29.3.2009 | 19:26
Undir svefninn.
Jæja nokkrar myndir svona út fyrir pólitíkina.
Eins og sést af þessari mynd i dag er komin töluverður snjór hér á Ísó.
Veðrið ekki til að hrópa húrra fyrir. Og viðvarandi í gangi. En þetta er bara Ísland.
Það er nú líka eins gott að hafa góðan snjómokara til að moka okkur út
Prinsessur eru líka til sko!!
Þau kunna að skemmta sér börnin.
Svona líta ekta prinsessur út.
Nei þetta er ekki kolkrabbi, alls ekki þessi sem hrjáir Sjálfstæðisflokkinn, þessir er algjörlega meinlaus.
Og sú stóra mín.
Þetta er maurastúlkan, vonandi sjáið þið fálmarana....
Hér er verið að spjalla við ömmu á Hellu. Kom Gunna Sigga í heimsókn í dag? og svoleiðis hún kann þetta mjög vel þessi elska. Og svo eiga þær von á pakka frá ömmu á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.3.2009 | 11:17
Viðbrögðin við ræðu Davíðs.
Viðbrögðin við ræðunni hans Davíðs eru ýmist upp í himninum eða niður í svarta Hel. Það er með ólíkindum að einn maður geti komið slíku róti á fólk. Svo sennilega hefur hann eitthvað við sig sem tekið er eftir. Fyrir mér er hann bara venjulegur maður, sem hefur náð að sópa að sér völdum og safna kring um sig hirð fólks sem sér ekkert eða heyrir annað en það sem hann lætur út úr sér, trúir öllu sem hann segir og engu sem aðrir reyna að benda á. Sennilega er ekki hægt að tala um venjulegan mann í því samhengi, nema að þessi virðist vera annað hvort algjörlega veruleikafirrtur eða samviskulaus, nema hvort tveggja sé.
Því miður hef ég ekki komist í að lesa ræðuna hans, en ég hef séð glefsur hér og þar, en það eru viðbrögðin sem ég vil ræða.
Það sem stendur upp úr fyrir mér eru þessi orð Davíðs;
"Arftaka sinn í embætti kallaði hann lausamann úr norska Verkamannaflokknum og sagði að enginn hefði áður heyrt þennan mann áður nefndan, ekki einu sinni Google, sem marga þekkti. Þannig hefði enginn þroskuð þjóð áður hagað sér."
Ég veit ekki af hverju Davíð heldur að íslenska þjóðin sé þroskuð þjóð. Ef hún væri það almennt, þá hefði Davíð og Sjálfstæðisflokkurinn ekki setið að völdum óslitið í 18 ár. Þroskuð þjóð hefði fyrir löngu síðan hent þeim út á hafsauga.
Þroskuð þjóð hefði ekki sett gamla pólitíkusa í æðstu stöður landsins eftir áratuga þaulsetu við stjórn landsins.
Þroskuð þjóð mun ekki veita Sjálfstæðisflokknum brautargengi í næstu kosningum. Ef þjóðin væri þroskaðir sjálfstæðir einstaklingar myndi Flokkurinn ekki koma manni að í næstu kosningum.
Viðbrögðin við þessu skítkasti eru brandari út af fyrir sig. Það hefur verið rækilega sannað fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki pólitískt afl, heldur trúfélag. Eins og Hannes Hólmsteinn orðaði það svo ágætlega. Sjálfstæðismenn er fólk sem vill hafa sterkan leiðtoga sem hugsar fyrir þá. (mann ekki orðrétt) Þeir vilja græða á daginn og grilla á kvöldin.
Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í hnotskurn. Þeir vilja sterkan leiðtoga, þess vegna gráta þeir Davíð nú. Þeir vilja græða á daginn, og gerðu svikalaust svo að öll þjóðin er lömuð, grillið verður svo að bíða aðeins, meðan þeir einbeita sér að því að fá fólk til að veita þeim áframhaldandi brautargengi við kjötkatlana svo þeir geti byrjað að gefa vinum og vandamönnum aftur banka og önnur verðmæti.
Ég hef aldrei verið hrifin af Vilhjálmi Egilssyni, hann er dæmigerður spenapólitíkus sem notið hefur þess að vera sogfastur á spenanum. En ég held samt að hann hafi ekki átt skilið þær trakteringar sem foringinn veitti honum i lok ræðu sinnar.
Ósmekklegheitin voru víðar; Seðlabankastjórinn nýji fékk sína sendingu, Jóhanna Sigurðardóttir og margi fleiri. Og fólkið gapir yfir snilldinnin hjá foringja sínum. Það var dramatísk þögn eftir að hann lauk máli sínu og svo var klappað kannski ekki í klukkutíma eins og vera bar í Rússlandi, en örugglega alveg heillengi.
Það má sjá á bloggsíðum andsvörum og spjallrásum að sjálfstæðismenn halds ekki vatni yfir snilldinni. Setningar eins og þarna jarðarði Davíð Samfylkinguna, eða niðurlæging Baugsliðsins algjör og svo framvegis. Tek samt eftir að það er ekki orðað neitt um Vinstri Græna. Það er sennilega verið að halda einhverjum dyrum opnum um að komast í sæng með þeim eftir kosningar.
Ég veit fyrir víst að á fundinum voru öryrkjar, gamalt fólk og verkamenn og aðrir sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sparkað í gegnum tíðina. Samt fer þetta fólk hnarreist á fundi og dásamar forystuna. Ef það er ekki að kyssa á vöndinn þá veit ég ekki hvað. Mér líður eiginlega hálf illa við að hugsa til þessa fólks, vil ekki kalla það kjána, en ég á eiginlega ekkert annað orð yfir það. Hugsunin er enginn, það er ekki lagt saman tveir og tveir og fengið út fjórir. Heldur hanga menn í þessari gloríu og flottu fólki og finnst mikið til koma að fá að vera með í þessum glæsilega hópi. En gerir sér enga grein fyrir að þau eru þarna eingöngu sem atkvæði til að halda fína fólkiniu við völdin. Sorrý þið, en þetta er bara mín meining.
En það gerðist samt dálítið gleðilegt; það gengu nokkrir út undir ræðunni. Nokkrir fengu nóg, það nægir þeim ef til vill ekki til að fara úr flokknum, því flestir skila sauðirnir sér heim til slátrunar, en það sýnir samt að einhverjir þarna eru hugsandi fólk, sem ofbýður og þorir að sýna það.
Sumum finnst ef til vill að ég sé hörð í dómum mínum hér. En ég er alveg gáttuð á því að það sé til fólk sem ennþá treystir ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir fjöreggi sínu fjölskyldunni og lífinu. Stendur á brunarústunum með eldspýturnar og olíuna tilbúna til að rétta þeim, svo þeir geti haldið bálinu áfram. Og að það skuli enn þora að segja það upphátt, heldur er þar á ofan stolt yfir því. Hvað gerist í hausnum á slíku fólki? Ég bara spyr. Ég skil þá sem eru með silfurskeiðar í munninum, og réttbornir í stöðurnar sem bjóðast. En þeir sem náðarsamlegast fá að koma til að greiða atkvæði sitt, hafa lítið til að vera stoltir yfir.
Mig langar til að höfð til skynsemi fólks sem er farið að hugsa lengra en það að Davíð sé Jesú Kristur og hinir postularnir. Kjósið eitthvað annað en þessa spillingu. Hvað sem er. Vinstri græn og Samfylkingin hafa sýnt góða takta nú við stjörnvölin. Þó mér finnist að þar megi koma inn rödd Frjálslynda flokksins, til dæmis í Sjávarútvegsmálum, og ég tel að stjórnin yrði sterkari með okkur innanborðs. Borgaraflokkurinn er líka góð lausn fyrir fólk sem vill breytingar, margt gott og heiðarlegt fólk þar. En fyrst og fremst lesið ykkur til um stefnumál flokkanna, en ekki bara það heldur skoðið hvað þeir hafa haft fram að færa, það er til dæmis fróðlegt að skoða frumvörp frá stjórnarandstöðunni sem ekki hafa fengið brautargengi á þinginu, eins og frumvarp Frjálslynda flokksins um afnám verðtryggingar, sem Sjálfstæðismenn þykjast nú ætla að framkvæma, en gerðu ekki meðan þeir gátu það.
Við höfum ekki efni á að láta reka á reiðanum. Við verðum að velja að natni og heiðarleika það fólk sem við teljum að geti bjargað þjóðinni frá glötun. Og ég vil að við gerum það sjálf. Það fólk sem heimtar að við förum inn í ESB er að mínu mati landráðafólk, hvorki meira né minna. 'Eg get skilið að það sé ríkulegur áhugi á að fá okkur inn, því þeir geta ekki beðið með að koma höndum yfir auðlindir okkar, fiskinn, heitavatnið og ekki síst okkar hreina ómengaða vatn. Það er hreinn og klár barnaskapur að halda að útlendingar vilji okkur inn af einhverri góðsemi. Hún er því miður sjaldgæfari en hvítur hrafn. Látum ekki landið okkar í hendur annara baráttulaust. Og látum ekki Sjálfstæðisflokknum takast að plata okkur eina ferðina enn með að koma þeim til valda.
Svo óska ég ykkur öllum góðs þennan dag, sem er frekar hryssingslegur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.3.2009 | 21:21
Myndir undir svefninn.
Færsla undir svefninn. Það er föstudagskvöld og allt í rólegheitum. Ég get samt ekki sofið út af nokkrum ástæðum hehehe... ég á tvær yndislegar vekjaraklukkur sem eru komnar á full upp úr sjö. Og svo ætla ég að mæta á námskeiðið í fyrramálið og vonast til að hitta þar sem flesta námfúsa vestfirðinga sem vilja læra klippingar.
Veðrið var fallegt í dag eins og sjá má.
Grænahlíðin er hvít núna.
Þarna inn milli fjalla er Arnardalurinn.
Það létti til um hádegið eins og sjá má.
Eins og Þói segir endalaust fallegt skýjafarið.
Óshlíðargöngin eru í fullum sving.
Og það má sjá vegagerðina fyrir neðan meðfram fjörunni. ég verð alltaf dálitið sorgmædd við að sjá það, vegna þýsku vina minna sem eiga sumarbústað þarna niður við sjóinn. Þau eru frá Svartaskógi langt frá sjó, þess vegna kusu þau þennan stað. Stefan stóð gjarnan í fjöruborðinu og veiddi fisk í soðið. Stundum veiddi hann meira að segja bleikju.
Vinnufélögum mínum er margt til lista lagt, hér hefur einn þeirra Guðni Borgars smíðað þetta líkan af Gunnari Friðrikssyni, gamla björgunarbátnum okkar og hefur gert það listavel.
Jamm best að máta sig við að skipta um dekk, ef á þyrfti að halda
Hún komst loks í leikskólann í dag.
Já þau eru eins og farfuglarnir blessuð, fara að koma á vorin.
Þeim finnst þetta góður djús.
Það fer að verða hlýlegra í garðskálanum eftir því sem vorar meira.
Og stubbur sýndi okkur nýtt Pons sem hann var að æfa í kvöld.
Eins gott að æfa sig fyrir beltaprófið.
Þetta er bara nokkuð gott.
Hann er með fallegar hreyfingar strákurinn. Hnitmiðaður það er mitt mat allavega. Og amma náttlega stolt af sínum strák.
En ég segi góða nótt á ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.3.2009 | 13:17
Ísafjörður og nágenni.
Námskeið í trjáklippingum. Okkur stendur til boða að fara á námskeið í trjá og runnaklippingum sem haldið verður í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á morgun laugardag kl. 9.00 til 15.00 Garðyrkjufræðingurinn Kristinn H. Þorsteinsson mun vera með þetta námskeið, sem er fyrir byrjendur. Kjörið tækifæri fyrir garðeigendur að fá svona fræðslu nákvæmlega núna þegar þið þurfið að fara að klippa.
Þetta námskeið er á vegum Garðyrkjufélags Íslands, og er verið að vekja Ísafjarðardeildina upp aftur. Námskeiðið kostar 5000 kr. fyrir félaga í Garðyrkjufélaginu en 7000.- fyrir aðra, og þá er bara að skrá sig í félagið.
Þið getið haft samband við mig í síma 861 1444, eða asthildurcesil@gmail.com til að skrá ykkur. Eða bara mæta hress og kát. Betra samt að láta vita af sér svona fyrirfram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.3.2009 | 21:47
Austurríki og Ísafjörður.
Hún dóttir mín sendir mér stundum myndir frá skólanum sínum og svo göngutúrum með hundana.
Eins og fram hefur komið áður þá býr hún í gastanki þeir eru fjórir hlið við hlið sem hafa verið gerðir að íbúðarhúsum, skemmtilegir gamlir tankar en sannarlega bæjarprýði.
Austurríkismenn eru ekkert feimnir við að prjóna nýtísku viðbyggingum við gamlar fallegar byggingra, spurning hvort það virki. Þessi viðbygging sem er íbúðarblokk er kölluð skelin.
Hér er hún í skólanum, og það er greinilegt að þau eru að fara í aðgerð.
Ójá hvutti litli þarf meðhöndlun.
Það snjóaði líka í Austurríki um daginn. Þetta er Trölli, ég var með hann í fóstri nokkra mánuði, en svo fór hann til Austurríkis og er þar núna þessi elska.
Hér er kærastan hans hún Goldie. Þau eru rosalega góðir vinir og búa saman eins og er. Því honum líður betur í sveitinni hjá vinum okkar þeim Samúel og Heidi.
Þetta er sannkallað hundalíf.
Svo er gengið niður að á.
Það getur líka verið skemmtileg birta í Austurríki.
Skuggar og skin. Það er virkilega gaman að ganga þarna um í skóginum og fylgjast með lífinu í ánni.
Það er náttúrulega ekkert á við snjóinn hér heima, og þessi var tekin í dag.
Veðrið er fínt.
Krílin nýkomin úr baði og nú eru þau sofnuð.
Og ég segi líka góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.3.2009 | 21:05
Taekwon do og vorbörn.
Litli grallarinn minn var veikur í dag. Ég tók eftir því í nótt að hún var orðin óvenjulega heit á höndum og fótum, og það reyndist vera svo að hún var með hita í morgun. Svo hún fór ekki á leikskólann. Satt að segja var hún frekar pirruð í dag þessi elska, svo amma þurfti að sitja og standa eins og hún vildi Það er svo sem allt í lagi svona endrum og eins. En það þýðir að orkan mín er farin út í buskan eins og er.
Börnunum finnst gaman að leika í garðskálanum.
Þessar myndir voru teknar í gær.
Litla grjónið hennar ömmu.
Hún var sem sagt dálítið pirruð í dag, samt átti amma að setja í hana teyju eins og stóru systur.
Amma viltu setja gosbrunn?
En amma þetta er ekki gosbrunnur þetta er foss!!!
Halló ég þarf að komast á klóið!!!
Amma seta teyju!!!
Úbbs það er enginn gosbrunnur ekki heldur foss, heldur lítill nabbi sem þarna næst
Sjávu!!!
Svo var hún lögð af stað í leikskólann.
En svo var bara notalegra að vera heima hjá ömmu með; teppið mitt og koddann minn.
En svona er veðrið hér núna.
Ég fór á taekvon do æfingu hjá stubbnum í kvöld til að taka myndir. Það verður bráðum afmælishátíð HSV og þá verður gefið út blað með þeim íþróttum sem stundaðar eru hér, og ég lofaði að taka nokkrar myndir fyrir það tilefni. Hér er verið að bíða eftir að æfing byrji.
Hér er æfingin byrjuð. Og ég get sagt ykkur að þetta er gamli íþróttasalurinn þar sem ég var í leikfimi frá 6 ára aldri, og það er sama gólfið, sömu veggirnir, grindurnar og sama lyktin, ég get svarið það.
Sumt hreinlega breytist ekkert.
Þeir sem mæta of seint verða að gera armbeyjur.
6 apríl þá verður beltapróf, og mikil tilhlökkun og kvíði út af því. En þetta er skemmtileg íþrótt og vonandi verða fleiri næsta ár.
Börn og fullorðnir hafa gott af að spreyta sig á þessari sjálfstjórnaríþrótt.
Þeir skemmtu sér líka vel strákarnir. Það eru líka stelpur í Taekwondo, en einhverra hluta vegna er enginn þar núna.
Stubburinn.
Þeir voru nú líka dálítið að gera sig til við myndavélina drengirnir
Flottir.
En ég held að ég hafi ekki orku í meira en að skríða upp í rúm og leggja mig eftir daginn. Ég ætla að fara blogghringin á morgun. Segi bara góða nótt elskurnar og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda. Sérstaklega þeim sem eru veikir og þurfa stuðning og knús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
23.3.2009 | 20:54
Myndir undir svefninn.
Jæja tími á smávegis léttara hjal, myndirnar sem áttu að fara inn í hádeginu. En sjokkið var svo mikið að ég gat ekki gert neitt.
Við fórum í sund á Suðureyri í gær, og hér er verið að gefa öndunum.
Það er hægt að gefa öndum hér og líka þorskum... já það eru þorskar í lóninu sem nánast éta úr lófa manns og það er jafnvel hægt að klappa þeim.
En prinsessur sitja bara inn í bíl á meðan hehehe...
Obb obb obb, þegar maður er búin að fá súkkulaðiís og nýkomin úr sundi er upplagt að fá sér smálúr.
Svo er gott að eiga stóran "bróður" sem ber mann á háhesti heim að dyrum.
Afar eru líka til þess brúklegir.
Veðrið er fallegt, þessi er síðan í gær.
Og þessi líka.
Það færist líka fjör í garðskálann.
Enda er vorið komið þar.
en úti þarf að moka, og þá er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur.
Og auðvitað þurfa allir að moka.
Eða fá sér sólhlíf. Það er allavega sól.
Já vorið er komið í kúluna, hér eru Zakúrakirsuberin mín byrjuð að springa út.
Og börnin bedrífa ýmislegt.
Og þessi litla snúlla er alltaf til í mat, kjöt og fisk meðan sú stóra vill frekar jógúrt og ávexti.
Og það kvöldar á Ísafirði.
Himnagallerið fer að opna bráðlega.
Svona er þetta bara hér.
Morgunsólin í morgun áleiðis til Hnífsdals.
Það er líka komið vor í gróðurhúsinu mínu. Hér eru sumarblómin að komast á legg.
Þá fjölgar líka krökkunum í kúlunni.
Eins og kálfar út á vorin.
Að ýmsu þarf að hyggja.
Já það er fjör.
En hver tími hefur sína tilfinningu, og maður á aldrei að dvelja við það neikvæða og leiðinlega. Það dregur mann bara niður. Það á að líta á björtu hliðarnar og gleðjast yfir því fagra og góða. Gefa frá sér leiðindinn, þau eiga ekki að fá að dvelja innra með manni. Og best er að reyna að skilja ástæðurnar og fyrirgefa eða að minnsta kosti gleyma þeim bara alveg. Lífið heldur áfram, ef eitt sund lokast opnast annað og örugglega meira spennandi. Þá er líka best að biðja almættið um leiðsögn og aðstoð við að gera besta úr öllum hlutum. Af því að þannig virkar lögmálið.
Knús á ykkur öll elsku bloggvinir mínir og ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
23.3.2009 | 13:14
Sjokkeruð er ég og algjörlega mát.
Ég er sko meira en undrandi á brotthvarfi Ásgerðar Jónu úr flokknum. Það virtist ekki vera nein vandamál eða deilur sem ollu henni áhyggjum á landsþinginu. Og hún talaði þar mikið um hvað hun teldi vera hlutverk varaformanns, og virtist tilbúin í slaginn.
Síðan eru liðnir níu dagar, og allt í einu uppgötvar frúin að við erum óalandi og óferjandi. Það er ekki bara það, heldur ræddi hún ekki við fólkið sem studdi hana og agiteraði fyrir fyrir varaformannsembættið. Það er ekki góður siður að minu mati að hlaupa með hlutina fyrst í blöðin, og hverfa svo bara út í buskann. Ég er allavega sár, ég ákvað fyrir orð nokkurra kvenna að veita henni mitt atkvæði, vegna þess að ég taldi hana duglega konu og hún virtist hafa heilmikinn áhuga á því að takast á við áskorunina. En sum sé ég var plötuð upp úr skónum, all svakalega, og stend fullkomlega á gati. Ég er ekki bara undrandi á uppákomunni ég er sjokkeruð og algjörlega gapandi.
Ég las það einhversstaðar eða heyrði í útvarpinu að maður ætti alltaf að trúa þeirri hugsun sem fyrst kæmi inn í hugann, af því að það væri innblásturinn, hjartað, síðan kæmi heilinn og skynsemin og þurrkaði fyrstu hugsunina út. Jæja mín fyrsta hugsun var að þetta væri síðasta sendingin frá Jóni Magnússyni og Nýju afli, svona good bye, farwell, adjö, auf Wiedersein, adios. Það var bara eitt sem klikkaði, hún hefði auðvitað átt að hámarka grínið með því að gera þetta með stæl 1. apríl. Það er ekki svo andskoti langt þangað til, að það hefði verið lang flottast. Þá hefðu þau getað hlegið í kór vitandi að grín ársins var fullkomnað. Svo hefði Eiríkur Stefánsson getað plaffað á okkur á færi í Útvarpi Sögu, til að fullkomna niðurlæginguna.
Það er líka sagt að maður eigi ekki að skrifa eitthvað þegar maður er reiður, eða svekktur, jæja ég hef brotið þá reglu í dag. Þess vegna get ég ekki einu sinni óskað henni góðs með framtíðina, vona samt að hún hafi það gott og líði vel á sálinni. Það er bara þessi hugsun að ef þetta hefur nú allt saman verið skipulagt og ráðgert fyrirfram, þá ætti Ásgerður Jóna að fá Óskarinn, eða í það minnsta Grímuna fyrir stjörnuleik. Það er stórkostlegt að plata alla upp úr skónum svona líka svakalega, að við stöndum gapandi hvert framan í annað og skiljum ekki hvað gerðist eiginlega. Að því leytinu gekk plottið upp, og óska ég Nýju afli til lukku með það. Hitt er svo annað mál, að við gefumst ekki upp ef það hefur verið meiningin. Heldur höldum ótrauð áfram, einbeittari en fyrr í að standa af okkur þennan slag. Það er allavega mín hugsun hér og nú. Over and out!!!
![]() |
Guðjón A. undrandi á uppsögn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
22.3.2009 | 10:33
Ein lítil hugleiðing um lífið og tilveruna.
Ég er sennilega dálítið öðruvísi en margir aðrir. Ég er til dæmis á móti bönnum og boðum, tel að með slíku fari hlutirnir bara í kaf og verði að glæpum, og glæpamönnum. Eg held nefnilega að fólk hætti ekki að stunda ákveðna hluti þó þeir séu bannaðir samkvæmt lögum.
Þetta á til dæmis við um vændi. Ég er auðvitað algjörlega á móti mansali og þrælahaldi. Melludólgar eru viðbjóður og ættu ekki að vera til. En að banna vændi og kaup á vændi finnst mér eiginlega vera dálítið út í hött. Ég er nefnilega alveg sannfærð um að það bara gengur ekki upp. Konur hætta ekki að selja líkama sinn, og karlmenn hætta ekki að kaupa sér samfarir við það að þetta sé bannað. Það sem gerist að þá er þetta orðin glæpastarfssemi og fer neðanjarðar, hverfur í djúpin, og gæti stuðlað að ennþá meiri eymd og kúgun kvenna. En þetta er mín meining, og ég tel mig þekkja mannlegt eðli nokkuð vel.
Eins er með hass og álíka fíkniefni. Ég hef aldrei alveg skilið þennan ótta við lögleiðingu á kannabis. Með því að lögleiða slík efni, þá færum við neysluna upp á yfirborðið, sláum glæpinn úr höndum innfluttningsaflanna. Neyð fíklanna yrði ekki eins mikil. Þegar bjórinn loks var leyfður fóru púrítanarnir að tala um að neyslan myndi aukast upp úr öllu valdi. Það jókst að vísu neysla á bjór en minnkaði að sama skapi á sterkari drykkjum. Ef til dæmis menn færu út í að banna sterk vín myndi örugglega brugg fara upp úr öllu valdi. Það yrði sennilega bruggað í flestum húsum. En um leið yrðu þeir borgara sem það gerðu lögbrjótar. Þar væri verið að búa til glæpamenn, rétt eins og það er veriðað búa til glæpamenn sem rækta hassplöntur, og þá er ég svo sem ekki að tala um heilu frabrikkurnar, heldur bara alla sem rækta sitt eigið stuff í stofuglugganum.
Það er líka vitað að kannabis er gott lyf við ýmsum sjúkdómum, en það má alls ekki nota það, vegna orðsporsins. Mér finnst þetta skrýtið svo ekki sé meira sagt. Þetta segi ég manneskjan sem hef verið í 30 ára baráttu við fíkn í fjölskyldunni. Ég veit líka að þó minn sonur sé hættur að nota þessi ólöglegu lyf, þá gat hann alltaf orðið sér úti um þau allstaðar. Það kostaði bara heilmikið og gerði hann að afbrotamanni ofan á fíknina.
Ég held að málið sé að þeir sem græða á að flytja þessi efni inn, vilji ekki lögleiða þau. Þeirra hagur er að þetta sé allt í þeirra höndum og að fíklarnir séu þeirra eign líka. Og ég er viss um að þeir sem fjármagna innfluttning og dreyfingu á fíkniefnum eru ekki einhverjir lúserar á botni samfélagsins, svo ekki sé meira sagt.
Auk þess er svona heimaræktað hass örugglega hreinna en efni sem flutt er inn. Með því að ganga svona fram í að fylgjast með kannabisræktun hér heima, er stuðlað að meiri innfluttningi og meiri gjaldeyriseyðslu. Eða ætlar einhver að segja mér að fólk bara hætti bara si sona, eða að þetta sé einhver ábót við innfluttning? Nei ég held að það sé orðið erfiðara að flytja inn efnin eftir hrunið og þess vegna gripið til heimaframleiðslu.
Fíkn er ástand sem menn ráða illa eða alls ekki við. Fíknir eru margskonar, matarfíkn, kynlífsfíkn, reykingar og drykkja, fíkn í athygli og svo framvegis. Það sem þarf að gera er að hjálpa fólki að komast yfir fíknina. Það þýðir einfaldlega ekki að setja lagabann og segja þetta má ekki. Það má svo sem segja slíkt, en það bara hefur enginn áhrif.
Það þarf lokaða meðferðarstofnun fyrir fólk sem ræður ekki við aðstæður í lífi sínu. Það þarf opinbert eftirlit með sölu og neyslu á fíkniefnum. Auðvitað kostar það peninga, en hvað halda menn að það kosti þjóðfélagið árlega að hafa fíklana á þeim level sem þeir eru í dag, í hringrás neyslu innbrota eða árása, í fangelsi, út aftur. Hverjir eru svo það sem bíða á næsta götuhorni tilbúnir með næsta skammt til að halda hringrásinni áfram? Nei gott fólk, hér þarf að hugsa algjölega upp á nýtt. Það sem hér hefur viðgengist í yfir 20 ár er gjaldþrota stefna. Það þarf að þora að breyta til, finna þá sem standa á bak við þetta ferli og færa þá til dóms, rétt eins og útrásarvíkingana.
Nýtt Ísland er ekki bara á hinu pólitíska sviði, það þarf líka að hugsa margt annað upp á nýtt, eins og að skilja að glæpamenn sem eru í eðli sínu glæpamenn og svo hins vegar fíkla sem leiðast út í allskonar vitleysu vegna þess að þeir eru ekki lengur sjálfráðir gerða sinna. Þangað til það verður gert, verða fangelsin full af afbrotamönnum, sem oftar en ekki eru ekki í eðli sínu afbrotamenn. Lögreglan á fullu við að eltast við hassræktendur, og hefur ekki tíma til að verja almenna borgara fyrir árásum og allt kerfið útbólgið af vandamálum. Forvarnir þurfa að vera miklu beittari, en eftirvarnirnar eru ekki til í dag, en þurfa svo sannarlega að vera til staðar. Ekki bara fyrir fíklana, heldur alla sem þeim tengjast.
Við hugsum því miður í kössum, og sjáum ekki út fyrir þá kassa. Vonandi förum við samt að rumska og standa upp og krefjast breytinga í þjóðfélaginu. Ekki bara á einu sviði, heldur þarf að stokka upp allt samfélagið og skoða það ofan í kjölin. Finna hina raunverulegu sökudólga og koma þeim undir lás og slá. Þeir eru víða mennirnir sem valda skaða bæði í bankahruni, græðgi en líka sem valda sársauka, angist og dauða unga fólksins okkar. Það er einfaldlega ekki viðunandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
21.3.2009 | 22:50
Ömmur og skottur.
Ennþá var gott veður í dag, reyndar alveg yndislegt. Ég var að passa litlu skotturnar mínar Evítu og Ásthildi, Hanna Sól fékk að fara í heimsókn til Sigurjóns, og Úlfur fór með afa sínum á Þingeyri þar sem afi var að klippa limgerði. Við höfðum það fínt hér heima Cesiljarnar þrjár
Veðrið var virkilega fallegt og eftir hádegi var sól og blíða.
Úlfur að leggja af stað með afa að klippa, tilbúin í allt.
Við héldum okkur hinsvegar í frumskóginum.
Þar er alltaf nóg hægt að gera.
Tilbúnar í slaginn, við ætlum nefnilega í labbitúr.
en ekki of langt, því amma getur ekki borið tvo litla prakkara, svo fæturnir verða að duga.
Það er allt svo spennandi.
Svo hittum við konur sem voru í göngutúr. Þær þekktu Evítu litlu og tóku stelpurnar tali.
Sjáiði svipinn á dýrinu, hehehehehe....
Já það er fjör í labbitúr.
Það er sagt að hestar séu heimfúsir, en þessar tvær voru sko ekki síður heimfúsar, þær hlupu af stað heimleiðis í átt að kúlunni.
Og svo er mynd sem ég tók á Seljalandsdal í dag. Ég hef ekki farið þar uppeftir síðan nýji garðurinn kom, og sjáiði, þarna lengst fyrir neðan er gamli skíðaskálinn, þarna upp á Gullhól held ég var sett upp gamla færanlega smíðastofan frá grunnskólanum, og núna er þarna gönguskíðaparadís.
Slæðukona??? Ónei prinsessa komin út baði.
Lítill matargoggur.
Þetta eru myndir kvöldsins mín kæru. Knús á ykkur og góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 6
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 2023199
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar