20.3.2009 | 21:11
Smámömmó, blóm í kúlu og ýmislegt smálegt.
Allt gott héðan. Ég þurfti að sækja stóru stúlkuna mína á leikskólan á hádegi í gær, hún var komin með gin og klaufaveiki. Það var samt miklu auðveldara að eiga við hana blessaða stór og þroskuð fimmára hnáta. Sem betur fer gat ég tekið verkefnin með mér heim í þetta skiptið.
En nú er föstudagur og helgin framundan.
Veðrið ljúft eins og sjá má.
Það er líka hægt að sjá að mikið hefur tekið upp snjóinn úr fjöllunum þessa hlýviðrisdaga.
En ég lofaði Kiddu vinkonu minni nokkrum blómamyndum úr garðskálanum, til að minna á vorið. Hér er begonía sem er alltaf falleg vegna litar blaðanna.
Það er ekki langt í að Kamelíufrúin fari að sýna sína eldrauðu knúppa.
Prímúlur eru endalaus uppspretta gleði og fegurðar.
Og litadýrðar.
Vetrarlaufið er komið með hvít falleg ber.
Beinviðurinn líka flottur.
Og taxusinn.
Ílexið þessar sígrænu plöntur lífga svo sannarlega upp á garðskálann.
Yukkan og súlusýprisinn eru líka glæsileg.
Já hún vildi fara í skólann sú stutta.
Að vísu nýkomin heim frá leikskólanum
En taskan var bara svo spennandi.
Og maður þarf náttúrulega að fara allaleið.
Hér er svo indíjána prinsessa!!!
Þegar maður er heima, þá þarf að dunda sér við eitthvað
Þetta kann hún líka ennþá.
Tjörnin er endalaus uppspretta ánægju.
Og við ákváðum að grilla af því að það er föstudagur. Hanna Sól fékk að kveikja í grillinu, undir öruggri stjórn afa.
Hviss bang!!!
Já og það tókst.
Það er samt alltaf best að sulla bara
Litla dýrið söng; allur matur á að fara, upp í munn og oní maga.... Hún er ótrúleg, farin að tala svo mikið og syngja.
Svo er rosagaman að fara í eltingarleik við afa með krabbann. Þ.e. grillklóna, spennandi fram yfir allt.
En svona er lífið í kúlunni, nú eru þær báðar sofnaðar eins og englar, afi í sundi og Úlfur í Taekwon do og amma að skrifa hér til ykkar elskuleg.
Ég vona svo bara að þið eigið gott kvöld.
Ég get upplýst það hér að laugardaginn 28 marz n.k. verður námskeið í klippingu trjáa hér á Ísafirði, og sennilega 18 apríl námskeið í ræktun matjurta. Spennandi námskeið. Þessir aðiljar höfðu hvoru tveggja samand í dag og ég ætla að vera þeim innan handar með það sem ég get. Svona ofan á allt hitt. En það er reyndar mikill áhugi núna á ræktun almennt. Og það er vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
19.3.2009 | 22:34
Hitt og þetta ekki fyrir viðkvæma.(LOL)
Skoðanakannanir eru ekki mínum flokki hliðhollar í dag, en það gerir ekkert til, ég er samt bjartsýn. Þó fólk reyni að þaga okkur í hel, gerir ekkert til, ég er samt bjartsýn. Fólk sem reynir að setja á okkur svartan blett með lyginni einni og illum hug, gerir ekkert til ég er samt sem áður bjartsýn. Við erum flottust, með besta málefnasamningin og valinn mann í hverju rúmi. Það munu sitja konur í helming forystusæta á listum hjá okkur flottar sterkar konur í Reykjavik Suður, Kraganum og Norðausturkjördæmi. Okkar menn eru alþýðufólk sem er nálægt grasrótinni, og hefur gott og mikið samband við fólkið í landinu. Ég held að þessar skoðanakannanir séu ekki marktækar. Við skulum sjá hvað kemur upp úr kjörkössum í vor.
Já ég er bjartsýn, hef alltaf verið og mun vonandi alltaf verða. Ég vil hvetja alla til að kynna sér málefni okkar á www.xf.is
Nú verða menn að fara að hugsa sjálfstætt. Það dugir ekki að ætla sér að græða á daginn og grilla á kvöldin og láta D fyrir Drottinn hugsa fyrir sig. Sá Guð hvorki fæðir fólk né klæðir. Hann hugsar ekki um litla fólkið, heldur lítur á þau sem auðsveipa þegna sem hægt er að blekkja og nýta sér. Sá Drottinn vill gera þá ríku ríkari því það eru þeirra menn.
Hugsandi fólk spyr; hvernig getum við vakið þessa þjóð? Og það er réttmæt spurning. Ég er ekki að falast eftir atkvæðum. Ég er að falast eftir því að þið gott fólk kynnið ykkur það sem flokkarnir hafa fram að færa, en ekki bara það sem fólk segir, heldur skoðið líka hvað þeir flokkar hafa verið að gera hingað til. Ekki láta segja ykkur fallegar sögur rétt fyrir kosningar. Lygin verður þá að sannleika og ég held að sumir trúi því sem þeir eru að segja. En oftar en ekki er það hjómið eitt hjá allof mörgum. Skoðið til dæmis hvað það ágæta fólk hefur haft fram að færa bara á siðastliðnu kjörtímabili. Hvaða frumvörp það hefur lagt fram, og hvernig það hefur afgreitt hin ýmsu mál áður en þið trúið fagurgala heimsins.
En ég ætla svo að setja hér inn svona undir svefninn nokkur lífsins blóm til að gleðja.
Þetta eru vorblómin mín.
Þau eru litrík, skemmtileg og lífsglöð.
Vandamálin eru hvort þau komast út í garðskálan án þess að fara í stígvélin, áður en amma sér til þeirra.
ég skal mála allan heimin elsku mamma, eintómt sólskin bjart og jamt.
Já vorið er sannarlega komið í kúlunni.
Sjáiði áhugasemina hjá litla prakkaranum!!!
Og svo er það eldhúsborðið sem er rosalega notalegt til setu.
Þetta er framtiðin. Ekki láta fagurgala og innantóm loforð eyðileggja framtíð þeirra. Ekki gefa þeim tækifæri sem hafa setið og stjórnað í 18 ár með þeim árangri sem nú blasir við. Það er komin tími til að leyfa öðrum að spreyta sig. Ég er reyndar viss um að margt af því unga fólki sem nú er að bjóða sig fram í fyrsta sinn, vill vel og telur sig geta breytt einhverju, en í þeim stóra trúarflokki sem ég er að tala um verður engu breytt. Þar er allt í föstum valdaskorðum og enginn fær að rokka þeim bát eitt eða neitt. Því það þarf að vernda þeirra menn, mennina sem halda þeim við völdin, þar er ekkert til sparað enda maskínan komin á fullt skrið að sverta, niðurlæjga eða þegja í hel þá sem vilja breyta og bæta Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
18.3.2009 | 21:41
Sitt af hverju tagi undir svefninn.
Nafna mín er að á sér á strik aftur. Ég hef verið ansi bundinn yfir henni síðastliðna þrjá daga, eins og gengur með svona lítil kríli, þau skilja ekki alveg að maður þurfi lika að gera eitthvað annað. Og svo er maður gjörsamlega búin um kvöldið, sem átti að fara í eitthvað annað. En svona er lífið, og það er yndislegt.
Það er búið að vera meiriháttar veður hér síðan á helginni.
Þessi er dálítið rómó.
Það er mikill snjór í fjöllunum núna, en hefur samt farið heilmikið, því hér er hitinn í plús þessa dagana.
Hádegið í dag.
Og svo seinnipartinn.
Þessi var að þurrka vængina í dag.
Sigurjón kom í heimsókn í gær.
Hanna Sól er alltaf að módelast sona...
Og Ásthildur tilbúin í vinnuna, það sést líka á fótabúnaðinum að hún veigrar sér ekki við allskonar vinnu en nú eru bólurnar að þorna svo hún fær að fara á leikskólann á morgun.
En ég ætlaði að setja inn ljóðið mitt sem ég setti saman á landsþinginu, það var svona í stemningunni sem var þar:
Feigum ekki forðað er,
ófeigum til Heljar hrundið.
Samstaða og sáttin hér
Sannarlega í kross er bundið.
Ergelsi og öfund græn,
allra verst þó iðkum við.
Þess vegna er sóknin slæm.
Það svíður okkar góða lið.
Snúum bökum saman nú.
Sverjum bræður frið og ást.
Kyssumst knúsumst ég og þú
Svo kærleik engan betri sást.
Upp skal rísa andinn sterki,
Upp með þúsund radda brag.
Fokkum ekki frjálsra merki,
fylkjumst undir Eff í dag.
14. mars 2009.
Við eigum góðan málefnasamningi sem við gætum vel að, og pössum upp á. Hann er aðalsmerkið okkar. Og nú ríkir bjartsýni hjá okkur.
En ég segi bara góða nótt og sofið rótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
16.3.2009 | 23:51
Smá mömmó undir svefninn!!!
Svona mömmublogg undir svefninn.
Jamm Það var hringt frá leikskólanum hennar Ásthildar um hádegisbilið í dag og mér tilkynnt að hún væri komin með einhverjar bólur, ef til vill hlaupabólu, en þegar nánar var að gáð, þá var talið að sennilega væri þetta gin- og klaufaveiki. Og ég er ekki að djóka, þó þessi litla rófa sé hvorki með gin né klaufir, þá er þetta víst hægt Allavega eru bólurnar mest í munninum á henni og svo á útlimum.
En sem sagt amma þurfti að sækja litla prakkarann á leikskólann og hlú að honum heima. Þar var líka Úlfurinn sem hafði dottið á snjóbretti í gær og gengur við hækjur.
Í gær aftur á móti var fjör. Þá var hoppað í rúminu hennar Hönnu Sól.
Já og ætli hún standi nú bara si sona á veggnum
Og grallarinn hann afi þurfti auðvitað líka að prófa.
Veðrið í dag var alveg meiriháttar.
Ég elska þessa birtu.
Og svona manngerð fjöll má auðvitað nota til þess að skemmta sér.
Þetta er gaman.
Meira af þessu fallega hvíta og bláa.
Pollurinn með íshröngli.
Já fallegt veður.
Svo við ákváðum að fara í göngutúr, enda sú litla ekki með hita, bara bólur.
Yndislega gaman.
Svo vildi afi líka láta draga sig.
Dálítið erfitt, en samt hægt hehehehe
Friður sé með yður.
Ekki alveg samt, því þetta eru leifar af snjóflóði á Grænagarð. En eigendur eru við öllu búnir þar á bæ, enda á snjóflóðahættusvæði.
Hér hrinur úr hverju gili fyrir innan okkur, en vel er fylgst með öllu og við því alveg örugg.
Og víst er þetta bæjarstæði fallegt líka.
Engi og kúlan í sól, kyrrð og friði.
Eigið góða nótt elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
16.3.2009 | 20:23
Má bjóða ykkur í bíltúr?
Ég ætla að bjóða ykkur í bíltúr frá Stykkishólmi til Ísafjarðar yfir Laxárdalsheiðina. Gjörið svo vel að hoppa upp í bílinn og njótið íslenskrar náttúr, svo hrein og yndisleg. Perla engu öðru lík.
Þessi er að vísu tekinn á leiðinni til Stykkishólms.
Hólmarar eiga glæsilega nýja kirkju og svo eiga þeir víst aðra gamla ekki síðri. Diddú var með tónleika þarna á laugardaginn, en því miður hafði ég ekki tíma til að hlusta á hana.
Stykkirhólmur er einn af fegustu bæjarstæðum á Íslandi er óhætt að segja, alveg eins og Ísafjörður.
ég hafði samt ekki tíma til að aka um bæinn, því við áttum langa leið fyrir höndum.
Veðrið var dulúðugt, sólin óð í skýjum og birtan var sérkennileg, en allt svo fallegt.
Hver á sér fegra föðurland.
Þetta gæti verið beint upp úr draugasögum íslenskum.
Þar sem maður er einn í heiminum til að njóta fegurðarinnar.
Stærri er Gullfoss þessi foss, þetta er auðvitað vatn en í öðru formi.
Ein einmana falleg gömul kirkja á víðavangi.
Víðernin sem við erum svo kærulaus um því miður. Þetta er fjársjóður komandi kynslóða.
Það er að segja ef við fáum að vera í friði með landið okkar. Það gæti verið að við yrðum hrakinn héðan af fólki sem þarf að flýja sín heimili vegna þess að þau verða óbyggileg, sannarlega hrollvekjandi hugsun, en alls ekki útilokuð.
En allt þetta er okkar í dag.
Himnagalleríið er alveg opið þessa dagana.
En það þarf líka að huga að praktískum hlutum eins og að gefa hestunum.
Hér sést ofan í Hrútafjörðinn.
Skýin eru eilíf uppspretta fegurðar, og hér sjást þau vel fyrir mengun.
Og aldan brotnar við fjörunnar grjót.
Hvít fjöllinn móti bláu hafi.
Svartir kletta drangar rísa eins og tröll sem dagað hafa uppi.
Og sólin brosir bak við skýin.
Færustu myndhöggvarar gætu ekki gert þetta betur.
Og heldur ekki þetta listaverk, en þau eyðast líka fyrr en önnur. Þess vegna ber að njóta þeirra á stað og stund.
Skyldi ísbjörn hafa fengið sér far með þessum?
HVergi er himininn blárri en í fallegu íslensku vetrarveðri.
Og komin heim, ég býð ykkur í kaffi elskurnar og þakka samfylgdina, vona að þið hafið notið ferðalagsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.3.2009 | 18:46
Þingið hjá Frjálslyndum í Stykkishólmi í myndum.
Þá er ég komin heim, var að hellast inn úr dyrunum. Ég var mjög sátt við fundinn í Stykkishólmi. Það var að vísu synd að allmargir komust ekki vegna veðurs full rúta snéri við í Mosfellsbænum og nokkrir einkabílar frá Suðurlandi komust ekki vegna veðurhamsins.
Við Elli fengum samt mjög gott ferðaveður en illviðrið skall á um leið og við komum á leiðarenda, hér eru held ég Ljósufjöll.
Hér er verið að tékka sig inn á landsþingið, kempan Ragnheiður Ólafsdóttir.
Allt á fullu með tæknimálin.
Gísli var eini fréttamaðurinn sem mætti á fundinn. Gæti verið út af veðrinu líka.
Guðjón Arnar setur fundinn.
Fundarstjórar fundarritarar og umsjónarmenn þingsins.
Eins og ég sagði þá var færra en til stóð vegna veðursins. En það var góðmennt og mjög gott andrúmsloft meðal fundarmanna.
En það var sumstaðar þröngt setinn bekkurinn samt.
Og vel var unnið.
Málið er að koma þessum myndarlega strák inn á þing aftur.
Ásgerður Jóna í pontu að gera grein fyrir afstöðu sinni til embættis varaformanns. Henni mæltist vel, enda náði hún kjöri, hörkudugleg kona.
Siggi sæti bloggvinur og prakkari.
Og Karl V. komin yfir til okkar, hér í góðum félagsskap Kristmanns og Guðmundar Hagalínssonar sem er númer 6 á okkar lista eins og síðast hann verður 75 ára í sumar, en lítur ekki degi eldri út en 65.
Það var borin fram súpa í hádeginu.
Og lögreglan var á svæðinu drjúgt lengi, fyrst héldum við að það væri vegna Sturlu hehehehe... en svo reyndist einhver kjáninn hafa sent rasistabréf í öll hús og hóta öllu illu til flokksmanna, svo þeim þótti ráðlegra að hafa gát á öllu. Svona getur fólk hagað sér sem ekki sést fyrir í sínum einkarasisma en sakar aðra um slíkt, líkt og ónefnd kona sem vill láta taka sig alvarlega í blaðaheiminum, en sést ekki fyrir í öfgunum.
Og Guðjón var auðvitað að ræða við blaðamanninn, þennan eina sem mætti á svæðið sennilega vegna veðurs. Ekki er lengra til Stykkishólms en til Raufarhafnar væntanlega.
Verðandi varaformaður sækir gögnin sín.
Hér er tilkynnt um að Guðjón Arnar hafi sigrað í kosningu um formannssætið.
Og fólkið fagnaði formanni sínum vel. Það verður líka að segjast eins og er að Magnús Þór tók tapinu eins og sannt karlmenni, kvaðst myndu halda áfram að starfa með flokknum og vinna að málefnum hans.
Þau komu að austan alla leið. Ekki Ólafur F. samt.
Um kvöldið var svo hátíðakvöldverður og allir í sínu finasta pússi.
Taktu mynd af okkur frændkynunum sagði Ólafur, glæsileg ekki satt! Sturla nýtur sín vel þarna. Hann sagði mér að "græjurnar" væru í stofufangelsi
Þessir tveir létu sér samt fátt um finnast.
Formaðurinn okkar lék á alls oddi og reytti af sér brandara svo söng hann fyrir okkur Fyrir sunnan fríkirkjuna.
Hér má sjá kappann Jens Guð bloggvin minn og Kolbrúnu Stefánsdóttur sem mun leiða listan í Kraganum, glæsileg og mjög svo frambærileg kona.
Það var góður matur á boðstólum sem gestirnir gerðu góð skil. Þessi glæsilega stúlka með makkann í forgrunni mun leiða listan fyrir austan. Lýst rosalega vel á hana. gaman að hve margar hæfileikarikar konur komust til trúnaðarstarfa fyrir flokkinn okkar á þessu landsþingi og hve margar í raun og veru leiða lista til alþingiskosninga. Þó er ekki búið að ljúka við að setja upp lista, þeirri vinnu er raunar hvergi nærri lokið.
Formaðurinn á góðri stund.
Frú Barbara Kristjánsson með pólskri mágkonu sinni. Barbara er afskaplega yndæl kona.
Þessi fallega stúlka er dóttir þeirra Guðjóns og Barböru.
Og Karl Fimmti kom okkur verulega á óvart og sagði brandara svo salurinn lá í hláturskasti.
Svo var dansað á eftir og menn höfðu góða skemmtun.
Þetta er bara mjúka hliðinn á þinginu, allar tölulegar upplýsingar getur fólk séð á www.xf.is, þetta er mannlegi þátturinn. Það var ljóst að þetta var fundur sátta og sameiningar. Við ætlum okkur að standa betur saman og styðja hvort annað og vera betri manneskjur. Gleðin og kærleikurinn sveif yfir vötnum eins og í gamla daga í upphafi. Nýtt fólk er velkomið til okkar og mun verða vel tekið. Það er til dæmis upplagt fyrir búsáhaldafólkið okkar að kynna sér málefnasamninginn og skoða hvort þau geta ekki komið til okkar.
Eins og Helga Þórðardóttir sagði svo flott; hvað getum við gert til að vekja þjóðina. Þau hjón hafa starfað mikið fyrir borgarahreyfinguna og það var auðvelt sagði Helga, því ég var að vinna samkvæmt málefnasamningi Frjálslynda flokksins. Svona er hann. Það er bara að koma því til skila til fólksins.
Við erum hér með besta málefnasamninginn og það sem meira er, við stöndum við hann frá A til Ö.
En nóg í bili. Ég setti fram ljóð þarna í gær, en það er ennþá í töskunni minni, ég ætla að setja það hér inn, þegar ég fæ hana inn úr bílnum.
En eigið gott kvöld elskurnar, og endilega án allra skuldbindinga kynnið okkur hvað við höfum fram að færa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
13.3.2009 | 11:06
Stykkishólmur here I come.
Jæja þá er það Stykkishólmur. Landsþing og alles. Ég er að leggja í hann eftir smá stund. en vil setja inn nokkrar krúttmyndir áður en ég legg í hann, svona fyrir mömmu og pabba.
Afi og Hanna Sól við morgunmatinn.
Sumir ekki alveg vaknaðir.
En það kemur þegar maður er komin í gallann.
Og það má alltaf fara í flottar stellingar.
Svo er gott að láta afa bera sig í bílinn.
Og Evíta í heimsókn.
Þær eru svo skemmtilega ólíkar, önnur alltaf að sulla, hin að taka til og þrýfa. Þið megið giska hér hver
Og svo vill litla manneskjarn láta í sig skott, það gengur að vísu illa, en hún er alsæl.
Að lokum sólarupprásin í gærmorgun. Eigið góðan dag elskurnar, það getur vel verið að ég geti kíkt á ykkur í Stykkishólminum. En þangað til hafið það gott.
Það stefnir í spennu, nú ætlar Magnús Þór að hjóla í formanninn, og svo er Karl V. Matthíasson gengin til liðs við Frjálslynda flokkinn, hver segir að það sé ekki fjör í pólitíkinni.
Knús á ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.3.2009 | 09:50
Niðurstöður í póstkosningu Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi.
Ég lofa því að íþyngja ykkur ekki með kosningaáróðri. Reyni að stilla mig allavega. En í gær töldum við atkvæði í kosningu um fimm efstu sæti Frjálslyndaflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þetta var póstkosning og eru 255 mann sá kjörskrá. Svarhlutfall var mjög gott eða rétt tæplega 50%
Talningin var spennandi, því mjótt var á munum milli frambjóðenda og ekki ljóst fyrr en í blálokin hvar hver fengi sæti. Það þurfti því að telja þrisvar áður en óyggjandi niðurstaða fékkst.
Guðjón fékk afgerandi kosningu í fyrsta sæti um 90% settu hann í fyrsta sætið.
Sigurjón Þórðarson var kjörinn í annað sætið.
Ragnheiður Ólafsdóttir í það þriðja
Magnús Þór Hafsteinsson í fjórða sætið
Sigurður Hallgrímsson í fimmta sætið.
Ragnheiður fékk líka afgerandi kosningu í þriðja sætið, enda flott kona og skelegg.
Landsfundur Frjálslynda flokksins verður svo haldinn í Stykkishólmi núna um helgina, og þá verður kosið um varaformann, þar sem Magnús Þór hefur fengið mótframboð af mjög hæfum konum. Svo það verður fróðlegt að vita hvað kemur út úr því. Ég reikna líka með því að unnið verði að við notum tækifærið og vinnum í framboðslistum flokksins allavega í Norðvesturkjördæmi, þar sem við erum dreyfð allt frá Fljótum fyrir norðan að Borgarnesi, það er því víðfeðmt svæði svo ekki sé meira sagt.
Það er kjörið tækifæri fyrir fólk sem vill starfa að stjórnmálum að skoða stefnu flokksins og vita hvort þar er flötur á því að styðja við bakið á Frjálslyndum. FLokkurinn hefur enginn spillingarmál á bakinu og nú virðist sem grasrótin hafi fundið uppruna sinn aftur. Við erum komin á beinu brautina eins og við vorum áður.
Frjálslyndi flokkurinn er fyrst og fremst landsbyggða flokkur. Í raun og veru eini flokkurinn sem aldrei hefur kvikað frá þeirri stefnu að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu. Það er líka stefna flokksins að vinna að hagsmunum aldraðra og öryrkja, við höfum okkar fólk þar framarlega á listanum eins og Ragnheiði Ólafsdóttur sem er öryrki og Guðmund Hagalínsson skeleggan baráttumann aldraðra var í 6 sæti síðast, og mun að öllum líkindum vera þar áfram. Guðjón og fleiri hafa flutt mörg góð þingmál um öryrkja og aldraða.
Það var póstkosning um afstöðu félagsmanna til ESB og það var yfirgnæfandi meirihluti sem vill ekki ganga í ESB að svo stöddu. Þannig að okkar afstaða í því er skýr að mínu mati.
Þetta er bara brot af því sem áherslur okkar liggja, en ef einhver vill skoða málefnasamningin þá er hægt að lesa allt um hann á www.xf.is
Ég styð þennan flokk af því að mér finnst vera gott fólk í honum með góð stefnumál og af því að ég þekki vel til, þá get ég staðfest að fólkið sem verður í forsvari á lista flokksins hér í Norðvestrinu allavega er allt saman fólk sem vill vinna að því að bæta hag fólksins í landinu, en ekki að mylja undir sjálfa sig. Á þessum síðustu og verstu tímum þá er það kostur sem ekki verður litið framhjá. Og ég hef ekki betur séð en sú hugsun ríki hjá öllum öðrum í innsta kjarna flokksins. Nú hefur horfið á braut fólk sem ekki hefur talið sig eiga hljómgrunn í flokknum, það er líka vegna þess að forystumenn flokksins hafa verið trúir málefnunum en hlaupa ekki upp til handa og fóta eftir vinsældakönnunum eða loftbólum. Mér líka þar vel. Ég vil vita hvar ég hef fólk, og ég vil að það sem frambjóðendur lofa fólkinu í landinu, það eigi þeir að standa við. Annars á að refsa þeim með því að kjósa þá ekki aftur.
Ég vil það besta fyrir íslenska þjóð, við eigum skilið að fá virkt lýðræði. Hvernig sem við tökumst á við að koma því á, þá er það lykilatriði fyrir velferð okkar allra. Þess vegna skulum við skoða vel, orð og athafnir, hvað hafa frambjóðendur lagt fram á þingi og hverju hafa þeir lofað. Hvað segja þeir og hvað gera þeir svo. Froðusnakka á ekki að setja aftur á vetur. Þeir verða aldrei neitt annað en froðusnakkar og loftbelgir hverju sem þeir klæðast, hvort það eru jakkaföt lopapeysa eða bara lambshúð, eins og margir reyna að sveipa sig með þessa dagana.
Í raun og veru þá erum það við fólkið í landinu sem höfum valdið. Við höfum bara ekki nýtt okkur það hingað til því miður. Því allof margir láta glepjast af fagurgala og flottum fötum. En við hvorki fæðum okkur eða klæðum með slíku, hvað þá að hafa ofan af fyrir fjölskyldum okkar. Við skulum því setja okkur sjálf og okkar í fyrirrúm, og kanna vel hvernig við getum best komið lýðræðinu til vegs og virðingar á ný.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.3.2009 | 14:40
Ein mórölsk spurning!!!
Jæja þá er seinni turninn fallinn. Ætli Davíð Oddsyni líði eitthvað betur með það? Ekki að ég sé að réttlæta neins gjörðir, en langar aðeins að fara inn á móralskar hugleiðingar.
Gegnum mörg ár hefur Davíð Oddsson eldað grátt silfur við Baugsmenn. Kallað þá götustráka og ég veit ekki hvað. Bar upp á þá að reyna að múta sér og svo framvegis. Það er nokkuð ljóst líka hverjum hugsandi manni að það var hefndarráðstöfun hjá Seðlabankastjóranum fyrrverandi að knésetja og yfirtaka Glitni. Að lokum varð hann að hrökklast frá embætti með skömm sem hann mun aldrei komast frá, þess vegna leiðir maður nú hugann að því hvort honum líði betur að vita að Baugur féll líka.
En einhvernveginn þá er það svo að það líður engum vel við það að annar fari í þrot. Það upplyftir enginn sér með því að niðurlægja annan. Þetta vill oft gleymast í hamagangi og látum.
Hugur minn til Baugsveldisins er beggja blands, annars vegar er hugsun um alla vörulækkunina sem við fengum við opnun Bónus hér á Ísafirði, ég held að það hefi verið reiknað um 30% og munar um minna. Það jók ráðstöfunartekjurnar all mikið á stórum heimilum. Auk þess meira vöruúrval.
Á hinn bóginn þá heyrði maður frá fólki í sama bransa um aðferðirnar sem notaðar voru til að einoka staðina, og ég get ekki sagt að mér hugnist slíkt. Þetta er eins og tvær myntir á sama pening, gott og illt í bland.
Samt held ég að þetta sé lenska í business, og við vitum sennilega ekki helmingin af því sem fer þar fram. En hitt finnst mér ófyrirgefanlegt þegar stjórnmálamenn og ráðamenn þjóðarinnar eru svo veruleika fyrrtir að þeir fara að skipta sér af því hver lifir og hver deyr í bransanum.
Þeirra hlutverk er að setja reglur og umhverfi sem allir eiga að fara eftir. En ekki flokka menn niður í heppilega og óheppilega bissnessmenn. Þá er lýðræðið komið allt á skjön, eins og nákvæmlega hefur gerst hér hjá okkur.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki beint stjórnmálaflokkur, hann er frekar annað hvort valdastofnun eða trúfélag, nema hvorttveggja sé. Þar innanborðs er fólk sem; svo ég kvóti nú í þeirra aðalhuguð; spáir ekki mikið í pólitík, en vill græða á daginn og grilla á kvöldin. Þetta fólk virðist ekki hugsa mikið, eða spá í hvernig hlutirnir eru. Þeir horfa bara á brosandi andlitin á glansmyndunum og sjá bara XD.
Svo eru hinir sem trúa blint öllu sem þessir mógúlar láta frá sér fara. Allt sem þeir segja er heilagur sannleikur, og allir hinir ljúga. Þannig hafa margir sett Davíð Oddsson á stall, þar sem hann dagaði uppi, vegna þess að það flæddi að honum og hann gat ekki stigið niður.
En sem betur fer er ég að sjá menn sem eru komnir í nafnaskoðun og skilja hreint ekkert í sínu fólki hvernig það hagar sér. En þetta fólk setur samt Xvið Déið, og telur sig geta breytt einhverju innanfrá. Ég gæti sagt þeim að það væri alveg vonlaust, en þeir myndu ekki trúa mér. Þessi flokkur virðist nefnilega hafa það eitt að markmiði að halda völdum í landinu. Það er sýnilegt þessa dagana og hefur aldrei verið sýnilegra, að þeir hugsa fyrst og fremst um að flokkurinn haldi velli, að þeir ráði stofnunum og innri strúktúr landsins. Fólkið er bara þarna til þess eins að kjósa þá aftur og aftur og aftur.....
Ég var að lesa bloggið hans Sigurðar Inga Jónssonar og þar birtir hann þetta flotta kvæði. sem mig langar til að setja hér inn, ljóðið er eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og nefnist söngur Loddarans.
Söngur loddarans
Ég er einn af þeim átján,
sem allur heimurinn þekkir,
því ég er frægasta fíflið
og fíflið, sem alla blekkir.
En þeir verða fyrstir frægir
og falla síðast í gleymsku,
sem iðka loddaraleiki
og lifa á fjöldans heimsku.
Sé mér boðið að sitja
að sumbli með öðrum köppum,
þá geng ég í gömlum frakka
með gljáandi silfur hnöppum.
Ég veit hvað höfðingjum hæfir
og hentar í þeirra sölum.
Með skotthúfu skarlatsrauða
skarta ég frammi í dölum.
Ég blæs í lyginnar lúður
og leik á hégómans strengi,
og hræsninnar bumbu ber ég,
svo bergmálið hljómi lengi,
og sé ég í sölum kvenna,
þá syng ég um þeirra yndi.
Ég haga svip eftir sveitum
og seglunum eftir vindi.
Hjá þeim, sem heiminum hafna
og himininn þykjast erfa,
læt ég með lyst og prýði
léttúðarsvipinn hverfa.
Þá læzt ég elska og aumka
alla, sem flaka í sárum.
Með gömlum, gigtveikum klerkum
græt ég krókódílstárum.
Ég tala sem breyskur bróðir
og bið fyrir þjóð og landi
og dingla með koparkrossinn
í kaþólsku talnabandi.
Um miðaldamusterin hljóðu
í myrkrinu einn ég fálma,
og engum öðrum tókst betur
að eigna sér gamla sálma.
Ég leik mér að litlum sálum
og lokka þær sæll og glaður.
Ekkert er léttara en látast
lifa sem helgur maður.
Ég er frægasta fíflið,
sem fellur síðast í gleymsku,
iðkar loddaraleiki
og lifir á fjöldans heimsku.
![]() |
Frekari greiðslustöðvun hafnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.3.2009 | 21:03
Myndir og ýmislegt fleira.
Málþóf eða ekki málþóf. Mikið rosalega eiga sjálfstæðismenn bágt þessa dagana, þeir ráða nefnilega ekki ferðinni aldrei slíku vant. Og svo er auðvitað hundleiðinlegt að fara ofan í sama hjólfarið og þeir hafa hvað eftir annað sakað hina um. Þeir hafa greinilega verið að fylgjast með hvað hinir í sandkassanum voru að stríða og aðhafast, og nota nú það sama, nema þeir gera aðeins meira, eins og öll hrekkjusvín gera náttúrulega. En málið er bara að í þetta sinn, þá er meiri alvara á ferð, og fólki ekki hlátur í hug, hvað þá ánægja með pissukeppni. Þeir standa því á berangri hallærislegri en nokkurn tíman áður og fólk er búið að fá gjörsamlega upp í kok. Ég allavega. Ég fæ klígju þegar ég sé brosandi smettinn á sneplunum sem berast inn um lúguna hjá mér, eða ég sé birtast af þeim myndir og greinar þar sem við erum beðin um að standa með þeim. Í hverju? svo þau geti haldið áfram að brenna sinuna?
Ég bið þess einlæglega að við fáum frið fyrir þessu fólki næstu árin eða áratugina. Svo samfélagið geti jafnað sig á þeirri stefnu sem þau mörkuðu og virðast ætla að fylgja, því ekkert er að stefnunni segja þau, það var fólkið sem brást. Eða eiginlega brást enginn, þetta var bara svona, og ekki þeim að kenna á neinn hátt, það má benda á alla aðra en þau.
Úff ég get svo svarið það og segi eins og svo oft hefur heyrst áður BURTU MEÐ ÞETTA LIÐ.
Nú en ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir fyrir mömmur og svoleiðis fólk.
Eins smá sybbinn að fara á leikskólann, en hún er fljót að ná góða skapinu sínu, því hún elskar að fara á leikskólann.
Sigurjón Hrannar Dagur hehehehe.... þetta er sagt fyrir Hrönn, fékk að sofa hjá afa og ömmu í gær, af því að mamma þurfti að skreppa. Og Hanna Sól las fyrir hann kvöldsöguna og það fór vel á með þeim.
Þau sofnuðu svo fljótt og vel, svo þæg og góð.
Og í morgun var sest aðeins við sjónvarpið og svo morgunverður eins og alltaf.
Og svo er að fara á leikskólann, þau eru að visu í sitt hvorum, hún á Sólborg hann á Eyrarskóli, þar er hjallastefnan hennar Pálu á fullu.
Afi sá svo um litlu skottuna í morgun, þau fóru saman á Bakkaskjól.
Það er komin dágóður snjór við kúluna, svo það þarf að feta sig áfram eftir troðningi.
Þá er nú eins gott að vera í góðri þjálfun.
Hér er Ólöf Dagmar, í bekknum hennar þá fá krakkarnir að koma með sögur sem kennarinn les fyrir þau. Ólöf Dagmar ákvað að koma með bókina sem amma samdi um krakkana í kúlunni; Ævintýri Loðfílanna. Og nú er verið að lesa hana sum sé í bekknum hennar Ólafar Dagmar. Vonandi líkar krökkunum sagan, hún gerist allavega á svæði sem þau þekkja vel.
En ég ætla að fara blogghringinn á morgun, og segi bara við ykkur góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar