Sumum finnst allt í lagi að taka peningana og vona það besta.

En ekki er allt flas til fagnaðar, þannig er það að mínu mati með Grímstaði og Núpó.  Sýnd veiði en ekki gefin, og enn eina ferðina flaska menn á græðginni svona a la 2007 style. 

Það var frábær þáttur í speglinum í kvöld, þar sem Sigrún Davíðsdóttir sú eðla fjölmiðlakona tók fyrir ferlið um Grímsstaði. 

Þeir sem hafa efasemdir ættu að hlusta vel á það sem hún segir þarna:

http://www.ruv.is/frett/ras-1/er-ad-marka-nubo

Í fyrsta lagi þá hefur enginn úttekt farið fram á getu Núpós til að standa í þessum stórræðum.  Allavega liggur það ekki ljóst fyrir segir Sigrún, og allt sem viðkemur Kína og viðskiptum þeim tengdum er afskaplega falið og beygt fram hjá lögum og reglum. 

Hún segir að ferlin sem í gangi eru séu tvö, það þarf að semja við ríkið um undanþágur til að erlendur fjárfestir geti fjárfest á Íslandi á einn veginn á hinn bóginn þurfi að semja við sveitarfélögin sem eru í þessu samningaferli.  Þessi ferli skarast og vöntun eða vankantar í öðru leiða til erfiðleika með hitt.  Annað er svo að nokkrir eigendur vilja ekki selja eða leigja landið, það skapar líka óvissu. 

Það kemur svo í ljós að það fer ekki saman það sem umboðsmaður Núpós segir um þær fjárfestingar sem áttu að vera í Finnlandi og Noregi, óhætt er að segja að þær séu stórlega ýktar af hendi Núpós og hans liðs, til að láta allt líta vel út, sennilega svona beita á græðgi okkar landsmanna til að fá þá til að bíta á krókinn.

Þegar rýnt er í fjárfestingar félags Núpós kemur svo í ljós að þær eru ALLA INNAN KÍNA.  Engar annarsstaðar, og þegar tekið er með inn í myndina að þessi maður var til skammst tíma einn af innanbúðarmönnum kínverska kommúnistaflokksins, má leiða getum að því með nokkrum rökum að þarlend stjórnvöld standi að baki þessum fjárfestingum að einhverju eða öllu leyti.

Og nú spyr ég ætla þessir sveitastjórar fyrir norðan að axla þá ábyrgð ef allt fer á versta veg að hafa komið Kína inn fyrir lögsögu okkar jafnvel með afleitum raunveruleika?  Vilja þeir virkilega taka þá áhættu að standa eins og föðurlandssvikarar frammi fyrir þjóðinni ef illa fer?

Kínverjar eru allstaðar að trana sér fram á Vesturlöndum, og klóa í lönd og aðstöðu.  Það er ekki út af engu.  Og alltaf er til fólk sem bara "tekur peningana og vonar það besta"

Ástralir sitja uppi með það að kínverjar hafa keypt upp flest lönd sem liggja að ám og vötnum, þar rækta þeir hrísgrjón og áströlum er bannað að nota vatn til að þvo bílana sína og vökva garðinn.  Ætli þeim finnist það ásættanlegt?  Nei ég held ekki. 

Svo er það samfylkingin sem hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að koma þessum kínamanni inn fyrir Gullna hliðið, enda svili Össurar einn aðalhvatamaður hans og hjálparhella.  Ég hef heyrt það sagt að búið sé að semja við manninn bak við tjöldin, það kemur ekki á óvart þar sem Samfylkingin og Össur eiga í hlut.  Enda svo komið að þjóðin treystir hvorki Össuri, Jóhönnu né Steingrímin lengur til góðra verka.

897be8d00d-380x230_o

Ég skammast mín alltaf þegar landar mínir sýna af sér heimsku og græðgi fyrir útlendingum, en verra er ef verið er að plata okkur upp úr skónum bara fyrir kjánaskap örfárra manna.

Ég ætla að biðja einhvern sem er klókur á tölvur og góður í að útbúa undirskriftasöfnun um að setja fótinn fyrir þetta brjalæði.  Ég veit að ég yrði ekki sú eina til að skrifa undir áskorun á Ögmund Jónasson og eða forsetann að taka þetta út af dagskrá. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Þetta mál hefur mér fundist stórfurðulegt. Hans eign er öll innan Kína og þá kom upp í hugann er/var það ekki eign „flokksins"? Að bara taka við einhverjum peningum eru ekki tækifæri, heldur hvernig við nýtum það þannig að samfélagið allt hafa gang að.

Í Speki Konfúsíusar segir: „Að smámenn eru siðferðislega vanþroskaðir, einblína á gróða og skirrast ekki við að brjóta gegn siðferðisskyldu sinn ef eiginhagsmunir eru að veði".

Ómar Gíslason, 18.7.2012 kl. 21:48

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ásthildur, leiguverðið, 990 milljónir fyrir 40 ár, sem gerir innan við 25 milljónir á ári, er svo auvirðilegt að það er ekki einu sinni hægt að segja að það flokkist undir græðgi - aðeins heimsku.

Kolbrún Hilmars, 18.7.2012 kl. 22:15

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

ég trúi að við getum í sameiningu stoppað þetta,sem er ekkert venjulegt/eðlilegt

Helga Kristjánsdóttir, 18.7.2012 kl. 22:51

4 Smámynd: Ómar Gíslason

Árið 1929 þegar allt hrundi, þá spurðu Lehman Brothers sig að því „HVAR ERU TÆKIFÆRIN" og viti menn þau voru ekki að bjarga einhverjum kaupahéðnum, sviksömum bönkum eða hlaupa eftir einhverjum sem vilja kaupa land. Heldur að lána til stækkunar á leikhúsum og allt sem því viðkemur. Þeir lánuðu til yfir 700 leikhúsa, til stofnunar Radio-Keith-Orpheum (RKO), Paramount Pictures og 20th Century Fox.

Þeir fengu þetta 1000 falt til baka vegna þess að ef við leitum að tækifærum þá fylgja peningar alltaf með það er aldrei öfugt.

 

Ómar Gíslason, 19.7.2012 kl. 00:21

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ómar svo sannarlega brennur þessi spurning á.  Eign flokksins. 

Sammála þér Kolbrún þetta er allt einhvernveginn auðvirðilegt, sérstaklega aðkoma stjórnvalda og sveitastjórnamanna.  Skammtíma gróði, skammtímalausnir.

Vonandi Helga, ég fer fram á að einhver sem kann að setja upp svona undirskriftarlista geri það, ég skal vera fyrsta manneskjan að undirrita.

Aftur Skapti sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2012 kl. 01:17

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Nubo er áróðursmeistari kínverskra stjórnvalda, hann hlýtur að vera leppur fyrir stjórnvöld.  Varla trúir fólk sögunni um ljóðelska, harðfiskétandi lopapeysuaðdáandann? 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.7.2012 kl. 01:23

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóna Kolbrún Samfylkingarliðið trúir öllu sem Össur og kó segir þeim að trúa, þetta eru jú trúarbrögð en ekki stjórnmálaflokkur, þannig séð....Við hin meira að segja sumir VG liðar trúa þessu hins vegar ekki..... ekki frekar en við hin.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2012 kl. 01:28

8 Smámynd: Kidda

Mér líst illa á þetta og hef enga trú á að svona hótrl og annað sem á að fylgja því beri sig. Er ansi hrædd um að þarna sé um að ræða plat sem fari illa með land og íbúa þarna.

Ég myndi skrifa undir svona lista um leið og hann færi í gang. Við eigum alls ekki að selja landið undan okkur. Treysti ekki þessum manni já eða landinu sem hann kemur frá.

Kidda, 19.7.2012 kl. 10:03

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Kidda mín reynslan hefur sýnt að þessi þjóð kínverjar eru hættulegir í viðskiptum.  Ég þekki fólk sem fór að vinna fyrir þau sérfræðingar á sérstöku sviði, þau ætluðu að vera í eitt ár, en hættu fljótlega þegar þau áttuðu sig á því að það átti einungis að veiða upp það sem þau höfðu að miðla og hefja sjálfir framleiðslu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2012 kl. 10:33

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég tek undir og treysti ekki þessu skrítna máli öllu? Botna ekkert í því.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.7.2012 kl. 13:43

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Anna mín það er ekkert skrýtið að við botnum ekkert í því, því það er svo fjarri allri skynsemi að það hálfa væri nóg. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2012 kl. 13:51

12 identicon

Sael Asthildur. Alveg sammala ther. Hins vegar ad lesa um thennan Halldor Jonsson, segir allt um thetta aevintyri.

Ef einhver er ekki ad hjalpa honum hattsettur, er eg illa svikinn. Eg held ad flest okkar vaeru komin i steininn.

Endilega lesid.:

http://blog.eyjan.is/larahanna/2012/05/10/allir-vildu-kinverska-drekann-kvedid-hafa/

M.b.kv fra France

Sigurdur Kristjan Hjaltested (IP-tala skráð) 19.7.2012 kl. 20:19

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svakaleg samantekt Sigurður takk fyrir þennan link.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.7.2012 kl. 21:02

14 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

þessi samantekt hjá Láru Hönnu setur svo sannarlega samhengi í hlutina! Ég styð Ögmund í þessu máli og held áfram að undrast?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.7.2012 kl. 22:15

15 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ásthildur mín, viltu senda þennan link á Jón Val? http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/07/18/transkonur_fela_thad_sem_tharf/

Eins og þú og fleiri vita er ég útilokuð frá hans einræðu!

Kveðja frá Rauðasandskonu

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.7.2012 kl. 22:49

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Blessuð vertu Anna mín, ég get alveg eins sent þetta á Guð@himnaríki.com  Hann hvorki vill né getur breytt sínum hugsunum að þessu leyti. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.7.2012 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 2021013

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband