Af prinsessum og öðru fyrirfólki.

Eftir þessa framsóknaryfirhalningu er ekki úr vegi að setja inn smá prinsessumyndir og af öðru góðu fólki.

IMG_5176

Prinsessur eru vanmetnar í dag allavega mínar þær hafa sterkan persónuleika, og þó þær séu ungar að árum þá hafa þær stálvilja allavega þessar sem hér eru kúluprinsessurnar mínar.

IMG_5183

Sjáið bara, þær eru til í hvað sem er. 

IMG_5184

Og flottar eru þær.

IMG_5194

Þessi prinsessa átti langt samtal við afa sinn um daginn, þar sem hann útskýrði fyrir henni að þeir fyrstu yrðu siðastir og hinir síðustu fyrstir.  Hún vill nefnilega alltaf vera fyrst, inn í bílinn, út úr bílnum, og núna síðast vakna fyrst af öllum.  Og eftir þetta samtal, sagði hún við ömmu, ég vil vera fyrst, og þess vegna má Ásthildur fara fyrst út úr bílnum, af því að þeir sem eru fyrstir verða síðastir og þeir sem eru síðastir verða fyrstir.  Og þannig er það bara núna.

IMG_5196

Málið er að börn eru miklu eftirtektarsamari en fullorðnir.  Og þau fylgjast miklu betur með því sem er að gerast í kring um þau en fullorðið fólk, og þessi litla dama var farin að íhuga málin, sá að sú stærri var alltaf á undan, og svo kom að því að það gerðist sem ég vissi að myndi gerast, hún sagði É fytt!

IMG_5199

Já málið er að hún er ekki alveg búin að ná þessu með síðastir og fyrstir, svo ennþá er allt í jafnvægiLoLHeart

IMG_5213

Amma sagði Úlfur, þú setur aldrei inn myndir af þér, þessi fer á netið sagði hann um leið og hann smellti af. Og auðvitað er það netið....

IMG_5248

Hér er svona pabbaprinsessa, en nýtur athygli frá föðurbróður líka.

IMG_5252

Og svo er dundað sér við eitt og annað þar sem tvær prinsessur koma saman.

IMG_5253

Skipst á ýmsum hlutum og svona.  Einhverju sem skiptir máli og svoleiðis.

IMG_5254

Og samningar hafa náðst, enda hvað er peli eða afaskyr á milli vina.

IMG_5255

Og maður er manns gaman.

IMG_5257

Og alltaf gaman að fara í smáreiðtúr, þó bykkjan sé bara rugguhestur.

IMG_5262

Og svo er haldið heim á leið.

IMG_5264

Þó sumir dundi sér við að horfa á videó.

IMG_5266

Svo blundar alltaf þessi modelismi í manni frá unga aldri heheheh

IMG_5267

Já það er hægt að vera ansi frumlegur þó maður sé ekki orðin tveggja ennþá.

IMG_5270

ég verð að fara að gefa mér tíma til að þrífa þennan spegil.  En einhvernveginn þá hleypur draslið ekki frá manni.  Allt hitt tekur meiri tíma, og gefur manni meira. InLove

IMG_5215

Þetta er veðrið í gær.

IMG_5216

Veðrið í dag kemur örugglega á morgun hér.  Ein eigið góða nótt elskurnar mínar.

 


Nýir bankar - nýr Framsóknarflokkur - nýtt þetta og nýtt hitt. En sorrý hvað er nýtt í þessu?

Nú eru allir að tala um Framsóknarflokkinn.  Framsóknarmenn himinglaðir og uppfullir af bjartsýni og segja að hreinsun og endurnýjun hafi átt sér stað. 

Og satt er það vissulega eru þarna ung andlit og sum ný.  Það er samt einhver svona ónotatilfinning í mér.  Framsóknarflokkurinn hefur alltaf verið eins og kamelljónið litast af þeim sem eru þeim næstir.  Opnir í báða enda, skoðanalausir og grípa það sem hendi er næst.  Eða það er mín meining.  Þessi endurnýjun ber dálítin svip af þessu.  Að vísu eru Valgerður, Guðni og Halldór Ásgrímsson ekki með í myndinni, en eru þau horfinn? 

Ég man ekki betur er Birkir Jón Jónsson hafi verið formaður í fjárlaganefnd þegar Birgismálið stóð sem hæst.  Og ekki var hann mikið á verði þar ef ég man rétt.  Guðmundur karlinn frekur til fjársins, þó við sauðsvartur almúginn héldum annað.  Þá er það enginn afsökun fyrir þá sem áttu að gæta peninganna okkar.  Eða er það bara með mælistika á hversu miklu menn klúðra, en ekki hvort þeir klúðra?  En þessi maður var kjörin varaformaður Framsóknarflokksins.  Sigmundur er síðan sonur Gunnlaus nokkurs Sigmundssonar framsóknarmanns.  Ég man nú ekki alveg hvernig mál Kögunar komu til, en minnir nú samt að þar hafi nú einhver "útrás" verið í gangi.  Þannig að nýstraujaði gulldrengurinn er nú sprottinn úr slíkum farvegi.  Þó auðvitað eigi aldrei að láta börnin gjalda foreldranna, eins og Jón Baldvin sagði forðum.  Þá hringja nú einhverjar bjöllur.  Var ekki verið að tala um að hreinsa til og moka út spillingunni komplett?

Svo er hitt að þegar framsóknarmenn tala um heiðarleika, gegnsæi og betri stjórnsýslu, þá fer einhvernveginn kaldur gustur niður minn hrygg.  Ekki hefur nokkur stjórnmálaflokkur verið orðaður við aðra eins spillingu og einmitt Framsóknarflokkurinn, og er þá mikið sagt.  Þar má nefna ýmislegt, til dæmis S.Í.S  veldið sem um áratugi stóð vörð um eiginhagsmuni flokksinsmanna og gæðinga, síðan þessi S hópur með Finn Ingólfsson, Bankar, tryggingafélög og bara nefnið það, voru færð "réttum" aðilum á silfurfati.  Síðan klúðrið með Gift, þar sem millurnar hurfu bara út í loftið rétt si sona!!!

Nei gott fólk, þegar ég er að tala um nýtt Ísland, þá eiga flokkseigendur, flokksforkólfar og aðrir sem hafa nýtt sér að hagnast sjálfir á kostnað almennings ekki þar neina aðkomu. 

Það verður að vera breiðfylking fólksins í landinu, þeir sem ekki hafa neinstaðar nálægt komið, heldur ekki feður og mæður.  Því sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.  Og hætt er við að fólk taki til það elst upp við.  Það er mitt mat. 

Nýja Ísland þarf að vera alveg nýtt ekki gömul ullarpeysa sem lappað hefur verið upp á, búið að stoppa og staga í götin.  Þetta hugsa ég þegar núverandi stjórnvöld eru að tala um nýtt Ísland, þau eiga að mínu mati engan aðgang að slíku, því þá væri ekkert nýtt Ísland.  Heldur fyrrnefnd stagbót.  Þá er nú betra að prjóna nýja peysu og nú nýju garni.  Ekki einu sinni vil ég rekja upp þá gömlu og prjóna úr henni nýtt.

Nei hér á allt að umturnast, og nýtt fólk með nýja sýn á réttlæti og jöfnuð að leiða þá breiðfylkingu.  Fólk sem kann, veit og vill byggja upp okkar fagra land, og gera það byggilegt fyrir okkur sem viljum eiga hér heima.  Okkur sem þráum að láta okkur líða vel, treysta þeim sem við ráðum til að stjórna landinu.  Svo við getum horft stolt fram á veginn, vitandi að allir eru með.  Líka öryrkjar, aldraðir og þeir sem minna mega sín.  Helst án aðkomu stjórnmálaflokkanna ef það er hægt.

Við verðum bara að muna að lýðræðið kostar.  Og að við verðum alla tíð og alltaf að veita aðhald og vera óhrædd við að breyta.  Refsa þeim sem ekki stendur sig, og hygla þeim sem gera vel að okkar mati.  Einungis þannig getum við varðveitt hið sanna lýðræði.  Annars er hætt við að allt fari í sama farið.  En vonandi höfum við lært okkar lexíu af þessu öllu saman.  Og þá má segja að öll sorgin og reiðin hafi orðið okkur til góðs.


Opin fundur á Silfurtorgi Ísafirði.

Fundurinn í gær á Silfurtorgi fór vel fram.  Veðrið var fallegt og þarna voru á þriðja hundrað manns.

Guðmundur stjórnaði eins og áður.

IMG_5224

Ræðumenn voru Linda Jónsdóttir

IMG_5229

Mæltist henni vel.   Og Finnbogi Hermannsson.

IMG_5234

Máli sínu til stuðnings talaði hann mikið um litla barnið í Silvercrossvagninum.

IMG_5237

Og hve skuldsett þessi litlu kríli væru strax við fæðingu.

IMG_5221

Það var líka gaman að skoða skiltin, hér eru þrjár hetjur með skilti við hæfi.

IMG_5222

Afar brýn og skiljanleg krafa.

IMG_5223

Sumir hafa haft töluvert fyrir skiltunum sínum.

IMG_5232

Eins og sjá má var töluverður fjöldi samankominn á Silfurtorgi.

IMG_5236

Verkalýðsforinginn okkar hér.

IMG_5240

Veðrið var líka fallegt.

IMG_5245

Feðgar á ferð.

Ég segi það enn og aftur, það er á við tíma hjá sála að fara á svona fund og vinna samstöðuna og að finna að allir eru í rauninni á sama bátnum.  Þið ættuð endilega að prófa sem heima hafið setið.  Hér eru engir sérstakir stjórnmálaflokkar eða flokka drættir yfirleitt, heldur bara venjulegt fólk eins og þú og ég.  Almenningur í þessu landi sem vill breytingar.

IMG_5246

Og dropinn holar steininn, við munum vinna þetta stríð, almenningur í þessu fallega og gjöfula landi. Það tekur það ENGINN fra okkur.  Eigið góðan dag.


Er verið að skemmta skrattanum - eða stjórnvöldum?

Mótmæli eins og þau hafa verið núna undanfarið  eru ný á Íslandi, eða allavega á þessum tímum.  Við höfum setið hljóð og etið allt sem að okkur hefur verið rétt.  Ekki hefur þó spillingin farið fram hjá flestum okkar.  En við höfum bara gefist upp og ekki náð samstöðu..... fyrr en nú.  Hörður Torfason og félagar hafa komið þessu af stað með því að mótmæla á Austurvelli kl. þrjú á laugardögum, hann byrjaði að standa þarna einn, þó ekki hafi verið byrjað að telja fyrr en fleiri létu sjá sig,  Gunnar Sigurðsson byrjaði svo með fundina í Iðnó og nú í Háskólabíói, sem hann stjórnar af miklum ágætum, greinilega nýtist honum leikstjórnarmenntunin þar.  Síðan hafa aðrir hópar risið upp, Eva Hauksdottir og hennar aktívistar flott fólk og gefur líf í mótmælin. 

Eflaust fleiri sem ég kann ekki skil á. 

Svo er það Ástþór Magnússon, hann mótmælir mótmælum.  Hann ryðst inn á annara fundi, heimtar að fá að tala.  Lýsir sjálfan sig fórnarlamb og reynir að setja ljótan blett á margra mánaða uppbyggingu fólks sem er að reyna að breyta ástandinu.  http://austurvollur.org/ 

Fólkið sagði við hann; auglýstu þinn eigin fund og haltu ræðu þar.  Hvað gerir svo maðurinn?

Jú hann auglýsir fund inn í öðrum fundi, eða klukkan 15.15 á Austurvelli.  þar ætlar hann eflaust að koma í sínum jólasveinabúning og eyðileggja fundinn sem fyrir er.  Finnst fólki þetta í lagi?

Aðal brandarinn er náttúrulega þar sem stendur stórum stöfum; sameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér.

 Það sem mér þykir verra er að tveir af félögum mínum úr Frjálslyndaflokknum ætla að vera þarna með honum og láta ljós sín skína.  Þau gera það ekki í þökk Frjálslyndaflokksins.  Auðvitað hefur fólk málfrelsi og getur galað þar sem það vill.  En þetta fólk er í miðstjórn Frjálslyndaflokksins, þess vegna vil ég taka sérstaklega fram að þau eru þarna að róa ein, en ekki í umboði flokksins. 

Hversu langt á þessi maður að fá að komast með allan sinn ruddaskap.  Hann kallar allar manneskjur ljótum nöfnum, og skilur ekkert í af hverju hann "fær ekki að tjá sig".  'Eg held að hann ætti að fara í sjáfsskoðun og hugsa aðeins, hvort sökin liggi ekki hjá honum sjálfum, og þeim sem hvetja hann áfram í vitleysunni.

 En mikið held ég að stjórnvöld séu ánægð með hann.  Ætli hann fái greitt frá þeim fyrir að eyðileggja svona auglýsta fundi? Hann fær örugglega greiðlega leyfi fyrir fundi kl. 15.15 á Austurvelli.  Þó vitað sé að þar stendur yfir fundur frá 15.00 - 16.00.  Ef hann hefði haldið fundinn sinn kl. 16.15 þá hefði þetta allt saman verið í lagi og komið mótmælum til góða.  Þetta er hrein skemmdarstarfssemi.

Ég veit ekki hvað hægt er að gera, ef heyrist ekki í auglýstum ræðumönnum fyrir hamagangi athyglissjúks manns og pótintáta hans.  Hvaða rétt á fólk á því að fá að hlusta og fylgjast með opnum fundi sem það vill sækja, en fær ekki vegna svona fíflaláta.

Heldur þetta fólk virkilega að þetta sé sniðugt, eða hjálpi eitthvað til upp á ástandið?  Eða finnst því ástandið eins og það er vera sirkus sem hægt er skemmta sér og skrattanum með. 

Ég á ekki orð yfir þetta!

En ég er reið eiginlega bálreið yfir þessu framferði yfirgangi og dónaskap. 

P.S. var að frétta að lögreglan hafi verið aðvöruð um að þarna ætti að hleypa upp fundinum og eyðileggja fyrir.  Það er spurning um hvað lögreglan gerir í því.  Það mun koma í ljós.

IMG_5057

Í huga minum eru orðin sem standa þarna á fremsta skiltinu.  Helvítis fokking fokk. 


Mömmublogg og krúttfærsla.

Dagurinn í dag var góður þó hann væri ekki eins fallegur og í gær.

IMG_5127

Dálítið þungbúinn, en milt veður.

IMG_5128

Eins og sjá má.

IMG_5138

Fröken Hanna Sól í góðum gír.

IMG_5143

Systurnar klappa kisu.

IMG_5146

Og Sigurjón Dagur kom í heimsókn.

IMG_5147

Þessi er spes fyrir Hrönn. Tounge

IMG_5149

Dótið skoðað.

IMG_5150

Og Ásthildur ákvað að gera sig fína.  Það var rafmagnslaus dagur á leikskólanum.  slökkt á öllum ljósum og bara luktir og vasaljós.  Rosalega spennandi.

IMG_5153

Sumir eru bara rosalega fínir.

IMG_5154

Auðvitað þarf maður svo að skoða sig í speglinum.

IMG_5155

Það er spegilinn sem er kámugur ekki barnið. InLove

IMG_5156

RRRRROOOOOSSSSAAALLLEEEEGAAAA fín. Heart

IMG_5157

Leika við Úlf er líka gaman.

IMG_5159

Fagur er fiskur í sjó......

IMG_5162

Og þessa mynd tók Hanna Sól.

IMG_5165

Svo var dansað.

IMG_5171

Af innlifun.

IMG_5172

Og auðvitað Grand finale..... Heart

En eg segi góða nótt.  Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda. Heart


Mótmælafundur á Silfurtorgi kl. þrjú á morgun laugardag - sjáumst!

Fólk sem fer á borgaralega mótmælafundi segir allflest að það sé sálarbætandi að hitta annað fólk, sem er með sömu skoðanir, bera sömu áhyggjur og finna að það stendur ekki eitt.  Ég get alveg tekið undir þetta.  Það er að mínu mati á við tíma hjá góðum sálfræðingi.  Maður fer heim léttari í skapi eins og fargi hafi verið létt af manni, þó hefur ekki mikið gerst í sjálfu sér, nema að örlítill dropi hefur aðeins holað steininn.  En það hefur samt sem áður gerst eitthvað merkilegt, og þegar þetta litla merkilega safnast saman þá skilar það árangri. 

Fólk er að hneykslast á grímum, hneykslast á ræðumönnum, og jafnvel ganga sumir svo langt að tala niður til þeirra sem leggja á sig að mótmæla ástandinu.  Eins svo það sé enginn ástæða til að gera neitt.  Þetta sé allt í himnalagi eða náttúrulögmál.  Það fólk hlýtur að halda að forráðamenn þjóðarinnar séu ósnertanlegir, og allt satt og rétt sem frá þeim kemur.  Ég ætla ekki að setjast í þann forarpytt að tala mig út um slíkt, en vil bara segja þetta; við hin sem ekki erum ánægð með ástandið og teljum að það sé bæði hægt að gagnrýna stjórnvöld og hafa áhrif á gang mála, þurfum að mæta og standa með okkur sjálfum og öllum hinum.  Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.

Það verður þriðji fundurinn á Silfurtorgi á morgun kl. 15.00 kl. þrjú.  Ræðumenn dagsins verða Linda Jónsdóttir almenningur og hestakona, og Finnbogi Hermannsson sem líka er almenningur og fyrrverandi útvarpsstjóri á Ísafirði. 

Ég spurði ekki en get mér til þess að Guðmundur Þór Kristjánsson verði fundarstjóri. 

Á fyrsta fundinn mættu um 100 manns, á þann síðari um 150 manns, núna verðum við að stefna á 400 manns.  Við getum það alveg.  Ekki sitja heima og súta, heldur klæða sig vel upp og sýna samstöðu á því er meiri þörf en nokkru sinni.  Ef ykkur finnst allt í lagi með ykkur sjálf, hugleiðið þá að það er búið a skuldsetja börnin ykkar langt fram í tímann.  Það þarf að bregðast skjótt við, því sagt er að ný lægð sé á leiðinni í mars - apríl af fólki sem veit miklu betur en okkar ráðalausu ráðamenn sem ætla bara að bíða í rólegheitum fram yfir næsta landsfund Sjálfstæðisflokksins, til að vita hvort þeir springa í loft upp eða ákveði að fara inn í ESB.  Fyrr geta menn ekki gert neitt af viti af þeirra meiningu. Sættum við okkur við svoleiðis?

Ég segi nei.  Ég vil aðgerðir núna.  Stjórnarslit,  þjóðstjórn fram á sumar og kosið í vor.   Þá fyrst verður hægt að fara taka höndum saman og hreinsa upp skítinn.

IMG_5056

IMG_5058

Þessar myndir eru frá síðasta fundi.  Látum Silfurtorgið fyllast af kröftugum mótmælum á morgun.

 Munið bara að klæða ykkur vel, það getur orðið kalt að standa og hlusta þó hiti sé í ræðumönnum og manni sjálfum. 

 


Fallegur dagur á Ísafirði.

Þetta var fallegur dagur hér á Ísafirði og Suðureyri.  Hver á sér fegra föðurland.

IMG_5102

Meira að segja Brandur lætur sig dreyma.

IMG_5103

Tekin snemma í morgun.

IMG_5104

Og þessi.

IMG_5105

Um hádegisbilið.

IMG_5109

Fallegt ekki satt?

IMG_5111

Birtan verður alltaf skærari og skærari.

IMG_5112

Lognið er á sínum stað.

IMG_5113

Og Ísafjörður kúrir milli fjallanna.

IMG_5114

Magnþrunginn Súgandafjörðurinn.

IMG_5115

Allt er bleikt um fjögurleytið.

IMG_5118

Ó þú sólroðna ský!

IMG_5119

Hér á vinur minn Jón Steinar rætur.

IMG_5124

Um fimmleytið voru skýin orðin svona mikið rauð.

IMG_5125

Þessar myndir eru fyrir fjallafólkið mitt og ísfirðingana nær og fjær.  Ég segi svo bara góða nótt Heart og dreymi ykkur vel.  Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.


Fundurinn í Háskólabíó og hugleiðingar vegna hans.

Ég horfði á borgarafundinn í Háskólabíói í gær og var stórhrifin.  Mér líkaði vel allar ræðurnar, þó fannst mér bera af ræður Roberts Wade og Herberts Sveinbjörnssonar að öðrum ólöstuðum.  Öll þessi læti út af ummælum Sigurborgar Sigurgeirsdóttur er í raun óskiljanleg, því hún var að koma að nákvæmlega því sem hún var að gagnrýna.  Hvaða ráðherra átti í hlut skiptir ekki máli að mínu mati, heldur að hún skyldi fá upphringingu þar sem hún er beðin um að tala varlega. 

Ég sé þetta fyrir mér svona:  Guðlaugur Þór fréttir að Sigurborg á að halda ræðu í Háskólabíó um siðabót.  Hann veit að hann hefur komið illa fram við hana og sagt ýmislegt sem hann vill ekki að verði uppljóstrað.  Það grípur hann panik og þar sem hann veit að þær þekkjast ágætlega Sigurborg og Ingibjörg Sólrún hringir hann í Ingibjörgu og biður hana um að reyna að þagga niður í Sigurborgu.  Nú kemur að dómgreindarleysi utanríkisráðherrans, henni finnst þetta í raun og veru allt í lag.  Takið eftir Ingibjörg þurfti ekki að óttast nein ummæli frá Sigurborgu, þvert á móti.  Hvers vegna hringdi hún þá?  Jú hún gerði það fyrir samráðherra sinn sem fannst hann vera í klípu.

Þess vegna skiptir afskaplega litlu máli hvaða ráðherra gerði þessi afglöp, heldur að þeim fyndist þetta vera í lagi.  Það er það sem Sigurborg er að meina, hún veit að Ingibjörg er að hringja fyrir Guðlaug.  Þess vegna bregst hún svona við. 

Ef við hættum einhverntímann að gera aukaatriðin að aðalatriðunum, hefðum við séð þetta á þennan hátt.  En íslendingar eru ekki þannig, heldur fer mannskapurinn í hár saman út af því hvers maður gerði mistök og æpa hátt og snjallt og skiptast í hópa eftir því hvorum ráðherranum menn fylkja sér um og kallast á.  Ég segi hættið þessum barnaskap og skoðið málið í heild sinni.  Þau eru bæði sek, hann um mjög slæma stjórnsýslu hún um dómgreindarleysi.  Ég veit ekki hvort er betra.

 Að vekja athygli með fjarveru sinni.

En svona í framhjáhlaupi, ég á kunningja sem segir gjarnan að einhver hafi vakið athygli með fjarveru sinni.  Og svo sannarlega vakti himinhrópandi athygli auður  stóll D-listan í gær.  Og svona í framhaldi af því, þá fór ég að hugsa um ríkisstjórnina versus almenning.

Á fyrsta fundinn mættu Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín, þar voru líka Ingibjörg og Össur.  Hvað hélt þetta fólk að myndi gerast.  Héldu þau að bara nærvera þeirra myndi fá fólk til að gapa og kikna og fyrirgefa allt?  Já ég held það.  Það er til máltæki sem hljóðar svo; Sjaldan launar kálfur ofeldið.  Og við almenningur - ekki þjóðin, eigum okkar stóra hlut  í því hve gjörsamlega úti á túni ráðamenn okkar eru.  Við höfum skapað þessa oföldu kálfa.  Við höfum sofið á verðinum, látið þau vita að allt sem þau segðu og gerðu væri í gúddý.  Án þess að mögla höfum við horft upp á allskonar spillingu og misgjörðir.  En nema von að þau hafi virkilega haldið að enn og aftur myndum við halda kjafti og bugta okkur fyrir nærveru þeirra. 

En það gerðist ekki, og þess vegna urðu þau undrandi og sár.  Hvað var eiginlega að gerast?  Vön því að komast upp með hvað sem var, gat þetta bara ekki verið.  Þetta var ekki þjóðin sem þau þekktu.  Þetta hlaut að vera einhverskonar skríll.  Síðan hafa þau ekki látið sjá sig.  Hafa þurft að hopa og komast jafnvel ekki í veislurhöld og partý fyrir þessu liði.  Hvað þá að geta mokað sína skafla í friði fyrir þessum óþjóðalýð. 

Í gær var eini maðurinn frá Samfylkingu sem mætti Ólafur Ágúst, jú hann er varaformaður flokksins, en ósköp gustaði nú lítið um hann.  Ætlaði meira að segja að halda framboðsræðu og lofgjörð um ESB þarna svo mikið á skjön eru þessir ágætu menn um ástandið í landinu. 

Það vakti mikla kátínu þegar hagfræðiprófessorinn breski sagði að það ætti að leyfa seðlabankastjóranum að fá að sækja um vinnu, eða gera hann að sendiherra á smáeyju í Kyrrahafi.  Fólk stóð upp og klappaði.  Og þá fór ég að hugsa; hvað er það sem hann hefur á allt þetta fólk.  Af hverju þorir enginn að blaka við honum.  Meira að segja stjórnarandstæðan er eins og blindir kettlingar.  Það gustar ekki beinlínis af þeim heldur.  Mér skilst að það séu til þrautarráð sem stjórnaranstaða getur gripið til í svona nauðum.  En það hefur ekkert borið á neinu slíku.  Þeir hafa bara talað hátt við almenning um að þetta gangi ekki.  En hvar eru þrautarráðin þeirra?

Forsetinn hefur sagst vera maður fóksins, hann fer um sveitir og heimsækir fyrirtæki og vill vel að eigin sögn.  En hvar er hans þrautarráð?  Hann hefur umboð til að leysa upp þing og ríkisstjórn ekki satt?  Hann beitti einu sinni fyrir sig því ráði að neita að skrifa undir fjölmiðlalög og hlaut mikið lof fyrir það.  Núna hefur hann algjörlega koðnað niður og þaðan virðist enga hjálp að fá þegar í nauðirnar rekur. Hvar er hann núna?

Nei gott fólk þegar á reynir þá er það samtryggingin sem heldur þessu fólki öllu saman.  Þöggunin og að bjarga skinni hvers annars sem er þeirra ær og kýr. 

Þess vegna gleður mig að almenningur - ekki þjóðin hefur risið upp og mótmælt.  Og ekki bara einhverjir flokksjálkar eða æsingarmenn, heldur Jón og Gunna.  Fólkið sem aldrei hefur risið upp fyrr, og alltaf jánkað öllu, sett sitt krossmark við sinn bókstaf samviskusamlega og ekkert halelúja með það. 

Er nema von að ráðamenn standi á berangri og viti ekki hvað þeir eiga að taka til bragðs. Aldrei áður hefur þetta gerst, að þeir hafi verið hraktir upp úr bómullarhnoðrum sínum og út í vindgnauðið fyrir utan.  Ef við hefðum ekki verið svona leiðitöm og undirgefin, þá hefðu þeir aldrei lagt upp í þessa vegferð.  Þeim var kennt að óttast ekkert.  Við værum bara hópur af rolluskjátum sem myndum jú æmta í fyrstu, en þagna svo og jarma í kór.  Þetta er það sem við höfum kennt þeim ekki satt?

Það sem þeir gerðu sér ekki grein fyrir að til að rollurskjáturnar verði rólegar, þurfa þær að komast á básinn sinn í öryggið og fá töðu í jötuna sína og vatn til að skola niður.  Ekkert af þessu gátu forysturmennirnir boðið sauðunum.  Og því fór sem fór. 

Það er er öðruvísi núna en svo oft áður er einmitt að fremst í flokki mótmælenda eru miðaldra konur.  Mæður ömmur og jafnvel langömmur.  Grimmustu dýr jarðarinnar eru mæður með unga.  Þær verja sitt hyski af mikilli grimmd ef með þarf.  Og það þurfti þetta til að vekja upp víkingablóðið í konum.  Lokst láta þær að sér kveða svo eftir er tekið.  Það gerðist hljóðlega og án hvatninga.  Þær stigu fram og veifuðu pottum sínum og pönnum.  Strax þá hefði átt að hringja aðvörunarbjöllum, en okkar fólk var of værukært, og sjálfmiðað og of dómgreindarlaust af langvarandi kjötkatlasetu til að átta sig á breytingunum. 

Og nú er það orðið of seint.  Héðan af er ekkert fyrir þau að gera annað en að stíga niður og leyfa almenningi að velja sér nýja forystu.  Leyfa lýðræðinu að hafa sinn gang.  Þeirra tími er liðinn og kemur ekki aftur.  Þetta gerði Valgerður Sverrisdóttir sér grein fyrir.  Hún hafði þor til að stíga niður og hætta.  Þó ég muni aldrei fyrirgefa henni Kárahnjúkadæmið, sem mun vera eins og myllusteinn um hennar háls fyrir lífstíð. 

Ég er á því að það sem þarf að gerast næst er að hlusta á raddir fólksins sem hefur talað um að endurreisa lýðræðið í landinu.  Að við göngum fram þvert á alla flokka og sameinumst í einni breiðfylkingu (með nokkrum smá undantekningum) og förum skynsamlegustu leiðina, til dæmis eins og Njörður P. Njarðvík benti á í Silfri Egils.  Hér má enginn skorast undan.  Það er framtíð barnanna okkar í veði og okkar ástkæra land með öllum sínum gæðum.

Það er í rauninn hlægilegt (ef það væri ekki svona sorglegt)  að ráðamenn skuli ætla að bíða með framhaldið eftir landsfundi Sjálfstæðisflokksins.  Hverstu langt burtu frá raunveruleikanum getur fólk eiginlega orðið?  Sjálfstæðismenn munu ekki hafa neitt um framhaldið að segja.  Þeirra tími er liðinn sem betur fer í bili allavega. 

Það er líka fyndið að ráðamenn Samfylkingarinnar skuli ætla að bera það á borð fyrir okkur að eina leiðin út sé ESB.  ESB er að liðast í sundur.  Það gerist hægt og hægt en kreppan mun gera sitt til að þjóðirnar fari að huga að sínum innri málum og hversu langt ríku þjóðirnar eru tilbúnar til að styrkja þær sem hafa minna.  Og nú þegar er byrjað að sælast í auðlindir þeirra sem eitthvað hafa.  Ég er viss um að almenningur í Evrópu setji niður fót, þegar stóra apparatið ætlar að fara að taka eignarnámi auðlindir ríkjanna til að skipta niður milli landa.  Og þá byrjar auðvita stríð um hvað mikið hver á að fá.  Þetta gekk meðan allt lék í lyndi, en nú þegar kreppir að, og dýpri lægt er á leiðinni, þá vill hver fara að bjarga sér og sínum.  Það er mannlegt. 

Nei góðir hálsar ég segi bara stöndum saman sem þjóð og notum þetta tækifæri til að rista upp þetta úldna kerfi, stingum á kýlunum og byrjum upp á nýtt.   Gefum flokkunum frí á meðan.  Það má koma að þeim seinna, þegar tryggt hefur verið að aldrei aftur verði sjáflstæði okkar og eignum stolið af þeim sem hafa gefið sig út fyrir að ætla að verja okkur.

Tek undir orð Ólínu Þorvarðardóttur.

Íslandi allt!


Fjallamyndir og veður á Ísó.

Veðrið er gott hér fyrir vestan þessa dagana. 

IMG_5064

Pápi gamli komst í mat, því hægt var loksins að aka alveg upp að dyrum í kúlunni. Við grilluðum meira að segja.

IMG_5060

Lítill stubbur í heimsókn.

IMG_5063

Ásthildur fær sér kex..

IMG_5069

Ó Ó brennandi heitt segir hún og passar sig voða vel.

IMG_5066

Veðrið í gær, það er greinilega orðin meiri birta og dagarnir lengjast.

IMG_5070

Veðrið var líka fallegt í morgun.

IMG_5073

Og fyrstu sólargeislarnir á fjallatoppnum, svo færist hún neðar og neðar.

IMG_5078

Ó þú Íslenska fjallatign.

IMG_5081

Í morgun var Snæfjallaströndin bleik, svo varð hún blá.

IMG_5084

Kyrrð og lygna á Pollinum.

IMG_5085

Og Ísafjörður kúrir milli fjallanna.

IMG_5086

Þó snjór hylji jörð þá þarf samt að framleiða meiri snjó í skíðabrekkurnar.

IMG_5087

Þessi er fyrir Sigrúnu, tekinn á Suðureyri og Gölturinn blasir við.

IMG_5089

Og hann Júlli minn er sífellt að þróa betur tæknina, þessi steinbítur er næstum ætur svei mér þá.

Svo segi ég bara góða nótt og sofið rótt.  Setjið áhyggjurnar og reiðina í hvítan poka og sendið hann upp í ljósið og kærleikann.  Hafið ekki áhyggjur af því að það komi ekki nýjar á morgun til að takast á við. Bæði ný verkefni og nýjar áhyggjur, þess vegna er ágætt að tæma þær burtu á kvöldin, maður sefur betur á eftir.  Heart

 


Tveggja ára grein - hefur þróun mótmælanna verið lengur í bígerð en okkur órar fyrir. Hefur akurinn verið plægður smátt og smátt undanfarin ár?

Ég var að fara yfir greinar sem ég hef skrifað og geymt í tölvunni minni.  Þessi grein sem ég set inn hér er orðin nokkurra ára, eða meðan Framsóknarflokkurinn var ennþá við völd.  Það er skondið að lesa þetta núna tveimur árum seinna. 

 

Greinin.

Ég hef verið að spá og spekulera.  

  

Meðan Mogginn var aðalmálgagnið og allir lásu moggann,  þá lá áróðurinn þannig, að stuttklipptu vatnsgreiddu strákarnir, í bláu jakkafötunum með bindin og  draktarkonurnar úr Heimdalli voru IN, þau voru töff.   Það þótti æðislegt að tilheyra þessum hópi.

 Í dag, þegar menn lesa fleira en bara Moggann og Fréttablaðið er orðið jafnvel útbreiddara en hann, þá hefur þessi mynd einhvern veginn skekkst.

Þeir eru ekki lengur í tíxku.  Fólk er farið að sjá í gegn um taktana, sem er örugglega kennd í stjórnmálastkólanum.  Þ.e. að brosa yfirlætislega að tilsvörum andstæðingsins, saka hann um rökleysi og kjánagang, hafa hærra en næsti maður.  Og svara með skætingi, benda helst á eitthvað annað, ef spurningar gerast óþægilegar. 

  

Nú er eins og “MUSSULIÐIД, þetta fína nafn, sem okkar menn hér hafa gefið okkur sem ekki fylgjum harðlínu sjöllum að máli, eigi meiri hljómgrunn meðal fólks almennt. 

  

Nú virðast þessir vatnsgreiddu yfirlætisfullu menn og konur standa fyrir hroka og græðgi, og ekki töff heldur frekar eitthvað sem er á útleið.

 

Þetta er allavega mín tilfinning. 

 

Glottið þeirra er ekki lengur töff, heldur frekar ógeðfellt.  Og fínu fötin standa frekar fyrir lífstíl þeirra sem geta krafið þjóðfélagið um milljónir í laun, meðan aðrir eiga ekki fyrir salti í grautinn. 

 Ég er að tala um ímyndir en ekki fólkið sjálft.  Þessar ímyndir sem hafa verið skapaðar af hugmyndafræðingum í sjálfstæðisflokknum.    

Auðvitað er fullt af öðruvísi sjöllum hér, og annarsstaðar, sem er elskulegt fólk, og fylgir þessari tegund stjórnmála af trú á að þetta lagist, eða að ekkert annað sé betra.   En þetta fólk á sér ekki neina framavon í flokknum, vegna þess að það játar ekki öllu fortakslaust. 

  

Svona á heildina litið, þá er farið að flísast vel upp úr þeim flokki sem kenndi sig við flokk allra stétta, en sem er í reynd nú í dag, einungis flokkur þeirra ríku og valdamestu. 

  

Ég held að opin umræða og gagnrýnni á stjórnvöld hafi opnað augu margra, og ég held að opnar spjallrásir eigi þar ef til vill meiri hlut að máli, en flest annað. 

  

Fólk heyrir fleiri sjónarmið, og getur betur valið hverju það vill trúa.  Fátækleg rök margra sem bara fara með sömu frasana aftur og aftur, hafa líka sýnt fólki hver trúverðugleiki þeirra aðila eru. 

   

Með Framsóknarflokkinn, þá skilja fáir, hvernig þessi flokkur hefur alltaf verið við kjötkatlana miðað við það fylgi sem þeir hafa haft.  Og núna þegar valdabrölt þeirra opinberast almenningi, með þeim hætti sem nú er, þá verður enn erfiðara að skilja þetta. 

 En ráðamenn þjóðarinnar eru sennilega komnir svo langt frá almenningi, að þeir hafa ekki hugmynd um að fólk hugsar, eða taki sjálfstæðar ákvarðanir.  

Allstaðar þar sem menn hafa verið of lengi við völd, og þetta á við um allar stefnur og strauma, þá hefur valdagræðgin og fjarlægðin frá pöplinum orðið þeim að falli.  Þegar slík gjá hefur opnast að fólk unir ekki lengur því sem það sér gerast.    

 

Þetta er að gerast hér núna, bæði í ríkisstjórn og líka í bæjarfélögum.  Þess vegna held ég að það séu spennandi tímar framundan í pólitík. 

 Ófyrirsjáanlegir hlutir muni gerast.  Ég sé líka fyrir mér að upp spretti fleiri stjórnmálaflokkar, þegar menn sjá að akurinn er þegar plægður, þá er um að gera að kaupa sér dráttarvél og plægja líka.   

Mín tilfinning er sú að þetta gerist fyrr en okkur grunar.  En það er bara mín tilfinning.  Hér hefur lengi verið ólga í samfélaginu.  Ýmsir hópar sem hafa kallað eftir leiðréttingum.  En nú er að fara af stað þung undiralda, sem ekki verður svo auðveldlega stöðvuð.  Og þeir sem á eftir koma, munu ekki voga sér að hlusta ekki á fólkið. 

  Það er líka það besta sem gæti gerst fyrir lýðræðið í landinu,  það litla sem eftir er af því (lýðræðinu).  Að almenningur rísi almennilega upp, og láti ráðamenn finna, að stjórnmál í einu landi, er ekki bara tveggja manna tal í bakherbergjum.  Heldur samráð og samvinna 63 alþingismanna á Alþingi. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband