Færsluflokkur: Bloggar
19.4.2008 | 00:10
Vor vor og vor, og yndæl stund með fjölskyldunni.
Dagurinn í dag var dýrðardagur, ekki bara veðrið sem var hreint dásamlegt, heldur var mikið líf og fjör í kúlunni.
Vorið er komið, hér suðuðu minnst fjórar bíflugnadrottningar, nú kemur sá tími að ég þarf að fara að veiða þær upp úr tjörninni, þær vilja hrata niður í tjörnina blessaðar, og ekki vil ég að þær drukkni. En þær eru sem sagt komnar í garðskálann minn.
Í morgun hringdi í mig kollegi minn, hann Samson; Ásthildur, hvar ert þú, ég er staddur hér upp í garðplöntustöðinni þinni, er hér á Ísafirði og langar að hitta þig.
Ég kem bara sagði ég.
Það er gaman að hitta fólk úr garðyrkjunni. Við drukkum saman kaffi, og spjölluðum, hann sagði mér að hann væri með teikningu af Austurvelli, sem er systurgarður Hallargarðsins Reykvíska, einnig teiknaður af Jóni H. Björnssyni, hann var með eintak sem hann hafði litað og prentað út. Hann vildi líka gefa bæjaryfirvöldum eintak. Ég hringdi í Halldor Halldórsson bæjarstjóra, og hann bauð okkur að koma og tala við sig rétt fyrir hádegið. Við áttum gott spjall saman öll þrjú, og Halldór fullyrti við okkur að það væri ljóst að Austurvöllur yrði áfram skrúðgarður. Enda eru þessir fjórir garðar sem eru hér á þessu svæði, þ.e. Skrúður, Simsonsgarður, Jónsgarður og Austurvöllur, einstakir hér á landi. Að eiga fjóra skrúðgarða, gerist ekki betra.
En eins óg sjá má, var veðrið dýrðin ein.
Og fegurðin eftir því.
Já vorið er komið, ekki satt ?
Jólarósin mín svolítið á eftir að blómstra, en það gerir ekkert til, hún er dásamlega flott.
Og trén byrjuð að bruma.
allt á fullu í gróðurhúsinu, við Júlli prilkuðum um 1400 silfurkamba og 1100 skrautnálar í dag, auk þess um 300 flauelisblóm. Allt þarf þetta að vera klárt fyrir söluna í vor.
Ég er búin að fá tvo pólverja í vinnu við að gera við gróðurhúsin sem skemmdust í vetur.
Og hænurnar fengu að fara út, svona aðeins.
af mold ertu komin og að moldu skaltu aftur verða hehehehe.
Og stubbur hjálpar líka til.
Rósamandlan mín er rosalega flott.
Stubburinn fer í beltapróf á morgun í ThaiKvan Do, ef hann stenst, þá fer hann í keppnisferð til Keflavíkur i enda mánaðarins. Hann er rosalega duglegur, hér er hann að æfa sig.
Jamm flottur.
Börn hafa mjög gott af svona sjálfsvarnaríþróttum.
Bæði upp á sjálfsöryggið
En líka upp á ögunina
Og að skilja sjálfan sig.
Sigrast á vanmætti.
Standa keikur og hress.
Sem betur fer er stubburinn með frábæran kennara, og svo hefur hann bara svo mikinn áhuga á þessu. Vonandi gengur honum vel á morgun.
En það gerðist dálítið sem var bara surning um ekki hvort heldur hvenær, Ásthildur datt í tjörnina.
Júlli var rosalega snöggur að hlaupa til og kippa henni upp úr. Flest hafa þau dottið í tjörnina, má segja að það sé einskonar kúluvíxla hehehehe....
Aðrir voru bara í skaftaslag.
Og aðrið létu sé fátt um finnast.
Það var nóg af stubbum í kúlunni í dag, vegna þess að við ákáðum að grilla saman fjölskyldan.
Jamm það er vissara bara að leika sér á stéttinni.
En það var nóg um að vera. Eins og vanalega.
Stubbar eru og verða stubbar, þessir ætluðu í smáferðalag.
Hér má sjá yfirgrillarann Júlíus. Stóð sig rosalega vel.
Jamm það entist ekki lengi varkárnin við tjörnina.
Maturinn var góður.
Nei hún datt ekki, hún er að vera fyndin
en það eru fleiri, þetta er hann Trausti.
Ójá, sumir héldu sig til hlés
Og hvað er betra en stubbaknús.
Nema er vera skyldi Tjarnarblúes hehehe
Sumir eru þó bara prinsessur.
Jamm sullumbull og bullum sull.
Aðrir eru einfaldlega í Rambóleik.
Kúlulíf, daglegt brauð.. eða þannig.
Hanna Sól fékk fullt af fallegum fötum frá Tinnu frænku sinni.
Amma í kúlu, nú er komið að þér að setja inn mynd sko!!!
Þetta gæti verið felumynd af krökkum. Ég hef ekki tölu á hvað hér voru margir í dag, enda skiptir það ekki máli. Þau eru yndæl öll sömul.
Álfur og Huldumaður................................. eða þannig.
Þetta er svona maraþon myndakvöld. en það bara gerðist svo margt skemmtilegt í dag. Svoleiðis er það stundum.
En á morgun er laugardagur, og þá getur maður slakað á aðeins, á sig sjálfur eða þannig. Eða ef til vill á maður sig aldrei sjálfur, sérstaklega þegar lítil börn eru annars vegar, þau krefja mann um allan þann tíma sem maður hefur og svo miklu meira í ofanálag, en þau gefa manni það líka tífalt til baka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
18.4.2008 | 09:49
Til hamingju með afmælið Bjössi minn.
Skásonur minn hann Arnbjörn Elvar á merkisafmæli í dag. Innilega til hamingju með daginn elsku Bjössi minn. Vona að þið litla fjölskyldan eigið góðan dag saman. Með bestu kveðjum knúsi og krami frá skámömmu.
Allt er fertugum fært
fátt þeir eiga ólært.
Gakktu með glans út í daginn.
og Gangi þér allt best í haginn.
Knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
18.4.2008 | 00:07
Smá mömmublogg og krúttfærsla, og svo hið daglega veður.
Þá koma hinar daglegu myndir.
Maður fær sér morgunmat, fyrir leikskólann.
Hanna Sólin búin að borra og má ég aðeins fara í tölvuna þína amma ?
Morgunin lofar góðu.
Hæ amma mín.
Þá er það vinnan sem kallar.
Uhu amma, ég vil fara aftur heim !
Jey! Hanna Sól er komin.
Kubbinn alltaf glæsilegur.
en eins og sést er snjórinn farinn úr miðbænum, enda var sól og heilmikill hiti í dag.
Og páskaliljurnar að stinga sér upp úr moldinni.
MMM mér finnst tómatar góðir.
Ingi frændi er nú flottur.
Og Zakúrakirsuberin flott.
Það eru þessir jeppagaurar, þeir eru óforbetranlegir.
Hér eru bræðurnir - rauðhausarnir - nýkomnir úr fjöruferð með pabba sínum.
Já það vantar ekki ungviðið hér á þessari kúlu.
Evíta litla.
Og Ásthildur ansi vígalegar báðar tvær.
Aron Máni vill nú hjálpa til.
Maður verður nú að sulla smá.....
Og svo er aðalatriðið að vera vel skóaður
Evíta getur nú sullað líka, svo sem.
Þessi tvö eru vatnakettir algjörir, ég get svarið það.
ég leita reglulega að sundfitum á þessari pæju.
Amma mín ég fann álf !!!
Og ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.4.2008 | 19:32
Af hverju hið daglega veður.
Jamm, hér hefur verið í gegnum tíðina unnin hryðjuverk á fréttum af veðri á Vestfjörðum, vonandi af hugsunarleysi en ekki vitandi vits. Það er alltaf tíundað ef veðrið er vont, en þagað um þegar hér er hlýjast.
Ég hef oft ergt mig á þessu. Einu sinni var tekið veður hér af lögreglumönnum inn í bænum, líkt og mér skilst að sé gert á Akureyri, þá voru hitatölur oft hærri hér en á Akureyri og Egilstöðum. En bæjarstjóri sem hér sat,´sá ofsjónum yfir greiðslu sem lögreglan fékk, þeir notuðu þann pening í sjóð sem þeir höfðu sameiginlegan, ég held að þetta hafi verið um 120 þús. kr. á mánuði. Svo þetta var aflagt, og hætt að tíunda hitastigið hér, en sagt frá hitastigi í Bolungarvík í staðin, sem er nyrst og við opið haf, og oft munar einni til tveimur gráðum á hitastigi.
Muna einhverjir eftir því að sagt var gjarnan að Austfirðingar og Akureyringar ættu góða veðrið. Og það var vendilega þagað um það þegar veðrið var betra hér en annarsstaðar.
Til dæmis var í þætti hjá Jóhönnu Harðardóttur einhverju sinni tíundað hitastigið á Akureyri hitabylgja um man ekki hvað eitthvað um 20 ° en hér var tveimur stigum hærri tala, ég hringdi og vildi láta segja frá að hér væri hærra hitastig. það kom aldrei fram. Þetta er bara eitt einstakt dæmi. Annað dæmi sem ég upplifði var þegar hafði verið svarta þoka daginn áður, og þegar ég fer í vinnuna morguninn eftir, heyri ég í útvarpinu að það er sagt ófært að fljúga á Ísafjörð og Vestmannaeyjar vegna þoku. Ég hringi í fréttastofuna og segi að mér finnist þetta undarlegt, þar sem hér sé ekki skýhnoðri á himni og blankalogn.
Við höfum þessar upplýsingar sagði sá sem svaraði.
Ég skil það nú ekki alveg sagði ég, því ég horfi hér upp í heiðbláan himininn og það hreyfist ekki hár á höfði. Hvaðan koma þessar upplýsingar ?
Nú úr símsvaranum á flugstöðinni, var svarið.
Já en þetta eru skilaboð frá því í gær, hlýtur að vera svaraði ég.
Getur þú staðfest að það sé hægt að fljúga, spurði röddinn óþolinmóðlega.
Nei sagði ég, ég er bara kerling út í bæ, en eitt get ég sagt þér, að það væri stórfrétt ef ekki er flogið í svona veðri, eða veðurleysi.
En ég hef tekið eftir því að þið reynið alltaf að segja veðrið hér verra en það er, og nú tekur steininn úr, sagði ég.
Þú heldur kannski að við sitjum hér á kaffistofunni og ákveðum að tala illa um veðrið á Ísafirði, sagði maðurinn með þjósti.
Já svei mér þá, sagði ég, ég held að það sé einmitt það sem þið gerið.
Það kom reyndar á manninn við þetta svar.
Ég vil bara að þið segið frá því að hér sé glampandi sól og logn, en ekki ófært vegna þoku, næst þegar til segið frá veðrinu í fréttunum.
Svo hringdi ég inn á flugvöll og tilkynnti þeim hvaða hremmingum ég hefði lent í. sagði þeim að þeir yrðu að leiðrétta þessa frétt.
Í tíu fréttum kom svo sama rullan um að ófært væri að fljúga á Ísafjörð og Vestmannaeyjar vegna þoku.
Svona hefur þetta ævinlega verið, og fólk var farið að tala um að hér væri ekki byggilegt vegna slæms veðurs, sem er hið mesta rugl. Meira að segja neituðu sumir foreldrar að senda börnin sín hingað að spila fótbolta eitt árið, af því að þau voru hrædd við snjóflóð..... í miðjan JÚNÍ.
Svo ég ákvað þegar ég byrjaði að blogga að reyna að slá á þessa mítu um vonda veðrið á Ísafirði og Vestfjörðum. Ég hef núna því sem næst daglega sett inn veðrið og sett inn myndir sem hafa verið teknar samdægurs. Eins og þið hafið séð, þá er veðrið langt í frá eins slæmt og var búið að telja fólki trú um.
Þess vegna er HIÐ DAGLEGA VEÐUR Á ÍSAFIRÐI. Myndir ljúga nefnilega ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
17.4.2008 | 00:25
Hið daglega veður, vor og vorboðar.
Jamm þá er best að ræða aðeins um veðrið.
Hér er Súgandafjörður með sólbrá á sjó.
Kubbinn sterki og fallegi líka.
Já birtan er falleg.
Sól að morgni.
Vildi að ég gæti sett fuglasönginn hér inn með myndinni, þá væri þessi morgun fullkomin sem hann reyndar var.
Og þessi birta sem er svo einstök.
Þegar vorið kemur fara stubbar á kreik, sjónvarpið gleymt, en náttúran heillar.
Jamm það ER komið vor.
Það segir Kameliufrúin undirleit...
Og brosir svo sínu bliðasta.
Og kirsuberin blómstra líka til samlætis.
Og lítil stúlka slakar á eftir daginn í nýjum sokkabuxum frá Tinnu frænku.
Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
16.4.2008 | 12:50
Er nakin kvenlíkami klámfengin?
Nokkrar elskulega bloggvinkonur mínar hafa hneykslast á nektarsýningu sem hestamannafélag viðhafði á árshátíð hjá sér. Þær eru reiðar og sárar, tala um að þetta sé niðurlægjandi fyrir konur.
Ég held örugglega að ég hafi talað svona líka einhvertíman, og ef til vill ekki fyrir svo löngu síðan.
En málið er að eftir að klámumræðan kom upp í fyrra, þegar hópur fólks sem hafði klámmyndir að atvinnu, vildi halda árshátíð hér og allt varð vitlaust út af, hef ég farið að hugsa um þetta meira. Og ég hef komist að því, að ég sé ekkert óeðlilegt við það að stelpur dansi nektardans, svo framarlega sem þetta þær standi fyrir þessu sjálfar, og í opnum rýmum, þar sem enginn hætta er á misnotkun.
Þá er ég ekki að tala um einkadans í lokuðu rými með tjald, eða karla sem fá fýsnum sínum svalað með slíku á súlustöðum, þar sem er jafnvel um að ræða mansal.
Mér finnst það bara allt önnur ella, en svona uppákoma.
Sumar stúlkur sitja naktar fyrir í blöðum til að fá pening. Er það líka klám, er það líka til að æsa upp eiginmenn okkar. Ég held ekki, það er himin og haf milli kynþokka og staðlaðrar kroppsfegurðar.
Mér finnst einhvernveginn eins og það sé ákveðin taugaveiklun í gangi, þar sem fólk sér skrattan með klaufir og hala út úr öllu sem viðkemur nekt.
Það er ekkert niðurlægjandi fyrir mig sem konu þó einhverjar ungar konur með góða líkamsbyggingu, því það er alveg öruggt að aðrar fara ekki út í svona business, kjósi að drýgja tekjur sínar með því að fækka fötum á öruggum stöðum eins og á árshátíð hestamannafélags. Þó það sé karlakvöld. Ég veit ekki betur en það séu líka konukvöld þar sem ungir fallegir drengir dansa naktir eða því sem næst fyrir sal fullan af konum. Má þá álykta sem svo að þær komi hjólgraðar heim eftir slíkt kvöld. Og ætli karlinn hefði nokkuð á móti því að sinna kalli náttúrunnar ef svo ber undir. Ætli þeir verði reiðir út í steggina sem kveiktu bálið ?
En það er bara ekki þannig með obban af fólki, það þarf meira til að kveikja í en svona kroppasýning.
Það eru margar gjörðir manna sem mér persónulega líkar illa við að sjá. En ég virði rétt fólk til að ákveða það sjálft hvað það vill gera, og þó mér finnist eitthvað ekki sæmandi, þá eru aðrir sem finnst þetta bara allt hið besta mál. Og hver er ég að dæma hvað sé viðeigandi og hvað ekki?
Um daginn var mikil umræða um konu sem vildi fara berbrjósta í sundlaug, sundlaugavörðurinn fékk flog og rak hana upp úr, margir hneyksluðust á honum fyrir vikið. Hann virti ekki rétt hennar til að gera það sem henni fannst réttur sinn. Þetta er sama forræðishyggjan.
Við verðum að gæta okkar á því að skilja milli þess að einhver sé neyddur út í vændi eða súludans, eða hvort hér er um saklausan atburð að ræða. Þetta er mál sem snýr ekki að mér til dæmis, og ég tel mig ekki koma mér neitt við. Hvað þá að skammast yfir að það niðurlægi mig, eða æsi karlinn minn upp.
Meðan við dreyfum kröftunum, þá fer minni orka í að takast á við raunveruleg vandamál. Mansal, nauðganir og þrælahald er með öllu ólíðandi, þangað eigum við að beina kröftunum, en brosa að svona uppákomu eins og þessari.
Vil hér með benda á þetta blogg sem ég uppgötvaði í morgun.
http://sleepless.blog.is/blog/sleepless/ Sannarlega umhugsunarvert.
Sexý ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
16.4.2008 | 11:32
Ég mótmæli.
Bloggvinur minn J. Einar Valur Bjarnason Maack vakti athygli mína á þessari frétt í Morgunblaðinu. Ég vil láta í ljós andstyggð mína á þessari frétt, og svörum lögreglustjórans. 17. ára unglingur sem um ræðir kærir, og dregur svo kæruna til baka. Það er ekki ljóst hvað átt hefur sér stað þarna, það var aldrei rannsakað en hún dæmd ósannindamannsekja af lögreglunni. Ef í raun og veru samræði hefur átt sér stað án vilja stúlkunnar, þá er svar lögreglunnar nauðgun númer tvö. Hvað er eiginlega að fólki að birta svona lagað. Ætli barninu líði ekki nógu illa, þó landsmenn séu ekki að velta sér upp úr þessu. Ég segi eins og Herbert í guðanna bænum a.m.k. minnkið skaðan með því að LOKA FYRIR BLOGGMÖGULEIKAN, hér er um að ræða barn eftir skilgreiningu laga. Og munið að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
![]() |
Ekki var brotið á stúlkunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.4.2008 | 11:01
Gamalt efni, en samt alveg á dagskrá.
Jamm ég var að taka til í tölvunni minni og rakst þar á þessa grein sem ég skrifarði fyrir nokkrum árum. Hún á jafnvel við í dag og þá, svo ég ákvað að setja hana hér inn:
Þetta innlegg þýðir samt ekki það að ég ætli mér ekki að tala um stjórnmálamenn og vera óvægin, ég á ýmislegt eftir að láta í mér heyra um. En það er ágætt að hafa þetta svona bak við eyrað. Því þó ég segi sjálf frá, þá er þetta bara staðreynd sem blasir við. Eigið svo góðan dag elskurnar, þetta er innlegg mitt inn í dásamlegan vordag.
Íslendingar og lýðræðið.
Ég get stundum fengið alveg upp í kok af lýðræðisást íslendinga. Og ég er að meina það sem ég segi. Þetta sést vel, þegar maður byrjar að starfa í stjórmálum. Og enn betur sést það hér á Málefnunum. Á stjórnmálaþræðinum.
Hér getur að líta alla flóruna. Þá málefnalegu, sanngjörnu, og tilfinningasömu, en mest áberandi eru þeir sem eru uppfullir af illgirni og öfund.
Það er ömurlegt að lesa það sem sumir hér inni láta frá sér um menn.
Málið er, að stjórnmálin hér eru svona eins og þau eru, af því að við höfum sjálf þróað þau þannig. Ráðamenn voru ekkert vondir menn, sem vildu öllum illt. Heldur hafa þeir smám saman orðið svona, af því að við leyfum þeim að komast upp með hvað sem er. Þeir hafa ekkert aðhald. Alveg sama hvað þeir gera og segja, þeir eru kosnir, hvort sem er. Líti menn bara í eigin barm og skoði vel, hvort þeir myndu ekki sjálfir falla í slíka gryfju, ef það væru þeir, sem í áratugi, hefðu komist upp með hvað sem er.
Við erum nefnilega föst í mönnum, en ekki málefnum. Það fyrsta sem maður verður var við í íslensku samfélagi þegar maður fer að vinna að þessum málum er; ég get ekki kosið þennan flokk, af því að þessi maður er þar innanborðs. Eða, þessi maður er svo leiðinlegur að ég get ekki stutt flokkinn. Og svo framvegis.
Þetta er hreinlega að fara með lýðræðið á Íslandi. Og öfundin lýsir sér í allskonar yfirlýsingum á mönnum, þessi á kvóta, þá getur hann ekki stjórnað, þessi á svo ríkan pabba, að hann getur ekki verið þar sem hann er.
Málið er, að enginn einstaka maður ræður í raun einn yfir stjórnmálaflokki, í flestum tilvikum ekki allavega. Í öllum venjulegum stjórnmálaflokkum, eru málefnin rædd, og tekin sameiginleg afstaða um hvernig menn vilja sá málum háttað. Svo fylgja menn þeirri flokkslínu. Þar hefur farið fram umræða, og komist að sameiginlegri ásættanlegri afstöðu.
Lagðar línur og sett í stefnuskrá flokksins. Síðan fylgja menn þessari stefnu. Þá skiptir engu máli, hvort þeir eiga kvóta, eða eru synir einhvers, eða eru kvenmenn, eða ég veit ekki hvað og hvað.
Illgirninn er svo skrýtin að hún niðurlægir mest þann, sem sýnir hana. Og því meira, sem illgirnin er meiri. Og sama með öfundina.
Það sem er öllu alvarlegra, er að þetta er skaðlegt lýðræðinu. Því um leið og menn fara að setja stjórnmálaflokka í lið, eftir því hvort þessi eða hinn fer í taugarnar á þeim, af einhverjum orsökum, þá er hvatinn til að viðhalda lýðræðinu enginn.
Menn horfa á naflann á sér, og kjósa bara það sama yfir sig aftur og aftur, hvað sem hver segir, af því að hinir flokkarnir (menn þar innanborðs) eru ekki nógu góðir.
Ráðamenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu, þeir vita sem er að það gerist ekkert, alveg sama hvað þeir gera eða segja. Því menn hlaupa upp til handa og fóta, mótmæla og svo framvegis, en ganga svo hlýðnir og stiltir inn í kjörklefann og kjósa aftur, hvað sem tautar og raular.
Besta dæmið um svona, er eldri kona sem vék sér að mér í kosningabaráttu, Cesil mín, sagði hún, ég er alveg sammála stefnu ykkar í mörgum málum, og mér finnst þið vera að gera rétta hluti. En ég hef nú alltaf kosið þá sömu, og get ekki farið að breyta því.
Þetta vita stjórnmálamennirnir, þess vegna er málið að koma vel fyrir rétt fyrir kosningar, tala fagurlega, og auglýsa kosti sína vel og lengi. Og síðan er allt í góðu.
En lýðræðið smýgur út um gluggann. Því vitað er að vald spillir, og þegar hvatinn er enginn, til að standa sig, til hvers ættu menn þá að vera að svoleiðis ? Hið íslenska Bananalýðveldi, í boði íslendinga.
Í flestum öðrum löndum skirrast menn ekki við að refsa sínum mönnum, með afgerandi hætti í kosningum. Þess vegna er lýðræðið skilvirkara. Alþingismenn komast ekki upp með neitt múður, þeir þurfa að segja af sér, og eru jafnvel sakfelldir, ef þeir brjóta af sér, jafnvel fyrir minnstu yfirsjón. Það eru gerðar siðferðiskröfur til þeirra, um að misnota ekki aðstöðu sína. Þetta er mjög nauðsynlegt í öllum lýðræðisríkjum.
Hér vita menn, að þetta verður allt í lagi, einhverjir belgja sig út og hafa hátt smátíma, svo gleymist þetta bara. Hið íslenska gullfiskaminni.
Eina sem hefur svona svolítið velt þessu upp, er fjölmiðlafrumarpið í fyrra. Það kom róti á fólk, sérstaklega þegar forsetinn neitaði að skrifa undir lögin. En það var farið kring um þá neitun. Og menn komust upp með það. Síðan hafa svona smáværingar verið, og kannski er fólk aðeins að vakna, ég veit þó ekki. Og þegar ég les núna stjórnmálaþráðinn, þá verð ég .. ég veit ekki hvað ég á að kalla það, svolítið sorgmædd, því það er með ólíkindum hvað fólk finnur upp, til að níða, rægja, og niðurlægja það fólk, sem hefur tekist á hendur, að vinna að okkar málum. Og ég er ekki að ræða neinn sérstakan.
Ég hef sjálf gerst sek um þetta, svo ég er ekkert að tala meira um aðra en mig sjálfa. Svo það sé á hreinu. En í alvöru, þetta gengur bara ekki.
Förum að hugsa um málefnin, en gefum okkur að fólkið sem leiðir ætli sér að vinna af heilindum, þangað til þau sýna eitthvað annað. Og refsum þeim þá, og kjósum einhvern annann flokk.
Þá fyrst, þurfa menn að fara að gæta að hvað þeir segja og hað þeir gera. Ef dómurinn fellur á fjögurra ára fresti.
Vor.
Nú lifnar allt og grasið grær
gleymist vetrartími.
Allt það grimmt sem var í gær
ég gref í hugans rými.
Eftirvænting ást og þor
eykst á þessum tíma.
Víst er komið langþráð vor
vafið ástarbríma.
Skýjaglenna við oss skín
Skokkar lamb í haga.
Sálin blessuð sértu mín
um sumarlanga daga.
Ásthildur 2005
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2008 | 21:18
Prinsessur, myndlistasýning og hið daglega veður.
Vitiði hvað ég á heimsins bestu fjölskyldu. Haldiði ekki að börnin mín hafi haldið fund og ákveðið að skipta sér niður á daga við að gæta stelpnanna eftir leikskólann. Svo mamma gæti slakað svolítið á. Þau Júlli og Sigga saman vaktina, Tinna og Skafti aðra og svo Ingi Þór og Matta. Je minn eini hvað þau eru yndæl við mig. Einhversstaðar hef ég gert eitthvað rétt.
Takk elsku börnin mín öll sex.
Hér koma svo nokkrar myndir.
einhversstaðar þarna inn á milli svaf ég Afi náttúrulega löngu flúin af hólmi.
En prinsessur þurfa sér fararmáta ekki satt, þær þurfa bæði burð og íburð
Afar eru mjög góð burðardýr.
áður en haldið var af stað varð auðvitað að gefa smáfuglunum.
Og kúlan í morgunbirtunni.
Leikskólinn, þessi er fyrir Sigrúnu svo hún sjái hve mikill snjór er eiginlega ennþá á Suðureyri.
Þessi er dálítið ýkt á litinn til að þið sjáið hvernig snjórinn hefur runnið til í fjallinu og myndað skemmtilega skúlptúra.
Súgandafjörðurinn er fallegur svona hreinhvítur.
Og Ísafjörður skartar sínu fegursta líka.
Og svanurinn er kominn.
Þessar gæsir sungu dúett.
Úbbs óttaleg sleipa er þetta, maður dettur bara á hausinn.
Hvað varst þú annars að vilja væna ?
Það fiskast vel á þennan ... eða þannig.
en svo fór ég á myndasýningu, og ég verð að segja að ég varð alveg heilluð, ég hef séð miklu slakari sýningar í galleríum sunnanlands, meira að segja í listasafninu.
Hér ríkir sköpunargleðin alveg á fullu, skal ég segja ykkur.
Hrosshár úr hesthúsinu hjá Þórunni Birnu, m.a. þeim Unaði, Skírni og Stúf stendur þarna.
Þetta er einhvernveginn svo myndrænt og fallegt.
Mér finnst eiginlega að það ætti að sýna þessar myndir opinberlega til dæmis í Edinborgarhúsinu, svo fólki gefist kostur á að skoða þær.
Það er mikið lagt í sumar myndirnar.
Og litagleðin er takmarkalaus.
Ekki satt ?
Hér er mynd eftir Hönnu Sól.
Þetta glerlistaverk er líka eftir hana.
Sumar myndirnar eru teknaðar með kerti og svo er blek sett eftir á, og þá koma myndirnar í ljós, því kertið hrindir frá sér.
Sannarlega margar frábærar myndir eftir frábæra krakka.
Og þá er að koma sér heim.
Næsts ætlum við að reyna að muna að taka snudduna út úr munninum
En vissuð þið að kettir á Ísafirði eru afburðargreindir ? Þið getið spurt hana Matthildi Helga hún er sérstakur kattavinur, sérstaklega villikatta vinur. En sem sagt þeir eru vel læsir eins og sést á þessu skilti.
Eigið annars gott kvöld og nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
14.4.2008 | 01:15
Mömmublogg, og svo alls kyns eitthvað annað.
Hér er smá mömmublogg. Við áttum góðan og yndislegan dag í dag, fórum í sund á Suðureyri... nema hvað? sú stutta svaf í tvo tíma í vagninum í morgun, og sofnaði á leiðinni heim úr sundi og svaf í þrjá tíma, ekkert minna en það úti í bíl. Afi og stubbur fengu svo það verkefni að svæfa dömurnar í kvöld um hálf tíu. Þeim tókst það mjög vel, svo ég fékk smá frí frá svæfistússi.
En nú skuluð þið halda ykkur, Ára hefur gefist upp á vistinni, nú þegar. Hún er veik af heimþrá, og vill bara komast heim til sín þessi elska. Ekkert út af okkur fjölskyldunni segir hún Við erum yndisleg og frábær, EN... hún er haldinn þvílíkri heimþrá. Svo hún fer heim á morgun og ég sit í súpunni, þessari ástarsúpu, sem er samt dálítið þung. En ég er viss um að það reddast allt saman, ég fer með stelpurnar á leikskólann í fyrramálið og get svo farið í vinnuna mína.
Þetta tekur samt á, því hún kom svo vel fyrir fyrsta daginn. Svo bara einhvernveginn hrundi þetta allt niður. Svona er lífið bara.
En hér koma nokkrar krúttara myndir fyrir mömmuna og alla hina
Stúlka með blóm í hári, ef þetta er ekki megaömmupæja þá veit ég ekki hvað
Hér er svo stubburinn með mánaðarlaunin sem hann fær fyrir að vera duglegur strákur og standa sína plikt.
Og það er gaman í garðskálanum .... alltaf.
en við fórum í sund á Suðureyri, það var gaman, sú litla er öll að koma til, ég er næstum viss um að síðast náði hún ekki alveg niður, svo þetta skott er að stækka heldur betur, því nú stóð hún keik í barnalauginni.
Hanna Sól er eins og syndandi fiskur í lauginni, hvort sem er barnalauginn eða sú stóra.
Við erum náttúrlega flottastar... eða þannig.
Jamm við stelpurnar.
Líka voða notalegt að koma upp úr og þurrka sér.
Amma mig langar að fá Ís hjá Jóa, sagði daman.
Jamm og allir fengu ís.
svo var afi að klippa garðskálann og Hanna Sól þurfti líka að klifra aðeins.
Jamm og svo smá dans í kjölfarið.
ef þið haldið að þessi stelpa sé ekki flott fyrirsæta þá verðið þið að taka það til baka.
Hún kann þetta nefnilega alveg sko !
Svo kann hún líka að passa litlu systir.
Sem reyndar finnst mest spennandi að skoða skápana hennar ömmu sinnar.
Þessir skæruliðar komu líka aðeins í heimsókn.
Og pabbi kom í mat eins og venjulega á sunnudögum, þessi karl er algjör töffari.
Útsýnis staður Ásthildar.... og reyndar fleiri. Kaktusinn elskar hana, hann hefur langa brodda, en hann hefur aldrei stungið litlu stelpuna okkar, ekki frekar en kötturinn, sem malar þegar hún gruflar i honum, sumir eru einfaldlega fæddir plöntu og dýravinir
svo voru háðir bardagar í garðskálanum náttúrulega.
Valkyrjur létu sitt ekki eftir liggja þar.
Þessari mús var bjargað úr kjaftinum á Brandi.
Svo fékk amma rosalega flott nudd og sleik Mjög notalegt og ég er ekki að grínast.
Hér er fröken funny face hehehe
Hið daglega veður var hreint frábær sól og blíða.
Og páskaliljur skarta sínu fegursta.
Góð nótt öll sömul.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar