál fyrr og af meiri festu, sem mann fer að gruna að sé af því að fólk þar innandyra vill ekki nýja stjórnarskrá, þó þeir "þykist" hafa á því áhuga.  Þess vegna þora þau ekki að láta reyna á atkvæðagreiðslu á þingi, af því að þá þurfa þeir annað hvort að segja já við stjórnarskrárfrumvarpinu eða sýna sitt rétta eðli gagnvart kjósendum sínum svona rétt fyrir kosninga.

Á hinn bóginn er líka aumkvunarvert hvernig þið Sjálfstæðismenn og Framsókn reynið allt sem þið getið til að koma í veg fyrir þessa nýju stjórnarskrá.  Þið gerið ykkur ekki grein fyrir því að gamla lógikin gengur ekki lengur, fólk fylgist meira með myrkarverkum ykkar og yfirgangi gagnvart kjósendum.  Þið eruð því ekki að skora neitt hjá almenningi, en örugglega stórt meðal ykkar dyggustu kjósenda, enda ef til vill ekki vanþörf á því í minnkandi gengi flokksins.  Framsókn þorir ekki að rugga bátnum með allt sitt stækkandi fylgi, sem þeir vonast eftir að halda fram yfir kosningar.  Þó ég efist um það.

Endalaust raus um að það sé ekki hægt að samþykkja nýja stjórnarskrá, sem þjóðin samdi með þeim aðferðum og ferli sem fór í gang, í bullandi ágreiningi er orðin þreytt.  Með ykkar gömlu hunda á þingi verður aldrei hægt að samþykkja stjórnarskrá sem minnkar völd ykkar og frelsi til að svíkja endalaust þjóðina og plotta um valdið í bakherbergjum hvort sem þau eru reykfyllt eða ilmandi.

Ykkar tími er reyndar liðinn og vonandi verður stórsigur nýrra framboða það sem koma skal.  Ef fólk virkilega vill endurnýjun og hreinskiptari stjórnmál, þá ætti enginn að leggja sitt dýrmæta atkvæði á ykkar reikning, þá er ég að tala um fjórflokkinn.

Það er komin tími á breytingar, það er komin tími til að reyna eitthvað nýtt.  Nýtt fólk með ferskar hugmyndir og kjark og þor til að takast á við klíkurnar sem bíða með vasa fulla af peningum til að kaupa ykkur, klíkur eins og L.Í.Ú. er að mínu mati.  Þeir virðast hafa allan fjórflokkinni í vasanum, eða ég get ekki séð annað en að það sé ekki hægt að ræða um sjávarútvegsmál án þess að þeir rjúki upp með andfælum og öskri; hafið ykkur hæg þarna á þingi við borgum vel fyrir þjónustuna! Þetta er allavega mín upplifun af þessum mönnum, rétt eins og aðrar klíkur t.d. bankamafían sem ekki er hægt að taka á með réttum handtökum og fleiri aðilar sem virðast vera skuggastjórnendur í fjórflokknum.  Þannig er það bara. 

Svo ég segi nú bara fyrir mig; venjulegir íslendingar farið að skoða hvað er í boði, lesið það sem nýju framboðin hafa fram að færa og ræðið við forystumenn framboðanna og spyrjið og fáið heiðarleg svör um hvað þeir séu að huga og hver stefna framboðanna er.  Og varist hræsnina og lygina sem leitar oft upp á yfirborðið, lygarnar sem koma svo upp á yfirborðið eftir kosningar, þegar þarf ekki lengur að reiða sig á ykkur næstu fjögur árin. Munið svik VG, látið þau svik ykkur að kenningu verða. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

dogun

Ég veit að ég má ekki nota þetta lógó, en mér finnst það bara svo fallegt, og oft geri ég bara annað en ég má.  Cool


mbl.is „Tómur fíflagangur á Alþingi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjólkurflutningar og sláturhús. Hvað er hægt að kalla hagræðingu?

Það má spyrja hvað er hagræðing þegar tekið er tillit til búsetu á landinu.  Það er til dæmis algjörlega óásættanlegt að hafa ekki mjólkurbú á Ísafirði.  Þegar tekið er tillit til vegalengda sem þarf að aka mjólkinni, og hvenær ákveður þetta einokunarfyrirtæki að það svari ekki kostnaði að sækja mjólkina alla leið vestur á firði?  Hvar er þá atvinnuöryggi bænda sem langt eiga til næsta mjólkurbús.

Það þarf að fara að hugsa meira um hag allra landsmanna, en einhverjar örfáar krónur í vasa.

Svo er líka með sláturhús, það er enginn hemja að það sé ekkert sláturhús á vesturlandi og vestfjörðum, það þarf að aka sláturdýrum nánast yfir landið þvert og endilangt í sláturhús.  Fara yfir margar sauðfjárveikivarnagirðingar, fyrir utan að það er ekkert nema dýraníð að flytja skepnurnar svona langar leiðir, á tveimur til þremur hæðum og með annað eins í aftanívagni.  Hvar eru dýraverndunarsamtök þá?  Það er ekki verið að spá í hvernig farið er með blessuð dýrin á leið í slátur húsin.

Hér þarf að fara nýjar eða öllu heldur gamlar leiðir og annað hvort sjá til að það sé sláturhús í hverjum fjórðungi, eða leyfa bændum að reka sín eigin sláturhús á hjólum eins og mér er sagt að sé gert mikið í Noregi.  Þá fyrst getum við farið að tala um "beint frá býli"  og bændur geta unnið sitt efni sjálfir og þá myndast raunveruleg samkeppni umbesta hráefnið. 


mbl.is Lækkuðu kostnað um tvo milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er bara mín sýn á málin.

Lýðræðsvaktin er að skora flott þessa dagana og bara gott mál.  En svona blasir þetta víð mér, þó ég ætti ekki að tjá mig um það þannig séð, þegar ég hef ákveðið að fara í framboð fyrir Dögun.  En ég hef samt sem áður málfrelsi, þar sem ég tala bara fyrir mig og engan annann.  Lýðræðisvaktin reis upp í gegnum stjórnarskrármálið, fyrst í stað vildu sumir þarna fara fram með Dögun, en eftir því sem ég skil það og er þó frekar involveruð í það framboð, þá þóknaðist ekki þeim félögum okkar þau vinnubrögð sem þar voru.  Þeir vildu svona frekar fara í menn en ekki málefni.  Og það er núna að skila sér stórt í þeirra framboði, sem eru að líta dagsins ljós.  Ekki þannig að ég hafi neitt á móti því góða fólki sem þar má sjá á framboðslistum.  En svona þar fyrir utan sýnist mér að hér sé framboð fræga fólksins, sem mun væntanlega erfa landið, hversu vel þau skynja almenning í landinu, svona burt séð frá því að vera fræg og vinsæl veit ég ekki.  það getur vel verið að þau geti sett sig í spor Jóns og Gunnu og samsamað sig þeirra kjörum.  Hvað veit ég.

Ég er búin að brosa smá yfir kandidötum Bjartrar Framtíðar sem flagga elsta og yngsta frambjóðenda á sínum lista, og svona algjörlega gert að flagga flottu og frægu fólki, til að vekja athygli á málstaðnum, sem er reyndar afskaplega bara rétt eins og hjá Samfylkingunni svo ekki sker þar á milli.

Og svo að horfa á það sem er að birtast hjá Lýðræðisvaktinni að gera nákvæmega það sama, nema að flagga ennþá frægara fólki, og enn þá meiri elítu til að fá nautheimskan almenning til að klappa saman lófum og hrópa húrra og amen þá get ég bara ekki þagað.  Þetta sem ég segi hér er bara hreint frá mínu brjósti og ég veit að það á ekki al ræða svona mál þegar maður sjálfur er í baráttu, en samt sem áður ég væri ekki sú sem ég er, með kjaftin opin ef ég segði ekki meiningu mína.

Og svo eru öll hin nýju framboðin sem bara vilja leiðrétta mál íslendinga á þeirar forsendum, vilja vinna þjóðinni gagn og vilja breyta málunum, með venjulegu fólki, jóni og gunnu, þó sum þeirra hafi sýnt að þau hafi unnið að þjóðarhag með vinnu á hinum ýmsu verkefnum til þjóðarhags.

Ég segi nú bara mín kæru, hvort viljið þið leggja fjöreggið í hendur fólks sem fer á lista vegna frægðar sinnar, til að tryggja framgang manna eins og Þorvaldar Gylfa og Guðmundar Steingríms, eða spá í framboð eins og til dæmis Dögun eða annara framboða eins og Pírata, humanista, eða bara annara framboða sem eru ekki að flagga stjörnum, þurfa þess ekki því að það eru málefnin sem skipta máli en ekki frægð viðkomandi frambjóðenda.

Viljum við virkilega leggja fjöreggið í hendur þess ágæta fólks sem við elskum til að skemmta okkur, eða viljum við heldur leggja það sama fjöregg í hendur fólks sem hefur í heilt ár unnið að því að skoða og skipuleggja velferð landans í þeim málum sem brenna á? Erum við virkilega svo grunnhygginn að halda að velferð komi með frægðinni einni saman?


Landsfundur Dögunar samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði. Þegar stórt er spurt er lýðræði svarið.

Eins og ég sagði áður þá var haldinn landsfundur Dögunar á síðustu helgi.  Það var afar gott að vinna með félögum framboðsins.  Mikil vinna hefur verið núna allt undanfarið ár í að vinna málefnavinnu og hefur sú vinna farið fram í málefnahópum og einnig á sérstökum vinnufundum, þar sem félagar hafa komið saman og unnið að ýmsum brýnum málum.  Einnig hafa verið haldnir fræðslufundir sérfræðinga sem hafa útskýrt hin ýmsu fólknu málefni svo sem eins og í fjármálum og slíku sem ekki er ef til vill augljóst hverjum venjulegum manni.

Yfirskrift fundarins var; Þegar stórt er spurt er lýðræði svarið. 

IMG_9755

Landsfundur var því mikill vinnufundur við að samræma vinnu málefnahópanna og samþykkja hana.

Ég fann svo glöggt þann góða anda sem þarna sveif yfir vötnum og ákveðni félaga minna til að vinna sem best fyrir land og þjóð ef við fáum til þess umboð frá þjóðinni.

IMG_9756

Hér liggur mikil vinna að baki, það er víst.

IMG_9758

Og hér eru oddvitar að undirbúa sig fyrir ræðurnar.

IMG_9759

Hér ríkti gleði og vinátta.

Það var margt sem gladdi mig á þessum fundi, en ég er sérstaklega ánægð með tvær ályktanir sem samþykktar voru á síðasta degi fundarins á sunnudeginum, þær eru að mínu mati tímamóta ályktanir stjórnmálaafls á Íslandi í dag og löngu tímabærar.

En þær hljóma svo:

Dögun vill stefna að því að opna lokaða meðferðarstofnanir fyrir langt leidda vímuefnaneytendur.

Verði hlutverk stofnananna af tvennum toga. Annars vegar þar sem  hægt er að vista langt leidd börn eða einsaklinga sem hafa verið sviptir sjálfræði og hins vegar fyrir þá sem misst hafa algjörlega tökin á lífi sínu og hafa leiðst út á braut glæpa, verði dæmdir í slíka meðferð. Einnig geti einstaklingar sem telja sig þurfa á langtíma  meðferð að halda notið þessa úrræðis.

Að meðferðin taki í það minnsta eitt til tvö ár, og síðan fylgi eftirmeðferð til að hjálpa sjúklingum að komast aftur á rétt ról. Auk þessi verði húsnæðisúrræði í boði fyrir þá sem eiga ekki í nein hús að venda að meðferð lokinni.

Meðfram þessu þarf að stofna sérstakt embætti  með sérstöku fagfólki, sem   metur ástand viðkomandi sjúklings og skoðar  hvort árangur  náist með  slíkri meðferð og tryggi eftirfylgni.

Og svo þessi hér:

Dögun mun vinna að því við fyrsta tækifæri að halda stóra alþjóðlega ráðstefnu um vímuefnamál.

Þar myndi verða skilgreindur árangur í meðferðarmálum vímuefnaneytenda, a.m.k. sl. þrjátíu ár, og einnig hugað að hvernig þessum málum er betur komið í framtíðinni.

Á þessa ráðstefnu yrðu boðaðir helstu sérfræðingar í vímuvarnarmálum erlendis frá, til dæmis frá löndum sem hafa farið nýjar leiðir í slíkum málum. Einnig  yrði boðið vímuefnaneytendum, aðstandendum þeirra, fulltrúum félagsmála og heilbrigðisgeirans, dómurum, lögreglu og lögfræðingum, tryggingafélögum, almenningi sem hefur orðið fyrir tjóni af völdum innbrota og líkamsmeiðinga og öllum þeim aðilum sem vimuefnaneysla kemur inn á borð til.

Tilgangur ráðstefnunnar yrði fyrst og fremst að leita nýrra leiða til að eiga við þann vanda sem sífellt virðist aukast á neyslu ungs fólks á Íslandi.

Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn.  Ég hvet alla sem vilja leggja þessum málum lið að láta í sér heyra og segi álit sitt á málinu. 

IMG_9761

Einn af okkar bestu baráttujöxlum og nýji framkvæmdastjórinn okkar að skoða málin.

Ég ætla mér að ræða meira um Dögun og landsfundinn síðar, sem og ákvarðanir sem þar voru gerðar.  Vegna þess að ég er sannfærð um að málefnin okkar eiga erindi við alla íslendinga sem á annað borð vilja réttlæti, sanngirni og lýðræði.  Eigið góðan dag elskurnar.


Drengur fæddur í fjölskyldunni.

Ég er svo rík, í gær fæddist lítill drengur í Noregi, hann hefur fengið nafnið Elías Skaftason, og er sonur Skafta míns og Tinnu, innilega til hamingju öll með hann, Júlíana, Daníel, Óðinn og Sólveig.  Og hann er svo fallegur.

Elías Junior

Hér er pilturinn. Myndirnar fyrir neðan eru af Sólveigu Huldu. Smile

Óðinn, Sólveig og Elías.

Ný mynd af þeim systkinum. 

Ellía Skaftasonjr.

Þetta er Sólveig Hulda nýfædd.

4149_82209469538_7479755_n

Fallegu börnin mín Heart

4149_82208109538_869352_n

Mikið held ég að þér sé létt elsku stelpan mín.  Þvílík sæla. Heart <3

En ég fékk líka aðra ömmustelpu um daginn.  Hún kom í heimsókn fyrir nokkru með mömmu sinni og svo hringdi hún í mig og spurði mig hvort ég vildi vera amma sín og hvort afi vildi vera afi sinn, og við sögðum auðvitað já Heart

IMG_9448-1

Lilja mín þú ert líka velkomin í hópinn minn HeartFlotta stelpa.

 Var á landsfundi hjá Dögun, og ætla mér að segja meira frá honum síðar.

IMG_9770-1

Glæsilegir frambjóðendur okkar í Dögun úr öllum kjördæmum, eins og sést eru konurnar fjórar og tveir karlar. Svo hér má segja að við séum vel stödd gagnvart kynjakvóta, þó það skipti ekki máli, heldur að allt þetta fólk er svo frambærilegt og flott.  


Gott hjá þér Margrét Tryggvadóttir.

Margrét mín þú ert snillingur.  Og nú tafsa menn og kjafsa á málinu.  Vitandi að þeir geta ekki lengur leynst undir fyrri málflutningi.  Með þessu kemur í ljóst hverjir samþykkja stjórnarskrárfrumvarpið, hverjir verða "veikir og mæta ekki" og hverjir hafna því.  Það hefur komið í ljós að meirihluti er fyrir samþykkt frumvarpsins ef menn standa við orð sín.  En svo er þetta með efndirnar, sumir vilja hafa klæðin á báðum öxlum og halda öllum góðum.  Með þessari breytingartillögu eru þeir knúðir til að standa og falla með sínum orðum. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


mbl.is Stjórnarskrárfrumvarpið lagt fram sem breytingartillaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er til ráða?

Þegar maður les svona fréttir þá er fyrsta hugsun þvílíkur lýður.  En svo fer maður að hugsa áfram, af því að ég kannast við margt í þessari frétt.  Það er nefnilega ekki bara um ungafólkið að ræða, heldur er fólk á bak við þau sem líður illa, mamma, pabbi, afi, amma syskini, maki og aðrir aðstandendur líða fyrir þetta allt.

Fólk sem hefur horft upp á ættingja sinn leiðast út á galeiðuna og geta ekkert gert til að laga ástandið.  Veit jafnvel ekki hvert er hægt að leita.

Þetta er það þarf að taka á.  Það gengur bara ekki lengur að unga fólkið okkar sem hefur leiðst út í neyslu sé bara afskipt og helst vilji enginn af þeim vita.  Þau eru komin niður í undirheimana og eiga þaðan varla uppreisnarvon, nema eitthvað  komi til sem kemur þeim aftur á lappirnar.

Þess vegna þarf lokaða meðferðarstofnun, þangað sem hægt er að dæma fíkla í, þar sem þau fá faglega umönnun og þeim hjálpað út úr helvíti fíknarinnar.  Þetta fólk er nefnilega ekki glæpamennirnir, þó það virðist vera svo, þau eru fórnarlömb fíknar sem þau ráða ekki lengur við.  Eru föst í því neti.

Það hefur því ekkert upp á sig að setja þau í fangelsi, þar sem þau kynnast ennfrekar hinum dökka heimi.  Og ef þau eru ekki enn komin með samböndin, þá fá þau þau einmitt þar.

Því er borið við að fjármagn skorti, en ef við hugsum um þann kostnað sem verður af því að hafa fíkla afskiptalausa í samfélaginu, þá er hægt að sjá að sá kostnaður gæti komið til baka ef hægt væri að fækka afbrotum.

Það er nefnilega rándýrt að hafa unga fólkið okkar svona ósjálfbjarga og villuráfandi eftirlitslaust. 

Fyrst eru þar ættingjarnir, sem margir eru komnir á róandi lyf, vegna sífelldra áhyggna af börnunum sínum, mikill tími lögreglu fer í að eltast við innbrot líkamsmeiðingar og margt annað, dómar kosta sitt, Allt kostar þetta bæði peninga og tíma. Svo er það heilbrigðisstofnanir, félagsmálastofnanir, geðlæknar, sálfræðingar, almenningur sem verður fyrir eignatjóni, þjófnaði og árásum. Ég þekki til fólk sem lendir í slíku og það er erfið reynsla, fíklar eru inn á borði þarna allstaðar.  

Þetta er svo fyrir utan þá sorg sem fólk upplifir þegar fíklarnir annað hvort gefast upp á lífinu, eða deyja af of stórum skammti eða jafnvel eitruðu efni. 

Það er erfitt fyrir fólk að skilja það ástand sem ríkir þegar unglingur leiðist út á erfiða braut, en þetta vandamál getur skollið á hvar sem er, í hvaða fjölskyldu sem er og þá ber sorgin að dyrum.

Við höfum hreinlega ekki efni á að missa allt þetta unga fólk niður í myrkrið.  Við höfum ekki leyfi til að láta sem þau séu ekki til, og við einfaldlega getum ekki boðið upp á gera ekki neitt. 

Nú finnst örugglega mörgum að ég sé að reyna að verja gjörðir þessara ungmenna, ég er alls ekki að því, en ég segi bara það sem gerði þetta fólk að því sem þau eru í dag er beint fyrir framan augun á okkur.  Meðan öll orka lögreglu fer í að leita að nokkrum grömmum í vasa fíkla á götunni, er enginn tími virðist vera til að leita að þeim sem standa fyrir óskapnaðinum, flytja inn og fjármagna til að græða sem mest. 

Og þegar hugsað er til þeirra sem líða fyrir þessar aðstæður er komin tími til að hugsa þessi mál upp á nýtt.  Þessi leið er ónýt og hefur ekkert í för með sér nema sorg og óhamingju sem alltof oft endar með ótímabærumdauða.

Eigið góðan dag Heart


mbl.is Ungir síbrotamenn í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt hugsun í fíkniefnabaráttunni.

Loksins er eitthvað jákvætt að gerast í málefnum fíkla.  Loksins er farið að rumska með að þau eru fólk en ekki dýr, og að fíknin er sjúkdómur en ekki glæpaeðli. 

Birgitta Jónsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Nokkrir þingmenn Hreyfingarinnar og stjórnarflokkanna vilja nýja stefnu í fíkniefnamálum þar sem horfið verði frá glæpavæðingu og unnið gegn fíkniefnaneyslu á forsendum heilbrigðis- og félagslega kerfisins. Þingmennirnir hafa lagt fram tillögu á Alþingi þessa efnis, en Birgitta Jónsdóttir er fyrsti flutningsmaður hennar.

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=2013130319851
Að vísu er þetta aðeins eitt skref, en skref í rétta átt.  Vonandi heldur þessi umræða áfram, og fólk fari að hugsa þessi mál upp á nýtt.
Málið er nefnilega þó svo sumir eigi erfitt með að jánka því, að sú stefna sem verið hefur frá upphafi, hefur ekki skilað neinum árangri heldur þvert á móti glæpavætt ungt fólk og svipt það réttinum til að vera í samfélaginu. 
Hræðsluáróður þeirra sem vilja helst engu breyta í þessum málum minnir mig óneitanlega á þann hræðsluáróður siðapostula um að ef bjór yrði leyfður á Íslandi myndu landsmenn allir velta um á bjórfylleríi.  Raunin varð önnur, og með bjórnum var upphafið að öðruvísi drykkjusiðum íslendinga, meira siðmenntað og meiri léttvínsdrykkja, en brennivínið varð ekki lengur "IT"
Það er bara ekki hægt lengur að horfa fram hjá þeirri sóun á ungu fólki sem sífellt yngra leiðist út í allskonar neyslu og það eru afskaplega fá ráð til staðar.  Foreldrar standa anspænis vandamálinu og vita ekkert hvernig þeir eiga að snúa sér í málinu.
Það er ekki hægt að leita til lögreglu fyrr en allt er komið í hönk, því foreldrar vilja ekki glæpavæða barnið sitt fyrr en í lengsu lög.
Þetta er bara kolröng aðferð, og alveg tími komin til að hugsa þessi mál upp á nýtt.
Hér þarf lokaða meðferðarstofnun, þar sem þau eru dæmd í ef þau brjóta af sér, ekkert slíkt ungmenni á heima í fangelsi, og það dugar ekki að þau fari í opna meðferð. 
Ég er því afar glöð með hvað eina sem rúllar þessu máli áfram til betri tilhögunar. 
Þetta fólk á heiður skilinn;  Meðflutningsmenn Birgittu að tillögunni eru Margrét Tryggvadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Skúli Helgason, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Magnús Orri Schram og Þór Saari.

Skrípaleikur? Eða reiði vegna svikinna loforða?

Jamm þetta sýnir svo ekki verður villst um afstöðu Steingríms til stjórnmála.  Hann reynir að gera grín og eins lítið úr Þór Saari eins og hann getur.  Og hvernig? Jú hann er orðin málamaður hjá Davíð Og að með þessari vantraust tillögu sé hann orðin yfirkórstjóri Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.  Það hvarflar ekki að þessum allt múlig ráðherra, sem svo sannarlega hefur mokað undir sig titlum og ráðuneytum, að Þór sér reiður og sé að fara eftir sannfæringu sinni um að það sé nú þegar búið að drepa Stjórnarskrármálið.  Það er ljóst að það var meirihluti fyrir málinu á Alþingi, það varð ljóst í könnun sem var gerð.  En Árni Páll knúði málið út úr því ferli og náði ásamt Katrínu Jakobsdóttur og Guðmundi Steingrímssyni að gera eitthvað allt annað úr málinu.  Þeir sem á annað borð hugsa út fyrir ramman gera sér grein fyrir því hvað Þór Saari er að fara og hvað það er sem hann er reiður yfir, hann gerði alveg skýra grein fyrir sér í dag, hann óttast að með þeirri tillögu sem þríflokkurinn hefur nú lagt fram, verði stjórnarkrármálið eitthvað allt annað en sú niðurstaða sem fólkið í landinu bað um.  Að ef svo vill til að þetta fólk fái til þess tækifæri eftir kosningar, sem vonandi verður ekki, þá geti þeir vélað um það eftir sínu höfði.

En það er svo sem augljóst að þau þrjú Katrín, Árni Páll og Guðmundur eru tækifærissinnar par exelance.

Prinsippin eru enginn, bara von um upphefð og góð jobb inni eftir næstu kosningar.  Því fyrr sem fólk áttar sig á þessu, því betra.  Við getum ekki haft fólk við stjórnvölin sem hleypur eftir skoðanakönnunum og vinsældum hverju sinni.  Það má þó segja um Jóhönnu að hún var algjörlega laust við slíkt.  Það er líka hægt að segja um Valgerði Bjarnadóttur, sem hefur reynst klettur og vinnuþjarkur í Stjórnarskrármálinu, og hefur svo sannarlega verið niðurlægð af formanni sínum, með þessu frumvarpi sínu. 

Fyrir mér varð Katrín Jakobsdóttir ómerkingur þegar hún laug í sinni ræðu að Þór Saari hafi nánast verið með vikulega vantrausttillögu á stjórnina.  Ef þú lýgur um eitt atriði, hvernig er þá hægt að trúa því að þú ljúgir ekki í því næsta?

Og Jóhanna er alsæl með niðurstöðuna, það er gott og blessað, en trúir hún því virkilega að lausn þessa máls sé sigur fyrir hana og ríkisstjórnina?

Það er nóg að líta til nýrra framboða til að skilja að þessi ríkisstjórn er ekki að gera sig.  Aldrei í okkar sögu er þvílíkg magn af framboðum, eða að nálgast annan tug.  Og af hverju ætli þetta sé nú?  Jú það er algjörlega ljóst að almenningur í þessu landi er búin að fá nóg, búin að fá upp í kok af fjórflokknum, þess vegna hefur tvennt greinilega gerst; í fyrsta lagi að framagosar hafa séð ljósið og farið fram með framboð til að ota sínum tota, en einnig að almennt fólk hefur leitað til þeirra sem það treystir til að fara fram og leiða framboð. 

Fólk með skynsemina í lagi getur alveg séð hvað er hvort. 

En hvað sem tautar og raular, ég fagna öllum þessum 20 framboðum, það gæti farið svo að einhver af þessum framboðum næðu eyrum almennings og fengju brautargengi, og vonandi fleiri en eitt þeirra. Heyrði í dag í manni sem þekkir kosningalögin, að það gæti farið svo að ef þrjú framboð næðu með tána í 5% múrinn, þá gætu þessi framboð fengið alla uppbótarþingmennina, þannig að hvert þeirra sem fengi einn kjördæmakjörinn mann, fengju jafnvel tvo uppbótarþingmenn. 

Nú er málið þannig að í skoðanakönnunum þá er ansi stór hópur sem ekki gefur upp afstöðu sína, það má geta leiðum að því að þeir sem ekki hafa gefið upp skoðanir sínar séu að bíða eftir framboði sem höfðar til þeirra. 

Það er í fyrsta lagi afar skynsamlegt og sýnir mikla framþróun í kosningum almennings, því það hefur verið allof oft þannig að fólk hafi bara kosið flokkinn sinn sama hvað.  Nú virðist sem betur fer vera kaflaskipti í því, og kjósendur að fara að taka meiri ábyrgð á atkvæði sínu.  Það er löngu kominn tími til þess. 


mbl.is „Tvíeykisstjórn“ Davíðs og Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband