5.4.2014 | 12:14
Hafur, huðna, kiðlingur. Ær, hrútur, lömb?

![]() |
Kind og geit eignuðust afkvæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.4.2014 | 01:49
Orð í eyra.... eða þannig.
Við erum í rauninni öll eins innst inni. Hvaða þjóðerni sem við teljum okkur til, hvaða trúarbrögð eða siðvenjur við erum vön, þá er mannveran í eðli sínu sjálfri sér samkvæm.
Ég tók að mér að leyfa ungum dreng frá El Salvador að gista hjá mér næstu þrjá mánuðina, fyrir fjölskyldunar mína frá El Salvador, sem ég elska mikið og eru svo yndæl og frábær, og gott að geta verið innan handar.
Jorge, eða hvernig það er nú annars skrifað, kom í gær inn á heimilið, hann er voða yndæll og glaður ungur maður, eins og það fólk sem ég hef kynnst frá þessu fjarlæga fallega landi, sem samt er svo fullt af ofbeldi og dimmum skuggasundum.
Í kvöld vorum við svo boðin í mat til fjölskyldunnar minnar þarna suðurfrá, í babúsas, sennilega ekki rétt skrifað, en ég hreint og beint elska þennan rétt, litlar maískökur fylltar með kjöti eða osti og svo eru þær teknar sundur og sett inn í vel kryddað salad.

Isabel er meistara kokkur og babúsað hennar er hreint sælgæti. Við nutum okkar vel í kvöld.

Jorge er duglegur drengur og sérlega ljúfur.

Smá skúlptúr fyrir utan blokkina þeirra, svona geta listaverk myndast alveg af sjálfu sér, svo flott.

Stubburinn minn fékk nýjan (gamlan) bíl í dag, að okkar álitið var eiginlega ódýrara að kaupa gamlan bíl fyrir hann en að leggja okkar bíl undir
Hann er alsæll, við vonandi líka, en það á eftir að koma í ljós.
Já svo sannarlega erum við öll voða lík innst inni, og gefið tækifæri til að sýna það, þá kemur það í ljós. En við verðum líka alltaf að gefa það tækifæri til ungviðsins, að þau fái að blómstra og vera treyst, en jafnframt látinn vita að það traust ef brotið er, verður erfitt að bæta.
Og þegar ég hugsa um útrásarvíkingana okkar, og allt siðleysið sem hrjáir okkur núna, þá hefði ef til vill verið betra að foreldrar þeirra hefðu innprentað þeim ábyrgð, staðfestu og heiðarleika, þá væri heimurinn ef til vill betri, og svo sannarlega Ísland í betri málum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2014 | 13:40
"Lýðræðislegi armur Sjálfstæðisflokksins".
Hlustaði á Hádegisfréttir RUV áðan, jú maður verður jú að hlusta af og til, til að sjá hvort umræðan breytist ekki með nýjum útvarpsstjóra
En sem sagt þarna var viðtal við Svein Andra Sveinsson, þar sem hann lýsti því yfir að hann hefði opnað síðu á fésbókinni til að skoða stofnun nýs Sjálfstæðisflokks. Hann sagði að nú væri raunveruleg hætta á klofningi í Sjálfstæðisflokknum í fyrsta skipti, þar sem það væri núll svigrúm fyrir ólíkar skoðanir í flokknum. Svo kom í ljós að þessar ólíku skoðanir voru um aðild að ESB.
Nú hefur það komið fram að meiri hluti sjálfstæðismanna ákvað á síðasta og mig minnir líka þarsíðasta landsfundi að Ísland væri betur komið utan ESB. Yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar er líka að slíta viðræðum.
Það segir að þarna hafi verið tekinn lýðræðisleg ákvörðun um stefnu Sjálfstæðisflokksins, þó Bjarni Ben hafi verið dálítið valtur á þeim fótum á tímabili. En það nægir ekki "hinum frjálslynda armi" flokksins.
Þeir ætla að kljúfa sig út, frá þessum ólýðræðislegu öflum sem voga sér að framfylgja vilja stefnumörkun hans.
Þetta er svo sem allt hið besta mál, en ég sé svona fyrir mér, þegar þeir eru búnir að stofna sinn frjálslynda flokk um ESB, og svo kemur einhver og vill eitthvað annað, hvort það sé ekki núll komma eitthvað prósent svigrúm þar, svo þá þarf auðvitað að kljúfa þann flokk aftur, og svo framvegis.
Spyrlinum fannst ekkert merkilegt að Sveini Andra fannst ekki vera neitt svigrúm í flokknum, af því að þetta eina mál var ekki í lagi, heldur hafði meiri áhuga á því hvort Þorsteinn Pálsson og Jóhann Benediktsson myndu leiða hann.
Einhvern veginn hefur mér sýnst að sjálfstæðismenn hafi kokgleypt ýmislegt á löngum ferli, og það jafnvel meiriháttar mál eins og sjávarútvegsmál, umhverfismál og fleira, en lotið í lægra haldi fyrir meirihlutanum.
Man eftir kempu úr Bolungarvík, aflakló sem vildi breyta fiskveiðistefnunni og fór á marga aðalfundi til að reyna að hafa áhrif, en enginn hlustaði. Man líka eftir Ólafi F. Magnússyni og hans náttúruverndarsjónarmiðum. Þorsteinn Pálsson, Sveinn Andri og slíkir hafa auðvitað hlustað á slíkar raddir með jákvæðu hugarfari? Eða er það ekki augljóst, þegar menn eru svona víðsýnir og málefnalegir.
Annars mega gömlu stjórnmálaflokkarnir skiptas sér í eins margar einingar og þeir geta, það væri bara fínt að fá einn hrærigraut, svo við neyddumst til að taka upp persónukjör. En þangað til ættum við ef ril vill að gefa nýrri framboðum meiri gaum, skoða hvað þau hafa fram að færa, og gleyma í bili þessum gömlu pólitíkusum eins og Þorsteini , Sveini Anrda og fleirum, sem hafa löngu gleymt því um hvað lýðræði snýst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.3.2014 | 18:27
Ja hérna hér, hvar endar svona?
Það er óhætt að segja að þetta sé óheillaþróun, og ég er nokkurnveginn viss um að þarna eru aðeins nokkrir frekjudallar sem fara fram fyrir hönd allra pípara. Hef enga trú á því að heil stétt beiti sér svona. Þess vegna á að fá upp nöfn þeirra sem svona haga sér, birta þau og sniðganga síðan þá sem haga sér svona. Þetta er nefnilega ólíðandi frekjugangur að mínu mati.
Það væri nú aldeilis er þetta ætti að þróast vona, menn gætu ekki keypt sér múrspaða eða spæsl, ekki keypt sér garðsláttuvélar né sláttuorf, skrúfur og hamar eða sög. Auðvitað er þröngt í búi hjá mörgum, en menn ná ekki vopnum sínum með svona yfirgangi. Ef menn mega ekki kaupa sér eða leigja tæki til að komast betur af, þá er nú stutt í Hafliða allann.
![]() |
Bannað að leigja almenningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
28.3.2014 | 16:41
Byggðalög í herkví.
![]() |
Þetta er áfall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.3.2014 | 11:08
Gott gengi Salome.
![]() |
Þykir vænt um væmnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2014 | 12:51
Bókahátíð á Flateyri.
Ég fór á bókahátíð á Flateyri síðast liðið laugardagskvöld. Ég fór nú aðallega að hitta gamlan vin minn, sem var það að lesa upp Bjarka Karlsson.
Þetta var frábær skemmtun og margir skemmtilegir upplesarar að lesa ljóðin sín.
Hörður Steingrímsson var fyrstur hann var svona frekar þunglyndislegur ungur maður, en fór ágætlega með ljóðin sín.
Nærstur kom svo Bjarki Karlsson, með sína verðlaunaljóðabók, hann tók nokkrar skemmtilegar útgáfur á afi minn fór á honum rauð, og gerði sér upp hvernig helstu skált landsins hefðu ort þetta ljóð, vakti það mikla kátínu gesta og var mikið hlegið. Bjarki fór vel með ljóðin sín og er frábær skemmtikraftur.

Þá kom Björn E. Hafberg, og flutti nokkur ljóð sem hann hafði samið fyrir 30 árum eða svo, og upp úr ljóðabók sem hann og vinir hans höfðu safnað þegar hann var ungur, hann útilokaði ekkert að hann myndi byrja aftur að setja í ljóð aftur.

+
Bjarni Bernhafður Björnsson kom þvínæst. Bjarni byrjaði á því að lýsa því yfir að hann hefði verið þorpsfíflið i sinni sveit. Hann las upp nokkur skemmtileg ljóð, hann lýsti því svo yfir í lokaljóði eða yfirlýsingu að hann væri hættur að yrkja, en ætlaði að einbeita sér að málaralistinni.

Og ég fór að hugsa hver er munurinn á kóngnum og fíflinu, báðir skrautlegir.
Næst kom svo Björk Þorgrímsdóttir. Algjörlega frábær upplesari og skemmtilegur penni.
Lokaljóðið hennar situr enn í mér, en það kallar hún Svona kona. Gaman að sjá svona ungt hæfileikaríkt ljóðskáld.

Verð ég svona kona. Frábær.
Eiríkur Örn Norðdal sló svo botninn í upplesturinn, tíminn hafði hlaupið frá okkur og sú sem var síðust á dagskránni komst ekki að Kristín Eiríksdóttir. En Eiríkur var svo sannarlega hressandi og kjarnyrtur.
Hann hafði lofað að senda mér myndir, Eiríkur??? Ég horfði á eldri dömur vinkonur mínar sem sátu á móti mér við borðið, það var alveg kostulegt að sjá svipinn á þeim, þegar mest gekk á í upplestrinum. Þær misstu alveg andlitið á köflum.

Það var alveg þess virði að skella sér á Flateyri á bókahátíð, skemmtileg nýbreytni og ég óska þeim sem að þessu stóðu til hamingju með framtakið. Eyþór Jóvinsson stóð að mestu að baki þessu, en svona er ekki hægt nema að hafa gott fólk -með sér.

Til hamingju kæru flateyringar með þessa glæsilegu Bókahátíð og kærar þakkir fyrir mig. Hlakka til að koma aftur að ári.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.3.2014 | 14:35
Hlutleysi RUV og nokkrar myndir.
Svona að gamni, ég var að hlusta á vikulokin sem er að mörgu leyti ágætis þáttur um dægurmálin, Hallgrímur THorsteinsson stýrir honum.
Og af því að verið var að mæla hlutdrægni fjölmiðla, þá fannst mér endinn á spjallinu sem var við Rögnu Árnadóttur, Birgi Ármansson og Jón Traysta Reynisson, vera ansi sérkennilegur.
Undir blálokin kemur umræðan að ESB umræðunni og þjóðaratkvæðagreiðslunni, Hallgrímur spilar bút úr þingræðu Birgis. Sem þarf svo að útskýra að þarna er hann að svara ákveðinni fyrirspurn en ekki að ræða málið frá eigin brjósti. Það er svo dálítil umræða um þetta en svo í blálokin, grípur stjórnandinn frammí og spyr Jón Trausta um málið og hann fær að loka umræðunni um kosningasvik ríkisstjórnarinnar, og þátturinn búinn.
Þarna er greinilega verið að koma skilaboðum á framfæri. Þegar verið er að kanna hlutdrægni/hlutleysi fjölmiðla, þá er bara ekki hægt að fletta upp í svona aðkomu að málinu.
Þetta hefur marg oft gerst lengi, til dæmis í Speglinum þar sem Sigrún Davíðsdóttir hefur fengið ansi lausan taum, og fleiri dæmi. Það er bara svo erfitt að benda á þetta, nema maður grípi það um leið.
Eða finnst ykkur þetta vera í lagi í útvarpi "allra landamanna" og útvarpi "þjóðarinnar"
Hér er hægt að hlusta og þetta er í blálokin:
http://ruv.is/sarpurinn/vikulokin/22032014-0
Það er einmitt svona sem gerir að verkum að ég er að mestu hætt að hlusta á fréttir á RUV almennt. Það var eiginlega tilviljun að ég heyrði þetta.
Vonandi nær nýr útvarpsstjóri að breyta þessu þannig að hlutleysi og sanngirni sé gætt í hvívetna hjá þessari annars ágætu stofnun.
Ég ætla að setja inn myndir sem ég var að taka, eftir óveðrið í gær og fyrradag.

Dásamlegt að fá sólina eftir þetta dimma veður.

Eins og sjá má hefur snjóað töluvert.

En nú þarf ég að setja á mig snjóþrúgurnar og arka upp í gróðurhús til að sinna plöntunum mínum, og í kvöld ætla ég á bókamessu á Flateyri til að hitta góðan vin minn Bjarka Karlsson, sem ætlar að lesa upp úr frábærri ljóðabók sinni.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
20.3.2014 | 19:06
Afsakið mig.
Ja hérna nú blöskrar mér algjörlega. Er þetta ekki fólkið sem er að fara fram á að haldið verði áfram viðræðum við ESB?
Hér tek ég upp úr Evrópuvefnum, sem er einmitt biblía Össurar og ESB sinna:
"Loks er skýrt frá þeirri kröfu Evrópusambandsins að Ísland felli í áföngum, á tímabilinu fram að aðild, stefnumið sín gagnvart þriðju löndum og afstöðu sína innan alþjóðastofnana að þeim stefnumiðum og afstöðu sem Evrópusambandið og aðildarríki þess hafa samþykkt".
Fyrir nú utan það sem hefur marg oft komið fram að ESB gerir alla samninga og skuldbindingar fyrir sín aðildarlönd.
Er ég á tunglinu eða hvað er hér í gangi? Er Össur að segja að innlimunin sé þegar dauð?
"Fríverslun við Japan steinliggur. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við mbl.is en hann ásamt fjórum öðrum þingmönnum flokksins, Katrínu Júlíusdóttur, Helga Hjörvar, Kristjáni L. Möller og Valgerði Bjarnadóttur, hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að ríkisstjórninni verði falið að hefja þegar í stað undirbúning að gerð fríverslunarsamnings við Japan og notfæra sér þannig nýlega opnun Japana í þeim efnum".
Í hvaða stöðu er þá barátta Samfylkingar og ýmissa forkólfa VG fyrir þjóðarkosningunum um áframhaldandi viðræður við ESB? Erum við bara á einhverju flippi, eða skil ég ekki um hvað málið snýst? Og ég sem hélt að Össur, Árni Páll, Katrín, Helgi og Kristján væru að vinna hörðum höndum að áframhaldandi aðlögun inn í ESB. Eða Getur verið að undirskriftasöfnunin hafi bara átt að vera grín? Eða
Vita þau ef til vill ekki að með aðild að ESB, falla allir aðrir samningar okkar út gildi við önnur lönd, þar sem yfirstjórn alls slíkt verður undir yfirráðum yfirstjórnar ESB?
![]() |
Fríverslun við Japan steinliggur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2014 | 16:53
Kerfisbreytingar og kjaraviðræður.
Ég er algjörlega sammála Guðríði þarna, það er bara kjánalegt að ætla að blanda saman kerfisbreytingum og kjaraviðræðum. Sérstaklega þegar nokkuð ljóst er að það sem þarf að gera í skólamálum er ekki bara að stytta menntaskóla, heldur skoða málin alveg frá leikskólum til háskóla, og skoða hvað má betur fara og hvaða leið er skynsömust. Er hægt að gera kennsluna meira lifandi og áhrifaríkari, en ekki fastnjörvaða niður í skólastofur borð og bekki?
Það er örugglega hægt að gera svo miklu betur, sérstaklega þegar tæknin er orðin svona mikil.
![]() |
Ýti út kröfum um kerfisbreytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar