Prakkarar í kúlu.

Nokkrar myndir af prökkurunum mínum.  Ásthildur er lasin í dag, eiginlega eldhress, en hún ældi í nótt og kvartaði yfir maganum, svo ég ákvað að hafa hana heima.  En hún er eins og ekkert hafi ískorist og bara ánægð yfir að eiga ömmu sína alveg sjálf.

2009. 22.11. 002

Ég á þennan varalit sagði Hanna Sól. Ásthildur vill líka láta varalita sig, afi má ég varalita þig líka?

2009. 22.11. 007

Hopp og hí... Isobel kom í heimsókn.

2009. 22.11. 008

Reyndar er búið að vera fjölmennt hér yfir helgina, Daníel gist hjá okkur, og börnin komu í heimsókn.

2009. 22.11. 009

Hún vill gera allt sjálf þessa dagana, það má ekki hjálpa henni...

2009. 22.11. 010

Þetta er sama erfitt og snúið.

2009. 22.11. 011

Úbbs þetta ætlar ekki að ganga neitt..

2009. 22.11. 012

Fór reyndar aldrei lengra, því það mátti ekki hjálpa henni að snúa erminni.  Smile

2009. 22.11. 014

Stóru börnin voru í laufabrauðsgerð hjá henni Jónu Símoníu frænku Daníels og Júlíönu.  Hin fengu að koma með, og þau komu færandi hendi þessi líka flottu laufabrauð sem eru búin að vera hér til reiðu fyrir gesti.  Sumir borða þau með sultu, og viti menn ein vinkona mín hafði einmitt fært mér þessa rosalega góðu plómusultu. 

2009. 22.11. 016

Þau fóru svo líka út að leika sér í snjónum.  Ærslabelgirnir mínir.

2009. 22.11. 017

Þá er nú gott að amma og afi eigi auka galla. 

2009. 22.11. 019

Viltu opnida fyrir mig?

2009. 22.11. 020

Þau fengu sem sagt ís.

2009. 22.11. 021

Nammi namm.

Nýjar myndir. 001

Með bók á höfðinu.

Nýjar myndir. 002

Vil ekki fara að sofa!

En ég hélt satt að segja að það væri komið nóg af áhyggjum hjá mér.  En svo fékk pabbi gamli áfall og dvelur nú á sjúkrahúsinu.  Ég vona að honum batni.  En það er alltaf undirliggjandi ótti um að missa.  Og núna er ég ekki í stakk búinn til að missa fleiri í bili.  En svona er lífið víst.  Það verður að hafa sinn gang, og við þurfum víst bara að læra að lifa með því sem er.  Og taka því sem að höndum kemur.  Vona að þið hafið það gott í dag elskurnar.  Og megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og vernda.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kærleiksknús til þín elsku Ásthildur.Vonandi hressist pabbi þinn aftur.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 14:23

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Gott að vita að það er ný kynslóð prakkara að vaxa úr grasi þarna á Ísó, svona þegar ég er horfinn á braut. Það þarf einhver að sinna þessu.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 14:30

3 identicon

Allt gert til þess að þurfa ekki að fara að sofa hahahaha.Svo mikið krútt.

Ég óska pabba þínum góðs bata.Guð styrki þig

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 14:43

4 identicon

Yndislegt smáfólkið þitt eins og alltaf. . Skilaðu kveðju minni til pabba þíns  vona að hann nái heilsu aftur.

Dísa (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 14:47

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Takk fyrir að leyfa mér að kíkja svona í heimsókn til þín... ykkarEigðu líka góðan dag mín kæra og ég vona innilega að pabba þínum batni... þetta er nóg í bili

Jónína Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 14:51

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þau eru æði þessi börn og þau eiga að vera prakkarar, verst að það má ekkert í dag Maður hefur og man eftir alveg ótrúlegum prakkarasögum frá því að  við vorum yngri, en gott samt að vita að prakkarar leynast í stórum og smáum hér á mínu heimili, hér er ýmislegt brallað og þær stóru eru ekki barnanna bestar.

Berðu pabba þínum kveðju mína ljúfust og hann verður í mínum bænum, en þú veist elskan mín að ef hann er orðin þreyttur og ákveður að fara þá verðið þið að sleppa honum.

Kærleik til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.11.2009 kl. 15:15

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mikið er ég glöð að sjá litla gullmolann minn hann Sigurjón Dag þarna með

Vona svo sannarlega að pabbi þinn hressist. Nú er komið nóg!

Hrönn Sigurðardóttir, 23.11.2009 kl. 17:57

8 identicon

Elsku Ásthildur, myndin af Ella þínum með rósrauðar varir er yndisleg. Vonandi nærðu að byggja þig upp aftur, vonandi hressist pabbi þinn fljótt og á mörg góð ár eftir. Megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og Kærleikskúlunni ykkar.

Kærar kveðjur úr Andakílsárvirkjuninni.

Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 21:50

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús og kveðjur í kærleikskúlu  Bataóskir til pabba þíns

Sigrún Jónsdóttir, 24.11.2009 kl. 00:34

10 Smámynd:

Bestu kveðjur til þín Ásthildur mín og bataóskir til pabba þíns. Yndislegt kúlulífið - takk fyrir að deila því með okkur

, 24.11.2009 kl. 00:49

11 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi hressist faðir þinn fljótt og vel.  Myndin af stelpunum með afa sínum er svo sérstök.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.11.2009 kl. 01:00

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tall öll fyrir hlý orð og innlit.  Ég er orkulaus þessa dagana, hangi uppi á einhverju sennilega þessu rjátli kring um börnin.  En svona er þetta bara.  Upp og niður í rússibana.   Mér finnst þess vegna svo gott að koma hér inn og lesa og finna alla hlýjuna sem frá ykkur stafar.  Innilega takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.11.2009 kl. 11:11

13 identicon

Leiðinlegt að heyra um pabba þinn, vonandi batnar honum sem fyrst.

Knús í prakkarakúluna

Kidda (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 11:26

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fór til hans í gær á sjúkrahúsið.  Hann fær ef til vill að fara heim í dag.  Þetta virðist hafa verið sýking en ekki áfall.   Hann er búinn að vera á sýklalyfjum sem er sprautað beint í æð.  Vonandi er þetta ekki meira en það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.11.2009 kl. 11:28

15 Smámynd: JEG

Kærleikskvitt og knús

JEG, 24.11.2009 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 2021031

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband