Útboð og samningar. Er ekki skilyrði að menn standi við slíkt?

Ég hef sent yfirvöldum bæjarins ábendingu um misbrest á framkvæmd verktakafyrirtækisins ÍAV, á skilyrðum sem þeir undirrituðu við útboð á varnargarði (hryðjuverki) sem kallast snjóflóða og aurgarður neðan Gleiðarhjalla. Ég vona innilega að þeir taki tillit til ábendinganna og sinni eftirliti sem þeim ber gagnvart þessu gælufyrirtæki stjórnvalda, um umgengni við íbúa og náttúru Ísafjarðar: 

Hér kemur svo úrdrátturinn sem ég sendi bæjarstjórninni í dag:

 1.0"4 AÐKOMA OG UMFERÐ. „Aðkoma að vinnusvæðinu skal vera eftir vegi að Grænagarðsnámu frá Seljalandsvegi og þaðan eftir vegslóða sem verktaki skal leggja.

Öll umferð að og frá vinnusvæðinu skal fara eftir vegi að Grænagarðsnámu“.

Þarna er misbrestur á. Það er ekið út Seljalandsveg, þannig að hann er einn sóðaskapur og rykugur. Menn fara svo í kaffi og mat upp á gamla bílaverkstæðið með tilheyrandi drullumalli, sem mengar umhverfið.

„Allt uppgrafið afgangsefni skal flokka og flytja á viðeigandi losunarstaði i samráði við eftirlitsmann.

Við uppgröft og brottakstur á efni skal gæta þess að efnið berist ekki á götur og gangstéttar og komi það fyrir skal hreinsa það burt jafnóðum. Malarnám og efnisvinnsla á vinnusvæðinu sem nýtist til verksins er heimil“.

Þetta er ekki gert, og heimili okkar og umhverfi er allt rykugt og ógeðslegt.

„Verktaki skal tryggia að steinar í fyllingu í fláafleyg garðs velti ekki niður fláa og valdi tjóni á húsum, lóðum eða fólki. Greitt er fyrir girðingu neðan fláafleygs samkvæmt grein 1.1'4, sú girðing stöðvar aðeins minni steina“.

Hvaða girðing? 

 

Alla vega í einu húsi Seljalandsveg 64a hefur grjót runnið niður og skemmt girðingu.

„Verkfaki skal gera ráð fyrir að þurfa adð þrífa götur eftir sig eftir adstæðum og reglulega (vikulega) þegar samfelldir efnisflutningar að eða frá vinnusvæðinu standa yfir“.

Þetta gerist ekki og fólk kvartar yfir að það sé erfitt að ganga og skokka um göturnar vegna mengunar, fyrir utan að smágrjót hefur hrunið um allt og eyðileggur malbikið.

„Verktaki skal sjá um að vatnsuppistöður geti ekki myndast á svæðinu og skal hann ef kostur er haga framkvæmdum þannig að vatn fái eðlilega framrás. Aðeins í undantekningartilfellum, þegar annað er ekki framkvæmanlegt, má vinna verk þannig að dæla þurfi vatni burtu til að halda vinnustað þurrum og skal þá verktaki sjá um að dælur séu undir stöðugu eftirliti.

Verktaki skal gera viðeigandi ráðstafanir til að hindra ad bakkar hrynji eða grjót úr þeim. Athygli er vakin á þvi að um innrennsli grunnvatns getur verið að ræða. Ekki má útgröftur eða byggingarefni hlaðast þannig upp ad hætta geti stafað afhruni þess“.

 

Vegur sem Þórður Júlíusson lét gera upp að hjalli sem hann átti ofan við Seljalandsveg 78 er algjörlega ónýtur eftir verktaka. Það þarf að laga hann og helst gera hann eins og hann var fyrir, þ.e. malbikaður.

„Vertkaki skal sjá um að uppgrafið efni eða fyllingarefni berist sem minnst út á akbrautir og fjarlægja Þegar í stað allt laust efni sem berst út á götur. Ef umgengni er slæm getur verktaki átt von á því að svæðið sé hreinsað af starfsmönnum Ísafjarðarbæjar án sérstakrar viðvörunar og kostnaður við það dregin frá reikningnum“.

Þessu þarf að framfylgja, og ítreka við verktaka að þetta þarf að gera, ekkert hefur verið gert af hans hálfu til að sópa þessar tvær götur, Seljalandsveg og Skutulsfjarðarbraut.

Verktaki skal gera nauðsynlegar rástafanir til að fyrirbyggja að mold og grjót berist inn á lóðir húsa neðan garða.

Ekki hefur sést sópari á vegum verktakans í vor, þrátt fyrir algjöran sóðaskap og tilheyrandi ryk sem fyllir alla vitund.

Fyrir utan áreiti sem við íbúar verðum fyrir með þunga flutningum fyrir ofan húsin okkar, þá er þIMG_4885ástand

óþolandi.   Þetta hefur algjörlega lamað starfsgetu mína og orðið til þess að ég get ekki lengur sinnt því sem ég hef gert mörg ár að ræktja plöntur.  Og þó ég endalaust reyni að vera jákvæð og hughraust, þá er þetta þvílík innrás á mig og mitt umhverfi, og það versta er að þetta var aldrei nauðsynlegt, eða eins og stendur í skýrslunni: tímabundinn vinna verktaka.. og ef þeir eiga svo að komast upp með að ekki bara eyðileggja 30 ára starf okkar Ella í ræktun, heldur líka fá að eyðileggja malbik og götur bæjarins þannig að við þurfum þar á ofan að hækka skatta og álögur til að borga eyðilegginguna sem þessir aðilar valda, þá er eiginlega komið nóg.

 Samkvæmt samningi þá eiga þeirr ekki að fá að aka um þessa götu.  

IMG_4888

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir eiga samkvæmt útboði að aka um veg sem þeir sjálfir hafa gert frá Grænagarðsnámu niður á hraðbraut og þaðan á tippinn.  En þeir bara fara ekki eftir því, og ég segi hingað og ekki lengra.  þeir eru gott sem búnir að eyðileggja Seljalandsveginn fyrir neðan mig.  Ég vil að þeim séu settar þær skorður sem þeir sjálfir undirrituðu við samninginn.   

 

 


Hvað óttumst við svona mikið við að veita flóttamönnum hæli?

Ég verð alltaf jafn sorgmædd, þegar ég les um að verið sé að senda fólk úr landi, fólk sem vill búa hér og hefur meira að segja fengið vinnu og er að læra íslensku, eins og rússneska konan hér í vor, með syni sína.  Við hvað erum við eiginlega hrædd?

Ég veit að þetta er ekki mannvonska í tilheyrandi stofnunum, heldur eru lög og reglur um þessi mál aftan úr grárri forneskju.  

Það er líka sorglegt að vita að það eru bara tilfellin sem komast í fréttir sem löguð eru, eða þannig sýnist manni það vera.

Hér þarf virkilega að endurskoða sýn okkar á þessi mál.  Við erum fá og smá, og getum svo vel tekið á móti fleira fólki, og við erum að tala um fólk sem vill setjast hér að, hefur metnað til að standa sig og verða íslendingar.  

 

Hvað er það sem hræðis svona?

Mér finnst besta mál að krefjast sakarvottorðs og heilbrigðisvottorðs, þega fólk kemur hingað.  En svo eigum við að skoða mál þeirra með jákvæðum hætti og taka tilllit til hvaðan fólk kemur, til dæmis frá ofsafengnum alræðisríkjum, eða fátækt.  

Ég hef bara góða reynslu af því fólki sem hingað hefur flutt, þau hafa auðgað mannlífið og sýnt fram á ný markmið og verkefni.  Svo margt sem við getum lært af bræðrum okkar og systrum sem hingað leita sér til bjargar.  

Gleymum þessu fjandans sáttmála, hann er hvort sem er bull.  En leggjum frekari vinnu í að skoða hvert einstakt mál og hverja persónu og opnum frekar arma okkar fyrir þeim farfuglum sem hingað leita í von um betra líf.  Ekki vera eins og óhræsið í ljóðinu fræga um rjúpuna.   


mbl.is Izekor sleppt og ekki send burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Happy mothersday - kveðja til allra mæðra.

En fyrst vil ég óska Austurríkismönnum til hamingju með sigurinn í júróvisjón í gær.  Conchita var vel að þessum sigri komin, falleg og gaf af sér góðan þokka.  Hefði viljað sjá Ungverjaland ofar með sinn fallega boðskap, er ánægð með Pollapönkarana líka, 15 sæti er alls ekki slæmt þegar margir bjuggust við að þeir kæmust ekki upp úr undankeppninni, þar á meðal ég.  En þeir náðu þessu sjálfir með sinni góðu framkomu og einlægni, góðir drengir þar á ferð.  Ég var í góðum félagsskap systra minna í gær, Dóra systir bauð okkur Ingu Báru í mat og svo var horft á Júróvisjón, góður félagsskapur þar og við skemmtum okkur konunglega, vorum með blöð sem við merkum inn á hverjir væru sigurstranglegastir, ég veðjaði á Conchitu og hafði rétt fyrir mér. 

 

En í dag er mæðradagurinn, það er meira gert úr honum í mið Ameríku en hér, þar er hann mikilvægur.  Og strákarnir mínir brugðust ekki.

 Jorge færði mér blómvönd og fallega skrifað kort og á því stendur: 

"happy Mothers Day!

I vant to thank you so so much, vor all that you hafave done for me and for taking me as one of your childran.

You are að wonderful woman an a vonderful mother.

Your sveetness and kindness shinw throug this house since the moment I came in!.

I can see  you are a harf worker and full of love and patience, as your work with hyour plants! Those plans that you grow and take vare of are presious!  Such a wonderful creation of God.  And as God amde the flowers He made you also veri precious woman.

May God bless you soo much!

With a lot of love from your  salvadorian son Jorge Campos".

Hvað gefur manni meira en svona falleg orð?  Nema ef vera skyldi að Úlfur minn bauð okkur Jorge báðum í hádegismat í Tjöruhúsinu í tilefni dagsins, ömmustubburinn minn. 

IMG_4884

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tjöruhúsið er ein af mörgum perlum bæjarins og maturinn þar er á heimsmælikvarða, enda kemur fólk hvaðanæva úr heiminum til að borða hér.

IMG_4883

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var að panta, Úlfur fékk sér ufsa, ég fékk gellur og Jorge steinbít.

  

 Og auðvitað þurfti að taka myndir af öllu saman.

IMG_4882
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
IMG_4881
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Við sýndum honum líka fallegu steinlistaverkin hans Júlla míns, sem eru hér til sýnis.
 
IMG_4879
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hann sá svo margt úr út steinum, og bjó til fallega hluti úr þeim.
 
IMG_4878
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þjónustan hér er líka alltaf til sóma, þau Ranka og Maggi eru bæði svo yndæl og svo er um fólkið sem þarna vinnur líka.  Bestu þakkir fyrir okkur.
 
En aftur að  Júróvisjóninni.  Conchita kom sá og sigraði. 
 
49866Conchita
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ég hef sjaldan verið jafn sátt við niðurstöðurnar eins og núna.  Skilaboðin til okkar eru þessi: Við erum öll manneskjur, hvernig við kjósum að klæða okkur eða vera, skiptir engu máli, það er hvernig við umgöngumst hvert annað og það sem í kring um okkur er, er það sem skiptir máli.  Og ég held satt að segja að ef okkur auðnast að fá að lifa nógu lengi, þ.e. mannskepnan þá munum við hætta ástríðu og ást, og öðlast kærleika í staðinn, kærleika til allra, umburðarlyndi og vera fyrst og fremst einstaklingar en ekki hluti af öðrum.  Það verða engin hjónabönd, ekkert kynlíf, þegar ástríðurnar hverfa, verðum við fyrst laus við allt það vonda sem er að þvælast fyrir okkur, ágirnd, drotttnunarsíki, græðgi og slíkt.  En það verður ekki á næstunni, því miður.  En einn góðan veðurdag uppgötvum við að við erum allof tilfinningarík og eigingjörn á hvort annað.  
 
Þá verður tæknin þannig og er reyndar nú að það þarf ekki samfarir til að búa til börn.  Móðurástin er góð hjá flestum allavega, þó eru til mæður og feður sem drepa börnin sín af einhverjum óskiljanlegum ástæðum.  
En nú verð ég skömmuð fyrir þessa framtíðarsýn mína Smile 
 
En svo í lokin er hér ein móðir og amma, yndisleg kona sem kíkti við hjá mér um daginn og við sátum í sólinni og spjölluðum lengi saman.
 
IMG_4876
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Til hamingju með daginn mæður og ömmur.  Heart 
 
 
 
 
 

mbl.is Afar glöð yfir að hafa sigrað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já við erum eins og við erum, og hvað með það?

Mikið rosalega er ég ánægð með þessa ágætu konu.  Það þarf kjark og áræði til að koma fram með svona sannleika.  Svo sannarlega heitir þetta að standa með sjálfri sér og sínum líkama.  Milljón punktar til þín Brooke.  Wizard

 

enhanced-1529-1399393723-11

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Við erum bara eins og við erum ekki satt? bæði konur og karlar. 


mbl.is Neituðu að birta bikiní-mynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundum bara verður maður að tala út.

Ég var að setja  þessa grein inn á Bæjarins besta í dag: 

 

Ísafirði 6. Maí 2014.

Mig langar að spyrja yfirvöld í Ísafjarðabæ, hver hafi eftirlit með verktökum snjóflóðavarnargarðsins „hryðuverkið“ sem er að gerast fyrir neðan Gleiðarhjallann?

Í fyrsta lagi þá var mér lofað að þeir myndu ekki þurfa breiðara svæði þvert yfir ræktunina mína en 10 metra.

Ég hef að vísu ekki treyst mér sjálf til að fara þarna uppeftir, nóg er nú samt að heyra ýskrið í gröfum og jarðýtum, drynjandi búkollum svo drynur í fjallinu, Elli minn skoðaði þetta og fullyrti að þeir hefðu að minnsta kosti tekið 30 metra rein af ræktarlandinu, þvert í gegn.

Ég hef sofið illa núna í lengi og verið að reyna að taka þessu eins og manneskja, en það er bara erfitt, sérstaklega þegar ekkert tillit er tekið til starfs okkar Elíasar s.l. 30 ár af þessum verktökum, enda menn vanir að vaða yfir hvað sem er.

Vegur sem pabbi minn Þórður Júlíusson byggði upp að hjalli sem hann átti fyrir ofan Vinaminni, mitt æskuheimili hefur verið eyðilagður, ekki bara vegna þungaflutninga í allt s.l haust, heldur hefur vatn runnið niður hann í allt vor, vegna framkvæmdanna og stórskemmt hann og ekki bara hann, heldur allan Seljalandsveginn inn að Engi, svo fólk hefur átt í erfiðleikum að labba og skokka veginn.

En það er ekki nóg með það. Heldur er mengun svo mikil af ryki sem kemur vegna sífelldra þungaflutninga þessara trukka gegnum bæinn, bæði Seljalandsveginn og Skutulsfjarðarbrautina að fólk á erfitt með að labba og skokka, bæði á göngustíg við Skutulsfjarðarbrautina og Seljalandsveginn.

Eldri kona kom til mín í dag, og sagði að hún gæti ekki lengur farið sinn daglega göngutúr á gangbraut meðfram Skutulsfjarðarbraut, því hún þurfti að taka fyrir vit sín, þegar þessir aðilar óku framhjá með allt sitt ryk og mengun, þess vegna ætlaði hún að fara Seljalandsveginn, en það var engu betra.

Mér hefur verið tjáð að í útboðinu sem tveir aðilar sendu inn, hafi verið krafa um að göturnar skyldu sópaðar á hverjum degi, meðan á framkvæmdum stendur.

Hinn aðilinn sem sendi inn tilboð, hafði gert ráð fyrir götusópara til að framfylgja þessari kröfu, og það upp á nokkrar milljónir. Sem auðvitað hækkaði tilboð hans, sem þessir aðilar virðast ekki hafa gert ráð fyrir.

Enda virðast þeir sem fengu verkið greinilega ekki hafa gert neinar ráðstafanir, því það bólar ekkert á neinum götusópi. Það væri því ágætt að fá svör við því, hvort ekki hafi gilt sama ákvæði með báðum umsækjendum.

Þetta svifryk er mengandi og erfitt fyrir fólk með viðkvæm lungu, og meira að segja hef ég verið með endalausan hnerra nú í vor, sem er vegna þessa svifryks og mengunar vegna þessara trukka. Hvað þá með fólk sem er með asma eða viðkvæm lungu, og í þessu þurrviðri sem verið hefur.

Nágranni minn hefur þurft að horfa upp á það það að mold og grjót er búið að eyðileggja girðingu fyrir ofan hús hans, þar sem þetta skrýmsli sem kallast snjóflóðagarður rennur endalaust niður að girðingunni, og það í þurrki, menn geta ímyndað sér hvernig fer þá þegar kemur rigningartíð.

Ég verð að viðurkenna að ég er sárreið og sorgmædd yfir öllum þessum framkvæmdum, og hirðuleysi og yfirgangi verktaka.

Þess vegna set ég þetta fram til þess að krefjast þess að bæjaryfirvöld skikki þessa aðila til að haga sér samkvæmt þeim samningum sem þeir samþykktu.

Við nokkur okkar höfum ákveðið að skrifa bréf til bæjarstjórnar um þessi mál og krefja þá um skýr svör um hver þeirra afstaða er til þessara mála, og hvort þau munu veita það aðhald og eftirlit sem þeim ber til að vernda okkur íbúa bæjarins. Sem þeir hafa ekki gert hingað til því miður.

Ég vil hvetja þá sem vilja vera með okkur í því að fara þessa leið til að hafa samband við mig. Því fleiri sem skrifa undir svona bréf, því sterkari erum við. Við kærum okkur nefnilega ekkert um að einhverjir verktakar gjörsamlega hagi sér eins og naut í flagi og hirði hvorki um skömm né heiður, hvað þá að standa við gerða samninga.

Nóg er nú samt. Þetta snýst nefnilega ekki bara um ísfirsk stjórnvöld, heldur að við sitjum ekki uppi með allskonar ókláruð hreinsunarstörf, þegar þessir aðilar hafa hirt gróðann sinn og yfirgefa svæðið, og við þurfum að hreinsa til eftir sóðaskapinn eftir þá og eyðilagða vegi.

Því ef þeir borga ekki fyrir þann skaða sem þeir valda, utan við samning sér í lagi vegna slugsuháttar í eftirliti, þá sitjum við uppi með að borga reikninginn.

Og þetta er bara á allan hátt óþolandi ástand.

Ég er með netfang asthildurcesil@gmail.com.

Endilega látið í ykkur heyra ef þið eruð á sama máli.

 

Sjá hér: http://bb.is/Pages/82?NewsID=187973

 

Og hér: http://bb.is/Pages/26?NewsID=187974

 Þetta er bara óþolandi ástand.


Já við komumst áfram, til hamingju með það Pollapönkarar og börn þessa lands.

Sannarlega gott hjá þeim, ég verð að viðurkenna að mér datt ekki í hug að þeir kæmust áfram.  En ég er bara ánægð fyrir þeirra hönd og Íslands.  Held að þetta með kjólana hafi gert stórt trikk, og eins einlægnin og gleðin sem skein af þeim.  

Var reyndar ánægð með úrslitin almennt, öll bestu lögin komust áfram.  Var samt að hugsa hvort þetta hefði verið "live" því ég sá ekki betur en söngkonan frá Arzbætjan, eða hvernig sem það er nú skrifað var búin að loka munninum þegar endatónarnir glumdu.  Og það voru ótal bakraddir sem ekki sáust, til dæmis hjá rússnesku tvíburunum.  Bara svona pæling.  

Þetta virðist allt meira svona mixað í dag en áður var.  Reyndar heyrðist frekar lítið í söngvaranum sem kom fyrst, eins og söngurinn væri ekki í sömu hæð og undirspilið, en ég er reyndar farin að heyra dálítið illa og þegar önnur hljóð koma, þá er erfitt fyrir mig að greina sundur hljóðin.  

Það er samt ekki jafn spennandi er þetta er allt orðið tæknivænt og ekki í beinni.  


mbl.is Endalaus gleði og þakklæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúran í Kúlu og hryðjuverk.

Venjulega á þessum tíma hef ég verið í friði og ró upp í gróðurhúsinu mínu að undirbúa og rækta blómin mín.  Sálin mín hefur verið syngjandi af gleði yfir lífinu.  En nú bregður öðruvísi við.  Þeir eru nefnilega komnir aftur landnýðingarnir sem engu eira, nú heyrist ekki fuglasöngurinn fyrir ílandi búköllum, stórum gröfum, jafnvel jarðýtum, og það er búið að eyðileggja stærstan hluta af gróðrinum sem við höfðum gróðursett síðast liðin 30 ár, og héldum að við gætum notið þess að ganga um þar og fylgjast með trjánum okkar vaxa og dafna.

Þegar verið var að ræða þetta við mig, fullyrti eftirlitsmaðurinn að það þyrfti einungis að fara yfir 10 metra ræmu gegnum gróðurbeltið, þeir eiga bara að fara beint í gegn og hlífa sem flestu, sagði hann.  Ég spurði ertu viss? já sagði hann og hló, þeir þurfa varla snúningspláss hér.

Elli minn fór að skoða þetta um daginn, ég hef ekki treyst mér til þess, hann sagði mér að þeir hefðu tekið að minnsta kosti 30 metra en ekki 10.  

Og það versta við þetta er að ég þarf að hlusta á þetta í nokkur ár í viðbót.  

Ég ætla að leggja til að það verði reistar styttur af eftirfarandi fólki þarna við skrýmslavegginn; Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími Joð, fyrir að koma þessu á koppinn, forvísismönnum ofanflóðasjóðs, fyrir bruðl með fé almennings, yfirvöld bæjarins fyrir að vinna að þessu og síðast en ekki síst forsvarsmönnum Í.V.A. fyrir að vera allstaðar með klærnar til að koma sér í vinnu, og geta ekki einu sinni gert sér í hugarlund hvernig fólkinu líður sem þarf að hafa þennan óskapnað fyrir augunum, eyðilegginguna.   Allt á þeim falsrökum að það þurfi að verja okkur.  

Þessar styttur yrðu síðan til merkis um græðgi, spillingu og yfirgang manna gagnvart náttúrunni, til umhugsunar komandi kynslóðum.  

  

IMG_3966
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þá er nú meiri sáluhjálp í því að bjarga hunangsflugum upp úr tjörninni minni Smile
E búin að bjarga 12 stykkjum núna undanfarna daga, þær eru seigar að koma til, ég reyni líka að ylja þeim svolítið með að leyfa þeim að spássera á líkamanum á mér.  En ég geri samt upp á milli fluga, bjargaði einni geitungadrottningu í gær, þeirri fyrstu sem ég sá, en ég gat ekki hugsað mér að láta hana labba upp handleggina á mér.  Tounge
 
IMG_4864
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Já er hún ekki bara fínasta hárskraut.  
 
IMG_4868
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þær eru ískaldar greyin þegar þær koma upp úr ískaldri tjörninni.
 
IMG_4869
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þær eru algjör krútt, og mikil þarfadýr líka.
 
IMG_4863
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Úlfur fékk sér lokk í nefni, ekki miðnesið heldur nasavænginn, og auðvitað eru frænkur best til þess fallnar að hjálpa til.  
 
  
IMG_4860
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er svo ein felumynd.
 
IMG_4861
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Já það er hægt að týnast í gróðrinum í garðskálanum hennar ömmu Heart
 
Og nú er háreysti útifyrir, krummi í uppnámi.  
Ég gef honum ennþá, þessari elsku, eða þeim hjónum.  Hélt hann væri bara einn á tímabili, en sé að þau er hér bæði.  
Hann er alveg ótrúlegur, ég gaf honum afgang af læri í gær, sem var svipað stórt og hann sjálfur, minn lét sig ekki muna um að taka hann í kjaftinn og fljúga með hann á brott.
En nú kom nokkkuð annað fyrir, mávahópur uppgötvaði að hér var mat að fá, krummi var nú aldeilis ekki á því að þeir fengju neitt, og nú stendur hann hér fyrir utan hoppandi og skrækjandi til að verja matinn sinn.  
 
IMG_4873
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér situr annar á staurnum, meðan makinn fór með mat í laupinn.
 
IMG_4875
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Því miður náði ég ekki mynd af honum við matinn, því hann er snöggur að fljúga upp.  
 
En mávarnir eru allavega farnir, verð sennilega að hætta að gefa karlanganum, ef mávar fara að gera sig heimakomna vil ekki laða þá að núna þegar aðal varptíminn er hjá smáfuglunum.
 
Er búin að hleypa hænunum út í sólina, þeim finnst svo notalegt að liggja og sleikja hana.  Cool 
 
Svo er best að koma sér út í sólina, þarf sennilega að kaupa mér eyrnatappa.   

Vinátta/kærleikur.

Vinátta og kærleikur eru vafðir inn í sama hugtakið, og geta ekki verið hvort án annars.  Ég hef verið svo heppin gegnum árin að eiga góða vini, ekki bara út í samfélaginu, heldur líka í fjölskyldunni minni.  Vinátta er ekki eitthvað sem maður kaupir, eða mútar sig fram um, vinátta getur einungis þróast með því að rækta hana.  

Rétt eins og við sáum fræjum, tökum græðlinga, ræktum tré og runna, þá ræktum við vináttu og kærleika.  Þeir sem ekki skilja hvað í því felst að rækta samskipti við umhverfið, sitja svo uppi með einmanaleika, ástleysi og illgirni.  Það er ömurlegt hlutskifti.  

Ég er lukkunar pamfíll í því dæmi, því ég hef átt svo gott fólk í kring um mig alla tíð, fjölskylduna mína, börnin mín og bæði æskuvini og svo vini sem ég hef kynnst gegnum lífið og svo elskulega bæjarbúa í þessu bæjarfélagi.

Ég hef verið svo "heppin" að vera vinur barnanna minna, það varð bara þannig vegna þess að ég umgekkst þau eins og jafningja, lét þau vita að ég væri breysk manneskja sem elskaði þau.  Ég var oft sökuð um "frjálst uppeldi", þ.e. að þau urðu meira og minna sjálfala á heimilinu og kunna þess vegna að bjarga sér afar vel út í lífinu.  Ég var á stundum svolítið sár yfir þessu áliti fólks á mér og mínum, en sé það nú að ég gerði þeim mestan greiða með því að gera þau að sjálfstæðum einstaklingum, með því að þurfa að bjarga sér sjálf.  

Ég á líka frábæra vini frá mörgum löndum, sem ég hef ræktað sambandið við og væntumþykja er á báða bóga, þetta fólk gefur mér mikið af kærleika og vináttan er heil og óskipt.  

Ég átti æskuvinkonu sem dó í haust, sem ég reyndar get ekki komist yfir að missa, því við vorum svo nánar alla okkar tíð.  Það er erfitt að missa  og ég missti mig við kistuna hennar, að sjá að raunveruleikinn blasti við, hún Dísa mín var búin að kveðja fyrir fullt og allt.

Núna í dag þurfti ég að taka á honum stóra mínum til að hafa samband við enn eina elskulega vinkonu til áratuga, þegar við vorum saman í Garðyrkjuskólanum, höfum reyndar alltaf verið nánar, en upp á síðkastið höfum við ekki haft samband.   Að taka á honum stóra mínum segi ég, vegna þess að ég á frekar erfitt að biðja um aðstoð.  Ég skrifaði henni fallegt bréf, en ég vissi að það dugði ekki til, ég þurfti að hringja í hana.  Ég dró það í lengstu lög, eða alveg þangað til ég gat ekki sofið lengur fyrir áhyggjum.  En viti menn, þegar ég hringdi þá var eins og við hefðum aldrei verið sundraðar.  

Og ég segi bara, "That what´s friends af fore" 

Ég er svo innilega þakklát þessari elskulegu vinkonu minni og get sofnað rótt í nótt, vegna þess að ég á vin sem elskar mig jafn mikið og ég elska hana.  

Mín kæru, munið að það þarf að rækta ástina, vináttuna og fjölskylduna, ekkert gerist af engu, og ef við getum ekki gefið af okkur þann kærleika sem þarf til að fá viðbrögð, þá eru engir vegir færir.  

Og svo rétt í lokin, barnabarnið mitt er afskaplega yndæll drengur, þessi sem ég tók að mér að ala upp, honum finnst bara allt í lagi að leiða ömmu sína niður heimtröðina þegar það er sleipt, honum finnst líka allt í lagi að kyssa ömmu sína á vangann, þó aðrir sjái til og í dag sagði hann við mig"amma þú er komin með svo sítt hár, og þú ert svo falleg"

Hvað getur ein manneskja óskað sér betra en að vera umvafin kærleika, ást og umhyggju?

En ég veit að þetta kemur ekki ókeypis, heldur er það líka vegna þess að ég hef ræktað garðinn minn, sáð fræjum og elskað.  Þannig er það bara. Heart 


Æ.... júróvisjón og Pollapönk.

Og hvað? þetta er að verða hallærislegasta af öllu hallærislegu og ekki bætti nú um skák þegar Óttar og Skálmaldargaurinn allt í einu voru mættir. Hversu lágt getum við eiginlega lagst, bara spyr? Það er verið að reyna að koma þessu í eitthvað rosa spennandi dæmi, en það bara virkar ekki.   Pollapönkarar eru í sjálfu sér flottir gaurar, en þeir eru á leikskólastiginu, og eru flottir þar, og ég er viss um að Pollaplönk platan þeirra verður spiluð í tætlur í leikskólum landsins, og kynnigar þeirra á lögunum sínum eru flottar... miðað við leikskólabörn, enda er það einmitt málið sem þeir þekkja og kunna. Ég yrði afar hissa ef þeir næðu upp úr forkeppninni.  Í því felast engir fordómar til þeirra, heldur kalt mat á aðstæðum.  Ég get alveg sætt mig við að blessuð börnin fái sitt lag alla leið, en lengra nær það ekki.  

Ég verða að segja það, eins mikil júrómanneskja sem ég hef verið, þá er enginn spenna í gangi á þessum bæ, það verður ekki neitt júrópartý hér.  Og ofan á allt þá ætla blessaðir mennirnir að koma fram í matrósafötum, ég er að upplifa Silvíu Nótt upp á nýtt.  Erum við virkilega svona heillum horfin, að við höldum virkilega að þetta annars ágæta leikskólalag komist áfram í undankeppninni?

Í þessari færslu eru engir fordómar í gangi með Pollapönkið, heldur bara bláköld skynsemi þegar ég hugsa um hlustendur út í hinum Evrópska heimi.  Ég er alveg viss um að þeir eiga eftir að gjörsigra Ísland og ekki síst leikskóla landsins með plötunni sinni, og svo sannarlega eru þeir að segja eithvað sme skiptir máli fyrir börnin okkar.  En lengra nær það ekki.  

 

 

 


mbl.is Óttarr ekki með á æfingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vor og afmæli.

Þessi tími er bestur í garðskálanum mínum.  Ennþá ekki orðið of heitt, og plöntur í blóma.

IMG_4839

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kirsiberin og perutréð í blóma, og hunangsflugurnar komnar, fyrstu flugunni var bjargað úr tjörninni í gær, hún var ísköld greyið, svo ég lét hana ylja sér á handleggjunum á mér, og þar var hún uns hún var tilbúin að fljúga á ný.

IMG_4841

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já svo sannarlega er notalegt að dvelja hér, sama hvernig veðrið er úti, en reyndar er nú sól og blíða í dag.

IMG_4844

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En hann Kristján Logi þessi elska á afmæli í dag.  Hann bauð afa og ömmu í fjöldskylduveislu á laugardaginn.

IMG_4848

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var aldeilis flott boð hjá karli, fyrst var ungversk gúllassúpa, og svo var kaffi með allskonar kökum og fíneríi.

IMG_4851

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Pabbi og amma, honum líður greinilega vel hjá föður sínum, glaður og á fullt af vinum.

IMG_4852

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Alltaf ljúfur þessi drengur.

IMG_4854

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aldeilis flott veisla.

IMG_4856

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér ein fjölskyldumynd í boði Kristjáns. Ég lofaði Inga Þór að taka nokkrar myndir til að sýna þeim í Noregi.  Þau hugsa öll til hans og senda honum stórt knús. 

Innilega til hamingju með afmælið þitt elsku Kristján Heart.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2023336

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband