Til hamingju með daginn Úlfur minn.

Fyrir 13 árum í dag, að kveldi kl. 20.25 fæddist drengur á Fjórðungssjúrkrahúsinu á Ísafirði.  Þar sem mamman var ein, pabbinn komst ekki, og þar að auki bjuggu hjá mér, fór ég með henni á spítalan og var viðstödd fæðinguna.   Fæðingin gekk vel, og reyndar var hann svo rólegur að mamma hans lyfti höfði og reyndi að koma auga á hann, því hún heyrði engan grát.  Nei þarna lá hann bara steinsofandi og fékk svo rassskell, sennilega þann eina sem hann hefur fengið um ævina.  Hann launaði svo fyrir sig með að pissa á lækninn. 

Jóhannaoguldfur

Þessi litli stubbur fór svo strax að skoða heimin, það var ljóst að hann myndi vilja fylgjast með umheiminum.

Jóhanna 001

Hann hefur alla tíð verið ótrúlega uppátektarsamur.

MYND010

Það er nokkuð ljóst að hann var ekki mjög gamall þegar hann hafði upplifað ýmislegt sem öðrum börnum er ekki hversdagsbrauð.  Hann kom svo alkomin heim til ömmu og afa 6 ára gamall.

MYND006

Hann hefur verið hjá ömmu og afa síðan.  Og algjörlega samlagast þeirri fjölskyldu.  Hefur reyndar allt sitt líf verið meira og minna í Kúlunni hjá ömmu og afa.

 

31,12,99

Hann var svo heppin að eiga yndislegan pabba, sem kenndi honum svo margt, að veiða, tína steina  og elska frelsið sem felst í því að geta verið út í náttúrunni.

IMG_0457

Þeir voru líka ótrúlega flottir saman, ef þeir vildu svo viðhafa.

17.maí.08 028

Pabbi hans kenndi honum líka að elda bestu fiskisúpu í heimi, hann var ekki gamall þegar hann gat farið sjálfur og keypt allt sem þurfti í svoleiðis og elda hana sjálfur.

IMG_3391

En hann kann líka að elda ýmislegt fleira, hefur gaman af að elda góðan mat.

IMG_4727

Og ekki síður getur hann framleitt góða eftirrétti.  Sú kona sem fær hann verður ekki svikinn.

17.maí.08 010

Hann er líka góður trommuleikari.

c_documents_and_settings_owner_my_documents_my_pictures_april_5_4_08_7_4_08_10_4_08_11_4_08_12_4_08_13_4_08_15_4_08_514992

Hér er hann að leggja land undir fót á Tai Kwon Do landsmót í Keflavík.  Hann er duglegur að stunda þessa íþrótt.

IMG_2727

Þegar viðrar fer hann líka á snjóbretti.

Hann vann líka bikar í freestyledanskeppni í fyrra með tveimur vinkonum sínum, Birtu og Sóley Ebbu, bikarinn er geymdur í skólastofunni hjá þeim.

IMG_2247

Hér er hann í sinni ELskuðu Fljótavík, það var eitt af því sem pabbi hans kenndi honum að elska Fljótavíkina.

IMG_6223

Á sumrin er líka gaman að grilla með afa. 

IMG_7856

Hann hittir líka stundum mömmu sína.  Mamma á alltaf sérstakan stað í hjarta barnanna sinna.  Hún bara ER mamma. 

Júlli fjölskyldumynd.6

Pabbi var samt alltaf besti vinurinn hans.  Og oft voru þeir saman.

Júlli og Úlfur.

Sem betur fer fengu þeir mörg góð ár saman, sem hægt er að minnast og ylja sér við.

IMG_6440

Langafi segir að þessar minnnigar verði hann að gefa litla bróður sínum, þegar hann fer að hafa meira vit til.  Hann fékk að hafa pabba svo stutt.

IMG_1607

Og snemma beygist krókurinn, Úlfur verðu líka barnakarl eins og pabbi var. Heart

img_4870

Elsku stubburinn hennar ömmu, innilega til hamingju með daginn. Heart

Þú færð knús frá ömmu og afa. Heart

IMG_6996

Hefðir líka örugglega fengið knús frá Hönnu Sól ef hún hefði verið hér. Heart

IMG_6947

Svo ég tali nú ekki um litla grallarann. Heart

Eigðu frábæran dag elsku stubburinn minn. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með Úlfinn þinn.Hann er fallegur strákur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 12:22

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með fallega og góða strákinn ykkar, kær kveðja til hans

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2010 kl. 12:45

3 Smámynd: JEG

Til hamingju með þennan flott strák :)

JEG, 8.3.2010 kl. 13:19

4 identicon

Til hamingju með þennan yndislega dreng ykkar.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 14:03

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk innilega allar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2010 kl. 14:11

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Innilega til hamingju með strákinn."Stubburinn" er að verða stór ungur maður, þegar ég var á hans aldri hefði mér verið meinilla við að vera kallaður stubbur, mamma hefði mátt það svona okkar á milli en EKKI opinberlega.  Börnin stækka og því miður breytist margt sem maður taldi og telur sjálfsagt en það er eitt sem breytist ekki maður elskar alltaf börnin sín og sem betur fer endurgjalda þau það og það er nokkuð sem lifir með manni alla tíð.  Ekki þekki ég Úlf en þar virðist vera mikill sómapiltur á ferðinni og og gæfumaður, óska ég honum til hamingju með daginn og vil ég óska honum gæfu og gengis í framtíðinni.  Hann hefur notið þeirra forréttinda að vera með ykkur Ella og Brandi í kúlunni og hann kemur til með að búa að því alla ævi, því ekkert er barni mikilvægara en ást og öryggi.

Jóhann Elíasson, 8.3.2010 kl. 16:05

7 identicon

Til hamingju með þennan fallega ljúfa dreng.Mér sýnist hann vera lifandi eftirmynd föður síns.Og heppinn er hann að fá að vera og eiga heima í kúlunni,hjá ömmu og afa.

Margret (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 16:44

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Innilegar hamingjuóskir með Úlfinn þinn kæra Ásthildur

Sigrún Jónsdóttir, 8.3.2010 kl. 16:59

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Innilega til hamingju með þennan myndar táning,löglegt að kalla þau það frá 13.   

Helga Kristjánsdóttir, 8.3.2010 kl. 18:01

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elskuleg, til hamingju með Úlfinn, hann er svo fallegur þessi strákur og það býr mikið í honum, augun hans segja mér það og svo margt annað.
Yndislegar myndir.
Orku og gleði sendi ég

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2010 kl. 18:13

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Hjartanlega til hamingju, mikið er þessi myndasería skemmtilega sett saman

Jóhanna Magnúsdóttir, 8.3.2010 kl. 19:14

12 Smámynd: Kidda

Innilegar hamingjuóskir Úlfur með daginn í dag

Amma og afi fá líka hamingjuóskir með afmælisbarnið sitt.

Knús í afmæliskúluna

Kidda, 8.3.2010 kl. 19:34

13 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Til hamingju með afmælið Úlfur, og þið hin líka.

Kveðjur

Þ

Þórdís Einarsdóttir, 8.3.2010 kl. 19:38

14 identicon

Til hamingju með flottan strák og skilaðu kveðju til hans . Hann er augsýnilega stolt ömmu og ekki að ástæðulausu. Þið hafið örugglega öll verið heppin þegar honum var valinn staður. Fallega uppsett hjá þér sagan hans í myndum.

Dísa (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 20:30

15 Smámynd: Katrín

Innilegar hamingjuóskir með prinsinn....skilaðu góðri kveðju!

Katrín, 8.3.2010 kl. 20:54

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn Úlfur og Amma. Flott myndasería af Úlfinum

Hrönn Sigurðardóttir, 8.3.2010 kl. 21:14

17 identicon

Innilegar haminguóskir með afmælið Úlfur!  Og hamingjuóskir til afa og ömmu með þennan flotta strák.  Mér líst vel á kokkamennskuna hans.  Efnilegt að ná í svona sambýling þegar þar að kemur.  

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 21:20

18 Smámynd: Anna Lilja

Svo hrikalega fallegt barn og flottur strákur í dag líka

Anna Lilja, 8.3.2010 kl. 21:51

19 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Innilegar hamingjuóskir til hans Úlfs. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.3.2010 kl. 22:02

20 identicon

Innilegar hamingjuóskir með þennan flotta og klára strák sem þið hafið að láni til að hlú að og byggja upp. Hann er lánsamur drengur að eiga góða að eins og ykkur.

Bestu kveðjur í Kúlu

kveðja Erna Stef.

Erna Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2010 kl. 00:04

21 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með þennan fallega góða dreng mín kæra

Jónína Dúadóttir, 9.3.2010 kl. 07:13

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll.  Hann er voða glaður með allar þessar kveðjur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2010 kl. 09:45

23 identicon

Frábær myndasaga af glæsilegum ungum manni. Innilegar hamingjuóskir til ykkar allra í kúluhúsinu.

Ásta Einarsdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2010 kl. 10:18

24 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Til hamingju með ömmustrákinn þinn.  Það má sjá að þar fer efnilegur ungur maður.  Ég óska honum og ykkur öllum alls hins besta í framtíðinni.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 10.3.2010 kl. 11:35

25 identicon

Þetta er afskaplega fallegt hjá þér. Tárin láku niður kinnarnar. Innilegar hamingjuóskir með drenginn, hann er greinilega heppinn að eiga ykkur að og þið hann.

Lilja ókunnug (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 19:55

26 Smámynd:

Hjartanlega til hamingju með Úlfinn þinn.   Yndislegur drengur.

, 11.3.2010 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband