Mánudagur.

Við fórum í sund í kvöld, og þvílíkt sem þessi litla stúlka er ákveðin, hún vildi ekki nota kúta, og synti hundasund eins og ekkert væri, ég var skíthrædd allan tímann og mátti ekki sjá af henni, en glætan að hún fengist til að hafa kútana.  Vá hvað það rifjast upp fyrir mér ýmislegt um hana dóttur mína. LoL

En svona er lífið.

IMG_2692

Model Mexicó

IMG_2698

Eftir sundið var lesið í eðalbókmenntum eins og gengur.  Áður en farið var að sofa.

IMG_2695

Svo er þetta hið daglega veður takið eftir birtunni, sólin kíkti nefnilega í heimsókn smá stund.

Segi bara góða nótt og sofið rótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Dásamleg stúlka Ásthildur mín en ég skil þig mjög vel.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.2.2008 kl. 22:37

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Ásthildur. Ég saknaði þess að sjá þig ekki á þorrablótinu okkar en sá einhversstaðar að þú hefðir ekki átt heimanaðgengt. Við sjáumst síðar kveðja til þín og þessarar fallegu stúlku. kveðja Kolbrún.

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.2.2008 kl. 23:40

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

góða nótt, núna ertu með óla lokbrá, ég ætla þangað líka núna. kannski hittumst við, hver veit!

Bless í bili

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Kannast við það með kútana, hún yngri dóttir mín er þannig að hún neitar að hafa armakúta, ég er nú farin að neita að fara í sund með hana nema að hún hafi kúta, það virkar stundum

Guðborg Eyjólfsdóttir, 19.2.2008 kl. 01:41

5 Smámynd: Laufey B Waage

Lengi lifi sjálfstæði ungra kvenna.

Laufey B Waage, 19.2.2008 kl. 07:57

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Katla mín

Takk Gréta mín

Kolbrún já því miður fór allt í vaskinn hjá mér, eftir að ég varð veðurteppt bæði í Danmörku og svo í Reykjavík.  En ég saknaði ykkar líka.  Það er komin þörf á að hitta hópinn. 

Jamm Óli Lokbrá læðist inn tra la la

Guðborg ætla að reyna þetta næst, ég var eins og fló á skinni með stelpuna mína.  Þetta gæti virkað.

Góðan daginn Blue mín.

Já Laufey lifi sjálfstæðið, ég er svo sem ánægð með að hún skuli vera svona þrjósk og sjálfstæð.  Mamma hennar var svona líka og hún er sterk og dugleg.

Hahaha Hallgerður, Óli Lokbrá kemur með svefnduft og stráir í augun svo maður dreymir fallega og vel ekki satt ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2008 kl. 08:27

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ein orðin soldið sybbin í afafaðmi

Hrönn Sigurðardóttir, 19.2.2008 kl. 09:39

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Eplið dettur sjaldnast lang frá eikinni.Mér finnst þrjósk börn frábær meðan það er ekki frekjuþrjóska.Snúllan er bara að kanna heimin og getu sína og það er frábært,ekki væri gott að hún þyrði engu.En skil þig að vera með lífið í lúkunum ,litlir ogurhugar geta reynt á.

Solla Guðjóns, 19.2.2008 kl. 10:08

9 Smámynd: Solla Guðjóns

oFurhugar áþetta að vera

Solla Guðjóns, 19.2.2008 kl. 10:09

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt Solla mín, þau reyna svo sannarlega á þolrifin, en ég er jafnframt ánægð með þessa þrjósku. 

Já Hrönn mín sybbin lítil stúlka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2008 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 2021019

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband