Færsluflokkur: Bloggar
4.5.2008 | 18:40
Óspillt víðerni og náttúra, það er framtíðin, en gengur illa að koma fólki í skilning um það.
Mig langar til að vekja athygli á þessari færslu Láru Hönnu, ég hef oft lesið pistlana hennar, og hún er skelegg baráttukona fyrir friðun landsins. Ég einhvernveginn er dálítið hrædd um að við séum að fara fram úr okkur sjálfum í virkjanamálum. Það sem verður verðmætast eftir bara nokkur ár, og er eftil vill nú þegar orðið mikilvægast, er einmitt óspillt náttúra og víðerni. Við eigum að staldra við aðeins og hugsa okkar ráð. Það fólk sem stendur í forsvari fyrir landið okkar, er því miður með einhverja allt aðra sýn á þetta. Þau eru að velta sér upp úr gærdeginum, meðan við þurfum að huga að morgundeginum, börnunum okkar og framtíðinni.
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/528709/#comments
Með bestu kveðjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.5.2008 | 12:32
Smábörn og dýr.
Ég er búin að fá óperuna mín, hún er 28 ára gömul og virðist vera mjög yndæl. Jorga, er hún kölluð, veit ekki hvort það er rétt skrifað. Hún á 7 ára gamla dóttur, sem við höfum þegar boðið henni að koma hingað. Hún er í skóla eins og er.
En ég hef verið svona á síðustus orkudropunum, í gær svoleiðis að ég hef ekki farið blogghringinn minn, og vona að mér fyrirgefist það. Stundum er maður bara úrvinda svona andlega.
En ég er viss um að þetta gengur vel hjá okkur, Jorga er vinkona Áru, svo hún þekkir strax nokkuð til heimilisins.
Ég var að passa þessar tvær í gær, þær eru flottar saman, þessar elskur.
Knúsíknús.
Gott að borða rússur hjá ömmu.
Gott að vera hjá afa.
Gaman saman.
Þær eru tvær en samt þrjár. hehehehe.
Bras með barnið.
Ætlar að ganga ekki alveg nógu vel.
Svo er að máta sokka.
Hæ sæta, ég er flottastur.
Smá um þolinmæði, þetta er hann Zorró.
Æ þessi börn, endalaust að djöflast í manni.
Maður verður víst að þola þetta, svona fyrir húsbóndann.
Nú fer þessu sennilega að ljúka
Eigiði góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
3.5.2008 | 11:14
Mömmó, og ýmislegt á laugardegi.
Smá fjölskyldumyndir að hætti hússins.
Köttur,blóm og barn.
Litli götulistamaðurinn.
Blandaður kokkteill. Fallegt fólk.
Í matarboði hjá fjölskyldunni okkar frá El Salvador.
Hérna afi minn.
Best að hringja í mömmu... eða einhvern.
Alejandra frænka getur hjálpað mér.
Og svo auðvitað að dansa við Pablo frænda.
Hanna Sól var fjarri góðu gamni, því hún fór með Júlla, Sigurjóni, Úlfi, Sóley Ebbu, og Birtu í sund.
Svona var veðrið í gær, en núna er allt orðið hvítt, ég ger svo svarið það. Það byrjaði að snjóa í gærkvöldi.
En páskarósin mín hefur það svo ljómandi gott undir skaflinum. Blómstrar sem aldrei fyrr.
Og manngerða snjófjallið stendur enn, og hefur lítið látið á sjá.
Júllí bauð okkur upp á þennan fína kjúkling í gærkveldi, eins gott því ég var að hamast við að prikla fram að kvöldmat.
Börnin búin að fara í bað og tilbúin í svefninn. Prinsessan og prinsinn.
Það er á meðan öskubuska mátar skóna.
En ég frétti í gær að ég fæ sennilega eina peru í kvöld eða á morgun, hún er frá Litháen, svo er að vita hvort hún tollir eitthvað. Það verður tíminn að leiða í ljós.
Eigið góðan dag elskurnar!
Smá laugardagsgrín.
Wife: 'What are you doing?'
Husband : Nothing.
Wife : 'Nothing...? You've been reading our
marriage certificate for an hour.'
Husband : 'I was looking for the expiration date.'
Wife : 'Do you want dinner?'
Husband : 'Sure! What are my choices?'
Wife : 'Yes and no.'
Wife: 'You always carry my photo in your wallet. Why?'
Hubby: 'When there is a problem, no matter how
impossible, I look at your picture and the
problem disappears.'
Wife: 'You see how incredible I am for you?'
Hubby: 'Yes! I see your picture and ask myself
what other problem can there be greater
than this one?'
Stress Reliever
Girl: 'When we get married, I want to share all
your worries, troubles and lighten your burden.'
Boy: 'It's very kind of you, darling, but I don't
have any worries or troubles.'
Girl: 'Well that's because we aren't married yet.'
Son: 'Mom, when I was on the bus with Dad this
morning, he told me to give up my seat
to a lady.'
Mom: 'Well, you have done the right thing.'
Son: 'But mom, I was sitting on daddy's lap.'
A newly married man asked his wife,
'Would you have married me if my father
hadn't left me a fortune?'
'Honey,' the woman replied sweetly,
'I'd have married you,
NO MATTER WHO LEFT YOU A FORTUNE!'
Father to son after exam:
'Let me see your report card.'
Son: 'My friend just borrowed it.
He wants to scare his parents.'
Girl to her boyfriend:
One kiss and I'll be yours forever.
The guy replies:
'Thanks for the early warning.'
A wife asked her husband:
'What do you like most in me,
my pretty face or my sexy body?'
He looked at her from head to toe and replied:
'I like your sense of humor.'
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
2.5.2008 | 13:45
Mig langar að spyrja ykkur að dálitlu!
Það er svoleiðis að fólki mitt frá El Salvador sótti um ríkisborgararétt í nóvember s.l. þau greiddu svo 10.000.- krónur fyrir hvern mann, hjónin og barn sem sagt 30.000.- og munar marga um minna. Þau báðu mig svo að hringja og spyrjast fyrir um hvað þyrfti til að sækja um aftur og hvort þau þyrftu að greiða aftur fyrir þetta. Einnig var orð sem hvorki þau né ég skildum, en það er "framfærsluvottorð".
Nú ég hringdi svo í morgun og spurðist fyrir, ég fékk svör um hvað þetta framfærsluvottorð þýddi, en svo var mér sagt að þau yrðu að greiða aftur 10.000.- krónur hvert fyrir nýja umsókn. Ég kváði við, sagði að ég væri með í höndunum kvittanir fyrir að þau væru búin að greiða þetta gjald. Já, sagði stúlkan, en við erum búin að loka málinu, og þau verða bara að greiða aftur. Ég var frekar vantrúuð á þetta, og spurði af hverju?
Jú þetta er bara vinnuregla hjá okkur.
Þau hefðu getað dregið að greiða þangað til þau sóttu um aftur, hélt hún áfram.
En sagði ég, þeim var aldrei tilkynnt að það væri hægt að hafa það svoleiðis.
Svona er þetta bara sagði hún, þetta er vinnuregla hjá okkur.
Nú langar mig til að spyrja ef einhver getur svarað mér. Ég náði ekki í neytendasamtökin í morgun. Er þetta hægt, að Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafi þær vinnureglur að hafa fé af fólki með þessum hætti. Af því að þau borguðu á tilteknum tíma, þá brann féð inni. Af hverju var þeim ekki gert það skiljanlegt að þau þyrftu ekki að borga strax, og af hverju var þeim þá ekki sendur peningurinn til baka ? Og það sem meira er, þau eiga ekki að þurfa að greiða fyrir barnið. Sem sagt það átti aldrei að borga meira en 20.000.-
Ég tek það fram að þau hafa ekki hugmynd um þetta brölt í mér. Og munu aldrei rugga þessum báti sjálf. En ég er satt að segja alveg gapandi, er nema von að siðferðið sé ekki betra í landinu, þegar dóms- og kirkjumálaráðuneytið viðhefur þessa vinnureglu ?
Er þetta hægt Matthías ? Spyr sú sem ekki veit.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
1.5.2008 | 12:26
Knúsídúllur og 1. maí.
1. maí 2008. Dagur verkalýðsins, og einnig uppstigningardagur sem tilheyrir kirkjunni. En hefur sennilega tilheyrt fornum trúarbrögðum, þar sem kirkjan tók yfir flesta helgidaga heiðinna manna, meðan þeir voru að ná fótfestu. Nóg um það. Þetta er allavega fallegur dagur. Elli minn er bæði að spila í lúðrasveitinni og syngja með Karlakórnum, en ég kemst ekki til að hlusta, þar sem ég er nú þriggja barna móðir og kemst ekki fet En það er furðulegt hvað maður er fljótur að gleyma öllu svona stússi, þegar börnin stækka og fara að heiman. En það rifjast svo allt upp aftur, þegar maður kemst í sömu spor aftur. En eins og Elli minn segir, ætli þetta sé nú ekki enn eitt yngingarmeðalið. Heldur manni allavega á tánum.
Ég var nú bara að spá í hvort ég ætti ekki að fara út í dyr og berja pottana mína með sleif, til að mótmæla þessu háa matvælaverði. Eins og konurnar gerðu í Chile á sínum tíma. Ætli það væri ekki áhrifaríkara en allar göngur og mómæli, ef við tækjum okkur saman húsmæður og herrar og sameinuðums um að slá taktinn með pottum og pönnum hver við sínar útidyr.
Svona var veðrið í gærmorgunn, dálítið hráslagalegt svona snemma morguns, en birti til, þegar á daginn leið.
Sólin gægist á kubbann.
Systurnar bjuggu sig á leikskólann, og þetta er systraknús.
Skáparnir hennar ömmu eru mjög áhugaverðir, og þetta gula teppi er ómissandi hjá Ásthildi litlu.
Hún druslast með það um allt hús, og getur ekki farið að sofa án þess að knúsa það.
Haha amma BUUU!
Þessi skápur er alveg mátulegur fyrir mig.
Og svo er hann fullur matar líka.
Og Hanna Sól hjálpar ömmu að leggja á borðið.
Svo er það hann Brandur. Hann týndist í viku, og það kom í ljós að hann hafði lokast inn í gámi sem við geymum ýmislegt í. Hann hafði þvælst þangað inn þegar Elli var að ná í eitthvað, forvitnin drap köttinn, samt ekki Brand, því hann hefur sennilega lifað á músum í þessa viku. Hann var vel haldinn kattarkvikindið, en mikið var hann samt feginn að komast heim aftur Þó hann þurfi að þola heilmikið knús.
Kvöldið er fagurt. Það var flogið langt fram eftir kvöldi í gær, hér er að fara fram blakmót öldunga, hingað koma um 700 manns hef ég heyrt, svo nóg er um að vera. Svo hér er margt um manninn.
Hanna Sól er komin í 1. maí fötin sín, og stillir sér upp fyrir ömmu að taka mynd.
Sú stutta er líka búin að klæða sig upp á, eins og hennar er von og vísa
Júlli og Sigurjón Dagur eru í heimsókn, og Sóley Ebba gisti í nótt. Þau hafa það bara notalegt.
Prinsessan mín.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
30.4.2008 | 18:27
Taekwondo - taskan er komin fram.
Já taskan sem stubburinn gleymdi í Keflavík er komin fram. Formaður félagsins hringdi núna rétt áðan. Foreldrafélagið tók hana til handagagns, sem betur fer. Þau ætla að senda hana á föstudaginn. Okkur er báðum létt. Og takk elsku Elísabet fyrir að bjóðast til að hjálpa.
Stubbur hefur tekið gleði sína, og allt í sómanum.
Knús á ykkur öll. Og takk keflvíkingar fyrir alla alúðina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
30.4.2008 | 00:06
Hið daglega veður og smá mömmó.
Back to normal. Hehehehe... þá er komið að því hversdagslega í lífinu.
Þetta eru fimm og sex ára krakkarnir sennilega á Eyrarskjóli, sem eru í kynningu á skólanum, þar sem þau ætla að setjast á skólabekk í haust, þá fá þau að kynna sér skólann, og íþróttaaðstöðuna, sund og leikfimi. Ég held að þetta séu krakkar af Eyrarskjóli út af fóstrunum sko!
Þetta eru ungir töffarar. Og þeirra bíður spennandi skólastarf í haust.
Þessi er fyrir fjallafólkið mitt, Snæfjallaströndinn í sínu fegursta pússi, dularfull, hrein eins og fjallkonu einni sæmir.
Þá er það góðurhúsið, það grær og stækkar gróðurinn þar alltaf meira og meira.
Þetta eru strákarnir mínir Jarek og Marío. Þeir koma frá Póllandi og eru rosalega duglegir. Með betri verkamönnum sem ég hef haft, að öðrum ólöstuðum.
Móðan er út af hitanum.
Veðrið í dag var bara mjög gott, og sólin skein og það var bara þó nokkuð hlýtt.
Eins og sjá má.
Það er alveg með ólíkindum hvað smálaukarnir eru fljótir að koma upp, þegar snjórinn fer, og hvað þeir lífga upp á vorið, þessar elskur.
'Eg vona að börnin séu nógu siðsamlega klædd.
Hanna Sól var það hins vegar ekki, því hún var farin úr öllum fötum, svo ég þorði ekki að setja inn mynd af henni. Gæti misskilist.
Og sumir hafa ótrúlegan áhuga á öllu sem er hættulegt. Kallast það ekki áhættufíklar, eða er það bara saklaus ungbarnaforvitni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
29.4.2008 | 22:43
Taekwondomót í Keflavík seinni hluti.
Já Taekwondo mótið hélt áfram daginn eftir. Þá var púmse, kross og grunnæfingar, Líka Showbrake og svo hraða og þrautakeppni.
Menn byrjuðu með að hittast og æfa sig.
Og ræða málin.
Hér er einn með grunnæfingu og hann er ekki hár í loftinu. Ég er hér reyndar að tala um eitthvað sem ég ber ekki alveg skynbragð á, en vil koma til skila, svo ef einhver les þetta má alveg leiðrétta mig.
Okkar menn bíða eftir að fara og sýna sig.
Smellti mynd af þessum herramanni, hann var rosalega flottur heitir Helgi og er mjög klár.
Hér eru svo sigurvegarar í undirflokki, þið sjáið að þar eru tvær dömur með gull og silfur en það þurfti tvo bráðabana til að úrskurða með bronsið.
Einn af þeim lengra komnu, mér er sagt að þetta sé svarta belti þeirra sem eru sextán og yngri.
Það var virkilega gaman að horfa á keppendur, hreyfingar hnitmiðaðar og svo fallegar og tilkomumiklar sem mest gat verið, og því flottari sem ofar kom í beltin.
Gull, silfur og brons í efsta hópnum, stúlkan með gullið. Unglingurinn með silfrið og Helgi með bronsið.
Síðan var Showbrake. En það er svona sýning í að brjóta eitthvað með berum höndum eða fótum.
Þar voru mestmegnir brotnar spýtur, þessi ungi maður fór í gegnum pappír og svo braut hann spýtu.
Hér á að fara fram stórsýning. Stelpurnar gefa sko ekkert eftir.
Hún náði ekki þessari spýtu, en fékk salinn til að hlæja þegar hún var orðin nógu reið til að láta hendina dúndra í spýtuna og hjó hana í spað.
Helgi vann þessa keppni, þar sem hann dúndraði nokkrara spýtur og hjó svo í sundur múrstein, en af því að hann logaði, þá voru ljósin slökkt til að auka áhrifin svo ég gat ekki tekið mynd af atburðinum, en sannarlega flott show.
Svo voru þrautir fyrir börnin, átta ára og yngri, níu og tíu ára, og ellefu og tólf ára, í Taekwondo er þrettán ára taldir með fullorðnum.
Í þessari keppni var engu að síður harka en í öðrum greinum, börnin voru alveg með sigurvissuna á hreinu.
Svo voru bikarafhendingar fyrir bestu frammistöðu yfir verðtíðina. Þessi ungi maður Helgi fékk heiðursverðlaun fyrir vel unninn störf og besta árangur.
Hér voru svo verðlaun fyrir góða frammistöðu barna.
Mér fyrirgefst vonandi fyrir að geta ekki talað mig út um hvað nákvæmlega þau fengu verðlaun fyrir, en mér fannst þetta bara allt svo frábært. Og öllum gert jafnt undir höfði.
ef einhver kemur hér inn sem veit betur, vil ég að sá setji inn nákvæmlega hvað þau fengu verðlaun fyrir.
Málilð er bara að það var allt saman fyrir frábæran árangur. Og þau örugglega vel að þessu komin.
Enda hreykin eins og sést.
Þessi unga kona er allavega bjartasta vonin ásamt ungum manni, og þau eru á leið erlendis til að taka þátt í keppni og námskeiði. Ég er viss um að allt þetta unga fólk mun búa að þessu lengi, bæði þau sem fengu verðlaun og svo þau sem bara fengu þátttökupening, og bara upplifðu stemninguna, og virðinguna, hjálpsemina og allt sem þarna var.
Sigurvegarar mótsins voru keflvíkingar, enda voru þeir flestir þarna, og bestir. En við hin öll, ætlum okkur að koma tvíelfd til næstu keppni hvar sem hún verður.
Gleði keflvíkinga var óskvikinn, enda eiga þeir hrós skilið fyrir alla framkvæmd og skipulagningu. Þetta var allt saman frábært.
Ef líkja má þokka taekwondo hreyfingar við eitthvað, þá er það sennilega þokka svansins, þeir eru komnir til landsins og bíða nú í hópum eftir að snjóa leysi á hálendinu til að setjast það að og stofna fjölskyldu. Við hin bíðum svo eftir að auka vægi taekwondo á Íslandi, því ég segi það satt, þetta er bara frábært allt saman. Hvað er betra en að innprenta ungu fólki, kurteisi, virðingu og hjálpsemi, og ekki bara innprenta heldur sýna það í verki svo sannarlega með allri framkomu þeirra eldri á þessu móti. Takk fyrir mig, og um leið og ég vona að stubburinn minn fái búninginn sinn til baka, þá segi ég bara ÞIÐ ERUÐ FLOTTUST.
Af því að hún Helga bloggvinkona mín minntist á það, hvað við hefðum komið seint heim, þá var það þannig að þegar við vorum að fara upp úr Staðardalnum á Steingrímsfjarðarheiðina, þá kom í ljós að það hafði sprungið dekk hjá ungri konu, sem var á undan okkur. Þessir bílar í dag eru svo ótrúlega öðruvísi en venjulegir bílar, svo það tók rosalegan tíma að finna út úr því hvernig ætti að losa dekkið undan bílnum, fyrir utan að tékkurinn var vita gagnslaus. Sem betur fer var ég með góðan tékk í mínum bíl, svo við gátum notað hann, ásamt því að finna út úr því hvernig ætti að losa dekkið undan, en þetta tók samt sem áður hátt í klukkutíma í kalsaveðri. Þegar við svo komum upp á Steingrím, þá var mikill þæfingur, og þar ókum við fram á bíl sem var fastur í skafli. Þar sem ég er með lága drifið plús annan fídus í bílnum, þá dæmdist það á mig að reyna að losa karlinn út úr skaflinum. Það tók líka tímann sinn, því fyrst kaðallinn sem við notuðum slitnaði af átökunum, en strákarir voru með sérstyrktan kaðal meðferðis, svo ég gat losað bílinn út úr skaflinum. En það tók líka hátt í klukkutíma. Svo að við komumst ekki heim fyrr en um hálfeitt leitið. Eins gott að ég hafði fengið frí fyrir stubbinn í skólann daginn eftir. En svona getur komið upp á. Og svo fréttum við af því að eftir að við fórum yfir lokaðist heiðin. Svo fólk þurfti að gista í Hólmavík.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
29.4.2008 | 11:00
Taekwondo - ef einhver les....
þetta blogg og veit um málið, þætti mér vænt um að hann hefði samband.
En stubburinn minn gleymdi töskunni sinni í Holtaskóla í Keflavík, þegar við fórum heim. Hann er alveg eyðilagður. Hún gæti líka hafa þvælst með akureyringunum. Allur búningurinn hans var í töskunni, sem lýtur svona út;
Ég vona að einhver viti um töskuna og annað hvort hringi í mig eða sendi hana í Kúluhúsið á Ísafirði. Númerið er 861 1444. Það er hægt að senda, með því að viðtakandi greiði kostnaðinn.
Ég var ansi þreytt í gærdag, og gerði ekki neitt nema dúlla við litlu stelpurnar mínar. Sem voru rosalega glaðar að fá okkur heim aftur. En afi stóð sig líka mjög vel í pössuninni.
Hann sagði mér að Hanna Sól fór að ræða við hann um fjölskylduna, afa gamla, ömmu og afa, pabba og mömmu og svoleiðis, það er notalegt að ræðast við meðan maður ekur gönginn. Svo spurði hún; afi hvar eru pabbi þinn og mamma? Þau eru bæði farin til Guðs, sagði afi.
Skaut þau einhver ? spurði barnið. Hún er náttúrlega dóttir verðandi dýralæknis.
Annars er lífið að færast í sinn vanagang hjá mér. Og vorið heldur áfram að lifna og sækja á vetur konung. Sumar er ef til vill of mikið sagt en vorið er örugglega komið. Nú þarf að fara að huga að gróðrinum, hvernig hann hefur komið undan vetri og skipuleggja næstu skref í hreinsun og áburðargjöf. Þetta kemur allt saman.
En eigið góðan dag, elskurnar. Ég ætla að setja meira inn um Taekwondomótið í kvöld. Knús á ykkur öll, og takk fyrir að líta við og lesa það sem ég set frá mér. Mér þykir vænt um það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
28.4.2008 | 16:32
Á leið á Taekwondomót í Keflavík.
Ég er komin heim aftur eftir frábæra ferð. Við komum að vísu ekki heim fyrr en um hálf tvö í nótt, ogo ég er ennþá lurkum lamin eftir aksturinn. En það var fyllilega þess virði. Ég held að ég segi ykkur söguna í tveimur eða þremur færslum, annars verður þetta svo langt að enginn nennir að lesa.
Ég var farin að sakna þeirra áður en ég fór af stað. Þessar myndir eru teknar á föstudagsmorguninn, litlu telpurnar að gera sig klárar í leikskólann.
Það þarf ýmislegt að brasa áður en prinsessur eru tilbúnar á leikskólann.
Vængirnir, kórónan, og svo náttúrulega blóm í hárið.
Veðrið var dásamlegt.
Afi fór með þær á leikskólann.
Úlfur kveður litlu frænkur sínar. Hann er orðin mjög spenntur að komast af stað. En hann á að vera í samfloti með hinum krökkunum í smárútu, ég verð svona trússhestur með farangur.
Tilbúin og bíður eftir að bílinn komi.
Planið var að fara inn í Reykjanes til að byrja með, leyfa þeim að fara í sund, og grilla svo, halda því næst sem leið liggur til Keflavíkur.
Þessir svanir voru í Mjóafirðinum, greinilega að koma úr langflugi og biðu eftir að snjóinn leysi við fjallavötnin fagurblá.
Þar voru líka æður og bliki í tilhugalífinu. Þegar ungarnir skríða úr eggjunum yfirgefa blikarnir fjölskylduna, og láta æðarkolluna eina um uppeldið. Þá hópa þeir sig saman líkt og karlpeningurinn í afdrepinu í Smáralindinni Og nýtur lífsins.
Báran var líka köld og freyðandi.
En það var notalegt í lauginni í Reykjanesi.
Sigga fararstjóri við grillið. Hún sá svo sannarlega vel um börnin allan tíman. Þau komust ekki upp með neitt múður og kunnu því bara vel.
Móðir og sonur, reyndar segist hún ekki birtast á myndum, en ég slæ á þá mýtu hér með.
Og krakkarnir tóku hraustlega til matarins, eftir sundsprettinn. En svo var haldið af stað, suður.
Það er margt sérkennilegt í landslaginu á ströndum. Þetta eru áreiðanlega tröll sem dagað hafa uppi fyrir margt löngu.
Hér er hópurinn yfir utan KFC í Mosó, þar var snæddur kvöldverður.
Vorum komin um tíu leytið til Keflavíkur. Þeir eru skemmtilegir við að finna upp listaverk, og fara ekki troðnar slóðir.
Hér biðum við eftir því að vera lóðsaðar í skólann þar sem krakkarnir áttu að gista, ég fékk mér gistsingu á B&B, get ekki sofið á dýnu á hörðu gólfi í skólastofu. En það fór vel um krakkana, og fararstjórinn harkaði af sér.
Taekwondo félagið á Ísafirði er ekki gamalt. Það eru svona tvo til þrjú ár síðan ungur maður, fjórtán fimmtán ára, hafði samband við Íþróttasambandi, og spurði hvort hægt væri að gefa honum tíma í íþróttasalnum gamla fyrir taekwondoíþróttina. Það varð úr, og hann er búin að vera að æfa krakka í tvö eða þrjú ár. Hann er sjálfur sextán ára í dag, sá elsti í liðinu er held ég 23 ára, og svo allt niður í stubbinn sem er 11 ára gamall. Það er ótrúlegt hvað þessi sextán ára piltur hefur áorkað, og hve hann er ábyrgðarfullur og duglegur ekki eldri en þetta.
Þau tóku þátt í móti á Selfossi í fyrra, svo þetta er annað mótið sem þau fara á. Íþróttin er víst nokkuð gömul hér á landi, allavega sögðu akureyringarnir okkur að þeir hefðu verið til í 20 ár. Stærsta félagið er í Keflavík, en Selfoss er líka mjög virkt. Það sást að þessi tvö félög voru kröftug. Margir sem fylgdu krökkunum, og vel haldi utan um allt.
Mótið í Keflavík var sérlega vel skipulagt, og gekk mjög vel fyrir sig, þarna voru um 213 keppendur á öllum aldri. Og það eru mörg belti, sem þarf að hafa í huga, hvítt með gulri rönd var skilyrðið til að komast í keppnina, svo eru gul belti, blá belti appelsínu gul, rauð, og svört og allt með röndum og slíku, sem ég kann ekki skil á.
En það sem ég tók eftir var breyddinn í félagsskapnum, og hve allir voru samtaka og umhyggjusamir hver fyrir öðrum, enda gengur þetta út á kurteisi, virðingu og hjálpsemi, fyrir utan hreyfingarnar, og keppnirnar.
Ég sá að þetta er mikil fjölskylduíþrótt, því í stað þess að þar væru einhverjir flokkstjórar og fararstjórar, þá voru það foreldrarnir sem héldu utan um þetta allt saman. Mér var sagt að Keflvíkingar hefðu verið viku í að undirbúa mótið, og það voru allt saman foreldrar barnanna og þau sjálf sem tóku þátt bæði ungir og gamlir. Í þessu er ekki kynjaskipting, þar sem stelpur keppa við stráka, og menn keppa upp eða niður m belti og svo framvegis. Ég sá að stelpurnar stóðu strákunum fyllilega á sporði. Það var gaman og yndælt að sjá þetta.
Eftir morgunmat, smurt brauð hjá Siggu fararstjóra var haldið út í íþrótta sal, þar sem keppnin átti að fara fram.
Það þurfti að fara yfir stöður og spá í keppnina.
Hita sig upp.
Teygja sig vel og vendilega.
Knúsa og auka liðsheildina.
Hér er ísfirski hópurinn. Það sést hve ungt félagið er, því hér eru þeir allir með gul belti.
Svo þurfti að fara yfir pappírana, hvar hver átti að keppa, og á hvaða gólfi, en þau voru 3, A.B. og ´C.
Svona eru menn klæddir í bardaga, spörkin geta verið hörð og óvægin, ef menn eru kappsfullir. En allir eru samt vinir að lokum.
Það eru líka öklahlífar, legghlífar, armhlífar og tannhlífar. Já við erum samt að tala um virðingu, kurteisi og hjálpsemi. En þetta getur svo sem allt samræmst. Það sást á þessu stórmóti, þar sem allir voru í raun og veru góðir hver við annan.
En það er barist af hörku.
En allt eftir settum reglum.
Hjalti kennari að leggja sínum manni heilræði.
Hneygja sig og setja í stellingar og byrja..
Þannig gengur það.
Þeir voru ekki allir háir í loftinu keppendurnir, og þessi stubbur með blátt belti, hann verður einhverntímann góður.
Þessi mamma fór að æfa til að styðja við son sinn. Það er mikið um svona foreldravirkni í Taekwondo, og það er mjög gott. Her er það sonurinin sem er að hjálpa henni í keppnisbúninginn og telja í hana kjarkinn.
Já þau eru ekki öll há í loftinu þessar elskur.
Mitt lið hér á pöllunum, ég er viss um að þau hafa haft mjög gott af þessu.
Og það var smurt ofan í liðið, enda þurfa þau orku, meðan þau eru að keppa.
ég er ekki mikið inn í þessu ekki ennþá allavega, en ég held að þessi ungi maður sé sá sem er næst æðstur í félagsskapnum á Íslandi. Hann stóð sig mjög vel, eins og reyndar allir sem að þessu móti komu.
Hér er okkar fólk að búast.
Svo er verið að leggja stubbnum línurnar.
Hér má sjá að stelpur berjast við stráka, og þær gefa ekkert eftir, áttu stórkostlega sigra á þessu móti.
Stubbur komin út í alvöruna. Og þó hann ynni ekki, þá er það sigur í sjálfu sér að taka þátt, skorast ekki undan og taka því sem manni ber. þannig miðar manni best áfram.
einn af okkar mönnum sem berst við stelpu. Þau virðast vera jafnvíg, en hann sigraði hana reyndar.
Fyrri dagur að kveldi komin og fallegt veður í Keflavík, að visu kalt og vindur, en fallegt.
Ég skrapp frá og hitti tvær bloggvinkonur mínar á kaffi DUUS þær Helgu Valdimars og Elísabetu Markúsdóttur, það var yndislegt að sitja og spjalla við þessar tvær hversdagshetjur, sem reyndar hafa þurft að glíma við sömu vandamál og ég svo við höfðum um margt að spjalla.
En Ísfirðingarnir stóðu samt uppi eftir daginn með 6 brons og eitt gull, og geri aðrir betur, fyrir svona ungt félag. Og sumir að keppa á sínu fyrsta móti. En ekki síst þegar haft er í huga að kennarinn, og sá sem kom þessu öllu á koppinn er aðeins sextán ára ungur maður.
En ég ætla að setja meira inn um þetta mót seinna. Ég sá engar myndatökuvélar, ekki blaðamenn, eða neina fréttamenn, svo ég ætla mér að reyna að gera þessu skil út frá minni eigin reynslu.
Niðurstaðan eftir fyrsta daginn var; frábærlega vel skipulagt mót, mjög mikið af ungu ábyrgðarfullu fólki, sem var þarna í ábyrgðarstöðum eins og dómarar, aðstsoðarmenn og eftirlitsmenn. Það var áhrifamikið að mínu mati, og það voru jafnt ungar konur sem drengir.
En meira um þetta næst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar