14.3.2010 | 12:03
.........Og lífið heldur áfram.......
Ungi maðurinn okkar hélt veislu á föstudaginn, hér voru u.þ.b. 20 flottir krakkar, æska þessa lands lofar svo sannarlega góðu. Þau sáu sjálf um allan undirbúning og tóku svona það mesta eftir sig, eftir veisluna. Við hjónin brugðum okkur í næsta hús, svona til að leyfa þeim að vera í friði. Vissum jú að hávaðinn var mikill.
Undirbúningur í fullum gangi.
Vissuð þið að strákar geta líka staujað? Ef það þarf að gera sko!
Og það er svo auðvitað hjálpast að.
Og það er ekki bara Páll Óskar sem hefur svona flotta JD veislu. Þetta var allt saman tekið í alvöru, og dansgólfið af markað, og sjónvarp og magnari við dansgólfið.
Allt að verða klárt, og Snúður fylgist með af athygli.
Tinna frænka bakaði fullt af pizzum, og svo var gos snakk og nammi.
Flottur, hann er orðin táningur.
Tinna mín dugleg, hér er hún að prjóna peysu milli þess sem hún bíður eftir að deigið hefi sig.
Og litla bjarta Sólveig Hulda var með mömmu.
Dugleg lítil stúlka.
Og hér er Birta mætt í afmælisveisluna. Svo voruekki teknar fleiri myndir, þvi við þurftum að vera farin þegar gestirnir kæmu.
Snúður er mikill leikköttur.
Og hann er að verða svo stór.
Það má sjá af myndum að mikið hefur tekið upp af snjó hér, enda hitinn fyrir ofan frostmark í marga daga, 4 - 7 ° ekki amalegt, heitara en í Vín, sýnist mér á tölum úr veðurfregnum.
Já þessar eru fyrir fjallafólkið mitt og gömlu ísfirðingana.
Svo vil ég þakka ykkur öllum innilega fyrir innleggin ykkar hér fyrir neðan, ég las þau oft yfir og þau glöddu mig mjög mikið.
Ég sá svo fallega sögu hér á einu blogginu, sem mig langar að setja hér inn.
Bloggarinn heitir Anna. Og hér er þessi falllega saga, sem á svo mikið erindi til okkar í dag.
Faðirinn og dóttir hans föðmuðust innilega á flugvelinum. Bæði vissu að þetta væru þeirra síðustu samfundir - hann var háaldraður og veikburða, hún bjó í fjarlægu landi. Loks urðu þau að skilja þar sem síðustu farþegarnir voru kallaðir um borð.
-Ég elska þig. Ég óska þér þess sem nægir, sagði faðirinn við dóttur sína. -Ég elska þig líka pabbi. Ég óska þér þess sem nægir, sagði dóttirin. Farþegi sem stóð þar hjá stóðst ekki mátið að spyrja við hvað þau ættu með þessari ósk.
-Þetta er ósk sem gengið hefur frá kynslóð til kynslóðar í fjölskyldu okkar, sagði gamli maðurinn. Hún merkir:
Ég óska þér nægilegs sólskins til að líf þitt verði bjart.
Ég óska þér nægilegs regns til að þú kunnir að meta sólskinið.
Ég óska þér nægrar hamingju til að þú varðveitir lífsgleðina.
Ég óska þér nægilegrar sorgar til að þú gleðjist yfir litlu.
Ég óska þér nægilegs ávinnings til að þú fáir það sem þú þarfnast.
Ég óska þér nægilegra ósigra svo að þú metir það sem þú átt.
Ég óska þér að þú finnir þig nógu velkomna til að geta afborið hinstu kveðjustundina.
(Þessi saga birtist t.d. í bæklingi sem heitir Æðruleysi, kjarkur, vit - orð til uppörvunar á erfiðum tímum í samantekt Hr. Karls Sigurbjörnssonar. Skálholtsútgáfan gefur út).http://blossom.blog.is/blog/blossom/#entry-1030259
Megið þið eiga góðan og yndælan dag öll mín kæru og aftur og innilega takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
10.3.2010 | 12:04
Smá nöldur í gömlu hrói.
Ég sit ofan í einhverri tímalausti holu og á erfitt með að krafla mig upp á bakkann. Mér er sagt að þetta sé fullkomlega skiljanlegt og það er meira að segja orð yfir þetta fyrirbæri, kallast ef ég man rétt áfallastreituröskun. En þetta birtist þannig að ég er eins og dofin, einhver innri söknuður og tregi. Ég er afllaus og tilfinningarnar hanga utan á mér. Ég kem mér ekki að neinum sköpuðum hlut, og á erfitt með að hitta fólk. Þó passa ég vel upp á að það sjáist ekkert utan á mér. Brosi og heilsa eins og ekkert sé. En finn hve ég er sundurtætt innaní.
Ég veit að þetta gengur yfir og ég veit líka að þetta er bara hlutur sem allir sem ganga í gegnum það sama verða fyrir. Sumir taka þetta út strax, aðrir eru að mjatla þetta smám saman.
Ég verð að taka á, til að fara á fætur á morgnana. Finn að hugurinn fer niður í holuna í myrkrið, ég verð að beita öllu mínu þreki til að láta hugan hoppa yfir þessa andstyggðargloppu Vera jákvæð, hugsa eitthvað fallegt
Erfitt að einbeita mér, þess vegna hef ég ekki farið blogghringinn minn nú í nokkra daga, ég hef einfaldlega ekki orku til þess. Sorrý mínir elskulegu vinir.
Þetta kemur fljótlega, nú fer að koma sá tími að það þarf að grufla í moldinni og fylgjast með því þegar plöntur fara að vaxa og dafna. Þær eru að gæjast upp úr moldinni og brosa til mín.
Að vísu ekki haustlaukarnir, þó það gæti sem best verið einmitt þannig.
Og nú vill bankinn eignast húsið mitt. Ég er víst enginn útrásarvíkingur sem get látið afskrifa skuldirnar. Verst að ég nýtti þá ekki í eigin þágu, þessum peningum sem ég á ekki til. Þeir fóru í annað.
En svona er lífið bara. Það gengur upp og niður. Og þó okkur finnist það stundum liggja meira niður en upp, þá vitum við að meðan við höfum heilsu og góða fjölskyldu þá er það einmitt það sem skiptir mestu máli. Svo er að sjá til með hitt. Hvernig maður getur spilað úr stöðu sem virðist vera vonlaus.
Málið er bara að þegar maður er orðin 65 ára og bráðum 66 Þá finnst manni einhvernveginn að það sé sá endi sem ætti að vera hvíld og rólegheit. Ekki sama þrælkunin og í upphafi, þegar við vorum að byggja upp hreiðrið og koma ungunum á legg. En lengi má manninn reyna.
Þó ég sé að nöldra svona geri ég mér grein fyrir því að það eru margir sem eru miklu verr settir en ég. Það er ekki málið. Við erum svo mörg í þessari súpu sem snýst endalaust og sogar allt niður í miðjuna. Við erum bara svo mismunandi langt frá miðjuhringsoginu. Að sumir ná að grípa í bakkann, meðan aðrir sogast niður. Og einhvernveginn hefur alveg gleymst að setja öryggisnetið undir niðurfallið.
Við sem hreykjum okkur af að vera svo rík þjóð. Og sum okkar sem endilega vilja borga skuldir til erlendra aðila langt umfram það sem okkur hugsanlega ber. Samanber fréttaritarann í Englandi sem sagði að íslendingar væru ekkert svo fátækir það þyrfti ekkert að vorkenna þeim að greiða skuldina. Við viljum nú ekki láta líta á okkur sem ölmusuþjóð sagði hún svona einhvernveginn, og hló við. Jamm svo er nú það. Við erum svo rík. Við erum svo rík að það er fullt af fólki á götunni, eða á leið þangað, þegar bankarnir bjóða upp húsin. Við erum svo rík að fólk tekur leiðina út þegar það sér ekkert framundan.
En ég ætlaði ekki að hafa þetta svona langt og mikið væl. Mig langaði bara til að heilsa upp á ykkur og segja að ég væri orkulaus og hef þess vegna ekki kíkt við hjá ykkur.
Set kannski inn nokkrar myndir til að létta þetta aðeins. Ég hef ekki heyrt frá litlu tátiljunum mínum um hríð. Ég sakna þeirra líka. Það er samt gott að vita að þær eru glaðar og hjá mömmu og pabba sínum.
Ásthildur litla í Náttúrminjasafninu í Vín.
Að leika við afa.
Afi og Hanna Sólin.
Óðinn Freyr og Daníel Örn í heimsókin.
Prinsessan mín fallega.
Og svo fara lömbin að fæðast bráðum.
Svo líður tímin og alltaf vorar meira og meira, og okkur eykst þróttur þegar sólin fer almennilega að skína á okkur.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
9.3.2010 | 09:44
Krafan verður að Jóhanna og Steingrímur víki.
Svo sannarlega er áhuginn mikill hjá Evrópumönnum ná okkur inn í ESB. Allskonar gylliboð og beiðnir forsvarsmanna um að okkur sé "gert kleyft" að koma inn sem fyrst. Þetta sé ekki tengt Icesaaave og svo framvegis.
Ætli þeir séu búnir að lofa sínum mönnum pláss í landhelginni eða ítökum í heitu eða köldu vatni, eða einhverju orkuveri sem að reist verði með style þegar við erum búin að skrifa undir?
Satt að segja fæ ég ógeðs hroll niður bakið við þennan gríðarlega áhuga á að fá okkur inn. Jú þeir segja það af því við séum svo vel undirbúin og svo lík þeim í öllu. En það sem þeir láta ekki getið upphátt er allar gríðarlegu náttúruauðlindir okkar, sem eru auðvitað allof miklar bara fyrir þessa litlu þjóð, slíku þarf að dreyfa víðar, svo fleiri fái að njóta.
Þetta kemur alveg heim og saman við það sem erlendir vinir mínir hafa alltaf sagt, að græðgin réði áhuga þeirra á ESBaðild okkar. En þeir sögðu líka að aðferðirnar væru þannig að finna lykilfólk sem þeir gætu fengið sér til stuðnings, (svona eins og sagt var í Draumalandinu um uppkaup á frammámönnum sveitarfélaga) bara stærra, og bjóða þeim annað hvort góðar stöðúr í Brussel, eða feitan bita annarsstaðar. Og það eru margir sem því miður láta kaupa sig, bara ef upphæðin er nógu há.
Þessi setning stingur mig. Stækkunarstjóri Evrópusambandsins hvatti í gær hollendinga og breta til að "leyfa" íslendingum að hverja inngönguviðræður við ESB. Er virkilega einhver íslendingur svo bláeygður að halda að áhuginn á okkur sé vegna þess að þá langi svo til að hjálpa okkur? Er einhver svo skyniskroppinn að sjá ekki að hér er eftir miklu að slægjast, sem gæti komið sér vel fyrir aðrar þjóðir. Og er einhver íslendingur svo sorglega barnalegur að hann sé tilbúin til þess að gefa allt þetta eftir, til að verða smádropi í stærsta spillingarpolli Evrópu?
Jú því miður þá höfum við forsætisráðherra sem leggur allt í sölurnar til að þvinga þjóðina þarna inn. Við höfum fjármálaráðherra sem gengur í hennar fótspor er er afar hjálplegur við að leggja henni liðsinni siti, og við skulum ekki gleyma utanríkisráðherra sem vappar í kring um þau og gerir sitt til að koma okkur þarna inn.
Það hefur heyrst að bankarnir séu fullir af peningum, það bókstaflega velli út um alla glugga og dyr. Samt er ekkert hægt að gera fyrr en við fáum meiri lán. Allt er látið reika á reiðanum, aðstoð við landslýð, fyrirtæki og allt sem hér þarf að taka til höndum um. Allt látið bíða, vegna þess að ríkisstjórnin getur bara gert eitt í einu og þetta eina er Icesave (boðsmiðin in í ESB)
Steingrímur og Jóhanna tönglast sífellt á því hvað töfin hafi nú kostað með að leysa Icesave. Töfin var fyrst og fremst vegna klúðurs sem þau sjálf gerðu, eða að senda vini sína og pólitíska samherja, sem nenntu svo ekki að hanga yfir þessu. Svo er ráðist á það fólk sem þó stóð í lappirnar og vildi ekki gleypa bitann hráan. Og það var ekki fyrr en samstaða milli allra varð að veruleika að eitthvað fór að ganga.
En skaðinn var löngu skeður. Jóhanna, Steingrímur, Össur og þeirra aðstoðarfólk var löngu búið að fara út og lofa einhverju, sem á að gera hvað sem er til að halda til streitu. Og fyrst Steingrímur otar fingri að alþingismanni og hótar skýrslunni góðu, finnst mér líka tilhlýðilegt að skipuð verði rannsóknarnefnd til að kanna hvað þessir forsvarsmenn hafa gert til að þvinga fram óásættanlega samninga við breta og hollendinga.
Nú þarf að gera þetta allt saman upp. Fara af stað á ný og fylgja eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni. Því miður verður það ekki hægt af neinu viti ef þessar manneskjur verða innanborðs. Það er því ljóst að til að árangur náist, sem við getum sætt okkur við, verða þau að stíga til hliðar og það þarf nýtt fólk í brúnna.
Það verður ekki hægt að byrja ferlið upp á nýtt með þau með í farteskinu. Þau hafa sýnt að þau vilja ekki semja, heldur reyna að halda andlitinu og láta þeirra verk líta betur út. Þá eru þau komin í mótsögn við sjálf sig. Og það getur enginn maður gert með góðum árangri.
Það er því lífsnauðsynlegt fyrir okkur að Jóhanna, Steingrímur og Össur Víki úr ríkisstjórninni. Þar þurfa að taka við aðrir sem hafa sýnt að geta staðið í lappirnar og sætt aðila. Ég nefni Ögmund til dæmis, og einhver talaði um Guðbjart Hannesson fyrir Samfylkingu, sem forsætisráðherra.
Ef þetta er ekki hægt, hlýtur stjórnin að renna út í sandinn, því bæði Jóhanna og Steingrímur eru eins og nátttröll ákveðin í að setja undir sig hausinn og halda áfram hvað sem tautar og raular. Það dæmi gengur einfaldlega ekki upp. Krafan um að þau víki verður háværari frá hverjum degi, hef ég trú á, líka frá þeirra eigin fólki.
Við þurfum að láta vita af því skýrt og skorinort að ÞAÐ ER ENGINN MEIRIHLUTAVILJI Á ÍSLANDI AÐ KOMAST Í ESB.
![]() |
Icesave ótengt inngöngu í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
8.3.2010 | 11:48
Til hamingju með daginn Úlfur minn.
Fyrir 13 árum í dag, að kveldi kl. 20.25 fæddist drengur á Fjórðungssjúrkrahúsinu á Ísafirði. Þar sem mamman var ein, pabbinn komst ekki, og þar að auki bjuggu hjá mér, fór ég með henni á spítalan og var viðstödd fæðinguna. Fæðingin gekk vel, og reyndar var hann svo rólegur að mamma hans lyfti höfði og reyndi að koma auga á hann, því hún heyrði engan grát. Nei þarna lá hann bara steinsofandi og fékk svo rassskell, sennilega þann eina sem hann hefur fengið um ævina. Hann launaði svo fyrir sig með að pissa á lækninn.
Þessi litli stubbur fór svo strax að skoða heimin, það var ljóst að hann myndi vilja fylgjast með umheiminum.
Hann hefur alla tíð verið ótrúlega uppátektarsamur.
Það er nokkuð ljóst að hann var ekki mjög gamall þegar hann hafði upplifað ýmislegt sem öðrum börnum er ekki hversdagsbrauð. Hann kom svo alkomin heim til ömmu og afa 6 ára gamall.
Hann hefur verið hjá ömmu og afa síðan. Og algjörlega samlagast þeirri fjölskyldu. Hefur reyndar allt sitt líf verið meira og minna í Kúlunni hjá ömmu og afa.
Hann var svo heppin að eiga yndislegan pabba, sem kenndi honum svo margt, að veiða, tína steina og elska frelsið sem felst í því að geta verið út í náttúrunni.
Þeir voru líka ótrúlega flottir saman, ef þeir vildu svo viðhafa.
Pabbi hans kenndi honum líka að elda bestu fiskisúpu í heimi, hann var ekki gamall þegar hann gat farið sjálfur og keypt allt sem þurfti í svoleiðis og elda hana sjálfur.
En hann kann líka að elda ýmislegt fleira, hefur gaman af að elda góðan mat.
Og ekki síður getur hann framleitt góða eftirrétti. Sú kona sem fær hann verður ekki svikinn.
Hann er líka góður trommuleikari.
Hér er hann að leggja land undir fót á Tai Kwon Do landsmót í Keflavík. Hann er duglegur að stunda þessa íþrótt.
Þegar viðrar fer hann líka á snjóbretti.
Hann vann líka bikar í freestyledanskeppni í fyrra með tveimur vinkonum sínum, Birtu og Sóley Ebbu, bikarinn er geymdur í skólastofunni hjá þeim.
Hér er hann í sinni ELskuðu Fljótavík, það var eitt af því sem pabbi hans kenndi honum að elska Fljótavíkina.
Á sumrin er líka gaman að grilla með afa.
Hann hittir líka stundum mömmu sína. Mamma á alltaf sérstakan stað í hjarta barnanna sinna. Hún bara ER mamma.
Pabbi var samt alltaf besti vinurinn hans. Og oft voru þeir saman.
Sem betur fer fengu þeir mörg góð ár saman, sem hægt er að minnast og ylja sér við.
Langafi segir að þessar minnnigar verði hann að gefa litla bróður sínum, þegar hann fer að hafa meira vit til. Hann fékk að hafa pabba svo stutt.
Og snemma beygist krókurinn, Úlfur verðu líka barnakarl eins og pabbi var.
Elsku stubburinn hennar ömmu, innilega til hamingju með daginn.
Þú færð knús frá ömmu og afa.
Hefðir líka örugglega fengið knús frá Hönnu Sól ef hún hefði verið hér.
Svo ég tali nú ekki um litla grallarann.
Eigðu frábæran dag elsku stubburinn minn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
7.3.2010 | 18:01
Eftir kosningarnar.
Þá er atkvæðagreiðslunni lokið, og með glæsilegum sigri þjóðarinnar. Því það er ekkert annað hægt að lesa úr kortunum. Síðan getur hver túlkað það á sinn hátt. Sumir voru að mótmæla stjórninni, aðrir ástandinu og enn aðrir bara að greiða atkvæði um samningin.
Niðurstaðan er ótvíræð. Lögin frá því í sumar eru hér með numin úr gildi.
Ég var að hlusta á Silfur Egils áðan og ég er alveg gáttuð á því að hér hafi setið ráðamenn þjóðarinnar á a"rökstólum" eða á maður heldur að segja Rökleysustólum. Því þau gerðu mest af því að rífast um hver ætti sökina.
Þau hjúin Jóhanna og Steingrímur ætla að þumbast við og setja undir sig hausinn og þjösnast enn eina ferðina. Ég er nú bara venjuleg kerling út í bæ, en ég get ekki séð hvernig þau ætla sér að framkvæma það. Nema ef þau hafa hugsað sér að gera eins og Jóhanna hótaði að semja í reykfylltum herbergjum við breta og hollendinga um uppgjöf.
Það mun hins vegar aldrei ganga upp. Því í fyrsta lagi hafa þau misst allt traust alltof margra. En síðan hafa þau endurtekið sömu þvælurnar aftur og aftur, um að þau verði að klára þetta áður en þau geta gert nokkuð annað. Það er svo bara einfaldlega ekki rétt. Þetta er síendurtekinn frasi sem þau hafa notað of oft. Þau hafa hrakist úr hverju víginu af öðru og ekkert sjáanlegt í sjónmáli. Ekki nema það sem hefur komið út úr neitun forsetans og ótta breta og hollendinga við íslenska alþýðu.
Nú flýta þér sér að fullyrða að auðvitað viljið þeir semja áfram, og haft var eftir Darling eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður það væri óréttlátt að láta svona smáríki eins og Ísland borga svona mikið. Ja öðruvísi mér áður brá.
Maður þarf ekki að vera heiladauður til að sjá að þeir vilja gera allt til að fá borgað. Og þeir eru öruggglega reiðubúnir til að ganga ansi langt í slökunum, ef við spilum rétt úr málum. Það er EKKI að spila rétt úr málunum að forsetisráðherra og fjármálaráðherra, séu endalaust að senda þau skilaboð að þau vilji borga sem mest.
Nú vil ég að þau annað hvort segi af sér, eða allavega hætti að skipta sér af Icesave. Þau hreinlega fari frá málinu, hvernig sem þau gera það og hætti að spila leiknum endalaust upp í hendur breta og holleninga. Þetta eru engar skælandi smælingjaþjóðir, heldur fyrrverandi heimsveldi sem hafa sýnt það gegum söguna að þær ganga eins lang og þær komast til að komast yfir það sem þeir girnast.
Ef þau sjá þetta ekki sjálf, ættu einhverjir sem þykir nógu mikið til þeirra koma, gera þeim grein fyrir að þjóðin vill þau ekki lengur við samningaborðið. Í viðtalinu við Jóhönnu í gær í sjónvarpinu horfði ég ekki á hana sjálfa, ég horfði baka til á aðstoðarmann hennar, það var ekki fallegur svipur í þeim andlitsdráttum. Þar gat að líta mann sem sá sína sæng útbreidda.
Ég hallast að því að trúa því að við getum ósköp vel látið þetta mál liggja aðeins í bleyti, og einbeitt okkur að meira aðkallandi málum þjóðarinnar. Eða eins og einn sérfræðingurinn sagði í Silfrinu, bankarnir eru fullir af peningum, okkur skortir ekki fé til aðgerða. Þá er ekkert annað eftir en að trúa því að það sé satt að þau noti sér þetta mál til að ýta öllum hinum á undan sér.
Og ef það er rétt, þá eru þau ekki að halda rétt á málum, og þá eiga þau að eftirláta öðrum að gera það sem gera þarf.
Ég er búin að fá nóg af að horfa upp á þau með sömu tugguna aftur og aftur. Sýndist þau meira að segja vera að segja ósatt þarna undir lokin, þegar þau sögðu að stjórnarandstaðan hefði ekki unnið með þeim, þegar Birgitta og þau hin urðu undrandi og sögðu að þau hefðu ekki fengið að vita neitt hvað var í gangi.
Hvernig á maður að trúa fólki sem hagar sér svona? Fyrir utan að reiði og pirringur leysir aldrei neitt. Í raun og veru hefði ekkert þeirra átt að gefa kost á sér í viðtal um þessi mál, svona daginn eftir. Sárindi of mikil á aðra höndina og sigurinn of sætur á hinn.
Ég veit ekki hvort mér líkar heldur að fá þjóðstjórn, það má segja að slík hafi ríkt hér undanfarnar vikur, síðan bretar og hollendingar kváðu upp úr með að stjórnarandstaðan kæmi líka að málinu, sem segir raunar meira en þúsund orð.
Ég vil fá utanþingsstjórn sérfræðinga sem taka að sér að leita lausna fyrir þau mest aðkallandi vandamál sem hér eru bæði stór og alvarleg. Það er ljóst að Jóhanna og Steingrímur hafa enga döngun eða löngun til að klára nein mál, fyrr en óskaverkin þeirra eru í höfn, Icesace og ESB.
En þetta er fallegur dagur, og ég er að njóta þess að eiga þennan góða dag. Það var viss léttir að fá að kjósa í gær. Og fyrir það er ég þakklát.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.3.2010 | 12:35
Kæru Jóhanna og Steingrímur.
Ég ætla að þakka ykkur kærlega fyrir alla hjálpina. Í fyrsta lagi eigið þið heiður skilinn fyrir að láta atkvæðagreiðsluna fara fram yfir höfuð. Ég man nefnilega að síðast þegar forsetinn neitaði, þá drógu þáverandi stjórnvöld allt saman til baka, en þið gerðuð það þó ekki sem betur fer.
Í annan stað vil ég þakka ykkur fyrir yfirlýsingarnar um að þið ætlið að sitja heima. Þetta verður öruggleg til þess að hver einasta letihrúga landsins, sem hefði ekki nennt að láta sjá sig, drífur sig á kjörstað og kýs. Þekkjandi þjóðina mína, þá svínvirkar svona aðferðarfræði.
Nú verður hver sjóraftur á flot dreginn og þátttakan verður yfir 70% og það verður mikið til ykkur og yfirlýsingum ykkar að þakka.
Svo vil ég þakka ykkur unnin störf, held að þið hafið ætlað að gera ykkar besta, en því miður er pólitíkin svo rotinn niður í neðstu rætur samfélagsins og hagsmunaaðiljarnir svo frekir, að þið réðuð ekki við neitt.
Þess vegna þurfum við núna utanþingsstjórn með sérfræðingum sem kunna alþjóðaviðskipti, gera greinarmun á réttu og röngu, hafa réttlæti og gagnsæi að leiðarljósi og hafi ekki komið nálægt Alþingi síðustu þrjátíu árin eða svo. Verndari þessarar utanþingsstjórnar á svo að vera Eva Joly.
Með kæru þakklæti fyrir að leggja okkur lið.
![]() |
Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
4.3.2010 | 18:19
Það er nú eða aldrei.
Jón Daníelsson: Atkvæðagreiðsla getur aðeins hjálpað okkar málstað. Tíminn vinnur með Íslandi
Jón Daníelsson, prófessor við London School of Economics, segir engan vafa leika á í sínum huga að öll umræða um Icesave komi Íslendingum vel og sama gildi um þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn kemur. Sú umræða erlendis sem um hana verður gerir ekkert nema styrkja málstað Íslands og gefa fleiri innsýn inn í hversu óréttmætir Icesave samningarnir séu gagnvart þjóðinni.
Þessu lýsti Jón yfir í Síðdegisútvarpi RÚV í dag
en þar ítrekaði Jón að nú væri hlutirnir farnir að falla dálítið okkar megin varðandi Icesave. Ekki aðeins væru fleiri að uppgötva hversu illa væri verið að fara með þjóðina í þessum samningum heldur ekki síður að tíminn væri nú farinn að vinna með Íslendingum. Íslendingar hefðu rúmt ár áður en verulega færi að þrengja að gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands og engin pressandi rök væru fyrir neinum flýti af okkar hálfu.
Að sama skapi ykist jafnt og þétt þrýstingurinn á Breta og Hollendinga. Ekki aðeins væru kosningar framundan í báðum löndum heldur hefði Evrópusambandið áhyggjur af málinu sem og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn að ógleymdum Norðurlandaþjóðunum. Allir þessir aðilar kölluðu eftir lyktum í Icesave deilunni og sú pressa væri fyrst og fremst á Breta og Hollendinga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
3.3.2010 | 22:07
Það sem skiptir alvörumáli:
Hitti góða vini mína í dag í Samkaupum. Hef hitt þau oft þar og átt alltaf skemmtileg viðtöl við þessi dásamlegu hjón. Þau hafa átt ýmsa erfiðleika i sínu lífi. Misst dóttur, orðið gjaldþrota, hann misst heilsuna og ég veit ekki hvað og hvað.
En að tala við þau, er eins og ferskur vorblær. Þau standa saman í öllu sínu basli. Og eru svo jákvæð. Í dag sagði maðurinn við mig, en hann hefur átt við alvarleg veikindi að stríða núna um hríð. Ásthildur; ég vakna á morgnanna og segi við sjálfan mig ég ætla að þakka fyrir þennan dag, og gera hann að besta degi lífs míns. Og ég segi bara, ég á kannski ekki eftir að lifa nema 500 daga, og ef ég eyði tveimur dögum af þessum 500 hundruð í leiðindi, þá hef ég minnkað gleðina um tvo daga.
Ég veit að þessi maður á eftir miklu fleiri frábæra daga en bara 500. En þessi fílósófía hans er svo falleg að ég get ekki annað en sett hana hér inn. Og konan hans stendur alveg með honum í öllu þessu sterk og jákvæð.
Ef við lifum lífi okkar eftir þessari hugmyndafræði, og leyfum okkur bara að lifa hvern dag eins og hann sé sá síðasti, þá farnast okkur vel.
Þá verður ekki spurningin um að reyna að græða á morgundeginum, jafnvel valta yfir næsta mann til að eignast meira. Eða svíkja og pretta náungann. Því allt slíkt yrði hjómið eitt.
Þegar ég hitti þessi elskulegu hjón og ræði við þau fæ knús og jákvæðni, þrátt fyrir allt það sem þau hafa þurft að þola. Þá geng ég út svo sæl í minni sál, og þakklát fyrir að þekkja svona fólk. Þau eru ekki þau einu sem ég á samskipti við á þessum nótum. En einstök vegna þess að þau hafa gengið í gegnum flesta þá erfiðleika sem við getum ímyndað okkur að væri það versta sem gæti gerst.
Okkur hættir oft til að verða reið yfir vanþakklæti heimsins, og eyða orkunni í neikvæðni, og reiði út í allt og alla. En það er svo rangt sem það mest getur verið.
Og einmitt við að eiga svona yndislegt fólk að, sýnir manni svo ekki verður um villst að ef við bara kunnum að taka því sem kemur með æðruleysi og opnum huga, læra af því sem lífið færir okkur, vera þakklát fyrir hvern þann dag sem lífið gefur okkur þá líður okkur betur.
Við getum ekki breytt því sem var, við getum ekki ráðið við þau öfl sem eru ekki í handfæri. En við getum ráðið því hvernig við sjálf tökum á okkar tilveru, og við getum annað hvort eytt henni í reiði, vonsvikni eða hatur, eða eytt tilverunni í að vera þakklát, jákvæð og fyrirgefandi.
Þetta verðum við að hafa í huga. Ekki eyða tímanum í að hata einhvern sem hefur gert okkur rangt til. Ekki heldur vera reið við einhvern sem okkur finnst hafa tekið eitthvað frá okkur sem máli skiptir.
Að geta litið upp yfir allt svona og lifað hvern dag eins og hann sé sérstök gjöf til okkar er eitthvað sem gefur okkur meiri gleði, meiri hamingu og meiri lífsfullnægingu en nokkuð annað.
Elskuleg hugsið um þetta og látum enduróma í huga okkar orð þessara vina minna. Lífið er dásamlegt og þess virði að þakka fyrir hvern dag. Því þegar við svo stöndum frammi fyrir brottför héðan, þá verður það bara gleðin ein að hafa gert þessa jarðvist að okkar eigin paradís.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
3.3.2010 | 19:53
Ísafjörður bærinn minn!
Nokkrar myndir frá góðum degi hér á Ísafirði.
Brandur bregður sér út fyrir og gáir til veðurs.
Jamm það er útlit fyrir fallegan sólríkan dag.
Ég heyri í fuglunum sem bíða eftir mat, þeir sitja á þaki nágrannans og vita sem er að ég gef þeim að borða. Ég hef stundum smá áhyggjur af Brandi, en hann hefur hingað til aldrei náð sér í fugl sem er að borða mat að vetri til. Hann nær ungaflónunum á vorin, þá langar mig mest til að loka hann inni prakkarann þann.
En veðrið gengur eftir, og þegar ég sé svona velmokaðan veg dettur mál alltaf í hug skíðasleði og kerrupoki mamma með mig og bróður minn bæði á skíðasleðanum, annað snúandi að mömmu gegnum opið og hinn í kerrupoka fyrir framan, og við svo bundinn á sleðan. það var oft sem þannig var farið með okkur í bæinn í denn.
Pápi gamli er ekki alveg sáttur við að vera á öldrunardeildinni, og við reynum að fara með hann í bíltúra. Í gær fórum við pabbi svo til rakarans, hans Villa Valla flottasta tónlistarmanns á Ísafirði, og á móti okkur tók Sammi rakari, hann er samt ekkert rakari en Villi Valli, því þeir drekka hvorugir. En Sammi var bassaleikari í BG og sonur hans var svo bassaleikar í Írafár, og saman er þetta bara svona músikrakarastofa númer eitt,
Hér er Sammi að spila á bassann.
Hér er svo Villi Valli að klippa.
Hverjir vilja giska á þá sem hér eru? þessi mynd ásamt lisaverkunum gerð af Villa Valla.
Og ef ykkur gengur vel með hina myndina, hverjir eru þá á þessari. Nei þetta er ekki Erró, þetta er Villi Valli. Margir hér sem fólk kannast við.
Þessi síungi vinur minn er jafnvígur á myndir af fólki, húsum og náttúrunni.
Reyndar vantar mig ennþá nýja diskinn hans. Ég elska þennan eldri og spila hann oft. Hvar er hægt að fá hinn? þeir segja mér að hann fáist á Hótel Ísafirði, en ég hef spurt þar og enginn diskur í sjónmáli. Hvernig er það útgefendur? er ekki hægt að fá meira upplag?
Ísafjörður er alveg spes, við höfum nefnilega tvær sólir á lofti, við erum nefnilega alveg sér á parti.
Birta og Úlfur að fara á snjóbretti. Þau sakna Sóleyjar Ebbu, en eru góðir vinir sem betur fer.
Ísafjörður bærinn minn.
Ég verð síðust í burtu og slekk ljósin, en ef það gerist þá mun gamla norninn láta þá finna fyrir því sem haga sér þannig að landsbyggðin leggist af. Það fer illa fyrir þeim sem þannig haga sér.
Ég er nefnilega dóttir Tívanna og meira tröllakyn en mannkyn, þannig að ég get gert ýmislegt ef ég vil.
Það er ef nauðsyn ber til.
Bærinn minn er fallegur, meira að segja snjóhaugarnir sem sturtað hefur verið í sjóinn eru fallegir. Svo ágætu stjórnvöld ekki reyna að troða vestfjarðarnorninni um tær, það eina sem upp úr því hefst er niðurlæging fyrir ykkur sjálf.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.3.2010 | 09:34
Point of no return.
Það er ekki hægt að hætta við þjóðaratkvæðagreiðsluna núna. Það er eitthvað í flugi sem heitir eitthvað eins og place of no return. Eða að ekki verði hætt við flugtak.
Í þessum töluðu orðum eru lögreglumenn á Vestfjörðum að fara yfir fjöll og firnindi með kjörgögn, það er eins og ráðamenn búi í öðrum heimi, því öll kjörgögn hér voru sent á Ísafjörð þaðan sem lögreglan þarf að fara með til Patreksfjarðar, gegnum Hólmavík, Arnkötludal og dalina, og þaðan vestur yfir heiðar til Patreksfjarðar.
Síðan eru strandirnar ófærar, það mátti ekki moka til Dúpuvikur um daginn svo frægur leikari komst ekki þangað í afslöppun þessi danski sem lék í Lord of the Rings, svo nú verða lögreglumenn á Hólmavík að fara sennilega á snjósleðum og snjóbílum út um allar trissur með kjörgögnin. Ef allt þetta ferli á svo að afturkalla korteri fyrir kosningar, þá eru stjórnvöld meiri fífl en ég hélt.
Málið er að það er réttur hvers manns að fá að kjósa. Og margir staðir hér fyrir vestan eru einangraðir vegna snjóa. Þetta ætti samgönguráðherra að vera fullkunnugt um, sérstaklega þar sem öll mokun hefur verið skorin við nögl.
Þið hættið ekki við atkvæðagreiðsluna gott fólk, nú er POINT OF NO RETURN.
það getur verið að hver kjósi um sitt, en við fáum að láta í ljós álit okkar á þessum fíflagangi alls fjórflokksins, og það er eitthvað sem við verðum að fá útrás í, eftir allt sem þið hafið gert okkur þjóðinni. Það er hreinlega hreinsun og andlegt bað að fá að fara á kjörstað og segja NEI OG AMEN EFTIR EFNINU!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 2023321
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar