Ég sendi bréf.

Ég og nokkrir fleiri hafa sent Imf eftirfarandi bréf.

http://www.imf.org/external/np/exr/contacts/contacts.aspx

Dear sirs

I, the undersigned citizen of Iceland request that you do not submit the IMF loan to the government of Iceland until it has been investigated who is responsible for the economic collpase of the country and until those found responsible have been removed from all authoritative positions

Warm regards,
Ásthildur Cesil Þórðardóttir. 


 Ég sendi það á publicaffairs@imf.org.  Ég hvet alla að senda svona bréf.  Réttlætið þarf fram að ganga með góðu eða illu. 

P.S 0nnur útgáfa.


publicaffairs@imf.org



Dear Governors of the IMF board

I, nafn, a citizen of the Republic of Iceland respectfully ask that you withhold the planned currency loan to Iceland. This is in the light of the fact that no official elected or appointed has accepted responsibility for the economic crash of our countries banking system. Despite the allegations that multible government agencies failed to or neglected and even ignored the clear signs of what was coming.

I feel that those responsible need to be removed from their offices before they are in position to receive billions of dollars of currency. It is unacceptable that those who are responsible are in a position to squander more of the public's currency. A major reform in the economic and political structure is needed to prevent that corrupted elements in the those structures can receive that amount of money. That is in the light of the total lack of failure of those officials to take action to prevent this crash. They need to step down and more capable individuals to take charge.

Your assistance is much appreciated.

Signed,
Nafn


Eftir einn ei aki neinn - áminning í byrjun jólaskemmtana.

Mér barst þessi frásögn frá vinkonu minni Dísu.  Sagan á vel við núna þegar jólaglögginn fara að byrja og allskonar vinnustaðaskemmtanir, ef einhverjar verða í ár það er að segja.  En hér kemur hún.  Hún heitir; Eftir einn ei aki neinn:

 Varúð, þetta er þriggja klúta saga. Smile

Eftir einn ei aki neinn.

Saga úr lífinu.

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa

gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

 

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði ; Þetta

á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga

staði.

 

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju

árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað

svo eftir jólin.

Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða

verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr

leikföng.

Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára,

Sem hélt ádúkku upp við brjóstið sitt.

 

Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.

Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina

á honum; amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?

Gamla konan svaraði; þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan

mín'.  Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði

sig um.

Hún fór fljótlega.

 

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til

hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. “Þetta er

dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.

Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana”.

 

Ég sagði honum að kannski ætti jólasveinninn eftir að koma með

dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur.

En hann sagði við mig sorgmæddur “Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar

sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni

hana þegar hún fer þangað”. Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann

sagði þetta.

“Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að

mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti

farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana”.

 

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og

sagði “Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni'”

Svo syndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. “Ég

vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei.

Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara,

en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni”.

 

Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög

hljóðlátur.

 

Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði

við strákinn “en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að

þú eigir nógan pening?”

 “Allt í lagi!” sagði strákurinn “ég vona að ég eigi nóg”

 

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því

og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og

meira að segja smá afgangur.

  

Litli strákurinn sagði “Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening”.

Svo leit hann á mig og sagði '”Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég

Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt

Dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín.

Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa

mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg

til að kaupa rósina líka.  Sko! mamma elskar hvíta rós”.

 

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég

kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um

litla strákinn.

 

Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan; maður ók

drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru.  Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái.  Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að

unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.

 

Var þetta fjölskylda litla stráksins?

  

Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að

Unga konan hefði dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og

keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð

konuna og kvatt hana í seinasta skipti áður en hún yrði jörðuð.

 

Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni

af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

 

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar.

Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn

þann dag í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður

þetta allt frá honum.

angel

Eigið góðan dag elskurnar.   Og munið predikun dagsins.  Heart

 


Bílstjórinn í Belize.

Hér kemur ein saga, svona til upplyftingar.

Bílstjórinn í Belize.

Danmark 415 

Julio var leigubílstjóri.  Hann var  frekar laglegur, svartur á húð og hár,  eins og flestir Belizebúar.  En þeir eru miklu fíngerðari en aðrir svertingjar, þeir kalla sig Creola, eða blandað kyn.  Sennilega við hvíta menn. 

Julio átti leigubílinn sinn sjálfur.  Hann var glaðlegur og góður náungi. 

Núna beið hann eftir viðskiptavinum á aðalgötunni frá ferjustaðnum, og rútumiðstöðinni. Úti var steikjandi hiti og sól, svo honum var orðið heitt að sitja í bílnum.  Það var ekki aðal ferðamannatíminn svo það var ekki mikið að gera hjá honum. Julio hugsaði um kærustuna sína hana Gwendu og börnin tvö, Vicky níu ára og Hugo 12 ára.  Hann vonaði að koma ferðamanna færi að glæðast, svo hann gæti veitt þeim það sem þurfti.  

Hann sá þrjá ferðalanga koma eftir götunni, hlaðna ferðatöskum og dóti.  Hann byrjaði að veifa og kalla. Þau virtu hann ekki viðlits í fyrstu en snéru sér að einum mannanna sem sátu hinu megin við götunna og sleiktu sólina.  Voru greinilega að spyrja til vegar.  

Hann snaraðist út úr bílnum, gekk yfir götuna og bauð þeim far.  Þau héldu áfram að spyrja hinn manninn.  Ég skal skutla ykkur á hótel, sagði hann.  Þið eruð á leið inn í miður heppilegt hverfi. Þetta hreif, þau litu á hann.  Þetta var miðaldra fólk tvær konur og einn karlmaður.  Þreytuleg að sjá.  Hinn maðurinn sagði þeim að það væri hótel þarna skammt frá. 

‘Eg veit um gott hótel, sagði Julio, ég tek bara 5 Belizedollara fyrir að aka ykkur þangað.  Loks tóku þau ákvörðun, og gengu með honum að bílnum, aðallega hélt hann vegna þess að þau voru orðin þreytt. 

Hann ók þeim til Dhalíu, hún var af kínverskum ættum og var með ódýr herbergi til leigu.  Maðurinn og önnur konan fóru upp að skoða herbergið, hin konan stóð úti fyrir hikandi.  Hann brosti gekk að bílnum og læsti honum, allt í lagi ég kem með ykkur, sagði hann, eins og hann vissi hvað hún var að hugsa.  Um leið og þau gengu upp stigan kom feitur ameríkani niður stigann þurrkaði sér um ennið með klúti, og sagði að herbergið sitt væri vatnslaust.  Ekki leist fólkinu á þessar aðstæður, þau fussuðu og sveiuðu.  Honum skyldist á atferli þeirra og hrognamáli að þau væru hneyksluð á að þeim skyldi boðið upp á annað eins. 

Allt í lagi sagði hann ég er með annað í huga.  Sem er miklu skárra.  Þetta er ekki í góðu hverfi heldur.  Hann ók þeim á gistiheimili sem hjón frá Pakistan áttu.  Það var í svolítið skárra umhverfi, og hreint og þrifalegt.  En ekki leist þeim heldur á þetta, of lítið og borulegt sögðu þau og hristu höfuðið.Já ekki nógu gott sagði Julio, þarna sat líka Írani, alltaf vesen með þá.   

‘Eg skal bara fara með ykkur á gott hótel sagði hann þá.  Julio var farin að gera sér grein fyrir að þau voru ekki að spá í kostnaðinn heldur gæðin. Kannski vissi hann það allan tímann, en menn þurfa nú að hafa ofan af fyrir sér.  Þau fóru á snyrtilegt hótel, en þar var því miður allt upppantað.  Lokst ók hann þeim niður að ströndinni, þar sem aðal hótelin stóðu og túristasvæðið.   

Hann spurði glaðlega hvaðan þau væru ,og fékk að vita að fólkið var frá Íslandi.  Hann hafði aldrei heyrt á það minnst.  Og skrýtið var málið sem þau töluðu.  Lokst nam hann staðar fyrir framan The Great house.  Mjög fallegt hús byggt af plantekrueiganda í byrjun fyrri aldar.  Sannarlega flott hús, þriggja hæða með timburstigum utan á liggjandi eins og þessi tegund húsa er.  Jú þarna var herbergi laust, þau fengu að skoða það, Julio fór með þeim, hann var forvitinn og fannst mikið til um glæsileikann þarna hló mikið og skellti sér á lær.  Hann fór meira að segja fram úr þeim og rauk inn á glæsilegt baðið, þau brostu að því hve ákafur hann var.  Jú þau ákváðu að taka herbergið.  Þetta var mjög stórt og flott herbergi með tveimur gríðarstórum rúmum (Kingsize).  Og baðherbergið stóra og fína þar inn af. Því næst sóttu þau farangurinn sinn í bílinn hans.

Þetta kostar 15 Belizedollara, sagði hann, af því ég stoppaði þrisvar.  Hann sá að maðurinn ætlaði að fara að æsa sig, en önnur konan, sennilega eiginkonan greip í handlegg hans og stoppaði hann af.  Hann brosti með sjálfum sér, konurnar voru alltaf friðamari.  Danmark 417 

Viltu koma á morgun og sækja okkur kl. hálf níu sögðu þau.  Við þurfum að komast út á rútubílastöð.  Hann hélt það nú.   Hann vann stutt þennan daginn, þegar hann kom heim sagði hann kærustunni að hann hefði hitt skemmtilegt fólk og ekið þeim um.  Og ætti að sækja þau aftur í fyrramálið.  Þau eru fra Íslandi tilkynnti hann.  Íslendingar hrópaði konan, þá hef ég eldrei séð!!!Allt í lagi góða mín, þú mátt bara koma með á morgunn og þá hittirðu þau.   Gaman gaman, sagði hún hrifin.   

Hann varð einni mínútu of seinn.  Og marg baðst afsökunar, kynnti kærustuna sína, og þau heilsuðu henni með virktum.  Þessi seinkun er algjörlega stjórnvöldum að kenna, það eru að koma kosningar og þeir hafa svikið öll loforð um vega bætur í borginni, sagði hann.  Þeir gera hverja vitleysuna á fætur annari, og það þarf að koma þeim frá.  Ég stóð í langri biðröð þegar kosið var  seinast, og það gekk svo hægt að ég hætti við að kjósa.  Eg nenni ekki að standa í biðröðum.  Veit ekki alveg hvað ég geri núna.  Svo mikið fyrir lýðræðið hugsuðu ferðalangarnir. 

Þegar á stöðina kom, hljóp hann út úr bílnum og fór inn að athuga málið hvort ekki væri allt í lagi með rútuna og stjanaði við þessa gesti sína, önnur konan stakk 5Belizedollurum í lófa hans.  Lokst kvaddi hann þau öll með handabandi og mjög innilega.  Ég þarf að fara núna sagði hann brosandi út að eyrum, ég ætla nefnilega að bjóða kærustunni minn út í morgunmat.  Og þar með var hinn glaðlegi og góði Julio rokinn á fína leigubílnum sínum, með brosandi hamingjusama kærustu. 

Danmark 419

Hver á sér fegra föðurland.

Hvað kváðu skáldin okkar hér áður og fyrr.  Er ekki bara gott að fá smá föðurlandspepp? 

Hver á sér fegra föðurland,

með fjöll og dal og bláan sand,

með norðurljósabjarmaband

og björk og lind í hlíð,

með friðsæl býli, ljós og ljóð,

svo langt frá heimsins vígaslóð ?

Geym, drottinn, okkar dýra land,

er duna jarðarstríð.

 

Hver á sér meðal þjóða þjóð,

er þekkir hvorki sverð né blóð,

og lifir sæl við ást og óð

og auð, sem friðsæld gaf ?

Við heita brunna, hreinan blæ

og hátign jökla bláan sæ

hún unir grandvör, farsæl, fróð

og frjáls - við yzta haf.  (Svo yrkir Hulda.)

IMG_3665

Syng frjálsa land, þinn frelsissöng.

Syng, fagra land, þinn brag

um gæfusumur, ljós og löng,

um laufga stofna, skógargöng

og bættan barna hag. (Hulda)

IMG_3661

Lands míns föður, landið mitt,

laugað bláum straumi;

Elíft vakir auglit þitt

ofar tímans glaumi.

Þetta auglit elskum vér,

- ævi vor á jörðu hér

brot af þínu bergi er,

blik af þínum draumi.

 

Nú skal söngur hjartahlýr

hljóma af þúsund munnum,

þegar frelsisþeyrinn dýr

þýtur í fjalli og runnum.

 

Nú skal göfug friðartíð

fánan hefja ár og síð,

varpa nýjum ljóma á lýð

landsins, sem vér unnum.  (Jóhannes úr Kötlum).

 IMG_3660°

Sjá hin ungborna tíð vekur storma og stríð,

leggur stórhuga dóminn á feðranna verk,

heimtar kotunum rétt og hin kúgaða stétt

hristir klafann og sér hún er voldug og sterk. (Einar Ben.)

IMG_3663

Látum af hárri heiðarbrún

ljóshraða svífa sjón

sviptigið yfir frón.

 

Blessaða land, á brjóstum þér

þiggjum vér þrót og líf,

þægindi skjól og hlíf.

 

Hvað er svo frítt sem faldur þinn,

heiðskærum himni mót

hlæjandi jökulsnót ?

 

Drjúpi þér náð af himinhæð,

glitblóma gullintár

gráti þér friðsælt ár.  (Matthías Jochumson) 

 IMG_3664

Táp og fjör og frískir menn

finnast hér á landi enn,

þéttir á velli' og þéttir í lund,

þrautgóðir á raunastund.

Djúp og blá

blíðum hjá

brosa drósum hvarmaljós.

Norðurstranda stuðlaberg

stendur enn á gömlum merg.

 

Aldnar róma raddir þar.

Reika svipir fornaldar

hljótt um láð og svalan sæ.

Sefur hetja'á hverjum bæ.

Því er úr

doðadúr,

drengir, mál að hrífa sál.

feðra vorra' og feta' í spor

fyrr en lífs er gengið vor.(Grímur Thomsen) 

 

Fósturlandsins Freyja,

fagra vanadís

móðir kona meyja,

meðtak lof og prís.

Blessað sé þitt blíða,

bros og gullið tár,

þú ert lands og lýða,

ljós í þúsund ár.

Mitt framlag inn í þennan dag elskurnar. Heart Sögusviðið hinn frábæri kröftugi Súgandafjörður.


Mér sýnist......

Mál vera að þróast á þann veg, að það verði tveir flokkar í næstu kosningum.  Það verður ESBaðildarflokkur og ekki ESBaðildarflokkur.  Við erum í raun og veru að klofna upp í tvær fylkingar, og þessar fylkingar eru að verða ljósari eftir því sem tíminn líður.

Ég hef ekki skipt mér af þessari ESBumræðu, og viljað vera hlutlaus.  En eftir því sem krafan vex um ESBaðild því ákveðnari er ég í því að vilja EKKI ganga í þetta samband.

Ég sé að málin eru að þróast þannig að annað hvort ertu með eða á móti ESB.  En ég vil samt ekki flokka mig með Geir Haarde og spillingaröflunum í Sjálfstæðisflokknum. Ég vil einfaldlega ekki fara úr einu einræðinu í annað. 

Það má svo sem mín vegna kanna aðild, og sjá hvað er í stöðunni, en ég er ansi hrædd um að inn í þeim pakka séu óásættanleg atriði um sjálfstæði þjóðar sem ekki er hægt að sætta sig við.

Ég vona því að þessi umræða fari fram, en á heilbrigðum grundvelli, sem mér sýnist að ætli ekki að vera, þar sem ÖLLU er nú tjaldað til af júrósinnum, að mæla með aðild, troða því ofan í kokið á okkur að ekkert annað sé í stöðunni.

Málið er að fólk eins og Ingibjörg Sólrún hefur ekkert skynbragð á til dæmis sjávarútvegsmál, hún er dæmigert borgarbarn sem hefur í raun og veru engan skilning á málefnum dreyfbýlisins.  Ekki frekar en borgarbarnið Geir H. Haarde.  Þeim þykir því léttvægt hvað gerist með fiskimiðinn okkar og aðrar náttúruaulindir, þó þau lendi í höndum útlendinga.  Þau halda eins og svo margir borgarbúar að peningar verði til í Kringlum og Smáralindum.  Eða jafnvel álverum.  Þau hafa engan sans fyrir því hvar peningarnir verða til, eða hvað gerist ef landsbyggðin leggst af.  Þetta er hættulegt sjónarmið, og því miður eru margir af landsbyggðinni sem láta glepjast af þeirra sýn. 

Ég er sennilega einhverskonar þjóðernissinni.  Og dreyfbýlistútta og er stolt af því.  En ég hef ákveðið að setja niður hælana og vinna gegn ESBaðild. Það eru skiptar skoðanir í mínum flokki um þá aðild, en flestir eru sama sinnis og ég hvað það varðar, sérstaklega vegna áhyggna af stöðu sjávarútvegs, en flokkurinn er fyrst og fremst stofnaður utan um réttinn til nytja á auðlindum sjávar. Þó margt annað sé þar innanborðs.

Ég tel að ESB þjóni ekki okkar hagsmunum.  Við erum vel sett með okkar auðlindir, við erum vel staðsett milli tveggja stórra hagsmunaaðila, og getum hallað okkur sitt á hvað, og notið þess besta frá báðum.  Ef við höldum rétt á spilum.

Það sem ég hef heyrt á fólki hér um hvers vegna það vill inn í ESB, er fyrst og fremst til að koma spilltum stjórnmálamönnum frá völdum.  'Eg segi, það bara dugir ekki til, við þurfum að koma þeim frá, og svo má skoða málið. 

Þess vegna finnst mér svo mikilvægt það sem er að gerast núna, með friðsamlegum mótmælum á Austurvelli og borgarafundum, hræringar sem munu skila okkur áleiðis í að losna við spillinguna, þó það taki tíma.  Þegar við höfum náð þem árangri að koma því liði burt, þá mun líka hverfa, að margra mati ástæðan til að koma sér inn í aðra spillingu og ánauð, sem er þátttaka í apparatinu ESB. 

Við höfum þá framtíðarsýn að vera sjálfstæð þroskuð þjóð, sem getur í krafi auðlinda sinna, hvort sem það eru náttúruauðlindir, eða sú auðlind sem flest í mannauði landsins að geta verið sjálfum okkur næg.  Við þurfum ekki að vera flottust, ríkust, hamingjusömust eða mest áberandi af öllum.  við þurfum að vera stolt af því sem við höfum, þakka fyrir það sem við eigum, láta okkur nægja það sem er, og það er ekki svo lítið.  Þá getum við svo vel unað við okkar án þess að þurfa að vera hluti af risastóru batteríi, þar sem við myndum vera pínulítil peð, og þurfa að lúta öllu sem þar verður samþykkt.  Er ekki betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn, en að vera lítið skítseiði í stórri tjörn.

OG ég get sagt ykkur sem dreyfbýlistútta að JÚ... það er svo miklu miklu betra.  Heart


Ef til vill bara byrjunin.

Þá er nokkuð ljóst hvernig landið liggur í Framsókn.  Þetta segir Bjarni Harðar:

Til hamingju Valgerður!

Til hamingju Valgerður Sverrisdóttir með að vera orðinn formaður Framsóknarflokksins.

Ég get aftur á móti ekki óskað Framsóknarflokknum til hamingju með þessa breytingu. Vísir hafði eftir mér að ég hefði neitað að segja mig úr flokknum. Það er rétt, ég taldi ekki rétt að gera það í samtali við blaðamann Vísis og mun bíða átekta um sinn. En líkurnar á að það takist að endurreisa flokkinn þannig að Framsóknarflokkurinn verði fyrir framsóknarmenn, þær líkur eru minni en áður eftir atburði dagsins.

Líklega er það rétt hjá Guðna að eftirláta flokkinn því fólki sem hefur nú um langt skeið beitt öllum meðulum til að ná þar völdum. Leyfa þeim sem eyðilagt hafa flokksstarfið allt þetta kjörtímabil að spreyta sig. Kannski rís flokkurinn í höndum þessa fólks þegar við framsóknarmennirnir erum farnir.

Við Guðni ræddum þessa ákvörðun í gærkvöldi og ég studdi hann heilshugar í því sem hann er að gera. Ekki vegna þess að mér hugnaðist þessi lending, heldur vegna þess að ég tel að þær aðstæður sem honum voru skapaðar í flokknum hafi verið utan þess sem hægt sé að leggja á nokkurn mann.

Ég get alveg skilið þessa afstöðu. Þetta er eins og þegar Matthías Bjarnason sagði skilið við Sjálfstæðisflokkinn, og sagði að hann hefði ekki yfirgefið flokkinn heldur flokkurinn yfirgefið sig.
Sama er hér, Framsóknarflokkurinn hefur yfirgefið Guðna.  Ég óska honum velfarnaðar, ég held ekki að hann sé hættur í pólitík, heldur trúi ég frekar að hann vilji þreyfa fyrir sér með nýju fólki. 

Ég segi eins og fleiri, hefði viljað heyra aðrar uppsagnir, þ.e. stjórnarforystuna og bankastjóra plús fjármálaeftirlit, en það kemur vísast fljótlega héðan af.  


En ekki hvað ?

Hvurslags frétt er þetta eiginlega ?  Með fullri virðingu fyrir slökkviliðsmönnum og sjúkraflutningamönnum.   Sem betur fer segi ég nú bara njóta þeir trausts almennings.  En bjóst einhver við öðru ?  Eða er þessu slegið upp af því að vantraustið er algjört á stjórnmálamenn, og þá aðallega stjórnarliða, sem hafa mest verið í sviðsljósinu undanfarið ?  Er þetta ein af smjörklípunum til að dreyfa því sem er að gerast.   Auðvitað er það áhyggjuefni að fólk skuli ekki treysta því fólki sem kjörið hefur veirð til að stjórna landinu.  En er samt ekki dálítið langsótt að fara alla leið í slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn til að fá mótvægi.  Hver ætti að vantreysta þeim sjálfboðavinnumönnum sem hafa gert það að aukastarfi að slökkva í brennandi húsum, nú eða þá því fólki sem kemur og sækir okkur ef við dettum niður, eða veikjumst skyndilega. 

Þetta er ein af þeim ekki fréttum, sem niðurstaðan er vituð fyrirfram.  Hvers vegna þá að hafa skoðanakönnun um það?  Jú það þarf að dreyfa huganum frá ísköldum raunveruleika, og finna einhverja jákvæða punkta.  Svo sem gott út af fyrir sig.  En óneitanlega skondið. 

Þetta er eins og þegar verið er að skoða gjörðir stjórnaliða, og stuðningsmenn þeirra eru spurðir álits á þeim gjörðum.   Það er fyrirfram vitað hver svörin verða.  En samt þarf að fá ákveðna niðurstöðu, og þá er gripið til þess ráðs að spyrja þá sem gefa þá niðurstöðu sem óskað er eftir.  Þetta er ekki fréttamennska, þetta er lævís skoðanakúgun.  Og hana nú.


mbl.is Yfir 96% segjast treysta slökkviliðsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smálítil krúttfærsla fyrir nóttina.

Jamm litla skottið mitt er eilíf uppspretta gleði og ánægju. Í kvöld ákvað hún að skreppa út.

IMG_3614

Komin í náttkjól stóru systur, og nú er best að fara í skóna hans Úlfs.

IMG_3619

Ekki verra að hafa hjálm, ef eitthvað kynni að detta ofan á hausinn á manni sko!

IMG_3620

Jamm best að festa hann vel og vendilega.

IMG_3621

Amma ég þarf úlpu takk!

IMG_3622

Já þá er ég klár í slaginn.

IMG_3624

Kominn út í garðskála, þetta lítur vel út.

IMG_3625

Maður þarf nú að spá í tilveruna og svoleiðis.

IMG_3627

Komin með nesti, þá er hægt að halda áfram.

IMG_3628

Vel búin eins og sjá má.

IMG_3629

Jamm veðrið er nú ekki alveg það ákjósanlegasta.

IMG_3631

Ætli maður komi sér ekki bara inn í hlýjuna aftur!

IMG_3635

Amma ég er komin inn aftur!!!

IMG_3636

Viltu hjálpa mér úr sokknum/vettlingnum!

IMG_3640

Skál afi, ég er komin heim aftur.  Týnda dóttirin snýr heim aftur.

IMG_3645

Góður hryggur hjá ömmu InLoveIMG_3648

Já við segjum skál!

IMG_3654

Nammi namm, mér er sama hvað þið segir, það er gott að borða kjöt. 

IMG_3655

Aha þið bannið mér alltaf að éta svona beint af fatinu, en svo leyfið þið manneskjukettlingnum að borða þannig.

IMG_3657

Að naga bein eins og amma sín LoL

Góða nótt elskurnar. 


Smáhugleiðing, spilamennska og Karlakórinn Ernir á góðri stundu.

Mér líður hálfeinkennilega þessa daga.  Ég er áhyggjufull og reið, en líka er einhver ákveðin ánægjutilfinning, hún á rætur sínar að rekja til mótmælanna.  Mér líður vel með fundinn sem ég fór á, og fundinn sem ég horfði á í sjónvarpinu, aðdáun mín er mikil á því fólki sem ber hita og þunga af þessu öllu saman, sem leggur á sig að semja tilfinningaþrungnar ræður, og flyta þær með þvílíkum sóma, á Herði Torfa, sem er einn af þeim fáu íslendingum sem er algjörlega sjálfs sín herra, hefur alla tíð staðið af sér allar tilraunir til að vera einhverjum háður.  Það þarf einhvern slíkan til að halda utan um þetta allt saman.  Og Hörður hefur gert það með þvílíkum sóma að eftir verður tekið. 

Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, hvort upp úr þessu verður stofnuð stjórnmálahreyfing, þá vona ég bara að það fari ekki fyrir því eins og Íslandshreyfingunni, þar sem safnaðist saman einstaklingar sem höfðu fyrst og fremst eigin frama að leiðarljósi.  Hún endaði svo í 2% fylgi.  Það kostar mikla vinnu að stofna stjórnmálaflokk.  En vonandi breytist þjóðfélagið okkar eftir þennan skell, og hér komi til meira réttlæti, meiri jöfnuður og betra samfélag.  Spilltir stjórnmálamenn, embættismenn og atvinnurekendur fái pokann sinn.  Og við sjáum fram á nýja daga, með réttlæti, firði og góðæri í stað gróðæris. Samfélag, þar sem fólki skilur að það er öllum betra að eiga nóg en ekki of mikið.  Að náttúra landsins er auðlind sem er óbætanleg.  Að fiskimiðinn okkar eru sameign þjóðarinnar, og tækifæri fólksins í dreyfðum byggðum til að hafa ofan í sig og á.  Að nafnli alheimsins er ekki stórborg, sem sogar allt til sín.  Heldur er betra fyrir sálarlífið að búa á smærri stöðum, vera stórir fiskar í litlum tjörnum, en ekki litlir fiskar í stórri. 

Ég er sammála því að við þurfum að breyta hugsunarhætti fólksins.  Það er svo lengi búið að segja okkur að svart sé hvítt og hvítt sé svart, að við vitum ekki lengur hverju við eigum að trúa.  Þeirri lygi þarf að ljúka hér og nú.  Þess vegna er mikilvægt að það fólk sem nú situr sem fastast á valdastóli skilji það sem við erum að reyna að segja þeim.  Við viljum að þeir hverfi brott, og nýtt fólk með nýjar hugsanir setjist þar í þeirra stað.  En við skulum líka muna að lýðræðið er einungis virkt, ef við pössum upp á það.  Tökum þátt, og látum stjórnendur vita og finna að við líðum ekki lygi og ótrúverðugleika.  Lýðræðið kostar, það kostar fyrirhöfnina að taka þátt í samfélaginu.  Sú þátttaka er ekki trúarbrögð, heldur eftirlit með þeim sem við veljum okkur til forsvars.  Því vissulega er vald vandmeðfarið, og auðvelt að misstíga sig ef aðhalds er ekki gætt.  Látum þetta okkur að kenningu verða. Því vissulega ber fólkið í landinu þá ábyrgð að hafa kosið yfir sig sama fólkið ár eftir ár, án þess að það hafi gefið minnstu ástæðu til að treysta því.  Við verðum að fylgjast með, og refsa eða umbuna, ef við virkilega viljum lýðræði. 

En þetta er búið að vera notalegur sunnudagur, afi er farin í sund með stærri börnin, en sú litla skottan mér er hjá ömmu sinni. 

IMG_3610

Hanna Sól og afi spiluðu Veiðimann.

IMG_3612

Það finnst Hönnu Sól gaman.

IMG_3553

Þetta er nýjasta listaverkið hans Júlla, steinnál.

IMG_3555

Ef til vill hægt að sauma sláturkepp með henni þessari.

IMG_3559

en við hjónin fórum á skemmtikvöld með Karlakórnum Erni á föstudaginn.  Það var mjög skemmtilegt, það var myndakvöld frá Ungverjalandsferðinni.  Og auðvitað var boðið upp á ungverska gúllassúpu.

IMG_3563

Hér er kokkurinn, hann er líka kórfélagi.

IMG_3564

Það mættu langflestir félagar kórsins ásamt betri helmingum.

IMG_3572

Og gúllassúpan bragðaðist afar vel.

IMG_3575

Og ánægjan lýsti sér af andlitum kórfélaganna.

IMG_3578

Kórfélagar skemmtu okkur svo.

IMG_3582

Mugipapa var veislustjóri og hann tók líka lagið. 

IMG_3592

Hjónin í Botni létu ekki sitt eftir liggja.

IMG_3597

Og enn var tekið lagið.

IMG_3601

Og það var sungið..... af innlifun.

IMG_3603

Og svo söng allur hópurinn saman.

IMG_3605

Og við dáðumst auðvitað af.

IMG_3608

Já þetta var skemmtilegt kvöld, þið eruð flottastir. 

Takk fyrir skemmtilegt kvöld.   


Frábær fundur, takk kæru íslendingar, samlandar mínir er er stolt af ykkur.

Takk stöð2 fyrir að leyfa mér að fylgjast með fundinum.  Ég er ánægð með að fá að heyra ræðurnar og taka þátt í stemningunni á Austurvelli.  Og Hörður Torfa er flottur.  Ég er ánægð, og ég finn fyrir nýrri von um bætt og betra þjóðfélag.  Og ég sá meira að segja hvítu fánana hans Jóns Steinars blakta framan við myndavélarnar. 

Gott gott gott og takk fyrir rmig. Heart


mbl.is Friður og blóm á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2008
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband