Enn einn dásamlegur sólardagur.

Jamm, þessi mynd var tekin um miðnættið í gær.

IMG_5689

Mystik í loftinu.  Ró færist yfir bæ.

IMG_5695

Svona leit bærinn minn út kl. 7 í morgun.

IMG_5696

Stubburinn er farin að rúlla á svefntímanum, og erfiðara að vakna á morgnana.  En þetta hefst allt saman.

IMG_5697

Þessi er tekin fyrir einni mínútu síðan.

Dásemdin ein, það verður að segjast eins og er.

IMG_5698

Geimskipið tilbúið til brottfarar.  Nei annars, draumaveröldin mín barasta.

IMG_5699

Og blómin brosa í góða veðrinu. 

En minn elskulegi á afmæli í dag, og ég ætla að bjóða honum út að borða.  Ég bauð honum reyndar á Hótelið  á laugardaginn, en núna förum við á Tai Koon, sem er rosalega matgóður veitingastaður.  Og afar vinsæll. 

Við skjáumst svo síðar.  Heart


Sautjándi júní okkar dagur fyrir íslenska þjóð.

Já sautjándinn er að renna sitt skeið.  Ég átti yndislegan dag í dag, við hjónin slógum garðinn, eða hann sló og ég horfði á sko !!! LoL

IMG_5677

En ég skrapp aðeins niður í bæ til að skoða mannlífið.

IMG_5669

Hér er búið að setja upp svið á Silfurtorgi til að hefja skemmtiatriði.

IMG_5671

Hér var líka allt á fullu að undirbúa skemmtiaatriði, en á sjúkrahústúninu fer aðalhátíðin fram vanalega. 

IMG_5673

Jamm hér er fólkið komið til að skemmta sér.  Þarna kemur fjallkonan fram.  Ég var fjallkona 2004, þegar ég var fimmtug, af því að ég er jafngömul lýðveldinu.  Og er mjög stolt af því reyndar.  Þó ýmsar kerlingar af báðum kynjum hafi signað sig í bak og fyrir af því að ég flutti ekki ljóð eftir Einar Ben, heldur talaði út frá eigin brjósti og fór svo með fallega ljóðið okkar, Í faðmi fjalla blárra.

En hún Isabel mín elskuleg á afmæli í dag, ég bauð þeim þess vegna í mat, El Salvador fjölskyldunni minni og svo pabba gamla.

IMG_5679

Hér heilsumst við að heiðursmanna sið.

IMG_5683

Pápi minn gamli heilsar líka, hann hefur algjörlega tekið þetta fólk sem fjölskyldu sína, og það er bara gott mál.

IMG_5685

Og hér er lærið skorið.  Yndisleg stund með fjölskyldunni.  Og veðrið hreint unaðslegt.

c_users_arna_pictures_bloggmyndir_iceland

Svo endum við á smáþjóðlegum nótum.  Heart  Þetta er nú einu sinni dagurinn okkar.


Mikið um að vera á Akureyri þessa dagana.

Sorglegt að fólk skuli ekki geta komið saman til að skemmta sér án þess að allt verði vitlaust.  Mér virðist þetta vera meira áberandi á Akureyri en annarsstaðar á landinu við svipaðar kringumstæður.  Halló Akureyri var mikið í fréttum á sínum tíma, einmitt fyrir óspektir.  Ætli þetta sé andrúmsloftið þarna fyrir norðan.  Whistling

Annars!  Til hamingju með 17. júní, vonandi eiga allir góðan og blessunarríkan dag.  Wizard


mbl.is Kallaðir út úr fæðingar- og sumarorlofi til að sinna löggæslu á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daginn fyrir þjóðhátíðardag.

Það lítur út fyrir að það verði gott verður á Ísafirði á 17. júní.  Dagurinn í dag var rosalega flottur, og allar líkur á að morgundagurinn verði jafnvel ennþá betri.

IMG_5641

Stubburinn fann humarklær í fjörunni í gær, hann er mikið búin að leika sér með þær síðan.  Setur upp smáleikþátt, þar sem klærnar ræðast við. 

IMG_5645

Það hefur ekki gefist tími til að sinna því allra nauðsynlegasta í garðinum hemm Blush En nú á að taka á honum stóra sínum á morgun og slá garðinn.  Grasið er orðið ansi hátt.

IMG_5648

Slöngur liggja út um allt, því hér þarf að vökva .... MIKIÐ.

IMG_5650

Svona fyrir ísfirðingarna sem  hingað koma reglulega, hvað er þessi blokk kölluð ?? hehehe

IMG_5651

Hvaða bráðnauðsynlega starfsemi fer fram í þessu húsi ?

Og hvað heitir húsið á bak við.  Þar sem Geiri og Hörður Bjartar aflaklær eru uppaldir.

IMG_5652

Hvaða yndislega kona ræður hér ríkjum, sem er reyndar heiðursborgari Ísafjarðar.

IMG_5653

Ég bauð fjölskyldunni minn út að borða í kvöld á Hótel Ísafjörð.  Hér erum við að njóta þess að vera til.

IMG_5656

Útsýnið er flott þarna.

IMG_5657

Ég hef smágrun um að einhverjir muni kannast við þessi eðalhjón.

Þetta er reyndar Erling Blöndal Bengtson sellóleikari einn frægasti ísfirðingurinn.  Hann er stjarna tónleika sem haldnir verða núna eftir morgundaginn Við Djúpið.  Enda er Ísafjörður mikill menningarbær.

IMG_5659

Hér eru líka bygginarkranar, ekki bara í henni Reykjavík.

IMG_5660

Og ekki hörgull á túrhestum, svei mér þá.

IMG_5664

Svo er algeng sjón að menn séu að leika sér á pollinum, á sjóköttum, sjóskíðum, kajökum og allskonar skemmtilegum farartækjum.  Hér var lengi stökkpallur á pollinum fyrir sjóskíði.  En þetta er svona sjóköttur.

IMG_5665

En þannig er nú það. 

IMG_5647

En látið ekki blekkjast þó skýin séu dökk, það er hlýtt og notalegt og kyrrt veður, eins og svo oft á Ísafirði.

 


Gríman í beinni.

Ég vil auðvitað óska sigurvegurum Grímunar til hamingju með sigurinn. 

En ég horfði á hluta af þessari dagskrá í kvöld og mikið rosalega er þetta eiginlega klént í alvöru talað.  Eitthvað svo Óskareftirlíking eitthvað.  Og æ ég veit ekki, eitthvað bara svo hallærislegt sorry. 

Þar með er ég ekki að segja að íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsmyndir séu ekki góðar og fagmannlegar.  Það er bara þetta nákvæmlega show og keppni eða á maður að segja fákeppni um vinning sem er bara einhvernveginn svo lókal og heimóttarlegt.  Vona að ég móðgi engann.  En ég gat einhvernveginn ekki varist brosi.  Mest þótti mér gaman að Erlingi þegar hann tók við verðlaunum fyrir tengdadóttur sína, hann var gjörsamlega frábær, með góðlátlegt grínað sjálfum sér.  Svolítið líka hallærislegt þegar Herdís Þorvaldsdóttir notaði tækifærið og réðist að íslensku sauðkindinni, og fékk húrrahróp úr salnum.  Sauðkindin  er ekki sökudólgur, heldur er það bara svoleiðis að á sumum svæðum þarf að takmarka fjöldan.  Alveg eins og aflaheimildir.  En til dæmis á Vestförðum er kjörland fyrir rolllubúskap.  Og hvergi betri, þar er enginn ofbeit.  Og hvað veit þetta háheilaga 101 Reykjavík samfélag svo sem um landbúnað ? 

Æ elskurnar þið haldið að þið séuð svo flott og kúl, en til dæmis í mínum augum eruð þið meira svona show off í tilliti til Óskarsverðlauna sorrý Grímunnar.  Svolítið svona í plati einhvernveginn.  Samt sem áður er ég rosalega montin af mörgu sem kemur frá íslendingum í kvikmyndum og sjónvarpsmyndum.  En þetta prjál sem heitir Gríman er bara halló.  Og nú verður mér endanlega útskúfað af leikaraelítunni, nema ef til vill einstaka LLfélaga, þar sem ég hef starfað í mörg mörg ár, eða síðan 1966.  En það verður bara að hafa það.  Smile


mbl.is Benedikt Erlingsson var sigurvegari Grímunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísafjörður á góðum degi. Eina og venjulega.

Veðrið í dag er svona týpiskt Ísafjarðarveður, ekki beint sól, en stillilogn og hlýtt.  Gott vinnuveður.

IMG_5621

Þessi er tekinn um hádegisbil og það sést speglun í olíuskipinu, þegar það siglir út.

IMG_5624

Eitthvað fallegt fyrir augað, þetta er fagursmæra.  Hún brosir við manni í sólskini eða þagar nægilega bjart er.

IMG_5630

Þessi er tekin sérstaklega fyrir IGG.  Smile

IMG_5632

Þessi er í boði hússins.

IMG_5634

Og svo gallerí himinn.  Smile


Gæludýr.

Þau eru manneskunni mikilvæg, það segja sálfræðingar og aðrir sem skilja mannlegt eðli.  Til dæmis er gott fyrir fólk sem er einmana að eignast gæludýr.  Einnig hefur foreldrum verið ráðlagt við börn sem eiga við að stríða hræðslu við dýr að gefa þeim gæludýr.  Umhirða dýra krefst tíma og fjármagns.  Og stundum eiga þau til að krefjast af okkur tíma sem við eigum ekki.  En það þarf samt sem áður að sinna þeim.  Hvaða hundeigandi man ekki eftir að hafa þurft að rífa sig upp í göngutúr, þegar tvö brún hundsaugu störðu á hann með trúnaðartrausti um að þetta væri sjálfsagt.  Eða kattareigandi sem hefur þurft að sinna sínum ketti með klóri eða strokum, og jafnvel gengið svo langt að kisi hefur lagst ofan á tölvuborðið, eða krossgátuna til að ná sér í athygli ? En stundum er fólk ekki tilbúið í slíkar fórnír.

 Þannig að fyrir nokkrum árum voru fundin upp í Japan gæludýr sem voru rafræn.  Þeessi "gæludýr" tröllriðu heimsbyggðinni lengi vel, það þurftið að fæða þau og annast, annars dóu þau bara.  Það heyrist ekki lengur um þessi rafrænu gæludýr. 

Við eigum í dag gæludýr sem er svona rafrænt.  Við þurfum að fæða það á viðeigandi hátt, annars deyr það.  Þetta ágæta gæludýr truflar okkur líka á jafnvel erfiðustu tímum.  En við látum okkur bara hafa það.  Ég held að þetta ákveðna gæludýr sé útbreyddasta gæludýr veraldar.   Við getum flutt það milli landa, án teljandi erfiðleika.  En ekki til allra landa.  Ameríka getur ekki svo ég viti til tekið á móti okkar gæludýrum, en þeir hafa sín eigin, af sama stofni, en með aðra eiginleika svo það dæmi gengur ekki upp.

Í dag geta flest okkar eiginlega ekki verið án þessara gæludýra.  Þau fylgja okkur hvert fótmál, og án þeirra erum við í standandi vandræðum.  Þó við þykjumst vera sjálfstæðir einstaklingar, sem geturm stólað á okkur sjálf.  Þá er rauninn önnur.  Gæludýrin okkar í dag, sjá okkur fyrir sambandi við annað fólk, og þau sjá til þess að hvar sem við erum, getum við haft samband, svona að mestu leyti.  Það eru auðvita til svæði þar sem gæludýrið okkar er óþarft með öllu. En við sættum okkur bara við það.  Það er ekki gæludýrinu að kenna heldur tækninni. 
Flest okkar erum orðin svo háð þessu gæludýri að við gætum ekki verið án þess.  Það hefur lætt sér inn á okkur hljóðlátlega og án alls hávaða.  Það er meira að segja talað um gæludýrin sem kynslóðir af fullri alvöru,  fyrsta kynslóð, önnur kynslóð og svo framvegis, þó almennt sé vitað og viðurkennt að þau geti alls ekki fjölgað sér.  Og þau hafa mismunandi hljóð, við getum ráðið hvað söng þau syngja okkur.  Þannig að þar er enn ein ástæðan fyrir ást okkar á þessu ágæta gæludýri.

Sumir hafa reynt að hræða fólk um að gæludýrið sé hættulegt heilsunni.  En það einfaldlega hefur engin áhrif.  Við viljum bara eiga slíka vini, og munum aldrei vilja losa okkur við þá.  Alls ekki nema að fá aðra af sama stofni, ef til vill aðra kynslóð. 

Þetta litla gæludýr, sem fer smækkandi eftir því sem tækninni fleygir fram, hefur fengið íslenskt nafn, eins og svo margt annað sem við íslenskum.  Og þetta litla gæludýr, sem við getum ekki og viljum ekki vera án heitir því fallega og kunnuglega nafni (GSM) eða Gemsi.  Smile 


Drottning Elísabeth og Landsbjörg í einum pakka.

Jæja þá er smá um Queen Elisabeth.  Ég veit ekki hvað eru margir um borð, en þeir eru margir allavega.  Skrýtið þegar göturnar fyllast af fólki.  Þau spranga um og skoða.  Krakkarnir í unglinga vinnunni kölluðu til þeirra og spurðu; How do you like Iceland og fengu góðar viðtökur, fólki brosti og staldraði við.  Sumir töluðu um hvað þau töluðu góða ensku.  Par spurði mig til vegar voru að leita að Faktorshúsinu hennar Áslaugar.  þau sögðu mér að þau væru frá Manchester, og ég gat sagt þeim að stubburinn héldi upp á Manchester United.  Það fannst þeim áhugavert.

IMG_5600

Þarna lónaði þetta stóra skip fyrir utan, síðan var bátabrú í land. 

IMG_5596

IMG_5594

IMG_5593

Þeirra biðu líka rútur til að flytja fólkið hvert sem það vildi.  Þá er ferðin ákveðin fyrirfram.

IMG_5613

Sumir eru að fara aðrir að koma.  Bretar kunna að fara í biðraðir.  Eitthvað sem við mættum af þeim læra.

IMG_5603

Þessi bátur á ekkert skilt við Drottningu Elísabetu, en þetta er gamla uppsátrið við Norðurtangann, sem er snyrtilega haldið við, og alveg steinsnar frá legu drottningar.

IMG_5620

En það var fleira um að vera við höfnina.  Þarna má sjá mörg ólík skip.  Og þyrlu.  Enda voru menn að æfa frá Landsbjörgu. 

IMG_5443

Þessar kempur.  Þarna er náfrændi minn skipherra um borð.  Þeir hafa verið hér í nokkra daga, og fara ekki fyrr en næsta þriðjudag.  Þar eru sjómenn á æfingum í björgun úr sjó.  Þar gegnir þyrlan tilgangi sínum.

IMG_5618

Sem sagt líf og fjör á Ísafirði.

IMG_5599

Og svo ein að lokum af galleri himni, tekin um þrjúleytið í dag.  Flott ekki satt.

 


Jæja einhver að kvarta yfir íslensku sumarveðri ?

Ætli við myndum nú ekki æmta og skræmta ef þetta væri hjá okkur 14 júní.  W00t

Annars hefur veðráttan batnað hjá okkur.  Það lifa miklu fleiri tegundir af plöntum hér en áður.  Yllirin nánast orðin illgresi, og fleiri plöntur sem ekki hafa verið til vandræða áður.  Svo sem eins og risahvönn sem sáir sér allt í einu út sem aldrei fyrr.   Ég þurfti að útrýma henni úr mínum garði, því hún var búin að sá sér út um allt, og er þar að auki stórhættuleg, því hún getur brennt húð og skilið eftir sár, ef safi frá henni berst á hörund, sérstaklega í sólskini. 

En Snjókoma um miðjan júní ???? nei sem betur fer ekki. Grin


mbl.is Snjókoma í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Queen Elísabeth á leið til Ísafjarðar.

Er að spá í hvort hún sé komin.  En hún getur ekki lagst að bryggju hér, heldur mun lóna út í fjarðarkjafti.  Það eru núna daglega skemmtiferðaskip í höfninni.  Þetta setur svip sinn á mannlífið, því bærinn er hreinlega fullur af túrhestum, sem rölta um bæinn og skoða allt mögulegt og ómögulegt.  Skrúðgarðana, og svo fara þeir í ferðir um nágrennið.  Nú hafa tveir ungir menn unnið að þeirri hugmynd að setja kláf upp á Eyrarfjall og byggja þar aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum.  Sjá hér http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=101892

Sonur minn er annar þeirra.  Mér finnst þetta alveg frábær hugmynd.  Hér er núna austurrískur maður sem byggir svona kláfa, hann er að kynna sér málin.  Enda var þyrla hér á sveimi í gær, þeir voru að rúnta upp á fjallið að skoða aðstæður.  Svo þetta er nú aðeins meira en einhver grilla.

En ég ætla sem sagt að hafa augun hjá mér þegar drottningin kemur. 

 


mbl.is Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims í Reykjavíkurhöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2007
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband