30.9.2007 | 16:08
Smá ferðasaga.
Það er virkilega gaman að vera á ferðinni á þessum tíma, að öllum öðrum árstíðum ólöstuðum, má segja að náttúran tjaldi sínu fegursta á haustin. Með sína fallegu liti og fegurð.
Og þar sem mikið hefur rignt undanfarið voru fjallafossar fjörugir og svolítið ærslafullir.
Þessi heitir nú reyndar Rjúkandi og er í Hestfirðinum.
Stórglæsilegur og lyngið eldrautt.
En himininn vildi ekki láta sitt eftir liggja, og sendi okkur regnbogann sinn litfagran eins og til að skreyta ennþá meira.
Aðalerindi mitt var nú reyndar að fara á miðstjórnarfund Frjálslynda flokksins. Sem var reyndar mjög góður og málefnalegur.
Á fundinn voru fleiri boðaðir, vegna kynningar á hinum ýmsu málefnum, sem okkar góðu alþingismenn ætla að standa að í vetur.
Hér sést nýráðinn framkvæmdasstjóri flokksins, Magnús Reynir Guðmundsson, Magnús er gamalreyndur í slíka stöðu, þar sem hann var lengi aðstoðarmaður bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og bæjarritari, og vann í mörg á hjá útgerðarfélaginu Hrönn hf. á Ísafirði. Þar er því ekki í kot vísað, eða tjaldað til einnar nætur.
Stund milli stríða, tvær sætar saman úr miðstjórninni, önnur er bloggvinkona mín hún Hanna Birna frá Vestmannaeyjum.
Eins og sjá má er vel unnið og kempurnar þungt hugsi. Enda barátta framundan.
Hér má sjá Pétur Bjarnason framkvæmdastjóra og Bárð Halldórsson formann framkvæmdaráðs flokksins. Báðir skeleggir og miklir baráttujaxlar.
Fundurinn var mjög góður og gagnlegur. Þaðan fóru allir sáttir, eða frekar sáttir. Gott hljóð var í mönnum, og greinilegt að okkar menn hlakkar til að takast á við pólitíkina í vetur. Þeir munu síðan örugglega njóta góðs af okkar fyrrverandi þingmönnum, sem því miður náðu ekki inn núna, en koma vonandi inn aftur hressir næst, þeir Sigurjón Þórðarson, Magnús Þór Hafsteinsson og Valdimar Leó. Þeir verða þarna örugglega einhversstaðar á bakvið að taka höndum saman við forystuna, og ég er viss um að með samstilltu ákaki tekst okkur að láta rödd okkar heyrast. Í kvótamálunum, velferðarmálunum, útlendingamálunum og auðindamálum almennt, orkumálum og slíku. Þeir eru greinilega tilbúnir, og við munum fá að heyra frá þeim fljótlega með sín góðu mál.
Svo á laugardagsmorgunn hittumst við aftur á Sægreifanum og þar var vel mætt af almennum félagsmönnum, og nokkrir framsóknarmenn rákust þar með svona eins og gengur. Það féll í góðan jarðveg það sem okkar menn hafa í farteskinu. Ég lenti svo í skötuveislu, þetta var góð skata, en ekki vel kæst að vestfirskum sið.
En þar sem við vorum á leið til Hveragerðis, þá var hringt í okkur. Það var vinur okkar kúlukarlinn sem börnin mín kalla svo. Arkitekinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson sem teknaði kúlunna. Hann var einmitt staddur í borg óttans og vildi endilega hitta okkur. Hann var þar með unnustu sinni, listakonunni Manúelu Gudrún Rosvitadottir, það er hægt að skoða verkinn hennar á www.crystaldesign.kingdome.de ef þið hafið áhuga á fallegum hringjum elskurnar. Hún var hér með sýningu. Þau búa í nágrenni Berlínar, og una þar hag sínum vel.
Hér má sjá þau með mínum manni, við sitjum á kaffi París.
Hún er rosalega flott kona hún Manuela.
Einhver var að spyrja um Einar Þorsteinn hér ekki fyrir svo löngu síðan. En hann er hægt að nálgast á WWW.einarthorsteinn.com eða hjá samstarfsfélaga sínum Ólafi Elíassyni athafnarmanni. Ef þið haldið að þetta sé auglýsing þá er það rangt, þau er bara svo frábær, og það er gaman að skoða heimasíðurnar þeirra. Einar er flippdýr hið mesta og mér sýnist hún vera svipuð. Það er öldungis frábært. Ég elska svoleiðis fólk.
Ég er hér með risaprojekt í gangi Elli... hvísl hvísl hvísl hehehehehe......
Svo buðum við börnunum okkar sem eru í henni Reykjavík út að borða. Tengdasyninum Bjarka og syni Elíasar og hans elskulegu unnustu. Þar er á leiðinni 18. barnabarnið mitt. Aldeilis frábært ekki satt.
Sæt saman.
Við fórum á indverskar veitingastað á Hverfisgötunni, þar var mjög góður matur. Þar sá ég þessar krúttlegu litlu fallegu stelpur. Smellti af þeim myndi til að Jenný og þið hinar færuð í krúttkast hehehe...
Hér er svo ein mynd þegar við erum að yfirgefa svæðið.
En ég hitti nokkrar vinkonur mínar á Hressingarskálanum á laugardaginn, sumar fengu sér súpu, aðrar kaffi, en moi ég fékk mér rauðvín. Þarna var pólskur maður, sem vildi endilega tala við okkur, þó hann talaði hvorki ensku né íslensku, bara hrafl í þýsku og frönsku fyrir utan pólskuna. Svo datt honum í hug að bjóða okkur upp á rauðvín. Bloggvinkona mín hún Merlin var einmitt ein af þessum elskum. Kom í nýju flottu peysunni sinni, sem hún var að ljúka við að ganga frá. Haldiði að þjónninn hafi ekki helt heilu rauðvínsglasi yfir hana og nýju peysuna. Þjónsgreyið alveg eyðilagður. Heldur dapurlegt, en ég vona að hún nái blettunum úr peysunni, þessi peysa var reyndar rosalega flott.
Ætla að setja mynd af henni hér inn, þ.e. peysunni, er búin að taka höfuðið af henni Merlin minni. Því ég vil ekki setja mynd af henni hér inn á án leyfis, en hér sést hvað peysan er flott, hún er að vísu með úlpuna sína yfir stærstu blettunum.
Jamm þetta er nú svona ferðasaga úr ýmsum áttum. En það er líka gott að koma heim, nú skín sólin og það er hlýtt og notalegt.
Vonandi eigið þið ánægjulegan dag í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
27.9.2007 | 09:35
Sjáumst!
Ég verð vant við látinn næstu daga, eða fram á sunnudag, verð sennilega lítið við tölvuna, svo það verður víst ekki mikið um heimsóknir á meðan. En ég mun hugsa fallega til ykkar allra.
Þessi mynd var tekin nú fyrir augnabliki. Þið skuluð samt ekki láta útlitið villa ykkur sýn, því veðrir er gott, 10 ° sagði minn maður að væri á mælinum úti. Þetta er eins og sagt er ekki láta útlitið blekkja sig á hvorn veginn sem er.
Útlit skiptir ekki miklu máli í raun og veru, því manneskja sem virðist vera mjög falleg, fellur fljótlega ef innrætið er ekki í samræmi við þá ytri fegurð. Og svo eru perlur sem ef til vill virðast ekki vera fallegar, en eftir viðkynningu eru þær fegurstu manneskjur sem maður veit um. Vegna þess að sálin er úr skíra gulli.
Þannig er það bara. Það er hin innri fegurð sem alltaf skilar sér út á við á endanum.
Munið að bros getur gert kraftaverk. Ef þið sjáið manneskju sem virðist líða illa, gefið henni þá bros. Og það er líka þýðingarmikið ef einhver gefur ykkur bros, að kunna að meðtaka það og brosa á móti. Ekki líta í hina áttina og hugsa, hvað er þessi manneskja að brosa til mín, hvað vill hún eiginlega ? Nei það er nefnilega þannig, að við þurfum ekki bara að læra að gefa, við þurfum líka að kunna að taka á móti því sem okkur er gefið. Það er líka kúnst út af fyrir sig. En þannig virkar lögmálið nefnilega að gefa og taka á móti.
Eigið góða helgi elskurnar og ekki gleyma mér alveg. Knús til allra þeirra sem eru í einhverjum veikindum eða bágindum. Megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda, sendi ljós og kærleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
26.9.2007 | 20:12
Skýjaglópur.
Það var reglulega hlýr dagur í dag og veðrið gott. Hann er aðeins að rjúka upp núna með kvöldinu að suðvestri. Vonandi verðu það samt ekki mikið.
Ég var allan daginn að stússast í gróðri. Laukarnir eru komnir nú þarf að koma þeim niður fyrir veturinn. Það er líka rosalega þægilegt að skella sér í heitt bað, þegar maður kemur inn hrakinn og kaldur.
En ég tók nokkrar himnamyndir í dag.
Þessi var reyndar tekinn í gær. Snjórinn er að mestu horfinn í dag.
Birtan er sérkennileg.
Það er einhvernveginn allt svo villt þarna uppi í háloftunum. Þar er örugglega heilmikið rok.
Og einhversstaðar glittir í bláan himininn.
Aha já einmitt hérna.
Horfði á kastljósið áðan um Madelein litlu. Það er eitthvað óútskýranlega ótrúverðugt við þetta allt saman. Og þessi ágæti talsmaður er nú ekki sá trúverðugast. Ég er ennþá sannfærðari eftir þetta viðtal um að hjónin hafa orðið barninu að bana fyrir slysni. Og ætla sér að sleppa með skrekkinn. Auðvitað er það samt álag á þau, og ég er farin að sárvorkenna þeim með þetta allt saman. Ég vildi ekki vera í þeirra sporum. En þetta er allt saman svo................................................................ jamm. Það hljóta að vera mjög sterkar líkur á sekt, þegar lögreglan grunar sjálfa foreldrana um svona hlut. Það er örgglega það síðasta sem menn vilja trúa upp á fólk. Það er mín skoðun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.9.2007 | 11:22
Hvað er til ráða?
Ætlar alþjóðasamfélagið virkilega að horfa upp á herforingjaklíku í Burma neyða heila þjóð til undirgefni. Það er ótrúlegt að horfa upp á þetta. Friðarverðlaunahafinn er búin að vera hneppt í stofugangelsi í yfir áratug, án þess að neitt hafi verið gert til að leysa hana út. Ekkert sem dugði allavega. Og það þarf ekki að segja mér að það hafi ekki verið til lausnir. Viljann vantaði bara af því að vestræn herveldi höfðu enga olíu til að grubbla í þarna.
Og nú á að horfa upp á þessa fámennu valdaklíku drepa fólkið, munka sem og almenning til að berja niður réttmætt andóf. Og hvað koma þessar hetjur með ? Búskurinn og kó.... ? Jú hertar refsiaðgerðir ? hvað inniber slíkt ? Voru það hertar refsiaðgerðir sem komu harðstjóranum Saddam frá ? Ó nei, það var stórfellt innrás í landið, mátti ekki minna vera til að koma harðstjóranum og hans hyski frá. Nú er ég ekki að mæla með innrás síður en svo. En ég man eftir sjónvarpsviðtali við Davíð Oddson og gott ef ekki líka Halldór Ásgrímsson þar sem þeir töluðu fjálglega um hve nauðsynlegt væri að koma harðstjóra eins og Saddam frá völdum og frelsa fólkið í landinu. Það var ekki einu sinn neitt andóf þar í líkingu við þetta. En nú þegja menn þunnu hljóði og vilja ekki ræða þetta.
Málið er að þarna er sennilega enginn olía. Þess vegna er bara blakað út höndum og sagt ef þið verðið ekki þægir þá komum við og skömmum ykkur.
Mannréttindabrot í Burma fordæmd
Alþjóðlegi Rauði krossinn hefur fordæmt víðtæk mannréttindabrot í Burma og sakar herstjórnina þar í landi um að valda þúsundum manna mikilli þjáningu með aðgerðum sínum. Skilaboðin eru óvenjuleg því Rauði krossinn reynir yfirleitt að gæta hlutleysis í afstöðu sinni til átaka. Samtökin telja að yfirvöld noti fanga sem burðarmenn fyrir herinn, svelti þá og myrði og fari einnig illa með fólk sem býr við taílensku landamærin.
Rauði krossinn segir embættismenn hafa neitað að ræða mannréttindabrotin eða gera ráðstafanir til að þeim linni. Þetta er harðasta gagnrýni sem samtökin hefur látið frá sér fara síðan þau fordæmdu þjóðarmorðin í Rúanda fyrir tíu árum.
Að sögn vefsíðu BBC er þetta til marks um það að samtökin sem leggja metnað sinn í að ná árangri í viðræðum við ríkisstjórnir án þess að gera stórmál úr hlutunum telur að það sé vonlaust að tjónka við yfirvöld í Burma sem einnig gengur undir nafninu Myanmar.
![]() |
Ráðist á munka í Yangon |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.9.2007 | 23:16
Nú er að sjá.
Í dag sendi fjölskyldan mín frá El Salvador umsókn um íslenskan ríkisborgararétt. Sonurinn Rolando er búin að vera hér í 7 ár þann 13 desember. En foreldrar hans og Alejandra litla hafa verið hér í 7 ár í maí á næsta ári. Það var eftir ráðleggingum Össurar Skarphéðinssonar, sem þau sendu inn umsókn núna, vegna þeirrar stöðu sem Alejandra litla er í. Þar sem hún hefur þurft að sækja um dvalarleyfi á 6. mánaða fresti. Össur hefur fjallað um þetta mál á bloggi sínu, og ég átti við hann samtal, þar sem hann hafði fullan skilning á aðstöðu fjölskyldunnar. Og ég veit líka að í þessum málum er Össur með hjartað á réttum stað.
Helgi Seljan hringdi í mig um daginn svona til að leita frétta, hvort útlendingastofa hefði haft eitthvað samband eftir þáttinn. En nei það hefur hún ekki gert.
Nú er að sjá hvað gerist. Verður þeim hafnað ? Eða fá þau íslenskan ríkisborgararétt.
Þau eru nýbúin að kaupa sér íbúð í blokk, og eru búin að koma sér vel fyrir. Hvað gerist ? Ég lofa að þið fáið að fylgjast með.
Alejandra, Isabel og Hanna Sól.
Alejandra og amman.
Þau eru trúað fólk, og þetta er blessunin sem þau hafa valið til að skreyta nýja heimilið.
Ég veit hvernig ég mun bregðast við.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.9.2007 | 15:57
Margt þurfa þeir að sýsla við !
Jamm það er ekki öll vitleysan eins. Það er ekki bara mennirnir sem standa í illdeilum og innbrotum nú hafa kettirnir tekið þessa ósiði upp líka, enda það dýrið sem mest er innan um mannskepnuna. Ætli maður megi líka eiga von á hundum í heimsókn.
En löggan brást skjótt og vel við. Það var nú eins gott, því vesalings maðurinn hefur náttúrulega verið viti sínu fjær af ótta við þessi hryllilegu dýr.
![]() |
Lögreglan stöðvar kattaslag um miðja nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.9.2007 | 11:58
Veitum þeim vernd.
Alveg get ég tekið undir þetta. Það hefur marg oft komið fram að íslendingar hafa verið fullharkalegir við að endursenda flóttafólk aftur til síns heima. Stundum hefur maður skammast sín niður fyrir tær yfir miskunnarleysinu sem fólk verður fyrir.
Þess vegna ætla ég að skrifa undir og senda áfram þetta plagg, og ég hvet fleiri til þess að gera slíkt hið sama.
![]() |
Athygli vakin á stöðu hælisleitenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.9.2007 | 20:21
Bregðum okkur til Parísar í rokinu og rigningunni.
Jamm það er kalt í dag. Við ættum ef til vill að skreppa til Parísar. Þar er gott að vera.
Skreppa í Eifel turninn.
Kíkja aðeins yfir borgina. Og fá sér að borða. Horfa yfir Signu, eða fara í siglingu. Æðislegt að fara í kvöldsiglingu um Signu og sjá Eifel turninn allan upplýstan.
Eða bara horfa yfir borgina.
Tilvalið að skoða allt gullið og purpuran í Louvresafninu.
Eða dýrgrip allra dýrgripa.
Það þarf sko veggpláss undir svona myndir, skal ég segja ykkur.
Og pýramídi á hvolfi.
Stundum er mikið um að vera, hér var Tecknóhátíð og teppingar um allar götur.
Svo er upplagt að bregða sér á Moulin Rouge og horfa á kan kan. París borg ástarinnar. París með Concordtorgið, sigurbogan og Champ Elysées.
Já, það er hægt að fara í ferðalag í huganum, meðan rigninginn og rokið ráða lögum og lofum úti. Annars er komið stillt verður hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
24.9.2007 | 08:51
Fyrsti snjórinn, rósir og frostrósir, lítill krulli og bros.
Já nú er fyrsti snjórinn kominn alveg niður í byggð, að vísu ekki mikill, en þó, stubburinn var ánægður í morgun.
Hálf kuldalegt ekki satt ? förin eru eftir stubbinn og afann.
Svo snýr maður sér við í gættinni og þá lýtur heimurinn svona út !
Og jafnvel svona!
Þetta sýnir okkur svo ekki verður um villst, að það er ekki alltaf allt eins og það sýnist. Og stundum er nóg að snúa sér í hálfhring til að fá annað sjónarhorn á tilveruna.
Ég var að lesa í Fréttablaði gærdagsins, að könnun sem gerð var um trú íslendinga á álfa, huldufólk og blómálfa er mikil, og hefur ekkert minnkað í 30 ár, síðan sambærileg könnun var gerð.
Það gladdi mig, því ég er viss um að það er margt til sem við ekki sjáum, en getum skynjað ef við leggjum okkur fram um það.
Ég lét gera álfakort fyrir nokkrum árum. Það var Erla Stefánsdóttir sem vann í því. Kortið hefur verið mjög vinsælt meðal erlendra ferðamanna, og margir íslendingar hafa líka viljað kaupa það.
En ég ætla í tilefni dagsins að sýna ykkur nokkrar frostrósir, síðan á síðasta ári. Það er mikil fegurð sem er í þessu fyrirbæri náttúrunnar. Í frostrósum eins og snjókornum er svokallað gullinsnið, en það er einmitt líka í húsinu mínu. Svo þetta harmonerar vel saman.
Þetta er sannkallað listaverk sjálfrar náttúrunnar.
Eins og í gallerí himni, taka rósirnar á sig ýmsar myndir.
Og eins og með gallerí himin, kosta þær ekki neitt. Það er bara að njóta þeirra, þar sem þær eru.
Enginn greinarmunur gerður á fátækum eða ríkum, og enginn getur keypt þær.
Þær eru þarna bara fyrir okkur að dáðst að þeim og finna fegurðina. En .... því miður, þá gera það bara allt of fáir. Fólk forsmáir þessa fegurð, er það af því að hún er þarna ókeypis og fyrir alla ?
Nei ég held ekki. En við lifum á öld hraðans, og gefum okkur ekki tíma til að upplifa það sem er næst okkur. Sem bara er þarna fyrir okkur að taka eftir og auðga sálina með því að meðtaka fegurðina. Það er hægt að fyllast andagt yfir þessum kraftaverkum. Láta hana fylgja okkur út í daginn, og lyfta huga okkar og ylja að innan. Upplifa það einfalda og smáa, sem oft er risastórt ef að er gáð.
Svo er lítill stubbur, sem kom í heimsókn til ömmu í gær.
Það er búið að klippa krullurnar. Mamma hans gerði það. Hann sagði nefnilega; mamma mér er svo illt í hárinu, við verðum að klippa það.
Vonandi eigið þið gleðilegan dag. Munið að eitt bros getur gert kraftaverk. Bros kostar ekki neitt, eyðist ekki, og það er endalaust alltaf nýtt bros sem myndast, hvers vegna ættum við þá að spara þau, ef þau geta glatt einhvern ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
22.9.2007 | 22:52
Á léttari strengi undir svefninn.
Jamm, maður á alltaf að fara glaður í svefninn. Þess vegna ætla ég að segja ykkur frá því að ég var í matarboði áðan, hjá El Salvadorisku fjölskyldunni minni. Alejandra átti nefnilega afmæli í gær, og við vorum boðin í mat í kvöld. Barnaveislan var í gær.
En fyrst að veðrinu. Það er ekki vont veður, en frekar kallt.
Þið sjáið að snjórinn er kominn í fjallatindana.
Tveir ömmusnúðar voru hér í gær, og þannig var umhorfs, þeir voru samt svo glaðir yfir þessu. Að týna njóla, sem betur fer voru ekki eftir nein fræ.
Það var uppáhalds maturinn minn frá El Salvador Babúsas, þ.e. litlar maískökur með kjöti inn í, eða osti. Rosalega góðar. En það var líka þessi dýrindis fiskisúpa.
Þetta er hann Ísac Logi með öfunum sínum tveimur.
Þetta var ósköp notalega kvöldstund í góðra manna hópi.
Isobel hjá pabba sínum.
Hér er svo afi gamli, þeir eru að drekka dús.
Hann benti mér á myndavélina og pósaði svo, það var greinilegt að sá stutti vildi fá mynd, enda algjört krútt.
En þessi ömmustubbur var bara orðin sybbinn.
Jamm það eru svo sem fleiri syfjaðir. En ósköp er gott að eiga góða fjölskyldu, stóra og mikla, bæði börn og barnabörn, en líka systkini og frændur og stóran ættboga. Og með svona minningar eins og hér að neðan, þá verður maður ennþá þakklátari fyrir að hafa eignast svona góða að. Og ekki síður góða vini hér líka. Fyrir þetta er ég þakklát og glöð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar