Hvað ef?

Hlustaði á hrollvekjandi samtal, eða eiginlega einræðu manns að nafni Axel Pétur Axelsson.  Oft hefur verið talað up spillingu og mafíur hér á landi.  Oft hefur maður heyrt talað um að auðmenn ráði hér lögum og lofum, nú eða ráðuneytisstjórar og kerfiskarlar allskonar. 

Hvað ef við leyfum okkur að íhuga það smástund.  Hvað ef spillingin er miklu meiri en okkur hefur órað fyrir?  Hvað ef hér eru menn sem ganga alla leið til að halda völdum?  Hvað ef fjórflokkurinn er ekkert annað en hagsmunagæslufélög til að halda völdum?  Það er að svonefndur fjórflokkur sé ein heild, sem stendur saman um að halda fávísum almenningi frá því að fá ítök?

Ég er ekki að segja að þetta sé svona, og á eiginlega bágt með að trúa að þetta geti verið einhver raunveruleiki. En ég er með þeim ósköpum gerð að ég útiloka ekki neitt.  Því allt getur gerst undir sólinni. 

Samt, það eru þessi orð sem hríslast um mig  eftir að hafa hlustað á orðræðuna.  Hvað ef?

Það er nefnilega sumt sem hljómar einmitt þannig ef við gefum huganum lausan tauminn.  Allar reglurnar sem halda nýjum framboðum utan alþingis.  Allar milljónirnar sem greiddar eru frá ríki í kosningasjóði fjórflokksins, meira eftir því sem fleiri eru skráðir félagar.  Og greiðslur auðmanna til þeirra stjórnmálaflokka sem mesta möguleika hafa á að viðhalda þessu þjóðfélagi eins og þeim líkar best.

Hvernig nýjir þingmenn koðna alltaf niður í að fylgja flokknum, eða beygja sig undir vilja þeirra sem ráða.

Hvernig markvist er unnið að því að niðurlægja og sverta þá þingmenn sem hugsa meira um hag almennings en eigin upphefð.  

Hvernig um 85% þjóðarinnar kýs yfir sig aftur og aftur sama fólkið, en segir þó í skoðanakönnunum að það treysti ekki því sama fólki, eða eftir því sem ég best veit þá nýtur alþingi einungis trausts 10% þjóðarinnar. Erum við svona skyniskroppinn, eða er eitthvað til í því sem Axel ber hér á borð fyrir okkur. 

Hlustið á hvað hann hefur að segja og spáið sjálf í það sem hann ber fram. 

Ég tek fram að ég tók nokkrum sinnum andköf, bara við tilhugsunina hvort þetta sé virkilega svona.  En við getum hvorki sannað né afsannað það.  Þetta er bara spurning um hverju við viljum trúa, hvað við viljum meðtaka, og hvað útiloka. 

En hér er Axel Pétur Axelsson gjörið svo vel.  http://www.youtube.com/watch?v=Ly-tQUUKQUs

 

Annars er fallegur dagur hér á Ísafirði núna, og hefur verið svo undanfarna daga, sól og blíða, sem er gott fyrir sálina. 

Eigið góðan dag.

 


Kassi eða starfsfólk?

Þessir menn hafa greinilega ekkert lært af þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir.  Að við höfum ráðið slíka menn til að fara með völd í landinu sýnir bara hvað við erum miklir kjánar. 

Kristján Möller sami fyrirgreiðslupólitíkusinnn og hann hefur alltaf verið.  Ef hann hefði langað svona mikið til að byggja hátæknisjúkrahús, hefði hann átt að fresta Vaðlaheiðargöngum, þangað til þeirra tími kæmi.  En það voru kosningar og það þurfti að fá atkvæði í kassann.  Í mínum huga er þessi maður ímynd spillingar og fyrirgreiðslu til sín og sinna.  Verkin sýna merkin.

Gef ekki mikið fyrir pælingar Brynjars, finnst hann oftar en ekki tala áður en hann hugsar. 

Hélt að Guðmundur væri með opin augun, en svo virðist ekki vera. 

Í fyrsta lagi þá er rétt sem Kári Stefánsson hefur bent að steinkumbaldi læknar ekki fólk.  Meðan ekki eru til peningar til að halda starfsmönnum á spítalanum, ekki til peningar til að kaupa tæki, og reka spítalan, þá er EKKI tækifærið til að hraða byggingu hans.  Hreint og klárt. 

Og segjum svo að þetta færi í gegn og ætti að taka peninga að láni sem síðan ætti að greiða af starfsemi heilbrigðiskerfisins, hvar yrði fyrst skorið niður?

Jú við þurfum ekki að leita langt, það er nú þegar byrjað, það verður skorið niður í heilbrigðisstofnunum vítt og breytt um landið, það er nú þegar byrjað, með sameiningu heilbrigðisstofnana, lokuðun deilda, bæði fæðingardeildum og skurðstofum, og það einmitt þar sem mest er þörf fyrir að hafa slíkt, þar sem veður getur hamlað samgöngum jafnvel dögum saman.

Þetta að bara taka lán, er algjörlega það sem kom Íslandi á hausinn.  Við ættum því að varast að veita svona mönnum brautargengi inn á alþingi.  Því þeir hafa ekkert lært, og vaða aftur út í sama fenið og þeir voru að skríða upp úr. 

Landsbyggðamenn við skulum vera vel á verði gagnvart svona fólki, sem vill draga allt á eina hendi, viljum við láta loka heilbrigðisstofnunum vítt og breytt um landið, til að hægt sé að reisa eitt stórt hús, á þessum tímum, þegar þarf að velta hverri krónu?


mbl.is Vilja hraða spítalaframkvæmdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að kæra eða ekki kæra.

Þetta er ein af þessum fréttum sem hægt er að skemmta sér yfir, vegna þess hvernig lyktir urðu.  Ekki ætla ég að réttlæta þjófnaðinn af hendi stúlkunnar, en hún hefur annað hvort fengið "Cold feet", eða er útspekuleruð, sem er sennilegra, vegna þess hvernig hún fór að þessu, að láta manninn greiða sér út um bílgluggann.

En það fyndna í þessu er karlgreyið að fara að kæra þjófnaðinn til lögreglu.  Maður getur svona ímyndað sér hvernig þetta fór fram.

Ég ætla að kæra þjófnað.

Nú, hvað gerðist?

Jú ég var búin að semja við stúlku um að drátt, og hún tók við greiðslunni en stakk svo af.

Þetta er ekki gott mál.  Veistu hver hún er?

Já já, nafn hennar er ......

ja há, ég sé hér í tölvunni að hún er aðeins 16 ára.

Mér er alveg sama ég vil bara fá peningana mína til baka.

Ókey við leggjum fram kæru á hana. 

 

Seinna.

Hemm, málinu var vísað frá í héraðsdómi.

Ha! er þjófnaður nú orðin leyfilegur í þjóðfélaginu?

Ja! sko það er bannað með lögum að kaupa sér vændi.

Allt er nú orðið bannað, ef maður má ekki kaupa sér drátt lengur.

Málið er líka ahemm að stúlkan er undir lögaldri, svo við verðum víst að ákæra þig fyrir að ætla að kaupa vændi. Þetta voru einhver mistök hjá okkur í upphafi með að ákæra stúlkuna.

Þú verður að gjöra svo vel að koma með okkur í yfirheyrslu.

 

Í alvöru, hefði nú ekki verið betra að hypja sig og sætta sig við að tapa 20.000 kallinum, en að koma sjálfum sér í þá aðstöðu að vera lagalega barnaperri, og dæmdur sem slíkur upp frá því?

Stundum er betra að sætta sig við orðin hlut, en að vaða áfram og kæra út og suður.  Þetta má herma upp á fleiri sem eru endalaust að kæra aðra, fyrir ljót orð, fyrir að væna mann um þjófnað og slíkt.

Menn þurfa virkilega að hugsa sig um, og spá í hvað maður gerir sjálfum sér, sérstaklega ef æra manns er brotin fyrir.  Og sérstaklega ef menn eru þjóðþekktir og vilja hafa sitt á hreinu.  Kjaftagangur verður nefnilega ekkert staðfestur nema maður fari sjálfur að taka undir hann og kvarta yfir honum. 

Þessi dæmisaga er því í mörgu tilliti víti til varnaðar. 

En þetta er bara mín skoðun.  Smile  


mbl.is Vændiskaupandinn sætir ákæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stjórnarskráin okkar bara plagg til að túlka út og suður eftir behag stjórvalda?

Svona þegar ég er að spá og spekulera í mínum málum, þá vakna upp margar spurningar um lögfræðileg álitamál.

Ég hef skilið stjórnarskrá Íslands þannig að það séu æðstu lög landsins, og að ef sett eru lög sem brjóta í bág við stjórnarskrá, þá er það stjórnarskráin sem stendur.

Nú stendur í stjórnarskrá Íslands

 

  71. gr. [Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.
Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.]1)
   1)L. 97/1995, 9. gr.

Hér er greinin sem snýr að mér:
72. gr. [Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.

Ég hef orðið vör við að löglærðir menn túlka þetta ákvæði misvísandi, sumir segja að fullt verð þýði samskonar eign í samskonar umhverfi, aðrir segja að " skilningurinn sé ekki þannig heldur að þar eigi að koma til matsverð, annað hvort brunabótamat eða önnur slík".

Fyrir mér hlýtur það að vera samkvæmt orðanna hljóðan í þessu æðsta lagaumhverfi okkar, sem á að vera öllu æðra að fullt verð sé þannig að maður geti byggt sér samskonar hús, í sambærilegu umhverfi. Og að þó einhver lög hafi verið samþykkt um að Ofanflóðasjóður og ofanflóðanefnd geti túlkað þetta öðruvísi, þá einfaldlegal nái það ekki að hnekkja því sem stendur skýrt í stjórnarskrá Íslands.

Einnig finnst mér skrýtið að menn þurfi ekki að sanna það að það sé almannaþörf að taka húsið mitt, þar sem enginn byggð er í kring um það, önnur en það hús sem á að fara svipað með. Hvar er þá sú almannaþörf? Mér er sagt að þetta sé til verndar okkur íbúum landsins. En þarf ekki að skilgreina þá þörf og hvort hún er á rökum reist. Getur eitthvað "apparat" innan stjórnsýslunnar tekið sér það almannavald að skilgreina þetta sjálfT?

Nú sé ég á skattheimtuseðli mínum að ég er að borga skatt í Ofanflóðasjóð.

Þá vaknar líka spurningin, er þessi skattur lagður á um allt land, líka á suðurlandi þar sem nánast eru sárafá fjöll sem geta valdið snjóflóðum. Eða eru þeir krafnir um skatt vegna eldgosa, ofsaveðurs eða slíks. Og hver heldur utan um þennan opinbera sjóð, í hvers höndum er hann og hverjar eru reglurnar um úthlutun úr honum? Hver er það sem ræður hvað hlíðar smáþorpa og sveitafélaga eru eyðilögð án þess að unnið hafi verið hættumát á því að slíta fjallsrætur þvert fyrir ofan bæi. Ég hef heyrt sagt að hús séu að skríða fram á Siglufirði, vissulega skríða hús fram allstaðar í hlíðum, en yfirleitt hægt og rélega, en að slík skering auki hraðann á slíku framskriði.

Eða er stjórnarskráin bara eitthvert plagg, sem er notað þegar það hentar stjórnvöldum, eins og að bera hana fyrir sig um að ekki sé hægt að fresta útburði almennings, því stjórnarskráin leyfi það ekki.

Ég vil fá svör við þessu, en veit ekki hvert ég á að leita, eða er það bara þannig að við almúgi landsins séum toguð á hárinu sundur og saman, að vilja þeirra sem við höfum kosið til að hafa framtíð okkar að leiðarljósi, en gleyma því jafnóðum og þeir eru sestir við kjötkatlana og nota sé allt kerfið til að halda okkur niðri?

Spyr sú sem ekki veit. En það er alveg ljóst að þetta fólk er í vinnu hjá okkur, og að við eigum að eiga fullt aðgengi að verkferlum þeirra, eigum að geta rekið það eða ráðið, og alveg örugglega eigum við að fá að vita í hvað skattpeningar okkar fara. Eins og tildæmid þennan ofanflóðasjóð. Ég hef heyrt af fólki sem hefur verið að reyna að leita réttar sína við þá stofnun, en þar vísar hver á annan og enginn virðist vera í sjómáli sem er ábyrgur eða getur svarað fyrir þetta "apparat".

1393553_10200826345077016_132168206_n

Ef einhver þarna úti hefur einhver svör við þessu, væri kærkomið að heyra þau.  


Sögur og ævintýri.

Skemmtileg frétt fyrir mig birtist nú fyrir nokkrum dögum.  En það var fréttin um að Peter Higgs og Francois Englert hefðu uppgötvað Higgs Bóseindina. 

Málið er að núna undanfarin ár hef ég skrifað ævintýrasögur fyrir barnabörnin mín, þar sem þau eru orðin svo mörg, og dýrt að kaupa svo margar gjafir.

Þetta byrjaði eiginlega 2007, þegar ég ákvað að skrifa litla sögu fyrir hvert barn, ævintýrin voru um þau sjálf, þar sem þau leistu mál, eða börðust hetjulega, til dæmis Júlíana og Dularfulla kattarhvarfið, Kristján Logi og Kajakræðarinn og svo framvegis.  Það kom mér eiginlega á óvart að þau voru öll hæstánægð með gjafirnar sínar.

Árið eftir ákvað ég svo að semja sögu þar sem þau öll myndu taka þátt, það var frekar mikið verk að semsja um hvert og eitt.

Sú saga heitir Ævintýrið um Loðfílsungana, þar sem loðfílsungar eru klónaðir í Síberíu, en óvinveittar geimverur eru á móti þessu atferli, og reyna að finna ungana til að eyða þeim.  Þá kemur í hlut barnanna að bjarga ungunum.

001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bókin vakti mikla lukku, svo ég fann að ég var á réttri leið.

Seinna var í fréttum að það var raunverulega verið að reyna að klóna loðfíl í Síberiu. Ég var reyndar búin að sjá gamlar fréttir af fyrri tilraun.

Saga nr. 2 kom svo jólin á eftir.

Hún heitir Ævintýri í Huldulandi.

002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hún segir frá huldulandi, þar sem inngangurinn í það land er í garðskálanum í kúlunni.  Illvættir eru að ráðast á blómálfa og aðrar hulduverur svo börnin verða að fara og bjarga málunum.

003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 Gaggalaggáland og börnin í kúlu er sagan um land sem er undir haffletinum.  Byrjaði með því að eitt barnabarnið Evíta Cesil fór að dvelja lengi á sérstökum stað í Samkaupum, sagði að þar væri vinir sínir, hún nafngreindi sum þeirra, eins og einn sem heitir Gaggalaggá, og vinir hans.  Ég fór svo og tékkaði á þessum staðk, með skyggnri vinkonu minni og við vorum sammála um að þarna væri eitthvað skemmtilegt á ferðinni, ég gerði mér líka í hugarlund útlit þessa fólks, sem var minna en við og eiginlega líkastir hobbitum.

005

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru teikningar af þeim.  Gaggalaggáland er eyja undir sjónum, þar sem lifa tveir ættbálkar, annar góður og friðsamur, hinu megin voru þeir sem ekki voru eins góðir, flestir þeirra, og kóngur sem var gráðugur og illur, hann réðist inn í Gaggalaggáland, sú þjóð var kölluð Naggar, eða naðurtungur og líktust meira nöðrum en mönnum.  Og auðvitað komu börnin til bjargar.

Naskus

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er mynd af nagga, eða naðurtungu, sumir þeirra eru reyndar góðir, því ekki skal dæma eftir útlitinu.  

Saga númer fjögur, heitir Barátta Blómálfanna.

Þar segir frá verum sem lifa í garðinum hjá ömmu í kúlu, smáverur svo sem blómálfar, grasálfar og ýmiskonar smáverur. En þar leynast líka óvinir, því álfar sem lifa á illgresisplöntum eru álíka illir og jurtirnar sem þeir þrífast á, og reyna að kúga ljósverurnar.

Þar þurfa krakkarnir að smækka niður í grasrótina til að vinna bug á hinum illu verum.

006

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá álfadrottnngu, forsíðan er teiknuð af einu barnabarninu mínu Sóley Ebbu, sem er afar flinkur teiknari.

En í fyrra kom svo út bókin Ævintýrið um Bóseindina, þar sem verið er að gera rannsóknir í Cern í Sviss, og geimverur hafa áhyggjur af því að mennirnir geti á einhvern hátt fangað þessa smæstu eind í heiminum, sem er þó sú allra öflugasta. Þeir segja að mannskepnan sé ekki orðin nógu þroskuð til að höndla þá vitneskju.

Sem verður til þess að börnin fara til Sviss til að eyðileggja tilraunina.

007

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru svo unglingarnir utan úr geimnum sem aðstoða börnin við að bjarga heiminum frá misvitrum mönnum.  Þau Ayling og Molyden. Þessi mynd er líka teiknuð af Sóley Ebbu og hún mun líka teikna myndina á forsíðu næstu bókar.   

Það var því gaman að heyra að þessir tveir vísindamenn skyldu fá Nóbelsverðlaunin í ár.

Næsta saga er að verða tilbúin, en það er ekki hægt að segja frá henni, þar sem börnin bíða spennt eftir að fá hana í jólagjöf. Þessar elskur mínar.

Þetta eru orðin nú 24 krakkar, og því frekar mikið púsl að láta þau öll vera hetjur, en ég hafði skemmtilega reynslu frá Málefnunum, þar sem ég samdi fimmtudagssögur um málverja, þá bauð ég öllum sem vildu vera með að melda sig inn, og þau fengu oft að ráða hvernig karakter eða örlög þau hlytu, þetta var auðvitað til gamans gert, en var skemmtilegt, og þetta hefur hjálpar mér í sögunum um barnabörnin og ömmu í kúlunni.

Svo ef einhver hefur áhuga á ódýrum en skemmtilegum barnabókum, þá er allt í lagi að hafa samband, þetta eru líka þroskandi sögur um það sem skiptir máli í lífinu.

200px-Guru_Rinpoche_in_mist_2

En það verður austurlenskur bragur á næsta ævintýri, segi ekki meir.

 

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_7375

 

Tvær Ásthildar Cesiljar að semja sögu.  Heart

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eigið annars góðan dag elskurnar, þessi dagur er fallegur, sólin komin fram og það er hlýtt, lognið er samt eitthvað að flýta sér, en það gerir bara ekkert til. Er farin upp á lóð að vinna með blómálfunum að yfirvetra blómin mín. Smile 


Ágæti landlæknir.....

Nú standa yfir miklar deilur um heilbrigðismálin, og þau eru reyndar í alvalegu ferli á allan máta, og hafa verið alltog lengi.

þar er skiljanlegt að með þessum mikla niðurskurði sem síðasta ríkisstjórn stóð fyrir, og svo þegar ljóst er að þessi ríkisstjórn ætlar að höggva í nákvæmlega saman knérun, þá sé bæði heilbrigðisstéttum og almenningi nóg boðið.

En það er ekki bara ástandið í Reykjavík sem er alvarlegt.   Hér í Ísafiarðarbæ, stendur yfir styrjöld á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar, þar sem almennir læknar hafa skorið upp herrör gegn forstjóra stofnunarinnar og skurðlækni.  Þeir staðhæfa að hann sé óvinnufær, gleyminn og hrokafullur, þannig að það sé ekki hægt að hafa hann í vinnu, Þeir krefjast þess að hann verði látin víkja.

Læknirinn sem um ræðir neitar að ræða málin og telur að það sá að skemmta skrattanum að tala um þessi mál í fjölmiðlum.   Það má að vísu taka undir að þetta má átti auðvitað ekki að fara fram með þessum hætti, og því síður að nafngreina lækninn.

En þetta er bara alls ekki málið, heldur að við íbúar þurfum að sæta því að þessi deila sé í hnút með allri þeirri óvissu sem það veldur okkur. 

Ég var til dæmis í rannsóknum um daginn, til að skera úr um líkamlegt heilbrigði mitt, og hef ekki fengið neinn úrskurð vegna þessara deilna.

Við erum hrædd og óviss um okkar heilsu og hvað getur gerst þegar fáir læknar eru til staðar, og málin í þessum hnút.  Hvers eigum við almennir íbúar eiginlega að gjalda?

Síðast þegar ég vissi hafði málinu verið vísað til landlæknis, en hann er að taka sér óratíma til að skoða málið, eins og hér væri um smávægilegt mál að ræða. 

En óvart þá erum við að tala um öryggi heils byggðarlag, okkur kemur andskotann engan vegin við hvað menn eru að plotta, það sem okkur kemur við, er; Hvort læknirinn sem um ræðir er veikur og getur ekki sinnt starfi sínu, og hvort við fáum þá einhverja aðra lausn.

Við heimtum að það verði tekið á þessu máli, án pólitískrar klíku, án þess að menn séu hræddir um stöðu sína, og tafarlaust verði tekið á málum, þessu er beint til þín Landlæknir, þetta mál er á þinni könnu, sama hvað þú reynir að koma því frá þér.  Þér ber einfaldlega skylda til að taka á þessu máli, með ALMANNA HAGSMUNI SVEITARFÉLAGSINS AÐ LEIÐARLJÓSI en ekki hvað þú huganlega ert invíklaður í pólitík vinskap eða klíku. Segi og skrifa.  Hér þýðir enga gunguskap.

Taktu á málinu eins og maður og leystu Þessa deilu.  Annar fer af stað undirskriftasöfnun, sem þú munt ekki sjá endan fyrir um. 


Undir svefninn.

Svona smá hugleiðing fyrir svefninn.  Það stendur einhversstaðar í riti sem sumir fylgja algjörlega og trúa af af bókstafnum einum saman, að allir séu jafnir fyrir guði.  Það stendur líka í flestum stjórnarskrám lýðræðisríkja.  En hvernig er það þegar til kastanna kemur?

Hefur guði eitthvað skjöplast í sköpun sinni, því auðvitað er þettað allt frá guði komið ekki satt?

Það er ekki bara manneskjan sem hefur goggunarröð.

Hænur eru frægar fyrir sína goggunarröð, og það er skipulag á hlutunum hjá þeim, þar kemst enginn upp á efsta prik nema að hafa unnið sér það inn.  Ekki spyrja mig hvernig.

Það eru forystukýr, sem hafa þann tilgang að leiða sína undirsáta rétta leið.  Sumstaðar hafa þær bjöllur.

Kindur er líka þannig hver hefur ekki heyrt um forystusauðinn, sem allar hinar kindurnar fylgja, sama er um geitur, og sú sem þar er í forsvari er gjarnan með bjöllu. 

Við erum nákvæmlega þannig líka, hvort sem við viðurkennum það eða ekki.  Við áköllum ekki bara guð, jesúm og heilagan anda, heldur tilbiðjum við gjarnan páfa, kónga, drottningar, rokkstjörnur, kvikmyndastjörnur og svo framvegis. 

Sumu fólki er fyrirmunað að lifa sjálfstæðu lífi, með sjálft sig í hásætinu, flestir þurfa einhverja fígúru til að líta upp til, og dásama.  Hvernig byrjaði þetta allt saman?  Af hverju í ósköpunum létum við líf okkar og framavonir í hendurnar á einhverjum öðrum til að deila og drottna?

Hvað er það í frumsálinni sem gerir þetta að verkum?  Og má þá ekki spyrja um leið, hvort guði hafi nú ekki förlast eitthvað í sköpuninni, þegar sál getur ekki verið sjálfri sér nóg og með fulla sjálfsvirðingu, en þarf að reiða sig á einhverja aðra til að gera að leiðtoga lífs síns?

Þetta er nefnilega það sem gerir okkur svo viðkvæm og ósjálfstæð, og gerir það að við látum svo margt  á okkur ganga, án þess að bregðast við.  Við erum eins og þrælarnir sem láta allt yfir sig ganga, þar sem þeir eru þegar búnir að gefast upp.  Og þegar einhverjir standa upp og segja hingað og ekki lengra, þá er þögn og sárafáir rísa upp og standa með þeim, jafnvel þó sálartetrið okkar æpi á réttlæti. Hvað er eiginlega að okkur? er þetta fæðingar galli? Ákvað guð í upphafi það það yrðu fáir útvaldir og hinir þrælar.  Það eiginlega lítu út fyrir það, þegar maður lítur yfir akurinn og skoðar hvað er í gangi. 

Nema auðvitað að það sé enginn fullkomin guð sem hefur skapað okkur, enginn heilagur andi sem svífur yfir okkur, og að Jesú hafi bara verið andlega sinnaður kærleiksríkur maður, sem reyndi að koma okkur á rétta braut, eins og svo margir hafa reynt í fótspor hans?

Ég hef gert mér grein fyrir því að fólk sem er ofan á í samfélaginu, kvikmyndastjörnur og aðrar slíkar, stjörnur þetta og stjörnur hitt, eru bara venjulegt fólk eins og þú og ég, sem af einhverjum ástæðum hefur orðið ofan á í samfélagi manna.  Sumir eru raunverulegar hetjur, eins og Mandela, Ghandi, móðir Theresa, Manning, Assange, Snowden og svo margir sem hafa af réttlætiskennd þorað að ganga fram fyrir sköldu til heilla mannkyni.  Það er bara sorglegt að sjá viðbrögð fyrst og fremst ráðamanna á hvaða tíma sem er, og svo líka fólks sem getur fordæmt þetta fólk, án þess að hafa til þess nokkra þekkingu né gera sér grein fyrir því hvað er verið að gera í þágu mannkyns, að vinna gegn spillingu, gerræðislegri forræðishyggju og klíkuskap þeirra sem valdið hafa. Fylgja bara forystusauðunum í blindni. Þetta mun aldrei hætta, nema að við förum að hugsa sjálfstætt og þora að standa með okkur sjálfum og mannkyninu öllu.  Ekki bara sleikja rassa og þjóna peningum og valdi.

Eg vildi óska að við myndum þroskast upp úr þessum afglapahætti guðs og fara að taka ábyrgð á okkur sjálfum og umhverfi okkar, en ekki endilega bara verja peninga og völd, kónga, stjörnur og svokallaða forráðamenn.

Málið er að það hefur engum verið gefið leyfi til að setja sig á háan hest yfir aðra, og þeir myndu aldrei geta það, nema af því að við sjálf höfum gefið þeim leyfi til þess, og það er einmitt það allra sorglegasta í öllu dæminu.

Viljum vera menn eða mýs?  Eða ættum við að taka okkur ketti til fyrirmyndar?

Ég á trú, ég trúi á ljós, frið og kærleika, ég trúi því að það sé alheimsljós sem verndar okkur og við getum leitað til, en það ljós og kærleikur fer ekki í manngreiningarálit, fer ekki eftir litarhætti, stöðu, né kynferði hvað þá kynhneigð.  Sá kærleikur er allt um lykjandi og elskar alla jafnt. 

angel

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Trúi líka á engla, framliðna, góða vætti og illa líka.  Álfa, huldfólk og aðra jarðarverur, sem lifa með okkur hér á þessari jörð.

Góða nótt Heart 

 

 


Huggun að handan.

Fólk er að spyrja mig hvernig ég hafi það.  Ég verð að viðurkenna að ég hef það ekki mjög gott.  Ég er þó að reyna að halda hugarró minni, og reyna að gleyma því að verið er að rústa 3o ára ræktunarstarfi hér fyrir ofan mig.  Ég er að reyna aða vera ekki reið.   Þó mér finnist að þessi varnargarður sé tóm vitleysa og einungis fenginn af stað til að fá tímabundna vinnu verktaka inn í bæinn.  Gott fyrir stórverktaka að sunnan að fá svona auka verk úti á landi vonandi gera þeir ekki eins og svo oft er gert, að sækja alla þjónustu suður, svo lítið sem ekkert komi inn í bæjarkassann.  En hætt er við því, ef að líkum lætur.

Ég vona að sá dagur komi að ráðamenn fari að hugsa meira um fólkið í bænum sínum, en peninga og upphefðir. 

Ofan á allt þetta er svo sjúkrahúsið okkar læknislaust fyrir utan forstjórann, sem aðrir læknar hafa dæmt óvinnufæran.  Málinu hefur verið skotið til landlæknisembættisins, honum finnst sennilega ekkert liggja á að leysa málið, enda örugglega snúið, bæði pólitískt og vináttulegt, eins og við vitum.

Vona samt að þetta erfiða mál leysist á bestan hátt fyrir bæinn okkar og íbúana sem mega þola þessa baráttu um heilsu eða stolt. 

Vegna þess hvernig mér líður var ég glöð að finna bréf, þegar ég var að taka til.  Bréfið er til elsku sonar míns heitins, þegar áfall hefur riðið yfir líf hans, það er skrifað af konunni sem seinna varð eiginkona hans og barnsmóðir. 

Þetta bréf er einstaklega fallegt og fullt að meðlíðan konu sem þekkir sorgina sjálf.  Þau eru nú bæði dáin og voru ekki hátt skrifuð hjá "kerfinu".

Þess vegna datt mér í hug, það skína margar perlur í sorpinu, og með sorpinu meina ég það fólk sem telur sig hafið yfir fólkið mitt og aðra slíka. 

En bréfið er hér og dæmi hver fyrir sig:

Á tímum erfiðleika.

Tilgangslaust er að ætla sér að skilgreina ástæðurnar fyrir sálarkvöl. Ekki verður aftur snúið. Engir töfrar fá breytt því sem gerst hefur, ekki heldur ásakanir af neinu tagi. Hvenær sem áhyggjur þjaka þig skaltu einbeita huganum að því sem getur veitt þér ánægju á líðandi stund.  Þó í litlu sé.  Gefðu þér tíma til að læknast haltu ró þinni.

Missir skilur eftir sig tómarúm – en þú verður að varast að heilgreipar sorgar læsi sig um hug þinn og hjarta.  Sæktu kjark í lífið sjálft.  Það virðist óhugansandi þegar áföllinn dynja yfir, en nýtt ánægjuefni bíður þess að fylla tómið.

Ég óska þér þeirrar hamingju að geta sleppt tökum á því liðna og byrja nýtt líf.

Ég óska þess að geta forðað þér frá hverri sorg, hverri hörmung, hverju því sem mistekst. En þá yrðir þú frábrugðin öllum öðrum tilverum jarðar.  Það er ekki síður hjartakvöl okkar en hamingja sem byggir upp hjónaband eða vináttu.

 

Ef ég gæti gefið þér eitthvað. Mundi ég kjósa þér frið og kyrrð við innstu hjartarætur, svo þú megir vera öruggur og rólegur hvað sem á dynur.

Farðu mjúkum höndum dum hamingjuna.

Hún er að láni.

Kveðja þín vinkona Jóhanna Rut.

Takk Jóhanna mín, þessi huggunarorð koma á góðum tíma fyrir mig. Ég er stolt af að hafa fengið að kynnast perlum eins og þér og Júlla mínum. Ég er ríkari fyrir vikið.

Jóhanna mynd 


Ævintýri í ökuferð um Ísafjarðardjúp.

Ég skrapp suður í gær og kom heim í dag.  Það var yndisleg upplifun að aka Djúpið, þvílík náttúrufegurð, það var yndislegt veður í gær, sól og logn, en í dag var rigning á leiðinni, en annars besta veður, oglitirnir ólýsanlega fagrir.  Þegar nær kom Ísafirði var hætt að rigna, en ég naut ferðarinnar í botn.

IMG_3812

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrsta frostnóttinn var í fyrradag. En dagurinn í gær var samt fallegur.

IMG_3813

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Algjört logn en sólin er lágt á lofti á þessum tíma.

IMG_3817

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En litirnir í djúpinu voru ólýsanlega fallegir bæði í gær og í dag.

IMG_3818

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Við eigum svo fallegt land.

IMG_3821

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvalskurðaráin á fullu.

IMG_3825

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Litli bær, hér getur maður fengið sé kaffi og vöfflur, það var allavega í sumar.  Hér bjuggu að minnsta kost tvær fjölskyldur í þessu litla húsi, menn bjuggu þröng hér í gamla daga.

IMG_3827

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi gamla hlaðna "kví" stendur enn er mörg hundruð ára gömul, finnst líklegast að hér hafi ærnar verið mjólkaðar. 

IMG_3830

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er greinilegt að álftin er farin að undirbúa sig undir langferð.

IMG_3839

 

 

 

 

 

 

 

Þó eru sumar þeirra pollrólegar, ég sá fjölskyldu upp á lágheiði, hjón með fjóra unga, ungarnir voru sennilega ekki ferðafærir, svo mamma og pabbi bíða róleg, eða hafa jafnvel vetursetur ef ekki vill betur til.

IMG_3843

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Grjót og gróður heillar mig alltaf jafn mikið.

IMG_3844

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já ég er að njóta mín.

IMG_3851

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vestfirsku fjöllinn hulin skýjahjúpi, þessi var tekinn í dag á leiðinni heim.

IMG_3855

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvalskurðaráinn aftur.  Dásamlegt vatnsfall.

IMG_3856

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Selirnir voru sestir upp við Hvítanes.  Þeir voru örugglega saddir og sælir og lágu makindalega á steinum og létu líða úr sér.

IMG_3862

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er ró og hér er friður.

IMG_3864

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Yndislegir litir.

IMG_3866

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Af öllum fjörðum hér er Hestfjörðurinn sá fegursti, hér má sjá hestinn í allri sinni fegurð.

IMG_3867

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vegurinn er eins og mjótt strik mitt í ævintýrinu.

IMG_3868

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann er reyndar það eins sem sker myndina, fjall frá spegilmynd.

IMG_3870

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stundum er maður eins og staddur í ævintýraveröld.

IMG_3874

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einungis fuglarnir rufu tærleika sjávarins.

IMG_3876

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stundum vantar orð.

IMG_3878

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rjúkandi í Hestfirði.

IMG_3881

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heart

IMG_3884

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Alla þessa fegurð eigum við sameiginlega, þangað til misvitrum mönnum dettur í hug að eyðileggja þetta allt, með gröfum og stórvirkum vinnutækjum.

IMG_3888

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þið haldið að það geti ekki gerst?

IMG_3890

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er nú málið.  Meðan peningahyggja er sett ofar náttúru og manngildi, þá er allt undir.

IMG_3894

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er nú það sem er málið. 

IMG_3894-1

 

 

 

 

 

 

 

 Það er von að fólki sárni.

  


Dúsur?

Ég sé þetta svona:

Stjórn og ráðamenn flokksins kallaðir til skrafs og ráðagerða. 

Hvað eigum við að gera við Gísla Marteinn, segir einn þeirra áhyggjufullur.

Nú hvað?

Jú ég meina hann hefur aldeilis klúðrað sínum málum í flugvallarmálinu, sem meirihluti bæði landsmanna og Reykvíkina eru á öndverðum meiði við hann.

Ó já þú meinar.

Já svo er hann líka tæpur í skipulagsmálunum, vill bara reiðhjólastíga og slíkt, sem ekki fellur beint í kramið. 

Já og það eru kosningar í vor og við getum ekki látið menn með slíkar áherslur vera oddviti okkar í þeim kosningum.

Nei auðvitað ekki, en hvað er til ráða?

Ég er með tromp upp í erminni.

Já þú ert nú alltaf svo sniðugur.

En hvað ertu með í huga.

Sko ég hef hugsað málin, og nú hef ég boðað Gísla á okkar fund.

Það er bankað á dyrnar. 

Þetta mun vera Gísli, hleypið honum inn.

Gísli kemur inn, og er á báðum áttum.

Heyrðu Gísli minn, hvernig lýst þér á að draga þig í hlé í kosningunum í vor.

Af hverju, spyr hann undrandi.  Ég á ekki gott með það, því ég var sá fyrsti sem tilkynnti baráttu mína um leiðtogasætið.

Já ég veit, en það gæti ef til vill hjálpað þér að taka ákvörðun ef þér byðist annað og meira spennandi starf.

Hvað áttu við?

Jú ég hef verið að ræða við Pál Magnússon, við ræddum um að þú fengið að hafa nýjan þátt í sjónvarpinu í vetur.

Ha!

Já, þú ert afar frambærilegur sjónvarpsmaður, og þessi þáttur mun taka á öllum þjóðlífsmálum, pólitík, dægurmál og slíkt.  Þú varst nú afar vinsæll þegar þú varst með þættina þína.

Já, já ég skal hugsa þetta mál, svaraði Gísli. 

Gott, láttu mig vita sem fyrst.

 

Þetta er nú bara samtal sem varð til inn í hausnum á mér, akandi heim frá Reykjavík í dag, hlustandi á útvarpið.

En útkoman er sú sama, og nú fær almenningur að njóta Gísla Marteins enn á ný á skjánum, og þar með verður hann ekki með í hlaupinu um oddamann sjálfstæðísmanna í næstu kosningum. 


mbl.is Gísli Marteinn hættir í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband