Prinsessa, smá blogg fyrir pabba og mömmu.

Já Hanna Sólin var afmælisbarn leikskólans Tjarnarborgar í dag.  Hún mætti í kjól, kórónan tilbúin og allt klárt.

Leikskólakennararnir voru búnir að undirbúa allt fyrir hana, og börnin fengu ís í tilefni dagsins.  Ein mamman kom út úr skólanum þegar við mættum með hana, og sagði að þau hjónin hefðu sofið yfir sig, en leikskólasystir Hönnu Sólar hefði svo vakið þau um átta leytið og sagt; Pabbi vakti mig ekki í morgun, og ÉG ER AÐ MISSA AF AFMÆLI.  Svo það varð að drífa barnið á leikskólann.

En sumsé svo mætti sú litla.

IMG_2743

Hún er þarna eins og blóm í eggi, hún hefur verið hjá þessum yndælu fóstrum tvisvar áður, og það er eins og hún sé komin heim.  Þekkir allt og alla.  Ég er rosalega þakklát þeim, fyrir hvað þær eru frábærar "mömmur"

IMG_2746

Tók nokkrar myndir af þessum litlu elskum í leiðinni.

IMG_2747

Hér er hún svo sest að fá sér ristað brauð með vinkonunum.

IMG_2751

Einu sinni voru prins og prinsessa.

IMG_2753

Hún var rosalega montin þegar hún kom heim. 

Hanna Sól er stundum með snuddu Blush Í gær kom í ljós að besta snuddan var týnd, það var heilmikil rekistefna, og amma gat loks samið við hana um að við  myndum kaupa nýja snuddu á morgun, ef hún vildi þiggja bleiku snudduna, sem er með smágati á. 

Þegar amma var svo að skúra í morgun, kom snuddan í ljós.   Það hafði verið klippt framan af henni.

Þegar sú studda bað um snuddu á heimleiðinni, sagði afi sem sótti hana, að það hefði einhver stelpa klippt framan af snuddunni.

Hún hugsaði sig um smástund, og sagði svo, nei það var nefnilega stór strákur og hann heitir Úlli búlli bí. LoL

Fljót að koma sér út úr vandræðunum. 

Á morgun verður svo alvöru afmælisveisla.  Ég pantaði 2o manna tertu úr Gamla bakaríinu, og ætla svo að baka vöfflur með rjóma. Það verður bara gaman, því þetta er bara fjölskyldan, börnin og barnabörnin. Pabbi hennar kemur líka. 

IMG_2750

Fyrir fjallafólkið mitt tók ég þessa mynd í morgun, þegar við vorum að koma frá suðureyri, eftir að fara með hana á leikskólann. 

 


Grein í blaði Landsambands kvenna í Frjálslyndaflokknum.

Landssamband kvenna í Frjálslyndaflokknum gaf út metnaðarfullt blað um daginn.  Ég var beðin um að skrifa grein í blaðið, ásamt fjölda kvenna úr flokknum auk formannsins okkar Guðjóns Arnars Kristjánssonar.

Þessi grein virðist hafa hitt einhversstaðar góðan streng, því nokkrir aðila hafa haft samband og beðið mig um að birta hana víðar.  Ég var að hugsa um að senda hana í Fréttablaðið, en kom þvi aldrei í verk, og til að gera eitthvað í málinu, þó frekar seint sé í rassin gripið, ætla ég að birta hana hér, þó ég geri mér alveg grein fyrir, að þetta er ekki sambærilegt við það ágæta blað, né heldur Morgunblaðið.

En hér kemur svo greinin:

 

Uppákoma undanfarinna daga.  

Ér er gáttuð á því sem hér er að gerast.  Allt í einu er fólk búið að fá nóg.  Það hlaut að koma að því fyrr eða síðar, en af hverju á þessum tímapunkti, ég er dálítið hugsandi yfir því. 

Í gegnum tíðina hafa viðgengist svona “klækjastjórnmál” Hver man ekki eftir rítingstungu í bak forsætisráðherrans Þorsteins Pálssonar, stjórnin féll í beinni, ef svo má segja.  Og þetta hefur tíðkast alla tíð síðan.  Eða eru menn búnir að gleyma stjórnarháttum Davíðs og Halldórs, einhliða stríðsyfirlýsing á innrás í annað fullvalda ríki.  Eða þegar forsætisráðherran þáverandi lagði niður ýmsar stofnanir og störf, ef menn voguðu sér að gagnrýna hans hátign.   Eru menn búnir að gleyma olíusamráðsmálinu, Öskjuhlíðargrænmetissamráðinu, sölu bankanna til vina og vandamanna, eða tryggingarfélagadíllinn, og rekur menn ekki minni til þess að ráðamenn gáfu örfáum einstaklingum fiskinn í sjónum, og það svo að það hriktir í sjávarbyggðum landsins, milljarðar hafa farið í súgin, allt til að hygla sínum mönnum.  Og ekki hefur Samfylkinginn gert neitt í að leiðrétta þær ranggjörðir, þótt sumir talsmenn hennar hefðu um það stór og mikil orð.  Nú síðast þegar þessi svokallaði sjávarútvegsráðherra, skar niður aflaheimildir svo harkalega að allt er að fara í kalda kol á landsbyggðinni og mátti nú ekki við því.  Þó þetta sé landstjórnin, þá er þetta sama sagan í bæjarstjórnum.  (nú hafa líka loðnuveiðar verið bannaðar)

Nei hér verður allt vitlaust af því að kjörnir fulltrúar koma sér saman um að stofna nýjan meirihluta.  Ég er ekki að mæla bót hvernig þetta var gert, en tek fram að ég þekki ekki söguna.  Hér hafa verið uppi sögusagnir um að Ólafur hafi ekki átt upp á pallborðið hjá fyrrverandi valdhöfum, þeir hafi frekar viljað hafa Margréti innanborðs, það getur bent til þess, gjörðin um veikindavottorðið. 

Og nú hefur komið í ljós að Ólafur hafði samband við sitt fólk, hann hafði rætt málið við þau í heila viku.  En fólk hefur fengið nóg.  Ég skil það vel, en fólk verður líka að átta sig á, að þetta er ekkert nýtt, og að þessi pólitík hefur verið stunduð ansi lengi og við bara látið reka á reiðanum.  Af hverju þá núna?  Hefur það eitthvað með að gera að þarna eiga í hlut tveir eldri menn, sem margir telja að séu ekki sterkir á svellinu.  Getur verið að þetta sé svona dýrslegt atferli til að drepa þá veikari.  Eins og viðgengst í dýraríkinu ?  Ég bara spyr, af því að það hvarflar að mér.  Maður heyrði bara óminn af óánægju meðan sterkir leiðtogar eins og Davíð og Halldór voru við völd, þó tröðkuðu þeir meira á lýðræðinu en þessi tveir menn hafa nokkru sinni gert.   

En ég segi nú bara, ef enginn skaðast á þessu, meira en orðið er allavega, þá vona ég að út úr því komi eitthvað betra en verið hefur.  Að það fólk sem nú er á tánum að öskra og láta öllum illum látum, láti ekki staðar numið hér, heldur haldi dampi, og setji alla undir þessa mælistiku, ekki bara suma, og þá helst þá veikari. 

Lýðræði er vandmeðfarið, og það kostar líka mikið.  En það er einmitt það sem við viljum hafa hér.  En ekki bara lýðræði handa sumum, heldur á það að ná yfir alla,  hvar í flokki sem þeir eru, hvaðan sem þeir koma og hvert sem þeir eru að fara.  Allir eiga rétt á því að lýðræðið sé virkt.  Við þurfum að skilja að við höfum sofnað á verðinum, og það er eiginlega okkar sök almennings að við horfum uppá stjórnmálin eins og þau eru í dag.  Þar á enginn einn flokkur meira en annar.  Þar eru allir sömu sök seldir.  Þó sumir hafi fyllst vandlætingu og haft hátt, þá er það staðreynd, að það er ekki hægt að treysta á neinn.  

Þess vegna er svo mikilvægt að stjórnmálaflokkar myndi sér heildstæða stefnuskrá, og standi við hana.  Og það er ekki síður mikilvægt að við kjósendur veitum þessu fólki aðhald, með því að einfaldlega kjósa það út úr stjórnunarstöðum ef það stendur ekki við gefin loforð. 

Það er okkar að halda uppi aganum, og leyfa ekki að gengið sé þvert á allt velsæmi, eins og reyndin er í dag.  Menn leyfa sér hvað sem er, og treysta því að það sé allt gleymt og grafið næstu kosningar.  Er það þá ekki okkar sök ? Ég segi jú, svo sannarlega ættum við að líta í eigin barm og skoða hvort það er ekki einmitt þörf á breytingu hjá almenningi, og viðhorfi til lýðræðisins og stjórnmálaafla í landinu.


Afmæli, ungviði og grænir sprotar.

Hanna Sól á afmæli á laugardaginn.  Á morgun verður hún prinsessa í leikskólanum sínum.  Henni verður haldinn afmælisveisla og hún fær að gefa félögum sínum ís.  Stór dagur framundan hjá henni.  Einnig verður afmælisveisla hér heima á laugardaginn.  Sú fær að njóta sín næstu daga.

HannaSol copy

Hanna Sól gömul mynd úr skápunum hjá ömmu.

Nú eru grænir sprotar að teygja sig upp úr moldinni hjá mér í gróðurhúsinu.

IMG_2732

Krúttleg ekki satt.

IMG_2735

Og svo eru sum blóm farin að blómstra.

IMG_2738

Jamm það er líka sport að aka í snjónum.

IMG_2740

Síðdegið var ekki síður fagurt en morguninn.

IMG_2741

Roðagullin ský.

IMG_2739

Smile


Gamlar myndir og hið daglega veður.

Ég fékk senda mynd í dag frá kærum vini og LL félaga Lúðvíki Jóelssyni, hún var tekinn árið sem við sýndum Sexurnar, man ekki nákvæmlega hvaða ár það var, á eftir að gá að því, en hún er tekinn á Snæfellsnesi, við fórum með sýninguna í hálfsmánaðarferðalag alla leið til Borgarness í suður og Sauðárkróks til norðurs.  Það var æðislega gaman, þetta hefur verið um 1970.

En hér er myndin.

Ija

Hér eru svo í gamni tvær aðrar frá sýningunni.

sexurnar

Við Lúlli, en leikritið heitir á frummálinu Boeng Boeng, og fjallar um mann sem er í ástarsambandi við þrjár flugfreyjur, sem allar lenda sitt á hvorum deginum.  Bráðskemmtilegt þangað til allt flugið fer í flækju og þær koma allar sama daginn.  Lúlli leikur svo vin mannsins sem þvælist óvart í heimsókn.

sexurnar2

Sævar Helgason frá Keflavík var leikstjórinn og lék líka aðalhlutverkið, og við vorum náttúrulega allar skotnar í honum LoL

Takk Lúlli minn fyrir þessa sendingu hún gladdi mig mikið. Heart

 

Svo að hinu daglega veðri.  Hér er núna alveg dásamlegt veður sól, hvítur snjór og logn. 

En myndirnar tala sínu máli.

IMG_2728

IMG_2728

IMG_2730

Njótið dagsins mín kæru. Heart


Góðar einkunnir og bretti.

Úlfur yfirstubbur fékk rosalega góðar einkunnir, hann fékk 10 í lestrarhraða, 9.7 fyrir lesskilning, 8.8 í íslensku, 8.6  í náttúrufræði, 7.7 í stærðfræði, 8.2 í heimilisfræði og 8. í dansi, lægst var landafræðin 7.4  Flott hjá tíu ára strák ekki satt.

Þess vegna ákváðum við að gefa honum bretti og tilheyrandi, skíðin og skórnir orðin allof lítil.

Við fórum í Rammagerðina á Ísafirði, og fengum þar bretti, bindingar, hjálm, skó og gleraugu fyrir tæpar 43.000 kall, mér finnst það reyndar ekki mikið fyrir allan útbúnaðinn.  Eigandinn sagði mér að þetta væri mikið dýrara í stóru íþróttabúðunum fyrir sunnan.  Gaman að því.

IMG_2723

Þarna er hann að máta nýja útbúnaðin, og það besta við kúluna er að það er hægt að renna sér af henni ofan til, þar er hin besta snjóbrekka, þegar snjórinn er.  Á sumrin renna þau sér í svefnpokum LoL

IMG_2724

Svo þarf að æfa sig á bindingunum, þetta kemur allt með reynslunni.

IMG_2727

Tilbúinn í slaginn.  Svo er bara að vonast eftir að hann gefist ekki upp.  Reyndar var hann duglegur á skíðum, svo hann ætti að ná tökum á þessu.

IMG_2721

Svona er veðrið í dag.


Amman og Hanna Sól - smá blogg fyrir pabba og mömmu.

Sú stutta er farin á leikskólann, það er á Suðureyri, hún þekkir sig vel til þar, því þar hefur hún verið tvisvar áður.  Hún var það nokkra daga í fyrra sumar, en gat samt talið alla leikfélagana, tíu að vísu var uppáhaldsleikskólakennarinn hennar Pála, þar á meðal.  Mér fannst hún góð að muna eftir þeim öllum.

En hún var athafnasöm í gær, amma stenst henni ekki snúning.  Fyrst fórum við í búðina, þar sá hún forláta bók sem hún vildi eignast, það var alveg sama hvað ég bauð- henni í staðinn, nei hún vildi bara þessa prinsessubók, svo amma lét undan.

Seinna um daginn hafði hún náð í skæri og klippti hárið að Barbiedúkkunni sinni, ég hélt fyrst að hún hefði klippt sjálfa sig, en það kom í ljós að það var dúkkan, Blush Svo klippti hun líka fötin hennar smá, bara smá... og hanska sem ég hafði keypt handa henni, jamm, þegar hún er hljóð og góð, er eins gott að kíkja hvað hún er að gera heheheh...

Svo kallaði hún og bað um vatn, þegar ég kom upp, stóð hún svo undirfurðuleg inn í einu herberginu, fyrirgefðu sagði hún, þá hafði hún náð í raksápuna hans afa, og smurt henni inn á baðið vel og vendilega og líka í hárið sitt.    Svo úr því varð baðferð. 

En sum sé nú er blessað barnið komið á leikskólann sinn, og er aldeilis glöð.

IMG_2705

Þetta er fína bókinn, þau afi að raða myndum inn í hana.

IMG_2706

Ég veit ekki hvar þetta er !

IMG_2707

Afi að klæða dömuna fyrir leikskólann.

IMG_2710

Vinkonurnar bíða eftir að hún komi út að leika.

IMG_2718

Jamm það er gaman.

IMG_2719

Snjór og þota, það er aldeilis fínt.


Hið íslenska kvótakerfi, komið að fótum fram. Hér þarf meira en klór í bakka, hér þarf róttækar aðgerðir.

Ég hef verið að bræða með mér tillögur Ingibjargar Sólrúnar um að endurskoða byggðakvótann.  Visslega er þar víða pottur brotinn og illskiljanlegar reglur.  En málið er að mér sýnist að með þessu eigi að klóra í bakkan í stað þess að taka af alvöru á athugasemdum Mannréttindanefndar Evrópusambandsins.  Í fyrsta lagi þá er þetta enginn lausn, að leigja kvótan út og láta byggðirnar hafa peninga.  Hvaða byggðir verða fyrir valinu ? Hverjir fá aur í vasann.  

Er ekki nær að skoða allt málið í heild sinni, og sjá hvort ekki megi gera róttækari ráðstafanir til að endurheimta kvótan allann til ríkisins.  Það má gera með því að taka hluta af aflaheimildum upptækar til ríkisins, og leigja hann út á verði sem er viðráðanlegt fyrir einyrkja og minni útgerðarfélög.  Síðan á að nota það fé til að kaupa meiri kvóta, uns allur kvótinn er komin aftur í eigum þjóðarinnar.  Þaðan sem hann er þá leigður út, til þeirra sem RÓA og Veiða sjálfir.  Menn eiga ekki að eiga kvóta, sem aldrei fara á sjó, sitja bara með auðlindina í höndunum, og sjúska henni til og frá að eigin hentugleikum.  Sama hvað verður um byggðirnar og fólki sem þar býr.

Það mun örugglega taka drjúgan tíma að kaupa upp heimildirnar, og á meðan gætu menn notað tíman til að aðlagast nýjum aðstæðum.  Það yrði líka að tryggja að stórgrósserar gleyptu ekki allt og alla.  Þar yrði að hugsa til þjóðarhags.  Rétt eins og bretarnir gerðu við bankann um daginn, en þeir töldu það  þjóna best hagsmunum þjóðarinnar að þjóðnýta bankann.  Við getum margt lært af öðrum þjóðum.  Þetta er eitt af því, ekki þessi endalausa þjónkun við menn sem vilja ráðskast með auðlindir þjóðarinnar.

Ég er alveg viss um að það er hægt að finna lausn á þessu sem allir geta sætt sig við, en til þess þurfa menn að setjast niður og finna lausnir.  Og ráðamenn þjóðarinnar þurfa að setja sig inn í málin, það er ekki nóg að vera valdamikill og ráða.  Það þarf líka að huga að hag þjóðarinnar og réttlæti.  Það hefur ekki verið leiðarljós núverandi og fyrrverandi valdhafa.  Það er komin tími til að kynna þessu fólki rétt og skyldur þess í sambandi við þjóðarhag.  Ég vona að fundurinn á Akureyri hafi verið góður, og þar hafi menn lagt inn mál sem munu skila sér áfram inn í stjórnarráðið.  Því þetta kvótakerfi hefur gengið sér til húðar, og það er í raun og veru þjóðarskömm hvernig ráðamenn hafa höndlað það nú í 20 ár.  Með engum árangri, en risaútgjöldum og skuldum sem eru að verða öllum ofviða ef ekkert verður að gert.   


mbl.is Segir tímabært að endurskoða byggðakvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorboðarnir í garðskálanum mínum, og hið daglega veður.

Jamm, hér er rigningarsuddi, en samt ágætis veður, ef maður klæðir sig samkvæmt því.  Upp í gróðurhúsi spítast litlir grænir angar upp úr moldinni, og aðrar eðalplöntur eruklipptar niður í græðlinga, til að fjölga sér og verðar stórar og miklar.

IMG_2704

Frekar hráslagalegt að sjá, en ekki eins kalt og það lítur út fyrir að vera.

Páskarós

Páskarósin mín í blóma, og verður fram yfir páska, hún stendur lengi í blóma og er svo falleg, svo er önnur úti í garði, og hún blómstrar aðeins seinna, svo ég fæ tvöfalda ánægju af henni.

Prímúla

Þessi fallega prímúla brosir móti manni, og silfurkamburinn er fallegur rammi utan um hana.

IMG_2701

Hér er önnur falleg prímúla, og hér má sjá brumin á prunus Triloba. rósamandlan mín, og fremst er stamminn á Sakurakirsuberjatrénu, þar eru brumin líka alveg að koma út.   Kirsuberjatréð er líka með þroskuð brum og perutréð líka, svo þetta er allt að koma.

smárós

Þessi minirós er alltaf jafn falleg, hún hefur staðið allan veturinn í blóma.

IMG_2703

Bergflettan og larsaklukkan taka sig líka vel út á þessum tíma.

Blómakveðjur frá Ísó.


Mánudagur.

Við fórum í sund í kvöld, og þvílíkt sem þessi litla stúlka er ákveðin, hún vildi ekki nota kúta, og synti hundasund eins og ekkert væri, ég var skíthrædd allan tímann og mátti ekki sjá af henni, en glætan að hún fengist til að hafa kútana.  Vá hvað það rifjast upp fyrir mér ýmislegt um hana dóttur mína. LoL

En svona er lífið.

IMG_2692

Model Mexicó

IMG_2698

Eftir sundið var lesið í eðalbókmenntum eins og gengur.  Áður en farið var að sofa.

IMG_2695

Svo er þetta hið daglega veður takið eftir birtunni, sólin kíkti nefnilega í heimsókn smá stund.

Segi bara góða nótt og sofið rótt.


Íslendingar - sérstakir.

Var að fá þetta sent frá mágkonu minni.  LoL

 

Subject: FW: Íslendingar
>
>
>
>
>
> +15°C
> Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
> Íslendingar liggja í sólbaði.
>
> +10°C
> Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
> Íslendingar planta blómum í garðana sína.
>
> +5°C
> Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
> Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
>
> 0°C
> Eimað vatn frýs.
> Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkara.
>
> -5°C
> Fólkið í Kaliforníu frýs næstum til dauða.
> Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
>
> -10°C
> Bretar byrja að kynda húsin sín.
> Íslendingar byrja að nota langerma boli.
>
>
> -20°C
> Götusalar byrja að flýja frá Mallorca .
> Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!
>
>
> -30°C
> Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
> Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
>
>
> -40°C
> Eiffelturninn byrjar að gefa eftir í kuldanum.
> Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
>
>
> -50°C
> Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
> Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru vetrarveðri.
>
>
> -60°C
> Mývatn frýs.
> Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
>
>
> -70°C
> Jólasveinninn heldur í suðurátt.
> Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti.
> Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
>
>
> -183°C
> Örverur í mat lifa ekki af.
> Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
>
>
> -273°C
> Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
> Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
>
>
> -300°C
> Helvíti frýs!
> Ísland vinnur Eurovision!
>
>
Wizard


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Feb. 2008
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband