30.7.2012 | 10:52
Prinsessur og vinir.
Veðrið er yndislegt, og æði að fá stelpurnar í heimsókn. Það er alltaf gaman þegar barnabörnin koma í heimsókn. Og svo eftir örfáa daga koma Júlíana, Daníel og Óðinn, og Ólöf Dagmar og Sigurjón Dagur.
Kisubörnin stækka, kettlingarnir eru bornir á höndum sér.
Slakað á í fríinu.
Sú stutta var fljót að sjá Kíví þegar við fórum í Samkaup. Hún elskar Kíví.
Og Hanna Sól mundi eftir Jarðaberjunum upp á lóð.
Og það er dundað sér.
Tjörnin er samt aðalaðdráttar aflið, hér er verið að gefa fiskunum.
Og Ásthildur ætlar að veiða fisk á hárið sitt
Ég yrði ekkert hissa ef hún dytti í tjörnina.
Já allt verður að dóti til að leika sér að.
Og stóra stelpan mín orðin svo stór.
Ótrúlega áhugaverð þessi tjörn.
Úlfur er líka æðislegur, alveg eins og pabbi hans, barngóður og yndæll.
Hann er nú eiginlega stóri bróðir.
Atli frændi kominn og hafði með sér góðan vin Björgvin kennara, skátaforingja og sjentilmann, en sérlega skemmtilegan.
Hann kom til að hitta dóttur sína, og það urðu fagnaðarfundir.
Edda er hér í Bolungarvík að vinna.
Þessir tveir eru nefnilega afar góðir vinir, og Edda og Atli eins og systkin. Rétt eins og við Atli erum svona andleg systkin. Svona geta tengslin orðið.
Þetta var falleg stund og innileg.
Sigga lánaði mér hjól fyrir Ásthildi, en hún vill heldur vera á gamla þríhjólinu, ennþá allavega.
Það er að vísu þrem númerum of lítið Hún fór fram á að afi stækkaði það.
Það var auðvitað grillað.
Þó það væri ekki sól var logn og hlýtt veður.
Og allir borðuðu vel.
Hún er eins og lítil villimey
Eða bara hafmey.
Ég var svo rosaklár eftir að stelpunar fóru til mömmu sinnar, að ég skrúfaði sundur kojurnar þeirra, en auðvitað var búið að henda leiðbeiningunum hehe... þegar átti svo að setja þetta saman, þá var vandi á höndum hehe ótrúlegar spýtur út um allt misstórar, eins og risa púsluspil. Þeim Ella og Atla, tókst þó að lokum að skrúfa þetta saman allavega í nothæft ástand, þó einhverjar skrúfur og spýtur yrðu eftir hehe.
Eins gott að ég þurfti ekki að greiða iðnaðarmönnum laun, annar múrari hinn húsgagnasmiður. En nú er prinsessuherbergið aftur komið í notkun í bili.
Og enn er morgunn, og búin að fá ristað brauð með súkkulaði.
Síðan er morgunkaffið klárt. Om lítt er kaffen klar.
Allt yndislegt hjá mér, eigið góðan dag elskurnar, og ég biðst afsökunar að vera ekki dugleg við að kommentera hjá ykkur, því hugur minn er annarsstaðar í augnablikinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
28.7.2012 | 11:47
Heimsóknir og garðamyndir.
Það er alltaf nóg að gera hjá mér. Í gær fékk ég skemmtilega heimsókn. Hressar og skemmtilegar konur Garðyrkjufélags Skagafjarðar. Þær komu til að skoða gróðurinn hjá mér, og einnig að ná sér í plöntur.
Mamma litla er rosalega dugleg og góð mamma.
Og hér eru þau Sigurjón Dagur, Ólöf og mamma þeirra að skoða fjölskylduna.
Og þeir eru búnir að opna augun sín.
Smápása frá uppeldinu.
Og pabbinn hvílir sig í sófanum. Hanna kíkir stundum á afkvæmin, og það er greinilegt að hann sýnir Lottu sinni meiri umhyggju, hann leyfir henni til dæmis að borða fyrst matinn, hef séð hann horfa rólegan á meðan hún borðar. Áður ruddist hann alltaf fyrstur að skálinni.
En góða veðrið er áfram eftir rigningu og það hefur greinilega grænkað í fjöllum.
Þetta er orðin heilmikill skógur í kring um mig.
Josicean mín, hún var lengi inn í garðskála, svo flutti ég hana út, og það eru ekki mörg ár síðan hún byrjaði að blómstra.
Meyjarrósirnar mínar eru stórglæsilegar þar sem þær teygja sig upp í himininn.
Stikkilsberin á góðri leið.
Þennan óvætt þarf ég að losa mig við. Hún stendur á brúninni við læk og frekar óhægt um vik að komast að henni.
Já hún er falleg meyjarrósin.
Þessa ösp kalla ég Birgir, fékk græðling hjá landbankalóðinni, þegar Birgir var það bankastjóri. Hún er fljótvaxin og gróf, eins og keisarinn.
Garðakvistill í blóma.
Frumskógur.
Risafuran mín dagnar ósköp vel.
Eins og sjá mál.
Súluöspin vex hægt en örugglega.
Og alltaf er blóðbergið jafn fallegt.
Og ekki eru bara börn í vögnum.
Svo er ég að ganga frá blómunum til næsta vors. Þeim sem ekki seldust.
En ég fékk sem sagt þessar eldhressu konur í heimsókn, og það var afskaplega gaman.
Ég held að þær hafi líka skemmt sér vel. Ein vinkona mín var með í för, Helga garðyrkjustjóri á Sauðárkróki og urðu fagnaðarfundir.
Mörgum finnst súlusýprisin skemmtilegur.
Það var spáð og spekulerað.
Takk kærlega fyrir komuna.
Svo komu prinsessurnar mínar í gær.
Og það var auðvitað byrjað á að heilsa upp á kisurnar.
Já frábært að fá þær í heimsókn.
Hanna Sól er líka búin að gefa þeim nöfn.
Svo fengu þær sér afaskyr fyrir háttinn.
Í morgun var svo nóg að gera, gefa fiskunum og hænunum og gá að eggjum.
Og njólinn er ekkert smáverk, stærri en Hanna Sól.
Hér eru svo kettlingarnir, sé sem er hér fremst heitir Lillý, við hliðina á henni er Snúður, svo er Doppa og Glaður.
Kolbrún mín og þessi svarta er læða, dýralæknirinn er búin að úrskurða málið.
En nú þarf að fara að sinna ýmsu, eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
24.7.2012 | 23:57
Stríð.. eða friður.
Enn um þennan Nupo eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður. Ég held að þetta sé búið spil hjá honum, rétt eins og önnur klúður "Klúðurklíkunnar". Venjulegt fólk sér hversu arfavitlaust þetta mál er. En Össur og hirðin í kring um hann, til dæmis svilinn og sveitastjórnarmenn norðan heiða halda virkilega að þetta sé þeirra stóra "break through" eða þannig, og eru reyndar til athlægis venjulegu fólki á Íslandi. Þeir eru greinilega með einhverja evruglýju í augunum og sjá ekki hversu fáránleg þessi staða er í raun og veru.
Tvívegis hefur mér vitanlega spegillinn fjallað um mál kínverjans, og þar hefur Sigrún Davíðsdóttir skoðað þessi mál, og henni og rúv til sóma. Þegar málið er skoðað þá stendur ekki steinn yfir steini í þessu máli.
Hann er margsaga og fyrirtæki sem hann kallar til, kannast ekki við neitt. Hversu trúverðugt er það?
En nei áfram skal haldið. Gefin út leyfi án þess að kannað hafi verið til hlítar hvað þar er í boði, og ekki fengnir til skoðunar pappírar til staðfestingar á trúverðugleika. Eru viðkomandi stjórnvöld algjörir asnar sem bera ekki skynbragð á alvöru málsins, eða er þetta fólk algjörlega með þessa glýju í augunum að þau sjái ekki hversu arfavitlaust þetta mál er frá A til Ö?
Nei ég hef eiginlega ekki trú á því. Ég held því að þetta mál sé búið, Nupo er sennilega heldur ekki sérlega vel gefinn með allar sínar yfirlýsingar og ummæli sem auðvelt er að hrekja. Von að hann haldi að við séum öll rolur og hræddir vesalingar við stóra sterka manninn, þar sem hann umgengst aðallega kredsið kring um Össur og Steingrím J. Ef fólk vill virkilega láta taka sig alvarlega þá kastar það ekki til höndum í svona máli. Heldur mun halda sig við regluverk og skoða og spá í hvað þarna er á ferðinni.
En mikið er ég orðin þreytt á þessum ráðamönnum sem ég treysti ekki til að verja Ísland og íslendinga. Mikið er ég þreytt á að vera sífellt með áhyggjur af því að þeir séu að laumast með sjálfstæði okkar til Brussel, og jafnvel Kína ef ekki vill betur.
Mikið er ég orðin langþreytt á því að vakna með hnút í maganum yfir hvað þetta fólk hefur gert af sér í samskiptum við ágjarna útlendinga, sem ásælast bæði auðlindir og ekki síður land og staðsetningu Íslands. Þau eru eins og börn í samskiptum við auðvaldið útlenska og skilja ekki að það er verið að gambla með land og mið. Hér þurfa að verða umskipti, og þá þannig að við fáum annað hvort utanþingsstjórn, eða kosningar með þeirri tryggingu að fjórflokkurinn standi utan við kjötkatlana næsta kjörtímabil og miklu lengur. Þau standa saman að því að leika póker sín á milli með okkur landsmenn og okkar auðlindir. Sem er algjörlega óþolandi. Segi og skrifa.
Jamm og svo er nú þetta: http://eyjan.pressan.is/frettir/2012/07/24/sveitarstjornir-vilja-ad-langanes-keppi-vid-suez-serstakt-ad-markadssetja-eignir-an-vilja-eigenda/
Litlu kisurnar mína hafa opnað augun sín.
Sennilega sjá þær ekki mikið, en fyrst og fremst er að opna augun og skoða hvað er að gerast í kring um okkur.
Laufey mín, bloggvinkona og vinur til margra ára kom í heimsókn í dag og fékk kirsuber eins og ég hafði lofað henni.
Nýkomin frá Harlem með flotta hárgreiðslu og borðandi kirsuber í sólinni á Ísafirði, hversu gott getur lífið eiginlega orðið?
Hingað kom líka í dag yndælis kona frá suður Frakklandi sem er rithöfundur og ljósmyndari, hún var að taka myndir í næstu bók sína sem verður um Ísland. Mariella og talar þessa fínu íslensku.
Pollurinn á Ísafirði iðar.. sennilega af makríl, sem er auðvitað ekki til, og alls ekki í íslenskri lögsögu.
En eitthvað var allt þetta fólk að veiða allavega. Nei sennilega ekki makríl, því írar segja að hann sé ekki hér.
Og sólin glampar á fjallatindum.
Ég las í BB í dag að það ætti að bjóða snjóflóðavarnarveggin út í Janúar eða febrúar á næsta ári, það er svaka skemmtilegt að lesa svona í Bæjarins Besta, enda er ég orðin vön því. Þeir voru svo spurðir um uppkaupin á húsunum tveimur mínum og Dodda, og fengu það svar að það væri í vinnslu.
Ef ég má ráða skal þetta aldrei verða. Þeir eru að véla um mitt líf og ævistarf. yfir 30 ára uppbyggingu trjáræktar og draumahúss. Og í hvert sinn sem ég les svona yfirlýsingar þyrmir yfir mig og ég fer algjörlega ofan í kjallara. Heldur þetta fólk virkilega að við sem búum við þetta taki það ekki nærri okkur að vita ekkert hvað gerist og að það sé verið að véla um líf okkar og ævistarf.
Ég vil þetta ekki, samþykki þetta ekki og skal berjast til síðasta blóðdropa til að þetta nái ekki fram að ganga.
Bloggar | Breytt 25.7.2012 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
23.7.2012 | 20:12
Króatía og skógareldar.
Oh boy vona að allt sé í lagi, sonur minn er einmitt í sumarfríi við Adríahafið. Hann hringdi í mig áðan og sagðist vera að horfa á eldingar, en það væru engar þrumur. Hvað ef þetta eru skógareldar sem hann var að horfa á? Sagði að það væri hvasst og ætti að fara að rigna. Nú fer mömmuhjartað á fullt.
Nei þetta líkist sennilega ekki eldingum. Úbbs vona að börnin mín séu óhult.
![]() |
Flýja skógarelda í Króatíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
23.7.2012 | 14:42
Heimsóknir.
Veðrið náði okkur loksins, og það hellirigndi í nótt og var hvasst. En jörðinni veitti ekki af þessari vætu, nú er veðrið að lagast, en ég er í letikasti inni hjá mér.
Þóra frænka mín kom í heimsókn með Grétari manninum sínum, það var yndælt að fá þau.
Takk fyrir síðast Þóra mín
Dælan úr tjörninni hefur verið biluð, og við vorum að spá í hvort hún væri ónýt, þá stóðst Grétar ekki mátið, hann tók sig til og lagaði dælun svo nú eru fiskarnir afar ánægðir með rétt súrefnisstig í tjörninni
Hér er hún Þóra, við erum búnar að vera eins og systur frá barnæsku, þó hún búi í Reykjavík en ég hér, það þarf ekki alltaf sífellda nærveru, þetta á líka við um Atla frænda og Garðar.
Litlar skottur komu til að skoða kisubörnin, þeim Ágústu Maríu og Bjargey finnst tilhlýðilegt að koma við hjá ömmu í kúlu þegar þær koma vestur
Spennandi að fá aðeins að halda á einni kisunni.
Bara smá og klappa.
Og auðvitað að heilsa upp á fiskana.
En við hjálpuðumst að að baka pizzur, ég gerði deigið en strákarnir skreyttu.
Allataf best að hjálpast að.
Í gær opnuðu svo litlu kettlingarnir augun í fyrsta skipti. Svo nú sér maður í litlu fallegu augun líka.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.7.2012 | 19:53
Eru menn komnir í startholur í nýja kosningabaráttu?
Að skjóta sig í fótinn er orðatiltæki sem oft er notað þegar fólk gerir eitthvað sem ekki fellur í kramið hjá fólki. Þóra Arnórsdóttir ákvað að fara í framboð, og það var flestum ljóst að undirbúningurinn að því framboði var runninn undan fólki í Samfylkingunni, fólki sem hataðist við Ólaf Ragnar, vegna þess að hann neitaði í tvígang að undirrita Icesave samningana. Á facebook var haldin einhverskonar skoðanakönnun þar sem Þóra kom best út og þar með var það ákveðið að hún færi í þetta framboð.
Það er í raun og veru synd, því Þóra var vel liðinn sjónvarpsstjarna og klár í sínu fagi. Veit ekki hvort hún á afturkvæmt í þann business aftur, allavega verður hún alltaf smituð af þessari baráttu.
En hún getur engum kennt um nema sjálfri sér og sínum eiginmanni. Ég hef til dæmis ekki séð þetta meinta skítkast frá Ólafi Ragnari sem honum er borið á brýn að hafa viðhaft. Hann minnstis jú á það sem allir höfðu vitað að eiginmaður Þóru fréttamaðurinn Svavar var með fréttir af kosningunum þegar vitað var að Þóra var að undirbúa framboð sitt. Mátti hann ekki leggja upp með það? Nú þegar allt logar út af málfrelsi eða ekki málfrelsi fólks á netinu. Það má segja að sök bítur sekan, og sá sem tekur til sín það sem sagt er, hlýtur á einhvern hátt að finna til sektar. Þannig er það bara.
Þóra er flott og vel gerð kona, en þetta viðtal hennar er ekki til sóma og því miður fyrir hana einmitt til að gera hlut hennar verri en af hún hefði einfaldlega látið kyrrt liggja.
Ekkert fellur fólki verr en einmitt sá sem ekki getur tekið ósigri og reynir að finna einhvern annan sökudólg en sjálfan sig. Þá er það búið. Fegurðin fölnuð og brosið orðið falskt.
Þetta hefði hún mátt segja sér sjálf þessi elska. En svona verður ekki aftur tekið. Og ég hef reyndar enga trú á því að kosningarnar verði gerðar ógildar, svo ég held að fólk sem er að byrja kosningabaráttuna upp á nýtt ætti eiginlega að bíða aðeins og sjá til ef það þekkir eitthvað til íslenskrar þjóðarsálar.
![]() |
Ólafur Ragnar varð „óttasleginn“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (59)
20.7.2012 | 11:52
Ánægjuvogin. - Ánægja er auði betri.
Já ánægjuvogin hvernig er hún mæld? Ég heyri þetta stundum í auglýsingum og hugsa sem svo hvernig er þessi ánægjuvog mæld?
Hér er mín ánægjuvog.
Þessi stúlka er of feit, en hún er ánægð og hún ætlar að grennast af heilsufarsástæðum auðvitað, en hennar kúr er allt öðruvísi en annara, hún stundar kynlíf með unnusta sínum sjö sinnum á dag. Það er hennar trimm fyrir daginn.
Þessi elska er hins vegar allt of grönn, en hún er ánægð. Hún er með afar sjaldgæfan sjúkdóm sem veldur því að hún getur ekki fitnað. Hún hefur tekið þá ákvörðun að fara í skóla og ræða við börn um útlit og hvað það er sem gefur lífinu gildi. Henni var alls ekki hugað líf, í viðtali grét móðir hennar af stolti yfir hvað dóttirinn hefur náð langt í lífinu. Sjálf segir hún; árangri mínum í því sem ég er að gera er að þakka útliti mínu. Það er það sem hefur áhrif.
Ég var í matarboði í fyrradag, skrapp í frábærlega eldað læri hjá syni okkar Ella og tengdadóttur, málið er að þau búa í Mosfellsbæ. Ég lagði af stað eftir hádegið og kom í matinn kl. 7. eftir mat var svo haldið heim aftur, sem sagt 1000 km í matarboð ekki svo slæmt. Reyndar var ástæðan líka að sækja minn elskulega eiginmann sem var að koma frá Noregi.
Yndislegt að hitta litlu drengina þeirra barnabörnin okkar, hér er Davíð Elías.
Og Arnar Mílos, ég gerði þá auðvitað alveg kolbrjálaða í leik rétt fyrir svefninn En ömmu mega svoleiðis auðvitað. En þetta var afskaplega ánægjulegur dagur.
Svona í framhaldi af skóumræðunni hans Jens um daginn þá er hér mynd af þeim skóm sem ég myndi fá mér hehehehe...
Tveir yndislegir herramenn fengu að gista hjá ömmu í fyrradag, þeir Aron Máni og Kristján Logi í heimsókn frá Noregi. Þeir eru auðvitað flottastir.
Og þá var auðvitað grillað fyrst afi er komin heim.
Einkar ánægjulegur dagur í gær.
Og það var etið á sig gat.
Já ánægjan er auði betri. Það mætti hin valdasjúki Steingrímur J. og fleiri taka til sín og ekki síður útrásarvíkingarnir. Hið einfalda yndæla heimilislíf og hversdagurinn og að fá að njóta þess sem bara ER, það er það sem skiptir máli og hressir og bætir sálina.
Mamma litla stendur sig rosalega vel
Svo á ég von á bæði Hönnu Sól og Ásthildi Cesil um mánaðarmótin og þá er allt fullkomnað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
18.7.2012 | 21:13
Sumum finnst allt í lagi að taka peningana og vona það besta.
En ekki er allt flas til fagnaðar, þannig er það að mínu mati með Grímstaði og Núpó. Sýnd veiði en ekki gefin, og enn eina ferðina flaska menn á græðginni svona a la 2007 style.
Það var frábær þáttur í speglinum í kvöld, þar sem Sigrún Davíðsdóttir sú eðla fjölmiðlakona tók fyrir ferlið um Grímsstaði.
Þeir sem hafa efasemdir ættu að hlusta vel á það sem hún segir þarna:
http://www.ruv.is/frett/ras-1/er-ad-marka-nubo
Í fyrsta lagi þá hefur enginn úttekt farið fram á getu Núpós til að standa í þessum stórræðum. Allavega liggur það ekki ljóst fyrir segir Sigrún, og allt sem viðkemur Kína og viðskiptum þeim tengdum er afskaplega falið og beygt fram hjá lögum og reglum.
Hún segir að ferlin sem í gangi eru séu tvö, það þarf að semja við ríkið um undanþágur til að erlendur fjárfestir geti fjárfest á Íslandi á einn veginn á hinn bóginn þurfi að semja við sveitarfélögin sem eru í þessu samningaferli. Þessi ferli skarast og vöntun eða vankantar í öðru leiða til erfiðleika með hitt. Annað er svo að nokkrir eigendur vilja ekki selja eða leigja landið, það skapar líka óvissu.
Það kemur svo í ljós að það fer ekki saman það sem umboðsmaður Núpós segir um þær fjárfestingar sem áttu að vera í Finnlandi og Noregi, óhætt er að segja að þær séu stórlega ýktar af hendi Núpós og hans liðs, til að láta allt líta vel út, sennilega svona beita á græðgi okkar landsmanna til að fá þá til að bíta á krókinn.
Þegar rýnt er í fjárfestingar félags Núpós kemur svo í ljós að þær eru ALLA INNAN KÍNA. Engar annarsstaðar, og þegar tekið er með inn í myndina að þessi maður var til skammst tíma einn af innanbúðarmönnum kínverska kommúnistaflokksins, má leiða getum að því með nokkrum rökum að þarlend stjórnvöld standi að baki þessum fjárfestingum að einhverju eða öllu leyti.
Og nú spyr ég ætla þessir sveitastjórar fyrir norðan að axla þá ábyrgð ef allt fer á versta veg að hafa komið Kína inn fyrir lögsögu okkar jafnvel með afleitum raunveruleika? Vilja þeir virkilega taka þá áhættu að standa eins og föðurlandssvikarar frammi fyrir þjóðinni ef illa fer?
Kínverjar eru allstaðar að trana sér fram á Vesturlöndum, og klóa í lönd og aðstöðu. Það er ekki út af engu. Og alltaf er til fólk sem bara "tekur peningana og vonar það besta"
Ástralir sitja uppi með það að kínverjar hafa keypt upp flest lönd sem liggja að ám og vötnum, þar rækta þeir hrísgrjón og áströlum er bannað að nota vatn til að þvo bílana sína og vökva garðinn. Ætli þeim finnist það ásættanlegt? Nei ég held ekki.
Svo er það samfylkingin sem hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að koma þessum kínamanni inn fyrir Gullna hliðið, enda svili Össurar einn aðalhvatamaður hans og hjálparhella. Ég hef heyrt það sagt að búið sé að semja við manninn bak við tjöldin, það kemur ekki á óvart þar sem Samfylkingin og Össur eiga í hlut. Enda svo komið að þjóðin treystir hvorki Össuri, Jóhönnu né Steingrímin lengur til góðra verka.
Ég skammast mín alltaf þegar landar mínir sýna af sér heimsku og græðgi fyrir útlendingum, en verra er ef verið er að plata okkur upp úr skónum bara fyrir kjánaskap örfárra manna.
Ég ætla að biðja einhvern sem er klókur á tölvur og góður í að útbúa undirskriftasöfnun um að setja fótinn fyrir þetta brjalæði. Ég veit að ég yrði ekki sú eina til að skrifa undir áskorun á Ögmund Jónasson og eða forsetann að taka þetta út af dagskrá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
16.7.2012 | 12:16
Blóm, ávextir og Brazil.
Ég hef verið að koma afgangnum af sumarblómunum niður í jörðina. Þetta lítur vel út, ef satt skal segja og ég er ánægð með árangurinn. Það gengur líka vel að ganga frá blómunum sem eiga að vera til græðlingatöku næsta vor.
Það er svona að komast lag á þetta hjá mér.
Þetta er eiginlega orðin frumskógur, án rándýra þó... vonandi. Vil ekki fá mink eða ref hingað niður.
Það er búið að vera svo sólríkt að það eru ekki bara krækiber og aðalbláber sem eru mánuði á undan, heldur fleiri ávextir í garðskálanum.
Kirsuber og perur eru ekki amaleg.
Eða plómur.
Í fyrra fékk ég 10 kg. uppskeru af vínberjum, veit ekki hvað það verður í ár.
Og í gær droppuðu við tvær kátar og elskulegar stúlkur, voru forvitnar og ægilega hrifnar. Þegar ég spurði hvaðan þær væru, þá eru þær frá Brasilíu, eru hér að spila með B.I. bolta. Hér skrifa þær í gestabókina, veit ekki hvað eru komnar margar kveðjur frá hve mörgum löndum. Þarf að fara að taka það saman.
Sá svo þessa mynd í BB í morgun. Hún er þá líka stjarna ofan á allt hún Talita. Talita og Gaby heita þessar hressu og skemmtilegu stelpur.
En nú þarf ég að fara út í sólina og hitan. Eigið góðan dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.7.2012 | 22:45
Blóm og kettir.
Það er fullt af fólki sem kemur til mín eða hefur samband á annan hátt til að segja mér að þeim finnist gaman að lesa bloggið mitt. Þetta gleður mig ótrúlega mikið, takk mín kæru.
Það eru auðvitað aðallega myndirnar sem heilla, ég hef verið afskaplega tímabundinn undanfarið, og ekki haft orku í að setja inn myndir. Hef reyndar skrifað pistla þegar mér hefur algjörlega ofboðið það sem er að gerast. En svona inn á milli, þá er svo margt fallegt að gerast í kring um okkur og við eigum að meðtaka það og þakka fyrir allt það góða sem er í kring um okkur, læra að meta það sem er uppbyggilegt og ekki taka inn á okkur það sem er erfitt eða neikvætt. Það þýðir ekki að við tökum ekki afstöðu eða höfum skoðun, en það er einfaldlega spurning um að taka ekki inn á sig neikvæðinina og ruglið, halda haus og huganum og hjartanu í jafnvægi.
Litlu krílin dafna vel, enda sér mamman vel um þau og stundum pabbinn. Þeir eru flottir.
Eins og sjá má hjálpar hann ennþá til með mömmunni að passa og þrífa.
Og Lotta er góð mamma og hugsar vel um afkæmin sín.
En við ákváðum að halda upp á afmælið hans Júlla mín, Sunneva systurdóttir mín elskuleg og Úlfur voru aðal frumkvöðlarnir að því. Úlfur eldaði fiskisúpu sem hann lærði að elda af pabba sínum.
8. júlí var reyndar eini rigningardagurinn á öllu þessu sumri, ég held að það hafi verið a la Júlli að vökva gróðurinn, það var alltaf hann sem sá um vökvun ef ég var ekki heima, svo þetta var hans framlag í vökvun
Við ætluðum að hafa veisluna upp í Bárulundi, sem er gróðursvæði sem var plantað í til heiðurs mömmu minni og Júlli minn átti sinn þátt í því, en svo var ákveðið að halda veisluna í kúlunni, þar sem það var þétt rigning og lítil börn sem voru fljót að bleyta sig ... eins og gengur.
Krakkar okkar systkina eru afar samheldin og góðir vinir, hér eru systurnar Thelma og Heiða Bára dætur Dadda bróður míns.
Hreinn Þórir sonur systur minnar.
Hér eru þau að gæða sér á fiskisúpunni.
Dálítið sterk en rosagóð.
Hér er svo Sunna mín með börnin sín.
Þetta er litla dóttir hennar Auður Lilja að skoða kettlingana.
Þessi mynd er fyrir brottfluttu ísfirðingana mína, hvort þeir kannast ekki við svona kvöldsól.
Hér eru svo anganórarnir, litla Deplan er sennilega lofuð en hinir eru á lausu, nema að það er aðeins verð að spá í þennan svarta, sem gæti verið læða, Sigga dýra ætlar að koma og skoða hann við tækifæri. En þeir eru algjör krútt.
Hér má sjá gullregnið mitt glæsilegt að vanda.
Júlí er sá mánuður sem flest fjölær blóm og runnar blómstra.
En þrátt fyrir mikla þurrka þá eru blóm og runnar vel haldinn hér, sennilega vegna þess að það eru engin auð svæði heldur þekja plöntur öll beð.
Ég er að ganga frá sumarblómunum mínum til undaneldis, salan er sennilega búin á þessu sumri, svo það er ekkert annað en að koma þeim í ból.
Ég veit svei mér ekki hvað ég geri, það er erfitt að hanga yfir litlu, þegar fólk vill frekar kaupa innfluttar plöntur, það er þægilegra. En þannig er það bara ef við viljum hafa þessa aðstöðu í bænum, þá þarf að hlú að því. Reyndar á ég marga fasta viðskiptavini sem versla allt hjá mér. En ég sit uppi með mikið af plöntum og spurning um hvað ég nenni að þræla mér út og sitja svo uppi með heilan helling af plöntum. Við verðum aðeins að hugsa okkur um, það er sama hvort það eru bækur, blóm, föt eða hvað sem er, ef við viljum hafa þjónustuna hér heima, þá þurfum við að hlú að því sem þar er fyrir, þá þýðir ekkert að versla allt annarsstaðar og ætlast svo til að þjónustan sé hér fyrir hendi ef manni dettur allt í einu í hug að fara og versla heima hjá sér.
Þessi er fyrir Hrönn jarðarberin mín, nammi namm.
Æðisleg með rjóma. Við systurnar átum á okkur gat í kvöld.
En njótið vel elskurnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.9.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 2024188
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar