Eftir einn ei aki neinn - áminning í byrjun jólaskemmtana.

Mér barst þessi frásögn frá vinkonu minni Dísu.  Sagan á vel við núna þegar jólaglögginn fara að byrja og allskonar vinnustaðaskemmtanir, ef einhverjar verða í ár það er að segja.  En hér kemur hún.  Hún heitir; Eftir einn ei aki neinn:

 Varúð, þetta er þriggja klúta saga. Smile

Eftir einn ei aki neinn.

Saga úr lífinu.

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa

gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

 

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði ; Þetta

á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga

staði.

 

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju

árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað

svo eftir jólin.

Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða

verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr

leikföng.

Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára,

Sem hélt ádúkku upp við brjóstið sitt.

 

Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.

Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina

á honum; amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?

Gamla konan svaraði; þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan

mín'.  Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði

sig um.

Hún fór fljótlega.

 

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til

hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. “Þetta er

dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.

Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana”.

 

Ég sagði honum að kannski ætti jólasveinninn eftir að koma með

dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur.

En hann sagði við mig sorgmæddur “Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar

sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni

hana þegar hún fer þangað”. Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann

sagði þetta.

“Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að

mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti

farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana”.

 

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og

sagði “Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni'”

Svo syndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. “Ég

vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei.

Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara,

en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni”.

 

Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög

hljóðlátur.

 

Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði

við strákinn “en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að

þú eigir nógan pening?”

 “Allt í lagi!” sagði strákurinn “ég vona að ég eigi nóg”

 

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því

og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og

meira að segja smá afgangur.

  

Litli strákurinn sagði “Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening”.

Svo leit hann á mig og sagði '”Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég

Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt

Dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín.

Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa

mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg

til að kaupa rósina líka.  Sko! mamma elskar hvíta rós”.

 

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég

kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um

litla strákinn.

 

Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan; maður ók

drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru.  Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái.  Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að

unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.

 

Var þetta fjölskylda litla stráksins?

  

Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að

Unga konan hefði dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og

keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð

konuna og kvatt hana í seinasta skipti áður en hún yrði jörðuð.

 

Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni

af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

 

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar.

Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn

þann dag í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður

þetta allt frá honum.

angel

Eigið góðan dag elskurnar.   Og munið predikun dagsins.  Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Mér finnst samt að það ætti ekki að þurfa að segja manni þetta, þetta ætti að vera svo sjálfsagður hlutur hjá öllum. En ég veit að svo er ekki og ég mun predika þetta áfram  

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 20.11.2008 kl. 11:32

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta eru orð í tíma töluð. Ég var einu sinni með partí og ein sem var orðin vel hífuð tók allt í einu upp á því að hún ætlaði að fara til vinkonu sinnar og fara á bílnum. Ég reyndi að stoppa hana en það var ekki vinnandi vegur. Hún fór og ég var að hugsa um að hringja á lögregluna til að stoppa hana strax  en ákvað svo að ég gæti ekki gert henni það. Vinkona mín eyðilagði nýjan Volvo sem hún var og annan bíl þegar hún dúndraði aftan á hann. Sem betur fer slasaðist enginn   en ef svona gerist aftur hjá mér mun ég ekki hika við að hringja.

Helga Magnúsdóttir, 20.11.2008 kl. 11:36

3 identicon

´

  Ég var búin aðfá þessa sögu,og´fékk tár í augun við að lesa hana

 Kíktu á það sem ég ,,bloggaði" síðast  Kveðja Svanna

Svanfríður G. Gísladóttir (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 11:40

4 identicon

Ég hef hringt á lögguna nokkrum sinnum, vegna þess að ef eitthvað hefði komi fyrir þá væri væri ég samsek og það kæri ég mig ekki um. Hringdi um daginn vegna sonarins vegna þess að hann var í svo kolbrjáluðu skapi að hann var stórhættulegur í umferðinni. Og mun áfram hringja ef einhver sem ég veit um fer af stað á bíl í óökuhæfu ástandi.

Knús vestur í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 12:01

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Stelpan mín fékk þessa sögu senda og sendi mér....Ég heyrði ekkasog innan úr herbergi hennar og athugaði með hana ....hún spurði mig hvort ég hefði ekki fengið póstinn....sem ég var ekki búin að skoða.Hún sagði ..mamma þetta er svo hræðilega sorglegt en samt svo falllegt......bætti síðan við.. það ætti að skjóta alla sem voga sér að keyra undir áhrifum.

Ég bað hana að muna þetta þegar kæmi að því að hún fengi bílpróf....þangað til og ávallt skyldi hún aldrei setjast upp bíl þar sem grunur léki á að bílstjóri væri undir áhrifum...og ávallt reyna að hefta för þeirra sem hyggjast setjast undir stýri eftir einn...

Þetta er frásögn sem snertir mann svo sannarlega.

Solla Guðjóns, 20.11.2008 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 2021004

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband