Borgarbúar og dreyfbýlistúttur?

Það sem ég les út úr þessari frétt er tvennt.  Í fyrsta lagi hvernig menn geta ærurænt fólk, kallað það öllum illum nöfnum eins og hómófóbíu og kvenhatara.  Guðni var ekki á þingi þegar hann lét þau orð falla, ég er þó ekki að mæla með svona persónulegum bröndurum, en eitt er að segja þá annað að birta á víðlesnum stað. Veit ekki hvort er verra.  Það er því miður þannig að fólk er farið að hugsa sig um tvisvar ef það er beðið um að standa í forsvari fyrir pólitískan flokk.  Þetta er sorgleg afstaða í þjóðarsálinni, þessi illkvittni og rætni.  

Annað sem ég hef séð er, að Reykvíkingar líta ekki á landsbyggðarfólk sem almenning í landinu.  Alveg eins og þegar "utanbæjarmaðurinn" Halldór Halldórsson gaf kost á sér í oddvitasætið í höfuðborginni.  Það heyrðust þær raddir að landsmbyggðamaðurinn Guðni ætti ekkert erindi í borgapólitíkina.  

Ég veit að svona hugsunarháttur viðgengst víða í smærri samfélögum, og jafnvel á Akureyri, en ég hélt satt að segja að svona hugsunarháttur væri ekki í höfuðborg ALLRA LANDSMANNA.  Því ég held að það sé ekki til það krummaskuð á Íslandi sem á ekki einn eða fleiri íbúa sem núna búa í Reykjavík. Veit satt að segja ekki hvor er fjölmennari bornir og barnfæddir reykvíkingar, eða fólk annarsstaðar af á landinu.  

Ég er viss um að það er fullt af góðu fólki og efnilegu sem aldrei myndi gefa kost á sér sem leiðtoga út af svona viðbrögðum.  Og þar með missum við af mörgum góðum leiðtoganum af báðum kynjum.  Þetta var auðvitað alltaf svona, en með netinu þá verða árásirnar nánari og þrengja sér inn í alla króka og kima.  Og þegar farið er að draga fram  áratuga gömul viðtöl við fólk sem þá var á menntaskóla, og láta liggja að allskonar kenndum persónunnar, þá finnst mér bara allt of langt gengið.  

Mér finnst stundum eins og Íslendingar séu illkvittnasta þjóð heimsins.  Ég verð aldrei vör við svona illgirni hjá öðrum þjóðum þ.e. hjá því fólki sem ég þekki utan Íslands, þetta er ef til vill vegna smæðarinnar og nálægðar okkar hvert við annað.   

  

Annars á maður ekki að vera tuða svona á svo fallegum degi, þegar sólin skín og vor í lofti, svo ég enda þetta bara á því að segja GLEÐILEGT SUMAR! 

632186


mbl.is Framsóknarfundi frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pollapönk og allt það.

Elsku krúttin, vonandi verður þetta skemmtilegt ævintýri hjá þeim þarna í Danamarka, en málið er að það er alveg saman hvað er reynt að gera mikla stemningu um þetta framlag okkar í júróvisjón, þá held ég að það dugi ekki til.  Þetta lag fer ekki áfram.  En Rúv ber, tel ég ábyrgð á því að af öllum þessum góðu lögum fór þetta lag áfram og því verður ekki breytt.  Rúv hefur nú síðan úrslitin voru, gert allt til að skapa stemningu um lagið, og svo sem allt í lagi með það.  En því miður held ég að það dugi ekki til.

Það kom í ljós í þættinum "Alla leið", sem ég nenni reyndar ekki að horfa á (eftir fyrsta þáttinn) mér leiðist nefnilega þegar verið er að gera grín að fólki sem ekki getur svarað fyrir sig, hlægja og setja út á. Finnst það niðurlægjandi og ömurlegt.  Reglurnar sagðar þannig að það eigi að kjósa eftir því hvaða lög fólk telur að fari áfram, en svo allt í einu má breyta reglunum og kjósa eitthvað sem manni finnst sjálfum flott.  Og auðvitað voru þau öll svo rosalega ánægð með "Enga fordóma".  

Ég vona að mér fyrirgefist að segja þetta hreint út, það breytir ekki því að Pollapönkarar eru algjör krútt og skemmtilegir og að börnin völdu þá.  Það er auðvita jákvæði punkturinn í þessu öllu. Málið er nefnilega að mínu mati að textinn eins og hann var saminn, höfðaði til fólks, og var eiginlega sigurvegari lagsins, en nú verður hann sunginn á ensku og ég er alveg klár á því að það skilar sér ekki út í Evrópu nema ef til vill til þeirra sem tala ensku.  Eiginlega hélt ég að við hefðum fengið okkar skammt af fíflagangi með því að senda Sylvíu Nótt út.

En svo gerast alltaf kraftaverk..... Smile 


mbl.is Skiptir kjólfötunum út fyrir Pollapönk-galla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá páskafærsla.

Gleðilega páska öll.   Þetta hefur verið dásemdartími hjá mér.  Bjössi og strákarnir fóru í morgun, svo það er frekar hljóðlátt í kúlunni í dag. En mikið er gott að fá þá í heimsókn. Heart

IMG_4800

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það var fjör hjá strákunum, Sigurjón og Daníel Örn komu líka í heimsókn.  

IMG_4801

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Boy will be boys.  

IMG_4803

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og það er gott að styrkja fjölskylduböndin.

IMG_4806

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það er fjör.

IMG_4807

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svo getur leikurinn orðið dálítið viltur, eins og gengur með röska drengi.

IMG_4808

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við buðum El Salvdor fjölskyldunni okkar í mat á laugardeginum.

IMG_4809

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var boðið í lambalæri og alles.  Ég veit að þeim þykir það svo gott.

IMG_4812

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er rosalega notalegt að hafa svona innigarð að njóta sín í.

IMG_4813

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Maturinn rann svo ljúflega niður.  

IMG_4814

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það dugði ekkert minna en tvö læri til að allir fengju nú örugglega nóg.  Smile

IMG_4815

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og Jorce tekur líka myndir og sendir til El Salvador og USU.  Það er víst ekki alveg gott samband við El Salvador segir hann.

IMG_4817

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við ræddum aðeins um Gabriel Garcia Márquez, og lát hans, þau sögðu okkur að ösku hans hefði verið skipt í tvennt og dreyft í Mexico og Kólumbíu.   Gabriel var án efa einn mesti rithöfundur heims.  Þau voru hissa á að bækur hans hefðu verið þýddar á Íslensku.

IMG_4821

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Davíð Elías og pabbi hans, tveir sætir saman.

IMG_4827

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já svo var páskaeggjaleitin í morgun, þeir voru allir spenntir að leita bæði ungir og gamlir.  

IMG_4828

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Það er komið vor í kúlunni, þó mín zakúra sé ekki eins flott og hjá henni Alley vinkonu minni, þá er hún samt voða flott.

IMG_4830

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rósamandlan mín er líka að blómstra.

IMG_4831

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og nektarínan mín skartar fögrum blómum líka.

IMG_4833

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Álfarnir og tröllin fara að vakna til lífsins.

IMG_4835

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það vantar bara býflugurnar, þær sofa ennþá á sínu græna eyra.

IMG_4836

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vona að þið hafið það gott öll sömul.  Hér ýmist skín sólin eða éljagangur, Þá er notalegt að sitja inn í garðskála og færa þessa færslu.  Horfa á fuglana fyrir utan þyrpast að og éta, þeir eru æstir og eru búnir að vera hér megin partinn af deginum ég hef verið að gefa þeim endalaust, og krumma bíða girnileg bein af lambalæri.  Svo allt er hér í harmoní við náttúru og lífið sjálft.  Eigið góðan dag. Heart 

 

 

 


Aldrei fór ég suður.

Jamm hér sit ég og horfi á beina útsendingu á Aldrei fór ég suður, Páll Óskar er að trylla lýðin hér í næsta húsi.  Ég get farið úr fyrir dyrnar og hlustað á múskik og fagnaðarlæti.  En það er miklu notalegra að vera heima og horfa á í tölvunni. 

IMG_4764

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 En það er sumt sem við erum aldrei reiðubúin til að upplifa og það er þegar ungarnir okkar fá bílpróf.  Að vísu er ár í leiðbeiningarakstur, þar sem þau aka undir okkar stjórn til að verða reiðubúin til að takast á við ökumennsku.  En svo gerist það óhjákvæmilega að þau fá bílpróf, og þá hefst nú svona sjokkerandi tímabil.  En þessar elskur þurfa að fá að fljúga ekki satt?

IMG_4765

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég segi nú bara fyrir mig, ég held að bæði pabbi hans og mamma hafi vakað yfir drengnum sínum þetta kvöldið, það mátti ekki miklu muna.

IMG_4767

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og þá kemur að því að það er sennilegra ódýrara að kaupa bíl fyrir afkvæmið, en að resikera einkabílnum Smile

En þá er það auðvitað þannig að maður kaupir ódýran bíl, sem þá þarf að gera við.

IMG_4766

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þá er eins gott að ungarnir fái sjálfir að ráða fram úr vandanum, þeim er engin greiður gerður með að púkka endalaust upp á þá, því lífið must go on, og þau þurfa að vera eins sjálfbjarga og hægt er.   þurfa að læra að bjarga sér.

IMG_4770

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ef við viljum ungunum okkar vel, þá þarf að sleppa takinu og láta þá sjálfa standa fyrir sínu ekki satt?

IMG_4768

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er allavega það sem ég var alin upp með, faðír minn þekkti vel hve mikilvægt var að fólk þurfti að bjarga sér sjálft, og hann svo sannarlega kom því til skila við okkur börnin sín, og fyrir það getum við þakkað honum að við erum öll dugleg og vellátin í vinnu.

IMG_4772

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er svo unginn minn að elda mat fyrir okkur, hér með fylltri papriku sem var æðislega góð, hann kann svo sannarlega að elda, eins og reyndar allir drengirnir okkar Ella, eru listakokkar, og hafa gaman af að elda gurmemat.

IMG_4782

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Veðrið var misjafnd í dag, en að mestu leyti gott og sólríkt, þó endalaust væri klifað á viðvörun um storm og ólæti, þá fór það algjörlega fram hjá eins og oft áður.

IMG_4781

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessar myndir voru teknar um fjögur í dag.

IMG_4774

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En í heimsókn eru barnabörn og sonur, svo gott að hafa þá hér.  Hvað er drengurinnn með?

IMG_4775

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jú Davíð Elías fann mús.

IMG_4776

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er Arnar Milos.

IMG_4785

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er verið að undirbúa að fara á Aldrei fór ég suður, það var frekar hráslagalegt og ungur maður frá El Salvador er ekki vanur slíku, svo það var um að gera að klæða hann vel.

IMG_4786

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Já hér þarf að huga að öllu, áður en lagt er í hann, þó það séu bara nokkrir metrar.

IMG_4788

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og namminamm snjórinn smakkast vel, beint ofan af himninum.

IMG_4790

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Maður þarf svo sem að fara og sækja hann.

IMG_4789

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og nú er afi komin í gírinn líka.

IMG_4791

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Úlfur nýkomin og rétt farin aftur.

IMG_4795

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og afi, við eru reyndar öll fjölskyldan í kúlunni búin að spila á Aldrei, ég Úlfur og Elli, gaman að segja frá því, og á morgun mun Elli spila undir með Helga Björns í stórsveitinni.  Helgi er okkar maður eins og svo margir aðrir tónlistarmenn.

IMG_4797

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já og þá er bara að labba af stað og njóta alls þess sem boðið er upp á.

IMG_4798

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er hægt að hlusta á þetta allt beint á aldreifór ég suður.

Hér: http://aldrei.is/

Eigið góða páska elskurnar. Heart 


mbl.is Aldrei fór ég suður formlega opnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið stangast á við stjórnarskrá.

Fermingarbróðir minn, Ólafur Björn Halldórsson skrifaði frábæran pistil í Bæjarins besta.  Sjá hér:  http://bb.is/Pages/82?NewsID=187556

Hann segir:  

Hlýðum á boðskapinn Margt orðið hefur fallið síðan rekstaraðilinn, sem hefur atvinnu og lífsviðurværi fólksins í sinni hendi, tilkynnti að hann hygðist leggja sína starfsemi á Þingeyri niður.

Eðlilega vekur mesta athygli það sem hann hefur að segja. Skoðum þessar málsgreinar:

„Við meinum það sem við segjum að við ætlum að leggja mikið upp úr því að þetta verði einungis breyting en ekki starfslok. Að fólk sé annað hvort að fá nýja vinnu á sama stað eða sömu vinnu á nýjum stað. Við meinum það og vonandi verðum við dæmdir af því í lokin.“

Við skulum spyrja að leikslokum en óneitanlega minnir þessi framsetning á hugmynd Kristjáns VII. Danakonungs að flytja landann suður á Jótlandsheiðar nema nú er boðið upp á flatlendi Suðurnesja. Það skal þó sagt konungnum til varnar fyrir hans fráleitu hugmynd að óáran hafði geisað á Íslandi af völdum náttúrunnar en engu slíku er til að dreifa í dag. Því tekur það engu tali að leggja til að grafið sé enn frekar undan tilraunum til endurreisnar með skipulögðum brottflutningi fólks. Það er sömuleiðis í algjörri þoku hvað þeir eigi að taka til bragðs sem ekki þekkjast þetta „kostaboð“. Frásögn forráðamannsins um „stóíska ró” fólksins á Þingeyri verður að taka með þeim fyrirvara að það stendur frammi fyrir þeim sem hefur örlög þeirra í hendi sér og því ekki víst að sú sálarró standist samanburð við lífsspeki Stóumanna í Hellas hinu forna.

Ennfremur segir Ólafur;

 Tilkynningin um að vinnsluhúsið verði afhent heimamönnum „að gjöf” hefur vakið nokkra athygli. Starfsmenn fyrirtækisins upplýstu á borgarafundinum fjölmenna að „húsgögn” fylgdu ekki með gjöfinni því til stæði að vélar og tæki yrðu fjarlægð. Vart verður því gjöfinni líkt við þá gjöf sem segir frá í þeirri bók sem Íslendingar hafa nú sett í fremsta sæti allra íslenskra bóka, Brennu-Njáls sögu, er Gunnar á Hlíðarenda hafði þessi orð við Njál vin sinn: „Góðar er gjafir þínar en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinna.” Fremur mætti líkja þessari væntanlegu gjöf við yngra máltæki. „Hver er sínum gjöfum líkur.“

Að lokum segir Ólafur:

 Gerum stjórnmálamönnum ljóst hvað fyrsta grein fiskveiðistjórnunarlaganna raunverulega þýðir og að við ætlumst til að eftir henni sé farið. Það samræmist íslenskri réttlætiskennd að gera þá grein virka. Réttlát löggjöf getur varið hagsmuni þeirra byggða sem hafa ekki afl til að etja kappi með ofursterkt vald fjármagnsins. Eða, eins og Einar Benediktsson orðaði það: „Vilji er allt sem þarf.“ Látum því Þingeyri verða talandi dæmi um hvernig við viljum lifa saman í réttlátu þjóðfélagi sem stendur saman þegar á reynir.

Ég ætla að ljúka þessu með blaði sem ég hef geymt, því miður fann ég ekki bls. 1 af tveimur, en sú seinni er svona:

Gerum uppreisn gegn þessu kerfi og ólýðræði sem viðgengst í sjávarútvegsmálum Íslendinga.

Ef kjörnir þingmenn setja ólög sem bitna á þjóðarheildinni og lýðræðinu eru þeir ekki lengur þingmenn fólksins í landinu.  Þá eigum vð að bregðast við sem frjásir menn en ekki þrælar.

Smábátasjómenn, róið og fiskið.  Það er ykkar réttur þó svo að ráðstj´ronin, sem settist hér að þegar Sovétríkin hrundu, setji á ykkur kvótaólög.  Þið megið altént veiða þann afla sem ég á lögbundinn í stjórnarskrá.  Þann afla harðbanna ég sjálfskipuðum kvótasægreifum að nýta.  Látum ekki eftirfarandi lengur yfir okkur ganga.   

(Það sama segi ég, ég harðbanna að sá kvóti sem mér er í lögum úthlutað sé nýttur af sækvótagreifum).

Svo er hér eitt kvæði sem fjallar um kvótakerfið:

Í heimi hörðum

haustar að,

fólk í fjörðum

finnur það.

Hafsins hetjur

halda á mið,

aflann étur

auðvaldið.

 

Bjargir brenna,

blekkt er þjóð,

rentur renna

í ríkra sjóð.

Þjóðin þrælar,

þögul, þreytt.

Harðir hælar

hlífa ei neitt.

 

Fátækt fer um fold og mar,

sultur sér um sálirnar,

Fæðu er fegnast

fólkið þreytt,

örbirgð eignast

aldrei neitt.  

 

405936_206724336080341_848349422_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Þetta er Húni, dæmi um bát sem hefur verið sviptur veiðirétt, en hefur fengið nýtt hlutverk á listasviðinu.  Gott í sjálfu sér, en hvorki fæðir né klæðir fólkið í dreyfbýlinu.   


Ekki hættir, nei auðvitað, hér eru peningar í húfi.

Auðvitað eru þeir ekki hættir, hver fúlsar við hvað 30-40 milljónum á ári aukalega í vasann, þó það nú væri að afsala sér því.  Ríkið bauðst til að laga svæðið til frekari verndunar, en því höfnuðu þessir menn.  Vegna þess að það voru gerðar einhverjar kröfur á þá á móti.  

Þetta mál er einungis til að gera fólk fráhvarft málflutningin þeirra eða eins og einn umdeildur maður sagði einu sinni, ef þú ert komin ofan í holu, hættu þá að moka.   


mbl.is „Við erum ekki hætt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorið kemur senn.

Vorið sem var komið hér hefur farið í frí, veðrið er samt ekkert verra en oft í apríl, en við vorum orðin svo góðu vön og héldum að nú væri bara sumarið á næsta leyti.  Nei reyndar ekki, við erum jú eldri en tvævetur ég og þeir sem eru mér innanhandar.  Smile

Vorið er samt komið hér í garðskálanum mínum og vantar bara einn sólskynsdag til að runnarnir og trén mín blómstri, þar eru kirsuberjatré, perutré, zakúrakirsuber, rósamandla, nektarína og svo eru rósirnar komnar á fullt mér til mikillar ánægju.

En það er meira að gerast hér hjá mér.  Til dæmis eru þrestirnir komnir og gera sig heimakomna, sumir þeirra vita að það er hægt að smeygja sér inn um póstlúguna, sennilega frá gamalli tíð, þegar ég fann þrastarunga og bjó um þá hér í tré í garðskálanum og þrastarmóðir tók þá að sér og fæddi þá uns þeir gátu bjargað sér sjálfir, mörg á á eftir komu þeir reglulega inn um bréfalúguna og gæddu sér á því sem hér var að fá, áður en vorið gekk í garð fyrir utan.  Þetta eru sennilega ættingjar sem afinn og amman hafa sagt þeim um kúluhúsið á Ísafirði þar sem hægt væri að smeygja sér inn um bréfalúguna til að hygge sig.

Lotta hefur margt að hugsa þessa dagana, kojarnir og gullfiskarnir eru að vakna af vetrarblundi og farnir að synda um í tjörninni, og það er voða spennandi.

IMG_4755

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég rétt missti af henni þegar hún horfði með miklum áhuga á fiskana synda þarna fyrir framan hana.

IMG_4756

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það er margt sem heillar litlar kisur á þessum tíma.

IMG_4758

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eins og sjá má er athyglin vakinn svo um munar.

IMG_4757

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hvað ætli það sé nú sem vekur þvílíka ágirnd og áhuga kisu?

IMG_4759

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jú auðvitað, fuglar.  Hún er ótrúlega fljót að fatta að þeir eru komnir til að fá sér í gogginn, þó hún sé stödd langt inn í húsi.

IMG_4762

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þeir eru varir um sig, snjótittlingarnir þ.e.a. s. þrestirnir eru miklu óhræddari.  

IMG_4763

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 En þeim finnst gott að fá sér í gogginn þessum elskum.  Og svo er krummi, hann er líka ótrúlegur, hann fjarlægir heilan hrygg þ.e. beininn sem ekkert væri, svo bíður hann bara eftir næstu máltíð, og ef veislan er stór, kallar hann á alla hina. 

IMG_4760

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og jólastjarnan er komin út, hún lifir auðvitað ekki af næsta vetur, en vonandi mun hún hafa það gott í sumar.

Annar er veðrið bara svona eins og það er Jorge okkar maður frá El Salvador hafði miklar áhyggjur af snjókomunni í morgun, en ég sagði honum að þetta væri slydda en ekki snjór, hann vissi ekkert hvað ég var að tala um, enda hefur hann aldrei séð neitt slíkt áður.  

  Hér erum við í mat hjá okkar elskulegu fjölskyldu frá El Salvador, í Babusas, eða hvernig sem það er skrifað.  Og hér er Jorge, Isabel og Pablo. Heart
IMG_4753

Serbu- og Ísarelsmönnu

Hvar er yfirlesturinn við þessa fyrirsögn? Hélt líka að serbar, svartfellingar og ísraelsmenn væru með litlum staf.  
mbl.is Mæta Serbum, Svartfellingum og Ísraelsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afglæpavæðing hvaða máli skiptir það?

"Kolbrún sagði að sennilega væri íþyngjandi að hafa upplýsingar um þessi brot á sakaskrá en í þessum tilvikum vegist á einkahagsmunir og almannahagsmunir. Talið er eðlilegt að þegar einstaklingur sækist eftir starfi með börnum og unglingum hafi sá sem ræður einstaklinginn upplýsingar um hvort viðkomandi hafi gerst sekur um fíkniefnabrot"

Í þessari setningu kristallast vandinn.  Sem sagt að hafa gerst sekur um fíkniefnabrot, án þess að tekið sé fram hverskonar brot, segir allt sem segja þarf um stöðu þessara mála.  Hér er ekki talað um alkólisma, geðhvarfasýki né neitt annað sem brenglað getur hug manna.  

Það sem er verið að tala um í mínum huga allavega um afglæpavæðingu, er einmitt að gefa fólki tækifæri til að bæta sig og geta lifað í mannlegu samfélagi, en verða ekki útskúfað af kerfinu vegna þess að hafa hrasað, mismikið.  

Í mörgum tilfellum er það svo að samfélagið leyfir ekki fyrrverandi fíklum að lifa mannsæmandi lífi, þrátt fyrir að hafa ekki gert annað af sér en að missa tökin á lífi sínu, um styttri eða lengri tíma.

 

Það er svo margt sem þarna kemur til.  Vonir um endurbata eru hvað eftir annað brotið niður, þangað til ekkert er eftir nema vonleysi og uppgjöf.  Það er hræðilegt fyrir aðstandendur að upplifa að barnið kemur úr meðferð og kemur allstaðar að lokuðum dyrum, sem oftar en ekki verður til þess að óhjákvæmilega er fallið aftur og aftur, og svo að lokum þegar allt líf hefur verið sogað burtu er þessi einstaklingur einfaldlega horfin yfir móðuna miklu.

 Fangelsun með tilheyrandi og þegar aðstandendur hafa gefist upp á því að reyna að standa með barninu þá eru þeir einir eftir sem "eiga" fíkilinn,  sem þurfa að nota hann í vændi, burðardýr eða sölu.  

Þetta er bara lífsins saga, og hefur allof oft gerst.   

Þegar þarna er komið sögu er öll fjölskyldan öll niðurbrotin og sjálf orðin sjúkrahúsmatur.  

Höfum við efni á að missa allt þetta unga fólk í útlegð og jafnvel ótímabæran dauða?

Fólk sem er bara rétt eins og hver annar, en veikara fyrir á svellinu þegar kemur að fíkn.  

Það eru ekki margar fjölskyldur á Íslandi sem ekki tengjast eða vita af svona veikum einstaklingum sem ströggla við að reyna að hætta, reyna að taka sig á í lífinu, en hefur ekki burði til þess án aðstoðar.  

Viðhorfið er þá orðið þannig að enginn vill ráða mann í vinnu, lögregla og jafnvel félagsmálayfirvöld hafa afskrifað viðkomandi.

Það leiðir af sjálfu sér þegar allar bjargir eru bannaðar, þá er bara einn kostur eftir til að fjármagna eitrið, það er að vinna fyrir dílerana sem í raun og veru stjórna neðanjarðarlífinu, eða fara út í innbrot og glæpi.  

Ég reyndi að vekja athygli alþingismanna á þessum málum 5. janúar 1998. Einu sinni sem oftar.

Svohljóðandi:

Ágæti þingmaður íslenska ríkisins.

Er það ekki rétt hjá mér að þú sitjir á Alþingi til að gæta hagsmuna allra þegna kjördæmis þíns? Ég vil benda þér sérstaklega á hóp ungs fólks sem full þörf er á að kannað sé með sérstökum hætti, hvernig hægt sé að koma til hjálpar.  Málið þolir enga bið. 

Þetta eru fíkniefnaneytendur.  

 

Ég er að tala um þá sem eru svo dúpt sokknir að þeir eru komnir í lögbrot. Ég er ekki að tala um unglinga, heldur ungt fólk, alveg upp úr skalanum.

Í þjóðfélagi okker er í dag litið á þetta fólk sem glæpamenn, en ekki sjúklinga - og þeir meðhöndlaðir samkvæmt því í okkar réttarkerfi.

Ég álít að það þurfi að fara í saumana á dóms-og réttarkerfi Íslands í dag og færa þar hlutina til nútímalegra horfs.

Ef við ætlum að stefna að fíkniefnalausu landi árið 2002 þá er þetta einn af veigameiri þóttum sem þarf að lagfæra.  

Það gengur ekki lengur að þessu fólki sé stungið inn í fangelsi án tillits til hvar og hvernig það er statt í lífinu, það brotið niður og síðan sent út á götu aftur án neinnar raunverulegrar aðstoðar.  Fangelsi á Íslandu eru heldur ekki í stakk búin að taka við þessu fólki, þar sem aðeins mun vera einn sálfræðingur starfandi við stofnunina, engir læknar né félagsfræðingar.  Ekkert fagfólk sem meðhöndlar "sjúklingana".

Hér þarf líka að taka tillit til hvort fólkið sé að bæta sig og komið í nýtt líf, áður en það er rifið upp og sett í fangelsi fyrir brot sem það framdi í annarlegu ástandi löngu áður.  Og hver er þá tilgangurinn með innilokuninni?

Til að sýna fram á fáránleika framkvæmda í málum þessa unga fólks ætla ég að senga hér með einstakt mál sem er mér tengt - ég vil taka fram að þetta einstaka mál verður að meðhöndla sem trúnaðarmál, því meiningin er auðvitað að þessi mál verði skoðuð í heild sinni og fundinn mannsæmandi lausn fyrir "sjúklingana" okkar.

Stúlka sem ég þekki var komin ansi langt niður í fíkniefnaneyslu, hún var búin að komast í kast við lögin.  Þessi stúlka var búin að eignast þrjú börn sem öll eru í vörslu foreldra hennar.  Henni hafði m.a. verið meinað að fara með ungt barn sitt í fangelsið, sem varð til þess að böndin slitnuðu.

Þessi stúlka var búin að taka sig á, ástfangin og búin að gifta sig og komin með barn.  Unnusti hennar var líka búinn að vera fíkill lengi, reikandi og festi ekki tilfinningabönd við nokkurn mann.  Þessi tvo voru sem sagt búin að finna hvort annað og farin að feta veginn þrönga og mjóa saman.  En yfir hvíldi einn skuggi, stúlkan átti yfir höfði sér 15 mánaða fangelsi.  Hún var kölluð inn í ágúst s.l. Ég gerði allt sem ég gat til að forða því að hún yrði sett inn.  Ég var hrædd um að þetta áfall yrði framtíð þeirra svo þungt högg, að allt sem áunnist hafði í þeirra lífi væri í hættu.  Ég fékk vottorð ffrá heimilislækni þeirrra, vottorð frá sálfræðingi sem ræddi við þau í nokkrum samtölum og vottorð frá félagsfræðingi.  Ekkert tillit var tekið til umsagnar alls þessa fagfólks.  Og ég segi: hefði ekki verið heppilegra í þessu dæmi að breyta dómnum í skilorðsbundið fangelsi og sjá hvort unga fólkið stæði sig ekki til langframa, heldur en að rífa litlu fjölskylduna í sundur og senda hana sitt í hvora áttina og taka áhættu á að þau færu aftur í sama horfið og litla barnið færi til annara.  Og ég segi aftur og enn hver er eiginlega tilgangur fangelsisvistunar á Íslandi í dag?

Á hinum norðurlöndunum eru allstaðar til lokaðar meðferðarstofnanir.  Það er lífsnauðsynlegt að koma slíku á hér, þá er hægt að dæma fólkið í meðferð allt frá þrem mánuðum til árs eða meira.

Fangelsismálastofnun virðist starfa eftir mjög þröngt afmörkuðum reglum og ekkert svigrúm virðist gefið til manúðar á þeim bæ.  Þessu verður að breyta. 

Ágæti þingmaður! Ég bið þig að lesa þetta bréf og meðfylgjandi plögg vandlega og vita hvort þér finnst ekki ástæða til að skoða nánar aðstöðu og aðbúnað óhamingjusams fólks, sem vegna veikleika og kjánaskaps en ekki glæðaeðlis hefur lent milli steins og sleggu og er hjálparlaust og vonlaust í okkar velferðarríki.  Ég þekki nógu marga af þessu óhamingjusaman fólki til að geta sagt að oftast er þetta yndælis fólk en veikgeðja og hefur þess vegna látið glepjast þangaði til ekki verður aftur snúið.  Við höfum réttindi og skyldur gagnvart þessu fólki, við höfum ekki heldur efni á að missa það í dauðann.  En þar enda allof margir, ef ekkert verður að gert, annað hvort úr sjúkgómum eða fyrir eigin hendi. Það er margt sundurtætt foreldri úti í þjóðfélaginu sem hefur enginn ráð til bjargar.

Opin meðferðarstofnun hefur ekkert að segja því að flestir þessa hóps eru komnir of lant til að vistast þar sem það getur gengið út daginn eftir.  Ég segi þetta vegna þess að ég hef upplifað þetta sjálf og vil engum svo illt að ætla honum að ganga í gegnum slíkt helvíti, þar sem allt blandast saman ástin á afkvæminu, sjálfsblekkingin, lygin og vonleysið, reiðin út í eiturlyfjasalana og ekki síst reiðin út í kerfi sem frekar slár á hverja veika tilraun til sjálfsbjargar en að vera til hjálpar reiðubúið.  

Með virðingu Ásthildur Cesil Þórðardóttir.

Fékk aðeins eitt svar og það var frá þáverandi forseta Alþingis.

Eg hef móttekið bréfi þitt, dags. 5.þ.m. en bréfinu fylgdu ýmis gögn varðandi mál þessarar ungu konu.

Alt þetta hef ég lesið og kynnt mér gögnin og hef mikla samúð með málstaðnum. allt ber að gera sem verða má til að bjarga einstaklingum eða fjölskyldum frá fíkniefnavanda.  Rök þín virðast sannfærandi að því er varðar þetta fólk.  Mig skortir hins vegar þekkingu á verklagsreglum Fangelsismálalstofnunar, náðunarnefndar og dómsmálaráðyneysis til lþess að geta lagt mat á þeirra niðurstöðu og í gögnum þeirra sem fylgdu bréfi þínu kemur ekki fram rökstuðningur fyrir synjunm þeirra.  

Mun kynna mér málið frekar.

Með ósk um jákvæða niðurstöðu.   

 

Svo mörg voru þau orð, og ekkert meir.  Enginn sá ástæðu til að taka þetta mál upp og skoða, árið 1998.   Hversu mörg ungmenni hafa dáið síðan af þeim ástæðum sem ég tiltek þarna.  Og þessir tveir ljúflingar þar með.  

Loksins núna hefur verið haldinn ráðstefna um hvað sé rétt að gera.  Það er svo sem gott, en við erum búin að missa af mörgu tækifæri til að bjarga ungu fólki sem gæti verið á góðu lífi í dag, ef við hefðum borið gæfu til að skoða málin fyrir 30 árum eða svo.  

Og ennþá er þessi mýta uppi að vandamálið við að neysla fari ekki inn á sakarvottorð, og þá sé ekki hægt að skima "glæpamennina" úr.  

Ég vil bara ráðleggja Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara að lesa stjórnarskrá Íslands. 

 Ég veit að eitthvað hefur breyst og þetta er betra í dag en það var árið 1998, en betur má ef duga skal. 


mbl.is Leiðir lögleiðing til færri glæpa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrsla..... og skýrsla?

Nú eru komnar út tvær skýrslur um "aðildarviðræðurnar", önnur gerð af þeim sem ekki vilja ganga í Esb og hin af aðildarsinnum.  Þessar skýrslur vekja upp meiri spurningar en þær svara.  

Í fyrsta lagi sýnist mér að Evrópusambandið tali tungum tveim, eftir því við hverja er rætt.  

Ég er að vísu ekki búin að lesa seinni skýrsluna, en hef hlustað vel á aðalatriðin sem þar hafa komið fram.  Og mér sýnist nú að meira hafi verið fjallað um hana í útvarpi allra landsmanna en skýrslu Hagfræðstofnunar háskólans, hvernig sem á því nú stendur.  

M.a. fróðlegt viðtal við fréttamann í síðdegisútvarpinu, sem er í sjálfu sér merkilegt, vegna þess að þessi áæti fréttamaður virtist vera frekar óöruggur af einhverjum ástæðum, hvort sem hann var að tala gegn betri vitund, eða hvað, hann tafsaði, ræskti sig í sífellu, varð loðmæltur og átti í erfiðleikum með að svara áköfum spurningum spyrlanna.  

Hér má hlusta á það.  

http://www.ruv.is/evropusambandid/skyrsla-althjodamalastofnunar-kynnt

Einhverra hluta vegna sló þetta mig.   

En látum það nú vera.  Ef þessir samningar sem sagt er að hafi verið í gangi samkvæmt þessari skýrslu gengu svona ljómandi vel, af hverju í ósköpunum var dæmið þá ekki klárað af fyrri ríkisstjórn?

Hvað varð til þess að málið var sett á ís, ef allir voru tilbúnir til að semja?

Þetta setur meiri þrýsting á Össur og Steingrím að gera hreint fyrir sínum dyrum með það af hverju ferlið var stöðvað.  

Ég man ekki betur en Össur sjálfur hafi fullyrt að Makríldeilan og Icesave hafi ekkert haft með viðræðurnar að gera.  

En það er grafalvarlegt mál ef Evrópusambandsmenn segir eitt og gera annað.  Þegar lesin er skýrsla ESB þá kemur þar skýrt fram að hér sé um aðlögun að ræða, og ekki umsemjanlegt heldur tímasetning á upptöku regluverks ESB upp á 100.000 bls.  

Svörin sem Jón Bjarnason fékk voru að íslendingar verði að afsala sér yfirráðum yfir sjávarútveginum til Brussel.  Það stendur líka að öll aðildarlöndin verði að samþykkja samning, áður en hann tekur gildi, Sjá menn fyrir sér að portugalar, spánverjar og bretar muni samþykkja að Ísland haldi öllu sínu, þegar þeir sjálfir hafa þurft að gefa eftir yfirráðin?

Svo þessi missögn að ef ferlinu verði slitið þá þurfi að byrja allt upp á nýtt, en aðrir segja að ekkert mál sé að taka viðræðurnar upp frá því sem horfið var? 

Hér er svo ágætt svar sem ég sá á blogginu, sem segir meira um þetta á skýran hátt:

 Predikarinn - Cacoethes scribendi Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra lagði sem slíkur fram markmið Íslands í fiskveiðimálum fyrir Evrópusambandið í gegn um aðlögunarnefndina og voru þau markmið í samræmi Jú dr. Össur stöðvaði þær endanlega í sterkum saltpækli.við þingsályktun Alþingis þar um !

Þetta hefur Jón staðfest í einum þremur greinum og pistlum undanfarnar vikur.

Svör Evrópusambandsins voru löngu fyrirséð, en í stuttu máli voru þau á þann veg að þegar þeir höfðu lesið þetta frá sjávarútvegsráðuneytinu þá sagði ESB að það myndi ekki hefja aðlögunarviðræður um sjávarútvegsmál fyrr en Ísland myndi fyrirfram falla frá kröfum Alþingis í fiskveiðimálum og staðfesta að Ísland myndi ganga 100% inn í fiskveiðistefnu ESB, að undanskyldu að einhver lítill tími yrði gefinn til aðlögunar þar.

Þetta er í samræmi við sérstaka ályktun ráðherraráðs Evrópusambandsins í desember 2012 : . „Ráðherraráð Evrópusambandsins ítrekar að Ísland verði að samþykkja og innleiða allan lagabálk Evrópusambandsins við mögulega inngöngu í sambandið.“http://eyjan.pressan.is/frettir/2012/12/12/radherrarad-esb-adildarvidraedur-ganga-vel-en-island-tharf-ad-samthykkja-allan-lagabalk-esb/ .

Þetta er jafnframt í samræmi við lesefni á heimasíðu Evrópusambandsins sem þér Hrannar og öðrum slíkum hefur yfirsést ávallt að lesa. Evrópusambandið, ólíkt inngöngusinnum á Íslandi, eru ekkert að fela kröfurnar sínar.

Þar er meðal annarra skjala eftirfarandi framsetning sem 10 ára grunnskólabörn skilja auk þess að hægt er að fá sömu lesningu í ítarlegra formi. Það er sífelld blekking fullveldisafsalssinna í gangi við þá sem ekki vita betur að láta menn halda annað en raunveruleikinn er.

Tilgangurinn virðist helga meðalið. . Hérna er blað af heimasíðu Evrópusambandsins sem sýnir ferlið (bls. 2) á einni blaðsíðu á myndrænan hátt : . http://ec.europa.eu/enlargement/pdf/publication/factsheet_en.pdf .

Þegar dr. Össur fór með aðildarumsókn Íslands til Brüssel þá var haldinn fjölþjóðlegur fréttamannafundur þar sem Füle varð að tukta dr. Össur eins og sést hér : . http://www.youtube.com/watch?v=0O4fkcYwpu8 .

Að gefnu tilefni held ég að nauðsynlegt sé að setja hér inn enska textann af því sem stækkunarstjóri Evrópusambandsins svaraði dr. Össuri :

. . Füle : . „And if I may - I am sure you will find the necessary level of creativity, but in the framework of the existing acquis, and also based on the general principle which very much will be sustained throughout the discussion that there are no permanent derogations from the acquis.” .

En því miður loka já-menn augum og eyrum við öllu sem þarna er nema „...you will find the necessary level og creativity” en að þeir skilji eða vilji heyra innan hvaða ramma creativity megi vera það vill hvorki dr. Össur né heldur aðrir Já-menn upp til hópa."

 

 

Ég get ekki betur séð en að þetta sé leikur kattarins að músinni, ég er farin að hallast að því að hér sé allt í húfi til að koma okkur inn fyrir dyr gullna hliðsins, hvað sem tautar og raular.

Dettur í hug barnaþulan gamla.

Fagur er fiskur í sjó,

brettist upp á halanum,

með rauða kúlu á maganum.

vanda vanda, gættu þinna handa

vingur slingur vara þína fingur,

fetta bretta svo skal högg á lítinn lófa detta.  

Eigið annars góðan dag.  

10174781_10202698875365786_4261079254405781213_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessa mynd tók kajakræðarinn Halldór Óli, þegar Elli og Jorge okkar frá El Salvador fóru saman á kajak í blíðu sem einkennir Ísafjörð.   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband