Elli býður í mat.

Smá léttmeti svo fólkið mitt sem vill bara vill sjá myndir.

IMG_0619

Bræður munu berjast. 

IMG_0620

Og Sigurjón gefur afa að smakka snjódjús, ný uppfinning þeirra bræðra.

IMG_0621

Hann er ekki lengur smábarn þessi elska, hann er að þroskast í svona töffarastrák.

IMG_0622

Falleg  og frábær systkin.

IMG_0624

En svo gerðist dálítið alveg nýtt á mínu heimili.  Elli bauð í mat sem hann eldaði alveg sjálfur.

IMG_0626

Þetta var frábær kjúklingaréttur sem hann hafði fengið uppskrift af hjá vini sínum.

IMG_0633

Minn karl var búin að kaupa dúk á borðið og svo var kertaljós og alles.

IMG_0634

Svo bauð hann okkur Siggu í mat, og þetta var æðislega gott nammi namm.

IMG_0635

Ég held að allt sem hann gerir, geri hann vel.  En við áttum þarna virkilega yndislega stund í góðum félagsskap hvors annar og góðan mat.

IMG_0629

Og svo er litli maðurinn búin að troða sér upp á fataskáp. LoLHeart

Eigið góðan dag.  Hér er yndislegt veður, logn og hitinn fyrir ofan núllið.  Sannkölluð dýrð.


Hversu miklir sauðir ætlum við að vera þann 9. apríl 2011?

Icesave, Iceslave, Byslave... það verður eiginlega léttir þegar þessu verður aflokið, í bili, en það er alveg ljóst að með hvorki jái nei neii verður þessi umræða búin.  Þá fyrst kemur til kasta ríkisstjórna og ríkisbubba að fara í málaferli og aðfararbeiðnir og ég veit ekki hvað. Hvar sem það nú endar, þá er eitt sem er alveg ljós klárt, ef við samþykkjum þá er kominn ríkisábyrgð á allt heila klabbið, þá höfum við lagt hausinn að veði og veðsett framtíðina, með opnum óútfylltum víxli.  Það er ekki góð tilfinning.

Ég verð eiginlega að segja að sá lífróður sem stjórnvöld og forysta sjálfstæðismanna rær þessa dagana, segir mér að það sé óhreint mjöl í pokahorninu.  Þarna er eitthvað á ferðinni sem ekki þolir dagsljósið og upp á borðum.  Getur það verið að stjórnvöld hafi gefið bretum og hollendingum loforð um að Icesave yrði samþykkt til að þeir tækju í mál að veita aðlögunarferli ESB jáyrði sín?  Allavega tek ég eftir því að það er endalaust undirliggjandi hótun frá þeim um að við komumst ekki inn í ESB ef Icesave verði hafnað.

Fólk um allan heim fylgist með okkur, og vona margir að við segjum nei.  Það er prinsipp mál því ef við játumst undir ríkisábyrgð á skuldir bankamanna, þá verður baráttan ennþá lengri og hatrammari annarsstaðar.  Málið er nefnilega að svo virðist vera að peningaöflin stjórni ríkisstjórnum, standi á bak við plottinn og verðlauni þá sem vinna hvað best í þeirra þágu.  EKkert minna hér en heimsyfirráð eða dauði. 

Þetta eru stór orð, en eru þau svo vitlaus?  Við höfum horft upp á stórfelda þjófnaði banka og fjármálafyrirtækja um allan heim, allstaðar hafa ríkisstjórnirnar hugsað meira um að bjarga bönkunum en fólkinu í löndunum.  Nú síðar á Írlandi.  Bankar og banksterar eru ósnertanlegir, meðan fólki fær að borga brúsann.  Við sjáum þetta allstaðar, og vitum, finnum á eigin skinni.

Og nú er svo komið að það á að rannsaka Icesave og Landsbankann hvort hér hafi átt sér stað stórfelldur þjófnaður. Það kemur okkur ekkert á óvart, en hvað ætla stjórnvöld að gera?  Réttast væri að fresta atkvæðagreiðslunni þangað til ljóst verður lagalega séð að stærsta bankarán okkar sögu hefur verið framið áður en við samþykkjum að axla ábyrgð á þjófnaðinum. 

Ef stjórnvöld bregðast ekki við með þeim hætti, þá er ljóst að eitthvað annað en hagur þjóðarinnar er þeim í huga.  Þá er næstum hægt að fullyrða að ESBdraumurinn sé það sem hangi  á spýtunni, og ef svo er, þá er það ekkert annað en landráð og svik við þjóðina. 

Ég er hrædd um að við séum að díla við heimsklíku, sem ætlar sér að komst yfir jörðina okkar, og það sé græðgin sem stjórnar.  Nú halda menn að ég sé orðin vitlaus. En ef við spáum aðeins í það, þá sést að allt ber þetta að sama brunni, og samtryggingin er algjör.  Málið er að þess vegna horfir fólk í áttina til okkar og vonar að við þessi litla þjóð segi Nei og stoppi þar með hringavitleysuna.  Segi hingað og ekki lengra.  Við erum ef til vill eina þjóðin sem getur gert það, því við getum næstum því framfleytt okkur sjálf.  Eigum vatnið, fiskin, landbúnaðinn, orkuna bæði í heitu vatni og vatnsföllum.

Nú veit ég að ég hljóma eins og dómsdagsprestur, en sannleikurinn er svo alltof oft ótrúlegri en lyginn. 

Þetta er eitthvað sem ég skynja, og þess vegna er mér afar mikilvægt að Neii verði ofan á þann 9. apríl n.k. Ég veit að ég á í sjálfu sér ekki svo mikilla hagsmuna að gæta, er að komst á eftirlaun og get lifað af litlu.  En ég vil að börnin mín og barnabörnin komi heim aftur, vegna þess að það sé hægt að lifa hér.  En velji ekki að hætta viðað koma heim í okkar skuldsetta ríki þegar stjórþjóðir fara að skipta á milli sín gæðunum eins og hrægammar, rétt eins og þau hafa gert í þriðjaheimslöndum.  Við verðum ekkert betur sett en það. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]

Í gamla daga voru nornir brenndar á báli vegna þess að fólk var hrætt við þær, þetta voru konur sem kunnu eitthvað fyrir sér, voru næmar og skynjuðu hluti sem ekki aðrir gátu hönd á fest.  Vissulega er örvænting já-sinna orðin svo mikil að þau reyna allt til að setja út á málflutning Nei-sinna, reyna að gera grín að þeim, tala niður til þeirra og heimta súlurit og rökstuðning.  Hvorki  súlurit og rökstuðningur eru neins virði ef grunnurinn er rangur.  Það ættu menn að hafa í huga.  Samanber sjávarútvegskerfi okkar, þar sem sjómönnum er gert að henda þorski til að geta veitt Hrognkelsa af því þeir hafa ekki kvóta í þorski, einhverjir EIGA fiskinni í sjónum og meðan þjóðin á varla fyrir mat þ.e. sumir, þá henda sjómenn fiski í stórum stíl útbyrðis.  Vitleysan ríður ekki við einteyming.  Þess vegna er hægt að trúa öllu upp á ráðamenn sem láta slíkt viðgangast í áratugi.

Og viljum við láta þetta allt yfir okkur ganga? Ég segi NEI hingað og ekki lengra, Nei við Icesave og Nei við fiskveiðistjórnunarkerfinu.  Hafró veldur ekki þessu hlutverki sínu þeir mættu hlusta á Jón Kristjánsson sjávarútvegslíffræðing, hann sem hefur verið Færeyingum til halds og trausts eftir að þeir hentu íslensku leiðinni út á hafsauga, sem var að eyðileggja fiskimiðinn þeirra og efnahag.  Og það má spyrja hvað hefur fiskveiðistjórnunarkerfið með þetta að gera?  Jú þar er nákvæmlega sama spillinginn og lygin, og hótanir út og suður ef ekki verður farið að vilja þeirra sem hafa hertekið fiskimiðinn okkar og þar með átt stóran þátt í að eyða byggðum landsins, eða lama þau svo að sárt er að horfa upp á. Og þeir hafa keypt sér fjölmiðla til að ráða umræðunni, nákvæmlega eins og verið er að gera í dag, með þessum þungaáróðri margra fjölmiðla m.a. ríkisútvarpsins sem titlar sig fjölmiðil allra landsmanna, en þjónar fyrst og fremst ráðamönnum í hvert sinn.


mbl.is Icesave-hópar stækka ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á skíðum skemmti ég mér.

Ég fór út að skemmta mér í gær. Var boðið að koma með á frumsýningu á söngleiknum Á skíðum skemmti ég mér í uppsetningu Elvars Loga fyrir Litla Leikkklúbbinn. 

Á skíðum skemmtiég mér.

Leikritið verður sýnt fram yfir páska, svo það er góður tími til að skella sér út eitt kvöld og hlæja og skemmta sér í Edinborgarhúsinu.  Þar er raðað upp stólum og borðum og hægt að vera með "léttar veitingar" meðan á sýningu stendur. Ósköp notalegt.

Ég tók nokkrar myndir en verð að biðjast afsökunnar á gæðum þeirra, því í raun og veru var bannað að taka myndir, svo ekki mátti nota flash og þær eru ekki í hæsta eða neitt nálægt því gæðaflokki. InLove

En málið er að þær sýna leikgleðina og kátínuna sem leikendu okkur áhorfendum, og fengu fólk til að standa upp og klappa og dilla sér.

IMG_0547

Veðrið hefur leikið við okkur og okkur finnst vorið virkilega vera handan við hornið.

IMG_0549

Við hittumst nokkur í heimahúsi áður en farið var á leiksýninguna, hér er Guðbjörg mágkona sem stóð í ströngu við mat ásamt Önnu Margréti, þar sem við hittumst.  Guðrún Jóhanns í djúpum pælingum við Guðbjörgu ætli þær séu ekki að spá í hvort það sé nægilegur maturLoL

IMG_0551

Íhugull leikstjórinn, örugglega að fara yfir öll atriðin, svona fyrirfram, hvort eitthvað hafi nú gleymst og svona.  Leikstjórar eru nefnilega ekkert minna stressaðir en leikararnir á frumsýningu.

IMG_0554

Tók þessar skemmtilegu myndir af svölum í Mjallargötu. Skátaheimilið hér beint framundan.

IMG_0555

Gamla apótekið sem búið er að gera upp og þar eru nú íbúðir, sannkölluð bæjarprýði.

IMG_0556

Og nýtt sjónarhorn af Erninum.

IMG_0561

Að öllum öðrum ólöstuðum var hljómsveitin algjörlega frábær.

IMG_0565

Sviðsmyndin var einföld og stílhrein og allt gekk upp með hana.  Sem og allar inn og útgöngur leikara.

IMG_0574

Búningar voru líka líflegir og skemmtilegir.

IMG_0576

Og frammistaða leikara yfirleitt góð.  Sum atriði voru hreinlega drepfyndin.

IMG_0577

Leikararnir komust vel frá sínu, og átti allir góða spretti.

IMG_0584

Þetta er auðvitað farsi og ýkt leiktilbrigði en svoleiðis átti það einmitt að vera.

IMG_0589

Ég skemmti mér afar vel, þau notuðu líka salinn stundum sem var bara af hinu góða. 

IMG_0600

Maria Isabel sungin af krafti.

IMG_0603

Leikgleðin skín úr út leikurunum.  Þeir smituðu allan salinn með gleði sinni.

IMG_0606

Og það var líka gaman eftir sýninguna hjá þeim að ná sér niður aftur.

IMG_0607

Eftir vel unnið verk.

IMG_0609

Já þetta var frábær skemmtun. 

Það voru smáatriði sem má finna að að mínu mati.  Sýninginn stóð yfirleitt vel allt kvöldið, en einstaka sinnum datt hún svolítið niður og missti marks.  Annað sem ég vil segja að sumir söngvaranna hefðu mátt fá tilsögn í söng, auðvitað eru frumsýning alltaf þannig að menn eru nervusir.  En þarna hefði mátt slípa betur.

En það er bara smáræði miðað við þessa gleði og skemmtun sem fór fram í gær.  Og ég hvet fólk til að fara og hlægja og skemmta sér á þessum leiðinlegu tímum, þá er ekki vanþörf á að hlæja hátt og innilega og gleyma sér hreinlega.

IMG_0615

Ég varð að hafa þessa með LoL Myndinni var smellt af í augnabliksstundu.  Eitt af þessum mómentum sem bara koma einu sinni.

IMG_0613

En ég fékk leikhópinn til að stilla sér upp eftir sýninguna.

IMG_0616

Innilega takk fyrir mig elskurnar, þetta er sýning sem virkilega er nauðsynlegt að fara á og hlæja. 

Biðst aftur afsökunnar á myndgæðunum, þau eru bara eins og þau eru. Heart

Langar líka að geta þess að þau voru margklöppuð upp, og salurinn bókstaflega logaði af fjöri þegar sýningunni lauk.


Ruth Tryggvason

Ruth Tryggvason verður jarðsett í dag.  Það verður skarð fyrir skyldi að missa þessa elsksulegu og fallegu konu úr samfélaginu okkar.  Hún var baráttukona á sinn hátt og stýrði fínu fyrirtæki Gamla bakaríinu af reisn og myndarskap.  Enda er Gamla bakaríið þekkt langt út fyrir Ísafjörð og Ísland.  Eina sem maður huggar sig við er að Ruth er nú orðin engill og hefur sameinast eiginmanni á ný.

Ruth Tryggvason2-1

Ruth hefði orðið níræð þann 16. maí næstkomandi.  En það sást ekki á þessari flottu konu, hún var alltaf jafn glæsileg og falleg, og það geislaði af henni.

Ruth Tryggvason2

Það muna örugglega margir eftir henni bak við búðarborðið í Gamla.  En hún átti líka sumarbústað inn í Tunguskógi þar sem hún undir sér á sumrin, hafði mikinn áhuga á að rækta garðinn sinn vel og planta trjám og blómum.  Hún kom oft til mín upp í garðplöntustöð og var að ráðleggja mér, hafði áhyggjur af að mér gengi ekki nógu vel.  En svona var hún alltaf, hún lifði lífi sínu lifandi og naut hvers dags allt þangað til hún fór.

Ruth Tryggvason

Hér er hún í áttærðisafmæli pabba mín í samræðum við bróður minn Jón Ólaf.

Elsku Ruth mín, þakka þér fyrir allt, þín verður sárt saknað, sem betur fer eru tvö af börnum þínum sem bera Gamla bakaríið áfram, þau María og Árni. Glæsilegir fulltrúar þínir.

Ég vil þakka þér og Maju fyrir allan góðviljan sem þið sýnduð Júlla mínum, færðuð honum te og kökur út á torgið þegar hann var að selja steinana sína.  Ég vil þakka þér fyrir að hafa valið Ísafjörð til að eyða ævinni, og gefa okkur ánægjulega samveru. 

Kæra Ruth Tryggvason blessuð sé minning þín.


Ég um mig frá mér til mín.

Ég um mig frá mér til mín.LoL

Ég er að fara yfir myndir sem ég á í þúsundatali, þarf að skanna þær inn og raða niður, það er ógnardjobb.  Ætla samt að fara rólega í það og nota frekar veturinn næsta til þess, nú fer heldur betur að verða mikið að gera hjá mér.  Priklunin að byrja og svo er stubburinn að fermast í Apríl, já litla barnið mitt vill fermast, honum var boðið borgaraleg ferming eða Ásatrú, en hann sat við sinn keyp og fær auðvitað að ráða því. En drottinn minn þvílíkt umstang um eina fermingu, og svo margt að huga að. 

En þetta mjakast allt saman smátt og smátt.

Mottumars

Þetta er auðvitað mottumars Tounge

Ég aftur

Þessi er tekin á jólum sautján hundruð og súrkál.

Ég.

Úti að borða maður minn....

Gamlar myndir 24.3.11b

Með frumburðinum.

Vigdís

Elskulega vinkona mín Vigdís í Hofi í Vatnsdal, valkyrja og hetja.  Mikil ræktunarkona og hefur ræktað heilan skóg í kring um sig. Og svo býr hún í Kúluhúsi eins og ég.

á skralli

Á leiðinni á djamm.

Gamlar myndir 24.3.11bb

Svo er líka gott að lúra LoL

Að spila

O boy, klósett tónleikar, Úlfurinn og afinn að æfa saman lag.

K´ðulukrakkar

Þessi mynd er því miður dálítið skemmd, en þetta eru kúlubörn í fyrsta holli. Það er að segja barnabörnin hennar mömmu, sama málið þar. 

Hafdís Jón og Gunnar Atli Gunnarsbörn, Geiri og Sunneva Dóru börn og Skafti.  Ætli sé hægt að laga svona skemmdir?

Húsið er að gráta

Þetta er hið eina sanna hús sem grætur með Helga Björns; Húsið er að gráta alveg eins og ég, þarna bjó hann og samdi ljóðið um þetta hús, svo var það flutt inn í fjörð.

IMG_0542

En veðrið hefur leikið við okkur undanfarið.

IMG_0543

Allt svo hreint og bjart, hvítur snjór og sól.

IMG_0545

Og ég held að það séu um milljón fuglar í garðinum mínum, sem koma um leið og þeir sjá mig birtast, og sitja í öllum trjám og syngja fyrir mig.

IMG_0546

Enda hef ég mokað í þá mat undanfarið, og ég elska að horfa á þá þyrpast að og borða af græðgi. 

En ég læt þessari myndaseríu lokið og vona að þið hafið smá gaman af.  Á morgun ætla ég að fara á frumsýningu á nýrri skemmtun sem heitir Á skíðum skemmti ég mér, ég ætla að taka myndavélina með og mun örugglega reyna að setja eitthvað inn skemmtilegt eftir það. 

Eigið góða nótt elskurnar. Heart

 

 


Lífið, tilveran og jafnréttið.

Það er fallegt veður í dag, logn og hitinn plús eitthvað, hreinn hvítur snjór liggur eins og brúðarklæði yfir öllu. 

 Ég var að sjá á bloggum að fólkið sem sendi bréf til ESB hefur fengið viðbrögð við því úr ólíklegustu áttum sjá hér: http://raksig.blog.is/blog/raksig/ 

Ég er afskaplega glöð með þetta, en er með það alveg á hreinu að við njótum mikils stuðnings erlendis frá það hef ég heyrt í samtölum við það fólk sem ég umgengst.  Bæði í Austurríki, Þýskalandi, Danmörku og Noregi og víðar.  Það skilur heldur ekki af hverju íslendingar vilja ganga í ESB, ég hef ekki ennþá hitt manneskju í þessum ESB löndum sem dásamar veruna þar.  Miklu frekar að þau séu óánægð með hækkaða skatta sem fara í að borga til annarra landa. 

Þetta Jóhönnumál fer um bloggheima eins og hvítur stormsveipur, fólk tekur stór orð upp í sig, og eiginlega bráðfyndið að fólkið sem situr í stjórnarandstöðu með allskonar kúlulán og vafninga um sig hægri vinstri skuli nú fullt vandlætingar og heimta afsögn.  Þeim væri held ég hollt að horfa í eigin nafla og skoða hvort þau yfirleitt hafi efni á svona umvöndunum. 

Ég viðurkenni fúslega að ég hef ekki kynnt mér þetta mál, hef ekki áhuga á því, finnst þetta vera stormur í vatnsglasi.  Ég geri líka greinarmun á jafnrétti og kvenréttindum.  Ég hef sjálf þurft að berjast fyrir því að vera maður með mönnum.  En ég læt þá bara vita að ég er hér og læt ekki trampa á mér.  Þetta endalausa  fórnarlambstal um konur, eru mikið til þeim sjálfum að kenna.  Og svo má ekki gleyma því að á öðrum sviðum standa karlmenn valtari fótum en konur.  Til dæmis í forræðisdeilum.  Þá verður það sífellt ofaná að konan sé hæfari til að annast börnin.  Meira að segja var sett á stofn baráttuhópur fyrir forræðislausa feður, hef reyndar ekki heyrt í þeim lengi.  En ég veit um dæmi þar sem körlum hefur verið bannað að umgangast barnið sitt, og bara vegna þess að móðirin hefur komið því þannig fyrir.

Jafnrétti er það sem verður að koma og það gerist ekki nema við tökum okkur tak konur og hreinlega látum ekki vaða yfir okkur.  Notum sömu aðferðir og karlarnir.  Við erum í fyrsta lagi of samviskusamar, þó það sé af hinu góða, svo gefumst við of auðveldlega upp, höfum ekki nóg sjálfstraust, og förum frekar í vælugírinn en að standa upp og berja í borðið.

Ég heyrði einhverntíman sögu sem mér fannst frábær, man hana reyndar ekki alveg en einhvernveginn svona var hún.

Kona sem ætlaði sér að sækja um góða stöðu, var afar óörugg og óviss.  Maðurinn hennar fór að spyrja hana hvernig hún ætlaði að haga sér í viðtali sem hún var að fara í.  Ég veit það ekki sagði konan, mig langar til að fá þessa stöðu.  Hvaða launa ætlarðu að krefjast? spurði maðurinn.  Ég ætla nú ekki að fara að gera neinar kröfur sagði konan, þá verður mér bara hafnað.  Ónei sagði maðurinn, þetta gengur ekki, þú ferð í viðtalið, gerir þið breiða og heimtar hátt kaup, nefndi einhverja tölu.  Og lætur í veðri vaka að þeir séu að missa af góðum starfskrafti ef þú verður ekki ráðin.

Og þegar konan kom heim var hún afar ánægð, hún hafði gert eins og maðurinn hennar sagði, og forstjórarnir urðu svo hrifnir af þessari einörðu konu, og vissu um leið að einmitt þessa manneskju vildu þeir hafa í vinnu og hún fékk þau laun sem hún krafðist.

Þessi saga segir okkur að um leið og við erum sjálfsöruggari gengur okkur betur.  Þetta er nefnilega það sem karlmenn gera miklu oftar en konur.  Við erum alltaf að spá í hvort við ráðum við þetta eða hitt, meðan karlarnir segja geta hlutina, jafnvel þó þeir geti það ekki. 

Annað sem við verðum að viðurkenna er að kynin eru ekki eins.  Það er líffræðilegur munur á kvenmanni  og karlmanni, það sagði læknirinn minn mér.  Það er líka ráðstöfun náttúrunnar til að viðhalda kynstofninum.  Konur eru yfirleitt ekki eins sterkar og karlar, en þær eru úthaldsbetri.  Þær eru líka yfirleitt næmari á ástandið í kring um sig og þess vegna oft betri stjórnendur en karlar. Þær eru líka samviskusamari og þess vegna er það staðreynd að fyrirtæki sem er stjórnað af konum sýnir meiri ráðdeild, þetta er svona á heildina litið en ekki algilt frekar en annað í þessum heimi. 

En fyrst og fremst þurfum við að læra að standa saman.  Það sem einn skortið bætir annar upp.  Og við getum ekki án hvors annars verið, það vitum við líka.  Ég hitti eldri konu um daginn í Samkaupum, maðurinn hennar var að keyra innkaupakerruna: hún snéri sér að mér brosti og sagði; mikið er nú gott þegar karlinn er farin að fara með manni að versla og hjálpa til.  Já sagði ég, og þá sjá þeir líka hvað hlutirnir kosta.  Karlinn var eitt sólskinsbros og hæstánægður með sína fyrstu búðarferð með frúnni. 

Það getur vel verið að þetta sé bara raus í mér.  En ég er viss um að það skilar betri árangri að standa upp og láta vita að maður tekur ekki þegjandi því sem að manni er rétt.  Ég hef til dæmis látið mig hafa það að berja svo fast í borðið hjá bæjarstjóranum mínum sem þá var, og yfirmaður tæknideildar sat hinu megin við borðið og mér fannt hafa verið gengið fram hjá mínum faglegu sjónarmiðum, ég helti mér yfir þá báða og barði svo í borðið að blöðin fuku út um allt, gekk síðan út og skellti á eftir mér.   Bjóst satt að segja við uppsagnarbréfi næstu daga á eftir.  En það var aldrei minnst á þetta meira.  En það var heldur ekki gengið fram hjá mér aftur á þennan hátt. 

Ég er auðvitað mæla með svona yfirgangiSmile en þetta svínvirkaði í þetta sinn.

En eins og ég sagði áðan þá er veðrið dásamlegt, fuglarnir á pollinum farnir að maka sig og heyrist hátt í þeim þegar þeir gera sig breiða og merkilega fyrir tilvonandi spúsum.  Krummi er á ferð og flugi að leita sér matar, og snjótittlingarnir sitja í hverju tré hjá mér og bíða eftir að ég gefi þeim að borða.  Og mér líður vel að sjá þá flykkjast að og gæða sér á fuglamatnum,  ég er líka viss um að litlu músardrengirnir eru farnir að syngja fyrir sína útvöldu.  Ég held að vorið sé að koma og ég held líka að sumarið verði gott. 

Vor.

 

Nú lifnar allt og grasið grær

  gleymist vetrartími.

Allt það grimmt sem var í gær

ég gref í hugans rými. 

Eftirvænting ást og þor

eykst á þessum tíma.

Víst er  komið  langþráð vor

vafið  ástarbríma. 

Skýjaglenna við  oss skín

Skokkar lamb í haga.

Sálin blessuð  sértu  mín

um sumarlanga daga.

 

Ásthildur 2005

Eigið góðan dag mín kæru og fyrir þá sem bíða eftir myndum þá mun ég setja inn nokkrar myndir seinna í dag eða í kvöld.  Ég hef bara verið svo löt við sjálfa mig undanfarið.   Heart


Í fullu umboði??????

Var að lesa DV það ágæta blað og rakst þar á þessar frétt. 

 http://www.dv.is/frettir/2011/3/23/adstodarmadur-johonnu-skammar-asmund-einar/

Hrannar_B_Arnarsson_jpg_640x800_sharpen_q95

Aðstoðarmaður Jóhönnu skammar Ásmund Daða. 

Það væri strax til bóta ef þú bara nefndir eitt eða tvöl mál af þeim sem þú ert ánægður með – ef þau fyrirfinnast,“ segir Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, á Facebook-síðu Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns Vinstri grænna.

Ásmundur Einar gagnrýndi Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi en Gylfi lýsti því yfir á Eyjunni að Icesave-samningarnir væru þeir mikilvægustu sem þjóðin stæði frammi fyrir. „Það væri gott ef þessi maður berðist af sömu hörku fyrir skjólstæðinga sína eins og hann berst fyrir Samfylkinguna þegar kemur að ESB umsókninni og Icesave,“ sagði Ásmundur Einar.
Hrannar birtist í athugasemdakerfinu og gagnrýndi Ásmund Einar harkalega:

„Óskaplega er þetta ósmekkleg og ósanngjörn aðdróttun hjá þér félagi Ásmundur Einar. Í þessum málum er forseti ASI að tala í fullu umboði sinna félagsmanna og aldrei þessu vant er hann sammála stefnu ríkisstjórnarinnar sem þú stendur að. Það er enda mat ASI og margra annarra að jákvæð niðurstaða í þessum mikilvægu málum geti skipt sköpum fyrir hag launþega og alls almennings á Íslandi á komandi tíð. En mikið vildi ég að þú talaðir af sömu einurð fyrir góðum verkum ríkisstjórnarinnar og þú talar gegn félögum þínum í ríkisstjórnarflokkunum í ýmsum málum. Það væri strax til bóta ef þú bara nefndir eitt eða tvö mál af þeim sem þú ert ánægður með - ef þau fyrirfinnast. Slík mál er amk ekki að finna hér á fésbókarsíðu þinni enn sem komið er en nóg af hinu gagnstæða.“

                                                                   ÖÖÖÖ

Ég fylgist nú auðvitað ekki með öllum málum, en hvar hefur það komið fram að Gylfi tali í umboði sinna félagsmanna?  Ég hef hvergi séð auglýstan fund eða umræður þar sem honum hefur verið falið það vald frá félagsmönnum í verkalýðshreyfingunni.  Hvar er það umboð?  Mér er fullkunnugt um að hann hefur lýst sinni skoðun sem leiðtogi verkalýðshreyfingarinnar, en ég hef ekki séð stafkrók fyrir því að hann hafi sótt umboð sitt til félagsmanna. 

 

Í raun og veru tel ég það mjög alvarlegt mál ef forstöðumenn samtaka nota aðstöðu sína með þessum hætti í jafnumdeildu máli og hér um ræðir, nema hafa til þess óskorað umboð. 

Þar sem um helmingur landsmanna er á móti aðrir með.  Hef reyndar heyrt hærri tölu nýlega um þá sem eru á móti allt upp í 80%. 

Eitt er líka að slengja fram svona slagorðum, annað er að éta það upp og gera það að heilögum sannleika af því það hentar þeim sem þannig hagar sér. 

Ég vona að sem flestir segi NEI við Icesave og bjargi þannig ungum og ófæddum íslendingum að bera skuldaklafa eða búa í ófrjálsu landi þar sem útlendingar geta gengið að auðlindum okkar um ókomna framtíð, vegna þess að við álpuðumst til að taka á okkur ríkisábyrgð á skuldir einkafyrirtækja. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981 


Nú þarf að hugsa til framtíðar.

Það er nokkuð ljóst hvað sem stjórnarliðar segja að þessi ríkisstjórn er á síðustu metrunum.  Útganga Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar er stórt högg.  Ekki sísteftir að ljós er heiftin og hefnigirnin í forystunni, talandi með fagurgala um hve góðir liðsmenn þau hafa verið um leið og þau kasta þeim út úr nefndum á vegum ríkisins samdægurs.  Látum vera að þau hefðu einfaldlega verið látin víkja sem formenn, en þarna sýndi forystan að allt það sem þau hafa verið að segja er satt, offorsið er þvílíkt og reiðin öllum ljós.

 Það er allavega komin tími til að huga að framtíðinni.  Allur fjórflokkurinn er rúin trausti, og almenningur hefur sýnt þeim rauðaspjaldið í öllum skoðanakönnunum undanfarið, þar sem meirihluti þjóðarinnar tekur ekki afstöðu um hvað þeir ætli að kjósa, ætla sitja heima eða skila auðu. 

Enda sýnist mér að hvorki Framsókn eða Sjálfstæðismenn hafa áhuga á að gerast hásetar um borð í hriklekri skútunni.  Hvað þá Hreyfingin.

Eina sem stjórnin getur gert í stöðunni er að fresta þessum EBS draumum, afþakka aðstoð AGS.  Það voru mistök ríkisstjórnarinnar að byrja sinn feril á því að kljúfa þjóðina í herðar niður með mesta deilumáli allra tíma.  Óskiljanleg mistök og að þau skyldu ekki fyrir löngu dregið málið til baka, til að friða þjóðina. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981 

En nú þarf að huga að framtíðinni.  Það sem ég lít skynsamlegast er að nú leysi forsetinn upp þessa ríkisstjórn kyrrstöðu, skipi utanþingsstjórn til tveggja ára, meðan flokkarnir endurskipuleggja sig og reyni að losa sig við skemmdu eplin í sínum röðum, til dæmis hrokagikki og kúlulánþega, styrkjakónga og svo framvegis. 

Eftir tvö ár verði síðan kosningar.  Og þá myndi ég vilja sjá bandalag þeirra sem virkilega vilja vinna landi sínu gagn.  Þá á ég við að það bandalag standi saman af Hreyfignunni, Frjálslyndaflokknum, Lilju og Atla, og óháðra sem hafa talað fyrir réttlæti og jöfnuði.  Og fólksins sem hefur verið að reyna að koma á framfæri hugmyndum sem eru skynsamlegar og réttlátar, þar koma nokkur nöfn upp í hugann, Gunnar Tómasson, Marínó Njálsson, Lára Hanna Einarsdóttir, og margir fleiri. 

Mér er kunnugt um að fólk úr grasrót Frjálslyndaflokksins og Hreyfingarinnar hafa starfað þétt saman við ýmis þjóðþrifamál svo margt er líkt meðal þessara flokka, Hreyfingin er sterk í höfuðborginni en Frjálslyndir á landsbyggðinni.  Þessi samtök myndur þurfa að slípa saman ýmis mál eins og ágreining um flugvöllinn í Reykjavík, en það er ekkert mál að salta hann um nokkur ár.  Að flestu leyti sýnist mér að stefna þessara tveggja flokka geti vel farið saman, og mér sýnist líka að stefna Lilju og Atla fari að miklu leyti saman við þá stefnu líka. 

Það er ljóst að við verðum eitthvað að gera ef við viljum hreinsa til.  Og besta leiðin er að þessar grasrótarhreyfingar og það fólk sem virkilega kallar eftir réttlæti og gagnsæi myndi slíkt bandalag og reyni að fá sem flesta til að fylgja þeim.  Þetta er allt fólk sem fólk treystir til að vera heiðarlegt og laust við klíkuskap og samtryggingu líkt og fjórflokkurinn hefur.

Ég vil að þessir einstaklingar sem ég hef nefnt og margir fleiri sem hér hafa komið við sögu en ég ekki nefnt, komi saman og ræði málin hvort ekki sé grundvöllur fyrir slíku bandalagi.  Því okkur er lífsnauðsyn sem þjóð að bretta upp ermar og leggja okkar af mörkum til að breyta ástandinu.  Aldrei hefur verið meiri grundvöllur fyrir slíkri grasrótarhreyfingu en nú.  Aldrei hefur akurinn verið betur plægður fyrir breytingar en nú.  Og við sem þjóð þurfum að fara að huga að því hvað fólk gerir, en ekki hvað það lofar. 

Við erum orðin dauðþreytt á innihaldslitlum loforðum sem svo er ekki staðið við og fjandskapinn sem þeim er sýndur sem vilja fylgja sannfæringu sinni.  Aldrei fyrr hefur verið betra tækifæri til að það fólk sem vill virkilega breytingar vinni nú saman að því að koma saman stefnuskrá, sem ætti að vera auðvelt, og fara að vinna SAMEIGINLEGA AÐ ÞVÍ AÐ MYNDA HÓP SEM ÞORIR OG VILL TAKA Á SIG AÐ BJARGA ÞJÓÐINNI. Burt með flokkapólitík og inn með hugsjónir og kærleikan til lands og þjóðar.


Hræringar - grautur í skál - og villikettir sem taka pokann sinn.

Jæja þá datt ég ofan í kjallarann aftur.  Það er svo skrýtið að þetta kemur aldeilis óforvarendis, allt í einu getur maður ekki einbeitt sér að neinu, horfir á allt sem þarf að gera og er eins og frosin.  Þarf að beita mig höfðu til að komast fram úr rúminu, seint og um síðir.  Fór til læknisins um daginn þegar ég fann að ég var að rúlla, og hann skipaði mér að taka þessar róandi töflur ekki bara einu sinni á dag heldur a.m.k. þrisvar. Blush Reyndar er mér illa við að taka pillur, held svo sem að maður geti náð sér á strik án þeirra, en þegar maður súnkar svona niður, þá er ekkert að gera nema taka þessar töflur og reyna að þrauka daginn og sérstaklega nóttina.  Ég veit ekki einu sinni af hverju ég súnka svona niður.  Sennilega margir þættir.  Sorg, reiði, vonleysi um framtíðina og alltaf bætist eitthvað við.  En núna skín sólin og ég hafði minna fyrir því að koma mér framúr, svo þetta er greinilega að lagast, ég er að stauta mig upp stigan á ný. 

Þetta Icesavemál tekur miklu meira á en ég geri mér grein fyrir.  Ég ber kvíðboga fyrir því að fólk verði svo miklir kjánar að samþykkja að leggja ólögvarðar kröfur á íslenskan almenning, og láti undan endalausum áróðri sem er í mínum augum óskiljanlegur.  Því það er ljóst að fólkið sem vill inn í ESB er fólkið sem ætlar að samþykkja vegna þess sennilega að þessi samþykkt er lykilinn að inngöngu í ESB.  Það er ekki verið að hugsa um þjóðarhag, heldur diplómatiska stöðu ríkisstjórnarinnar.  Hvar er gamla góða víkingablóðið?

En hvað um það.  Þetta kemur allt í ljós 9. apríl.  Ég ætla að vera á fjöllum utan þjónustusvæðis, því ég þoli ekki spennuna. Crying

En það er svo sem margt gott að gerast í þessu bilaða þjóðfélagi okkar.  Barátta margra við að kynna mikilvægi þess að segja nei, með góðum rökum og lögfræðiálitum.  Og nú hafa nokkrir frábærir einstaklingar tekið sig saman og send bréf til Forseta ESB. 

http://thjodarsalin.blog.is/blog/thjodarsalin/entry/1152086/#comment3122851

Hafi þau þökk fyrir. 

Mér brá þegar ég hlustaði á Silfrið í gær þegar varaþingmaður Samfylkingarinnar kallaði eftir því að sjálfstæðisflokkur og Samfylking tækju sig saman og mynduðu ríkisstjórn, er blessuð konan búin að gleyma því að það voru einmitt þessir tveir flokkar sem voru við völd þegar allt hrundi?  Heldur hún virkilega að hrunstjórnin sé fær um að vinna okkur út úr þessu?  Ég fékk hroll niður eftir bakinu, og hver er svo staða hennar eftir þessa yfirlýsingu og eftir að hafa gefið frat í formann sinn og forsætisráðherra?  Ef hún hefur ekki tryggan meirihluta Samfylkingarinnar með sér?

Hvernig getur hún verið í þeirri stöðu sem hún er í eftir slíkar yfirlýsingar?  Samfylkinginn hlýtur að kalla á aukafund til að ræða þá stöðu sem er komin upp.  Og taka afstöðu annað hvort með Jóhönnu eða Margréti. 

Og nú er sagt að Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir ætli að segja sig úr Vinstri Grænum.  Ég tel að þau hafi fullreynt að reyna að koma flokksystkinum á rétta braut, þ.e. að halda sig við kosningaloforðin, og hafi nú endanlega gefist upp.  Og þá kemur upp sú spurning hvað gera Ásmundur Daði og Guðfríður Lilja?  Og hvernig verður þetta svo í framhaldinu.

Versta mögulega útkoman er að Sjálfstæðismenn kæmust aftur til valda með Samfylkingunni, meðan allt er ennþá á rúi og stúi eftir hrunið sem þessir tveir flokkar urðu valdir að.

En það er eins og allt sé að verða einn hrærigrautur.  Siðferðið komið niður á nullpunkt.  Það má segja að eftir höfðinu dansa limirnir, og þegar stjórnvöld bæði núverandi og fyrrverandi hafa komið afskaplega óheiðarlega fram, logið, falið, stungið undir stól bæði álitsgerðum og ályktunum, og fari ekki eftir lögum, komi sér undan að fara eftir ályktunum alþjóðadómstóla, þá er von að illa fari.  Um leið og siðleysið er leyft og það í þeim mæli sem gerst hefur á okkar litla landi, þá gerist einmitt þetta, frumskógarlögmálið eitt ræður, og þeir sem fitna eru þeir sem mest eru innundir hjá klíkum landsins, bankageirinn, stórir businessmenn, skiptastjórar og lögfræðingar.  Meira að segja Háskóli Íslands nýtur ekki trausts lengur því hann er orðin hreiður fyrir Samfylkinguna og þeirra sem vilja ganga í ESB og samþykkja Isesave. 

Þetta er engum einum að kenna, við erum reyndar öll samsek, því við höfum leyft þetta ár eftir ár eftir ár, með því að veita ekkert aðhald þegar okkur gefst til þess tækifæri á fjögurrra ára fresti.  Og með því stuðlað að því sem nú er að gerast.  Óöryggið, óttinn og reiðinn í samfélaginu er fylgifiskur þessa ástands.  Innan við 10% treysta alþingi og innan við 19% treysta forsætisráðherra og fjármálaráðherra.  Samt keyrir þetta fólk áfram eins og ekkert hafi ískorist. 

Versta við þetta allt er að þegar þau tóku við þá höfðu þau traust yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar, við treystum því að þau myndu standa við það sem þau lofuðu.  En allt hefur verið svikið, engin skjaldborg nema um peningavaldið, fólk þeir sem komast burtu fara, hinir komast ekki og lifa við dauðans dyr.  Foreldrar sem svelta sig til að börnin fái að borða.  Og það er ekkert gert, nema lofa einhverju næstu viku, eða skipa nefnd, skipa ráð og koma svo með úrræði sem reynast vera verri en fyrir var. 

Hvað ætli ráð og nefndir séu annars orðnar margar í þessu landi?  Og hvað ætli þær kosti ríkissjóð á ári, ég hef ekki heyrt um neina sem hefur verið aflögð. 

Í þessum skrifuðum orðum er ég að hlusta á Atla og Lilju og ég er afar ánægð með framgöngu þeirra, loksins kemur fram fólk sem gerir sér grein fyrir því um hvað störf alþingismanna snúast um.  Það er að vinna að þeim málum sem þau hafa lofað fyrir kosningar.  Hafi þau þökk fyrir, og bara þetta litla nei stóra atriði vekur mér strax von um nýja og betri tíma.  Loksins Loksins er eitthvað jákvætt að gerast á leikvellinum við Austurvöll, nema auðvitað þeim málum sem Hreyfingin hefur verið að vinna með almenningi. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

Og í sambandi við þær spurningar hvort þið ættuð ekki að víkja af þingi, beið ég milli vonar og ótta að þið mynduð hverfa af alþingi, en sem betur fer ætlið þið að halda áfram og vinna með ykkar grasrót.  Innilega takk fyrir það.


Geir Ólafsson þú ert snilli.

Ég hef svolítið fylgst með Geir Ólafssyni gegnum tíðina, hef séð plötudóma um hann sem voru argandi skepnulegir og fólk sem talar niður til hans.  En þessi drengur hefur tekið öllu slíka af ljúfmennsku og aldrei svarað neinu slíku og er jákvæður og fylgin sér.  Ég dáist að slíku fólki sem svarar illu með góðu og er alltaf jákvæður í viðtölum.  Og þegar menn hafa ætlað að tala niður til hans, hefur hann snúið því upp í jákvæðni og elskulegheit. Betra væri að við hefðum fleiri slíka. Svo er hann að gera það gott í henni Ameríku, og þá fer landinn svona frekar að spara stóru orðin og hugsa að ef til vill sé eitthvað varið í piltinn.

En þetta hér er algjör snilld.  Mikið asskoti eru flottur Geir Ólafsson, ég sendi þér mína innilegustu aðdáun fyrir frumkvæðið og pælinguna á bak við.

432092A

Meiri svona baráttuaðferðir sem rífa málið upp úr röflfarveginum, og setja hann í allt annað samhengi. 

Go boy!!!


mbl.is Geir Ólafs afhendir Steingrími óútfylltan víxil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2011
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband