15.7.2013 | 22:10
Einmitt Björvin.
Björgvin minn, já það er bara alveg ljóst að það þarf að trappa niður fíkla í mikilli neyslu þegar þeir eru handteknir. En það þarf að gera læknum það ljóst sumum hverjum, því það er afar hættulegt, ég lenti nefnilega í því með minn son, sem var handtekinn í mikilli neyslu og var vistaður á Hverfisgötunni, var síðan kallaðu heim og var þar í varðhaldi, en fékk ekki þau lyf sem þurfti. Hann hafði samband við mig og var með miklar áhyggjur, hafði reynt að hafa samband við lækni sem hann treysti, en sá lét ekki ná í sig. Ég reyndi sjálf að hafa samband, en það var engin skilningur á alvöruleika málsins. Ég og systir mín höfðum samband við varðstjórana á Hverfisgötunni og þeir urðu mjög hissa á þessu, og sögðu að það væri afar hættulegt að drengurinn fengi ekki lyfin sem hann var á þar. Loks tókst okkur að fá því framgegnt að hann fengi lyf, en þá var einungis um að ræða helmings þess sem hann hafði verið á þar.
Við kærðum málið til þar til gerðra yfirvalda, það sem þau aftur á móti gerðu var að senda kæruna beint til yfirlæknis heilbrigðisstofnunar hér til að vera dómarar í eigin sök.
Það er nákvæmlega enginn skilningur á málefnum fíkla, hvorki meðal lögreglu, dómara eða lækna, því er von að málin séu í þvílíku skelfilegu ástandi sem það er í dag.
Fíklar eru bara ekki fólk að áliti þessara aðila. Það er vandamálið. Og þess vegna geta óprúttnir glæpamenn gert það sem þeir vilja við börnin okkar út og suður með að því er virðist fullu leyfi ykkar allra.
Pældu í því Björgvin
![]() |
Fíklar trappaðir niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2013 | 23:50
Dionne Warwick.
Ég verð að segja að ég hef ekki verið mikið hér með gleðiefni. Hef verið full af sjálfsvorkunn vegna þess sem er að gerast í kring um mig og ekki haft orku til að gleðja lesendur mína með myndum af barnabörnum eða öðru skemmtiefni. En ég ætla að láta verða breytingu þar á. Ég á svo margar myndir af skemmtilegu efni núna í meira en meira en einn og hálfan mánuð. En það sem hefur bjargað minni geðheilsu eru blessuð barnabörnin mín, þau hafa verið hér hjá mér fullt af þeim allan þennan tíma, ég væri sennilega komin á spítala ef það væri ekki fyrir glaðværa yndislega krakka sem lífga tilveruna alla daga og eru ömmu sinni óendanleg uppspretta gleði og - vinnu. Því það fer mikið fyrir börnum sem fá að vera frjáls í ævintýraheimi kúlunnar og ömmu sinnar. En þær myndir munu koma núna á færibandi.
Ég er svona að átta mig á því að við ráðum sjálf hvernig við lifum lífinu, og hvernig við tökumst á við tilveruna, og það er undir okkur sjálfum komið að komast áfram þrátt fyrir erfiðleika og það sem okkur finnst óréttlæti heimsins. Þegar við tökum lífinu þannig, þá gengur allt betur. 'Eg er reyndar alveg harðákveðin í því að fara leið Don Kikotes og berjast við vindmyllur bæjarins og ofanflóðasjóðs til síðasta blóðdropa. En ég ætla ekki að láta fólk sem ekki veit betur, drepa mig niður í endalausa vorkunn, þeir munu fá sinn dóm á endanum og sjá villu síns vegar. Það er þeirra vandamál ekki mitt.
En ég varð fyrir einstakri upplifun í gær. Þannig var að ég hafði séð auglýsta tónleika með Dionnu Warwick undanfarið, ég hugsaði mikið um hvað það væri yndælt að skreppa á tónleika, en hugsaði svo að NEi, ég hef ekki tíma til þess núna.
Málið er að þegar ég var yngri átti ég tvær uppáhaldssöngkonur sem ég hlustaði mikið á, sérstaklega eftir að hafa verið að spila með hljómsveitum, eða uppvarta á slíkum, sem við Elli gerðum mikið af í þá daga, þegar við vorum að koma upp húsnæði yfir okkur og börnin. Þá var svo yndælt þegar ég kom heim að setja á fónin þessar tvær vinkonur mínar sem ég hafði svo mikið álit á. En þetta voru Dionne Warwick og Cleo Lain. Reyndar má segja að þarna hafi líka verið hljómsveit sem hét Moodi blues, sérstaklega hlustaði ég á spólu frá þeim sem heitir Creation, frábær músikk.
Ég fór á tónleika með Cleo Lain á Broadway minnir mig, sem voru alveg dásamlegir.
Þar sem ég var að gróðursetja plöntur í garðinum mínum í fyrradag, hringir dóttir mín í mig og spyr mig hvort ég vilji ekki koma á tónleika með Dionne, á morgun. Mamma ég veit að Þú elskaðir þessa söngkonu, og mig langar svo til að bjóða þér á tónleika með henni, það eru tvö sæti laus, svo þú verður að ákveða þig strax.
Og ég gat ekkert sagt annað en Já. Og sætin voru á besta stað get ég sagt og höfðu losnað rétt si sona á síðustu stundu.
Þá þurfti að tékka á flugi og panta það. Og allt gekk upp. Að vísu var sagt í tölvunni að ekkert sæti væri laust í flugi, svo ég fór inn á flugvöll og jú, það var sæti laust bæði suður með fyrri vél daginn eftir og seinni vél daginn eftir.
Dóttir mín náði svo í mig og við ókum svo beinustu leið á Hellu þar sem hún er nú, hitti elskulegu barnabörnin mín og átti góða stund.
Hún sótti ömmu á flugvöllinn.
Ég hreinlega elska þessi barnabörn öll alveg rosalega mikið
Og þá er að koma sér austur á Hellu.
Og auðvitað þurfti aðeins að koma við í ríkinu á Hellu af gefnu tilefni heheheh.
Og auðvitað erum við komin í eldhúsið hjá dóttur minni, stelpurnar mínar og hér er Jóhanna, komin alla leið frá Austurríki til að vera með Báru, hún er alveg fullkomlega ástfanginn af Íslandi.
Leir er spennandi, sérstaklega þegar svona flott tæki er til að búa til allskonar flott form. Enda var leikið með þetta vel og mikið.
Hér er Jón Elli komin heim af leikskólanum, og Jóhanna hin austurríska, flott stelpa. Þessi er spes fyrir Kay kærastan hennar í Austurríki. Hi Samuel, Heidi, Kay og Miriam
Þetta var ævintýraferð algjörlega óvænt, sem er ólíkt mér að stökkva svona, en hvað er hægt annað en að segja já þegar fallega er boðið.
Og þá var tími komin til að bregða sér af bæ og við dóttir mín lögðum upp í ævintýr í Hörpu.
Þetta eru flöskur fylltar af allskonar vökva og sent upp á spegill sem sýnir þessa mynd, sannarlega flott.
Við skoðuðum okkur um og vorum hrifnar af því sem fyrir augu bar. Þó ég hafi verið á móti þessari byggingu, verð ég auðvitað að hrósa því sem hrósa ber.
Við ákváðum að fá okkur súpu fyrir showið, hún smakkaðist vel. Margir höfðu reyndar fengið sömu hugmynd, þannig að það var örtröð og biðröð en starfsfólkið tók þessu með ró og var elskulegt, þó mátti sjá svita boga af þeim við öll ósköpin.
Svo fór fólk að streyma að, allskonar fólk, frægt og ófrægt allir eftirvæntingarfullir að sjá þessa dívu, sem svo sannarlega er enginn venjuleg manneskja. Þetta er fallega dóttirin mín.
Hér við inngang Eldborgar.
Já hér erum við, hún fædd 1940 og ég 1944, báðar sætar.. eða þannig
Hún er nú samt flottari.
Sviðið og eftirvæntingin leyndi sér ekki meðal gesta.
Það var bannað að taka myndir og að sjálfsögðu ber að virða það. En þessi kona geislaði á sviðinu, og hún hefur sko engu gleymt. Hún er ekki bara glæsileg heldur er hún fyndinn og skemmtilegur skemmtikraftur líka.
Hún lék á alla okkar strengi, fram og til baka og alltaf þegar við héldum að hún ætti ekki meira eftir, þá skaut hún með ennþá meiri krafti. 'Otrúleg og yndisleg kona. Ég er svo hreykin af því að hafa skilið hve stór hún er þegar ég var bara ung kona í Glasgow, þegar hún var að byrja sinn feril.
En ég tók þó mynd af hljóðmönnunum, þeir eru örugglega rosalega góðir og flottir
En skilaboðin hennar Dionnu eru skínið og brosið, smile and shine, og til að kóróna kvöldið kynnti hún til leiks barnabarnið sitt, unga stúlku 18 ára, sem hefur verið að syngja með henni lengi, og þvílíka rödd sem stúlkan hafði, enda greinilegt að amman var hreykin af henni.
Við fórum allavega út ég og dóttir mín með gleði í hjarta og bros, skinum eins og tvær stjörnur alla leið á Hellu.
Takk fallega kona fyrir að fá að upplifa yndisleik þinn og sál. Þú ert ein af þessum englum sem lýsa upp heimin og það er dásamlegt að fá að upplifa smá geisla af því gliti. Takk líka elsku Bára mín fyrir að gefa mömmu þinni svona ævintýri alveg óvænt.
En eins og ég sagði þá hefur kúlan verið full af yndislegum barnabörnum, sem ég á eftir að sýna ykkur á næstunni, núna þegar ég hef komist upp úr drunganum.
Eigið góða nótt mínir kæru bloggvinir.
Bloggar | Breytt 12.7.2013 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.7.2013 | 19:27
Meira um ofanflóðavarnir í Gleiðarhjalla.
Hér eru forsendur þess að setja mig og nágranna minn út á guð og gaddinn.
http://snerpill.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/459/
http://snerpill.isafjordur.is/skipulagsskrar/skra/470/
http://www.isafjordur.is/ofanflodavarnir_i_gleidarhjalla/
Athugasemdir mínar.
Bls. 11. Stór snjóflóð hafa aldrei fallið úr hlíðinni neðan Gleiðarhjalla svo vitað sé.
Aldrei hefur húsið mitt verið rýmt í þau tæp 30 ár sem ég hef búið þar.
Hvað hefur breyst frá því 1984 5, þegar bærinn úthlutaði mér landið til byggingar húss , garðplöntustöðvar og svæði til skógræktar þar fyrir ofan?
Að mínu mati ekkert.
Bls. 13.
Hlíðin fyrir ofan Gleiðarhjalla hreinsast jafnóðum og snjór kemur í hana. Snjóflóð á því svæði eru því lítil og ná að öllu jöfnu ekki fram af hjallanum. ....
Já samt á að kaupa upp húsið mitt, en leyfa mér náðarsamlegast að vera í því frá 15 apríl til 15. desember, einmitt þegar skriðuhættann er mest. Enginn ótti um Snjóflóð???
2.2.2. Talsverð hætta er á grjóthruni úr Gleiðarhjalla. Aurskriður falla reglulega í rigningum og leysingum þó ekki .....
fyrir ofan mig hefur aldrei fallið aurskriða svo vitað sé. Og grjót sem fellur stöðvast alltaf ofarlega í hlíðinni, þar sem hlíðin er blaut og mikið af grjóti sem stoppar slíkt af.
Hver er reynslan af skerun sem fyrirhuguð er í Eyrarhlíðinni, td. Frá Siglufirði, mér er sagt að húsin þar skríði fram af meiri hraða eftir að slitið var á jarðlög í hlíðinni.
Bls. 19. Núllkostur. Núllkostur felur í sér núverandi ástand......
Ég er alveg til í að hlýta rýmingu á húsinu ef talin er þörf á því. Slíkt hefur reyndar aldrei gerst síðan 1987 þegar við fluttum inn í húsið og aldrei fallið þar flóð sem elstu menn muna, það er hægt að spyrja fólkið sem bjó í húsinu innan við mig, en þar bjuggu m.a. Ásgeir Svanbergsson garðyrkjumaður og Gísli Svanbergsson Erla Svanbergsdóttir, Inga Svanbergs og Þorbjörg, þau geta vitnað um þetta, ásamt öllu þvi góða fólki sem bjó mörg ár í kring um mig á þessum stað.
Bls. 20. Um áhrif á samfélagið. Þar kemur skýrt fram að þessi framkvæmd er einungis til þess að skapa tímabundna vinnu í samfélaginu. Sjá hér að neðan.
Bls. 23. Garður 3.
Þörf á áíka varnargörðum og vestar, auk þess veitir þétt skógrækt ofan byggðar fullnægjandi vörn gagnvart grjóthruni.
Hvað með okkar skógrækt síðastliðinn tæp 30 ár, eða frá árinu 1986.
Samkvæmt teikningum á að taka helming af uppeldissvæði Garðplöntustöðvarinnar undir vinnslusvæði, sem eyðileggur möguleika mína á að selja eða leigja aðstöðuna. Þar eru auk þess há tré allt að4 - 6 metrar sem á þá að taka burtu.
Ég vil mótmæla þessari aðför að lífi mínu, bæði atvinnu sem átti að skapast nú eftir að ég er komin á eftirlaun. Þessi tæp 30 ár sem við höfum eytt í gróðursetningu ofar í hlíðinni og að hrekja mig út úr því húsi sem ég ætlaði mér aldrei að fara úr. Við erum þriggja manna fjölskylda sem ætlum að fá að vera hér áfram..
Húsið mitt er þar að auki orðið tákn fyrir Ísafjörð og hefur verið skrifað mikið um það til dæmis í erlendum blöðum ein greinin mun birtast næsta vor í þýsku blaði Geo, búið að taka upp viðtal og myndir.
Einnig vil ég mótmæla því að hafa þurft að lesa alla framkvæmd málsins í blöðunum. Fyrst í Bæjarins besta um að kaupa ætti húsið mitt upp með flennimynd. Sem varð til þess að ég fékk taugaáfall og þurfti að leita læknis og fá geðlyf. Síðan aftur núna að lesa um þessa frummatsskýrslu sem var ekki kynnt okkur áður en hún var birt, það varð annað niðurfall hjá mér, leita læknis og er nú aftur á róandi lyfjum. Eg veit að mat sem þeir létu gera á húsinu mínu liggur fyrir en þeir hafa heldur ekki haft samband um það við okkur.
Ég vil fyrst og fremst fá að búa áfram í húsinu mínu, helst að sleppa við allt þetta rútt sem hefur ollið mér gífurlegu hugarangri og þjáningum. Því þetta er meira en bara hús, þetta er lifistandard þar sem barnabörnin mín hittast og gista.
Þetta sem ég set fram eru einungis helstu áherslu punkar, ég sendi hér með skýrsluna og tel að það sé alls enginn þörf á þessu, þar sem ég bý innst á þessu, stað aðeins eitt hús fyrir innan mig, sem hvort sem er á bara að koma leiðigarður. Ekkert íbúðarhús fyrir neðan mig eða ofan. Og ég er eins og ég sagði tilbúin til að rýma húsið ef þess er talin þörf, sem aldrei hefur gerst. Fyrr en í vetur, þar sem við þurftum að rýma, og var ekkert mál, en að mínu mati pr stuff upp á það sem koma skyldi.
Enn úr skýrslunni.
Í dag er skógrækt á nánast öllu framkvæmdasvæðinu. Ef framkvæmdir við varnargarða væru ekki fyrirhugaðar, myndi vaxa upp allþéttur skógur ofan við alla efri byggðina. Framkvæmdir munu spilla töluverðu af yngri skógi. Skógræktarsvæðið innan við Stórurð verður þó ekki skert, nema hugsanlega örfá tré í neðsta horninu næst Stórurð. Skógræktarsvæði ofan Hjallavegar munu skerðast lítillega vegna breikkunar á flóðarásinni.
Væri nú ekki skynsamlegra að leyfa skóginum að vaxa og auka gróðursetningu og spara sér nokkur hundruð millur, á þessum erfiðu tímum?
6.2.2 Skóg- og trjárækt
Eins og áður getur er gert ráð fyrir skóg- og trjárækt á og við fyrirhugaða varnargarða. Í hlíðinni ofan við garðana er gert ráð fyrir að áfram verði ræktaður blandaður útivistarskógur, en sú ræktun verður á ábyrgð landeiganda, sem eftirfylgni framkvæmdarinnar. Hlémegin við garðana er einnig gert ráð fyrir skóg- og trjárækt, einkum í dældum í neðrihluta þeirra og neðan við garðana. Mikilvægt er að skógræktin nái út fyrir röskuð svæði, þannig að mörkin verði minna sýnileg. Þetta á sérstaklega við í hlíðum ofan við garðana.
Já rífa það sem fyrir er og hefur vaxið í allt að 30 ár, og byrja upp á nýtt með bakkaplöntur? .... Eða hvað?
6.4 Almennur frágangur
Töluverð skógrækt er í hlíðinni ofan við bæinn, en þónokkur hluti þeirra þarf að víkja fyrir
framkvæmdum. Áhersla er lögð á að lífvænlegar plöntur verði fluttar til og nýttar aftur innan bæjarins.
Til að trjáplöntur lifi flutning af, þarf að planta þeim strax á nýjan stað. Forðast ber flutning í sól og
miklum þurrkum. Ekki er líklegt að trjáplönturnar nýtist til uppgræðslu á röskuðum svæðum nema um
áfangaskipta framkvæmd verði að ræða. Þó er mögulegt að færa plönturnar út fyrir
framkvæmdasvæðið þar sem það á við. Einnig er mögulegt að jarðslá (jarðleggja) yngri plöntur og
geyma þannig til nota síðar í framkvæmdinni. Þá er einnig hægt að taka stiklinga (græðlinga) plöntum á
svæðinu og nýta til uppgræðslunnar. Flutningur, jarðsláttur, útplöntun og önnur meðferð plantna ætti
alltaf að vera undir leiðsögn garðyrkjufræðings.
Til hvers allt þetta rútt? og bæði ég og minn maður erum garðyrkjufræðingar.
Lögð er áhersla á að röskuðum svæðum verði haldið í lágmarki og að trjágróðri verði hlíft eins og kostur er. Þetta á sérstaklega við um stærri tré og runna sem eru í góðu ástandi. Við upphaf framkvæmda skal vinnusvæðið afmarkað með flagglínu. Utan þeirrar línu verður ekki heimilt að raska neinu eða nýta á annan hátt fyrir framkvæmdir. Stærri tré eða annar gróður sem talinn eru mikilvægur og er á jaðri vinnusvæðisins skal merktur þannig að þeim verði hlíft eins og mögulegt er.
Já já það hefur sýnt sig hér fyrir ofan þar sem byrjað er að vinna við vatnslögn, og stórvirkar vinnuvélar notaðar og fleiri trjám rutt úr vegi, þó ég hafi sem betur fer getað bjargað nokkrum, en þar eru fleiri sem hafa farið forgörðum, því svo virðist vera að enginn virðing sé borin fyrir gróðri á okkar gróðursnauða landi.
Ísafjarðarkaupstaður stendur að stærstum hluta undir Eyrarfjalli í Skutulsfirði. Í Eyrarfjalli er áberandi stallur sem nefnist Gleiðarhjalli, en neðan hans kallast hlíðin Eyrarhlíð. Stallurinn er í um 400-450 metra hæð yfir sjávarmáli og ver byggðina fyrir snjóflóðum úr hlíðinni ofan við hjallann. ( Ha?? til hvers þá allar þessa milljónir til snjóflóðavarna?Fyrir ofan Gleiðarhjalla er klettabelti sem nær að brún fjallsins, í rúmlega 700 metra hæð yfir sjó. Hlíðin neðan hjallans er brött, efstu húsin standa mörg í um 10° halla og brattinn eykst hratt upp frá þeim. Neðri hluti hlíðarinnar er frekar einsleitur en ofar einkennist hún af klettum og litlum giljaskorum. Tveir áberandi hryggir skera hlíðina, en ofan þeirra eru litlar skálar. Eystri hryggurinn kallast Stórurð og sá vestari Stakkaneshryggur.
Stór snjóflóð hafa aldrei fallið úr hlíðinni neðan Gleiðarhjalla svo vitað sé. Eftir að snjóathugunarmaður tók til starfa hafa fimm lítil flóð verið skráð á svæðinu en þrjú þeirra eru innan við framkvæmdarsvæðið. Eitt snjóflóð féll eftir Stakkaneshrygg og stöðvaðist um 100 m ofan við efstu hús en annað féll sunnan við Stakkaneshrygg og stöðvaðist í um 110 metra hæð yfir sjávarmáli. Einnig eru til óljósar heimildir um flóð sem féll í kringum 1950 á svæði þar sem byggð stendur núna en var þá óbyggt.
2.2.1 Snjóflóð og snjósöfnun neðan Gleiðarhjalla
Stór snjóflóð hafa aldrei fallið úr hlíðinni neðan Gleiðarhjalla svo vitað sé. Eftir að snjóathugunarmaður tók til starfa hafa fimm lítil flóð verið skráð á svæðinu en þrjú þeirra eru innan við framkvæmdarsvæðið. Eitt snjóflóð féll eftir Stakkaneshrygg og stöðvaðist um 100 m ofan við efstu hús en annað féll sunnan við Stakkaneshrygg og stöðvaðist í um 110 metra hæð
Hlíðin fyrir ofan Gleiðarhjalla hreinsast jafnóðum og snjór kemur í hana [41]. Snjóflóð á því svæði eru því lítil og ná að öllu jöfnu ekki fram af hjallanum. Hjallinn getur aftur á móti safnað í sig snjó vegna skafrennings af hásléttunni fyrir ofan sem dregur úr snjósöfnun í hlíðinni neðan hjallans [37, 43]. Skafrenningur af hjallanum gæti aftur á móti skapað aðstæður til snjósöfnunar neðan hjallans. Samt sem áður eru fá þekkt snjóflóð neðan hjallans og er t.d. aðeins ein óljós skráning um snjóflóð ofan Stórurðar. Ástæðan er líklega að snjósöfnun er lítil en einnig er yfirborð hrjúft vegna stórgrýtis en það eykur stöðuleika snjóþekjunnar. Ríkjandi vindátt að vetrarlagi er NA-átt sem hreinsar upptakasvæðin af snjó [37, 41, 43].
Athugun var gerð á snjósöfnun við skurði, aurvarnagarða og fyrirhugaðar ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla. Athugunin fór fram 16.-17. mars 2009. Helstu niðurstöður voru að snjósöfnun var almennt meiri við íbúðarhús en í hlíðinni fyrir ofan. Töluverð snjósöfnun var í þröngum skurðum en lítil í breiðum skurðum. Einnig var snjósöfnun við misfellur í landslagi og skörp form eins og t.d. hlémegin, miðað við ríkjandi vindátt, við hryggi og lækjarfarvegi. Þessar athuganir gefa til kynna að það megi koma í veg fyrir aukna snjósöfnun með því að hafa skurði víða og fella þá mjúklega að landinu [41].
3.1 Tilgangur og markmið
Með byggingu snjóflóðavarnanna eru kröfur laga nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, uppfylltar og reglugerð nr. 505/2000, um hættumat vegna ofanflóða, fylgt. Í 22. grein reglugerðar nr. 505/2000 og breytingu á henni í 11. grein reglugerðar nr. 495/2007 segir að við hönnun varnarvirkja skuli leitast við að auka öryggi íbúa þannig að eftir byggingu varnarvirkisins sé staðaráhætta fólks neðan þeirra aldrei meiri en 3,0 af 10.000 á ári. Við hönnun ofanflóðavarna neðan Gleiðarhjalla er miðað við þessar öryggiskröfur.
Eins og áður var tekið fram, og kemur fram í hættumati fyrir Ísafjörð, er erfitt að meta snjóflóðahættu undir Gleiðarhjalla, þar sem snjóflóð eru þar sjaldgæf. Hætta á aurflóðum og grjóthruni er hins vegar töluverð og hættumatslínur á hættumatskorti lýsa samanlagðri hættu vegna snjóflóða, aurskriða og grjóthruns.
Og hér er svo ástæðan fyrir öllu þessu brölti:
3.3.1 Áhrif á samfélagið
Ríkisstjórnin ákvað á þessu ári að til margþættra aðgerða á Vestfjörðum væri þörf og um einn þáttinn segir: I. Aðgerðir vegna efnahagslegs samdráttar og efling innviða. Markmið aðgerðanna er að hafa jákvæð skammtímaáhrif með tímabundinni fjölgun starfa auk áhrifa af umsvifum verktaka, en jafnframt jákvæð langtímaáhrif með bættum samkeppnisskilyrðum efnahagslífs og samfélaga á Vestfjörðum [48]. Gerð ofanflóðavarna undir Gleiðarhjalla mun skapa störf tímabundið og skapar öruggari skilyrði til búsetu á því svæði.
Mínir kæru ísfirðingar erum við tilbúin til alls þessa rútts, til að skapa tímabundin verkefni fyrir verktaka? Sér í lagi þar sem flestir þeirra sem hér hafa starfað eru farnir á hausinn, nema eitt fyrirtæki, og einmitt það fyrirtæki hefur sótt um verkefnið. Það verður fróðlegt að sjá hvort það fyrirtæki fái verkefnið, eða hvort fyrirtæki að sunnan fái fjármagnið og "tímabundna vinnu". Við skulum fylgjast vel með.
Og ágætu fyrrverandi félagar í stjórn Ísafjarðarbæjar, eruð þið virkilega tilbúin að fara að rusla mér burt af heimili mínu, með ekki sterkari rök en þau sem hér hafa komið fram?
Ég er búin að fá nóg. Ég er búin að lifa í óöryggi og stressi, allt þetta hefur haft mikil og neikvæð áhrif á líf mitt, alveg frá því að ég þurfti að lesa í Bæjarins besta að þið ætluðuð að kaupa upp húsið mitt að mér forspurðri, það gleymdist nefnilega að ræða við mig um málið. Rétt eins og mér hefur ekki ennþá verið tjáð að þið ætlið að leggja búkollubraut gegnum trjáræktina mína, og hún á einmitt að fara þar sem elstu trén eru og þar af leiðandi þau stærstu.
Ég ætla ekki að standa í vegi fyrir þessari veglögn, en ég vil fá fund og fá að ræða málið, og ég vil færa veginn ofar í hlíðina þar sem trén eru minni og færanlegri.
En er ekki lágmark að funda með mér og segja mér það sem er í farvatninu, svo ég þurfi ekki að fá upplýsingarnar annað hvort í Bæjarins besta eða frá mönnum sem eru að vinna í málunum.
Ég er nefnilega alveg búin að fá nóg. Fólk hefur verið að segja við mig að ég ætti að fá fólkið í bænum með mér í málið. Og ef til vill mun ég biðla til þeirra um einhverskonar samstöðu.
Það væri mjög gott fyrir sálina mína. En ég veit að margir gera sér ekki grein fyrir hvernig þetta mál allt saman hefur verið rekið af hálfu ofanflóðasjóðs og ráðamanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.7.2013 | 18:57
Stundum er ekki hægt annað en að segja hlutina hreint út.
Mínir ágætu vinir nær og fjær, eins og þið vitið hef ég verið blank page undanfarið. Hef átt í sálarstríði, með þungavinnutæki að grafa hér fyrir ofan mig í svæði sem ég fékk úthlutað fyrir um 30 árum og við hjón höfum unnið að stundum myrkra á milli við að planta út og gróðursetja. Höfum átt mörg yndisleg kvöld að ganga um ræktina og dást að hve vel plönturnar dafna og hve stórar þær eru orðnar.
Í vetur var byrjað á framkvæmdum í sambandi við nýja vatnslögn vegna snjóflóðavarnargarðsins sem á að rísa, en það gleymdist að tala við mig, og þar sem ég var stödd í útlöndum, þá var bara vaðið í svæðið, mörg tré bara rudd burtu og eyðilögð upp á hundruð þúsund króna, ég hef kært þetta og á eftir að leggja fram lista yfir trén sem eyðilögð voru. Ég fæ þau bætt.
Það sem aftur á móti hefur "gleymst" að segja mér af þar til bærum yfirvöldum er að það á líka að leggja þungaflutningaveg þvert í gegnum landið, og einmitt þar sem stærstu trén eru og elstu. Ég heyrði þetta útundan mér og hitti eftirlitsmann sem hér var á ferð, hann var undrandi á að ekki hefði verið rætt við mig um þetta. 'Eg sagði honum að ég vildi skoða að færa þennan veg ofar í landið, þar sem væru smærri tré sem auðveldara væri að flytja. Hann ætlaði að ræða þetta við ofanflóðasjóð og koma á fundi. Hef samt ekkert heyrt um þetta ennþá. En vonast til að þeir komi og ræði málin við mig.
En svo í dag barst mér þetta bréf, sem er sent á lögfræðing minn en ég fékk afrit.
Ég ætla að birta það hér, mér þykir það leitt félagar í Ísafjarðarbæ, en þar sem ég hef lesið flest það sem yfir mig hefur komið í BB, þar sem "gleymdist" að ræða við mig persónulega, þá ætla ég að nota sömu aðferð núna og birta þetta bréf, ásamt mínum hugleiðingum um þessi mál, vona að þið fyrir gefið gamalli konu það, þar sem svo virðist sem að leggja eigi líf hennar í rúst.
Ísafjörður 3. Júlí 2013.
Efni; Seljalandsveg 100
Ísafirði
Vísað til bréfs Ísafjarðarbæjar dags. 6. maí s.l.
Í fyrrnefndu bréfi var umbj. Yðar gert tilboð um kaup á húseigninni Seljalandsvegi 100, Ísafirði í tengslum við fyrirhuguð uppkaup húseigna við Seljalandsveg vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum. Var tilboðið byggt á endurskoðuðu mati þeirra Tryggva Guðmundssonar og Níels Indriðasonar, sem unnið var fyrir Ísafjarðarbæ og ofanflóðasjóðs. Þar sem ekki er fallist á tilboð Ísafjarðarbæjar er litið svo á að ekki hafi náðst samkomulag um kaup á húseigninni í skilningi 4. mgr. Laga nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og og skriðuföllum.
Þar sem samningsumleitanir um kaup á húseigninni hafa staðið í allnokkurn tíma er rétt að taka fram eftirfarandi. Hættumat fyrir Ísafjörð var samþykkt í apríl 2003 og endurskoðað á árunum 2008 og 2009. Í niðurstöðu hættumatsins var talin töluverð hætta á snjó og aurfóðum og grjóthruni undir Gleiðarhjalla. Allnokkrar húseignir féllu skv. hættumatinu innan hættusvæðis C. Ísafjarðarbær fól Verkfræðistofunni Verkís að gera úttekt og skýrslu um varnarvirki á umræddu svæði og lá sú skýrsla fyrir í desember 2009, sbr. meðf. Skýrslu og gögn. Upphaflega var gert ráð fyrir görðum til varnar húseignum á svæðinu, m.a. svonefndum garði 1 sem var um 14 metra hár og 260 m. Langur. Í 11. gr. laga nr. 49/1997 er kveðið á um að ef hagkvæmara er talið, til að tryggja öryggi fólks gagnvart ofanflóðum, sé sveitarstjórn heimilt að gera tillögu til ofanflóðanefndar um kaup á húseignum frekar en að reisa varnarvirki eða beita öðrum varnaraðgerðum. Athugun Ísafjarðarbæjar á tillögum um gerð varnarvirkja leiddi í ljós að kostnaður við varnarvirki vegna tveggja húseigna við Seljalandsveg, nr. 100 og 1002, væri 60 - 80 milljarða króna meiri en kostanaður við uppkaup þeirra. Að undangenginni samþykkt bæjarráðs Ísafjarðarbæjar hinn 14. febrúar 2011 og bæjarstjórnar 24. febrúar var sú tillaga lögð fyrir Ofanflóðanefnd að Ísafjarðarbæ yrði heimilað að leita eftir uppkaupum á grundv elli þá fyrirliggjandi matsgerðar um markaðsverð húseignanna, í stað þess að ráðast í gerð varnarvirkja. Með bréfi Ofanflóðanefndar, dags. 10 janúar 2012, var Ísafjarðarbæ heimilað að leita eftir samningum um uppkaup húseignarinnar Seljalandsvegar 100 og var tilboði þar að lútandi sent umbj. Yðar ásamt verðmatsskýrslu. Með bréfi yðar dags. 22. apríl 2013 var kauptilboði Ísafjaraðrbæjar hafnað. Í framhaldi af ofangreindu bréfi yðar var ákveðið að leita eftir heimild Ofanflóðanefndar til að láta fara fram endurskoðun á mati á markaðsvirði, þar sem allnokkuð var umliðið frá upphaflegu mati. Með bréfi til hyðar dags. 6. Maí s.l. flgdi endurskðað mat á markaðsvirði, sem ekki er fallist á af yðar hálfu, sbr. Og það sem kom fram hér að framan.
Í bréfi Ísafjarðarbæjar dags. 6. maí sl. Var gerð grein fyrir þeirri ráðagerð að ef ekki næðist samkomulag um sölu umbj. yðar á húseigninni ætti Ísafjarðarbær þess kost a ðleita eignarnáms á grundvelli 4. Mgr. Laga nr. 49/1997 og var óskað eftir athugasemdum við þá ráðstöfun sérstaklega, en ekki hafa verið gerðar sérstakar athugasemdir þar að lútandi.
Með vísan til ofangreinds verður sú tillaga lögð fyrir bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að neytt verði heimildar 4. Mgr. 11 laga nr. 49/1997 og húseignin Seljalandsvegur 100 tekinn eignarnámi skv. Lögum nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms.
Af gefnu tilefni leyfir Ísafjarðarbær sér að taka fram að hann er tilbúin til þess, komi til eigendaskipta sbr. Hér að framan, og megi það vera til sátta í máli þessu, að lýsa yfir tilja til að gera tímabundinn leigusamning við núverandi eiganda um afnot af húseigninni frá 15. Apríl til 15. Desember ár hvert, gegn hóflegri leigu, skilmálum um viðhald, sýmingu í háttuástandi o.fl. samningurinn yrði t.d. til 10 ára, með framlengingarheimild, en væri ekki framseljanlegur.
Þetta upplýsist hér með.
Svo mörg voru þau orð.
Og nú vil ég biðja ykkur bæjarstjórnarmenn og bæjarráð að virða það sem ég hef gert fyrir þennan bæ og hafna því að bera mig út úr húsinu mínu.
Þetta hús er nefnilega ekkert venjulegt hús, þetta er líf mitt og Ella nú í 30 ár. Hreiður sem við höfum skapað okkur og ætlum að dvelja þar það sem eftir er. Það er ekki langur tími, því næsta ár verðum við 70 ára.
Þar sem lögfræðingur minn er erlendis og mun ekki koma heim fyrr en 15 júli, þá vil ég bara segja það hér og nú, að ég mótmæli því harðlega að þið takið húsið mitt eignarnámi, ég mun berjast fyrir því að halda því hvað sem þið segið.
Samkvæmt stjórnarskrá, þá er heimili manns heilagt og rétturinn til að dvelja þar ótvíræður, það er einungis hægt að gera svona kúnstir ef miklir almannahagsmunir liggja við. Þið verðið að sýna fram á hvaða almannahagsmunir liggja fyrir því enginn byggð er fyrir neðan húsið mitt.
Auk þess hef ég búð hér undir Gleiðarhjallanum yfir nær 7o ár og hér hefur aldrei komið niður snjóflóð, nokkrir steinar hafa rúllað niður, en allir hafnað í mýrinni fyrir ofan, sem þið ætlið nú að þurrka upp. Hér hefur heldur aldrei komið niður aurflóð, þó þau hafi komið annarsstaðar.
Allt þetta mál hefur tekið sinn toll, og ég hef þurft að leita lækna fleiri en eins vegna þessa máls og þurft að fá róandi lyf, sem ég var reyndar hætt á eftir að ég jafnaði mig á dauða sonar míns. Það er einfaldlega ekki hægt að koma svona fram við manneskjur sem hafa alla tíð unnið bænum sínum það besta, ég gaf mín bestu ár til að fegra hann og gera allt sem mér var mögulegt til að koma honum upp úr því að vera sóðalegasti bær Íslands, í að vera kallaður túlípanabærinn.
Mér finnst því að ég eigi eitthvað inni annað en svona þurrar tilvitnanir í einhver lög, málsgreinar og lög sem virkilega eiga að vernda fólk, en í þessu tilfelli er ekki verið að vernda neinn, þessi lög voru örugglega hugsuð þannig að geta gert ráðstafanir ef hús voru í hættu vegna snjóflóða, en ekki til að spara ofanflóðasjóði nokkrar milljónir. Enda segir í þessari skýrslu að aldrei hafi fallið snjóflóð neðan Gleiðarhjalla, en hætta sé á grjóthruni, sem hefur alltaf verið.
Ég ætla ekki að láta taka af mér húsið mitt, og ég ætla ekki að láta kasta mér út. Þið skulið þurfa að bera mig út, helst með alla fjölmiðla viðstadda. Ég tel mig vera í rétti til að eiga hér heima meðan ég get verið hér, og ætla ekki að gefa þann rétt minn eftir.
Þannig er staðan í dag. Mér þykir vænt um bæinn minn og fólkið sem hér býr. Mér þykir líka vænt um það fólk sem telur sig vera að gera bæjarfélaginu eitthvað gott með þessari hrikalegu aðgerð, en ég vorkenni ykkur. Það er nefnilega ekki fullrannsakað hvað áhrif svona veggir hafa á fjöllinn okkar, til dæmis eru Bolvíkingar að fara í mál, vegna síns garðs og mér skilst að Siglufjörður sé allur að skríða fram vegna þess að það er búið að klippa á rætur fjallsins.
Hvað veit ég. En nú er bara komið nóg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.7.2013 | 12:43
Áskorun Ástþórs, skrifið undir.
![]() |
Ástþór vill Snowden til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2.7.2013 | 23:17
Söfnum undirskriftum til að veita Snowden hæli á Íslandi.
Þetta mál Snowden hefur sýnt heiminum að Bandaríki norður Ameríku eru á level við Norður Kóreu, Kína og Rússland. Og þetta mál hefur líka sýnt fjandans sleikjuhátt ríkja við BNA. Í stað þess að þakka Snowden fyrir það sem hann gerði, lunkast forystumenn ríkja og neita að skipta sér af. En almenningur er á línu Snowdens og þessu máli mun ekki ljúka þó bandaríkjamenn nái að drepa hann, þetta er nefnilega miklu stærra mál en svo að þeir komist upp með það. Og mikið hefur Obama hrapað í mínu áliti, hann er nákvæmlega eins og allir hinir hræsnararnir sem eru með fallegu orðin í kjaftinum en falsið í hjartanu.
Hvað er eiginlega að verða um mannkynið? Ég er alvarlega að spá í hvernig heiminum er stjórnað í dag og hverjir raunverulega ráða..... Ég vil ekki einu sinni vita svarið.
En það er alveg víst að þetta fólk sem þannig hagar sér mun þurfa að borga sínar skuldir á efsta degi, rétt eins og þeir ætlast til af Snowden að hann æxli sínar, nema hann reyndi að sýna heiminum fram á það á hvaða level Bandaríkin eru í dag.
Og ég er yfir mig hneyksluð á innanríkisráðherra okkar, sem ætlar sér að hunsa manninn, bara af sleikjuhætti við Bandaríkin.
Það er samt eitt sem við getum gert, og það er að safna undirskriftum um að hann fái hér hæli sem pólitískur flóttamaður. Ég bið einhverja sem kunna þetta að fara af stað og safna undirskriftum, sennilega ætti að senda það til forsetans okkar um að við viljum veita honum skjól.
Ég ætlaði að gefa þessum stjórnvöldum sjens, rétt eins og þeim sem hér voru síðast. En Guð minn góður hvað ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum, ég kaus ekki þetta fólk, en vonaði að þau myndu allavega standa við stærstu loforðin, en það er að koma í ljós að þau eru að slá fyrri ríkisstjórn við og er þá mikið sagt. Hanna Birna svarar öllu rétt eins og hún sé í fýlu eða reið. Hún á ekki eftir að verða vinsæll ráðherra svo ekki sé tekið dýpra í árinni.
Ég hélt sannarlega að ekki væri hægt að komast lengra í óvinsældum en fráfarandi ríkisstjórn, en ég held að við séum að horfa fram á nýjar hæðir í slíku. Og ágætu kjósendur.... þetta erum við sjálf sem sköpum þetta ástand, því við viljum ekki breyta neinu, eða gefa nýju fólki tækifæri til að breyta. Nei við erum föst í sama frasanum, rétt eins og mynd sem ég sá einhverntímann um mann sem var fastur í tímanum og lifði bara einn dag aftur og aftur og aftur......
Í þannig sporum erum við núna og verðum þangað til við þorum að treysta öðru fólki, okkar fólki til að leiða okkur inn í betri tíma.
![]() |
Segja Snowden vera föðurlandsvin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 3.7.2013 kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
26.6.2013 | 13:11
Sigurður Þorsteinsson!

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2013 | 20:39
Það er sárt að missa ástvin í blóma lífsins.
Elsku Guðrún mín, Habbi, Rakel María, Róbert Hólm, Regína Rós og Rósa Jóna, Úlfhildur og öll stórfjölskyldan ég votta ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. það er svo sárt að missa. Og Guðrún var virkilega yndisleg móðir og eiginkona. Alltaf glöð og tilbúin að hjálpa. Rakel og Guðrún voru eiginlega bæði mæðgur og bestu vinkonur, þannig að missir elsku Rakelar er mikill, og svo auðvitað öll hin. að er bara svo sárt þegar ung og falleg sál kveður þetta líf. En auðvitað þurfti hún að fara til annara verkefna. Hún mun samt fylgja fjölskyldunni sinni áfram eins og hún gerði ávalt.
Góður Guð og allir vættir geymi þig yndislega Guðrún mín, og megi allir góðir vættir vaka yfir fjölskyldunni, og sérstaklega yfir litla barninu henni Rósu Jónu, það lofar samt allt góðu með hana, lítill sterkur einstaklingur sem er ákveðin í að lifa áfram hvað sem öllu öðru viðvíkur.
Takk fyrir yndislega samveru, pizzupartí og skemtilegan félagskap. Elsku Hagbarður minn, lífið getur stundum tekið fram fyrir hendurnar á manni, og sársaukinn er erfiður. En þú átt fullt af góðum vinum og vandamönnum sem munu reyna að létta ykkur lífið. Risaknús á ykkur öll.

Þessa mynd kalla vinir hans föðurást, þar sem hann lúrir með litlu Rósu Jónu sér við brjóst.
Minni á söfnunina; 537-04-254000 kt.140563-2429.
![]() |
Bráðkvödd komin sjö mánuði á leið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2013 | 01:26
Ég um mig frá mér til mín.... eða þannig.
Þið hafið eflaust tekið eftir því að ég hef ekki verið mikið hér undanfarið. Það kemur ekki til af góðu, því ég er að takast á við rosalega erfið mál. Það byrjaði allt með því að fyrrverandi ríkisstjórn kom hingað með fund og vildi gera vel. Með bæjarstjórninni hér komust þau að þeirri mikilvægu ákvörðun að hér skyldi reisa snjóflóðavarnargarð, þó í raun og veru sé ekki neitt sem bendir til að hér sé hætta á slíku, reyndar kemur fram í skýrslu sem gerð var til að fullkomna ástæður til þessa varnargarðs að aldrei hefði komið snjóflóð frá Gleiðarhjallanun, sem er eins og einskonar náttúruvörn okka gegn slíku. Því var bætt inn hættu á grjóthruni og aurskriðum. Auðvitað hafa fallið skriður hér alla mína veru hér sem er komin nú vel yfir 60 ár undir þessari hlíð, en grjótin skvassast ofan í mýrina sem hér er fyrir ofan og fara því ekki lengra. Þetta vitum við sem hér hafa alla tíð lifað með Eyrarhlíðinni.
Í skýrslunni kemur svo líka fram að þetta sé gert til að skapa tímabundna vinnu verktaka. Fyrir mér er það svona lokahnykkurinn á þessari skýrslu, og til að réttlæta að ofanflóðasjóður taki þátt og þið öll, þá er skýrslan unninn með þennan punkt að leiðarljósi. Það er mín meining.
En það sem hangir á spýtunni gagnvart mér er að þrjátíu ára vinna okkar Ella míns við útplöntun á svæðinu fyrir ofan okkur verður öll meira og minna eyðilögð, það er sem sé ekki bara að það þurfi að rústa svæði til að koma fyrir vatnslögnum, heldur á að byggja "highway" gegnum allt útplöntunarsvæðið, og það á að "skera" sem kallað er þannig að það verður helst til lítið eftir af þessari útplöntun. Það sem er sárast við þetta er að það gleymdist að ræða þetta við okkur, ég frétti þetta svona af skotspónum. þau tré sem voru fyrir skurðinum við vatnleiðslurnar voru flutt á nýtt svæði, en sem sagt nú er að renna upp fyrir mer að það er bara smámál miðað við það sem er á teikniborðinu og ekki hefur verið rætt við mig. Reyndar fór verktakinn yfir hluta svæðisins í vetur án þess að ræða við mig og eyðilagði mörg tré, þar á meðal 4ja metra þin og 6 metra greni fyrir utan nokkrar 4 metra seljur og ótal greni og birki sem var þarna og bara sópað burt.
Og nú hef ég sem sagt verið í sorg og sút, og hef ekki á heilli mér tekið, og kvíði hverjum degi sem líður, og veit ekkert hvernig málin þróast. Er hægt að gera svona við fólk, bara strika yfir 30 ára útplöntun?
Ég hef verið að reyna að halda sönsum og reyna að koma mér framúr rúminu á morgnana, reyna að bara lifa og vera til. En það er bara fjandans erfitt skal ég segja ykkur.
Ég ætla mér að reyna að berjast gegn þessu gerræði, því ofan á allt þetta á samt að bola mér burt frá heimili mínu þ.e. yfir veturinn. Ég má sem sagt hafa húsið mitt sem sumarbústað, en þarf að fara burt yfir vetrartímann. Þetta er bara meira en að segja það þegar maður er orðin 69 ára gamall, að fá svona kjaftshögg, þess vegna er ég miður mín.
Ég er ekki að kenna fólkinu hér um, þetta er bara eitthvað sem einhverjum datt í hug sem eitthvað trens til að sýnast vera að gera eitthvað gott til bæjarins í boði Jóhönnu og Steingríms. Og allt án tillits til þess að það er verið að kremja sál sem hefur lagt allt sitt í umhverfið. Málið er að það er mikilvægaqra að verktakar hafi tímabundin verkefni, og þetta er þegar nær allir verktakar hér sem höfðu getu til að takast á við verkefnið eru farnir á hausinn. Þetta bara svíður og er að gera mér afskaplega mikið illt.
Vona að þið fyrirgefið mér að tala svona, en ég er að reyna að halda höfði og lifa þetta af, það er bara svo erfitt.
Ég er þakklát því fólki sem hefur sýnt mér umhyggju og kærleika og vill vera mér gott.
Hluti af þeim, er fólkið sem hingað kemur og verslar blóm hjá mér. Það er búið að hjálpa mér mikið að spjalla og finna ástúðina og umhyggjuna sem þið hafið sýnt mér, og ég hef vissulega þurft á því að halda.
Og til þeirra vil ég líka beina ósk minni. Á morgun fæ ég í heimsókn litlu angana mína frá Austurríki, þau verða hér í viku, þannig að ég vil sinna þeim sem mest sem ég get. En ég vil líka sinna mínum kúnnum, ég er með yndælan strák að aðstoða mig, en hann er líka í Morranum og þarf stundum að sinna honum fram á kvöld. Ég ætla að hafa opið en ef enginn er við, þá er bara að hafa samband við mig því ef ég er ekki upp í sölunni, þá er ég niður í kúlu.
Ég veit að þetta er klikkað, en ég er jú klikkuð kona, þannig að hér með kem ég þessu á framfæri.
Sendi ykkur öllum svo kveðjur og takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
14.6.2013 | 23:45
Elsku Hagbarður minn, börn og fjölskylda.
Sorgin er stór, lífið er óvænt og getur verið okkur kjaftshögg þegar minnst varir.
Ég er með hjartað barmafullt af kærleik til þín og þinna á þessum erfiðu tímamótum. Ég þekki sorgina, og veit hve hún er erfiður félagi.
Ég vil senda þér og þínum mínar allra bestu kærleikskveðjur og samúðarhugsanir á þessum erfiðu tímum. Guðrún Sigurðardóttir konan þín var yndislega manneskja, jákvæð og brosandi alltaf tilbúin til að gera það sem gera þurfti. Hún var þinn ævifélagi og barnsmóðir. Elsku Rakel María stóra stelpa, Róbert, Regína Rós og litla barn Rósa Jóna megi algóður Guð og allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda. Elsku Úlla mín og Hjörleifur og þið öll sem standið hér í sorginni, ég vil senda ykkur allar mínar bestu hugsanir og kærleika. Sumt er bara svo sárt að það er eiginlega ekki hægt að segja neitt meira en, megi allur kærleikur vaka með ykkur og ljósið bjarta vernda ykkur á allann hátt.
Elsku litla barn Jóna Rósa, sem aldrei fær að hitta móður sína, megi allar góðar vættir vaka með þér og vernda, svo og með fjölskyldunni. Sendi ykkur öllum mínar dýpstu samúðarkveðjur og allt sem ég get til að styrkja ykkur.
Litla Jóna Rósa.
Föðurást heitir þessi mynd
Bloggar | Breytt 16.6.2013 kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar