Færsluflokkur: Bloggar
9.11.2008 | 00:31
Nýja Ísland á morgun.
Var að koma inn úr dyrunum og hef ekki haft tíma til að svara ykkur elskurnar, en ég vil endilega setja inn myndir af Austurvelli, ég er uppfull af orku og hreykni yfir íslenskum almenningi.
Það var ljóst þegar komið var niður í bæ, að þar var allt fullt af lífi, fólk að koma og allir mjög áhugasamir.
Loksins er fólk að vakna og láta í sér heyra, stemningin var alveg frábær, og einhugur fólksins áberandi, ég var stolt af mínu fólki.
Það var augljóst að hér var fólkið í landinu samtaka án tillits til þjóðfélagsstétta aðstöðu eða hverju sem var, þetta var fólkið í landinu, fólkið mitt í sínum samtakamætti.
Ræðurnar voru magnaðar, sérlega var ég hrifin af Einari Kárasyni, og viðbrögðum fólksins við ræðu hans.
Loksins loksins eru menn að vakna upp og láta til sín taka, ég hef beðið þessarar stundar lengi.
Það mátti vel lesa ákefð og stolt úr andlitum fólksins.
Og spjöldin sögðu sína sögu.
Við erum að upplifa nýja tíma, nýtt Ísland, nýjar væntingar, og nýja sýn á framtíðina.
Að standa saman og krefjast þess að spillingaröflin fari frá. Leyfi íslensku vori að blómstra. Víki svo nýjir tímar megi líta dagsins ljós, það er krafa fólksins, svo það er eins gott að núverandi yfirvöld hlusti og komi sér burt, því þau njóta einskis trausts, hvorki hér heima né erlendis, eru reyndar aðhlátursefni út i heiminum.
Loksins gerðist eitthvað sem skiptir máli.
Héðan af verður ekki aftur snúið. Boltinn er byrjaður að rúlla.
Úr öskunni mun fuglinn Fönix rísa. Nýtt Ísland með þúsund radda brag mun óma um heimsbyggðina. Á morgun!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.11.2008 | 10:55
Pólverjar hjálpa, ásamt færeyingum og norðmönnum.
Ég verð að segja það, að ég er hrærð yfir þessum fréttum. Eins og þegar fréttist af aðstoð færeyinga, og norðmenn ætla líka að vera okkur innan handar. Það er nú svo, að þegar kreppir að, þá kemur fyrst í ljós hverjir eru hinir raunverulegu vinir og hjálparar. Og hverjir eru froðusnakkarar og fleður.
Ég er stödd í Reykjavík mín kæru, og hef þess vegna ekki komist inn á netið, almennilega, en ég varð að kommentera á þetta. Ég var reyndar heppinn í gær, ég hef núna um langt skeið ætlað að kaupa mér glerskáp í Ikea, til að setja steinana mína í. Ég ákvað svo í gær að láta nú verða af því að gera þetta. Þarna var skápur sem ég var mjög ánægð með, en hann var ekki til, bara í pöntun, en svo var annar, sem ég gat svo sem alveg sætt mig við, og ákvað að láta slag standa og kaupa. Hann kostaði rúmar 17.000.- kr. Þegar ég kom í hús með skápinn, heyrði ég í fréttunum að allt ætti að hækka um fjórðung daginn eftir (í dag). Þó auðvitað svíði að þessi hækkun yrði, þá var ég samt ánægð fyrir mína hönd að hafa keypt skápinn. Mann munar nú um hvern aurinn á þessum síðustu og verstu.
En ég fer heim á morgun, fer á miðstjórnarfund og svo ætla ég að láta sjá mig á Austurvelli, áður en ég legg af stað vestur, til að sýna samstöðu mína með öðrum íslendingum. Ég vona að það mæti sem flestir. Þetta fer að verða pínlegt, þ.e. aðgerðarleysi stjórnvalda og skortur á upplýsingum. Og ekki bara það, heldur liggur stjórnin undir ámælum bæði frá samflokksfólki og öðrum um að alþingi fái ekki að koma nærri vinnunni. Hverslags eiginlega feluleikur er þetta eiginlega af fólki sem er rúið trausti allstaðar að ?
Kærar þakkir til ykkar Pólverjar, Færeyingar, Norðmenn með stórum staf, það er gott að finna ljós og vináttu mitt í öllum þessum þrengingum.
![]() |
Pólverjar munu lána Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
4.11.2008 | 23:30
Pabbi kemur í heimsókn, og Úlfur eldar matinn.
Pabbi kom í dag. og það voru fagnaðarfundir. Hanna Sól var lasin svo hún fór ekki á leikskólann, og Ásthildur litla var kvefuð, svo hún fór ekki heldur. Það var nóg að gera með tvær uppátektarsamar telpur hjá ömmu sín í dag. En það var bara gaman.
Það voru fagnaðarfundir, full taska af dóti VEIII!
Margt að skoða og muna eftir.
Sú minnsta lét sitt ekki eftir liggja, mjög áhugasöm hehehehehe...
Og svo var voða notalegt að gantast við pabba sinn.
Ójá !!!
En Úlfur eldaði matinn í kvöld, og það var TACO. Hann bæði eldaði og lagði á borðið.
SKreytti meira að segja borðið mjög flott. Hann er rosalega duglegur.
Og maturinn var mjög bragðgóður.
Gott að eiga svona góðan kokk á heimilinu.
En á morgun legg ég í hann, mjög snemma í fyrramálið. Ég bið ykkur að gleyma mér ekki. Knús á ykkur öll sömul, og góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
4.11.2008 | 19:22
Erum við menn eða mýs ?
Það er von að fólki sé ofboðið, og er þó búið að vera langlundargeð í landanum, alveg með eindæmum. Nú eru allir búnir að gleyma hver var dómsmálaráðherra í olíusamráðinu, og hvernig það mál allt saman gekk fyrir sig, eiginmaður ráðherrans spilaði frítt. Núna er það menntamálaráðherrann sem vill SAMÚÐ fólksins í landinu, af því að hún hafi tapað svo miklu, og vill ekki liggja undir þessum grun. Hversu lengi ætlum við eiginlega að þegja og sleikja valdið ? Mér er spurn? Í öllum öðrum vestrænum ríkjum væri ríkisstjórnin í heilu lagi búin að segja af sér, hefði verið þvinguð til þess. En hér ónei, þeir ætla að laga til, og AXLA ÁBYRGÐ. Það er bara hlægilegt að þeir sem eiga sökina þó ekki sé nema að hluta til, telji sig hafa það traust sem þarf til að laga til.
Er ekki komin tími til að við fylkjum liði og mótmælum öll sem eitt, litli verkamaðurinn, litli símamaðurinn, litli bankamaðurinn, og litli Jón og Gunna. Við sitjum öll í sömu súpunni, en viljum ekki láta veiða okkur upp, því þá þurfum við að kalla á hjálp. Og það er svo hallærislegt ekki satt ? Þá er nú betra að muldara bara einn út í horni, eða æsa sig á kaffistofunni, eða skrifa reiðilestur á bloggið, en að mæta á staðinn og sýna samstöðu í verki....................... nei það er of kalt, of langt, of mikið vesen..... En hver er ég að dæma, ég hef ekki komist til að mótmæla, vonandi tekst mér að komst næsta laugardag, og þá vil ég sjá ekki bara nokkur þúsun, heldur gott meira en það. Ég er rosalega ánægð með það fólk sem hefur haft frumkvæði að mótmælunum hingað til, þau eiga hrós skilið. Við hin sem bara þurfum að mæta og láta sjá okkur, eigum tvímælalaust að gera það, hér er nefnilega okkar eigin framtíð í húfi, hvorki meira né minna. Ef við látum þetta fólk komast upp með ósóman núna, þá verður endanlega ekki aftur snúið. Því þá erum við búin að sýna að við erum ekki víkingar heldur þrælarnir sem þeir tóku með sér. Þeir eru þá allir dauðir og kakkalakkarnir einir eftir.
![]() |
Lykilmenn skulduðu 80 milljarða króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.11.2008 | 14:28
Telpur og túlípanar.
Ásthildur hefur tekið upp á því að vilja máta prinsessufötin frá stóru systur. Hún er ef til vill að breytast úr skæruliða og grallara í prinessu, ég vona samt ekki, því hún er frábær eins og hún er.
en Lababæ er nú samt mest í uppáhaldi.
Áhuginn leynir sér ekki
HEhehehe....
Það er bara einn þáttur í Lababæ sem hún er hrædd við, og það er þegar Glanni leikur geimveru, þá fer hún venjulega fram, en gægist af og til inn um dyrnar, eða kallar í ömmu til að sitja hjá sér, eða í síðasta lagi, einfaldlega slekkur á sjónvarpinu. En hún deyr ekki ráðalaus.
En hún getur nú líka verið flott...
Þegar hún vill svo við hafa.
Auðvitað þarf hún líka að máta Sollu stirðubúningin.
Og svo dansar hún með músikinni.
Stóra mín lætur sér fátt um finnast, hún er klár í að fara á leikskólann. Annars er hana farið að hlakka mikið til, því pabbi kemur á morgun, og verður með þær hér í kúlunni, meðan við afi skreppum suður. Það verður gaman fyrir þau öll að fá að vera saman.
En sem betur fer tókst mér að fara að setja niður laukana. Eða mínir menn. Ég tímdi ekki að skemma sumarblómabeðin í haust, svo snjóaði, en nú er hann loksins farin svo hægt er að koma laukunum niður.
Það eru engin vettlingatök hjá mínum mönnum við að koma laukunum niður í moldina.
ég hef nú grun um að innst inni finnist þeim gaman að þessu.
Að minnsta kosti er ég alveg viss um að þeim finnst gott að horfa yfir störfin sín í vor.
Þegar túlípanabærinn skartar sínu fegursta.
Vona að þið eigið góðan dag mín kæru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.11.2008 | 15:53
Smá mömmó og Ísland - hvað er í spilunum ?
Það eru hlýindi í dag og milt veður. Úlfur, afi og Hanna Sól eru farin í sund, við fórum öll í gær saman í sund á Suðureyri.
Er hún nokkuð með myndavélina, spurði Jói og hló. Ég held að honum hafi ekkert þótt það leiðinlegt að vera á mynd um daginn.
Þessi mynd var tekin í gær, en snjórinn er að mest leyti farin úr byggð í dag.
En himnagalleríið er opin.
Þessar voru teknar í gærkveldi.
Evíta litla var í pössun hjá ömmu.
Afastelpa.
Sóley Ebba kom líka, og þau Úlfur hjálpuðu heilmikið til.
Afaknúsírófa.
Gott að hafa sólgleraugu hehehe.
Hanna Sól og Úlfur fengu svo að gista hjá Inga og Möttu. Það var spennandi.
Þjóðfélagið okkar er að rúlla yfir, ég hef heyrt að skuldir okkar geti í besta falli orðið um 6 til 700 milljarðar, og ekki allt komið fram ennþá. Við erum því tæknilega gjaldþrota, og um tómt mál að tala að ganga inn í Evrópusambandið. Enda yrði það þá svo að skuldir okkar yrðu allar í í Evrum, og myndu þess vegna snarhækka, og er nú nóg þó við skuldum í íslenskri krónu. Ég held því að við verðum að reyna að koma skikki á krónuna, til að hægt sé að skipta yfir í annan gjaldmiðil. Annars var ég að heyra frábæra tillögu um að mynda sambandríki með Færeyjum, Noregi og Grænlandi, þá værum við orðin matarkista norðurálfunnar, og þó víðar væri leitað. Það væri mér miklu þóknanlegra en að ganga inn í Evrópusambandið.
Vissuð þið að skuldir sjávarútvegsins eru í dag um 500 milljarðar ? Þetta er greinin sem Þorgerður Katrín fullyrti að stæði styrkum fótum í þjóðfélaginu. Ætli það sé nú þannig, og ætli hún hafi nú mikið vit á því.
Það hvíslaði því að mér lítill fugl, að Hafró myndi "finna" kreppufisk í haust svo þorskkvótinn yrði hækkaður um 30.000 tonn, svona sérpantað frá L.Í.Ú, það verður að leyfa þeim að lifa, þó sjávarþorp og smábátar séu skornir niður við trog. Og það mun ekki breytast nema við losnum við þessa ríkisstjórn.
Eigum við að taka upp evru, þó við þurfum að kaupa hana ágenginu 135 eða meira. Hvað ætli það hækkaði skuldir okkar ?
eigum við ef til vill að snúa okkur að bestu vinum okkar Færeyingum ?
Þeir höfðu vit á að kasta út kvótakerfinu íslenska, og fengu til sín íslenskan ráðgjafa, sem Hafró vill ekki hlusta á. Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Færeyja fullyrti í mín eyru að þeir væru gjaldþrota í dag, ef þeir hefðu fylgt íslenska kvótakerfinu og Hafró.
Nei ætli við ættum ekki að sæja okkur líka heim. Við erum jú bananalýðveldi ekki satt
Ég hef heyrt góða tillögu til sparnaðar. , sem hljóðar þannig, að skera allverulega niður í utanríkisþjónustunni, loka flestum sendiráðum, og fá aðstoð frá hinum norðurlöndunum við að sinna okkar fólki erlendis. Það kostar til dæmis enga smápeninga húsnæðið sem við eigum í Japan, eru það ekki 200 milljónir ?
Það mætti spara mikin pening þar, við erum nefnilega með óþarfa flottræfilshátt í utanríkisþjónustunni. Einnig þarf að fækka stórlega ferðalögum þingmanna og ráðherra erlendis. Og það er algjörlega óásættanlegt að þeir sem eru að hætta sem ráðherrar og þingmnn fari í heimsflakk, svona sem einhver uppbót á lífið. Eins og til dæmis Halldór Blöndal og fleiri. Við höfum hreinlega ekki efni á svona lengur. Nú þarf að spara, og það er ekki bara almenningur sem á að þrengja buxnastrenginn, heldur viljum við sjá forystumenn okkar fara á undan með góðu fordæmi, svona í það minnsta áður en þeir hrökklast frá og þurfa að fara að vinna fyrir sér eins og aðrir í þessu þjóðfélagi. Og hana nú.
En ég segi bara eigið góðan sunnudag, og megi næsta vika vera ykkur góð, svo og öll framtíðin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
1.11.2008 | 12:55
Bananabrauð - og mótmælafundur.
Lognið er að flýta sér hér fyrir vestan í dag, en sólin skín á okkur samt sem áður.
Ég lofaði að setja inn bananabrauðsuppskriftina hans Úlfs og hér kemur hún.
2. bananar
1 1/2 bolli ´dl. púðurskur.
2 egg
1/2 bolli mjólk.
1/2 dl. hveiti
1 1/2 tsk natron
Hrært saman, sett í form og bakað í 1 klst. við 180°
Þetta er einföld en afskaplega bragðgóð uppskrift. Verði ykkur að góðu.
Mér tókst að gleyma mjólkinni, Ágústa amma hans Daníels hringdi í Úlf og leiðrétti mig. Þetta er nefnilega uppskriftin hennar. Takk Ágústa mín.
Einn smá brandari svona á laugardegi. Á síðustu og verstu tímum, þarf að huga að fá sér starf. Hér er ein atvinnuauglýsing, hún er að vísu nokkuð gömul, var að taka til í tölvunni og fann þetta frá 1998.
Litlahraun, 31. Júní l993. | |
Atvinnuumsókn | Undirritaður sækir hér með um starf sjónhverfingamanns sem auglýst var í Snapaslúðri síðastliðinn mánudag. |
Starfsreynsla og lífsferill | Ég hef haft nokkrta reynslu í þessum hæfileikum mínum láta ýmsa hluti hverfa, jafnvel sjálfan mig ef því er að skipta. Þegar ég var fjögurra ára bar á þessum hæfileikum mínum en það sumar barst kvörtun frá Kaupfélaginu og var ég vinsamlegast beðinn um að beina hæfileikum mínum annað. Ég lét þetta ekki aftra mér frá því að æfa mig oft og reglulega og hef þó ég segi sjálfur frá náð þó nokkurri færni. Sjálfur hef ég horfiðð nokkrum sinnum. Mér varð fljótt óvært á heimaslóðum og lét mig hverfa þaðan og hef ég þurft að endurtaka þann leik nokkrum sinnum. |
Áhugamál | Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af skartgripum, úrum og hvers kyns lausafjármunum og er haldilnn hálfgerðri söfnunaráráttu hvað það varðar. |
Annað | Ég get hafið störf eftir tvær vikur þegar ég losna út. Helst vinn ég á nóttunni eða undir morgun nokkru fyrir sáólarupprás. |
Virðingarfyllst, Ruppur Roðfletti |
En svo smá prinsessublogg.
Á leið í leikskólann.
I fyrsta skipti í prinsessukjól, og vildi fara út honum strax aftur
Sæt saman.
Stóra prinsessan mín.
Svo vil ég minna ykkur á fundinn, núna á eftir. Ég verð með ykkur í huganum. Vonandi mæta sem flestir. það þarf að syna forystusauðunum að okkur er alvara. Við treystum þeim ekki lengur, og viljum að þau víki. Við viljum nýtt blóð, nýtt Ísland.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
31.10.2008 | 11:28
Hugleiðingar um jól og jólagjafir herrans árið 2008.
Ég veit að jólin verða mörgum erfið í ár. Ástandið í samfélaginu er þannig, að margir eiga um sárt að binda. Mig langar því að koma á framfæri smá hugmyndabanka um jólagjafir, sem ekki kosta mikið, eða jafnvel bara vinnu og umhyggju. Það þarf nefnilega ekki að kosta miklu til. Nú gildir að láta dýru gjafirnar eiga sig, og hlú að því einlæga og kærleiksríka.
Hér eru nokkrar hugmyndir;
Margir eiga efnisafganga eða garn inn í skáp, sem fólk veit ekki hvað á að gera við. Það má taka fram saumavél, nál og tvinna eða garnafganga, og sauma, hekla eða prjóna föt á uppáhaldsdúkku prinsessunnar.Þeir sem eru duglegir að teikna, geta teiknað dúkkulísur, þar má láta hugann reika og teikna allskonar falleg föt sem fylgja. Þetta getur líka orðið hin besta skemmtun.
Það er hægt að fá spýtur, sög og nagla, og smíða bíla, dúkkurúm eða dúkkuhús, foreldrar eða afi og amma, geta átt góðar stundir að föndra jólagjafirnar í atvinnuleysinu.
Síðan má föndra allskonar innanstokks muni, sófa, borð stóla mottur, rúm og bara hvað sem er. Þetta eru pottþétt velþegnar gjafir.
Fyrir fullorðna má föndra ýmislegt, eins og til dæmis sauma eða prjóna skemmtileg föt utan á rauðvínsflöskuna, tekönnuna, eða bara hvað sem er. Það má nota fallegar litlar öskjur, til dæmis utan af ostum, höfðingjaöskjurnar eru reglulega flottar, og camerbert
Þessar öskjur má mála eða sauma utan um, í fallegum litum, og fylla af ást og kærleika. Eða jafnvel sem skartgripaskrín. Óendanlegir möguleikar, bara útsjónarsemi.
Þeir sem eru duglegri á tölvurnar, það má gera allskonar skemmtileg plaköt, eða myndir af viðkomandi. Árita og prenta út.
Eða mynd með fallegu ljóði, annað hvort frumsömdu, eða frá þekktum höfundum.
Svo eru til manneskjur sem hafa gaman af að semja sögur, hvað er skemmtilegra en saga þar sem maður er sjálf söguhetjan samin af afa eða ömmu. Gafst mjög vel hjá mér í fyrra.
Eins og sést, þá eru margir möguleikar að gera aðventuna og aðdraganda jólanna gleðilega, og sameinað fjölskylduna, þó lítið sé í buddunni, og alveg óþarfi að hætta að gefa jólagjafir.
Og mín reynsla er sú, að einmitt þessar litlu, persónulegu gjafir gleðja mest. Af því að fólkið, börnin okkar skynja að við höfum lagt eitthvað á okkur til að gleðja.
Og eins og ég sagði áðan, þá leynist oft eitthvað nothæft í skápum og skúffum, sem hefur einmitt beðið eftir réttu hlutverki. Nú er rétti tíminn til að fara að skipuleggja hvað það er sem við viljum gera og hentar hverjum og einum. Og það verður jafnvel til þess að þessi tími myrkurs og örvæntingar verði ánægjulegri og sameini fjölskylduna meira en okkur órar fyrir. Þið getið líka komið með fleiri hugmyndir hingað inn. Eitthvað sem ykkur dettur í hug, eða hafið gert, og viljið miðla öðrum.
Það er nefnilega það smáa og einlæga sem gefst best. Látum þessi jól verða jól kærleikans, einfaldleikans og sameiningu fjölskyldunnar.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.10.2008 | 22:08
Fallegar myndir frá Vestfjörðum - og smá mömmó.
Ég er með nokkrar fallegar myndir sem ég tók í gær og dag. Það var mjög fallegt veður báða dagana, og á þessum árstíma og frameftir eru litirnir dásamlegir í náttúrunni. Það er friður yfir þessum myndum, ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum, að fá náttúrukraft í sálina sína.
Himnagalleríið opið í gær.
Birtan er ólýsanleg á þessum tíma, þegar sólin nær ekki alveg upp fyrir fjallatindana, en gægist aðeins, og lýsir upp himininn og fjallatoppana.
Dásamlegt ekki satt?
Sjá roðan í austri, og snæfjallastsröndin blasir við í öllu sínu veldi.
En Súgandafjörðurinn skartar fagurbláma. kaldur en tignarlegru.
Fjöllin spegla sig í firðinum, eins og fallegt listaverk.
Við eigum þetta fallega land, og það getur enginn tekið það frá okkur. Við munum berjast fyrir því að fá að vera hér. Byggja líf okkar upp aftur, gefa skít í þá sem vilja forsmá okkur, og svínbeygja. Þeirra er skömmin, og þeir munu ekki sigra, það mun aftur á móti réttlætið.
Í faðmi fjalla blárra, þar freyðir aldan köld, eða speglast sléttur sær.
Við eigum líka roða í vestri ef vel er að gáð.
Ísland er land þitt....
Þessi er fyrir Magný og Rannveigu.
ég get sagt ykkur að í mörg ár saknaði ég þess að sjá ekki sólina í skammdeginu, eða alveg þangað til ég var tvo vetur í Hveragerði og þurfti að aka oft til Reykjavíkur. Með skammdegissólina í augum endalaust, sá ég, að það er betra að hafa hana bak við fjöllin.
En það er ef til vill bara Pollýannan í mér
Hafið engar áhyggjur, þær fá ekki að leika sér með plastpoka, nema augnablik undir umsjá ömmu.
Leikskólinn bíður.
Best að fá sér aðeins að smakka.
Maður getur nú verið eins og prinsessa stundum.
Úlfur og bananabrauðin hans. Ég ætti ef til vill að setja uppskriftina hér inn.
Kate Moss, nei Hanna Sól.
Snjór er nefnilega nammi sko !!
Góður til átu nefnilega.
Þessa mynd tók Úlfur, þetta er listaverk hehehehe...
Og með þessari hlýlegu - köldu - mynd býð ég ykkur góða nótt, látið ykkur dreyma vel, og hugsið vel um ykkur sjálf. Maður getur ekki gefið neinum neitt, ef maður hlúir ekki að sjálfum sér og sálinni. Knús á ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
29.10.2008 | 14:05
Við erum þjóð öfganna.
Og það er skammt öfga á milli. Við dásömuðum útrásina, og margir spiluðu með, eða allavega dáðumst að þeim sem urðu moldríkir á stuttum tíma. Margir standa nú brenndir á sálinni og í veskinu sínu, vegna þess að þeir treystu útrásarliðinu, ríkisstjórninni, tilskipuðum eftirlitsaðilum og ekki síst Seðlabankanum.
Allt reyndist þetta vera tál, og nú stendur þetta fólk á nærbrókinni einni saman, eins og keisarinn forðum, og reynir hver sem betur getur að forða sér, og ljúga sig út úr aðstæðunum. Helst vill það kenna almenningi um allt saman. Þar er hin breiðu bökin.
Sem betur fer virðist almenningur loksins ætla að hrista af sér slenið og foringjadýrkunina, og krefjast réttlætis, og ábyrgðar. Það er mjög ánægjulegt.
En, eru menn virkilega að vonast til þess að við förum úr öskunni í eldinn ? Í hræðslukastinu sem er í gangi þjóðfélaginu í dag, heimta menn að ganga í ESB. Ég set stórt spurningamerki við það.
Erum við svo bláeyg að halda að það hjálpi okkur eitthvað ? Svona til lengri tíma litið. Ég las um daginn frá einhverjum ráðamanni frá gömlu austur Evrópu, að stjórnunin í ESB væri eins og kommúnistaríkjunum hér áður fyrr. Sjá menn ekki skóginn fyrir trjám ?
Þessi krafa hryggir mig. Ég held að við ættum að reyna að komast út úr þessu af sjálfsdáðum. Og ég er viss um að við getum það. Þegar landnámsmennirnir komu fyrir meira en 1000 árum, þá voru hér bara refir og nokkrir munkar (papar).
Það voru landnámsmennirnir sem fluttu með sér það sem þurfti til að koma á þjóðfélagi. Það ætti að vera auðveldara í dag en þá.
Það sem brýnast er að gera, er að styrkja og styðja við það sem við eigum hér heima. Landbúnaðinn, fiskveiðarnar og hugvitið. Við eigum þetta allt í góðum mæli. Auk þess eigum við dugnað og útsjónarsemi. Ef við bara setjumst niður og hugsum málið.
Við höfum nefnilega margt að bjóða fram, til að selja útlendingum. Hreinar góðar landbúnaðarafurðir, mjólkin með því besta í heimi, skyr, smjör, og hvað eina sem gert er úr húsdýrunum okkar. Við eigum líka bestu ull í heimi. Ull sem auðvelt er að gera að hátískufatnaði, með góðri hönnun, og markaðssetningu. Frú Dorrit er nú þegar byrjuð að auglýsa hana.
Refa- og minnkaskinnin okkar eru hágæðavara, í öðru sæti á heimsmarkaði, hvað gæði varðar.
Við eigum líka besta fiskinn, það þarf að vísu að vinna hann meira hér heima, í frystihúsum, sem eru í hæsta gæðaflokki í heiminum. Besta hráefnið þar líka, það má meira að segja útbúa hráefnis vottun, hvaðan fiskurinn er og hvaða bátur veiddi hann, með vistvænum útbúnaði, því við myndum örugglega byrja á því að henda þessu arfavitlausa fiskistjórnunarkerfi. Þjóðir heims þarfnast matar, og við eigum stóra matarkistu, sem ekkert mál er að fylla. Ekki gleyma harðfiskinum.
Í dag er hægt að rækta korn allskonar á Íslandi, við bruggum okkar eigin bjór, sem er bestur vegna hreina vatnsins, vodka og aðra sterka drykki framleiðum við líka.
Það yrði að vísu að þjóðnýta jarðirnar sem keyptar hafa verið og ekki er stundaður búskapur á. Og fá fólk til að búa á þeim, útlendinga ef íslendingar vilja ekki.
Svo má benda á laxveiðiárnar, sem útlendingar sækja í miklum mæli, silunginn okkar, og hreindýrin.
Náttúrfegurð er mikil og orkan í náttúru Íslands er einstök og rómuð.
Fólk gerði grín að því hér mitt í öllum dansinum kring um gullkálfinn hvort menn ætluðu að lifa á fjallagrösum og lopapeysum.
Ég segi; Af hverju ekki ? Með góðri markaðssetningu er hægt að selja fjallagrös sem hágæðavöru, við höfum dúninn okkar, hann ætti að fara að seljast aftur, nú þegar krónan er ekki svona yfirspennt, lúxussængur væri hægt að fá á ný.
Við getum framleitt grænmeti og ávexti til útflutnings, ó já, með þeirri orku sem við eigum, getum við framleitt hreint og ómengað grænmeti undir gleri með lýsingu. Það væri líka hágæðavara.
Við eigum allskonar fólk, sem er á heimsmælikvarða, bæði listamenn og iðnaðarmenn á öllum sviðum. Vorum við ekki að vinna til gulls í matargerð um daginn ?
Við gætum komið upp flottum veitingahúsum um allt land, þar sem hægt væri að kaupa góðan íslenskan heimilismat. Nýmjólk beint af kúnni, rjóma og vöfflur.
Við höfum þetta allt saman.
ESB hvað ? Ég bið fólk aðeins að slaka á og hugsa málið. Ef við losnum við þessa dauðu krumlu sjálfstæðisflokksins, flokksræðisins og spillingarinnar af höndum okkar, og kjósum fólk sem vill réttlæti og sanngirni handa öllum. Þá er okkur í lófa lagið að koma okkur út úr þessum vanda á eigin spýtur.
Eitt að lokum, við eigum ef til vill aðgang að olíu á Drekasvæðinu, mjög líklega. Og er okkur þá ekki borgið.
Ágætu landar, við eigum allt sem til þarf. Það er sáralítið sem við þurfum að flytja inn, ef við hugsum málið aðeins. Ekki fara inn í enn eitt báknið. Losum okkur einfaldlega út úr því sem við erum í, og byrjum upp á nýtt. Með sparnaði og ráðdeild, með því að láta þá fá að njóta sín sem eru dugmestir, og treysta hvort öðru, þá gengur þetta. Ég er alveg viss um það. Og þá loksins getum við sagt að við séum frjáls þjóð. Laus undan oki kvalara, sem hafa einokað, þvingað, rænt og nú að lokum komið okkur á kaldan klaka.
Ekki gleyma að þeir sem hafa einokað okkur s.l. 17 ár, hafa bundið hendur okkar á bak aftur og bannað mönnum að bjarga sér, til að hygla sínum pótintátum, með því að banna mönnum að veiða fiskinn í sjónum, sett kvóta á bændur, og bannað þeim að gera að eigin framleiðslu. Boð og bönn sem hafa sett hamlandi hönd á dugmikið fólk og bannað því að bjarga sér. Nú horfir öðruvísi við, ef við förum að framleiða matvöru ofan í svangan heiminn.
Ættum við ekki allavega að reyna ?
Mitt faðirvor
Ef öndvert allt þér gengur
og undan halla fer
skal sókn í huga hafin
og hún mun bjarga þér
Við getum eigin ævi
í óskafarveg leitt
og vaxið hverjum vanda
sé vilja beitt.
Hvar einn leit naktar auðnir
sér annar blómaskrúð
það verður sem þú væntir
það vex sem að er hlúð
Þú rækta rósir vona
í reit þíns hjarta skalt
og búast við því besta
þó blási kalt
Þó örlög öllum væru
á ókunn bókfell skráð
Það næst úr nornahöndum
sem nógu heitt er þráð
Ég endurtek í anda
þrjú orð við hvert mitt spor
Fegurð-Gleði-Friður
Mitt Faðirvor.
Ég vildi að ég hefði ort þetta kraftmikla ljóð, en ég ætla að gera það að mínu faðirvori, og bið ykkur að hafa það líka nærri hjartanu á þessum erfiðu tímum.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar