Sjáumst!!!

Áður en ég fer inn í Reykjanes ætla ég að sýna ykkur nokkrar myndir sem voru teknar í gær og í morgun.

IMG_5424

Það var mugga í gær, og ekki flogið fyrr en seint og um síðir.  En flogið þó.

IMG_5425

En það er mjúk fönn yfir öllu, og mjúkt veður líka.

IMG_5427

Koddinn minn teppið mitt segir þessi litla hnáta og meinar það Heart

IMG_5428

Svona áður en maður fer að klæða sig og borða morgunmatinn er gott að sitja aðeins fyrir framan sjónvarpið og vakna.

IMG_5429

Hún púslaði þessu saman alveg sjálf, þó stendur +3 á kassanum, og hún rétt tveggja ára.  Duglega stelpan hennar ömmu sín. Heart

IMG_5430

Tekinn í morgun, þetta eru bílljósin.

IMG_5431

Rómó selja.

IMG_5434

Á vinnustaðnum mínum fengum við svo óvæntan konsert, hér er hann Hjalti að spila fyrir okkur.

IMG_5436

Þeir tóku nefnilega lagið fyrir okkur hafnarkarlarnir Hjalti aðalgaur og Mugipapa hafnarstjóri, hressilegt áhaldahúsablues LoL

IMG_5438

Já þeir eru sko flottir saman.

IMG_5442

En veðrið er fallegt til ferðalags.

IMG_5444

Og sólin merlar á fjallatoppun, og nú bankar hún á mínar dyr í þessum skrifuðu orðum.

IMG_5445

Yndislegt, sól úti og sól í sinni.  En nú verð ég að fara að pakka niður og koma mér í gírinn.  Hafið það gott á meðan, heyri í ykkur á sunnudaginn. Ekki gleyma mér elskurnar mínar, þið erum mér mjög mikilvæg. Heart

 


Ráðherra fer á þorrablót.

Ertu hætt að blogga spurði kona mig í gær Smile Nei sagði ég en ég er búin að vera lasin og orkulaus í nokkra daga.  Þótti samt vænt um að hún skyldi sakna mín, þar sem þessi kona er ekki bloggari, heldur ósköp venjuleg yndæl kona hér á Ísafirði. 

En ég fæ stundum svona leiðinda svima yfir höfuðið, og þá get ég ekki einbeitt mér mikið.  Sem betur fer er ég að lagasta, eins gott, þar sem ég ætla mér í skemmtiferð með félögum mannsins míns í Kajakklúbbnum Sæfara, inn í Reykjanes yfir helgina.  Ég tek öll börnin með og hlakka til.  'Eg mun auðvitað taka myndavélina með, svo þið fáið aðeins að skreppa með mér elskuleg mín í ferðina.  Ég er viss um að Djúpið er fallegt núna.  Það er virkilega fallegt veður hér á Ísafirði í dag, mun setja inn myndir í hádeginu. 

Ég var að frétta að settur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra landsins, bolvíkingurinn Einar Kristinn hafi brugðið sér á þorrablót til Bolungarvíkur á helginni.  En af því að hann er svo mikið að stússast þessa dagana, m.a. að úthluta hvalveiðikvótum og svoleiðis, þá neyddist hann til að koma á ráðherrabílnum með driver og alles Devil  Að vísu fór hann fljúgandi suður.  Spurningin er bara hvort hann fór vestur í boði okkar allra?

Það er sennilega ekki vanþörf á að setja siðareglur um stjórnmálamenn og sér í lagi ráðherra, líka eftir að þeim hefur verið hent út af borðinu og sitja nánast umboðslausir.  Ég er satt að segja dálítið undrandi á því hvað menn geta verið siðlausir, eða ætlar þessi ágæti maður ekki í framboð aftur í vor?  Ef til vill gerir hann sér grein fyrir því að krafan í dag er uppstokkun í flokkunum.  Svo það er um að gera að nýta sér það sem tiltækt er meðan hægt er...... eða þannig.

Uppstokkun í flokkunum, já þeir munu reyna.  En mér heyrist svona á almenningi að það muni ekki duga.  Ég hef heyrt í nokkrum sem tala um að umhverfinu verði ekki breytt nema með algjörlega nýju fólki, og helst fólki sem fer fram einungis til að breyta regluverkinu, og hætta svo og boða nýjar kosningar.  Þannig held ég að ég vilji hafa það.  Með fækkun þingmanna, aðskilnaði framkvæmdavalds og alþingis.  Burtu með pólitískar ráðningar og spillingu.  Þjóðfélagið er orðið svo gegnum sýrt af spillingunni að hún verður ekki rifinn upp bara með einhverri uppstokkun flokkanna.  Það þarf að rippa upp embættismannakerfið líka og fækka verulega í opinbera geiranum.  Þar eru allir nátengdir, stjórnmálamennirnir og kerfiskarlarnir og kerlingarnar.  Það þýðir líka lítið að skipta út ráðherrum, meðan ráðuneytisstjórar og lið þeirra geta dregið lappirnar og jafnvel unnið gegn ráðherranum með klækjum og hollustu við "núverandi kerfi". 

Sjálfstæðismenn eru alveg tilbúnir svellandi af reiði og hefnigirni rétt handan við hornið, og satt að segja hugnast mér ekki alveg að það skuli einmitt vera Framsóknarflokkurinn sem hefur útslitavald um það hvor armurinn stjórnar.  Það þarf ekki mikið að vindast upp á hlutina til að Framsókn sjái sér hag í að hlaupa yfir til Íhaldsins og þá verða allskonar afsakanir viðhafðar.  Það eina sem getur komið í veg fyrir slíkt er að við almenningur látum engan bilbug á okkur finna, og látum þá vita að við sættum okkur ekki við slíkt. 

Það skyldi þó aldrei verða sama hringavitleysan í landsmálunum og í Reykjavík á síðasta ári.  Af hverju í ósköpunum þarf maður endalaust að burðast með svona áhyggjur mitt ofan í efnahagsáhyggjur? 

Jú það fólk sem er með umboðið í dag hefur brugðist trausti okkar.  Við setjum þau öll undir sama hattinn, því við höfum horft upp á það að þau tryggja hvort annað.  Það er þeirra hagur að þau fái að ráða þessu og ráða hvernig þjóðfélaginu verður breytt.  Þau þurfa jú að lifa og þetta er ljúft líf svona fyrir utan nýtilkomið argaþras mótmælenda.  Guð einn veit líka hvernig krossvinavæðingu er háttað í samfélaginu.  Það eru auðvitað til heiðarlegar undantekningar, en þær bara falla ofan í sama sumppottinn og allir hinir synda í.  Það er örugglega ekki auðvelt að standa upp og segja frá, því þau eru jú meira og minna öll vinir og vinnufélagar til margra ára.

Nei gott fólk eina leiðin er, að við komum okkur saman um að veita lýðræðisaflinu krafta okkar núna, svo má hver og einn fara aftur í sitt gamla far, þegar við höfum fengið nýja stjórnarskrá, fækkað þingmönnum og ráðherrum, og komið betra skikki á kosningalöggjöfina. 

Hlustaði á frábært viðtal við Birgittu okkar Jóns í morgun, þá skeleggu baráttukonu, Hún sagði að um þessi mál gætum við öll sameinast í að standa saman um.  Og ég er algjörlega sammála henni um það. 

 


Ég er afi minn.

Svei mér þá stundum getur lífi og raunveruleikin slegið öllum leikverkum við.  Ég veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta.  Það er talað um leikfléttur, spenning, uppgjör í skáldverkum.  En þessi leikflétta og spenna er miklu meira en það, og ekki enn ljóst hvernig leikritið endar.  Við fylgjumst öll með og sýnist sitt hverjum.  Þetta er einskonar hringleikahús.... eða þannig, allt komið í hring.  Davið komin undir verndarvæng Ögmundar.  Þvílík snilld ég er alveg viss um að jafnvel Shakespeare hefði ekki dottið þvílík snilldarflétta í hug, og var þó hugur hans frjórri en flestra, þegar kom að plotti.

Þjóðin og jafnvel heimurinn erum stödd í miðju leikverki raunveruleikhússins á Íslandi.  Og enginn veit hvernig lausnin verður, þar getur allt gerst.  Ef þetta væri ekki svo dýrt verk og skaðaði svo marga, þá væri þetta sprenghlægilegt.  En ef til vill má laumast til að hlæja að þessu öllu saman, þó ekki væri nema til að létta aðeins lundina svona mitt í öllu dramanu.

Það er líka rosalega fyndið að lesa bloggið núna, allir svo meðvirkir, með eða á móti, móti eða með, hæst hafa náttúrulega stjórnmálamennirnir okkar, og pótintátar þeirra.  Þeir yfirfæra rifrildi stjórnarliða yfir á sig, og svo er hamast fram og til baka. 

Ég held svei mér þá að fólkið hafi ekkert lært, ekki verið að hlusta, eða taka tillit til okkar vesalinganna sem vorum að setja fram frómar óskir um réttlæti, frið og heiðarleika, von um nýtt Ísland. 

Það hefur allt saman týnst í brimróti og ásakana pólitíkusa fram og til baka.  Við höfum gleymst aftur um leið og búsáhöldin hljóðnuðu um stund. Og kosningabaráttan er ekki einu sinni hafinn!

En gott fólk, við skulum ekki láta þau gleyma okkur, ekki láta þau drekkja vonum okkar um nýtt Ísland.  Ekki hætta að berja potta og pönnur. 

Það sem kemur upp í huga minn núna er setningin hans Ladda hér forðum daga ÉG ER AFI MINN!


mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fögur er fjallasýnin og sólin kemur í heimsókn.

Sólin kom í heimsókn til mín í dag í fyrsta skipti síðan í nóvember.  Ég nennti ekki að baka pönnsur í dag, en geri það örugglega á morgun.

IMG_5407

Klár í leikskólann.

IMG_5408

Ef það skyldi nú rigna Happy

IMG_5409

Þessar myndir voru teknar í gær.

IMG_5411

Það er þessi blái litur.

IMG_5413

Suðureyri, það er búið að fylla upp í hluta lónsins, og nú er verið að ganga frá grunnum fyrir húsin sem þjóðverjarnir dvelja í þegar þeir koma til að veiða fisk.

IMG_5414

Ísafjörður í vetrarlitunum.

IMG_5415

Kubbinn í rómantísku umvafi.

IMG_5416

En sumsé sólin kom til mín í dag og gladdi mig.

IMG_5417

Þetta er yndisleg sjón. Ég þurfti að vísu að fara heim í morgun, ég var lasin, en þetta lífgaði vel upp hjá mér.

IMG_5420

Svona smá hugarróarmyndir handa ykkur fyrir svefninn elskurnar.

IMG_5421

Og ég segi bara góða nótt. Heart


Sjálfstæðisflokkurinn er valdakerfi.

Sjálfstæðisflokkurinn er valdakerfi.  Þetta sagði Egill Helgason í útvarpviðtali.  Ég hef svo sem lengi grunað þetta, og trúað því.  En það er auðvitað að koma berlega í ljós núna, þegar valdakerfið er fallið um sjálft sig.

Það var eftirtektarvert í Kastljósviðtali og fleiri viðtölum að Geir H. Haarde sá ekkert að því að þau þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn sætti sig ekki við að missa forsætisráherrastólinn til Samfylkingar.  Hann sagði með þvílíkum hroka að það væri ljóst að þau gætu aldrei samþykkt þetta, og þess vegna væri það augljóst að Samfylkingin hefði þarna verið að slíta samstarfinu á þeirra kostnað.

Já, ég var hugsandi yfir þessum orðum Geirs.  Hann lagði sem sagt metnað Sjálfstæðisflokksins ofar þjóðarhagsmunum.  Því það eru ekki margir dagar síðan hann varaði mjög við stjórnarkreppu í landinu.  Ef hann hefði haft snefil að áhyggjum af landi og þjóð, hefði hann með gleði stigið niður af stólnum.  En hann kaus að gera það ekki, og gaf þar með þjóð sinni fokkmerkið í beinni.

Það getur vel verið að Samfylkingin hafi vitað fullvel að Sjálfstæðismenn myndu aldrei samþykkja ráðahaginn.  En það skrifast fyrst og fremst á Sjálfstæðismenn sjálfa að geta ekki stigið niður. Þeir gáfu þar með andstæðingum sínum tækifærið upp í hendurnar.  Þetta var veikleikamerki, hroki og græðgi eru það alltaf.  Undir þessa skoðun tóku líka fleiri forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín, Bjarni Benediktsson og Sigurður Kári Kristjánsso sem ég heyrði í allavega.  Ég vona að fólk sem hefur kosið þennan flokk hingað til, vegna fagurorða og gylliboða láti nú af heimskulegum stuðningi við valdakrefi sem ekki hugsar um neitt nema sitt eigið stolt og upphefð. 

Ég hlustaði líka á Spaugstofusamtal milli Gunnar Páls Árnasonar og Sigurðar Kára, þar sem þessir ungu kappsfullu menn tókust á af krafti.  Ég segi spaugstofusamtal, því það var einmitt í anda þeirra ágætu félaga.  Þið gerðuð hitt og þið gerðuð þetta samtal.

Það sem ég hjó eftir í rifrildinu var þegar Gunnar Páll sagði að það hefði legið fyrir AÐGERÐARÁÆTLUN í október.  En kerfiskarlarnir í Sjálfstæðisflokknum hefðu DREGIÐ LAPPIRNAR OG ÞVÆLST FYRIR svo að sáralífið af þessum aðgerðum hefðu komist enn í gagnið. 

Þetta eru þær alvarlegustu ásakanir sem ég hef heyrt í málunum, síðan aðgerðirnar við bankahrunið.

Átta menn sig á hvað þetta þýðir? JÚ ÞAÐ ÞÝÐIR EINFALDLEGA AÐ MEÐAN ÍSLAND BRANN, VANN STÆRSTI FLOKKURINN AÐ ÞVÍ AÐ KOMA Í VEG FYRIR BRÁÐNAUÐSYNLEGAR AÐGERÐIR TIL BJARGAR ÞJÓÐINNI.  Og til hvers?  JÚ AÐ BJARGA EINHVERJUMM VALDAKERFISKÖLLUM ÚR SÍNUM RÖÐUM.  Ef þetta er ekki landráð, þá veit ég ekki hvað.

Þetta hefur svo sem ekki hlotið neina athygli, eða gert meira úr því, en er það ekki einmitt dæmigert fyrir gamla Ísland, það þykir sjálfsagt að valdsmenn þvælis fyrir góðum málum, láti sína kerfiskalla draga lappirnar, af því að þeirra hugmyndir voru ekki ofaná.  Og þeir þurftu að sópa undir teppið fyrir vini og vandamenn.

En ágætu blaða- og fréttamenn, ef þið ætlið að vera marktæk í Nýja Íslandi, Þá verðið þið að hysja upp um ykkur brækurnar og fara í rannsóknarblaðamennsku hvaða drulluhalar drógu lappirnar, og hverja var verið að vernda. 

Nú er ekki lengur hægt að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alræðisvald yfir fjölmiðlum.  Það verða sennilega færri drottningarviðtölin við forsvarsmenn þeirra.  Og þrýstingurinn á stjórnendur fjölmiðla minnkar.  En það virðist nú þegar vera að gerast samanber þessa frétt; http://www.dv.is/sandkorn/2009/1/26/halldor-rekinn-ut/

Ég tek fram að eflaust eru forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins besta fólk.  En þau virðast vera algjörlega siðblind enda alinn upp í anda þeirrar græðgi og hroka sem einkennt hefur flokkinn um langa hríð, eða frá því að Davíð Oddsson komst í forsvar fyrir hann með dyggum stuðningi Hannesar Hólmsteins, Kjartans Gunnarssonar og Jóns Steinars.

Nú gott fólk liggur fyrir að mynduð verður minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna, með stuðningi Framsóknar og Frjálslyndaflokksins.  Þetta hlýt ég að kalla áfangasigur mótmælenda, íslenskrar alþýðu sem geystist fram með skýr skilaboð til stjórnvalda.  Það tók langan tíma að ná eyrum ráðamanna, lengi vel var eins og þau væru með eyrnatapppa, en loks brast stíflan og þá var ekki aftur snúið.  Það er því vel að óska íslenskum almenningi til hamingju með að hafa gert þá hugarfarsbreytingu meðal þjóðarinnar að ekkert verður eins og áður.  En sú saga endar ekki hér.  Nei við verðum að halda ráðamönnum við efnið.  Vera á verði ef við sjáum spillingarmerkin aftur.  Vald spillir, þess vegna ætti að vera tímamörk á bæði hve lengi stjórnmálamenn mega sitja á þingi og vera ráðherrar. 

Ég vil líka þakka Herði Torfa og öllu hans frábæra fólki fyrir þeirra framlag að ýta okkur framúr tímarúmi doðans út á göturnar með potta og pönnur.  Ég geri ráð fyrir að slagkrafturinn minnki í mótmælendum í aðdraganda kosninganna.  En við skulum samt sem áður láta vita af okkur og að við fylgjumst með.  Og ég tel líka nauðsynlegt að halda áfram með undirskriftirnar og átakið Nýtt Ísland, það er framtíðin.  Við lifum núna í núinu og því sem þarf að bjarga hér og nú.

Ég vil óska þessari ríkisstjórn alls góðs og vona að þau taki á brýnum málum, vil þó taka fram að ESB umræðan á ekkert erindi inn í þá pollíu.  Hana ber að geyma fram yfir næstu kosningar.  Verkefnin eru ærin þó orkunni sé ekki beint í allar áttir. 


Krúttfærsla undir svefninn.

Smá krúttfærsla svona fyrir svefninn.

IMG_5329

Litla stubban mín varð 2ja ára á föstudaginn.

IMG_5330

Ekkert skrýtið að hún skyldi bjóða upp á dans, því hún elskar að dansa og syngja.

IMG_5331

Og svo fékk hún í fyrsta skipti að vera umsjónarmaður.

IMG_5333

hún fékk líka flotta kórónu eins og prinsessu hæfir.

IMG_5334

Svo voða sæt og fín.

IMG_5336

Hér sýnir hún afa dýrin í leikskólanum sínum.

IMG_5338

Úlli búlli bí búin að koma sér vel fyrir.

IMG_5339

En Sóley Ebbu finnst betra að vera í tölvunni.

IMG_5342

Svo er voða gaman að leika sér í ömmu holu.

IMG_5343

Það er samt ekki gott að hoppa í rúminu  því dýnan gefur ekkert feedback.

IMG_5351

Ég hef sagt það stundum áður að það er ýmislegt sem þessi litla stúlka lætur sér detta í hug.

IMG_5352

Það átti að halda upp á afmælið hennar Ásthildar á laugardaginn.  Pabbi hennar ætlaði að koma en það var bara ekki flogið svo það var bara óformlegt kökur og gos.

IMG_5354

Miss Campbell ónei fröken Bjarkadóttir.

IMG_5355

Úlfur klæddi sig líka uppá.

IMG_5373

Og nokkur kúlubörn gerðu sér glaðan dag.  Það verður samt haldið upp á afmælið hennar um leið og Hönnu Sólar þann 23. febrúar.

IMG_5375

Herralegur Úlfur  ekki satt?

IMG_5376

Og afmælisbarnið.

IMG_5377

Tinna frænka kom með skúffuköku.

IMG_5380

Hér er búið að setja upp kórónuna.

IMG_5381

Og Sigurjón lét sig ekki vanta.

IMG_5393

Svo var farið í búningaleik, sem er alltaf svo spennandi.

IMG_5395

Þau hafa endalaust gaman af þessu.

IMG_5396

Djííí!!!

IMG_5402

Dularfull þessi.

IMG_5403

Og Evíta kom með pabba sínum.

IMG_5404

Og þær skemmtu sér vel, Evíta litla á svo afmæli á Valentínusardaginn.

IMG_5406

Gaman saman.

En ég segi bara góða nótt elskurnar. Heart


ROTTAN OG UXINN!

Nafnleysingjarnir mínir á Málefnunum bentu á það að í dag 26.1.09 byrjar ár uxans samkvæmt kínversku tímatali.  En í gær lauk ári rottunnar.   Neikvæðu eiginleikar rottunnar er græðgi, en uxanum fylgir vinnusemi og gæði.

Ári rottunar lýkur í dag, Nautið tekur við.

According to the Chinese Zodiac, the Year of 2009 is the Year of the Ox. The Ox, or the Buffalo sign symbolizes prosperity through fortitude and hard work. Those born under the influence of the Ox or Buffalo are fortunate to be stable and persevering. The typical Ox is a tolerant person with strong character. Not many people could equal the resolution and fearlessness that the Ox exhibits when deciding to accomplish a task. Ox people work hard without complaints at work or at home. They know that they will succeed through hard work and sustained efforts, and do not believe in get-rich-quick schemes.
 

Þetta er ef til vill engin tilviljun, heldur merki til okkar að við eigum betri tíma í vændum.   Vonandi.  Ég veit ekki alveg hvernig bregðast skuli við þessu.  En ef verður af ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með stuðningi Framsóknar og Frjálslyndra, þá hljóta þær kröfur að vera uppi að þau taki á þeim málum sem mótmælendur hafa barist fyrir svo lengi.

Það er;

Seðbankastjórar og bankaráð víki.

Að frystar verði eignir auðmanna sem hafa stuðlað að hruni efnahags landsins. 

Að þegar í stað verði farið í að bjarga heimilum og fyrirtækjum landsins, svo endurreisnin geti hafist.  Við höfum ekki mikinn tíma. 

Svo má skoða hvort við getum af.þakkað hluta af láni Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.  Ég hef nú trú á því að ef tekst að ná í fé til að ná upp í skuldir, þá sé stætt á því að minnka þá byrði.  Ég bendi líka á að ennþá er utanríkisráðuneytið risavaxið, þar má mikið skera niður svo sem eins og rándýr hús í Japan og Berlín.  Á móti mætti hætta við niðurskurð í heilbrigðisgeiranum.

Það verður fróðlegt að sjá viðbrögðin.  En nú vitum við almenningur í þessu landi að við getum haft áhrif.  Að við getum veitt stjórnmálamönnunum aðhald.  Sá lærdómur er ekki lítils virði upp á framtíðina að gera.  Við skulum strengja þess heit hér og nú að sofna aldrei aftur á verðinum.  Og þegar við höfum fengið Nýtt Ísland eftir næstu kosningar, þá skulum við passa vel upp á lýðveldið okkar, eins og ungabarn skulum við fylgja því fyrstu skrefin og muna að við verðum að bæði hrósa og refsa.  Láta finna að við erum vakandi og líðum ekki fals og fláræði.  Líðum ekki spillingu eða sérhagsmunapot.  Aldrei meir pólitískar stöðuveitingar og hagsmunagæsla flokksgæðinga.  Við verðum að muna hverir það voru sem hönnuðu atburðarrásina undanfarin 17 ár.  Vonandi er Kapitalsiminn jafndauður og Komúnismin, og jafnvægi komið þar á. 

En það verður aldrei hægt að byrja með hreint borð fyrr en búið er að þrýfa upp skítinn sem liggur allstaðar.  Þó það sé sársaukafullt, þá þarf virkilega að rannsaka aðdraganda hrunsins, og refsa þeim sem þar eru sekir.  Ekki vil ég heyra lengur að það eigi ekki að Persónugera vandann.  Hann er einmitt mjög persónugerður á hverju einasta heimili landsins, þar sem enginn sleppur undan afleiðingunum.

Um fram allt verðum við hinn almenni borgari þessa lands að halda vöku okkar, og fylgjast með því hvernig málin þróast.  Munum að það tók margar vikur að sía málstað okkar inn í stjórnmálamennina, þeir tala nú okkar tungumál, en það þarf ekki að fara langt aftur til að heyra annan tón.  Eins og ÞIÐ ERUÐ EKKI ÞJÓÐIN, eða orðskrípið SKRÍLL.  Við skulum alls ekki henda pottum og pönnum sleifum eða ausum heldur hengja það upp á vegg til að minna okkur á hve fallvalt lýðræðið er og hve mikilvægt það er að gæta þess vel. 

Gott að vita að ár Rottunnar er farið veg allrar veraldar, og nýtt ár Uxans gengið í garð.  Eigið góðan dag elskurnar.

 


Úlfarnir farnir á kreik, útsala á sauðagærum.

Ókey núna er allt svo skiljanlegt og hefur verið lengi í umræðunni.  Það væri gaman að rifja nú upp viðtölin við þessa menn síðastliðna hundrað og tíu daga.  Ég veit ekki af hverju fyrirstaðan sprakk í gær en ekki í fyrradag eða fyrir mánuði.  En ég er farin að fá í hnén út af svona viðurkenningum;

Ástæða ákvörðunar minnar er sú sannfæring mín að nauðsynlegt sé að ryðja brautina fyrir uppgjör og uppbyggingu sem byggi á trausti almennings. Forsendur fyrir því að skapa frið og traust í samfélaginu til endurreisnar eru meðal annars þær að stjórnmálamenn og stjórnendur stofnana samfélagsins axli ábyrgð,“ segir Björgvin í bréfi til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, þar sem hann tilkynnir um afsögn sína.

Fyrir það fyrsta, þá er undiralda fólksins búin að standa í margar margar vikur. Hvers vegna er þá allt í einu nauðsynin á að fara núna að huga að trausti almennings og uppbyggingunni?

Jú það hefur nefnilega dálítið breyst.  Það líður að kosningum, ekki seinna en í maí í vor.  Og nú eru úlfarnir med det samme farnir að klæða sig í sauðagærurnar til að plata okkur ennþá einu sinni til fylgilags við sig.  Það hefur jú alltaf gefist svo dæmalaust vel.

Skyldi almenningur trúa þeim núna?  Eða ætli einhverjir séu glaðvaknaðir og hættir að hlusta á innantóm orð og farnir að kalla á aðgerðir.  Skoðaðu frekar hvað menn gera, heldur en hvað menn segja, það gefst alltaf best. 

Orð gera verð beitt, þau geta verið sverð okkar og skjöldur.  Þau geta líka verið hýjalín, til að sveipa um sig og fela sannleikann, þó oftast fari nú fyrir því eins og Nýju fötum keisarans.  Sér í lagi ef fólk er með opin augun.  En tími innantómra orða er vonandi liðinn.  Eins og orðin hans Geirs á "fréttamannafundi" fyrir utan heimili hans.  'Eg er ennþá að reyna að botna í í fyrsta lagi hvað hann var að segja, og hvers vegna hann var að gefa kost á sér í viðtal til að setja ...... nákvæmlega ekki neitt.  Ég ætla ekki að tjá mig um Ingibjörgu Sólrúnu.  Blessuð konan þarf hvíld og ef hún veit hvað henni sjálfri er fyrir bestu, á hún nú þegar að fara í frí, og eftirláta sínum mönnum að taka við keflinu.  Heilsan verður ekki keypt né endurnýjuð þegar hún er farin. 

Svo er að sjá hverjir tjá sig næst um að nú þurfi að fara í "Uppgjör og ryðja brautina fyrir sanngirni og þessu nýlega fundnu orðum "Trausti almennings " Hver fattaði eiginlega upp á þessu? Devil

Og hvenær uppgötvaði blessað fólkið að þau væru nú ef til vill búnin að ganga of langt á þolinmæði og traust okkar pöpulsins/skrílsins?

O jamm og já, batnandi mönnum er best að lifa.  En í mínum eyrum héðan af, hljómar þetta eins og innantóm orð, til að sveipa sig hýjalíni að hætti keisarans.  Þið höfðuð öll tækifæri í heiminum til að komast vel frá þessu, ef þið HEFÐUÐ Í RAUN HAFT UMHYGGJU FYRIR OKKUR AÐ LEIÐARLJÓSI, en því miður var ykkar hugsun að bjarga útrásarliðinu, og hver veit hve nærri ykkur sjálfum það liggur.  Allavega liggur ekkert á að skoða þau mál, eða frysta eigur, eða yfirleitt að raska ró fjármálamannanna hverju sem það veldur nú.  Einhverskonar GOODWILL sennilega. Og mörg partý utanlandsferðir og skemmtilegheit!.  EN ÁGÆTU STJÓRNARLIÐAR ÞAÐ VAR ÞÁ!!! FYRIR HUNDRAÐ DÖGUM.  Þeir eru liðnir, og líka þolinmæði fólksins þanþol þeirra til að skilja ykkur og gefa frið til að vinna.  Líka vegna þess að við höfum ekki hugmynd um hvað þið eruð að bralla, og í svoleiðis uppákomum lifna allskonar vantrú og gróusögur. 

Þess vegna er þetta OF SEINT OF LÍTIÐ OG HÁLFGERT PRUMP ENN SEM KOMIÐ ER.  Það er mín meining.


mbl.is Jón Sigurðsson: Afsögn Björgvins kom ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherraafsögn og mótmæli!

Jamm þá hefur byrjað að molast utan af jakanum, eins og Steingrímur komst að orði.  Ef til vill kemur svo aðalbomban á eftir, þegar Geir, Ingibjörg, Þorgerður og Össur segja af sér.

En heyrðuð þið að það á að gera starfslokasamning við einn bjöllusauðinn.  Nú viljum við vita hve há sú upphæð er, hve vel er gert við mann sem hefur hylmt yfir með öllum skítnum, sópað honum undir teppið.

Já því miður Björgvin G. Þetta var of lítið og of seint.  Þú varst spurður að því hvað þú hefðir gert rangt, það var að heyra að það væri nánast ekkert að hjá þér, nema að fólk væri orðið svo reitt, og auðvitað ætlar þú að halda áfram sem þingmaður, og bjóða þig fram aftur.  Sum sé ekkert að.  Málið við ykkur er nefnilega nákvæmlega þetta.  Það hefur loksins síast inn í kollin á ykkur, að fólk sé búið að fá nóg.... Þá er best að fara frá aðeins, og svo vera tilbúin til að leika sama leikinn aftur.  Þú hefur ef til vill fengið þessa hugdettu á árshátíð hjá Seðlabankanum í gær!

Eða eru rotturnar að yfirgefa sökkvandi skip?

Það er sama tuggann aftur, þetta bara gerðist einhvernveginn.  Og núna allt í einu ákvaðstu í gær að hætta við.  Eftir allar yfirlýsingarnar um hve þið væruð að vinna gott verk, og þið sjálf þýðingarmikil.  Veistu að ef til vill er ég orðin svona harðsvírðu, en ég finn hvergi vott af meðaumkvun með þér eða ykkur yfirleitt.  Þetta er bara ennþá einn leikurinn hjá ykkur til að plotta og halda völdum. 

Fyrst var reynt að tilkynna veikindi og fá samúð þannig, en mótmælin bara jukust, þá er næst í stöðunni að fórna peði.  Ég er ekki viss um að það virki í dag.  Hefði eflaust gert það fyrir svona hundrað og tíu dögum eða svo, en eins og ég sagði of lítið og of seint. 

Því miður ágæta fólk, þið hafið illilega misreiknað íslenska þjóðarsál.  Hún er dálítið sveitarleg og undirgefinn alltof lengi.  En þegar hún finnur alvöruna og að vegið er að fjölskyldu og heimili hennar, þá bregst hun við eins og öll dýr merkurinnar myndu gera, rís upp og berst fyrir tilverurétti sínum.

Þið hefðuð átt að átta ykkur á mistökunum, þegar það voru konurnar sem voru í fararbroddi, það voru þær sem sátu og prjónuðu fyrir framan alþingishúsið, þær sem geistust fram með pottana sína og sleifarnar.  Það voru nefnilega konurnar sem voru oftast fremstar í flokki. 

Og svo Hörður, ég verð eiginlega að segja það sem ég hef hugsað frá því að hann byrjaði með mótmælin.  Hörður er einn af þeim fáu sem ég þekki, sem ég gat ímyndað mér að stæðist þrýstingin og ekki síst apparatið sem ég er nokkuð viss um að hefur farið í gang með að leita að ávirðingum um hann, til að koma á hann höggi.  Hörður er gegnheiðarlegur, en hann er meira, hann skuldar engum neitt, og hefur hagað sínu lífi þannig í hvívetna að ekki ber skugga þar á.  Þess vegna er Hörður sterkur fyrir, og hann hefur svo sannarlega gert kraftaverk.  Alveg eins og hann gerði með samkynhneigð sína, þegar hann kom heim og stofnaði samtök þeirra.  Ég vil ekki að þetta framtak hans gleymist.  Það er nefnilega ekki bara nóg að geta komið fram og talað, ekki nóg að þekkja rétta fólkið, heldur er það allra nauðsynlegasta að hafa engar beinagrindur í skápnum. 

Nú er að sjá hvort þetta nýja útspil gerir eitthvert bakslag í mótmælin.  Ég held samt ekki, krafan er nokkuð skýr, burt með spillinguna, burt með vanhæfa ríkisstjórn og burt með seðlabankastjóra, við getum núna sleppt þessu með fjármálaeftirlitið, nema við viljum fá upp á borðið starfslokasamninginn.  Ég er líka viss um að Björgvin prívat og persónulega hefur lést um ein tvö kíló að vera laus úr þessari aðstöðu. 

Nú er að sjá hver framvindan verður.  Ég hef þá trú að ríkisstjórnin kjósi að fara frá.  Ég hef aldrei séð á minni lífsfæddri ævi jafnmikla andstöðu ekki bara almennings, heldur allra sérfræðinga og stjórnspekinga.  Þannig að slímsetan er orðin æpandi og fólk skilur ekki af hverju þið þráist svona við.  Með hverjum klukkutímanum sem líður meðan þið sitjið svona eykst andstaðan og það fólk sem hefur stutt ykkur og vill ykkur vel hættir að treysta sér til að verja ykkur.  Þetta dæmi gengur bara ekki upp.

Svo eru nokkrar myndir frá frábærum fundi hér á Silfurtorgi í gær.

IMG_5358

Fólkið lét hvorki rok né kulda aftra sér frá að mæta.

IMG_5361

Og ræðurnar voru mjög góðar að vanda.  Ég hef líka reynt að fá ræður gærdagsins af Austurvelli en einhverra hluta virkar rás2 ekki, svo það er ekki hægt að spila fundinn. Tilviljun ? Veit ekki ég er farin að sjá grýlur í hverju horni.

IMG_5364

Læknirinn.

IMG_5365

Neminn

IMG_5370

Sjómaðurinn

IMG_5371

Kennarinn.

IMG_5368

Skríllinn.

IMG_5369

Krúttlegasta skyltið í gær.  En einmitt dæmigert fyrir það sem ég var að segja hér áður drottinn blessi heimilið.  Heimilið og börnin eru helgasta vé hvers manns.  Ráðist einhver að þeim gildum, uppsker sá það sem hann á skilið. 

 


Mótmælafundur á Silfurtorgi kl. þrjú - mætum öll.

Jæja gott fólk þá eru laugardagsmótmælin á dagskrá núna kl. þrjú á Silfurtorgi.  Það er best að klæða sig vel, fara helst í kuldagalla, svo ykkur verði ekki kalt meðan þið hlýðið á ræðurnar. 

Ég segi það enn og aftur, það er á við tíma hjá góðum sála að koma saman og hitta fólk sem deilir tilfinningum sínum og hugarástandi.  Það er gott að finna samhug og vináttu allstaðar í kring um sig.  Stöndum saman.

Í dag verða ræðumenn Þorsteinn Jóhannesson ríkisborgari,  Harpa Henrýsdóttir ríkirborgari  Þorsteinn Másson ríkirborgari og  Þóra Karlsdóttir ríkisborgari.

Og svo auðvitað Guðmundur Þór sem heldur utan um þetta allt saman.  Ef það mæta nógu margir, þá getum við haldið hita hvort á öðru með að standa í hnapp. 

 

Mætum öll og látum í okkur heyra!!!!!

IMG_5057


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2009
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband