Á skíðum skemmti ég mér.

Ég fór út að skemmta mér í gær. Var boðið að koma með á frumsýningu á söngleiknum Á skíðum skemmti ég mér í uppsetningu Elvars Loga fyrir Litla Leikkklúbbinn. 

Á skíðum skemmtiég mér.

Leikritið verður sýnt fram yfir páska, svo það er góður tími til að skella sér út eitt kvöld og hlæja og skemmta sér í Edinborgarhúsinu.  Þar er raðað upp stólum og borðum og hægt að vera með "léttar veitingar" meðan á sýningu stendur. Ósköp notalegt.

Ég tók nokkrar myndir en verð að biðjast afsökunnar á gæðum þeirra, því í raun og veru var bannað að taka myndir, svo ekki mátti nota flash og þær eru ekki í hæsta eða neitt nálægt því gæðaflokki. InLove

En málið er að þær sýna leikgleðina og kátínuna sem leikendu okkur áhorfendum, og fengu fólk til að standa upp og klappa og dilla sér.

IMG_0547

Veðrið hefur leikið við okkur og okkur finnst vorið virkilega vera handan við hornið.

IMG_0549

Við hittumst nokkur í heimahúsi áður en farið var á leiksýninguna, hér er Guðbjörg mágkona sem stóð í ströngu við mat ásamt Önnu Margréti, þar sem við hittumst.  Guðrún Jóhanns í djúpum pælingum við Guðbjörgu ætli þær séu ekki að spá í hvort það sé nægilegur maturLoL

IMG_0551

Íhugull leikstjórinn, örugglega að fara yfir öll atriðin, svona fyrirfram, hvort eitthvað hafi nú gleymst og svona.  Leikstjórar eru nefnilega ekkert minna stressaðir en leikararnir á frumsýningu.

IMG_0554

Tók þessar skemmtilegu myndir af svölum í Mjallargötu. Skátaheimilið hér beint framundan.

IMG_0555

Gamla apótekið sem búið er að gera upp og þar eru nú íbúðir, sannkölluð bæjarprýði.

IMG_0556

Og nýtt sjónarhorn af Erninum.

IMG_0561

Að öllum öðrum ólöstuðum var hljómsveitin algjörlega frábær.

IMG_0565

Sviðsmyndin var einföld og stílhrein og allt gekk upp með hana.  Sem og allar inn og útgöngur leikara.

IMG_0574

Búningar voru líka líflegir og skemmtilegir.

IMG_0576

Og frammistaða leikara yfirleitt góð.  Sum atriði voru hreinlega drepfyndin.

IMG_0577

Leikararnir komust vel frá sínu, og átti allir góða spretti.

IMG_0584

Þetta er auðvitað farsi og ýkt leiktilbrigði en svoleiðis átti það einmitt að vera.

IMG_0589

Ég skemmti mér afar vel, þau notuðu líka salinn stundum sem var bara af hinu góða. 

IMG_0600

Maria Isabel sungin af krafti.

IMG_0603

Leikgleðin skín úr út leikurunum.  Þeir smituðu allan salinn með gleði sinni.

IMG_0606

Og það var líka gaman eftir sýninguna hjá þeim að ná sér niður aftur.

IMG_0607

Eftir vel unnið verk.

IMG_0609

Já þetta var frábær skemmtun. 

Það voru smáatriði sem má finna að að mínu mati.  Sýninginn stóð yfirleitt vel allt kvöldið, en einstaka sinnum datt hún svolítið niður og missti marks.  Annað sem ég vil segja að sumir söngvaranna hefðu mátt fá tilsögn í söng, auðvitað eru frumsýning alltaf þannig að menn eru nervusir.  En þarna hefði mátt slípa betur.

En það er bara smáræði miðað við þessa gleði og skemmtun sem fór fram í gær.  Og ég hvet fólk til að fara og hlægja og skemmta sér á þessum leiðinlegu tímum, þá er ekki vanþörf á að hlæja hátt og innilega og gleyma sér hreinlega.

IMG_0615

Ég varð að hafa þessa með LoL Myndinni var smellt af í augnabliksstundu.  Eitt af þessum mómentum sem bara koma einu sinni.

IMG_0613

En ég fékk leikhópinn til að stilla sér upp eftir sýninguna.

IMG_0616

Innilega takk fyrir mig elskurnar, þetta er sýning sem virkilega er nauðsynlegt að fara á og hlæja. 

Biðst aftur afsökunnar á myndgæðunum, þau eru bara eins og þau eru. Heart

Langar líka að geta þess að þau voru margklöppuð upp, og salurinn bókstaflega logaði af fjöri þegar sýningunni lauk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Glæsilegt

Jónína Dúadóttir, 26.3.2011 kl. 18:38

2 identicon

Flott og eftir þér að stelast til að taka myndir þegar það var bannað

Dísa (IP-tala skráð) 26.3.2011 kl. 22:17

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha já einmitt.  En þau voru frábær þessar elskur, og ég held að ég hafi ekki truflað þau neitt.

Takk Jónína mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2011 kl. 22:31

4 Smámynd: Dagný

Skemmtilegt

Dagný, 27.3.2011 kl. 00:36

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.3.2011 kl. 01:58

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Get sko vel trúað að það hafi verið gaman, það er svo gott að fara svona út og virkilega skemmta sér. Knús til þín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.3.2011 kl. 07:23

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Frábært plakatið - eitthvað svo einlægt!  Og myndirnar í framhaldinu góðar.  Jákvætt og gaman að sjá þetta.

Jóhanna Magnúsdóttir, 27.3.2011 kl. 10:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2011 kl. 10:52

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Alltaf í djamminu!

Helga Kristjánsdóttir, 27.3.2011 kl. 16:15

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það má segja það

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2011 kl. 17:06

11 identicon

Ásthildur mín það var frábært að þið skemmtuð ykkur vel og takk innilega fyrir komuna:) En því miður var ég fram í sal og missti því af hópmyndatökunni:( En frábært að fá svo gott komment:)

Didda Hjalta (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 12:06

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið Didda mín, en synd að þú varst ekki með á hópmyndinni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2011 kl. 12:37

13 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

þakka hlý orð og komuna í leikhúsið fínar myndir hjá þér

Elfar Logi Hannesson, 28.3.2011 kl. 15:17

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Elvar minn og takk fyrir frábæra sýningu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2011 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 2021017

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband