Færsluflokkur: Bloggar
24.4.2008 | 22:15
Sumardagurinn fyrsti - stóð undir nafni í dag.
Á morgun legg ég í hann til Keflavíkur með litla stubb sem er að fara á Taikwondomót. Við munum leggja af stað um tíu leytið í fyrramálið, og koma við í Reykjanesi fara þar í sund og grilla. Síðan er ferðinni heitið í Mosó, þar sem verður snætt á KFC, kjúklingur með tilheyrandi, og svo mun leiðin liggja til Keflavíkur.
Það mun sennilega vera minna um blogg og myndir af þeim sökum um helgina. En hér eru myndir frá sumardeginum fyrsta.
Hún var undirleit.
En þessi unga dama var ákveðin.
Já við klæddum okkur upp í tilefni sumardagsins fyrsta.
Hér er tildæmis kóngur og drottning.
Drottningar þurfa margt að brasa skal ég segja ykkur.
Veðrið í Ísafirði var hið besta eins og sjá má.
Ekki lýgur maður um lognið, víst er það.
Frænkurnar litlu komnar á kreik.
Svo þarf aðeins að rífast um hluti og sona
Spurning hvor hefur betur.
Jamm þetta verður sennilega jafntefli enda nógu margir litir í boði.
Þá er best að drífa sig bara í sandkassann.
en sumir stubbar þurfa meira svæði til að vera á.
Og eins gott að þessar litlu séu orðnir vinir.
Þá finnst öðrum gott að leika sér einum.
Aðrir vilja hoppa yfir lækinn.
Hoppa í parís eða bara njóta þess að vera til. Það er jú sumardagurinn fyrsti.
Það þýðir að það má fækka fötum ekki satt.
Fá sér afaskyr og lita smá.
Ég á lítinn skrýtinn skugga skömmin er svo líkur mér, hleypur með mér úti og inni alla króka sem ég fer.
Jamm það er nefnilega bara ansi notalegt veður.
svo er hægt að húla húla....
Eða kæla sig í tjörninni.
Eða bara fá sér blóm í hárið.
Gleðilegt sumar öll sömul.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
24.4.2008 | 02:25
Mömmublogg og annað.
Já þetta er svona dæmigert kúlu-mömmu-ömmublogg. Bið ykkur samt að halda áfram að kommentera á færsluna hér á undan um mótmæli og lögregluaðgerðir.
Veðrið var unaðslegt í morgun.
Og við ábyrgðarfullar konur og börn að leggja í hann til Suðureyrar.
Hér stendur prinsessan við hliðið.
Og litla skottið mitt.
Þá vitum við hvaða ungi maður ber ábyrgðina i samverustund í dag. Í besta leikskóla heimsins.
Jamm, það er bara þannig að margt er brallað.
Svo er ástarlífið í fullum gangi hjá sjófuglunum.
Súgandafjörðurinn er eins og bara pínulítil á, í Þýskalandi eða Austurríki. En óneitanlega glæsilegur svona stilltur og rólegur.
Kubbinn alltaf jafn flottur.
Talandi um bíflugur, þá er gullsópurinn þeirra uppáhald, þessi blómstrar glæsilega í garðskálanum mínum.
sumir þurfa að smakka allt, jafnvel eldgamlar pizzusneiðar í blómapottum.
Svo er gott að drullumalla aðeins.
Svo er lika flott að leggja kapal, og sitja á mjólkurdollunni sinni
Meðan stóra systir unir sér í tölvunni hennar ömmu, og borðar afaskyr.
Ein svona til gamans, listræn ekki satt ?
Jamm dollan sú arna er alveg mátuleg.
Svo er ein kvöldmynd, og ég segi bara góða nótt elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
23.4.2008 | 17:19
Mótmælin undanfarið eru bara byrjunin.
Gengið of langt ? segja margir, sumir meina að mótmælendur hafi gengið of langt, aðrir vilja meina að lögreglan hafi gengið of langt.
Það getur vel verið að æsingur hafi gripið um sig meðan fólksins sem var þarna í dag. En ég held að aðgerðir lögreglunnar hafi skapað þann æsing.
Ég stend með bílstjórunum, og tel að þeir séu að standa vaktina fyrir mig og aðra þjóðfélagsþegna. Og mér finnst að mönnum væri fjandans nær að beina reiði sinni og hneykslun þangað sem hún á heima, þ.e. til stjórnenda landsins. Það eru þau sem eru sökudólgarnir í þessu máli. Fyrst og fremst fyrir að virða mótmælin að vettugi, í öðru lagi að reyna að reka fleyg á milli mótmælenda og almennings, með orðunum; þetta bitnar á hinum almenna borgara. Og í þriðja lagi að vera að flandrast um og bjarga heiminum, meðan almenningur í þessu landi berst fyrir lífi sínu. Ef til vill ekki lífinu sjálfu heldur tilverurétti sínum, atvinnu, og húsnæði og mat. Hvað er þetta fólk eiginlega að hugsa ?
Eru þau svo langt frá hagsmunum almennings að þau skilji ekki að fólk er að verða búið að fá nóg. Meira að segja fólk sem að öllu jöfnu styður þessa tvo flokka, geta ekki lengur varið hvorki aðgerðarleysi þeirra né forystuna.
Það er sagt að það þurfi sterk bein til að þola góða daga. Sjálfstæðismenn hafa komið sér vel fyrir á jötunni, komið sínum gæðingum í góðar stöður, meira og minna þrátt fyrir að þeir séu ekki traustsins verðir, það er eins og hæfi skipti ekki máli heldur flokkskírteinið. Enda hafa þeir verið við völd í næstum 20 ár samfleytt.
En nöturlegra er að sjá Samfylkinguna í sporgöngu Framsóknarflokksins, byrja sína eyðimerkurgöngu hér með. Þau ættu að skoða sögu Alþýðuflokksins á sínum tíma, þegar hann varð nánast að engu í faðmi sjallana. þau eru eflaust búin að gleyma því að dvöl í faðmi Sjálfstæðisflokksins jafngildir því að bera nöðru sér við brjóst. Megi þau sofa vel og lengi. Ég hef orðið fyrir gífurlegum vonbrigðum með forystu Samfylkingarinnar. Ég trúði því aldrei alveg að þau væru svona út og suður flokkur, eins og sést svo greinilega núna. Og ég hélt að það væri töggur í Ingibjörgu, en svo er hún ekkert annað er eiginhagsmunapotari af verstu gerð. Þau Geir eru eins og samvaxnir tvíburar. Ojæja, oft er reynt að aðskilja slíka, en ef þetta heldur svona fram að kosningum, þá hugsa ég að það þurfi engan aðskilnað. Þá verða aðrir flokkar sem taka að sér að koma skikki á stjórnmálin og bola krabbameininu burtu. Það er orðið alveg ljóst að það verður ekki hlutverk Samfylkingarinnar. Turnarnir tveir eru álíka traustir og þessir sem stóðu hvor á móti öðrum í New York, þeir munu falla, og fallið verður hátt.
Ég spái því að Framsókn rétti út kútnum, og Frjálslyndir nái vopnum sínum, og Vinstri grænir standi sterkir svo þessir þrír flokkar nái meirihluta, og þá verður komin tími til að hreinsa til.
Það er komin sá tími í íslenskum stjórnmálum að fólk er búið að fá upp í kok, af hræsni, svikum og hroka. Það má lengi brýna deigt stál svo það bíti. 'Eg held að sá tími sé runninn upp. Við erum að sjá byrjunina núna, og eldar verða ekki slökktir í bráð. Ekki fyrr en stjórnvöld skilja að ÞAU ÞURFA AÐ GERA EITTHVAÐ, ÞAÐ STENDUR UPP Á RÍKISSTJÓRN ÞESSA LANDS AÐ GERA EITTHVAÐ TIL AÐ LANDIÐ VERÐI BYGGILEGT.
Ég las einhversstaðar að meirihluti ungs fólk hugsi sér til hreyfings að flytja sig erlendis. Það er þó skemmtileg hugsun eða hitt þó heldur. Að okkar ungdómur telji sig betur komin í öðrum löndum. En er því hampað, eða er einhver umræða í gangi um að gera ungu fólki kleyft að búa hér ? Nei, ég er hrædd um ekki. Nú fer í hönd tími gjaldþrota, fólk sem hefur verið að reyna að koma sér þaki yfir höfuð, flest örugglega ungt fólk, missir eigur sínar, og stendur eftir slippt og snautt, launin duga ekki fyrir rekstri heimilisins.
En kóngur og drottning eru bara að ferðast um heiminn eyða peningunum okkar í að komast til áhrifa, þau eru líka að bjarga heiminum, telja sig nú geta leyst deilur Ísraels og Palestínu, og svo framvegis. Einhversstaðar segir nú samt, kóngur vill sigla en byr mun ráða. Það ættu þessi skötuhjú að hafa í huga.
![]() |
Grjótkastari segir lögreglu hafa sýnt valdníðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
22.4.2008 | 22:58
Hið daglega kúlulíf.
Dagurinn í dag var yndislegur eins og allir hinir núna á undan. Ég fór í vinnuna mína, pantaði áburð upp á sumarið, og eftir það fór ég og priklaði, Elli minn náði í börnin, ég vann með þremur pólverjum, sem eru að prikla með mér. Þeir eru ljúfir og rosalega duglegir allir saman. Svo fór ég á fund hjá Staðardagskrá Agenda21, en ég var skipuð í þá nefnd eftir siðustu kosningar. Við höfum verið að vinna á fullu að aðlaga Staðardagskrána að áherslum bæjarins í umhverfismálum. Nú fengum við nýtt verkefni að svara spurningum í sambandi við Aðalskipulag 2008 - 2020. Skemmtilega vinna og gefandi.
En svo eru það börnin og heimilið.
Leikskólinn, það er sko ekki sama í hverju maður fer í skólann. Það þarf að vera prinsessulegt... eða þannig.
Hér er allt til reiðu, sænginn pelinn og barnið Svo og græna teppið.
Og þá er maður klár í slaginn.
Eins og sýningardama, húfan er sérhönnuð af Úlfi, og saumuð.
Svona var veðrið í dag, hið daglega veður, sem er svo rosalegt á Ísafirði, að fólk neitar að senda börnin sín í fótbolta í júní, vegna snjóflóðahættu.
Og krókusarnir gæjast upp úr moldinni, og brosa móti sólinni.
Jamm hér má sjá manngert fjall.
Hér eru svo nokkrar kvöldmyndir, teknar nú fyrir nokkrum mínútum síðan. Þessi rauði litur er af ljósastaurunum.
Setur samt skemmtilegan svip á þessar kvöldmyndir. En hið fræga Ísafjarðarlogn sést vel á þessum myndum.
Já þetta er útsýnið mitt.
og ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
22.4.2008 | 12:35
Finnst engum nema mér.....
Það skrýtið?
Er ekki eitthvað að í forgangsröðun hjá RÚV, þegar forstjórar og fína fólki fær rándýra jeppa til ráðstöfunar og laun sem ekki má gefa upp, af því að þau eru svo há, en á sama tíma eru tölvurnar í útsendingum að hrynja, og alltaf að klikka og bila, svo þáttastjórnendur standa ráðþrota og kjaftstopp.
Væri nú ekki lag að setja pening í að laga græjurnar svo útsendingar geti verið eins hnökralausar og hægt er. Nei ég bara spyr svona. Er ekki eitthvað vitlaust forgangsraðað, nógu harkalegar eru innheimtuaðgerðir hjá þessu fyrirtæki. Ef þeim er svo sama í ofanálag, þó við njótum ekki bestu gæða, og þulir og þáttastjórnendur fái slag af áhyggum yfir því að ekki sé hægt að spila þetta eða hitt lagið, af því að búnaðurinn er á síðasta snúningi. Þau eiga alla mína samúð þessar elskur á rás2.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
22.4.2008 | 00:19
Mömmó og meira,
Ég fór á fund í kvöld, stubburinn er að fara á Taikwando mót á næstu helgi í Keflavík. Hann ávann sér rétt til að taka þátt með því að standast prófið um daginn. Og nú er litla fjölskyldan á fullu að undirbúa förina suður. Amma ætlar með stubbnum sínum, það væri nú annað hvort. Það var sem sagt fundur í kvöld með foreldrum, og ég fór og minn elskulegi sá um börnin á meðan. Ekki fyrir mig, það var þá þegar mín voru lítil. Nei nú er þetta sameiginlegt. Hér áður og fyrr, þá gætti hann barnanna fyrir mig hehehehe svona getur tíðarandinn breyst líka meðal okkar sem eldri erum, og guð láti gott á vita.
En ég tók nokkrar myndir í dag, Veðrið var náttúrulega unaðslegt, og við hjónin ákváðum að fara í sund á Suðureyri, þegar við sæktum þær á leikskólann, sem við og gerðum. Sú litla er alveg að ná þessu, og nýtur þess að fara í sund í dag. Hætt að vera hrædd við vatnið.
Gat ekki stillt mig í morgun að munda myndavélina, þetta er eitthvað svo saklaust og yndislegt í ömmuholu.
Og stubbur á leið í skólann smellir kossi á litlu "systur"
Afar bregða líka á leik stundum á morgnanna. Það er bara fjör.
Sagði ykkur það, veðrið er unaðslegt.
Skólalóðin á besta leikskóla í heimi að koma undan snjónum.
Þetta þýðir að þessar tvær eru eftir á leikskólanum, hinir allir farnir.
Ef þetta er ekki alþjóðavæðing þá veit ég ekki hvað
Nýkomnar úr sundi. Hanna Sól varð eftir með Júlla frænda sínum og Sigurjóni Dag og Ólöf Dagmar, en þau ætluðu einmitt að taka stelpurnar eftir leikskóla í dag. Þessi fór samt heim með ömmu og afa.
Jamm. það er ýmislegt borið upp í munnin á sér, á þessum síðustu og verstu.
Og rússurnar smakkast alltaf vel, það finnst risaeðlum líka.
Flísteppið er líka algjört must hér.
Svo rabbar maður í símann við mömmu sína og alles.
Kvöldið er fagurt sól er sest og sefur fugl á grein. Og klukkan að verða átta.
Ísafjarðarlognið í algleymingi. En þannig er þetta bara. Knús á ykkur öll inn í nóttina. Og ég segi bara góða nótt, sofið rótt, og knús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
21.4.2008 | 13:40
Vor í kúlu, mömmublogg og sitthvað fleira.
Ég lofaði vormyndum úr kúlunni. Hér koma nokkrar þannig:
Zakúran í fullum blóma.
Kirsuberin verða mörg í ár.
Flott ekki satt.
Ef til vill fæ ég líka perur.
Veðrið á laugardaginn var hreint glæsilegt, við fórum með stelpurnar í sund á Suðureyri, Ásthildur er öll að koma til í barnalauginni. Farin að sleppa ömmu sinni og labba um sjálf. Svo komst hún upp á lag með að fara uppúr og til afa í stóru lauginni, og fara ofan í hana. Það var mikið sport. Su stóra er eins og fiskur í vatni.
Það er rosalegt fjör hjá mínum stundum.
Og maður vill líka hafa blóm í hárinu. Matta klippti þær báðar reyndar eftir þetta, þær fóru í pössun til Möttu og Inga, þau tóku þær yfir nótt, og það var bara mjög notalegt.
Veðrið var ekkert síðra á sunnudeginum.
Hænurnar eru líka ánægðar að fá að fara út.
Æ pabbi snjórinn er svo kaldur.
Aha þetta er betra.
Yess amma hehehehe...
Þá er best að fara út að hjóla... og sona.
Eða leika við Ásthildi.
Sumir verða stundum fúlir, ef það er eitthvað sem ekki má.
Og auðvitað þarf litla dýrið að vita hvað er að. Þessi blái litur í hárinu er maskari sem stóra systir fann í snyrtitöskunni hennar ömmu. Áreiðanlega betur komin þarna.
en ólundin stendur stutt yfir, það er nefnilega allt svo skemmtlegt.
Það finnst Ásthildi líka. Ævintýrin, Nemo litli, trunt trunt og tröllin í fjöllunum, og englablues.
Börn, vatn og blóm eiga sérlega vel saman.
Felumynd af lítilli stúlku.
Nýklippt með blóm í hári. Svo fín.
Maður þarf nú líka að passa litlu systur stundum.
Það var svo hlýtt úti í gærdag. Eins og sjá má.
Hún ætlar að standa undir nafni, sú stutta, hér er örugglega verið að umpotta plöntum.
Og meðan stóru börnin fóru í pottinn.....
Fannst minni bara betra að fara í balann inni í garðskála.
Reyndar þótti fleirum gott að fara ofan í balann
Hér má sjá að stelpurnar halda báðar á dúkkum en drengurinn með bíl ? hér er ekki verið að innprenta neitt, þetta bara er svona. Eða hvað ? það skyldi þó aldrei vera að við gerðum það ósjálfrátt að halda bílum að drengjum og dúkkum að stúlkum.
mmm hvað þetta er notalegt.
Og Hanna Sól ræðir við Hjördísi sína í símann. En Hjördís var aupair út í Vín og gætti telpnanna.
Flottar pæjur alveg eins þær skáfrænkurnar í nýjum fötum.
Og afi í mat eins og venjulega á sunnudögum. Og blessuð börnin.
Hér er ein flott mynd af þeim Sigurjóni Dag og Hönnu Sól, en þau eru svoooo góðir vinir.
Og svo er þessi blómlega mynd líka, rósamandlan mín í forgrunni.
En við erum sennilega búin að fá óperu, hún er að vísu karlkyns, og kemur frá Litháen. En við sjáum til með hvernig það gengur. Stórir strákar gráta ekki.... eða hvað ?
Svo er hér komin gula röndin á beltið. Næst ætla ég að reyna við appelsínugula beltið segir snáðinn minn.
Þeir karlmennirnir á heimilinu ræða um landsins gagn og nauðsynjar eins og gengur
Eigið góðan dag öll sömul.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
21.4.2008 | 11:09
Héraðsdýralæknum fækkað um helming eða meira - hvar eru mótmælin ?
Ég er dálítið hissa hvað lítið heyrist í dýralæknum og bændum í sambandi við fyrirhugað frumvarp svokallaðs sjávar- og landbúnaðarráðherra, þá á ég við þann hluta að kútta héraðsdýralæknum úr 16 niður í 6, eða var það 8 ? Allavega niður um helming eða meira. Á sama tíma og hann er að boða innflutning á hráu hormónakjöti erlendis frá, þá fækkar hann eftirlitsaðilum. Eða maður hefði haldið að dýralæknar væru best til þess fallnir að fylgjast með heilbrigði kjötsins.
Það heyrist ekkert í Vestfirðingum, en eftir því sem ég hef heyrt, þá á að leggja niður embætti dýralæknis á Vestfjörðum, hann verður sum sé staðsettur í Borgarnesi. Mjög svo viturleg ákvörðun eða þannig.
Það veruð gaman fyrir bónda á Tröð í Önundarfirði, þegar kind verður í erfiðleikum með burð. Hann hringir náttúrlega til Borgarness; geturðu komið og aðstoðað mig ? Ég er með kind sem á í erfiðleikum að bera.
Nei ég get ekki komið, segir Dýralæknirinn, enda er það ekki mitt verk, ég á bara að vera yfir svæðinu.
Nú segir bóndinn, hvert á ég þá að leita ?
Nú ég held að það sé kona þarna fyrir vestan sem er dýralæknir, hún var þarna allavega.
Já en hún flutti auðvitað í burtu, þegar embætti hennar var lagt niður.
Nú hverslags er þetta eiginlega, gat hún ekki bara verið kyrr, og praktiserað ?
Praktiserað ? spyr bóndinn dolfallinn, heldur þú virkilega að hér séu svo mörg gæludýr að það sé viðurværi fyrir dýralækni ? Nei hér er enginn á svæðinu til að aðstoða okkur.
Þú verður bara að lóga kindinni segir dýralæknirinn.
Hverslags bölvar rugl er þetta eiginlega. Það er ekki nóg með að þessi mannvera hafi átt sinn stóra þátt í að rústa landsbyggðinni með því að skera niður þoskveiðiheimildir, heldur ætlar hann núna að ganga á milli bols og höfuðs á bændum líka.
Mér er spurn, ætla bændur á Vestfjörðum að láta þetta yfir sig ganga mótþróalaust. Er virkilega búið að draga allar tennur úr Vestfirðingum, svo þeir geta ekki hreyft sig meir ?
Maður var að vona að átakið frá Haga til maga, eða eins og sagt var frá Hafi og Haga til Maga, myndi skjóta styrkari stoðum undir bændur í strjálbýli og einnig auka vægi dýralækna. En nei, það á að drepa það allt saman niður líka. Landráðamaður er sá sem þannig hagar sér, að hann neyðir fólk til að flosna upp og fara. Vei þeim sem veldur slíku. Hann á ekki að fá leyfi til að fara með þau völd sem hann hefur. Svona menn á að refsa grimmilega ef ekki fyrr þá í kosningum.
Bændur það er ykkar að standa með dýralæknum í þessari baráttu, og láta ekki fara svona með landnúnaðinn. Þetta frumvarp á að fá að deyja drottni sínum.
Eða það er líka hægt að taka upp vopnin og berjast með okkur fyrir frjálsum Vestfjörðum. Loka okkur af frá Íslandi og vera sjálfstæð. Það er líka möguleiki. Og sennilega sá raunhæfasti miðað við hvernig stjórnvöld fara með fjórðunginn. Eða ætla menn endalaust að kyssa á vöndinn og láta taka sig ósmurt ?
Enginn aðstoð meira við kúabændur, þeir verða bara að lóga kúnni, því ekki kemur dýri alla leið frá Borgarnesi, enda hefur hann þá í nógu að snúast. Eða ætla menn virkilega að ráða aðstoðardýralækna á fámennari staðina ? Eða jafnvel bara einhvern bóndann í sveitinni, sem þykir liðtækur að hjálpa, þegar enginn lærður dýralæknir vill vinna í hjáverkum við að aðstoða.
Eða hafa ráðamenn ef til vill EKKERT HUGSAÐ UM ÞAÐ HVERNIG ÞETTA ER Í PRAXIS, kæmi mér ekkert á óvart miðað við stjórnarhættina sem þeir viðhafa núna. Svei því bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.4.2008 | 17:13
Vor í Vín.
Fékk þessar myndir sendar frá Báru dóttur minni, vorið er svo sannarlega komið í Vín, en það er líka komið í Kúlunni, þið fáið að sjá þær myndir seinna í dag, eða í kvöld.
En hér er sýnishorn frá Vín.
Ég held að þetta sé örugglega Zakúra eins og mitt. Sem einmitt er líka í blóma.
Þetta er bara svín, en þau dýralæknanemendurnir hafa lifandi dýr til að vinna með, og læra á sjúkdómana. Dýralæknaskólinn er dýragarður í leiðinni lítið þorp, eða ekki lítið um 100.000 manna þorp hehehe.. þar sem eru skurðstofur fyrir stórgripi og smádýr og allt þar á milli rannsóknar stofur, röntgen myndastaðir fyrir mismunandi stærð dýra. og bara að nefna það, þarna eru margar tekundir hestakyns, írskur póný, þýskir og austurrískir hestar íslenski hesturinn áramt arabagæðinum. Og margar fleiri. Bára mín er í sérhæfri deild fyrir hesta.
En sumsé mér sýnist vorið í Vín vera um það bil það sama og vorið í Kúlusúk.... eða þannig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
19.4.2008 | 18:07
Að sigra.
Stubburinn kom heim með spjald í dag sem stóð á;
Þórður Alexander Úlfur Júlíusson Thomassen Kristján, (nafn sem hann hefur örugglega gefið upp, og notar við hátíðleg tækifæri ) hefur staðist próf fyrir 10.geup. SSANGYONFTAEKWON. Undirritað af meistara og kennara. Hann er komin með gula rönd á beltið. Var að vonast eftir gulu belti, en ég tek það bara næst segir, hann eða jafnvel appelsínugula beltið. Mikið er ég stolt af stubbnum mínum.
Til lukku elsku stubburinn minn. Þú ert flottastur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar