Hvenær er maður maður eða mús?

Þessi rannsóknarskýrsla er í okkar höndum, það er eins gott að við sjáum það og látum þessa innihaldsrausara og afsökunarblebba ekki villa okkur sýn.  Enginn þeirra hefur komið nálægt þessu máli og fyrrverandi og núverandi ráðherrar voru bara fórnarlömb aðstæðna, þó þeir áttuðu sig korter fyrir undriskrift á því að verið væri að plata þá upp úr skónum, var samt skrifað undir.  Og ekki þeim að kenna... ónei bara öllum hinum.   Og Geir blessaður hann ber enga ábyrgð sem forsætisráðherra á öllum ósköpunum, því lauk bara si sona með Guð blessi Ísland.... eða þannig.

Jóhanna og Steingrímur bera heldur enga ábyrgð á að hafa gert nákvæmlega ekki neitt sem máli skiptir, nema að halda áfram vilja fyrri valdhafa að hjálpa útrásarvíkingum að halda sínu og neyða almenning í þrot.  það er auðvitað ekki þeim að kenna, því það er eiginlega ekkert hægt að gera... eða þannig.  Þó gátu þau sett mjög skjótlega lög á flugvirkja, þá stóð ekki á lagasetningu.  En þegar kemur að því að setja lög um frystingu eigna þjófa, þá tekur það eitt og hálft ár, með viðeigandi viðvörunum, svo menn geti nú örugglega komið öllu sínu í burtu bæði peningum og eigum.

Eg get svo andskotans svarið það að langlundargeð mitt er komið í þrot.  Ég horfi upp á föður minn elskulegan sem var ríkur maður, stoltur og stór, sitjandi núna nánast öreigi að hans álitið, búið að plata hann upp úr skónum af fólki sem hann treysti til dæmis í Exista, Glitni og fleiri fjárglæfrum. Ég er ekki að hugsa um þá peninga sem ég hefði fengið í arf, ég er að hugsa um þessa andskotans þjófa sem stálu lífsbjörginni af föður mínum og það sem hann hefur þurft að takast á við á gamals aldri og hugsa til þess að þessar rottur hafa nýtt sér peningana sem hann vann í sveita síns andlitis til að fela þá á aflandseyjum og ætla sér að njóta þeirra þegar allt er gengið yfir.  Þá segi, ég legg svo á og mæli um að þeir muni aldrei, hvergi og enginn þeirra niðja njóta þessara peninga.  Þeir skulu hér með bannfærðir og einungis nýtast á þann hátt að hjálpa þeim sem minna mega sín. 

Það er alveg með ólíkindum að horfa upp á gjörsamlega ónýtt kerfi hrynja fyrir augunum á okkur.  Og liðið sem var á kafi í öllu þessu skuli voga sér að reyna að afsakan sig og jafnvel hrósa sér af að hafan nú varað við þessu, eða bjargað því að ekki fór verr.  Eruð þið algjörlega veruleikafyrrt?  Er ekkert inn í ykkar samvisku sem segir að þið eigið að biðja okkr afsökunnar og segja af ykkur embætti?

Þetta bara var sona og ég gat ekkert gert að því..... þeir hinir sögðu að þetta væri allt í lagi.  Hvar er ábyrgðin sem ykkur var borgað fyrir að hafa? 

Við erum ekki fífl, þjóðin, en við höfum ótúlegt langlundargeð virðist vera.  Reyndar verð ég að viðurkenna að ég hef það ekki.  Og ég hugsa, hvernig getið þið stjórnmálamenn, núverandi og fyrrverandi gengið niður Laugaveginn og horft í augun á samborgurum ykkar með allt þetta á samviskunni. Þið eruð svo sannarlega fyrirlitinn og jafnvel hötuð af fólkinu sem er að gera sér grein fyrir hverslags vesalingar þið í rauninni eruð og voruð.  Gjörsamlega óhæf til að gæta okkar hagsmuna, lifandi í einhverri draumaveröld gloríu og tittllaveldis.

Ræðurnar ykkar á Alþingi eru bara einfaldlega ekki að gera sig. innantómt hjóm  Við nefnilega flest okkar sjáum í gegnum skelina, þar inni eruð þið kviknakinn og aumkvunarverð.  Gerið okkur þann greiða að losa okkur undan því að þurfa að horfa upp á klórið í bakkann.  Við sem viljum nýtt Ísland höfum gert okkur grein fyrir að þið eruð ekki þjóðin.

Já ég er öskureið svikinn og þarf að sjá fyrir endan á þessu, það gerist bara með því að þið víkið og losið okkur við ykkar egó og eiginhagsmuni, sem þið haldið að geti enst ykkur endalaust. Þið eruð búin með kvótann og reyndar fyrir löngu síðan.  Thank you og good bye.


Maybe I should have.

Ég er búin að vera að hlusta á útvarp og sjónvarp í næstum allan dag.   Ég er dolfallinn en um leið ....já ég verð að segja það inn í mér glöð.  Það er vegna þess að loksins núna er það skjalfest sem svo lengi hefur verið hvíslað um en ekki mátt segja upphátt, hversu rotið og andstygglegt íslenskt samfélag er orðið.  Glöð vegna þess að eins og með fíkla er grunnurinn að betra lífi að viðurkenna fíknina og gera sér grein fyrir hve langt maður er leiddur. 

Hingað til hefur ekki mátt tala svona, og alls ekki taka á spillingunni, því þó hún lægi utan og innan á öllu hryggjarstykki þjóðlífsins, mátti ekki ræða það. 

Loksins hefur plásturinn verið tekin frá munni fréttamanna, og þeir fengið að tjá sig hömlulítið um þau mál sem hafa brunnið á samfélaginu.  Við hin vorum auðvitað löngu búin að sjá þetta, en það mátti bara ekki ræða það opinberlega.  Og reyndar ekki alveg hér á MBL má ræða um Do það er greinilega bannað, þó gaurinn sé í útlöndum.  Það er eins og menn hafi gleymt því að til er bæði sími, net og sjónvarpDevil Þess vegna er ekki nóg að fara erlendis, menn þurfa helst að fara til tunglsins eða Mars til að vera ekki í sambandi.

Í dag hef ég hlustað á fólk loksins segja hlutina eins og þeir eru, og þetta er í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér að fólk má tala um pólitíska ráðamenn á þann hátt opinberlega og frjálslega.  Það eru tímamót sem ber að fagna sérstaklega.

Útrásarvíkingarnir koma sérlega kjánalega út, í ljósi þess sem komið hefur í ljós. Öll glamour viðtölin, sjálfbirgingshátturinn og óheilindin með myndum af þeim setur manni hroll. 

Pólitíkusar sem hafa verið berir að stórfelldum lántökum og fyrirgreiðslum setja manni líka hroll.  En það er núna augljóst og hverjum manni til að sjá að svona er Ísland í dag.  Ef þetta fólk segir ekki af sér strax á morgun ber okkur að sjá til þess að þau komist ekki að í næstu kosningum.  Ef við viljum nýtt Ísland, þá verðum við að sýna þá ábyrgð að refsa með afgerandi hætti því fólki sem greinilega hefur látið kaupa sig til fylgilags við peningavaldið. 

Eftirtekarvert er að samkvæmt því sem skýrsluhöfundar segja, þá vill enginn taka ábyrgð á sínum gjörðum, Jónar í Fjármálaeftirlitinu er alveg hissa á því að hann skuli fá þarna ámæli fyrir hyskni í starfi, skilur ekkert í því eins og hann hafi nú þanið út báknið sitt, án þess að það hafi skilað neinum árangri.

Ömurlegast var samt viðtalið við fyrrverandi forsætisráðherra bæði á stöð2 og Rúv.  Það er ennþá í mér kjánahrollur. Guði sé lof fyrir að hann er hættur og farinn.  Þvílík er afstaða hans gagnvart sinni stöðu að þar kristallast allt það sem úrskeiðis fór í stjórnkerfinu.   Hann sér ekkert að hjá sér né öðrum í stjórnkerfinu.  Þetta voru bara bankamennirnir og svo kreppan að utan sem áttu hér alla sök.  Þessi maður er svo gjörsamlega veruleikafirrtur að það hálfa væri nóg. 

Ég vil þakka rannskóknarnefndinni fyrir vel unnin störf og vona svo sannarlega að skýrslan verði til þess að tekið verði virkilega til í stjórnkerfinu. 

Þó verð ég að segja að ræður stjórnmálamannanna eru ekki til að auka á þá bjartsýni.  Forsætisráðherra gat haldið sína ræðu og komist hjá að nefna að hún var sjálf ráðherra og þátttakandi í hruninu, þó það heyrði ekki endilega upp á hennar borð, frekar en Ingibjargar Sólrúnar.  Bjarni Ben var að vísu bljúgur, en tókst algjörlega að leiða umræðuna hjá Sjálfstæðisflokknum og hans ábyrgð.  Steingrímur greinilega komin í kosningagírinn, og hélt kosningaræðu, sem styrkir mann í því að dagar þessarar ríkisstjórnar eru senn taldir, taldi að hans flokkur hefði varað mest við afleiðingum fjármálastefnunnar,  þó hann vissi mætavel að Frjálslyndi flokkurinn hefði varað alveg jafnmikið við þessari stefnu ef ekki meira en hans flokkur.  Sigmundur Davíð komst vel að orði með að tala um framtíðina, en djísus endurnýjunin var bara framlenging af pabba gamla og ekki er þáttur Valgerðar hryðjuverkamanns náttúrunnar né Halldórs Írakskóngs minni en svo að það þarf að muna vel. Birgittu mæltist vel, og það þarf að fylgjast með hverjir eru menn og hverjir mýs á Alþingi í framhaldinu.  Þráinn æ þetta átti að vera svo fyndið eins og pislarnir í Fréttablaðinu. 

Niðurstaða mín er ljós.  Eftir þetta spark í rassinn þurfum við sem þjóð að setjast niður og spá í næstu skref.  Rannsóknarnefndin og siðanefndin hafa gefið okkur boltan, og nú ríður á að við höldum vöku okkar og krefjum ráðamenn um að þeir taki mark á því sem hér hefur komið fram.  Heimtum að þau axli´þá ábyrgði sem á þeim hvílir, þeir sem hafa orðið uppvísir að misnotkun á aöstöðu sinni segi af sér, hinir að taka sig á og setji regluverk sem dugir til að svona atburðir endurtaki sig ekki.

Og svona í lokin; NÚ ER KOMIN TÍMI Á STJÓRNLAGAÞINGIÐ SEM OKKUR HEFUR VERIÐ LOFAÐ.  OFT VAR ÞÖRF EN NÚ ER NAUÐSYN.

images

Rís þú unga Íslandsmerki

upp með þúsund radda brag.

P.S. ætlaði eiginlega að súmmera þetta upp þannig að á einum og sama deginum kemur út þessi rannsóknarskýrsla sem óhjákvæmilega mun setja umræður í allt annan farveg en hingað til,

Gosið sennilega búið...

og Gunnar í Krossinum segist ætla að kúvenda, segist hafa alið á fordómum, en ætli nú að breyta  því.  Segiði svo að frú Jónína hafi ekki áhrif. Cool

Enda batnandi mönnum best að lifa í algjörri merkingu þess orði á alla kanta.


Það þarf að veita blaðamönnum bæði stuðning og aðhald. svo smámynd af Tjarnardrottningu.

Mér heyrist ekki betur en verið sé að reyna að koma á ritskoðun og banna umræður um óþægleg mál fyrir suma.  Ég set hér inn pistill frá bloggvinkonu minni Rakel og lýsi því yfir að ég er sammála því sem þarna kemur fram.  Það má aldrei láta sannleikann kyrran liggja og aldrei láta fólk komast upp með að hagræða sannleikanum til að fegra eigin ímynd.  Auðvitað eiga sumir bágt og í tilvistarkreppu vegna eigin afglapa, græðgi og jafnvel heimsku.  En það er til að læra af því bæði fyrir þá og okkur.  Við berum að hluta til ábyrgðina, vegna þess að við notum ekki kosningarrétt okkar eins og við ættum að gera.  Við erum kærulaus, alveg saman eða hlaupum eftir glansmyndum og heitum loforðum, sem aldrei stendur til að efna. Ef við virkilega viljum lýðræði þá verðum við að vanda valið á þeim sem við kjósum yfir okkur, og ekki skyrrast við að refsa þeim sem ekki hagar sér vel og fer ekki eftir því sem þeir segja EFTIR KOSNINGAR.  Þetta hangir nefnilega allt á sömu spýtunni, því vissulega eru núverandi pólitíkusar strengjabrúður útrásarvikinganna, með örfáum undantekningum.  Þetta hefði aldrei gerst ef við hefðum ekki endalaust leyft þessu fólki að vera við völd áratugum saman og þau með áskrift af atkvæðunum okkar.   Nú skulum við segja ALDREI AFTUR. 

http://raksig.blog.is/blog/raksig/

Og svo frá annari Bloggvinkonu Jónu Kolbrúnu.

http://huxa.blog.is/blog/huxa/entry/1040292/

 

En hér er svo ný Tjarnardrottning komin á stjá.  Það er  vor í kúlunni.

IMG_1764

Myndarleg sú stutta og eins og forverar hennar komin á kaf í tjörnina.  Sólveig Hulda gefur hinum ekkert eftir. Heart

IMG_1765

Og áhuginn leynir sér ekki.LoL

IMG_1766

Já það á að prófa að fara oní..... Eins gott að amma sé með augu á hverjum stilk.

IMG_1767

Þeir eru ekki með augun lokuð, heldur er verið að skoða lítin hænsnaunga sem afi kom með neðan úr hænsnakofa.  Já ein hænan var byrjuð að liggja á og nú eru þeir að koma ungarnir.  Vonandi komst þeir á legg litlu greyin. 

En eigið góðan dag elskurnar. Heart


Það liggur svo vel á þessu fólki við jarðarfarir, að það er ótrúlegt.

Ég get alveg skilið að margur eigi erfitt með að meðtaka þessa frétt, og trúa henni.  En ég hef heyrt frásagnir fólks af því þegar það fer og kemur aftur til baka, ekki svona langan tíma en samt.  Ég trúi þessu.  Afi minn sagði mér sögu af því þegar hann var á sjónum og skar sig svo illilega í fingur að honum blæddi næstum út.  Hann sagðist hafa farið í gegnum göng, og séð ljós fyrir endanum á þeim.  En svo heyrði hann kallað á sig, nokkrum sinnum áður en hann ákvað að fara til baka.  Vildi það helst ekki því honum var farið að líða svo vel.  Þegar hann rankaði við sér stóðu skipsfélagar hans yfir honum og voru aðgera að fingrinum.  Skipstjórinn gerði sér grein fyrir að maðurinn var að deyja, greip þá til þess ráðs í örvæntingu sinni að kalla til hans mörgum sinnum, uns hann sneri við.  Frænka mín sagði mér svipaða sögu, en hún lá á sjúkrahúsi, og var í aðgerð, þegar hún lagði af stað í gegnum þessi göng sem svo margir virðast fara í.  Þegar hún var næstum komin að endamörkum, kom faðir hennar og skipaði henni að fara til baka, hennar tími væri einfaldlega ekki komin. 

Það er svo margt sem við getum ekki skilið.  Og þeir sem trúa ekki, vilja helst hlæja og gera grín að þessu.  Oft er þar um að ræða einhverskonar feimni eða ótta við hið óþekkta.  Það verður hver að fá að trúa því sem hann vill.  Enginn getur neytt trú sinni upp á annan.  En ég er bara svo feginn að hafa þessai fullvissu.  Að við lifum eftir jarðneskan dauða, og að ástvinir okkar taki á móti okkur þegar yfir kemur, eða jafnvel reki mann til baka, ef tíminn er ekki kominn.

Það er svo margt sem bendir til þess að enginn fari fyrr en hans tími kemur.  Ekki verður feigum forðað eða ófeigum í hel komið sagði afi minn.  Og hann vissi hvað hann söng.

Ætla að grípa ofan í frásögn hans af jarðarförum.  En þetta var viðtal sem birtist við hann í útvarpinu.  Afi minn er dáinn fyrir mörgum árum, en þessar sögur hafa varðveist, hann sagði mér þær oft á kvöldin, en sumar eru skjalfestar og ég ætla að segja eina hér, líka vegna þess að svo margir eru í sárum núna.

Jarðarfarir.

 Þegar afi talar um að Baldur læknir hafi átt að líta eftir, þá er hann að meina að afi átti til að falla í trans við jarðarfarir og kistulagningar, og Baldur læknir var fenginn til að vera honum til styrktar.  Jakobína er systir Sigurðar Þórðarsonar.     Þá var svo margt…..  Þá sér maður í gegnum fólkið altso eins og ekki neitt.   Sp. Venjulega fólkið?   Já – því að Siggi á Laugabóli hann stóð við kistuna inn í herbergi og eg sat hérna frammi, hann hverfur alveg nema bara svona dimm rauður punktur svona eins og væri í bakinu á honum.  Sem ég sá ekki í gegnum hitt var allt kvorfið.  Ég sagði Sigurði frá þessu á ettir, og þá sagði hann “Helviti ertu slunginn að gegnumlýsa, ég er nefnilegameð skemmd í bakinu” sagði Siggi.   Sp. Nú en olli þetta ekki óþægindum hjá þér undir þessum kringum stæðum?   Þetta voru engin óþægindi, þetta var vellíðan altso mikil bara.   Sp. Þetta verkaði ekki þannig að það væri óþægilegt að sjá þennan auka mannsöfnuð?   Nei nei nei Manni leið bara vel.  Það var bara mest hættan á því að ég félli í trans eða eitthvað svoleiðis. Þarna á Rauðamýri t.d. þá var Baldur læknir, hann átti að líta eftir og við urðum að vera  frammi, hann hafði mig fyrir framan altso ekki í stofunni, en það var alveg sama það var fullt þar alveg hreint af fólki.  Þar lýsti ég tveimur eða þremur konum sem komu og Jakobína þekkti þær.  Það hefði verið systir Sóleyjar eftir því sem hún sagði. Salome minnir min hún nefndi hana, og einhver önnur stelpa, hún þekkti það allt samant ettir því sem ég gat lýst því.  Það er alveg ósköp af fólki við jarðarfarir.  Sp. Og hvernig er svona svipur þess og svipbrigði, hvernig er útlit þessa fólks er það ánægjulegt eða alvarlegt eða hvað?   Það liggur svo vel á þessu fólki við jarðarfarir, að það er ótrúlegt.  Sp.  Það er engin sorgarblær?    Nei nei það er langt frá því að það sé með sorg eða sút svoleiðis.  Það er náttúrulega misjafnt.  Það er alvarlegt svona svoleiðis sumt, engin sorg sem að maður getur greint  Það er ómögulegt hjá mér að muna ártöl eða ár eða svoleiðis.  Það var t.d. hérna hann Júlíus faðir hans Þórðar.  Hann var hroðalega vantrúaður á þetta að það væri svona til. Svo þegar Guðrún heitin konan hans deyr, þá lýsi ég fyrir honum tveimur manneskjum sem mest bar á þarna, og það hitti þá svo á að annar,  maðurinn, það er faðir hans.  Hann sagðist nú halda það að það væri ekki hægt að lýsa pabba sínum betur en ég gerði.  “Ég hélt ég væri búinn að koma honum svo fyrir “ sagði hann.  Því hann hafði verið svo áberandi, fyrst eftir að hann dó.  Það var svo mikill misskilningur hjá honum.  Hann hefur bara fylgt honum hinseginn. Svo t.d. það var óvéfengjanlegt þegar hún Sigríður heitinn konan hans Finnbjarnar dó.  Þegar var verið að halda húskveðjuna niðurfrá.  Þá er þar bara margt fólk og það er sérstaklega tvær persónur… eða aðallega einn maður- karlmaðurinn sem að mest bar á, og hann alveg eins og sagði mér eða eitthvað svona að hann yrði leiðbeindandi hennar, eða eitthvað svoleiðis.  Og það er þessum manni sem að ég gat lýst svo vel, og það er dálítið athugavert við það sko.  Þegar ég er búinn að lýsa honum, ég talaði fyrst við son hans Finnbjarnar hann Bjössa, og hann segir mér það að það séu hérna systur hennar, og hann ætlar að tala við þær, og hvort hann megi ekki koma með þær inn til mín.  Jú jú sagði ég, að það væri best að það væru fleiri svoleiðis, og önnur systirin biður mig að lýsa manningum, hvurning hann hafi verið, ég segi henni það, og lýsi honum alveg eins og hann var. Og hann hafi verið með skegg svona alskegg en svo fjarskalega snyrtilega til haft, það var ekkert sítt hér niður á bringu, heldur bara rúnnað svona fyrir og afskaplega kátur svona maður að sjá hann eins og hann væri hrókur alls fagnaðar.  Þá segir hún að þetta passi svo fjarskalega vel við hann afa sinn, en konunni sem ég lýsi með honum, getur hún alls ekki áttað sig á. Hún segir að geti geti passað með afa sinn,  en það sé bara það að afi sinn hafi verið með alskegg niður á bringu, svoleiðis, hann hafi verið með rauðleitt skegg alveg niður á bringu  En þetta var farið að grána mikið, svona í þessu skeggi á þessum manni og hárið.   Sem sagt orðin vel gráhærður eins og þú ert núna.  Og þá segir Bjössi; að hún mamma sín eigi… hafi átt einhversstaðar mynd af fjölskyldunni, afa sínum og konunni, hann geti fundið hana upp í svefnherberginu hennar.  Hann sé alveg viss.  Hann fer upp strákurinn og fer að leita og kemur svo með myndina.  Er það þá ekki merkilegt, hann er með klippt skeggið, en þetta er ekki konan segi ég.  Þetta er ekki konan sem var með honum.  Þá datt alveg ofan yfir þær, því þetta var amma þeirra.  En þá hafði hann verið giftur áður karlinn.  Og það var til mynd af þeirri konu líka með honum.  Það var hún sem var með honum.  Það var eins og þær yrðu altso skúffaðar við það.  Af því það var hún, en ekki amma þeirra sem kom með honum.  En ég sagði við Bjössa að nú vissi hann að ég hefði sagt honum satt og lýst manninum og ég hefði sagt honum að maðurinn væri ekki með alskegg ofan á bringu, en hann væri með alskegg.  Alskegg en það var snyrtilega fallega haft til.  Og myndin sýndi að hann var eins og ég sagði.  Það get ég svarið að ég hafði aldrei séð þessa mynd fyrr. Nokkurntíma.  Þetta var alveg óhrekjandi.   Sp. já úr því þetta var borið svona saman fram og til baka, og finna mynd sem einmitt sýndi þetta alveg.  Því systirinn hefði getað haldið fast við það að hann hefi verið með sítt skegg niður á bringu.   Hún sagði það.  Hún mundi ekki eftir honum öðruvísi.  Hún sagði að þetta hefði hann áreiðanlega gert upp á síðkastið. Því hann hefði verið með mikið skegg.  Og það passaði alveg að hann hefði verið með rauðleitt hár eða slegið rauðleitum lit á, og var orðin minna gráhærður samt á skeggið heldur en hárið.  Mikið af hvítum hárum í því, en auðséð það hefði verið rauðleitt.  Eitthvað er það að maður skuli geta lýst þessu svona, ef þetta væri nú ekki til.  Sp. Já það væri nú undarlegt ef það brygði svoleiðis fyrir að það það væri hægt að lýsa því og svo passaði það við raunveruleikann.    Það var alveg óhrekjanlegt þarna. Ég veit þau myndu öll kannast við það að ég hefði stíft haldið því fram að hann væri ekki með skegg niður á bringu heldur laglega snyrt skegg.  Afskaplega laglega og fallega hirt skegg.   

Þetta er ritað með orðfari afa mín, enda skrifað upp heftir honum sjálfum.  Vona að þetta sýni einhverjum að það er svo margt til sem ekki er hægt að afneita.

Eigið gott kvöld elskurnar. Heart

 


mbl.is Hitti langömmu á himnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir og fleira.

Nokkrar myndir, ég er frekar andlaust þessa dagana, og reyni að nota tímann til að vera í moldinni, það friðar sálina mikið.

IMG_1751

Bestu vinir.

IMG_1752

Veðrið var fallegt i morgun, og sólarglætan lofaði góðu.

IMG_1754

Enda braust hún svo fram sólin og skín við Ísafirði.

IMG_1755

Þetta er svona tíminn sem er farið að vera notalegt í garðskálanum.

IMG_1756

Og sú stutta í fyrsta skipti að upplifa vor í kúlunni.

IMG_1760

Það er líka gott að hafa mömmu nálægt.

_Z1F0404

Nokkrar myndir af stelpunum mínum í Vín.  Hér eru þær í hesthúsunum.

_Z1F0407

Það þarf að klappa þeim.

_Z1F0411

Og gefa þeim að borða, Ásthildur er alltaf svo dugleg og gerir allt af fullum krafti.

_Z1F0414

Hér er svo grís, ekki svona aligrís sýnist mér heldur svona ekta náttúrgrís.

_Z1F0528

ég er viss um að hér er mamma að segja þeim rammíslenska draugasögu LoL

_Z1F0545

Og dansinn dunar. Heart

_Z1F0563

Ekki eru tilþrifin minni hér Heart

En við erum við sjálf hvar sem við erum.  Við höfum horft upp á grimmd manneskjunnar nýlega, ég hef að vísu ekki treyst mér til að setja mig inn í hryllinginn, þegar bandarískir hermenn léku sér að því að myrða saklaust fólk og virtust hafa gaman af.  Maður spyr sig hvað er í gangi í hausnum á svona fólki, er það æfingarnar og herðingin í herbúðum sem fer svona með menn, eða eru þeir virkilega svona illa gerðir frá náttúrunnar hendi?  Slæmt ef verið er að æfa upp stríðsvélar en ekki þjálfa menn til að takast á við erfið verkefni.

En maðurinn er jú eitt gráðugasta, spilltasta og versta dýr jarðarinnar.  Sumir segja það gáfaðasta líka, en ég verð nú eiginlega að segja að ég tek ekki undir það.  Apagangur fólks upp við gosstöðvarnar undanfarið er eiginlega frekar merki um heimsku en okkuð annað.  Að það skuli þurfa tugi manna bara til að passa upp á og reyna að vísa fólki úr mestu hættunni, og þó ryðst það upp á hraunbreiðurnar; af því það dúar svo skemmtilega.   Það er auðvitað ekki í lagi með fólk.

Enda var spurning hvenær en ekkei hvort eitthvað alvarlegt gerðist, eins og raunin varð á.  Ég vil enda þetta með því að senda aðstandendum þeirra sem urðu úti upp á fjöllum mínar innilegustu samúðarkveðjur og jafnframt óska þess að þetta verði öðrum víti til varnaðar.  Íslensk veðrátta og náttúra er ekkert til að leika sér með að umgangast með léttúð.  Það hefur sýnt sig oftar en einu sinni að það er dauðans alvara.

Verð eiginlega að enda þetta með því að segja að ef þessi jörð á að komast af, þarf þessi Guð sem drap öll börnin og dýrin hér um árið, að eyða öllum miðaldra karlkyns ráðamönnum þessa heims, svo von sé til að spilling, stríðsleikir, barnaníð og annað ógeðfellt hætti. 

Eigið góðan dag elskurnar. Heart


Hitt og þetta frá mér til ykkar.

Þegar ég var krýnd Ára 2007 í keppni kennd við óbeislaða fegurð þar sem reyndar allir þáttakendur voru verðlaunaðir ríkulega.  Allt í boði Matthildar Helga og Jónudóttur og félaga, kom hingað blaðakona frá Þýskalandi sem átti við mig viðtal.  Og í dag kom hún aftur í heimsókn, hafði dvalist á Flateyri nokkra daga og ætlar að vera hér í mánuð, og skrifa bók um íslendinga, og vildi fá viðtal.  Við mæltum okkur mót kl. eitt.  En veðrið hér var bara svona ekta íslenskt vetrarveður í dag, og þegar klukkan var orðin nánast hálf tvö, og þekkjandi þýska nákvæmdi taldi ég að hún kæmi ekki.  En um það leyti hrundi hún inn úr dyrunum full af snjó og skínandi ánægð með veðrið.  Og hér sátum við í fleiri klukkutíma talandi um allt milli himins og jarðar.

Hún ætlar sér að skrifa um íslendinga og þeirra sjálfstæði í hugsun og atferli, sem henni líkar mjög vel.  Hún segir eins og reyndar margir sem ég hef kynnst í öðrum þjóðum, að við séum frjálsari og opnari en aðrar þjóðir.  Og hún vill skrifa um íslendinga og reyna að ná því sem hún dáist að í okkar þjóðarsál og reyna að opna þjóðverja til umhugsunar um það frelsi hugans sem hér ríkir. Við spjölluðum um krísuna sem við erum i í dag, og bara um allt sem við eigum og höfum.  Og við eigum svo margt sem við getum gefið öðrum þjóðum.

Ég hef kynnst mörgu frábæru fólki frá ótal löndum, sem hafa komið hingað til mín, haft af mér spurnir, eða bara komið til að ræða við mig um lífið og tilveruna og mér finnst það frábært, til dæmis eins og Matt frá Bandaríkjunum, http://focuswestfjords.com/people/asthildur_thordardottir/

Við eigum svo margt að gefa bara með því að vera frjálsir einstaklingar, bara ef við þyrðum að viðurkenna það og skilja að, að svo mörgu leyti erum við einstök. Þeir sem hafa dvalið meðal annara þjóða vita þetta, eða eins og sagt er heimsk er heimalalið barn.  Að með því að dvelja meðal annara þjóða skiljum við betur hvað í okkur býr.

IMG_1749

Hér er hún þessi yndislega blaðakona og rithöfundur sem ætlar að gefa út bók um íslendinga fyrir þjóðverja, til að leiða þeim fyrir sjónir the qualti of live.  Sem við flest okkar gerum okkur ekki grein fyrir.

IMG_1745

Hér er svo Skaftason að klippa reðurtáknið í garðskálanum.

IMG_1746

Fólk kemur og segir er þetta ekta eða plast LoL

IMG_1747

Tók ekki veðrið í dag, en svona var það í gær, þegar flestir gestirnir kvöddu Ísafjörð.

IMG_1748

ég held að ég geti svarið að flesta mánudaga annan í páskum sé veðrið einmitt svona, svo gestirnir gleymi ekki hve fallegt það er á páskum á Ísafirði.

IMG_1750

Skottið hennar ömmu sín og ég fékk ótal ömmuknús í dag frá henni, svo innileg og yndæl.


Nokkrar myndir frá Vín.

Nokkrar myndir frá stelpunum okkar.

_Z1F0012

Áður en þær fóru frá Íslandi, alltaf jafn kátar og hressar.

_Z1F0059

Komin til Vínar.

_Z1F0060

Hanna Sól hefur ekki gleymt neinu.

_Z1F0071

Gaman gaman.

_Z1F0234

Sæt og fín.

_Z1F0249

Prinsessa.

_Z1F0247

Og þær hafa ekki gleymt að dansa.  Heart

_Z1F0290

Eins og sést eru þetta myndir frá Báru minni og Bjarka.  En stelpurnar eru glaðar og ánægðar þær fara á skíði hestbak og margt annað skemmtilegt. 

Eigið góðan dag elskurnar, hér er blindbylur og ég hef ekki farið út.  En var samt í blaðaviðtali við þýska blaðakonu sem er að skrifa bók um Ísland og íslendinga.  Segi meira frá því síðar. Heart


Til hamingju með afmælið Sóley Ebba mín.

Ég veit ekki hve mörg ár eru síðan hún kom inn í fjölskylduna, en ég hafði fylgst með móður hennar lengi.  Efttir því sem ég kynntist henni betur, því vænna þótti mér um þessa hæfileikaríku fallegu stelpu.

Ferd í fermingu Arons. 194

Og nú á hún 13 ára afmæli orðin táningur eins og Úlfurinn og Júlíana Lind.  Táningur, stórt skref.

Börn og hundur

Í Fljótavíkinni.

Ferd í fermingu Arons. 181

Heitapottinum hjá ömmu.

IMG_0884

Með Júliönu í Kúlunni.

IMG_0651

 

IMG_2785

Með mömmu sinni og Evítu Cesil á leið til Fljótavíkur.

IMG_2912

Þar var hægt að una sér mikið. 

IMG_4167

Hún hefur einstaka músikhæfileika, og getur spilað á nánast hvað sem er.

IMG_4243

Með mömmu sinni og Símoni Degi.  Þær mæðgur hafa alltaf verið nánar, enda fékk hún aldrei að hitta pabba sinn, þar sem hann var dáinn áður en hún fæddist.  Það er erfitt að bera.

IMG_4665

Á tónleikum þegar hún var valin ásamt þremur öðrum úr tónlistarskóla Ísafjarðar til að taka þátt í píanókeppni.

IMG_5478

Að óska sér út af fjögurra laufa smára.

IMG_6280

Mömmuknús.

Innilega til hamingju með afmælið Sóley Ebba mín.


Sonur minn lifir.

Undanfarið hefur mér liðið undarlega.  Það er svona ljúfsár tilfinning, bæði sorg en samt einhver innri gleði líka.  Gleðin er vegna þess að ég veit að sonur minn lifir.  Hann lifir en er farin þangað sem ég get ekki heimsótt hann, en hann kemur til mín.  Ég bæði finn það sjálf og svo fæ ég líka kveðju frá honum gegnum aðra.  Það þykir mér vænt um. 

Þetta byrjaði fyrir alvöru þegar mig dreymdi drauminn sem var fyrirboði slyssins á litla barnabarninu mínu honum Símoni Dag og skilaboðin frá Júlla mínum um aloe vera plöntuna og notkun hennar á brunasár.  Sagði frá því hér: http://asthildurcesil.blog.is/admin/blog/?entry_id=1033348

Ég hef oft fundið fyrir nálægð hans og veit að honum líður ekki vel yfir sorg minni.  En við getum hvorugt gert neitt í því.  Það verður bara að hafa sinn gang.  En mér líður vel með að vita af honum, og vita að honum líður vel og að hann lifir fallegu lífi við að hjálpa öðrum, rétt eins og hann gerði meðan hann var hér.

En síðan mig dreymdi þennan draum, hef ég einhvernveginn orðið vissari í minni sök með nálægð hans.  Og þess vegna er ég glöð inn í mér.  Það er gleði sem er eins og ljós.  Skín inn í mér og lætur mér líða betur.  Ég hitti konu í gær sem flutti mér skilaboð frá honum og staðfesti reyndar það sem ég sjálf vissi innst inni. 

Við ræddum líka um það hvernig aðstandendur sem farnir eru safnast saman til að taka á móti þeim sem fer.  Þetta hef ég upplifað nokkrum sinnum hjá þeim sem farnir eru.  Þau sjá ástvini og eru jafnvel farin að tala til þeirra rétt fyrir andlátið, eins og þau séu á mörkunum og viti varla hvoru meginn þau eru. 

Afi minn heitinn sá þetta vel, þegar hann fór í jarðarfarir, hann sagði mér oft frá því, hann sá kirkjugestina, prestinn og kistuna, en þar handan við voru þeir ættingjar sem tóku á móti þeim sem var að skipta um stað.  Hann sagði mér líka að gömlu konurnar í sveitinni komu í langan tíma í kirkju og jarðarfarir eftir að þær yfirgáfu þessa jarðvist.  Þær vor fyrst eins og þær voru upprunalega, en svo smám saman þynntust þær út, þar til þær sáust varla lengur og hurfu svo alveg.  Þá voru skiptin orðin raunveruleg, og þær sáttar við að fara þangað sem þeim var ætla.

Júlli minn þurfti ekki svona langan tíma, hann var kallaður í sérverkefni.

Yngsti sonur minn Skafti er að fara til Noregs, þá eru þau öll farin til útlanda börnin mín, nema Rolando.

Ég veit ekki hvort ég get heimsótt þau eins og ástandið er í dag.  En ég veit af þeim og get fylgst með þeim á netinu og í gegnum símann.  Með Júlla minn þarf ég innsæið til að hafa samband.  Það er í sjálfu sér ekkert óraunhæfara en síminn og netið.  En maður þarf að hafa trú á því að skilaboðin og tilfinningin sé rétt.  Og þannig er það með mig.   Það er gott að geta sagt upphátt og trúað því sjálf, sonur minn lifir.  Heart

IMG_3549


Mugison og Mugipapa og allar hljómsveitirnar á Aldrei fór ég suður.

Sit hér og hlusta á Aldrei fór ég suður hátíðina og er að dást að skipulagningunni, svona er prógrammið í dag.

Klikkhausarnir
Tom Matthews band
Ugly Alex
Jitney boys
Geirfuglarnir
Stjörnuryk
Mc Ísaksen
Kortér í þrjú!
Biogen
Sigríður Thorlacius
Yxna
Biggi Bix
Rúnar Þór
Hjaltalín
Orphic Oxtra
Sólinn frá Sandgerði
URMULL
Dikta
BlazRoca, Sesar A og Dj Kocoon
Nine elevens

Hlusaði á minn gamla við Rúnar Þór og hugsaði af hverju í andskotanum hafði ég ekki samband við hann og fékk að fara með honum á sviðið... nei ég er orðin of út úr þessu núna.  Hefði samt haft gaman af því. 

Núna er þessi Sól frá Sandgerði að spila, svo kemur Urmull og Dikta, Nine Elevens eru strákarnir okkar.  En ég sagðist vera að dást að skipulagningunni.  það er ótrúlega flott að verða vitni að þessari uppákomu, og hve allt fer vel fram og hve allir eru ánægðir, Mugison og Mugipaba og allir sem hafa hjálpað til og auðvitað líka Hálfdán Bjarka, þið eruð hetjur, það er ótrúlega mikið mál að skipuleggja svona uppákomu og hafa hana svona hnökralausa eins og reyndin er. 

Stubburinn minn kom heim alsæll með allskonar átograf frægra poppara, áritaða trommukjuða frá trommaranum í Dikta og margt fleira skemmtilegt. 

Þið eru svo sannarlega hetur og mig langar til að þakka ykkur innilega fyrir að standa í þessu streði og gera það svona rosalega vel.  Og hér fáið þið rós og hrós frá mér.

Rosir

 

  

Gleðilega hátíð


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2010
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2023321

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband