Stundum er lífið erfitt.

Ég er að reyna að vera bjartsýn og vongóð.  En það gengur frekar illa.  Ég er búin að bjóða bæjarstjóranum, yfirmanni tæknideildar og eftirlitsmanni ríkisins til mín í kaffi, við erum búin að fara um skóginn minn og ræða hvernig best er að fara sem varlegast gegnum hann.  Ég er búin að fá mann til að gæta minna hagsmuna líka.  Það eru allmörg tré sem þarf að færa og þeir eru búnir að merkja þau, en enginn veit hvernig það tekst, þó þetta sé eiginlega besti tíminn til að flytja tré.  Samt sem áður eru heilu lundirnir sem verða malaðir niður undir rythma stórvirkra vinnutækja.  Þar sem sjálfur snjóflóðagarðurinn á að koma og þær skeringar sem verða.

Ég hlusta á þessi hryllilegu vinnutæki koma nær og nær og veit að trén mín eru í hættu.  Og mér finnst eins og ég hafi svikið þau í hendur hryðjuverkafólks, sem engu eirir.  "Tímabundin vinna verktaka" að verki þökk sé þér Jóhanna og Steingrímur og yfirvöld bæjarins, af því það þurfti að finna verkefni til að "bjarga bænum". Þvílík öfugmæli. 

Tré rétt eins og aðrar lifandi verur hafa sál og finna til.  Og nú bíður margra trjánna minna þau örlög að verða mulin undir þessum fjandans hryllilegu tólum og tækjum sem engu eira.

Ég er að reyna að vera glöð og áhyggjulaus, en ég er hætt að geta sofið á nóttunni, ég reyni að mantra. Dóttir mín tók Buddhatrú og ég lærði möntru frá þeim góða félagsskap, fer líka með orð sem ég hef sett saman sjálf, ljós, friður kærleikur....

Ef þetta fólk bara gerði sér grein fyrir hvað það er að gera mér.  Allt í nafni peninga... er þetta hægt?

Fólkið hér á Ísafirði og annarsstaðar hefur áhyggjur af mér og reynir að gera mér lífið bærilegra, ég er þakklát fyrir það, það er gjarnan sagt við mig; Ásthildur hvernig gengur, og máttu vera áfram í húsinu þínu.  Og ég segi sú barátta er ennþá ekki hafin, nú er bara að reyna að verja eins mikið af gróðrinum mínum og hægt er.

Ég vil ekki verða veik að reiði eða sorg út af þessu.  Það er bara svo fjandi erfitt að horfa upp á þetta allt saman gerast og ég get bara unnið smá varnarsigra.  Það virðist enginn ráða lengur við þessa tröllavæðingu. Enginn Ómar Ragnarsson að verja mín tré, því miður.

IMG_3794

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til dæmis er voða erfitt að flytja 6m. háar furur svo vel sé.

IMG_3798

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það sést ekki mikill gróður hér, en öll þessi tré verða skafinn burt og notuð í undirstöðu fyrir þennan fjandans snjóflóðavarnarvegg, það er bara ömurlegt.

Og ekki líður mér betur að vita að ég hef boðið mörgum verum að koma til mín, vegna sprenginga sem gerðar hafa verið til að nota grjótið í uppbyggingu, verur sem þarf að hlú að og eru hjálparlausar við slíkar aðstæður.

En sem sagt, maðurinn er algjörlega fastur í því að hann sé herra jarðarinnar og geti gert hvað sem hann vill. Það er bara ekki þannig. Það eru aðrir heimar og aðrar verur sem eiga sinn tilverurétt. Einhverntímann vonandi þroskast mannskepnan upp í það að virða það sem er við hliðina á þeim. Það verður dagurinn sem menn hætta að dansa kring um gullkálfinn og fara að hlú að nærumhverfi sínu.

En stundum bara getur maður ekki meir. Og mig langar helst til að flytja langt burt meðan þessar vélar rústa 30 ára starfi. En ég bara kemst ekki burtu, því ég þarf að hlú að öðrum plöntum og ganga frá undir veturinn.

Sumt er bara svo ótrúlega óþolandi. Ef til vill er ég of viðkvæm fyrir þennan harða heim.


Skyggni, draumfarir og vissa um lífið eftir "dauðann".

Þú ert kjarkmaður Kári, að opna á það að það sé ekki bara líf eftir dauðann, heldur fylgist ættingjar með bæði okkur og því sem er að gerast. 

Ég veit að þetta er svona, því ég hef fyrir því margvíslegar sannanir fyrir mig, einnig alin upp hjá afa mínum sem var bæði rammskyggn, fann hluti sem voru týndir, fjarskyggn og hrærðist í veröld milli heimanna. Átti einnig ævilanga vináttu við álfkonu sem hann sat löngum og spjallaði við.    En það er nú einhvernveginn svo að menn setur hljóða þegar einhver vekur máls á þessu.  Margir eru enn þann dag í dag hræddir við að viðurkenna skyggni eða slíkar "tilfinninga" af ótta við hæðni, niðurlægingu og afneitun.  Það er í sjálfu sér allt í lagi að trúa ekki á framhaldslíf, en annað mál er að gera lítið úr þeim sem upplifa slíkt. 

Þess vegna var ég ánægð að lesa þessa tilvitnun í þig. 


mbl.is „Væri ég lifandi hefði ég sent þessa vísu inn í Moggann“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venjuhelgaðir titlar og sannfæring þingmanna.

Hvað er venjuhelgað þarna á Alþingi?  Ég hélt að þingmenn sverðu eið með eða án biblíunnar um að vera sjálfum sér samkvæmir og fara eftir eigin sannfæringu.  Ef einhver þingmaður lítur svo á að vinnufélagar hans séu ekki virðingarverðir, hvort er þá rétthærra sannfæring hans eða venjuhelgað ávarp?

Bara spyr, ég tek að öðru leiti ekki afstöðu til þessa máls, en segi fyrir mig að margir sem þarna sitja og hafa setið eiga ekki skilið að kallast hæstvirtir eða háttvirtir. 

Það er nefnilega rétt sem Jón Þór segir, menn afla sér virðingar, hún kemur hvorki með upphefð eða titlum. 

Og að gera svona mikið mál út úr þessu finnst mér frekar kjánalegt.  Því satt að segja hljómar þetta niðurlægjandi fyrir þá einstaklinga á þingi, sem fólk ber litla sem enga virðingu fyrir. 


mbl.is „Þessi ávarpsorð eru venjuhelguð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður afmælisdagur hjá mér.

Bæjarstjórinn kom í heimsókn, ásamt yfirmanni tæknideildar og umsjónarmanni verkefnisins.  Ég bauð þeim kaffi og við ræddum málin.  Fórum svo upp í ræktunina og þar voru málin rædd enn frekar.

Þeir lýstu því yfir að þeir vildu gera sem minnst rask í trjálundinum mínum, og ætla að færa veginn þannig að stærstu trjánum verði hlíft.    Reynt verði að færa öll trén með stórvirkum tækjum.  Og að ég fái að halda lækjunum mínum báðum.

IMG_3775-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá þær skemmdir sem unnar voru þegar vatnslögnin var lögð, ekki beint upplífgandi.

IMG_3780

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bæjarstjórinn og eftirlitsmaðurinn að skoða hvar best er að leggja veginn.

IMG_3778-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá reisulegar furur og staurinn sem sýnir að hér átti að fara í gegn, en nú hefur vegurinn verið færður.

IMG_3779-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Yfirmaður tæknideildar og Elli skoða hvar best er að taka veginn í gegn.

IMG_3781

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér endar veggurinn, en trén verða færð inn á eyðimörkina sem varð vegna vagnslagnarinnar.

IMG_3777

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já þetta svíður, en ég verð að vera ásátt með að vegurinn fari í gegn, og satt að segja þótti mér vænt um hvað þeir voru allir sammála um að gera þetta eins varlega og hægt væri, og bjarga eins mörgum trjám og mögulegt væri.

 

Bara svo að hnykkja á því að þessi tvö mál eru aðskilin, þ.e. vegurinn gegnum trjáreitinn minn, og svo húsið mitt.  Þar verður stál í stál, svo það sé á hreinu.

En allavega ég átti góðan afmælisdag, og er boðin í mat til minnar elskulegu fjölskyldu frá El Salvador, Pablo og Isobel Díaz.  Vona að við fáum babusas sem er einn af mínum uppáhaldsréttum. 

Takk svo öll fyrir góðar óskir í dag og fallegar hugsanir til mín, ég met það mikils og það gerir mig líka sterkari að finna slíkan meðbyr á þessum erfiðu tímum.  Innilega takk fyrir mig. Heart

 


Hver er réttur einstaklinga á Íslandi árið 2013?

Ég frétti það á skotspónum alveg óvart að það ætti að ráðast í vegagerð gegnum ræktunarlandið mitt í þessari viku.  Það var af tilviljun sem maðurinn minn fór í göngutúr til að skoða eyðileggingu sem gerð var á svæðinu eftir vatnslögn, sem þó var reynt að forða eins mikið og hægt var á skemmdum.  Maðurinn sagði mér að undir þennan highway færi svona 70 - 90 % af ræktuninni. tæplega 30 ára starf til einskis. 

Það var þess vegna sem ég fór og ræddi við sýslumanninn, hann sagði mér að fara og tala við bæjarstjórann um málið, var reyndar afar vinsamlegur og vildi ráða mér heilt. 

Svo ég fór og ræddi málið við bæjarstjórann okkar, sem er hinn vænsti maður og einn af okkar íþróttahetjum.  Ég sagði honum hreint út að ég væri ekki ánægð með þessar framkvæmdir, sérstaklega af því að það hafði nefnilega gleymst að segja mér frá þeim, rétt eins og öðru sem þeir ætla sér að framkvæma. 

Hann tók mér ljúfmannlega og eftir að hafa hlustað á mig tala um hve illa þeir hefðu staðið að þessum málum, og þar sem það væri bókfest að hann hefði sagt að hann hefði verið að hugsa um að hlífa gróðurreitnum mínum með því að stytta varnarvegginn og að ég væri afar óhress, bauð hann mér að við skyldum hittast í dag mánudag og ræða málin með verktaka, verkstjóra og yfirmanni tæknideildar.

Ég féllst á það og nú hef ég setið við símann í allan dag, og ekki vikið út úr húsi, ef hann skyldi hringja í mig og boða komu sína.

Ég hef það eftir yfirmanni tæknideildar að leyfið sem ég fékk til útplöntunar hafi gilt til 20 ára.  Og þar sem ég fékk það 1986, þá rann það út árið 2006.  Þess vegna telur yfirmaður tæknideildar að hann þurfi ekkert að hafa neitt samráð við mig, og geti gert hvað sem hann vill við svæðið.

En ég vil benda þessari elsku á að trén eru mín persónulega eign, og ég bendi enn og aftur á stjórnarskrána þ.e. 72 greinina, þar sem stendur að eign manna sé heilög og hana megi ekki þvinga menn til að láta af hendi, nema að fullar bætur komi fyrir og að undangengnum dómi.  Stjórnarskráin er eins og við vitum lögin sem eru ofar öllum lögum, og þó hafi verið vísað í allskonar reglugerðir til staðfestingar þeim gjörðum bæjaryfirgvalda, þá gildir stjórnarskráin.  Enda hef ég vitni að því að yfirmaður tæknideildarinnar sagði mér að ég fengi öll tré bætt sem yrðu eyðilögð.  Og við erum að ræða um tæplega 30 ára ræktunarstarf eins og ég sagði áðan.

Ég veit líka að það er ekki hægt að gera úttekt á trjám sem búið er að fara yfir með stórtækum vinnuvélum, eftir á.  Þess vegna geri ég þá kröfu að ef þetta verður framkvæmt, og þið getið sýnt fram á að það þjóni almannahagsmunum, þá verður ekki hróflað við neinu fyrr en fengnir hafa verið til þar til kvaddir matsmenn, skógrækarmenn sem meta trén.

Það var líka haft eftir verktakanum, þegar maðurinn minn sagði að hann vissi að eigandi trjánna yrði ekki ánægður, að þá sagði hann: Það skiptir engu máli, það er búið að gefa út verkleyfi.

En málið er þetta, þegar ég ræddi við bæjarstjórann, þá sagðist hann ekkert vita um málið.... svo hver gaf þá út leyfið, og á hvaða forsendum, áður en nokkuð hefur verið rætt við mig, og ég gat ekki einu sinni lesið það í Bæjarins besta, því fréttinn barst ekki heldur þangað.

Mér þykir vænt um þennan bæ, mér þykir ennþá vænna um fólkið sem hér býr, og ég er þakklát fyrir þann stuðning sem ég hef fengið frá svo mörgum íbúum bæjarins og alla þá velvild sem þeir sýna mér. Þess vegna skil ég ekki af hverju er ekki hægt að koma fram við mig eins og fólk, kalla mig á fund eða þó ekki væri nema senda mér bréf, og a.m.k. leyfa mér að vera með í ferlinu. 

Og nú bíð ég hér eftir þessum fundi.  Vona að þú hafir ekki gleymt mér Daníel minn.  Ég ætla því að bíða á morgun líka, en best væri að þið kæmuð ekki fyrr en á miðvikudaginn, þá skal ég hafa heitt á konnunni og jafnvel kaupa meðlæti.  kl. tvö eða 14. á miðvikudaginn væri bara fínt fyrir mig, en ef það hentar ykkur ekki, þá væri betra að þið létuð mig vita.  Með bestu kveðjum Ásthldur Cesil.

 


Busavígslur.

Minn drengur er að byrja í menntaskóla.  Hann hefur verið busaður í 3 daga, komið blautur, málaður og moldugur heim.  Eyðilagði meðal annars peysu sem hann fór í. 

Hann hafði gaman af þessu, en það eru ekki allir þannig.  Margir kvíða þessum atburði, og í einstaka tilfellum veldur þetta því að fólk einfaldlega vill ekki fara í framhaldsskóla, þó það sé fátítt.

Ég fór á foreldafund núna fyrir nokkrum dögum, þar sem Busavígslur voru ræddar.  Ein móðir hafði miklar áhyggjur af þessu, dóttir hennar fékk flest verðlaun fyrir góða framgöngu og dugnað og námsárangur upp úr Grunnskólanum   Það er því nokkuð ljóst af áhyggjum móðurinnar að dóttir hennar hefur verið þungt hugsi yfir busunum.

Skólameistarinn og kennararnir sögðu hreint út að marga daga fyrir þennan atburð væru þau miður sín af áhyggjum um hvort allt færi úr böndum.

Einn forráðamaðurinn kom fram með það, að venjulega þegar nýtt fólk mætti til vinnu, þá væri reynt að koma vel fram við það og láta það finnast það velkomið.  Þarna væri alveg þveröfugt farið, og allt gert til að ýta fólki burt.

 

Ég held að það ætti hreinlega að banna þessar busavígslur.  Þetta er hvort sem er angi af gamla yfirráðatímabilinu, þar sem voru þrælar og kóngar.  Það er reynt á allan hátt að niðurlægja nýnemana og alltof margir eldri nemendur gangast svo upp í því að vera kóngar einn dag eða fleiri, að það þarf ekki mikið til að þeir gangi of langt.  Það kom auðvitað fram að kennarar væru viðstaddir og reyndu að hafa hemili á atburðum, en samt...

Væri ekki nær að nýnemar væru boðnir velkomnir í félagsskapinn, þar væri boðið í grillaðar pylsur og þeir sem eldri væru þjónuðu hinum nýkomnu og byðu þá þannig velkomna í hópinn?

 

Bara spyr, ég sé ekkert nema villimennsku í þessum sið, sem ég veit ekki hvernig hefur þróast og af hverju var byrjað á. 


mbl.is Busar brenndir með straujárni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek undir með Donald R. MacLeod, líttu þér nær frú María Damanaki.

Mikið er ég ánægð með hann Donald R. MacLeod, það er flestum ljóst sem eitthvað vita um sjávarútveg að makríldeilan er skrípaleikur ESB.  Var einmitt að lesa að makríllinni er að fjölga sér mikið og er að verða plága þar sem hann fer um.  Þetta er ránfiskur sem étur allt sem að kjafti kemur. 

En svona fyrir utan það, þá er það skrýtið í mínum huga að ESB skuli einungis einbeita sér að færeyingum og íslendingum smáþjóðum sem þeir telja sig eiga í fulli tré við.  Rétt eins og búlliinn á skólalóðinni sem ræðst á þá sem eru minnimáttar að hans mati, en þorir ekki í hákarlana.

Tek undir orð Donalds, líttu þér nær frú María, það gæti nefnilega vel verið að smáseiðin sem þú telur þig ráða við séu ekki eins mikil smákóð og þú heldur. 


mbl.is Vill að ESB horfi í eigin barm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópumeistaramót í Mýrarbolta á Ísafirði þessa helgi og mikið fjör.

Mýrarboltin er í fullum gangi hér í Tungudal, þar er mikið fjör og veðrið alveg ágætt.

IMG_2181

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna er Bára mín, en hún tekur þátt í þessum frábæra leik.

IMG_2186

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Glöð og ánægð.

IMG_2190

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er mágur hennar og svilkona og Jóhanna frá Austurríki og svo litli Jón Elli.

IMG_2197

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Er að hugsa um að láta myndirnar tala.

IMG_2208

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_2234

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_2240

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mér skilst að þessi víggreifu naut séu lögreglumenn frá Spáni, sem skráðu sig í keppnina

 

IMG_2247

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_2251

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér voru bæði forynjur og Drekar og allskonar skrýtnar skepnur.

IMG_2258

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og litli maðurinn fylgdist vel með, öruggur hjá frænda.

IMG_2261

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mamman svo glöð og skemmti sér greinilega vel.

IMG_2262

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er ekki svo auðvelt, get ég sagt ykkur.

IMG_2269

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessir voru með flotta hatta.

IMG_2273

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Búnir í bili og þá þarf að slaka á.

IMG_2275

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Forynjurnar eru sko ekki árennilegar, enda leiðtoginn gamalreyndur keppnismaður hún Eygló.

IMG_2280

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já enginn er öfundsverður að mæta þeim í keppni.

IMG_2292

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En sem sagt, enginn hefur sagt að þetta væri auðvelt.

IMG_2296

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hehehehehe...

IMG_2301

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og menn geta næstum staðið beint á ská...

IMG_2307

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stelpurnar stóðu sig ekkert síður en strákarnir.

IMG_2309

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Keppniskonur, frænkur og vinkonur.

IMG_2311

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Það er einmitt Drullugaman í Tungudal einmitt núna.

IMG_2315

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og keppnisskapið leynir sér ekki.

IMG_2316

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég skal ná boltanum.

IMG_2318

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nei ég náði honum og ætla með hann í markið. 

IMG_2327

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú er að duga eða drepast...

IMG_2328

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það er erfitt að standa...

IMG_2331

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þetta venst.

IMG_2334

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sem sagt, ég ætla að ná boltanum.

IMG_2336

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sum liðin voru blönduð konur og karlar léku saman.

IMG_2339

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Best að hanga bara í gaurnum, hann er hvort sem er stöðugri en ég.

IMG_2161

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er Elías Nói Skaftason, hann verður skírður á morgun þessi litla elska.

IMG_2126

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sólveig Hulda, Jón Elli og Zorró hjá ömmu í kúlu. 

En það kemur allt saman seinna. 

Gleðilegan drulludag. 

 

 

 

 

 

 

 


Er eitt barn merkilegra en annað?

 Bara spyr.   Það er alltaf gleði og gæfa fyrir fólk að eignast barn.  Sem betur fer eru þau flest velkomin í heimin og foreldrum til gleði. Ég man þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn, hann var reyndar ekki alveg planaður... eða þannig og ég ól hann upp að mestu leyti sjálf fyrstu árin, en hann var svo velkomin fyrir því, og ég man hvað mér þótti hann mikið kraftaverk og mér fannst ég vera svo stór og merkileg að geta komið í heimin einhverju svona fullkomnu. 

Lætin núna kringum væntanlegan prins, eru frekar ýktar að mínu mati, og allar serimoníurnar kring um blessað fólkið alveg örugglega að þolmörkum.  Er alveg viss um að allt þetta umstang gerir tilvonandi foreldrum ekki neitt gott, en fólk er auðvitað ekkert að spá í það.   Það kemur svo vel fram í þessu öllu hvað við mannfólkið erum ófullkomin.   Þurfum alltaf að hafa einhverja sem leiða okkur, einhverja sem við getum sameinast um að dást að og elska hvað sem það kostar.  Hvort sem það eru biskupar, kóngar, einræðisherrar, leikarar eða söngvarar eða what not.

Við þurfum einhverja til að fylgja í stað þess að læra bara að vera við sjálf og treysta því að við séum alveg jafn merkileg öll sömul.

Auðvitað óska ég ungu hjónunum alls hins besta og vona að barnið fæðist heilbrigt og vel skapað.  Ég byrjaði til dæmis á því að telja fingur og tær, er næstum viss um að flestar mæður geri eitthvað slíkt.

En við skulum muna að við erum öll jafnmerkileg og öll börn eru jafnfalleg í augum ástvina sinna.  Og þau gefa svo sannarlega hamingju til okkar. 

images


mbl.is Bíða tilkynningar við Buckingham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostlegt ævintýri Húnamanna.

Ég hef verið að fylgjast með ferð Húna II þessa dagana.  Og ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir því hve merkilegt þetta ævintýri þeirra Húnamanna er. 

560621_293207350765372_507067132_n

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

Það er ekki bara að listamennirnir séu fallegt og gott fólk, heldur er þetta framtak alveg einstakt.

Þarna nota þau sumarfríið sitt til að gleðja fullt af fólki, og styrkja björgunarsveitirnar um allt land.

Orkan og lífsgleðin skín af þeim. En svo er líka annað og það er að vekja athygli á þeim skipum sem nú eru að hverfa af sjónarsviðinu hvert af öðru vegna hugsunarleysis um gamlar arfleifðir.

Ég held að það sé alveg einstakt að geta lyft upp svona mikilli stemningu um allt land, þúsundir íslendinga þyrpast niður á hafnir strandbæja landsins og verða einhvernveginn miðpunktur.

Þið eigi miklar þakkir skyldar Húnamenn og eigendur. Svona getur ekki gerst nema með samheldni, kærleika og gleði.

Innilega takk fyrir mig.  Ég öðlast aftur smátrú á gott samfélag og yndislegt fólk.

405936_206724336080341_848349422_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Tók þessar flottu myndir af Facebooksíðunni þeirra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband