26.1.2009 | 14:34
ROTTAN OG UXINN!
Nafnleysingjarnir mínir á Málefnunum bentu á það að í dag 26.1.09 byrjar ár uxans samkvæmt kínversku tímatali. En í gær lauk ári rottunnar. Neikvæðu eiginleikar rottunnar er græðgi, en uxanum fylgir vinnusemi og gæði.
Ári rottunar lýkur í dag, Nautið tekur við.
According to the Chinese Zodiac, the Year of 2009 is the Year of the Ox. The Ox, or the Buffalo sign symbolizes prosperity through fortitude and hard work. Those born under the influence of the Ox or Buffalo are fortunate to be stable and persevering. The typical Ox is a tolerant person with strong character. Not many people could equal the resolution and fearlessness that the Ox exhibits when deciding to accomplish a task. Ox people work hard without complaints at work or at home. They know that they will succeed through hard work and sustained efforts, and do not believe in get-rich-quick schemes.
Þetta er ef til vill engin tilviljun, heldur merki til okkar að við eigum betri tíma í vændum. Vonandi. Ég veit ekki alveg hvernig bregðast skuli við þessu. En ef verður af ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með stuðningi Framsóknar og Frjálslyndra, þá hljóta þær kröfur að vera uppi að þau taki á þeim málum sem mótmælendur hafa barist fyrir svo lengi.
Það er;
Seðbankastjórar og bankaráð víki.
Að frystar verði eignir auðmanna sem hafa stuðlað að hruni efnahags landsins.
Að þegar í stað verði farið í að bjarga heimilum og fyrirtækjum landsins, svo endurreisnin geti hafist. Við höfum ekki mikinn tíma.
Svo má skoða hvort við getum af.þakkað hluta af láni Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Ég hef nú trú á því að ef tekst að ná í fé til að ná upp í skuldir, þá sé stætt á því að minnka þá byrði. Ég bendi líka á að ennþá er utanríkisráðuneytið risavaxið, þar má mikið skera niður svo sem eins og rándýr hús í Japan og Berlín. Á móti mætti hætta við niðurskurð í heilbrigðisgeiranum.
Það verður fróðlegt að sjá viðbrögðin. En nú vitum við almenningur í þessu landi að við getum haft áhrif. Að við getum veitt stjórnmálamönnunum aðhald. Sá lærdómur er ekki lítils virði upp á framtíðina að gera. Við skulum strengja þess heit hér og nú að sofna aldrei aftur á verðinum. Og þegar við höfum fengið Nýtt Ísland eftir næstu kosningar, þá skulum við passa vel upp á lýðveldið okkar, eins og ungabarn skulum við fylgja því fyrstu skrefin og muna að við verðum að bæði hrósa og refsa. Láta finna að við erum vakandi og líðum ekki fals og fláræði. Líðum ekki spillingu eða sérhagsmunapot. Aldrei meir pólitískar stöðuveitingar og hagsmunagæsla flokksgæðinga. Við verðum að muna hverir það voru sem hönnuðu atburðarrásina undanfarin 17 ár. Vonandi er Kapitalsiminn jafndauður og Komúnismin, og jafnvægi komið þar á.
En það verður aldrei hægt að byrja með hreint borð fyrr en búið er að þrýfa upp skítinn sem liggur allstaðar. Þó það sé sársaukafullt, þá þarf virkilega að rannsaka aðdraganda hrunsins, og refsa þeim sem þar eru sekir. Ekki vil ég heyra lengur að það eigi ekki að Persónugera vandann. Hann er einmitt mjög persónugerður á hverju einasta heimili landsins, þar sem enginn sleppur undan afleiðingunum.
Um fram allt verðum við hinn almenni borgari þessa lands að halda vöku okkar, og fylgjast með því hvernig málin þróast. Munum að það tók margar vikur að sía málstað okkar inn í stjórnmálamennina, þeir tala nú okkar tungumál, en það þarf ekki að fara langt aftur til að heyra annan tón. Eins og ÞIÐ ERUÐ EKKI ÞJÓÐIN, eða orðskrípið SKRÍLL. Við skulum alls ekki henda pottum og pönnum sleifum eða ausum heldur hengja það upp á vegg til að minna okkur á hve fallvalt lýðræðið er og hve mikilvægt það er að gæta þess vel.
Gott að vita að ár Rottunnar er farið veg allrar veraldar, og nýtt ár Uxans gengið í garð. Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
25.1.2009 | 16:55
Úlfarnir farnir á kreik, útsala á sauðagærum.
Ókey núna er allt svo skiljanlegt og hefur verið lengi í umræðunni. Það væri gaman að rifja nú upp viðtölin við þessa menn síðastliðna hundrað og tíu daga. Ég veit ekki af hverju fyrirstaðan sprakk í gær en ekki í fyrradag eða fyrir mánuði. En ég er farin að fá í hnén út af svona viðurkenningum;
Ástæða ákvörðunar minnar er sú sannfæring mín að nauðsynlegt sé að ryðja brautina fyrir uppgjör og uppbyggingu sem byggi á trausti almennings. Forsendur fyrir því að skapa frið og traust í samfélaginu til endurreisnar eru meðal annars þær að stjórnmálamenn og stjórnendur stofnana samfélagsins axli ábyrgð, segir Björgvin í bréfi til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, þar sem hann tilkynnir um afsögn sína.
Fyrir það fyrsta, þá er undiralda fólksins búin að standa í margar margar vikur. Hvers vegna er þá allt í einu nauðsynin á að fara núna að huga að trausti almennings og uppbyggingunni?
Jú það hefur nefnilega dálítið breyst. Það líður að kosningum, ekki seinna en í maí í vor. Og nú eru úlfarnir med det samme farnir að klæða sig í sauðagærurnar til að plata okkur ennþá einu sinni til fylgilags við sig. Það hefur jú alltaf gefist svo dæmalaust vel.
Skyldi almenningur trúa þeim núna? Eða ætli einhverjir séu glaðvaknaðir og hættir að hlusta á innantóm orð og farnir að kalla á aðgerðir. Skoðaðu frekar hvað menn gera, heldur en hvað menn segja, það gefst alltaf best.
Orð gera verð beitt, þau geta verið sverð okkar og skjöldur. Þau geta líka verið hýjalín, til að sveipa um sig og fela sannleikann, þó oftast fari nú fyrir því eins og Nýju fötum keisarans. Sér í lagi ef fólk er með opin augun. En tími innantómra orða er vonandi liðinn. Eins og orðin hans Geirs á "fréttamannafundi" fyrir utan heimili hans. 'Eg er ennþá að reyna að botna í í fyrsta lagi hvað hann var að segja, og hvers vegna hann var að gefa kost á sér í viðtal til að setja ...... nákvæmlega ekki neitt. Ég ætla ekki að tjá mig um Ingibjörgu Sólrúnu. Blessuð konan þarf hvíld og ef hún veit hvað henni sjálfri er fyrir bestu, á hún nú þegar að fara í frí, og eftirláta sínum mönnum að taka við keflinu. Heilsan verður ekki keypt né endurnýjuð þegar hún er farin.
Svo er að sjá hverjir tjá sig næst um að nú þurfi að fara í "Uppgjör og ryðja brautina fyrir sanngirni og þessu nýlega fundnu orðum "Trausti almennings " Hver fattaði eiginlega upp á þessu?
Og hvenær uppgötvaði blessað fólkið að þau væru nú ef til vill búnin að ganga of langt á þolinmæði og traust okkar pöpulsins/skrílsins?
O jamm og já, batnandi mönnum er best að lifa. En í mínum eyrum héðan af, hljómar þetta eins og innantóm orð, til að sveipa sig hýjalíni að hætti keisarans. Þið höfðuð öll tækifæri í heiminum til að komast vel frá þessu, ef þið HEFÐUÐ Í RAUN HAFT UMHYGGJU FYRIR OKKUR AÐ LEIÐARLJÓSI, en því miður var ykkar hugsun að bjarga útrásarliðinu, og hver veit hve nærri ykkur sjálfum það liggur. Allavega liggur ekkert á að skoða þau mál, eða frysta eigur, eða yfirleitt að raska ró fjármálamannanna hverju sem það veldur nú. Einhverskonar GOODWILL sennilega. Og mörg partý utanlandsferðir og skemmtilegheit!. EN ÁGÆTU STJÓRNARLIÐAR ÞAÐ VAR ÞÁ!!! FYRIR HUNDRAÐ DÖGUM. Þeir eru liðnir, og líka þolinmæði fólksins þanþol þeirra til að skilja ykkur og gefa frið til að vinna. Líka vegna þess að við höfum ekki hugmynd um hvað þið eruð að bralla, og í svoleiðis uppákomum lifna allskonar vantrú og gróusögur.
Þess vegna er þetta OF SEINT OF LÍTIÐ OG HÁLFGERT PRUMP ENN SEM KOMIÐ ER. Það er mín meining.
![]() |
Jón Sigurðsson: Afsögn Björgvins kom ekki á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
25.1.2009 | 11:46
Ráðherraafsögn og mótmæli!
Jamm þá hefur byrjað að molast utan af jakanum, eins og Steingrímur komst að orði. Ef til vill kemur svo aðalbomban á eftir, þegar Geir, Ingibjörg, Þorgerður og Össur segja af sér.
En heyrðuð þið að það á að gera starfslokasamning við einn bjöllusauðinn. Nú viljum við vita hve há sú upphæð er, hve vel er gert við mann sem hefur hylmt yfir með öllum skítnum, sópað honum undir teppið.
Já því miður Björgvin G. Þetta var of lítið og of seint. Þú varst spurður að því hvað þú hefðir gert rangt, það var að heyra að það væri nánast ekkert að hjá þér, nema að fólk væri orðið svo reitt, og auðvitað ætlar þú að halda áfram sem þingmaður, og bjóða þig fram aftur. Sum sé ekkert að. Málið við ykkur er nefnilega nákvæmlega þetta. Það hefur loksins síast inn í kollin á ykkur, að fólk sé búið að fá nóg.... Þá er best að fara frá aðeins, og svo vera tilbúin til að leika sama leikinn aftur. Þú hefur ef til vill fengið þessa hugdettu á árshátíð hjá Seðlabankanum í gær!
Eða eru rotturnar að yfirgefa sökkvandi skip?
Það er sama tuggann aftur, þetta bara gerðist einhvernveginn. Og núna allt í einu ákvaðstu í gær að hætta við. Eftir allar yfirlýsingarnar um hve þið væruð að vinna gott verk, og þið sjálf þýðingarmikil. Veistu að ef til vill er ég orðin svona harðsvírðu, en ég finn hvergi vott af meðaumkvun með þér eða ykkur yfirleitt. Þetta er bara ennþá einn leikurinn hjá ykkur til að plotta og halda völdum.
Fyrst var reynt að tilkynna veikindi og fá samúð þannig, en mótmælin bara jukust, þá er næst í stöðunni að fórna peði. Ég er ekki viss um að það virki í dag. Hefði eflaust gert það fyrir svona hundrað og tíu dögum eða svo, en eins og ég sagði of lítið og of seint.
Því miður ágæta fólk, þið hafið illilega misreiknað íslenska þjóðarsál. Hún er dálítið sveitarleg og undirgefinn alltof lengi. En þegar hún finnur alvöruna og að vegið er að fjölskyldu og heimili hennar, þá bregst hun við eins og öll dýr merkurinnar myndu gera, rís upp og berst fyrir tilverurétti sínum.
Þið hefðuð átt að átta ykkur á mistökunum, þegar það voru konurnar sem voru í fararbroddi, það voru þær sem sátu og prjónuðu fyrir framan alþingishúsið, þær sem geistust fram með pottana sína og sleifarnar. Það voru nefnilega konurnar sem voru oftast fremstar í flokki.
Og svo Hörður, ég verð eiginlega að segja það sem ég hef hugsað frá því að hann byrjaði með mótmælin. Hörður er einn af þeim fáu sem ég þekki, sem ég gat ímyndað mér að stæðist þrýstingin og ekki síst apparatið sem ég er nokkuð viss um að hefur farið í gang með að leita að ávirðingum um hann, til að koma á hann höggi. Hörður er gegnheiðarlegur, en hann er meira, hann skuldar engum neitt, og hefur hagað sínu lífi þannig í hvívetna að ekki ber skugga þar á. Þess vegna er Hörður sterkur fyrir, og hann hefur svo sannarlega gert kraftaverk. Alveg eins og hann gerði með samkynhneigð sína, þegar hann kom heim og stofnaði samtök þeirra. Ég vil ekki að þetta framtak hans gleymist. Það er nefnilega ekki bara nóg að geta komið fram og talað, ekki nóg að þekkja rétta fólkið, heldur er það allra nauðsynlegasta að hafa engar beinagrindur í skápnum.
Nú er að sjá hvort þetta nýja útspil gerir eitthvert bakslag í mótmælin. Ég held samt ekki, krafan er nokkuð skýr, burt með spillinguna, burt með vanhæfa ríkisstjórn og burt með seðlabankastjóra, við getum núna sleppt þessu með fjármálaeftirlitið, nema við viljum fá upp á borðið starfslokasamninginn. Ég er líka viss um að Björgvin prívat og persónulega hefur lést um ein tvö kíló að vera laus úr þessari aðstöðu.
Nú er að sjá hver framvindan verður. Ég hef þá trú að ríkisstjórnin kjósi að fara frá. Ég hef aldrei séð á minni lífsfæddri ævi jafnmikla andstöðu ekki bara almennings, heldur allra sérfræðinga og stjórnspekinga. Þannig að slímsetan er orðin æpandi og fólk skilur ekki af hverju þið þráist svona við. Með hverjum klukkutímanum sem líður meðan þið sitjið svona eykst andstaðan og það fólk sem hefur stutt ykkur og vill ykkur vel hættir að treysta sér til að verja ykkur. Þetta dæmi gengur bara ekki upp.
Svo eru nokkrar myndir frá frábærum fundi hér á Silfurtorgi í gær.
Fólkið lét hvorki rok né kulda aftra sér frá að mæta.
Og ræðurnar voru mjög góðar að vanda. Ég hef líka reynt að fá ræður gærdagsins af Austurvelli en einhverra hluta virkar rás2 ekki, svo það er ekki hægt að spila fundinn. Tilviljun ? Veit ekki ég er farin að sjá grýlur í hverju horni.
Læknirinn.
Neminn
Sjómaðurinn
Kennarinn.
Skríllinn.
Krúttlegasta skyltið í gær. En einmitt dæmigert fyrir það sem ég var að segja hér áður drottinn blessi heimilið. Heimilið og börnin eru helgasta vé hvers manns. Ráðist einhver að þeim gildum, uppsker sá það sem hann á skilið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.1.2009 | 13:19
Mótmælafundur á Silfurtorgi kl. þrjú - mætum öll.
Jæja gott fólk þá eru laugardagsmótmælin á dagskrá núna kl. þrjú á Silfurtorgi. Það er best að klæða sig vel, fara helst í kuldagalla, svo ykkur verði ekki kalt meðan þið hlýðið á ræðurnar.
Ég segi það enn og aftur, það er á við tíma hjá góðum sála að koma saman og hitta fólk sem deilir tilfinningum sínum og hugarástandi. Það er gott að finna samhug og vináttu allstaðar í kring um sig. Stöndum saman.
Í dag verða ræðumenn Þorsteinn Jóhannesson ríkisborgari, Harpa Henrýsdóttir ríkirborgari Þorsteinn Másson ríkirborgari og Þóra Karlsdóttir ríkisborgari.
Og svo auðvitað Guðmundur Þór sem heldur utan um þetta allt saman. Ef það mæta nógu margir, þá getum við haldið hita hvort á öðru með að standa í hnapp.
Mætum öll og látum í okkur heyra!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.1.2009 | 20:00
Bara hreint úr úr mínu öskurreiða hjarta.
Ég vil byrja þennan pistil minn á fleygum orðum; kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki. Þá er ég ekki að vísa til veikinda Geirs og Ingibjargar. Heldur einungis að minna fólk á að maður á ekki að persónugera vandann.
Ég er satt að segja alveg gáttuð, ég er fyrst og fremst gáttuð á því hve þykk hljóðhimnan virðist vera á stjórnmálamönnum ÖLLUM, og stjórnmálafræðingum, fréttamönnum og öllu heila valdaklabbinu í þessu þjóðfélagi.
Þið hafið greinilega ekkert hlustað, ekkert heyrt eða viljið ekki vita ótíðindin; sum sé þau að mótmælendur vilja hvað!!! Jú ríkisstjórnia burt, seðlabankastjórana burt, fjármálaeftirlitið burt, útrásarliðið burt, spillinguna burt!!!
Er þetta svo erfitt að meðtaka? Ójá það er erfitt að fá það beint í æð að fólk vill ykkur ekki lengur.
Nú stendur yfir undirskriftasöfnun að mestu leyti byggðar á tillögum frá Nirði P. Njarðvík sjá hér http://www.nyttlydveldi.is/ um að mynduð verði utanflokkastjórn, þar sem gerð verði alvarleg útttekt á lýðræðinu, farið yfir stjórnarskrána, fækkað þingmönnum og gerðar margskonar leiðréttingar og breytingar í átt að virkara og betra samfélagi.
Ég get vel skilið að þið ágætu pólitíkusar hræðist slíka naflaskoðun, hvert og eitt ykkar, því svo sannarlega getur það haft mikil áhrif á stöðu ykkar sjálfra og aðild að Nýja Íslandi. En ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐALATRIÐIÐ Í ÞESSU SAMBANDI, HELDUR ÞJÓÐIN SEM HEILD. RÉTTARRÍKIÐ ÍSLAND ER Í HÆTTU SEM LÝÐVELDI EF EKKERT VERÐUR AÐ GERT. Og núna er tíminn til að breyta.
Með hrókeringar milli flokka, eða hrókeringar milli manna í æðstu stöðum gerist ekkert af þessu. Þið hafið þann samtryggingarmátt að ekkert kemst þar að annað en ykkar persónulegu þarfir, samanber eftirlaunafrumvarpið fræga og fleiri mál því tengd.
Við sem höfum mótmælt viljum breytingar, við viljum að þessi ríkisstjórn víki, og að sett verði á stofn utanþingsstjórn sem mun taka á þessum málum, síðan má kjósa eftir nýjum formerkjum.
ÞIÐ HAFIÐ EKKI LENGUR TRAUST OKKAR, EKKERT YKKAR. Því miður fyrir ykkur.
Þess vegna finnst mér afar ógeðfeld umræðan um hvort hér verður grænblá eða rauðgræn ríkisstjórn fram að kosningum. Eða hvort einhver ráðherra tekur hattinn sinn og staf. Það bara skiptir engu máli í þessu samhengi!
Hér hefur verið töluð hrein og tær íslenska af fólkinu í landinu, sem er að missa allt sitt, eða á í allskonar erfiðleikum og hefur misst traustið á valdastrúkturnum eins og hann leggur sig.
Því er það í hæsta máta sorglegt þegar æðstu stjórnendurnir, sem reyndar eru báðir fárveikir diskutera um hvernig ÞAU ÆTLA AÐ HAFA ÞETTA. Umboðslaus eins og þau eru.
Ég hef fulla samúð með veikindum þeirra beggja, og finnst það dapurlegt að svo skuli vera komið fyrir þeim báðum. En því í ósköpunum taka þau sér ekki frí og eftirláta öðru fólki að takast á við þau mál sem þarf að gera NÚNA. Það er slíta þessu samstarfi og biðja um að skipuð verði utanþingsstjórn að vilja fólksins.
Mér finnst það líka í hæsta máta ósmekklegt af þessu fólki að ætla okkur það að hafa sektarkennd út af veikindum þeirra, og vilja að við lítum á þau sem hetjur að standa í þessu svona veik. Ég segi fyrir mig, ég vil það bara alls ekki. Það er ekkert sem bindur ykkur við þær stöður sem þið nú hafið gegnt um árabil. Við höfum fullan skilning á því að þið þurfið hvíld og næði til að hlú að ykkur sjálfum, og berjast til heilsu á ný.
Ég vil ekki persónugera þennan vanda. Og ég fæ klíju af að hlusta á meðvirkniskórinn sem hér talar út í eitt, veitist að Herði Torfa og öðrum sem vilja halda okkar sjálfsögðu góðu óskum til streitu.
Ég hugsa stundum að það sé von að landið hafi sporðreists, þegar ég upplifi hverslags meðvirknishænur eru hér í stórum stíl, og eru nú að reyna að koma inn sektarkennd hjá þeim sem vilja standa á sjálfsögðum rétti sínum að mótmæla.
Þeir segja að nú sé markmiðinu náð það verði kosningar í vor.
Það voru aldrei markmið mótmælenda að það yrði bara kosið í vor.Markmiðin voru að þessi ríkisstjórn færi frá, Seðlabankastjórnin færi frá, fjármálaeftirlitið færi frá, spillingaröflin færu frá. Að tekið yrði á spillingunni.
Ekkert af þessu hefur verið gert. Og nú eiga menn bara að sitja og þegja af því að formennirnir eru svo veikir að þeir eiga samúð okkar skylda.
Það er fullt af fólki sem er veikt og þarf skilning, verður hætt að senda þeim reikninga eða veita þeim einhverja aðstoð svo þau geti lifað betra lífi? Verður þar með tekið meira tillit til aldraðra og öryrkja af því að þau þurfa aðhlynningu? Fá menn betri meðhöndlun af því að þeir eru jú veikir, af hendi hins opinbera?
Nei við persónugerum nefnilega ekki vandann. Við höfum öll okkar djöful að draga, en við þurfum að lifa við það, og oftast án þess að almenningur þurfi að hliðra til fyrir okkur.
Ég get svarið það að ég næ ekki upp í nefið á mér fyrir reiði. Hér er hámark hinnar heimóttarlegu lítilmótlegu þjóðarsálar.
Landið er að fara til fjandans, og við eigum bara að setjast og bíða af því að tvær manneskjur hafa veikst og að þeirra eigin mati getur enginn annar sinnt þeirra störfum. Þó hafa þau svo sannarlega andskotan ekki verið að gera neitt, ekki sýnilegt allavega. Og það sem verra er að það er fólk sem tekur undir þennan söng og vælir í kór. Meðvirkniskór.
Þetta er mín sýn á málið, og ég bið ykkur kæru mótmælendur, látið ekki einhverjar skammsýnisraddir telja úr ykkur kjarkinn. Við erum í fullum rétti til að halda áfram að mótmæla og mótmæla hátt og ennþá hærra en áður, ef þetta lið spillingar og samvirkni hefur ekki ennþá heyrt kröfurnar okkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (70)
23.1.2009 | 14:33
Hún er tveggja ára í dag.
Skottan mín er tveggja ára í dag. Þennan dag eða aðfararnótt hans sat ég út í Vínarborg þegar Bára mín fékk hríðarnar. Bjarki maðurinn hennar fór með hana á spítalann, en ég fór inn til Hönnu Sólar. Datt samt í hug að best væri að hringja í Ella minn og segja honum fréttirnar. Fór fram til að hringja til að trufla ekki barnið. En bak við hurðina voru geymt allskonar dót, innisnúrur og einhverjar aflóga hillur, sem ég er að hringja heyri ég dynk og höfðu dyrnar lokast og dótið dottið fyrir þær, þannig að ég gat ekki opnað. þarna sat ég fyrir utan svefnherbergisdyrnar en inni svaf barnið og hundurinn. Það var sama hvað ég reyndi ekkert gekk að opna, og um sjö leytið kom pólska ræstingarkonan og við reyndum áfram. Svo heyrði ég að Hanna Sól var vöknuð, svo ég fór að tala róandi við hana gegnum dyrnar. Las fyrir hana sögu og söng, hún var ótrúlega róleg. Ég bað hana að reyna að taka dótið frá. Hún skildi ekkert í af hverju ég kæmi ekki inn, en hún var þá bara þriggja ára. Loks bara gerðist eitthvað og sem ég rykkti í dyrnar opnuðust þær eins og ekkert væri. Ég hef aldrei fundið skýringuna á því hversvegna í fyrsta lagi dyrnar smullu aftur, það hafði ekki gerst áður, og síðan opnuðust alveg fyrirvaralaust.
En sem sagt litla skottan er hér og er tveggja ára í dag.
Henni fiinnst gaman að búa um sig í tröppunum og þykjast sofa.
Henni dettur allskonar hlutir í hug, og framkvæmir þá.
Tjörnin hefur löngum haft aðdráttarafl fyrir litla prakkarann.
Blómakona er hún líka eins og amma.
Brandur fær líka sinn skammt af athygli.
Hún getur líka verið algjör kjúklingur þessi elska.
Og það er gaman að fara í sund.
Og sum uppátækin eru kostuleg.
Vínber eru líka góð.
Best að fara varlega þegar endur eru einhvarsstaðar í nánd.
Svo þarf að prófa allt.
Henni þykir gott að borða.
Og er sérlega hrifinn af kjöti.
Sjáðu!!!
Ég var að sulla.
Já það þarf ýmislegt að máta og prófa.
svo er best að skreppa út.
Hún er líka skapmanneskja mikil.
En alltaf til í að kyssa.
Svo er hægt að skoða sjálfa sig frá öllum hliðum.
Líka gott að knúsa ömmu.
Og afa.
Svo getur maður líka verið voða fín.
Og á morgun fær hún pakka, og þá verður líka veisla. Pabbi hennar ætlaði að koma í dag, en það var því miður ekki flogið, svo vonandi kemst hann í fyrramálið.
Innilega til hamingju með tveggja ára afmælið elsku Ásthildur Cesil mín !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
22.1.2009 | 18:54
Hvað með utanþingsstjórn - þjóðstjórn. Er hún út úr myndinni. Please þetta er ákall um samstöðu.
Málin eru að taka vinkilbeyju sem ég er ekki sátt við.
Ég var tilbúin til að leggja flokksstarf til hliðar og leggja af stað upp í göngu, marseringu með þjóðinni um að setja á stofn utanþingsstjórn, eða þjóðstjórn nú eða hvað það er kallað, til að fá utanaðkomandi fólk inn og fara yfir stjórnarskrána og koma á virku lýðræði. Fá bestu sérfræðina gil að vinna að því. Mér fannst það eiginlega vera það eina sem kæmi til greina. Sérstaklega í ljósi kröfu fólksins sem hefur látið mest að sér kveða í mótmælum. Það hefur einmitt verið krafan um að halda pólitíkinni burtu, en fara inn með sérfræðinga og þá sem best vit hafa á.
Nú stefnir í að menn séu að rotta sig saman, Vinstri grænir, Samfylking og Framsóknarflokkur til að "taka að sér að redda málunum". Er það virkilega það sem við viljum? Er það það sem fólk hefur staðið dögum saman og beðið um í mótmælum?
Nei ekki hefur mér skilist það. það hefur einmitt verið krafan að PÓLITÍK VÆRI EKKI INN Í MYNDINNI, ÞEIR AÐILAR SEM HAFA SETIÐ ÞARNA NIÐRI Á ALÞINGI OG RÁÐIÐ RÁÐUM SÍNUM yrðu ekki með í þetta sinn, ekki í Nýja Íslandi.
En ónei í skjóli fyrirhyggjunnar og björgunar, þá kemur þetta fólk fram og ætlar sér að taka við kyndlinum. Setjast í ríkisstjórn og bjarga okkur þjóðinni. Bíðið meðan ég æli.
Hvað hugsa menn sér, að Ingibjörg Sólrún verði forsætisráðherra? Steingrímur þá utanríkisráðherra? Ekki svo að Steingrímur myndi ekki sóma sér ágætlega þar. En málið er bara að með þetta sama samtryggingarfólk ennþá þarna inni þá BREYTIST EKKI NEITT. Það verður ekkert rippað upp, það verða engar breytingar sem máli skipta, ekki fækkur þingmanna, ekki breytingar um að ráðherrar sitji ekki á þingi, samtryggingin er nefinlega samnefnari þessa fólks. Allt í einu núna kvaka þingmenn um gömlu kosningaloforðin, sem þeir hafa steinþagað um síðan þeir komust í ríkisstjórn. Nú á allt í einu að fara að draga þau upp, dusta af þeim rikið og sýna á brjóstinu eins og orðu.
Fyrirgefið ég er bálill. Augnablik hélt ég að það væri pláss fyrir réttlætið, samhyggðina og nýja sýn. En ónei, við sitjum uppi með sama gamla þreytta liðið, sem ætlar að bjarga okkur af sinni snilli.
Ég segi; ÉG ER BÚIN AÐ FÁ NÓG. ÉG VAR TILBÚIN AÐ GLEYMA AUGNABLIK STJÓRNMÁLUM OG TAKA ÞÁTT Í AÐ SKAPA NÝTT ÍSLAND. NÝJA SÝN, BREYTA TIL BATNAÐAR. En ég sé að það á bara að troða nýjum andlitum af gömlum belgjum niður í kokið á okkur.
Stjórnmálamenn hafa gefið okkur puttan. Þeir ætla ekki að gefa valdið til fólksins. Þeir ætla bara að hrókera og skipta um lið. En það verður sama liðið áfram, bara hinir. Þau hafa ekki heyrt orð af því sem sagt hefur verið. Ekkert hlustað.
Og auðvitað draga svo flokksdindlarnir sig í hlé, því það má hætta andófinu af því að þeirra flokkur fær smjörklípu.... eða hvað!
Er þetta það sem hrópað var á Austurvelli? Nei við sögðum Nýtt Ísland. Kosningar í vor og þjóðstjórn, utanflokkastjórn eða hvað sem það kallast strax.
Ég vona svo sannarlega að við hættum ekki hér, tökum þessa dúsu og látum okkur þetta lynda. Þá var til enskis barist. Því það er sami rassinn undir þeim öllum. Og þó þeir hrókeri til og frá til að halda völdum núverandi stjórnmálaafla, þá verður það ALREI OKKAR NÝJA ÍSLAND. Það verður sama sullið í annari skál!
Please látum í okkur heyra, látum þetta fólk vita í eitt skipti fyrir öll, að við viljum breyta og við viljum ekki meiri pólitík í bili. Það er komin tími á að bestu sérfræðingar okkar taki við og leiði okkur tæknilega út úr ósómanum. Þegar leikreglur hafa verið skerptar og breytt stjórnskipulagi, þá má kjósa. Þangað til megum við biðja ykkur að halda ykkur burt kæru pólitíkusar. Við höfum fengið upp í kok af ykkur í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
22.1.2009 | 14:20
Smá tiltal og krúttfærsla.
Áður en ég set hér inn ljúfara efni og yndislegra, langar mig að koma á framfæri minni sín á það sem er að gerast.
Það er talað um að mótmælin séu að breytast í óeirðir og fólk hafi ekki lengur tök á ofbeldinu. Löggan segir að það sé undir mótmælendum komið hvort þeir taki á móti.
Þetta er hvorttveggja hálfsannleikur.
Í fyrsta lagi sýna langflestir lögreglumenn aðdáunarverða þolinmæði og þrautseigju. Þarna standa þeir hreyfingarlausir og taka móti eggjum og mjólk án þess að depla auga. Þeir eiga alla virðingu skilið. En innan um þessa virðingarverðu lögreglumenn og konur, eru ofbeldismenn sem ætti að vera búið að fjarlægja fyrir löngu. Þeir eru í lögreglubúningum en ættu ekki að fá að setja slíka upp, því búningurinn verndar þá. Þeir sýna af sér ofbeldi og ofstopa. Þeir ráðast tilefnislaust á hvern sem fyrir verður, miða á ljósmyndara og heimildargerðarmenn, til að varna því að ódæðin náist á myndband. Það er lögregluyfirvöldum ekki til sóma að verja þessa ofbeldismenn. Miklu frekar á að taka þá úr umerð. En þeir virðast vera þarna í skjóli yfirvalds sem dreymir um að stofna her. Þess vegna nýtur þessi stofnun því miður ekki trausts.
En ég vil biðja fólk um að láta lögregluna vera í friði, flestir þeirra eru fólk eins og ég og þú, sem hafa tapað miklu og eru skuldsettir. Það er líka langbest að gefa ofstopamönnunum ekki tækifæri til að haga sér eins og fílar í postulínsbúð.
Langflestir mótmælendur eru friðsemdarfólk, það er að vísu reitt, en hefur sýnt ótrúlega stillingu og þolinmæði. Innan um þá eru ofbeldismenn sem hafa yndi af átökum og gera sitt til að æsa ástandið upp. Það er erfitt að ráða við þá vegna þess að yfir þeim er enginn stofnun sem þarf að gæta að virðingu sinni. Þeir hafa engan yfir sér nema sjálfa sig. Þess vegna á að gera eins og Hörður biður um að reyna allavega að tala þá til, og fá þá til að láta af ofbeldinu. Það gerir illt verra fyrir alla hina og skemmir fyrir.
En að það sé undir mótmælendum komið að allt fari vel er kjaftæði. Það eru til margar myndir og frásagnir sem sýna einmitt að löggubullurnar efna oftast til illindanna, með framferði sínu. Það ættu yfirvöld að taka fyrir strax ef þau vilja halda trúnaði og trausti almennings á stofnunni Lögregla.
Annað sem ég vil koma á framfæri, af því að menn virðast ætla að hlaupa á tilboð Framsóknar um að styðja Vinstri græna og Samfylkingu vilji þeir koma á nýrri ríkisstjórn. VIÐ VILJUM ÞAÐ EKKI.
VIÐ VILJUM EINMITT SPILLINGUNA BURT, OG ENGA PÓLITÍK Í BILI HELDUR UTANÞINGSSTJÓRN MEÐ FÓLKI SEM HEFUR EKKI KOMIÐ NÁLÆGT PÓLITÍKINNI. Er þetta svona erfitt að sjá og skilja? Og hvað haldið þið að það myndi gera þessum flokkum ef svo yrði kosið í haust? Jú ég veit það, í fyrsta lagi myndu mótmælin halda áfram, þetta er ekki það sem verið er að biðja um. Og svo myndi fylgi Samfylkingarinnar halda áfram niður á við, einnig Vinstri grænna og Framsóknar. Vilja menn virkilega taka sjensinn á því?
Nei hér er best fyrir alla aðila að komið verði til móts við almenning um utanþingsstjórn sem fengi svigrúm til að endurskipuleggja lýðræðið og nýja stjórnarskrá og ný kosningalög. Í anda Njarðar P. Njarðvík og Vilmundar heitins Gylfasonar. Það verður aldrei ALDREI sátt um neitt annað, þó sumir séu með ráðherraglýjur í augunum. Og hana nú!.
En léttara hjal.
Dagurinn í fyrradag var fallegur, í gær var rok og svo er lika í dag.
Það blæs dálítið, lognið er að flýta sér.
Þetta er eins og það sé pottlok yfir fjöllunum.
Morgnarnir ganga sinn vana gang. Fyrst er Hanna Sól vakinn og sett framan við sjónvarpið, svo er Úlfur vakinn og svo vaknar litla skottið sjálf örlítið seinna. Brandur vaknar um leið og afi kemur fram.
Úlfur tilbúinn og bíður eftir rútunni.
Brandur er mjög áhugasamur um morgunmat telpnanna.
Svo er knúsast svolítið áður en prinsessur klæða sig upp til að fara í leikskólann.
Jamm ég sagði prinsessur, svona var Hanna Sól klædd í gær.
É pðinseðða sagði skottið.
Hún ákvað líka að fara með bók í skólann. En amma gat laumað henni frá.
Hér er hún að segja Úlfi til með tölvuna. Hún verður tveggja ára núna 23. janúar.
A sjáðu! segir hún og fylgist vel með öllu.
Afi og skottan, hún er að skoða mynd sem Steingrímur S.T. Sigurðsson heitinn teiknaði af ömmu hér á balli fyrir mörgum árum.
Hanna Sól er byrjuð á sundnámsleiði. Hún er að vísu flugsynd en það er eiginlega svona hundasund, nú á hún að læra að synda venjulega.
Og stinga sér og alles.
Þetta þarf allt að lærast.
Það var fullt af krílum sem eru á námskeiði, þrjú holl líka.
Og mamma, Hönnu Sól vantar svona froskalappir í réttri stærð, hún var alltaf að missa þessa. Hún þarf líka að venjast þeim.
Synt áfram í röð. Sumir krakkana voru rosalega dugleg. Hanna Sól var líka mjög dugleg miðað við að hún var þarna í fyrsta skipti.
Þetta kemur allt saman.
Þær eru saman á leikskólanum á Suðureyri.
Svo var voða notalegt að skríða í heita pottinn eftir sundið.
Ekki sleppa þessi börn við aðgerðir útrásarvíkinganna. Þeirra vegna verða þau að taka á sig rúmar 6 millur á barn, svo þeir geti leikið sér og flutt fjármagn á Caymaneyjar með aðstoð stjórnvalda. Nei það er ekkert réttlæti í því.
Sem betur fer er þetta bara ský, en ekki það sem það lítur út fyrir að vera. Eigið góðan dag elskurnar.
Munið að þið mótmælið í mínu nafni. Og ef þið verðið fyrir einhverju eins og táragasi, piparúða eða kylfum, þá snertir það mig líka, og vekur mér reiði. Það er alveg skýrt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.1.2009 | 12:02
Ég er þjóðin - þjóðin er ég.... og þú!
Miðað við hve hörð mótmælin voru í gær, og svo viðtal við einn þingmann samfylkingarinnar sem sagði að hann gæti ekki stutt ríkisstjórnina lengur bætti við aðspurður að hann teldi að þingmenn bæði hjá sjálfstæðismönnum og samfylkingu væru sama sinnis, þá bjóst ég eiginlega við því að fá að heyra þær fréttir í morgun fyrst af öllu að Geir H. Haarde hefði gengið til forseta og beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
En nei ó nei, það sem ég heyrði var yfirlýsing frá dómsmálaráðherra um að hann ætlaði að fjölga lögreglumönnum.
Nú þekki ég ekki þankagang ráðamanna og ég mun sennilega seint skilja hann eða af hverju stólarnir eru svona þægilegir, þó þeir séu orðnir brennandi heitir svo úr rjúki. Hvað er það sem þau óttast svo mjög að þau loka augum og eyrum fyrir kröfum fólksins?
Þetta er fólkið sem þurfti að læðast heim í gærkveldi bakdyrameginn. Halda þau virkilega að fólk hætti og gefist upp? Að þetta síendurtekna staðfestuleysi íslendinga gerist nú eins og alltaf áður. Þau gefast upp og allt verður í lagi. Svo verður þetta gleymt í næstu kosningum?
Já ég held því miður að það sé rauninn. Að Þau virkilega haldi að ef þau þreyja þorran og góuna, þá hætti þetta allt saman, fólkið gefist upp og síðan komi til þetta venjulega gullfiskaminni sem við erum fræg fyrir.
Það versta við þetta er að við höfum sjálf skapað þetta ástand. Við höfum kennt þeim að við sitjum bara þæg og góð sama hvað gert er. Einkavinavæðing, ráðning vina og vandamanna í toppstöður, spilling einstakra ráðherra og jafnvel lögbrot af þeirra hendi. Við höfum hreinlega kennt þeim að svona megi. Þess vegna geta þau ekki skilið að í dag sé þetta ekki svona. Að nú sé allt breytt, alvaran tekinn við. Þau halda í alvöru að þetta sé bara skrílslæti í einhverjum vinstri grænum. Þeir vita að þeir hafa tögl og haldir í fjölmiðlum, og að þar sé reynt að fegra ímynd þeirra og mála hina dekkri litum.
En jafnvel það er að breytast. Fjölmiðlafólk er að verða aðgangsharðara og farið að sýna meira af hegðun þeirra. Það kemur örugglega af þrýstingi frá fólkinu á gólfinu, sem sættir sig ekki lengur við þöggunina. Þau þurfa bara að standa saman í því að slá skjaldborg til varnar sannleikanum og réttlætinu, svo það verði ekki þaggað niður.
Ég veit að flestir lögreglumenn eru prúðmenni og gott fólk. Innan um þann hóp leynast því miður bullur og ofbeldismenn, sem njóta þess að "láta helvítin hafa það". Slíkir menn eiga aldrei að fá leyfi til að ganga í búningum. Þeir setja blett á alla hina sem vinna af trúmennsku og góðum hug. Það eru mennirnir sem eyðileggja trúnaðartraustið sem almenningur verður að geta borið til lögreglunnar. Það þarf líka að taka piparúðann af þessum mönnum, þeir hafa sýnt að þeir nota hann til að vera í stórkallaleik og rambóstælum. Ég er mjög hissa á að það skuli ekki vera búið að grípa í taumana og innkalla þessa úða, svo misnotaðir sem þeir eru. Það getur ekki þýtt nema eitt, stjórnvöld samþykkja þetta ofbeldi. Eftir höfðinu dansa limirnir, og það virðist vera að þessum mönnum sé hreinleg veitt veiðileyfi á mótmælendur. Þetta er ekkert nýtt, því þeir hafa lengi haft svona "skotleyfi" á undirmálsfólk og fíkniefnaneytendur. Þetta er bara stigið fyrir ofan, því samkvæmt skilgreiningu valdsins eru mótmælendur skríll.
Það sem yfirvöld skilja ekki, vegna gjárinnar sem aðskilur þá frá fólkinu að hér er alvara á ferð. Sífellt fleiri missa lífsviðurværi sitt, sjálfsvirðinguna og tækifærin til að framfleyta sér. Um leið og það er tekið frá fólki gerist eitthvað. En á sama tíma og þetta gerist, þá er sýnt að valdið heldur hlífiskyldi yfir þeim sem rupluðu og rændu fólkið. Þeir sem hafa sitt á hreinu í skattaparadísum hér og þar um heiminn, og ætla að kaupa landið upp á brunaútsölu. Með fullkomnu leyfi og aðstoð valdsins. Svona lítur nú dæmið út ef maður skoðar atburði síðastliðna mánuði.
Og svo biður þetta fólk um vinnufrið. Óskapast yfir hávaðanum. Forseti þingsins segir með hroka að auðvitað komi það alls ekki til greyna að breyta neitt starfi þingsins. Forgangurinn er líka augljós, það er verið að fjalla um leyfi til sölu á bjór og léttvíni í verslunum. Hvernig eigi að greiða fyrir innvols og líkamsparta og ég veit ekki hvað og hvað.
Er nema von að fólki blöskri. Síðast útspil sýslumannsins á Selfossi var svo einn af dropunum sem fyllti mælinn. Að auglýsa fjöldahandtökur á skuldara meðan þjófarnir ganga lausir. Þó honum hafi verið gert að hætta við þann gjörning var skaðinn skeður.
Fólki er hreinlega ofboðið og það er ekkert skrítið við það. Fólkið sem er að mótmæla er þjóðin sjálf, þetta eru ekki bara einhver vinstri græn, eða stúdentar, eða einhver gengi. Þetta eru ömmur afar, mæður, feður allt litrófið við ég og þú. Um leið og lögregla piparúðar mótmælenda á Austurvelli, piparúðar hann mig um leið og lögga handleggsbrýtur mann með kylfu, handleggsbrýtur hún mig. Ég deili lífsreynslunni með þeim sem verða fyrir ofbeldinu af því að ég deili áhyggjum mínum með þeim samsama mig þeim. Væri þarna sjálf ef ég hefði tækifæri til. Reiðin sem gagntekur mig við að horfa upp á lögregluna misbeita valdinu er reiði þjóðarinnar. Þjóðar sem loksins hefur risið upp og mótmælir óréttlæti, svikum, lygum og öllum þeim óþverragangi sem finna má.
Krafan er einföld hún getur ekki verið einfaldari; við viljum ykkur burt. Við viljum ekki að þið aukið lögregluafskipti, við viljum heldur ekki að þið farið að skipta út mannskap, eða grauta eitthvað og krukka í ykkar liðum. Við viljum hreint borð. Við viljum neyðarstjórn samsetta af fagfólki, sem bjargar því sem bjargað verður NÚNA. Við viljum svo fá að kjósa í vor. Ef þið bara opnið augu og eyru þá getið þið heyrt að þetta er krafa þjóðarinnar, meira að segja krafa flestra þeirra sem deila með ykkur flokkum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
20.1.2009 | 18:32
Í skugga ofbeldis lögreglu með piparúða og friðsamlegra mótmæla.
Mótmælin í dag voru afgerandi. Viðbrögð stjórnarliða er líka eftirtektarverður. Þorgerði Katrínu þótti verst að verið væri að trufla hana við vinnuna sína. Árni Mathiesen taldi að hann hefði ekki gert neitt rangt. Geir bað um þolinmæði. Hversu langt frá þjóðarsálinni er þetta lið eiginlega. Og hver voru svo þessi áríðandi mál sem alþingismenn voru að ræða? Jú þeir voru að ræða um líffæragjafir og hvort selja ætti áfengi í matvöruverslunum.
Getur einhver sagt mér hvað fólkið er að hugsa? Nei auðvitað ekki. Þau eru svo gjösamlega á svig við alla almenna skynsemi.
Ég held að lögreglan ætti að fara á námskeið í framkomu. Þeir voru þeir einu sem beittu ofbeldi Það vakti hjá mér vondar hugsanir að sjá þá standa þarna og rjúka upp af minnsta tilefni og sérstaklega þegar þeir beittu piparúðanum. Þegar gert verður hreint fyrir dyrum eftir að búið er að losna við spillingaröflin, verður að taka í gegn lögregluna og skoða hverjir þar eru sem beita valdi. Eru í Rambóleik. ´Sá ekki betur en aðgerðir þeirra væru fumkenndar, og allt í einu ákveðið að rýma þennan stað eða hinn. Og þá var ráðist til atlögu gegn óvörðu fólki.
Ég hef verið að reyna að gera mér í hugarlund hvað þetta fólk er að hugsa. Hvað er það sem gerir þeim svona erfitt fyrir að segja af sér. Að þau vilja vinna allt til að sitja áfram þó alveg sé ljóst að þjóðin hefur hafnað þeim. þau fórna ærunni, stoltinu og mannlegri reisn til þess að slímsitja hvað sem á dynur.
Hvernig líður þeim, þegar þau heyra hvern sérfræðinginn af öðrum, innlendan sem erlendan segja hreint út að þau séu í besta falli vanhæf í versta falli lögbrjótar. Eða hafa þau lokað öllum skilningarvitum?
Í flugi er ákveðin staður þar sem ekki er hægt að hætta við flugtak. (point of no return) Núna hefur ríkisstjórnin komist á þann punkt að hún á enga leið til að sitja áfram. Henni ber því að segja af sér og koma sér frá.
Mér líður eins og að hafa verið svipt inn í einhverskonar hryllingsmynd, þar sem allt getur gerst. Á nokkrum vikum hefur lífi mínu verið umturnað gjörsamlega. Ég var í öryggi sátt við það sem ég hafði, átti von á rólegum þægilegum tíma í ellinni. þessu var svipt burtu með einu pennastriki þjófa og ræningja. þessir ræningjar sitja ennþá og má ekki blaka við þeim, meðan almenningi blæðir, þar er enga miskunn að fá. Þeir skulu sko fá það óvegið, meðal annars piparúða, beint í augun ef ekki vill betur til.
En ekki nóg með það, heldur var mér kippt út úr umhverfi lýðræðis og inn í ógn alræðisríkis. Þar sem fólkið sem við höfum jú að vísu komið til valda, reynast einræðisherrar og sýna ekkert nema hroka og yfirgang. Ég er reið, en líka hjálparvana, því ég er að gera mér grein fyrir að ósvífið fólk hefur rænt okkur og ætlar að halda áfram að láta okkur blæða, meðan það er að hjálpa sínum auðkýfingum og ræningjum, enda má segja að sum þeirra allavega eru nú einhversstaðar nálægt bankageiranum, spurning um hversu náið. Og er svo firrt að það telur sig eða segist vera að bjarga okkur, moka skaflinn og vill frá frið.
Það er búið að gefa ykkur meira en þrjá mánuði til að bjarga okkur ágæta ríkisstjórn. Það er ekkert sýnilegt sem þið hafið verið að gera. Það tók eina kvöldstund að hækka á okkur áfengi og tóbak. En það tekur meira en þrjá mánuði að gefa út tilskipun um handtökur og rannsaka stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Hvað veldur?
Og í Guðsbænum ekki tala við okkur um hvað þið ætlið að gera í Nýju Íslandi, það er bara klám í ykkar munni. Við viljum ykkur ekki. Við erum búin að fá nóg, og þolinmæðin er á þrotum.
Þið hafið fengið rauðaspjaldið svo vinsamlegast komið ykkur burt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 2023214
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar